Heimskringla - 11.03.1931, Side 3
WINNIPEG 11. MARS 1931.
HEIMSKRINGLA
3 BLAÐSÖJA
Vestur-Islendingar væru þangað boðn
ir til kaffidrykkju, og þess annars
góðgætis, sem því venjulega fylgir
hjá lslendingum, hvar í heimi sem
þeir eru. Lét eg ekki það boð undir
böfuð leggjast, af tvennum ástæð-
nm. Mér var kalt, því veður var
hráslagalegt og kalt, stormur með
akúrum allan daginn, þó þolanlegt
4 milli, enda forvitin eins og vant var
•— vildi sjá hvernig þjóðbræður okk-
ar heima færu með gesti sína. Höfð-
um við Marta okkur nú inn og geng
nm tjaldið á enda. Voru borð til
"beggja hliða að endilöngu, og eitt
fyrir stafni, sem nefna mætti há-
"borð, þó ekki væri það nú hærra en
hin. Að þvi borði settust hinir út-
vóldu; þektu sjálfir hvar þeir átta
tieima, auðvitað. Við hin höfðum
■okkur að hliðarbekkjunum. Var þar
gott að vera, þó ilt væri inn fyrir
borðið að komast. Þar var kunn-
ingi minn Laxdal frá Dakota, með
fleirum, sem eg kannaðist við. Með-
an við sátum þarna og hrestum sál
og likama, kom þar að maður nokk.
■ur, sem mér leizt strax sérstaklega
vel á. Hann mundi nær miðjum
aldri, þ. e. nær fertugu, meðalmaður
4 hæð og vel bygður, með gáfuleg
augu, grá eða gráblá. Yfirlætislaus,
1 búningi, sem fór vel, líkt og vel til
fara Vestur-Islendingur, og frjáls-
Þægileg leið
til Islands
Takið yður far heim með eimskip-
um Canadian Pacifie félagsins.
þá verðið þér samferða mörg-
um Islendingum. Þér mun-
uð njóta ánægjulegrar
ferðar, góðrar þjónust.
Agætra máltiða, og
allra þæginda er hið
volduga flutninga
félag hefir til
að bjóða.
■Skrifið eftir upplýsingum um far-
bréfaverð til Evrópu er innifelur
allan kostnað.
Gerið fyrirspurnir til umboðs-
manna á staðnum eða til W. C.
CASEY, Gen. Pass. Agent, C.P.R.
Bldg., Winnipeg, Phones 25 815,
25 816.
CANADIAN PACIFIC
STEAMSHIPS
mennlegur að sama skapi. Bjart
var yfir honum og viðmótið vin-
gjarnlegt. Þessi maður lét sér mjög
ant um, að við þarna, nafnlausa, þ..e.
sauðsvarta vestur-íslenzka alþýðu-
fólkið á bak við hliðarborðin, hefð-
um alt það góðgæti, sem risna og
gestrisni Skagfirðinga hafði fram að
bjóða. Þessi maður er séra Tryggvi
Kvaran, sagði einhver, þegar hann
veik frá borðinu. Mér þótti vænt um
að vita hver hann var, þessi maður,
sem mér leizt svo drengilegur á svip,
í vexti og viðmóti. Eftir að hafa séð
manninn, sannfærðist eg um, að til-
gáta mín hér að framan, viðvíkjandi
minni Vestur-íslendinga var rétt. Er
sú tilgáta mín rétt, séra Kvaran.
Hér mættum við Vestur.Islending-
ar, sem annarsstaðar, bróðurhug og
gestrisni, sem aldrei ætti að gleym-
ast. Að öllu þessu afstöðnu var dag-
ur að kvöldi kominn, þ. e. a. s. eftir
mælikvarða klukkunnar, þó ekki
skygði enn að um þenna tíma árs.
Fóru menn því að hugsa til heim-
ferðar, enda sumir farnir. Mátti þó
enn heyra söng og glaðværð frá sam-
komustaðnum, útþangað sem fólk
var að tygja sig til brottfarar. I
þeim hóp eða hópum, sem voru að
tygja sig til brottfarar, var Brim-
nesfólkið. Hafði sumt af því komið
ríðandi, en sumt með ' drossíu”. —
Hvað þessi drossía var, vissi eg þá
ekki, en spurði þó enskis, því mér
var sagt, að með henni ætti eg að
fara, þ. e. a.s. ef eg væri ekki sjó-
veik, og það kvaðst eg auðvitað ekki
vera. Vissi eg því, að eg myndi
bráðlega ganga úr skugga um, hvað
hér væri um að ræða. Einhver pilt-
anna átti að lána Mörtu hest sinn,
af því að hún væri sjóveik. Eg vissi
því, að hér væri þá um sjóferð að
ræða fyrir mig, og lét eg mér það
vel líka. Drossían er skip, knúð með
rafmagni, gasi eða olíu. Jæja, við
komum að Brimnesi kringum kl. 1
e. h. og hitt fólkið litlu seinna.
Veður var kalt meiri hluta þessa
dags, nema helzt um miðjan daginn,
því þá sást til sólar af og til.
Með kvöldinu tók að hvessa og
rigna, og öllum varð duglega kalt 4
leiðinni heim. Frá lendingarstað á
Brimnesi er góður spölur heim að
bæ, og á fótinn meira en hálfa leið,
og mér varð heitt á göngunni heim.
Aldrei var eg syfjuð á Islandi, hvað
seint sem háttað var, fanst eitthvað
óeðlilegt að hátta í björtu. En þar
er einatt dagur, á meðan eg var
heima — að þessu sinni. En samt
háttaði eg nú sem aðrir og sofnaði,
og svaf vel í íslenzkri torfbaðstofu.
Þannig endaði þessi viðburðaríki
dagur.
Frh.
Hegningar
Frh.
Prepare Noiv!
Better times will come, much sooner
than most people anticipate. The re-
sult will be a keen demand for steno-
graphers, secretaries and bookkeepers,
to fill the openings made vacant by the
late financial depression. Right now,
office staffs are cut to the limit, and
many who have been dismissed have
gone into other occupations, or have
left the City. Besides, the number now
training for business is considerably
below the average.
A Thorough School!
The “Success’’ is Canada's Largest
Private Commercial College, and the
finest and best equipped business train-
ing institution in Western Canada. It
conducts Day and Evening Classes
throughout the year, employs a large
staff of expert teachers, and provides
sufficient individual instruction to per-
mit every student to progress according
to his capacity for study.
In twenty-one years, since the founding of the “Success” Busine3s
College of Winnipeg in 1909, approximately 2500 Icelandic stud-
énts have enrolled in this College. The decided preference for
“Success” training is significant, because Icelanders have a keen
sense of educational values, and each year the number of our
Icelandic students shoWs an increase. .
Day and Evening Classes
OPEN ALL THE YEAR
The SUCCESS BUSINESS COLLEGE, Ltd.
PORTAGE AVENUE AT EDMONTON STREET.
PHONE 25 843
sent
*
morð.
Ekki þarf að ætla að vorkunnsemi
hafi verið aðal driffjöðrin til þeirra
umbóta, þvi enn eru menn viljugir
til að brenna meðbræður sína lifandi
fyrir litlar eða engar sakir og liggja
úti hríðskjálfandi heilar nætur í von
inni um að fá að vængbrjóta fugl
við fyrstu geisla morgunsólarinnar
Manneðlið tekur afar litlum breyt-
ingum á hverjum aldatugi; en þekk-
ingin smá eykst, og fyrir langdregna
ótvíræða reynslu, hefir mönnum loks
ins skilist, að refsing eykur glæpi
en eyðir þeim ekki.
Til áréttingar þeirrar staðhæfing-
ar vil* eg benda á nokkur orð, sem
merkt tímarit I Bandaríkjunum hef.
ir eftir Lewis A. Lowes, forstjóra
hins fjölmenna og heimsfræga tugt-
húss Sing Sing. Hann segir, meðal
annars: “Dauðadómar hafa aldrei
hamlað morðum; það er sannleikur-
inn. Þingmenn vita það, dómarar
finna það; ríkislögmenn játa það, og
flestallir fangaverðir eru sannfærðir
um það. Meira að segja, þess frek-
legar, sem þeim lögum er framfylgt,
og þess fleiri sakir sem varða við
dauðadóm, þess meira vex þörfin fyr
ir harða dóma yfirleitt. En þrátt fyr
ir það mætti hver tilraun til afnáms
dauðadóma harðlegum mótmælum.
— — — Einn fylkisstjóri þjóðar
vorrar sagði nýlega, að eftir að
dauðadómar hefðu verið uppteknir á
ný, hefði morðum fjölgað um helm-
ing í sinu ríki.” Ennfremur segir
hann: “Það er eftirtektarvert, að
sölur á skammbyssum hafa þrefald-
ast hina fyrstu sjö mánuði þessa
árs, samanborið við 1929, en 75 pró-
af öllum morðum eru skot-
Samt er mikil tregða til lög-
leiðslu til takmörkunar á tilbúningi
og sölu skotvopna.
Svo mörg eru þau orð, og út úr
þeim gægist það eitt, að það eru
peningamir, sem glæpunum valda og
viðhalda. Þegar hart er í ári, þá
margfaldast glæpirnir, og engin lög,
hversu ströng, sem þau kunna að
vera, fá veitt hið minsta viðnám. Sá
sem glæpinn fremur, gerir það ann-
aðhvort í stjórnlausum ofsa, eða þá
að hann býr svo um hnútana, að
hann hyggur að þeir verði ekki leyst
ir. Lögin og dómarnir koma því
ekki málinu við fyr en um seinan er
orðið, og þá aðeins til þess að bæta
nýjum glæp við hinn. Eg get skilið
að ýmsar freistingar, i þessum
heimska kapítalistaheimi, geti knúð
lítt hugsandi ólánsmenn til verstu
glæpa, en sá, sem getur setið í hæg.
indastól og með köldu blóði dæmt
af meðbróður sínum lífið, er verri
maður en eg get hugsað mér. Það
er ekki von að fáskrúðugur almenn-
ingur beri lotningu fyrir lögunum
og lífi manna, meðan réttvísin er
þannig innan brjósts. Jafnvel kirkj-
an komst að raun um, að helviti
væri sér bara til bölvunar.
En það er svo fyrir að þakka, að
til er bæði létt og einföld leið til
lækningar þessa meins, og á hana
verður sæzt fyr eða síðar. Eg er
svo bjartsýnn- að ímynda mér, að
það verði frekar fyr en síðar, þrátt
fyrir heimskuna og hræðsluna. sem
ofan á fljóta, þvi “neyðin kennir
naktri konu að spinna”. Mannkyn-
ið ferst innan fárra ára, sættist
menn ekki á að samferðast þá einu
leið, sem út úr ógöngunum liggur.
Það verður, blátt áfram sagt, að af-
nema óréttinn, sem Öðru nafni nefn-
ist eignarréttur. Ef það er gert, þá
hverfa glæpir eins og þoka fyrir
sól, og fátækt og erfiðleikar þekkj-
j ast ekki framar. Jafnvel læknar geta
þá farið að kynna sér og segja fólki
sannleikann án þess að tapa lífs-
viðurværi sínu fyrir vikið.
Sumum mun eflaust finnast þetta
nokkuð svæsilega til orða tekið, en
svo er nú einu sinni högum háttað
í þessari tilveru, að sannleikurinn er
æfinlega róttækur. Þegar til eðlislag
anna kemur, þá er ekki lengur hægt
að miðla málum, og læknar ættu
manna bezt að vita, að það dugir
ekkert minna en að taka fyrir rót
hvers sjúkdóms, ef varanlegs bata
á að vænta. Veit eg vel að það er
fremur sjaldgæf aðferð nú á dögum,
sem von er, þvi ósanngjámt væri að
búast við að ein stétt manna sé svo
hátt upp hafin yfir aðrar, að hún
megi við að kasta brauðinu frá
munni sér til að bjarga hinum og
þessum til betra heilsufars. Þegar
peningarnir eru úr sögunni, þá batn-
ar heilsufarið, eins og trúin, hag-
fræðin og þekkingin, og hinn svo.
nefndi kærleikur, því að það verður
svo áþreifanlega hverjum og einum
fyrir beztu. Það nefnilega “borgar
sig” þá — og það vilja alilr. Það
er ekki til nokkurs hlutar að stýfa
hausinn af Canada-þistlinum, þvi
tvær eða fleiri nýjar stengur koma
í staðinn. Okkur er sagt að guð
sjálfur hafi ekki getað látið hin
fyrstu syndlausu foreldri í aldingarð-
inum hlýða — sem betur fór — því
eina lagaboði, sem hann gaf þeim,
þótt han nsegði þeim, að ef þau
blytu, mundu þau vissulega deyja.
Það var hinn fyrsti dauðadómur, er
sögur fara af; en jafnvel þótt af-
brotið yrði uppvist — sem fyrirsjá-
anlegt var — var dóminum að sögn
breytt í lífstíðar ánauð. Ef tréð hefði
verið upprætt áður en á steyttist,
þá hefði aldrei til neinna vandræða
horft.
Alt, sem við þurfum að gera, er
að uppræta tréð — tréð, sem er rót
alls ills — o gþá verður jörðin að
‘inum aldingarði á ný og mennirnir,
svo að segja fyrirhafnarlaust, að
^ælum og sannvitrum verum.
—P. B.
SÉRFRÆÐIGREIN VOR ER, AÐ BLANDA OG BQA UPP
TE — SÉRHVER PAKKI ER BÚINN UPP AF SÉRFRÆÐ-
INGUM í ÞJÓNUSTU VERKSMIÐJUNNAR HÉR f WIN-
NIPEG — ÞETTA TRYGGIR YÐUR BEZTU TEGUNDINA
Blue Ribbon Limited
Vinur er sá
er til vamms segir
Kæri ritstjóri Heimskringlu og
vinir, sem eg vona að séu allir, sem
lesa þessar línur. ' -
Það er mikið rætt og ritað um á-
standið í heiminum ,og líklega enn
meira hugsað.
Eg skrifaði nokkrar hugleiðingar
mínar upp meðan Sigfús Halldórs
frá Höfnum var ritstjóri, og ætlaði
að senda blaðinu, en varð ekki af.
En nú ætla eg að láta það fara, ef
þú vilt ljá því rúm í blaðinu.
Mörg er búmanns raunin, sagði
gamall maður við mig einu sinni, og
hefir mér fundist það sannur máls_
háttur fyrir flestum, ekki sízt nú,
þó sumir af okkur liðum ekki meira
nú en verið hefir, fyrir sérstaka
þrautseigju, hepni og umlíðan lán-
veitenda.
Eg finn til þess að eg er einn af
smælingjum mannfélagsins, en finst
samt eg hafa öðlast vit til að láta
skoðun mína í ljós um daglegt líf
hér á jörð, sem einn af mannlegum
verum.
Það var einu sinni prestur að taka
við þjónustu safnaða meðal landa
sinna, og sagði eitthvað á þessa leið:
Við erum hingað komin hjónin með
það bezta, sem við eigum, til að gera
það bezta, sem við getum. Og það
er undir ykkur komið hvort þið
kastið því i sorpið.
Og eins segi eg fyrir mig og alla
þá, sem hafa lagt sig fram eftir
beztu vitund, orku og ástæðum sam
tiðarfólki sinu til góðs. En hversu
oft hefir það ekki verið gert, og er
enn. Og sérstaklega finst mér það
með hugsjóna- og umbótamenn og
konur á liðnum öldum. Já, og minni
tíð. Sérstaklega hefir mér fundist
það með presta og menn, sem hafa
reynt að endurbæta trúarbrögðin og
daglega lífið, og koma meira viti og
samræmi í hvorttveggja, og nema
burtu vitleysumar, að þeirra góðu
hugsjónum hefir verið kastað í sorp-
ið.
En út yfir tekur, þegar fólk seg-
ist trúa á Jesús Krist og les bænina
sem hann á að þafa kent (og eg tek
fram yfir aðrar): Faðir vor, þú sem
ert á himnum, Til komi þitt ríki
svo á jörðu sem á himni o. s. frv
Mér finst fávíslegt að biðja um
himnaríki á jörð og búast aldrei við
að það geti orðið, og vilja ekki heyra
talað eða ritað um jafnaðarfyrir
komulag. Einhvers staðar vantar
jafnvægi i hugsunina.
Mér finnast kenningar Krists vera
svo auðskildar, og sem eg held, að
þessi svokallaða siðmenning eigi að
byggjast á, að þar sé ekkert um að
villast; verður því oft á að hugsa
“Fyrirgef þeim, þvi þeir vita ekki
hað þeir gera.” "Það sem þið ger-
ið mínum minsta bróður, það gerið
]iér mér.” Og: “Sjáandi sjáið þér
ekki og heyrandi heyrið þér eigi né
skiljið”.
Eg efaðist ekki um einlægni prests
ins, er eg heyrði hann gera fyrnefndp,
yfirlýsingu, og fékk eg enn meiri
þrá og ljá mitt óskifta litla lið, að
hans góði vilji yrði ekki misvirtur.
og hefi þá löngun enn, og öllu að
ljá lið til umbóta sem þarf. “Oft
er þörf, en nú er nauðsyn.” \
En hvernig á eg að fara að því.
þar eð mér finst ég ekki geta trúað
jeirri trúarjátningu, sem hann og
sumt af fólkinu les, og leiðist að
heyra fólk lesa hana, af því að eg
get ekki skilið, að fólk, sem nokkuð
hugsar að mun, geti trúað svona.
Vinsamlegast,
Páll S. Johnson,
—Baldur,' Man.
FRÁ ISLANDI.
PTVARPIÐ OG FRETTIRNAR
Frá og með deginum í dag er
fyrirhugað aukning á fréttaflutningi
útvarpsins þannig, að i stað 10—15
mín. útvarpslesturs komi 20—25 mín.
lestur. — Um leið er starfinu skifc
milli tveggja manna. Til starfsins
eru ráðnir til reynslu: Asgeir Magn.
ússon kennari, til þess að hafa á
hendi fréttasöfnun innanlands og sér
Sigurður Einarsson, til þéss að gera
yfirlit tim heimsviðburði og til þess
að flytja daglega frásagnir af merk-
ustu atburðum og þeim málefnum
sem efst eru á baugi á hverjum
tíma í stjórnmálum og i menning-
arlegum efnum.
Það mun verða talið mikið í ráð-
ist af svo fámennri þjóð, sem Islend-
ingar eru, að byggja útvarpsstöð,
sem er ætlað að starfa með 16 kw.
orku og að halda uppi útvarpsstarf-
semi til nokkurar líkingar við það,
sem tíðkast meðal stærri þjóða.
A hitt verða allir sáttir að fáum
jjóðum muni vera slík þörf útvarps
sem íslendingum, sem búa í dreifðum
og sundurgirtum bygðum fjalla- i
lands, við strjálar póstgöngur og
þá samgönguörðugleika, semerusam- i
fara íslenzkum landsháttum. Er um
jað hér á*landi mjög ólíkt háttað
því, sem tíðkast víðasthvar erlendis,
þar sem járnbrautarkerfi tengir
saman bygðir mannanna, og þar
sem æðaslög þjóðlífsins og umheims-
ins berast daglega út í hvern af-
klma landsins. |
Þessar staðreyndir gera það á '
hinn bóginn ljóst, að fréttir þurfa j
að vera einn meginþáttur I íslenzkri
útvarpsstarfsemi. Enda mun það
vera samhuga á lit útvarpsráðsins
og allra þeirra, sem eiga þátt I
stjóm útvarpsins. Skal eg svo I
fáum orðum gera grein fyrir þvi,
hversu fréttastarfSemi útvarpsins
verður háttað, eftir því sem nú er
ákevðið og hvaða takmarki það hygst
að ná i þeirri grein. —
■Crtvarpið hefir skift fréttastarfinu
í tvent, eins og fyr var. Það heflr
gert samning við Fréttastofu Blaða-
mannafélagsins og hefir leyfi til þess
að notfæra sér fréttasöfnun hennar
eftir vild. Það hefir ráðið fréttarit.
ara í hverju héraði og kaupstað
landsins, Það hefir þegar og mun
framvegis afla sér beztu og áreið-
anlegustu erlendra blaða og tima-
rita, og það mun taka upp það sem
markverðast er í erlendum útvarps-
fréttum; enda hefir þáð þegar trygt
sér góðfúslegt leyfi helztu útvarps-
stöðva í nágrannalöndunum, til þess
að útvarpa frá þeim fréttum sem
öðru. Loks mun það verða á hnot-
skóg um það merkasta, er gerist i
lífi þjóðarinnar og menningarstarfi.
Mun það, við og við, flytja fréttir
frá stofnunum þjóðarinnar, skólum
hennar og verklegum framkvæmd-
um; flytja merkar bókafregnir og
annað það, er verða mætti til fræðslu
og skemtunar þeim, er á hlýða.
Þörf Islendinga, eigi sízt þeirra,
er í sveltum búa, að afla sér nóg-
(Framh. á 7. síðu.)
PHONE 87 647
*60 ALLOWANCE ON Y0UR
OLD RADIO OR PhONOGPAPH
ReQdrdless of its aQe.make or con -
dition as part payment on a Victor
Combinotion Home Recordino RatJio-
Eléctrola $397^5 2years topay
the balance. Phone 22-685. Open till íl
ÖWoáóttÍUd. SSœr*„oÝ.
THE BEST IN RADIO
Lowest Terms m Canadð
þér sem
notiff
T I M BUR
KAUPIÐ
A
The Empire Sash & Door Co, Ltd.
BlrgSir: Henry Ave. East Phone: 26 358
Skrifstofa: 5. gólfi. Bank of Hamilton
VERÐ GÆÐI ANÆGJA.