Heimskringla - 06.05.1931, Qupperneq 2
J BLAÐSffiA
rr'
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG 6. MAI 1931.
Opið bréf til Hkr.
Tileinkað vinum mínum, Mrs.
Rósu Casper, Blaine, Wash. og
K. N. skáldi á Mountain, N. D.
Júlí 22. Þriðjudag.—Enn þá er
sudda rigning og þoka. Að
morgunverkum loknum, eiga
þau hjón annríkt við símann
og póstafgreiðslu, og líður svo
fram yfir kl. 10. Hestar eru
í burtu, og enginn til að sækja
þá, nema átta eða níu vetra
gömul stúlka ,dóttir þeirra
hjóna. Allir aðrir eru við slátt,
tveir synir hjónanna, báðir ungl
ingar, vinna eða kaupakonur
tvær og einn fullorðinn karl-
maður. Þótti bónda rekjan góð,
og vildi víst ekki taka fólk frá
slætti. En þess urðum við var-
ar, að litla stúlkan hlakkaði
ekki til að fara ein út í þok-
una, enda máske þrír hestar
óþægilegt föruneyti barninu.
María Hansdóttir, sem nú var
komin í vinnuföt sín, kné-bræk-
ur, rubber stígvel og þ. k.
bauðst til að fara með henni.
Bauðst Marta til að fara með.
Varð það úr, að þær fóru þrjár
eftir hestunum og komu með
þá innan kiukku stundar. Báð-
ar vorum við Marta í reiðföt-
um okkar á þessu ferðalagi.
Svo þegar hestarnir komu, var
okkur ekkert að vanbúnaði.
Því voru þrír hestar sóttir, að
frú Jónína reið með okkur.
Um það leyti sem við lögðum
upp var farið að birta í lofti og
þokan smá flúði sólina, og varð
þá gott veður þegar sólar naut.
Við riðum braut sem leið lág,
norður að Dalsá (Melrakka-
dalsá) Þar voru menn við
brúargerð á ánni, og er hún
að öllum líkindum nú fullgjör.
Fyrst riðum við að Jörfa, þar
var eg 4 ár, tvö og tvö í sinn,
— eins og fyr er á drepið, —
hjá þeim Helga Bjarnasyni og
Guðbjörgu Aradóttir. Dóttir
þeirra Guðrún, var ein af þeim
sálum, sem eg hef þekt beztar
og næst því að vera fullkomnar
— guði líkastar — eins og eg
hef hugsað mér hann, á allri
æfi minni, og gáfuð og falleg
að sama skapi. Hár hennar
mikið og fagurt eins og lýsi-
gull á litinn. Eg held eg hafi
aldrei séð fallegra hár. Eg
get séð það — lifandi, glans-
andi — með sólina — sólargull-
ið í sjálfu sér. Eg sé Guðrúnu
æfinlega þegar eg hugsa til
hennar, og eg geri það oft,
því kærari vin hefi eg aldrei
átt. Þegar eg kom fyrst að
Jörfa mun eg hafa verið 7
ára en hún 5. Eg varð strax
smali og hesta-strákur eða
stelpa. Þar var fátt fólk, for-
eldrar hennar — bæði við ald-
ur, einkum faðir hennar, öld-
rúð vinnukona, og ungur vinnu-
maður, og engin börn, nema
við. Það var því ekkert undar-
legt þó okkur yrði vel til vina.
Eg munaðarleysingi, í fyrsta
j sinn úr föðurhúsum, þunglynd
| og fáorð. Hún var sólin, sem
vermdi hjarta einstæðingsins
l frá að verða úti á mannslífs-
gaddinum, þegar eg var send
eftir fénu, þurfti Gunna að
fara með mér — vildi helzt
æfinlega fara, þegar gott var
veður, en fékk ekki nema um
stutta leið væri að ræða. Væri
eg send eftir einum hesti, og
hann ekki of langt í burtu, fór
hún bratt að fara með mér, því
þá reiddi eg hana ýmist fyrir
framan mig eða aftan, þar til
hún varð fær um að ríða ein.
Hvernig mér gekk að tosa henni
á hestbak, fyrsta sprettinn, fóru
engar sögunr af. En líklega
hefir foreldrum hennar ekki
þótt slíkt ferðalag meira en í
meðal lagi tryggilegt því Guð
rún fór miklu sjaldnar en hún
vildi. Við lékum okkur saman
úti þegar tími var til. Hún
átti hús á Ásnum rétt fyrir
vestan túnið, og annað áttum
við báðar í grastó, uppundir
skriðum. Það hús var bara
einföld steinaröð — en þeir
steinar voru málaðir rauðir,
bláir eða grænir. Mál það,
voru mjúkir steinar, allavega
litir, sem mikið var af þar í
skriðunum. Við settum saman
fíflufestar og í þær festar
hnýttum við alskonar blómum
og skreyttum hver aðra. Á
vetrum lásum við alt sem hönd
á festi jafnvel þá, og lærðum
náttúru ljóð Steingríms. Skúla
skeið Tomsens — því báðar
vorum við elskar að hestum,
og Helgi átti ekki nema fallega
hesta. Savitri og Sakuntala
heillaði huga okkar — við lás-
um, lærðum og lifðum á og í
æfintýrum Austurlanda. Saman
áttum við okkur sér heim —
dýrðlegann drauma heim, sem
lukti okkur örmum sínum, þeg-
ar annir ekki kölluðu til starfa.
Fyrir utan þennan heim deildi
hún með mér öllum þeim gæð-
um, sem henni féllu í skaut
fram yfir mig, að svo miklu
leyti sem unt var. Hugulsemi
hennar má marka af einu smá-
atviki, sem mér aldrei gleymist,
því hún var hvervetna eins.
Baðsofan var lítil. Helgi svaf
í Lokrekkju undir hlíð. Tók
höfðalagði að stafni. Þær
mæðgur sváfu í stafnrúmi.
Undir glugga — hliðarglugga
-tóð lítið borð í stafgólfi þvi,
er nefnd rúm voru í. í fremra
stafgólfi baðstofunnar — þau
voru bara tvö, og hvert staf
gólf ein rúmlengd — sváfu
vinnukona og vinnumaður
hvort á móti öðru, og eg hjá
vinnukonunni. Einu sinni var
hvorugt vinnuhjúanna heima —
það var að vetrarlagi og nóttin
löng og dimm. Og nú átti eg
að sofa ein — alein — í þessu
stafgólfi, og eg var myrkfæl-
in — ó, svo afskaplega myrk-
fælin. Eg fór þegjandi í rúm-
ið, breiddi rúmfötin upp yfir
höfuð og grét af kvíða fyrir
nóttinni og myrkrinu sem
henni var samfara — grét í
hljóði. Því aldrei kom mér til
hugar að kvarta, og aldrei grét
eg svo aðrir sæu eða heyrðu.
Ekk ileið samt á löngu áður
Guðbjörg sótti mig og lét mig
sofa þá nótt tíl fóta þeirra
mæðgna. Guðrún hafði komið
að rúminu mínu og komist að
hvernig mér leið, og sagði móð-
ir sinni frá hvernig á stóð.
Guðbjörg var elskuleg kona,
og það hefir ekki verið erfitt
að fá hana til að miskuna mér.
Engu að síður var það fyrir
bænastað barnsins hennar.
Hvernig Guðrúnu datt þetta í
hug, veit eg ekki. Máske setti
hún sig í mín spor og gat sér
nærri um ástand mitt, þó hún
ung væri. Þarna var eg þá í
tvö ár. Þá sótti faðir minn mig j
og eg fór með honum vestur í
Geiradal í Barðastrandasýslu.
Hann dó árið áður en eg var
fermd, eða strax árið eftir
skrifaði eg vinstúlku minni, og
fyrir henanr milligöngu réðist
eg sem vinnukona að Jörfa, en
nú reyndist mér veran þar
mjög á annan veg, en meðan j
eg var þar barn. Bæði voru |
þau Guðbjörg og Helgi barn-
góð. En Helgi var vinnuharður
við vinnukonur sínar — ætlað-
ist ekki einungis til kvenmanns,
heldur og karlmanna verka af
þeim. Svo þó mér sé jafnan
hlýtt til þeirra beggja — enda
á eg Helga margt gott upp að
j unna — þrátt fyrir vinnuhörku
/turret
cuf V/rg/n/a
TOBACCO
TURRET SMÁ SKORIÐ VIRGINIA T6BAK
z
undi eg þar ekki nema tvö ár
í þetta sinn. Ekki breytti það
vináttu okkar Guðrúnar, sem
varð þessi árin, dýpri og inni-
legri, og bygðist á sannari skiln
(ingi andlegs og' karakterlegs
; verðmætis. Skapgerðarfegurð
og gö.fgi, sem mig óraði fyrir á
barnsárum mínum, hjá henni,
varð mér nú full ljóst, og hefir
verið síðan. Frá Jörfa fór eg
j að Kárastöðum. Það var í
þeirri ferð sem eg var nærri
því að farast í hvíslunum á
Skriðuvaði, eins og fyr segir.
Tveim árum seinna fór eg vest-
ur um haf. •
Árið 1912 frétti eg lát Guð-
rúnar vestur til Vancouver, B.
C. Þann vetur var eg á ferð
vestur á strönd. Dauða Guð-
rúnar bar að á einkennilega
sorglegan hátt. Hún varð úti
í Jörfa landareign, þar sem hún
hafði eitt nálega allri æfi sinni,
og þekti því eins og hendurnar
á sér. Á æskuárum sínum þyr-
sti hana eftir mentun, en fékk
hana ekki, nema á snöpum.
Undarlegt, að Helgi, sem var
náttúrugreindur í bezta lagi,
skyldi neita þessu eina barni
sínu — sem var sköpuð til
sh'ks, fram yfir flesta aðra,
neita henni um þessa ósk, sem
honum var þó innanhendur að
uppfylla, og með þeirri neitun
I eyðileggja, þá glæsilegu fram-
tíð, sem á þann háfct hefði orð-
ið hennar. — Undarlegt! —
Guðrún var kvenmaður! — Það
var svo sem ekki til mikils að
setja hana — stúlkuna til
menta. — Og þó, gaf hann
henni meiri mentun þ. e. sanna
mentun — en kvenfólk alment
fékk í þá daga. Hvaða gang
gerði það henni? —það: Að
hún skildi þeim mun betur
; hvers virði mentunin er. Hana
þyrsti, því meirá sem hún
! drakk af þeim bikar. Öll ráð —
jafnvel um hennar eigin hagi,
voru tekin af henni — öllu
heldur — hún fékk aldrei neinu
að ráða, sem nokkru skifti, með
an faðir henanr lifði. Svo þeg-
ar hann lézit, og hún loks varð
að taka að sér meðferð fjár
síns, var hún enn barn í þeim
sökum, þó um það að vera mið-
aldra kvenmaður. Hreinhjört-
uð og ótortryggin eins og barn,
leitaði hún annara ráða, og
treysti, þar til ekki gat verið
um að villast, að því trausti
var misboðið. Þegar Guðrún
| loksins vaknaði til meðvitund-
ar um það, leitaði hún sýslu-
manns, til að leiðrétta hlut
sinn. H°un færðist undan og
neitaði ’ ,Ts með öllu. Það var
ekki Dé rvænlegt að taka að
sér málstað munáðarleysingj-
ans, hvers efnahagur var að
þrotum kominn. Hvað gerði
Guðrún þá! — Hvað hefðir þú
gert? Flest af okkur konunum
ekki mikið. er eg hrædd um. —
En Guðrún sýndi þá, að hún
hafði einhverntíma lesið sér
til gagns. Hún sýndi sýslu-
manni, að samkvæmt lögum,
sem hún benti honum á, gæti
hann ekki skorast undan að
taka kúöfpr hennar til greina,
og ef han naðeins gerði skyldu
sína, væri málstað hennar borg-
ið. Og í þetta sinn áigraði vit
hennar og vilji.
Þetta var mér nú sagt til
dæmis um sjálfmentun hennar,
af konu, sem vissi.
En þrátt fyrir þennan sigur.
gengu efni hennar til þurðar.
og hún lifði einmanalegu, gleði
sneiddu lífi. Hún gat ekki átt
samleið með fjölcjanum — og
aðeins með þeim, sem voru
samarfar hennar í þeirri and-
legu veröld, sem fáir gynnast
— og færri lifa í, þessumegin
grafar. Hún var ein af þeim,
sem flestum finnst ósjálfrátt
standa sér svo miklu ofar, að
til þeirra verði eki náð á venju-
legan hátt, — eða þá, ef til
vill, ekki með öllum mjalla.
Svo vegna skilningsskort — og
samhygðarleysis varð Guðrún
úti, löngu áður en dauðinn tók
hana á brott með sér, og flutti
hana til sælli heima. Hversu
margir eru þeir ei, sem þannig
verða úti?
Eg hefði fegin viljað sjá leiði
Guðrúnar. En þess var enginn
kostur. Hún lá í Þingeyra
kirkjugarði. Eg vildi þá sjá
Jörfa — hamingju og harma-
stöð henarn. Mér fannst hún
myndi vilja það, og þess vegna,
var eg þangað komin. Þar býr
nú Jón Tómasson. Hafði hann
keypt Jörfa að Guðrúnu látinni.
Þangað tii var Jörfi kirkjueign
— heyrði undir Þingeyra kirkju.
Guðrún mun hafa haft lífstíðar
ábúðarrétt á jörðinni, eins og
faðir hennar.
ViSS MERKI
kemur af því að nýrun hreinsa ekki
eitraðar sýrur úr blóðinu. Gin Pilla
veita lækningu með því eyðileggja
sýrur þessar og koma nýrunum aftur
til að starfa eðlilega. — Kosta 50cr
í öllum lyfjabúðum.
UM VIÐA VERÖLD
Vísindi og stjórnmál.
Prófessor Myrdal
um endurskoðun hagfræðinnar.
f stjórnmálaumræðum víða
um lönd heyrist oft um það tal
að, að þetta eða hitt sé í sam-
ræmi eða ekki í samræmi við
vísindalega hagfræði. Eitt er
pólitík, annað er haðfræði, eitt
er stjórnmál, annað er stjórn-
fræði Stjórnmálin eru þá þær.
skoðanir sem flokkar og ein-
staklingar hafa á þeim viðfangs
efnum sem fyrir hendi eru og
geta mótast af mörgu öðru en
því sem rétt væri og hagan-
legast, eiginhagsmunum, flokks
fylgi, kjósendadekri, eða hreppa
póiitík. Stjórnfræði á aftur á
móti að vera sú fræðigrein, sem
á hlutlausan vísindalegan hátt
segir til um það hvað er rétt
og haganlegt í þjóðmálum, án
tilits til einkahagsmuna eða
flokka. •
Það er nú svo. Þeir sem
með þessum málum hafa fylgst
hafa þá sjálfsagt tekið eftir
því, að stjórnmálum og stjórn-
fræðum er oft glundrað saman.
En þegar um þann rugling er
j talað, er oftast látið heita svo,
j og að vísu oft með réttu, að
það séu stjórnmálin, sem reyni
að misbrúka stjórnfræðina,
stjórnmálamenn grípi í hita
deilanna til hinna og þessara
kenninga úr hagfræði og stjórn-
fræði og heimfæri til síns máls
og á þennan hátt er ruglað
meðvitund háttvirta kjósenda
um það hvað eru vísindi og
hvað atkvæðaveiðar og valda-
brask.
j En að hinu hafa menn venju-
lega aldrei spurt hvort sjórn-
fræðin sjálf séu eiginlega vís-
indi eða ekki. Og það kemur
flatt upp á marga þegar farið
, er að efasa um það hvort hag-
j fræði og stjórnfræði séu vís-
| indi og þykir ganga guðlasti
næst. En það er einmitt þetta,
j sem sænski þrófessorinn Myr-
dal hefir tekið til meðferðar f
nýrri og umtalaðri bók um
vísindi og pólitík í hagfræð-
1869
190
TODAV
FRAMFARIR
Heilbrigðum viðskiftareglum og þeirri stefnu að sjá
fótum sínum forráð, er að þakka vöxtur þessa banka
í sextíu ár.
Nú er hann einn af sterkustu og stærstu bönkum í
heimi. Viðskifti öll hvort sem opinber eru eða per-
sónuleg annast hann. Og hann er nú að verða leið-
andi bankinn á útlenda viðskiftamarkaðinum.
The Royal Bank
of Canada
HREINLÁTASTA OG
HOLLUSTUMETSA MJOLKURSTOFA
I WINNIFEGBORG
Eign Winnipegbúenda og rekin af þeim.
Hreinlæti í meðferð allra afurSa og stjórnsemi.
Veldur framgangi vorum og vexti.
SÍMI 201 101
“Þér getið slegið rjómann
MODERN DAIRY LIMITED