Heimskringla - 01.07.1931, Qupperneq 5
WINNIPEG 1. JÚLl, 1931.
HEIMSKRING.J*
5. BLAÐSÍÐA
verða hjá því komist, að biblí-
an haldi enn áfram að verða
aðalritið, sem kirkjan notar til
þess að kveðja hljóðs til-
finningalíinu um áfyrirsjáan-
legan tíma.
En með þessu er alls ekki sagt,
að sjálfsagt sé að ritningin
verði ein um hituha í kirkjun-
um. í þessu efni hlýtur sama
þróunin að fara fram, sem orð
ið hefir með þrédikanirnar. —
Fyrir mannsaldri síðan var guð-
fræðingum við nám á íslandi
ráðið frá því af kennurum sín
um að nota nokkurar tilvitnanir
í ræðum sínum nema í rit biblí-
unnar. í>að þótti ekki við eiga
að þeir færu með fagrar hend
ingar í ræðu, nema þær hend-
ingar væru úr Davíðssálmum,
og tilvitnun í óbundið mál
nýrri rithöfunda þótti með öllu
óhafandi. Þetta hefir, eins og
kunnugt er, gerbreyzt. Og
somu leið fer vitaskuld fyr eða
síðar hin einstrengingslega ein-
angrun í guðsþjónustunni utan
prédikunar. En eg er á því að
nokkuð starf þurfi að fara
fram, áður en menn hafi feng-
ið það, sem þeir telji sig á-
nægða með. Ef til vill rekur
suma minni til þess, að H. G.
Wells skrifaði um það töluvert
fyrir nokkrum árum, að nauð-
synlegt væri að vér kæmum oss
upp annari ritningu — þ. e.
vitrir menn söfnuðu saman á
einn stað þeim ritum, sem stað-
ist hefðu eldraun tímans og
ætla mætti að markverðust
væru um stöðu mannsins í til-
verunni og afstöðu þeirra til
hennar. Fanst honum óþjá-
kvæmilegt að taka þar upp öll
guðspjöllin úr Nýja testament-
inu. Vissulega væri mikils um
það vert, ef spakir menn gerðu
tilraun með slíka söfnun og út-
gáfu, en því miður er henni
enn ekki til að dreifa. Og að
öllum líkindum á hún nokkuð
langt í land. En mér finst þrátt
fyrir alt svo mikið til í þvíí, sem
Mr. B. H. J. hefi rbent á bréif
sínu, að mig langar að beina
því til starfsbræðra minna og
þessa kirkjuþings, hvort ekki
væri ómaksins vert fyrir oss að
gerð væri dálítil tilraun í þessa
átt vor á meðal. Ekki að safna
ritum, heldur að prestarnir
hjáipuðust að safna lesköflum
til flutnings við guðsþjónustur,
sem þeim þætti líklegt að kynni
a ðverða til þess að örfa þá
athygli, sem Mr. B. H. J. virðist
sífeld meðferð biblíunnar hafa
sljófgað. Að minsta kosti mun
eg leitast við að koma þessu
máli inn á dagskrá þingsins, í
þeirri vissu, að fulltrúana muni
að minsta kost fýsa að ræða
þetta í nefnd og á almennum
fundi. „
(Nl. næst.)
UM VfÐA VERÖLD.
Þrælahald hjá nítján nútíma-
þjóðum.
Það mun vera almennt álitið
að þrælahald sé nú úr sögunni
í heiminum. Það hafi tiheyrt
þeim tímum ómenningarinnar,
sem nú séu um garð gengnir.
Þessu er þó enganveginn svo
varið. Ensk hefðarkona, kona
stjórnmálamannsins Sir John
Simon, hefir nýlega birt minnis
skrár, sem hún hefir gert um
þetta fyrir ýms ensk kvenfélög
og síðan hafa verið lagðar fyrir
Þjóðbandalagið. Frúin hefir
komist að þeirri . niðurstöðu,
að þrælahald og þrælasala við-
gangist enn í hvorki meira né
minna en 19 löndum, sem sé í
Abessiníu, Algier. Kína, Egypta
landi, Eitreu, Hedjaz, Kufra,
Liberíu, Marokko, Rio de Oro,
Austur og Vestur-Sahara, bret-
sku og ítölsku Samalilandi,
Sudan og Suður Tripolis. Mest
er um þræla í Kína, Arabíu og
Abessiníu, eða alls um 3 miljón-
ir. Og þetta er mest í hinni
hálofuðu menningu.
Frú Simon ásakar hinar stóru
nýlenduþjóöir Evrópu fyrir það,
að þær skuli þola þessa sví-
virðingu í löndum sínum og
krefst þess, að þrælahaldið
verði afnumið. Hún segir að
ræðismenn sumra Evrópuland-
anna hafi meira að segja tekjur
af þrælasölunni, án þess að
blygðast sín fyrir það. Vest er
ástandið í þeim hluta Samali,
sem ítalir ráða. Italsukr blaða
maður varð til þess að afhjúpa
þau hneyksli, sem þar áttu sér
stað. svo að fascista-stjórnin
neyddist til þess að láta fara
fram einhverja málamyndarann
sókn. En blaðamanninum var
ekki vært og varð hann að
fara úr landi. 1 Sudan, þar sem
Frakkar ráða, er þrælaverslun
einnig rekin opinberlega og
þess eru dæmi, að á einum mán
uði seldi einn þrælasali þar
3000 blámenn í þrældóm.
í Kípa er þrælaverslun einnig
rekin oþinberlega. Ungar stúlk
ur, 10 — 12 ára, ganga þar
kaupum og sölum og kosta 10
til 30 dollara hver. f Shanghai
fer þessi þrælaverslun fram
opinberlega í miðjum borgar-
hluta Evrópumanna, en rekin
af Kínverjum. Stúlkurnar eru
flestar seldar ólifnaðarhúsum
í hafnarbæjum í Japan eða
Koreu.
Svona er ástandið — og
kemur flestum á óvart, enda
hafa margir orðið til að krefjast.
þess, að tekið yrði í taumana
og ósóminn afnuminn. Með-
ferðin á þrælunum er líka víða
mjög slæm. í Samalilandi ítala
eru þeir barðir til vinnu með
svipum, eyrun skorin af þeim
og brennimark sett á enni
þeirra.
Dr. Millikan
um merkustu uppgötvanir nátt-
úruvisindanna á síðustu 15
árum.
Margt er nú talað um vís-
indin og áhrif þeirra á líf nú-
tímans og því er oft haldið
fram, að á engum tíma mann-
kynssögunnar hafi vísindin ver
ið áhrifaríkari en nú á tímuvn
og valdið meiri byltingum
Þetta má líka til sanns vegar
færa, segir hinn heimsfrægi
ameríski eðlisfræðingur, Milli-
kan. sem lesendum Lögréttu er
áður kunnur af frásögnum um
rannsóknir hans á geimgeisl-
unum o. fl. Eini tíminn, sem
hægt væri að bera saman við
nútímann í þessum efnum er
að hans áliti sú öld, fyrir svo
sem þrjú hundruð árum, sem
sá kenningar Newtons og Gal-
ilei koma fram og þroskast.
Þá varð gerbreyting á allri
menningu, andlegri og efnis-
legri, og þess má vænta, að á-
líka róttæk breyting verði nú
á öllum hugsunarhætti manna
og menningu vegna nýjustu
rannsókna í eðli»fræði og efna
fræði.
Til þess að gera sér þess
grein hversu afskapleg sú bylt-
ing er, sem orðið hefir á sein-
ustu árum er nóg að minnast
þess, að þau sex meginatriði,
sem talin voru grundvöllur
heimsins og heimsskoðunnar-
innar í lok nítjándu aldarinn-
ar, eru nú anaðhvort mjög vef-
engd eða þeim er nú alveg
hafnað.
Ef litið er yfir sögu náttúru
vísindanna síðustu 15 árin, má
segja, að setja megi helstu
breytingarnar og uppgötvanirn
ar fram í tuttugu og einum lið,
sem jafnframt lýsa 21 helstu
náttúrurfræðilegri athugun
hinna helstu vísindamanna síð-
ustu árin. Þessar rannsóknir
og athuganir hafa að vísu ekki
allar verið gerðar eingöngu á
seinustu 15 árunum þótt niður-
stöður þeirra hafi þá fyrst orð
ið kunnar að fullu, því þær
eru bygðar á eldri rannsóknum,
svo að segja má, að eðlisfræði
og efnafræði nútímans hafi
orðið til á seinustu 30 árum.
Fyrsta uppgötvun og ein hin
helsta var sú, þegar “electron’’
fanst. Margir vísindamenn síð-
ustu 150 áranna höfðu lagt
skerf til þeirra rannsókna. en
þær voru fullkomnaðar á ár-
j unum 1910 — 25. Uppgötvun
X-geislanna heyrir ekki bein-
i línis til þessu síðasta 15 ára
skeiði, en ýmsar merkustu
rannsóknir á eðli þeirra fóru
fram á þessu skeiði, 1912 og
síðan. Þriðja mikilsverða upp-
götvunin er sú, þegar menn
fundu svonefnda “quantum
mechanies’’ og hófst sú upp-
götvun um 1900 með rannsókn
um Planchs og hefir haft afar-
mikla þýðingu seinna og áhrif
á aðrar uppgötvanir. Afstæðis-
kenningin er fjórða merka upp-
götvunin og var fyrst sett fram
1905 af Einstein og síðan 1915
í víðtækara formi. Næst má
nefna rannsóknirnar á svo-
nefndum radioáhrifum (radio-
activity) og ransóknir á atom-
iun, á atomkjarnanum og á at-
omtölunni. X-geislarannsókn-
irnar á eðli og byggingu kryst-
alla mega einnig teljast meðal
merkustu uppgötvaná og ýms-
ar rannsóknir á litrófinu. Upp-
götvun aðferðanna til þess að
geta séð ýmsar ljósvakabylgjur,
sem annars eru ósjáanlegar,
eru einnig meðal hins merkasta,
sem gerst hefir í eðlisfræðum
seinustu ára og loks eru rann-
sóknir á geimgeislunum (cos-
,mic rays) talið eitthvað hið
merkilegasta sem skeð hefir í
þessum efnum á síðustu árum
og hefir Lögrétta áður sagt frá
þeim. Kenningar þær, sem ís-
lenskur náttúrufræðingur (dr.
Helgi Pjéturss.) hafði áður sett
fram um lífgeislan utan úr
geimnum, eru einnig sjálfsagt
kunnar flestum lesendum.
Til þess að geta skilið til
fulls öll þau atriði, sem Millikan
nefnir, þarf allmikla sérþekk-
ingu á eðlisfræði nútímans og
er því aðeins getið helstu at-
riðanna í þetta sinn, en seinna
mun Lögrétta skýra nánar frá
þessu og frá þeim heimspeki-
legu og trúfræðilegu kenning-
um, sem hann dregur af nátt-
iirufræði nútímans.
Með náttúrufræðum og heim
speki og trú, dregur nú æ
meira til sátta móts við það
sem var fyrir svo sem aldar-
fjórðungi.
BRÉF TIL HEIMSKRINGLU.
Franski fiskiflotinn.
Amerískt blað (Boston Tra-
veller) segir frá því eftir Par-
ísar fréttamanni sínum, að út-
gerð Frakka við Nýfundnaland
sé nú mjög að þverra. Þeir hafi
gert út þangað 100 skútur, sem
verið hafi þar á miðum 8 mán-.
uði ársins, en á þessu ári muni
varla meira en helmingur flot-
ans sigla vestur, því að mest af
þorskafla síðasta árs sé ennþá
óselt og kenni Frakkar þetta
norrænni samkepni. 10 þúsund
fiskimenn í Bretagne hafa haft
atvinnu við þessa útgerð undan
farið en nú varla fleiri en 5 þús-
und og varla hægt að gera út
nema með ríkisstyrk. Smekkur
manna í fiskáti er einnig að
breytast og franska útgerðin
hefir mjög mist Evrópumark-
að sinn, en vann hann upp um
skeið í Afríkunýlendunum, en
Afríkumenn borða nú miklu
minni fisk en áður.
—Lögrétta
i Kæri herra ritstjórí:
Talsvert er nú orðið langt
síðan við landar í Chicago höf-
um látið til okkar heyra í blöð-
unum.
Helst er í fréttir færandi í
þetta sinn opinn fundur ís-
lendingafélagsins, Vísir. haldinn
112 þ. m. í fundarsal Norska
| klúbbsins. Var þetta síðasti
| fundur félagsins á þessu kjör-
tímabili, og var sérstaklega
vandað til skemtunar. Forseti
félagsins stýrði fundi og bauð
alla velkomna. Fyrst söng
herra Gunnar Pálsson nokkra
einsöngva. Hann hefir mjög
hugnæma rödd, og þótti öllum
mikið til koma. Síðan var flutt
stutt ávarp fjrrir hönd Norð-
manna af herra A. E. William-
son. Mælti hann mjög hlý-
lega til félagsmanna, enda hafa
viðskifti Vísirs og Norska
klúbbsins verið hin frænd-
samlegustu. Þá söng herra
Guðmundur Kristjánsson nokk-
ra einsöngva. Mr. Kristjánsson
hélt söngsamkomu í vetur í
Auditorium Recital Hall, undir
forustu Vísirs. Tókst sú sam-
koma mæta vel, og hrósaði
Chicago Tribune Mr. Kristjáns
son sem artist. Mr. Árni Helga-
son, sem er með hinum dug-
legustu fslands vinum f Chi-
cago sýndi kvikmyndir þær er
hann tók á íslandsferð sinni í
fyrrasumar. Bæði eru þær
myndir vel teknar og fullkomn
ar og gefa prýðilega góða hug-
mynd þeim er heima sátu.
Félagslyndi og dugnaði Mr.
Helgasons er ekki alllítið að
þakka í félagsskap okkar.
Ræðumaður kvöldsins var pró-
fessor Sveinbjörn Johnson frá
ríkisháskóla Illinois , Urbana.
Eins og kunnugt er var John-
son einn af fulltrúum Banda-
•íkjanna til Alþingishátíðarinnar
að Þingvöllum í fyrra. Sæmdi
háskóli íslands hann þar dokt-
orsnafnbót. Ræðumanni sagð-
ist ágætlega. Þótti jafnt lönd-
um sem útlendum erindið mjög
fróðlegt og skemtilega flutt. Á
annað hundrað manns sóttu
fund þennan, þar á meðal eigi
allfáir Norðmenn. Meðal boð-
ina gesta var Mr. Baumann,
Konsull Danmerkur og frú
hans. Skandinavisku gestun-
um fanst allmikið koma til
skemtunarinnar, og sendi eg
hérmeð tvö norsk blöð, er um
Hátíðaljóð XII
By Davíð Stefánsson (frá Fagraskógi)
I.
Thy children, Iceland, bless thee upon this day.
With prayers and song our hearts are sworn to thee.
Each memory breathes new life into our lay,
Near Lögberg meet your children’s thoughts so free.
From your breasts, the warmth they still can feel,
That never failed, tho ruled the winter wild, ,
Our nation still has men of wisdom and of zeal,
Who will be inscribed in sagas newly styled.
II.
We honor him, who trusty bulwarks laid.
We honor him, who blazes newer trails.
Tho few the people this free, young land to aid,
Yet she feels the strength this day unveils.
Thy children, Iceland, now for thee do pray,
And bless thee in the name of all that lives.
Wle are a nation, with fire in bosom borne alway,
And children. whom the Lord protection gives.
Sigríð Stefánsson.
þennann fund rituðu. Hef eg
merkt greinarnar, sem þér
herra ritstjóri mættuð gjarnan
þýða fyrir lesendur blaðsins.
Félagslíf í Chicago er all-
mörgum erfiðleikum undirorp-
ið; samt eru sambönd landa
hér furðu sterk og lifandi —
og það sem mest er í varið
engar deilur né flokkadráttur.
Vitanlega náum við ekki til
allra landa hér, en þeir sem við
höfum sýna sanna íslenska
trygð og fastheldni.
Búist er við að íslenzku pró-
grammi verði útvarpað bráðlega
frá stöðinni WMAQ hér; skal
það nánar auglýst.
J. S. Björnsson
Competition
gOMEBOÐY said that competi-
tion :s the life of trade. May-
be it is at that. Anyvvay, during
this period of vvorld-wide depres-
sion the people of almost every
country seem to be under the
spell of a sort of competition
bogey man. Maybe, too, that
this spell is the result of some
kind of subconsCious attempt to
reiieve unemployment.
Down in the United States
they are sitting it out in trees,
harassing their soies in dancing
marathons and disfiguring their
faces in the fistic arena. Over
in Europe both men and women
are stretching their nervTes and
risk'ng their lives in flying com-
petitions over uncharted jungles
and dangerous seas, swimming
the channel and parachuting
from the clouds.
Canada, too, under the same
spell, is rushing pell-mell to
“keep up with the Joneses.” Her big undertaking, the World’s Grain
Show of 1932, is tempting the competitive spirit of every farmer of every
clime by splashing before his eyes the greatest aggregation of cash
awards ever offered. Fancy, twer/.y-five hundred dollars for forty
pounds of wheat. Human flies are taking the short cut over Canada’s
north land to the eastern hemisphere. But one of the funniest competi-
t'ons yet reported is that originating in the East, and the stakes are
vvell vvorth while. Listen!
It appears that after an eccentric barrister of Toronto the Good
had passed on to the better world beyond, his will was found to provide
for an award of half a million dollars to the woman who became the
mother of the greatest number of children within ten years. Mrs. B-,
so says the report, at the age of thirty-seven, the mother of twenty
children, all born in Canada, was leading for a time. Now another Mrs.
-----, who is but five years older is in the lead for the big money.
S'ne has twenty-six children to her credit, five of which have been born
since the barrister’s death in 1926.
Competiticyi may be the life of trade and incidentally it may be the
life of the nation as well.
BEAGH TOGS FOR ;MEN
Are Designed for the Utmost
Comfort, Smartness and Wear
Swim things that are firmly woven and com-
fortable on the beach or in the ivater. They
dry quickly, too, and hold their shape.
Beach Robe <íSpeedaireM
Sigurður Sölvason. póstmeist
ari frá Westbourne, sem hér
hefir verið til lækningar um
hríð, fór heim til sín fyrir
helgina. Hann leit inn á skrif-
stofu Hkr. s. I. föstudag og
virtist hress eftir öllum von-
um. Voru tveir uppskurðir gerð
ir á höfðinu, er hepnuðust svo
vel að von er um kullan bata.
A robe of terry cloth in
a conventional pattem
—black, tan and white.
The collar, pockets and
cuffs, are cord bound.
In other colors, as well
$10.00.
By Jantzen,. is cut down
well at the back to
allow the maximum of
sun on the shoulders
— suspender type
straps. Black and col-
ors. $5.50.
U
11
The Flash
is designed by a well-
known swimming in-
structor — Johnnie
Walker, of Toronto.
The model sketched is
black, in one - piece
style, withoUt a skirt.
It folds into a water-
proof bag. $2.75
Men’s Furnishing
U
11
Twosome
Another Jantzen. simu-
lates a two-piece ef-
fect. The top, cut out
under the arms, and at
the back, is striped
and the trousers knit in
plain shade. $6.00.
Section, Main Floor, Portage
Before Going to
Your Summer
Cottage Open a
DEP0SIT
ACCOUNT
For Greater Conven- .
ience When Shop-
ping by Mail.
First make a deposit
sufficient for your im-
mediate requirements,
and when ordering you
have simply to give in-
structions to charge your
D.A. and the goods are
delivered as paid.
Tnhis saves the trouble
of purchasing Money
Orders, and C.O.D. de-
liveries.
A monthly detailed
statement is rendered.
For further informa-
tion call or write the
D.A. Office, Third Floor,
Hargrave Street.....
<*T. EATON C°
LIMtTED