Heimskringla - 22.07.1931, Blaðsíða 1
DYERS & CLEANERS, LTD.
SPECIAL
Men’s Suits Dry Cleaned
and Pressed .....-.....$1.00
Ladies’ Plain Dresses Dry
Cleaned and Pressed ...$1.00
tioodi Called For and Delivered
Mlnor Repaira, FREE.
Phone 37 061 (4 lines)
MAKE NO MISTAKES
CALL
DYERS * CLEANERS, LTD.
PHONE 37* 061 (4 lines)
XLV. ÁRGANGUR.
WINNIPEG MIÐVIKUDAGINN 22. JÚLÍ 1931
NÚMER 43
BEAUHARNOIS HNEYKSLIÐ
ELDINGUM SLÆR NIÐUR
f HÚS Á GIMLI.
Sweezy kannast við að hafa
veitt $800,000 í kosninga-
sjóð liberala.
í sambandsþinginu í vor var
nefnd kosin til þess að rann-
saka Beauharnois-málið. En það
er þannig til komið, að félag
með þessu nafni fær leyfi frá
sambandsstjórninni til þess að
starfrækja orkuver í St. Law-
rence ánni, skamt frá Valley-
field í Quebecfylki, fyrir tveim
eða þrem árum. Byrjaði félag-
ið með tvær hendur tómar að
sagt er, en sambandsstjórnin
stóð því að baki. Og á sam-
bandsþinginu 1930 er rifist
grimt út af kaupskap King-
stjómarinnar við Mr. Sweezy,
aðaleiganda félagsins, og sam-
kvæmt þingtíðindunum (sjá
bls. 2554), heldur Mr. Bennett
því fram á þinginu, að þarna
sé um $100,000,000 fjárupp-
bæð að ræða frá stjórnarinnar
hálfu, og heimtar rannsókn. —
Fylgdu bændafulltrúarnir hon-
um vel að máli, en rannsókn
neitaði King þá og lið hans alt.
Og við það sat.
Á þinginu s.l. vetur var því
aftur hreyft, að rannsaka þetta
mál. Voru liberalar enn sem fyr
á móti því. En þá þýddi ekki
fyrir þá að reyna að afstýra
rannsókn. Var því rannsóknar-
nefnd kosin á þinginu. Starfi j
hennar er ekki langt komið
enn. en nógu langt til þess- að
Ijósta upp einu því stærsta
pólitíska hneyksli, sem sagan
getur um.
Fvrir nefndinni hefir nú Mr.
Sweezy viðurkent, að hafa
fleygt einni miljójn dala í kosn
iugasjóð pólitísku flokkanna
s.l. sumar. Til liberala telur
hann hafa gengið $800,000. Til |
conservátíva $125,000. Meginið ^
af upphæðinni til liberala var j
gVeitt tveim mönnum, senator- |
unum Haydon og Raymond.
En sá er á móti fé conservatíva
tók, heitir John Aird, Jr., í Tor-
onto. En hann ber að fé þetta j
hafi sér persónulega verið
greitt fyrir lögfræðisstörf, sem !
hann hafi unnið fyrir félagið.,
enda hafi ekkert af fénu úr j
sínum höndum farið.
Þegar Sweezy var spurður,
hvort hann hefði greitt con-
servatívum meira fé, kvað hann
hefði komið til mála að veita
þeim $200,000, en það hefði
ekki verið þegið, og hefði Mr. I
Eldingu sló fjórum sinnúm
niður í sama húsið á Gimli s.l.
sunnudag. Húsið var eign Gus
Otter. Skemdist það mikið
mannskaði varð enginn, og
voru þó 10 manns í húsinu.
Tvær stúlkur frá Winnipeg
sváfu úti á Verandah hússins
og ein eldingin reif vegginn s
niður, að gluggar duttu ofan
á gangstéttina. Önnur elding
sundraði þaki á skúr á bak við
húsið. Þriðja eldingin snart
reykháfinn, lagði pípuna sam-
an og skildi eftir holu í eld-
húsgólfinu. En þrátt fyrir alt
þetta brann húsið ekki,, en
skemdist að vísu talsvert. Hitt
má þó meiri gæfa heita, að eld
ingarnar skyldu ekki snlerta
neina manneskju í húsinu.
RÆÐA PÁFA.
Síðastliðinn mánudag hélt
Pius páfi ellefti ræðu í Vati-
caninu, er hefir vakið eftirtekt
vegna ýmsra óvanalegra orða-
tiltækja, er hann notaði, og
menn ætla að beint hafi verið
til Mussolinis. í bæninni bað
hann drottinn að gera það
kraftaverk, að “hinir blindustu
hinna blindu mættu fá sýn’’.
Ennfremur ráðlagði hann þeim
í ræðunni, “er ekki hefðu vizk-
una, að dæma ekki um þá
hluti er þeir væru fávísir um”.
Samkvæmt þessu virðist ekki
vopnagriður alveg kominn á
milli páfa og Mussolini.
ÞÝZKALAND.
Þó útlitið á Þýzkalandi væri
ekki glæsilegt síðastliðna viku
hefir þar samt ekki orðið af
byltingu. Henni má heita að
hafi verið afstýrt með lánum
frá stórþjóðunuín. Fyrst voru
veittar $100,000,000 til bráða-
birgða af Bank of International
Settlement, og nú er í ráði að
stórþjóðirnar, eða Bandaríkin,
England og Frakkland, veiti
Þýzkalandi að nýju lán- er nem-
ur $500,000,000. Ekki er lán
þetta fremur en hin fyrri til
langs tíma veitt. Um endur-
greiðslu á því segjast Þjóðverj-
ar vera vissir, með því að þeir
hafa jafnframt fengið allmikið
lán til lengri tíma, eða að
minsta kosti til 10 ára. Með
þessum aðförum var nú svo til
ætlast, að bankar tækju aftur
Bennett, núverandi forsætisráð
herra, afþakkað það.
Smærri upphæðir til náinna
vina, er Mr. Sweezy var vanur
að styðja með nokkru fé við
kosningar, voru nefndinni gefn
ar, en með því að þær eru
bæði margar og smáar, bornar
saman við það áminsta. er til
lítils að telja þær hér upp.
Lengra er nú rannsókninni
ekki komið enn. En þetta er
nóg til þess að sýna, að óhreint
er þarna í pottinum. Og hvað
upp kann að koma áður en
rannsókninni lýkur, getur ehg-
inn gizkað á.
ÞINGSLIT í VÆNDUM.
Sambandsþinginu er haldið
að verði slitið í lok þessarar
viku. Á það þó talsvert eftir
enn af frumvörpum ósamþykt-
um. Einnig er eftir að athuga
Ástralíusamninginn. Þá er og
Beauharnois rannsóknin líkleg
að tefja fremur fyrir en flýta.
En alt um það lifa þingmenn-
irnir í voninni um að mega sem
fyrst komast út í góða veðrið.
til starfa þessa viku, og með
því færu viðskiftin af stað
sem áður. Horfurnar eru því
sem stendur allgóðar á Þýzka-
landi, og hvorki líkindi til bylt-
ingar, né að landið verði gjald-
þrota.
LÖNG RÆÐA.
Við tölum stundum um hve
dauðans þreytandi það sé að
hlusta á einnar klukkustundar
ræðu. Og hálftíma ræða er al-
veg nægilega löng fyrir þá van
stiltustu. En hvernig ætli að
þessum mönnum þætti að sitja
5814 klukkustund undir einni
og sömu ræðunni. En það urðu
þeir að gera, sem hlýða vildu
á ræðu Baptistaprests eins í
Cotton Valley, La., í Banda-
ríkjunum nýlega. E. A. Sandi-
fer var nafn prestsins. Ræðuna
hélt hann viðstöðulaust að öðru
leyti en því, að hann svolgraði
í sig hrá egg, súkkulaði og
kaffi á milli orðanna. Þetta er
sú lengsta ræða er nokkru sinni
hefir flutt verið..
Kona prestsins sagði, að á-
FJALLKONAN
FRÚ SIGRÍÐUR BJÖRNSON
verður “Fjallkonan” á íslendingadaginn 1. ágúst í Winnipeg.
byrgðin hvíldi á drottni fyrir
þessu, því hann gæfi mannin-
um sínum mátt til að halda
svona langa ræðu.
KOSNINGARNAR Á ÍSLANDI.
Suður-Þingeyjarsýsla.
þar var kosinn Ingólfur Bjarn-
arson, frambjóðandi “Framsókn
ar”-flokksins, með 1034 atkvæð
um. Björn Jóhannesson, fram-
bjóðandi íhaldsflokksins, fékk
217 atkv. og Aðalbjörn Péturs-
son, frambjóðandi “Kommún-
ista”, 121 atkv. Auðir og ó-
gildir seðlar voru samtals 23.
Norður- ísafjarðarsýsla.
Jón Auðunn Jónsson, frambjóð
andi íhaldsflokksins, var kosinn
með 587 atkvæðum. Finnur
Jónsson. frambjóðandi Alþýðu-
flokksins, fékk 293 atkvæði.
Björn H. Jónsson, frambjóð-
andi “Framsóknar”-!flokksins,
fékk 165 atkv. Auðir 3 seðlar
og ógild 27 atkv.
Strandasýslu.
Tálningin í Strandasýslu gat
ekki farið fram í gær sökum
þess, að “Súðinni” seinkaði
nokkuð til Borðeyrar, en hún
var með atkvæðakassa. Hún
kom þangað í gærkveldi, og
var talið þar í morgun.
Kosinn var Tryggvi Þórhalls-
son forsætisráðherra, frambjóð-
andi “Framsóknar”-flokkskis,
með 433 atkvæðum. Maggi
Magnús læknir, frambjóðandi
fhaldsflokksins, fékk 143 at-
kvæði.
EyjafjarSarsýsla.
Kosningarúrslitin í Eyjafjarð-
arsýslu komu í fyrra kvöld, og
eru þá úrslitin í öllum kjör-
dærnunum kunn.
Kosnir voru frambjóðendur
“Framsóknar”-flokksins, Bern-
harð Stefánsson með 1309 at-
fyrrv. ráðherra, með 1297.
kvæðum og Einar Árnason
Frambjóðendur Alþýðuflokksins
fengu: Guðmundur Skarphéð-
insson 307 atkvæði og Halldór
Friðjóusson 202. Frambjóð-
endur fhaldsflokksins fengu:
Garðar Þorsteinsson 552 atkv.
og Einar Jónasson 529. Fram-
bjóðendur “Kommúnista” fengu
Elísabet Eiríksdóttir 149 og
Steingrímur Aðalsteinsson 129.
—Alþbl.
KOSNINGAÚRSLITIN
Jónas verður ráðherra.
Framsóknarflokkurinn átti
19 þingmenn f þinginu. sem
rofið var. Við þessar kosn-
ingar hafa Fralmsóknarme|nn
unnið fjögur þingsæti: Dali
(Jónas Þorbergsson útvarps-
stjóri), Barðastraiydarsýsílu
(Bergur Jónsson sýslumaður),
annað sætið í Rangárvallasýslu
(séra Sveinbjörn Högnason)
og annað sætið í Skagafirði
(Steingrímur Steinþórsson
skólastjóri á Hólum). Fram-
sókn hefir því 23 þingsæti af
42 og fær því öruggan meiri
hluta í neðri deild: 16 gegn
12. En í efri deild verða 7
framsóknarmenn gegn 6 í-
haldsmönnum og einum Al-
þýðuflokksmanni (Jóni Bald-
vinssyni), svo andstöðuflokk-
ar stjórnarinnar þar geta felt
mál fyrir henni, ef hún fer
með miklar öfgar.
Framsóknarmenn eiga ekki
nema tvo landkjörna þingmenn
af 6 og þurfa að geta kosið 6
menn (í sameinuðu þingi) upp
í efri deild til þess að geta
haft þar meirihluta (8 af 14),
en til þess að geta kosið 6
þurfa þeir að hafa 27 þing-
menn (en hafa ekki nema 23).
Hverjir verða ráðherrar?
Ekki þarf að efa, að Tryggvi
Þórhalisson verður forsætis-
ráðherra áfram, og ekki heldur
að Jónas verður aftur ráð-
herra. Það er að eins um
þriðja manninn, sem vafi er.
Fullyrt er að Sigurður Kristins-
son muni meta forstjórastöð-
una í Sanbandi ísl. samvinnu-
félaga meira en ráðherrasætið
og því hverfa úr því. Þá er
ekki nema um tvo menn aðra
að ræða: Einar Árnason, er
var fjármálaráðherra, og Ás-
geir Ásgeirsson, og er óvíst,
hvor þeirra það verður.
—Alþbl.
DANIR UM KOSNINGAR
Khöfn, 18. júní.
Dönsku blöðin halda áfram
að birta ritstjórnargreinar af
tilefni kosningaúrslitanna á ís-
landi “Nationaltidende” segja:
Stjórnin hefir sigrað og kjós-
endameirihlutinn þannig fallist
á bæði stjórnmálastefnu stjórn
arnnar yfirleitt og þingrofið.
Blaðið bendir á, að innanlands-
mál, ekki sambandsmálið, hafi
verið aðalmálin í kosningabar-
áttunni; kosningarnar hafi ver-
ið aflraun milli sveitanna og
bæjanna, en Danir væti góðrar
samvinnu milli beggja ríkjanna
framvegis.
“Berlingske Tidende” segja:
Velgengni stjórnarflokksins he4’
ir ekki stöðvast þó andstæðing-
ar reyndu að kasti inn í.kosn-
ingabaráttuna kröfu um endur
skoðun sambandslaganna. Það
er ekki hægt lengur að heyja
stjórnmálabaráttuna á þann
hátt, sem tíðkaðist fyrir 1918.
Vitnar blaðið í það í þessu
sambandi, að Sigurður Eggerz
var ekki endurkosinn á þing.
Blaðið bendir á, að kosninga-
tilhögunin hafi verið stjórnar-
flokknum hagstæð.
—Alþbl.
NÝ IÐNGREIN.
Rvík 26 júní.
Eiríkur Leifsson skókaup-
maður hefir nýlega sett á stofn
skóverksmiðju í smáum stíl. Þó
starfa þar nú 5 manns.
Framleiðslan er ennþá bund-
in við morgunskó (inniskó) og
leikfimisskó. En það er merki-
legast við hana. að hér er nær
eingöngu unnið úr íslenzkum
efnum, sútuðum sauðskinnum
og sútuðum selskinnum. í stað-
inn fyrir það að kaupa erlend-
an striga í leikfimisskó, hug-
kvæmdist Eiríki að nota hvít-
sútuð sauðskinn. Eru skór úr
því skinni álíka dýrir og striga
skór, en mörgum sinnum fall-
egri og endingarbetri. Og þess
vegna eru nú leikfimiskennarar
í bænum, sem skoðað hafa
skóna, einráðnir í því að mæla
með þeim við nemendur sína.
Verksmiðjan getur framleitt
um 80 pör af skóm á dag. Því
var það um daginn, rétt áður
en K. R. flokkarnir lögðu af
stað norður, að formaður far-
arinnar leit á leikfimisskó hjá
Eiríki og spurði um verð. Gat
hann þar fengið leikfimisskó
fult svo fallega og miklu óddýr-
ari heldur en samskonar skó
erlenda. Og morgunin eftir
hafði verksmiðjan smíðað skó
á fæturna á öllum þeim, sem
norður fóru.
Gærurnar okkar eru lítt selj-
anlegar og smánar verð fæst
fyrir þær. Væri það okkur þvn
stór gróði, ef við þyrftum eigi
að senda þær hráar og saltað-
ar til útlanda, en hefðum tæki
til þess sjálfir að gera úr þeim
iðnaðarvörur — bæði skófatn-
að og fleira. Er hér stígið spor
í þessa átt, og er það þakkar
vert.
Mbl.
SALTFISKSVERKUN
OG SALTFISKSMAT,
Rvík 28. júní.
Hér er nú á ferð einn af
helztu saltfiskkaupmönnum er-
lendum, sem verzlað hafa með
íslenzkan saltfisk á undanförn
um árum, George Hawes frá
Lundúnum, og sonur hans C.
DR. J. T. THORSON, K.C.
Dr. Thorson flytur ræðu á ís-
lendingadaginn í Winnipeg 1.
ágúst. Mælir hann fyrir minni
Canada.
Aðrir ræðumenn dagsins eru
óessir: Séra Friðrik A. Frið-
riksson, er flytur ræðu fyrir
minni Vestur-íslendinga. Fyrir
minni íslands talar dr. Jón
Árnason frá Seattle, Wash.
Ætlun Íslendingadagsnefnd-
arinnar var, að blöðin flyttu
myndir af öllum ræðumönnum
íslendingadagsins þessa viku.
En vegna þess að ekki var unt
að ná í myndir í tíma af hinum
tveimur síðastnefndu, vegna
fjarlægðar þeirra héðan, varð
aðeins komið við að hafa mynd
eins ræðumannsins. — Þykir
nefndinin fyrir þessu, en gat
þó ekki annað gert.
Hawes.
Morgunblaðið hitti þá að
máli í gær- og barst íslenzk
saltfisksverzlun í tal.
Þetta er í fyrsta sinn, sem
George Hawes kemur hingað.
Lét han nsvo um mælt að hann
dáðist mjög að því, hve fisk-
verkunin hér væri góð. Kvaðst
hann að vísu hafa getað fylgst
með því undanfarin ár, að verk
unin hafi batnað. En hann
hefði ekki vitað það fyrri en nú
hve skipulag verkunar og mats
væri gott. Sagði hann að nú
furðaði hann sig ekki á því,
að inann við 1 prósent af þeim
fiski, sem hann hefði keypt
hér, hafi verið öðruvísi en til
var ætlast. En alls kvaðst hann
hafa keypt íslenzkan fisk fyrir
yfir 100 miljónir króna.
Að verkun á fiskinum og mat
ið er hér svo gott sem það er,
segir Mr. Hawes, kemur til af
þvi, að fólk það, sem að fisk-
veiðum og fiskverkun vinnur,
er yfirleitt á háu menningar-
stígi. Það er menning ykkar
íslendinga, sem gerir vkkur
mögulegt að framleiða svo
vandaða vöru sem fiskurinn
ykkar er.
Talið berst síðan að markaði
fyrir íslenzkan saltfisk. Mr. Ha-
wes telur litlar líkur til þess,
að nokkur verulegur markaður
fáist fyrir hann í Grikklandi.
Grikkir nota meira aðkeypta
síld en þorsk til matar. Eins
gerir hann ekki mikið úr sölu-
möguleikum í Norður-Afríku.
Það sem selt er af íslenzkum
fiski þar, er flutt frá Spáni. —
Spánn er sem sé ein helzta
miðstöð fiskiverzlunar. segir
Mr. Hawes, enda hafa Spán-
verjar keypt fisk af útlending-
um síðan á dögum Fönikíu-
manna.
Mbl.