Heimskringla - 22.07.1931, Blaðsíða 8
8. BLAÐSIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG 22. JÚLÍ 1931
FJÆR OG NÆR
Sr. Ragnar E. Kvaran flytur
guðsþjónustu í Piney næst-
komandi sunnudag, 26. júlí, kl.
2. e. h.
• • •
í þessu blaði birtast tvær
greinar skrifaðar af séra Ragn-
ari E. Kvaran. Hver sá er ann
fróðlegu lesmáli og skemtilega
skrifuðu, ætti að lesa þær. —
Framhald greinarinnar “Nýjar
raddir’’ kemur í næsta blaði.
• * •
Til bæjarins komu í byrjun
þessarar viku, Árni Helgason
rafmagnsfræðingur frá Chi-
cago og kona hans. Þau komu
í bíl og staldra hér við fram
eftir vikunni. Árni sýnir myndir
heiman af íslandi í Goodtempl
arahúsinu næsta föstudags-
kvöld, eins og getið er um á
öðrum stað í biaðinu.
* * •
Mr. Thorvardur Thorvardar-
son frá Akra, N. D., kom til
bæjarins s.l. sunnudag í bíl
Með honum voru kona hans og
4 börn þeirra, Gunnlaugur
Thorvardur, Kristín og Anna.
Einnig komu með honum Jón-
as Thorvardarson frá Winni-
peg, er verið hefir syðra um
þriggja mánaða tírna og stund-
að búðarstörf. Fjölskylda Thor-
vardar fór norður til Nýja ís-
lands s.l. mánudag. en býst við
að halda suður aftur í lok þess-
arar viku.
• • •
Vilhjálmur Friðfinnsson, 622
Agnes St., brá sér suður til
Akra, N. D., í byrjun þess-
arar viku. Er fjölskylda hans
þar syðra. Heim er þeirra von
um næstu helgi.
• • •
Vídalínssöfnuður hefir sam-
komu í Hensel, N. D., laugardag
inn 25. júlí n.k. Á samkomunni
sýnir Árni Helgason frá Chi-
cago hreyfimyndir af 1000 ára
hátíðinni, er hann tók s.l. sum
ar á íslandi.
Beauty Parlor
Mrs. S. C. THORSTEINSSON'
á rakarastofunni Mundy’s Bar-
ber Shop, Cor. Portage Ave. og
Sherbrooke St. Semja má um
tíma með því að síma rakara-
stofunni eða heim til Mrs. Thor
steinson að 886 Sherburn 3t.
Sími 38 005
CARL THORLAKSON
úrsmiður
627 Sargent Ave., Winnipeg
Sími: 27 117. Heima 24 141
J. A.
JOHANNSON
Garage and Repair Service
Banning and Sargent
Sími 33573
Heima Ȓml 87136
Expert Repair and Complete
Garage Service
Ga*. Oils. Extras, Tire*.
Batteries, Etc.
Póstur kominn
Eg hefi nú fengið fyrsta
hefti þessa árgangs bæði af
Iðunni og Perlum, og verða þau
send tafarlaust til kaupenda og
útsölumanna. Áður hefi eg
sent frá mér fyrsta hefti þessa
árgangs bæði af Eimreiðinni og
Kvöldvökum.
Nokkrir kaupendur skulda
enn fyrir síðasta árgang (eða
meira) af Iðunni og Kvöld-
vökum, og kref eg þá nú um
greið skil. Eg krefst ekki fyr-
irframborgunar fyrir þessi rit,
en þegar allur árgangurinn er
kominn til kaupenda, er það
aðeins sanngjarnt og sjálfsagt.
að hver og einn standi greið-
lega í skilum. Þetta er í raun
og sannleika aðeins lítilræði,
ef það er borgað hvern gjald-
daga, en þessi óendanlegu van-
skil og trassaskapur eru örg-
ustu vargar í véum alls við
skiftalífs.
Magnús Peterson,
313 Horace St.,
Norwood, Man., Canada.
• • •
FYRIRSPURN
Hver er veit um heimilisfang
Guðrúnar Páiínu, konu Krist
jáns Jóhanns bílstjóra frá ísa-
firði, og dóttur Sigurðar Jón
atanssonar, er beðinn að senda
upplýsingar því viðvíkjandi til
Mrs. P. Magnússon, Box 82,
Gimli, Man.
• • •
Sigurður Sigurðsson- til heim
ilis að 894 Banning'St., Winni-
peg, lézt s.l. fimtudag. Hann
var 73 ára gamall. í þessum
bæ var hann síðustu 30 árin og
stundaði húsasmíði. Auk konu
hans lifa hann sex börn, ein
dóttir, Rannveig Sigurðsson
Winnipeg, og fimm synir, Hall-
dór, Randver, Jpn og Sigurþór,
allir til heimilis í Winnipeg, og
Sigurður, búsettur í Detroit,
Mich. Jarðarförin fór fram frá
Bardals útfararstofunni s.l.
laugardag. Séra R. Marteins-
son jarðsöng.
* * •
Til bæjarins kom fyrir helg-
ina Hallgrímur Björnsson tré-
smiður frá Riverton, Man. —
Hann dvelur í bænum um tíma
við smíðavinnu.
• * •
Gestur Oddleifsson frá Ár-
borg, Man., kom til bæjarins
snögga ferð s.l. mánudag. Með
honum var sonur hans Sigurð-
ur. og tengdasonur, Bennie
Goodman.
• • •
Dr. Sig. Júl. Jóhannesson
yrkir kvæði fyrir minni Vestur-
fslendinga á íslendingadaginn
1. ágúst í Winnipeg. Er það eitt
af því sem mælir með skemtun
þessa dags.
UNCLAIMED CLOTHES SHOP
K(rlmeiiH)) lilt ok yflrhafnlr. anU5o«
^eftlr mftII. NUSnrhnrBanlr haf falllJS 6r
Bllrll. r.K fftlln arjaat frft *0.T5 111
npphafleea aelt ft $25.00 o«r opp t »«0.00
4711 Portage Ave.—Sími 34 585
MOORE’S TAXI LTD.
Cor. Donald and Graham.
50 Centa Tail
'rá elnum sta« tll annars hvar
em er í bænum; 5 manns
ima oK einn. Alllr <*;*'**r á'
yrgstlr, alllr bílar hitaSJr.
Slml 23 80« (8 Hnur)
Kistur, töskur o ghúsgagna-
utningur.
Sr. Ragnar E. Kvaran hefir
fermt þessi ungmenni í Nýja
íslandi í vor:
Árborg:
Ásta Einarsson
Eyjólfur Eyjólfsson
Guðlaug Einarsson
Ing’unn Nordal
Kristín Nordal
Stefán Eyjólfsson
Þóranna Eyjólfsso’i
Árnes:
Aðalheiður Melsted
Einbjörg Helgason
Guðlaugur Eiríkur Helga-
son.
Kristinn Martin
Margrét Johnson
Sigurður Martin
Sveinn Helgason
Riverton:
Alvin Zophonias Sigvalda-
son.
Fríðgeir Sigurbjörn Sigurðs
son.
Ólína Elizabet Thorvalds-
son.
Sigfús halldór Böðvarsson
Skafti Ólafur Thorvaldsson
Valdheiður ólöf Helgason
• • •
ÚR BRÉFI FRÁ SEATTLE
WASH., 15. JÚLf
Svo sem fyr var frá skýrt,
standa íslendingar í Seattle
fyrir hátíðahaldi 2. ágúst, að
Silver Lake, Wash., með líku
fyrirkomulagi og undanfarin
ár. — Fyrir miðdag, kapphlaup
o. s. frv., — ágæt verðlaun.
Eftir miðdag skemtiskrá er
engan mun þreyta: Tvö stutt
minni. “ísland” og “Bandarík-
in’’ — hið fyrra séra K. K
Ólafsson, hið síðara Dr. V
Sivertz, íslenzkur prófessor í
vísindum við ríkisháskóla hér.
Eitt kvæði: Jakobína Johnson;
af unga fólkinu skemta með
píanó spili Victoría Pálmason,
með einsöngvum Thora Matth-
íasson og (Kári Johnson.
Skemtiskráin byrjar og endar
með íslenzkum kórsöng, er
Gunnar Matthíasson stýrir að
vanda. Dansað um kvöldið.
Vonast er eftir fjölmenni, því
dagurinn heldur uppi vinlegri
viðkynningu íslendinga á strönd
inni fögru við hafið kyrra’’. .
• • •
Stödd var í bænum s.l. sunnu
dag Mrs. G. Oddl^ifsson frá
Árborg, Man. Hún var að heim
sækja dætur sínar, er hér búa,
og annað kunningjafólk.
• * *
Símskeyti barst Hannesi Pét-
urssyni fasteignasala hér í bæn
um, frá Los Angeles þess efnis
að s.l. þriðjudag hefði látist á
heimili þeirra hjóna tengda-
móðir hans, Mrs. Þorbjörg Gutt
ormsdóttir Johnson. Hún var
gift Erlendi Jónssyni smið, og
bjuggu þau í Winnipeg fyrir
allmörgum árum. Tvær dætur
hennar eru á lífi: Mrs. Tilly
Pétursson og Guðný, gift hér-
lendum manni og búa þau í
Los Angeles.
* * *
Á föstudagskvöldið í þessarl
viku, kl. 8.15, sýnir hr. Árni
Helgason raffræðingur frá Chi-
cago, kvikmyndir í Goodtempl-
ara húsinu, undir umsjón G. T.
stúknanna Heklu og Skuldar
Myndirnar eru frá íslandi og
sérstaklega |af Aíþingtehátíð-
inni. Var Mr. Helgason þar og
tók sjálfur myndirnar, sem
hann sýnir. Aðgangur ókeypis
og allir velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
eins og t. d. Pétur Jónsson
Sigurður Skafield og Har-Jdur
Sigurðsson. Það sýnir ekki
mikinn þjóðernismetnað eða
þroska, að láta þessa menn
sitja suður í löndum, en kasta
árlega þúsundum og tugum
þúsunda í erlenda umferða-
söngvara, harmoníkuleikara og
því um líkt, sem lítið eða ekk-
ert listagildi hefir. —
En þegar þjóðleikhúsið kem-
ur, ætti þetta að lagast. Þar
þyrfti að safna saman ölium
beztu söngkröftum þjóðarinn-
ar, og gefa mönnum kost á að
hlusta á þá þar. Þar þyrfti að
koma upp “Orkester’, sem
EXCHANGE
Your Old
FURNITURE
NOW IS THE TIME TO
TKADE IN YOUR OUT-OF-
DATE FURNITURE ON
NEW. PHONE OUR AP-
PRAISER.
—■i.iMiTeo
*The Reliable Home Fu«nismers“
492 Main St. Phone 86 667
vert væri að hlýða á og væri
þjóðinni til sóma.
Söngvinur.
—Tíminn.
Hamingjuóskir til
íslendinga
á þjóðhátíð þeirra.
(fomjpnng.
INCOKPORATED 2“ MAV 1670.
Sigurður Skagfíeld
(Eftirfarandi grein birtist í
Heimskringlu 22. sept. 1926,
og var þá prentuð upp úr Tím-
anum. Þar sem maðurinn, sem
hún fjallar um, hefir nú dval-
ið á meðal vor um tíma, bjugg
umst vér við, að einhverjum
myndi greinin fréttnæm þykja
og þess vegna er hún hér prent
uð. — Ritstj.
Sig. Skagfield
söngvari hefir síðast í maí-
mánuði síðastliðið vor tekið
próf við óperuskólann í Khöfn,
og mun hann vera annar ís-
lendingur í röðinni, sem tekið
hefir próf í óperusöng. og það
með bezta vitnisburði. Eftir
nokkra daga var hann ráðinn
við leikhús í Rostock. Leilc-
hússtjórinn þar hafði heyrt
hans getið, og óskaði að fá
að heyra rödd hans. Sama
kvöldið og hann lét fyrst til sín
heyra þar, var hann ráðinn
við leikhúsið til næsta vetrar.
Þetta mun vera eitt af stærri
leikhúsum Þýzkalands og hef-
ir 48 manna “orkester”.
Nokkrum dögum áður en
Skagfield fór frá Khöfn söng
hann þar opinberlega, og tek
eg hér orðrétt upp nokkur orð
úr Kaupmannahafnarblaði:
“Den islandske Operasanger
Sigurd Skagfeldt vakte en sand
Bifaldsstorm ved sin ædle, föl-
elsesfulde Tenor.
Denne lyst Stemme övede
fra de förste Toner en sterk
Indfyldelse paa Folkmasserne,
der atter og atter krævede nye
Numre.
Hr. Skagfeldt gaar nu til
nogle af Tysklands störste
Operasscener, men har lovet
os Gæstespil til vore Vinter-
koncerter. Vort Puklikum kan
altsaa forsætte Bekendtskabet
med den sjældne Tenor”*)
Ritstj.
Sigurður Skafield er nú þeg-
ar víða þektur hér á landi fyrir
sína ágætu söngrödd og þýðu
tóna, og margur tónninn og
lagið lifir í endurminningu
manna eins og ógleymanlegur
unaðshljómur. Eg hefi oft
undrast hve fólk hefir verið
fljótt að læra lögin hans —
lögin. sem hann hefir sungið
einus inni eða tvisvar — grufl-
ar það upp í huga sínum,>þar
til það hefir náð samhenginu.
Þann undra áhuga tekst þeim
einum að vekja, sem er virki-
legri listagáfu gæddur, og nær
tilfinningum manna.
En hve lengi á íslenzka þjóð-
in að þola það, að allir þeir,
sem skara fram úr í sönglist
og viðurkendir eru meðal ann-
ara þjóða, verða að leita sér
atvinnu fjarri fósturjörðu sinni.
*) Hinn ísl óperusöngvari Sig\
Sk. hreif áheyrendur til háværrar
iðdáunar með sínum göfuga og tii-
finningarika tenor. — Þessi bjarta
rödd hreif áheyrendur, sem kölluðu
hann fram hvað eftir annað. —
Hr. Skagfield fer nú til hinna
3tærstu leikhúsa í Þ.zkalandi ,en
hefir lofað að gista oss aftur í
vetur. Fá þá áheyrendur tækifæri
til þess að endurnýja kunningsskap-
inn við þenna sjaldgæfa tenór. —
Islendingadagurinn í
Vatnabygðum
verður haldinn að Wynyard Beach
FÖSTUDAGINN, 31. Júlí næstkomandi
og hefst kl. 12.30 e.h.
Agætur söngflokkur undir stjórn hinsi velþekta
söngstjóra herra Björgvins Guðmudssonar
Ágætis ræðumenn
Yfir höfuð verður vandað til dagsins, engu
síður en að undanförnu.
Aðgangur aðeins 25 cent
Dans að Kvöldinu — Aðgangur 50 cent.
Kvenfélagið “Framsókn" selur veitingar að deginum
fyrir 15 cent
Heitt og kalt vatn, verður á staðnum ókeypis, handa
þeim, er þess óska.
KOMIÐ ÖLL!
ISLENDINGADAGURINN
HNAUSA, MAN., 3. ÁGÚST 1931
Byrjar kl. 10 árdegis
Aðgangur 35c fyrir fullorðna og 15c börn innan 12 ára
Ræðuhöld byrja kl. 2 eftlr hádegi
Minni íslands ........ Dr. Rögnvaldur Pétursson
Kvæði: Jónas frá Kaldbak
Minni Canada ............ Sére Ragnar E. Kvaran
Kvæði: Þ. Þ. Þorsteinsson
Minni Nýja-íslands ........ Dr. Ólafur Björnsson
Kvæði: Dr. S. E. Björnsson
IÞRÓTTIB: Hlaup fyrir unga og gamla, Langstökk, Hástökk,
Stangarstökk, Hopp-Stig-Stökk, Eggja-Hlaup fyrir stúlkur, Hjól-
böru-Hlaup, 3 Fóta Hlaup og Kvart Mílu Hlaup, Islenzk Fegurð-
arglíma, Kapp-Sund.
$200 OEFNIR 1 VEROLAI NUIVI
Dans í Hnausa Community Hall
Verðlauna-Vals kukkan 9
Barnasöngflokkur frá Gimli undir leiðsögn
Brynjólfs Thorlákssonar og Lúðraflokkur frá Riverton
Skemtiferðalestin til Hnausa fer að morgninum kl. 9.05 frá
C. P. R. járnbrautarstöðvunum i Winnipeg og kemur til baka að
kveldinu. Niðursett far sem fylgir: Frá Winnipeg til Hnausa
og til baka $1.90, frá Selkirk $1.90, fra Winnipeg Beach $1.20
frá Gimli 65, frá Arnes 50c
ALLIR VELKOMNIR !
SV. THORVALDSON, Forseti
G. O. EINARSON, Ritari
S. S. WOLVERINE
will make round trips to Norway House, leaving Sel-
kirk every Monday at 3 p. m.. — Also special Week-
End trips to Berens River and Big George's Island,
leaving Selkirk every Friday 7.30 p.m.
FARES ROUND TRIP TO NORWAY HOUSE
$24*00
BERENS RIVER and BIG GEORGE’S ISLAND
$16.00
Prices for other points on the lake and all other in-
formation available at
NORTHERN FISH GO., LTD.
SELKIRK, MANITOBA
and
VIKING PRESS LTD.
853 SARGENT AVE., WINNIPEG