Heimskringla - 07.10.1931, Page 3
WINNIPEG 7. OKTÓBER 1931.
HEIMSKRINLA
3. BLAÐSlÐA
þér sevi
n otiff
T I M BUR
KA UPIÐ
AF
The Empire Sash & Door Co., Ltd.
Birgðir: Henry Ave. East Phone: 26 356
Bkrifstofa: 5. gólfi, Bank of Hamilton
VERÐ GÆÐI ANÆGJA.
mjög svo algengt að heyra svo
að orði komist, að kristinn sé
sá, sem kappkosti að lifa í
anda Jesú Krists. En á meðan
ekki eru allir á eitt sáttir með
það, hver andi hans hafi verið,
þá er ekkert með því sagt.
Vísindalegar rannsóknir í þeim
efnum eru enn í bernsku og
eru enn skemra á veg komnar
fyrir það, að rannsóknarar hafa
að meiru eða minna leyti verið
bundnir við skoðanir erfða-
kenninganna eða hlífzt við að
ganga í fuilkomið berhögg við
þær. Þess er því í raun og veru
alls engin von, að menn hafi
enn orðið sammála um á-
kveðnar niðurstöður af þeim
rannsóknum. Og það er reynd-
ar hæpið, að nokkurntíma verði
eining um þær, eins og vísind-
unum er þessi rannsókn í
pottinn búin. Það má um það
deila í það óendanlega, frá
hvaða atburðum úr lífi Jesú
muni rétt vera skýrt, og hvaða
setningar rétt hermdar. All-
ar niðurstöður verða að bygg-
jast á líkum og þar sem svo
er, líta menn altaf misjafnlega
á það, í hvaða/\átt sterkustu
líkurnar hníga. En hverju sem
menn vilja um það spá, að menn
verði í þessu efni sammála um
ákevðnar niðurstöður, þá er
ekki hægt að tala um kristni
eða “líf í anda Jesú Krists’’
sem eitthvað fastákveðið hug-
tak, meðan sú niðurstaða er
ekki fengin.
Ef breyta ætti nafni íslenkzr-
ar þjóðkirkju, þá væri það mín
tillaga, að hún héti “íslenzk
kirkja’’, kendi sig ekki við
neina ákveðna stefnu, hefði
það takmark að vera vöku-
maður og vekjari í íslenzku
i þjóðlífi, án þess að vera bundin
neinum reglum um það, hvern-
ig vekja skal. Hún á ekki að
vera trúarbragðafélag, ‘heldur
menningarstofnun. Þjóðkirkja
ísiands er tvímælalaust alveg
einstæð í sinni röð um heim
allan . Verk hennar hefir aldrei
nema að rnjög litlu leyti legið
á sviði túarbragðanna, heldur
á sviði almennra menta. Bar-
áttan milli kaþólsku og lúter-
sku er ekki á sviði trúarbragð-
anna, heldur er það barátta
milli erlendra og innlendra yfir-
ráða. Enda verður síðasti vörð-
ur kaþólskunnar ein af kær-
ustu þjóðbetjum lúterskra ís-
lendinga, en fyrsti lúterski
biskupinn verður hálfgert ó-
menni í meðvitund þjóðarinnar,
þar til sagnavísindi 20. aldar-
innar leiða annað í ljós. Og
Jóni Arasyni eru trúarbrögðin
ekki meiri helgidómur en það,
að þegar hann endurreisir hið
heilaga klaustur í Viðey, þá
liggur honum það meira á
hjarta að yrkja níðvísur um
Öanskinn en loftkvæði um hina
heilögu mey. íslenskir prestar
hafa yfirleitt verið snauðari að
einkennum trúarbragða en al-
menningurinn, snauðir að hjá-
trú og hindurvitnum, umburðar-
lyndari gagnvart nýjum hreyf-
ingum, og nýjar hugmyndir,
sem síast hafa inn til þjóðar-
innar, munu fremur hafa átt
þeim aðstoð að þakka en mót-
stöðu að kenna. Þeir hafa
verið menningarfrömuðir ís-
lenzkrar alþýðu, sumir braut-
ryðjendur í búnaði og öndvegis
nienn í frelsisbaráttu þjóðarinn-
ar. Enda hefir þjóðin bezt
kunnað að meta þessa starf-
semi þeirra, og þeir sem fræg-
astir hafa orðið hafa getið sér
beztan orðstýrinn fyrir annað
en trúboðsstarfsemi, þegar Jón
Ögmundsson er undanskilinn.
Björn Halldórsson í Sauðlauks-
dal hefir getið sér ódauðlegt
orð í sögu þjóðarinnar fyrir
sína kartöflurækt, Tómas Sæ-
mundsson fyrir áhuga á því að
veita verklegum menningar
straumum til þjóðarinnar, Hann
>es Stephensen og Arnljótur
Ólafsson fyrir sína stjórnmála-
starfsemi, Þórhallur biskup
Bjarnarson fyrir búnaðaráhuga
og Jón bisknp Vídalín hefir
verið lesinn um full 20 ár fyrir
svo strákslegan og snjallan rit-
hátt. að Laxness og Þórberg-
irr eru þar báðir börn til sam-
anburðar. Enginn íslenzkur
kennimaður hefir orðið frægur
f>Tir nýja útlistan trúarlærdóm-
ana eða baráttu gegn villutrú.
Það er fyrst nú á allra síð-
ustu tíð, að verið er að gera
tilraun með að gera íslenzka
presta að dragbítum á andlega
framsókn þjóðarinnar að dæmi
relends kirkjuanda. En takist
okkur yngri pres'tunum aö
hnekkja þeirri tilraun og ef við
reynumst þess megnugir að
setja mót okkar á kirkjuna sem
beild, þá teldi eg vel farið, að
við kendum kirkju okkar við
þjóðina og ættjörðina eina
saman, og gæfum með því til
kynna, að við viljum ekki á
neinn hátt eiga saman að sælda
við anda þann. sem svonefnd
kristin kirkja út um heim all-
,an hefir látið stjórnast af um
undanfarnar aldir, — vektum
ennfremur athygli á því, að
hér á landi hefir starfað kirkja,
sem er einstök í sinni röð um
beim allan, — kirkja, sem hef-
ir veitt nýjum þekkingargeisl-
um inn til þjóðarinnar á sama
tíma og aðrar kirkjur voru að
brenna uppfyndingamenn á
sviði vísindanna, — kirkja,
sem hefir staðið í broddi menn-
ingarlegrar framsóknar, meðan
aðrar kirkjur héldu í og spyrntu
fast við fótum. “íslenzk kirkja’’
ef nafn þeirrar menningarstofn-
unar, sem hefir að markmiði
alhliða menningu þjóðarinnar,
— göfugri tilfinningar, skarp-
ari skilning, sberkari og ein-
beittari vilja og fjölskrúðugri
þekkingu — og að tæki læröa
menn útum bygðir landsins,
sem verði þar menningarfröm-
uðir á einu og öðru sviði, leið-
beinendur alþýðunnar í heim-
speki ,sögu og stjórnmálum,
glæðandi andlegleika hrygð
hennar og sorgir og samkvæm-/
isgleði, atvinnumál og hvers-
konar félagsskap.
Saurbæ, í mars 1930.
Gunnar Benediktsson.
—Straumar.
SKIPASMÍÐASTÖÐ
VIÐ REYKJAVfK
Alþingisályktun um nefndar-
skipun.
Alþingisályktun befir verið
gerð um skipun þriggja manna
nefndar til að rannsaka og
gera tillögur um gerð og starf-
rækslu skipasmí^astöðvar í
Reykjavík eða grendinni — til
skipasmíða og viðgerðar. Var
ákveðið, að nefndin verði skip-
uð á þann hátt, sem tillagan
þar um hljóðaði um, er skýrt
var frá hér í blaðinu á föstu-
daginn.
—AJþbl.
OPIÐ BRÉF TIL HKR.
Tileinkað vinum mínum, Mrs.
Rósu Casper, Blaine Wash., og
K. N. skáldi á Mountain, N. D.
Frh.
Síðasti áfangastaður okkar í
þessari norður og suðurför
var Húsafell, þar sem séra
Snorri bjó og er grafinn. Geng-
um við að leiði þess sérkenni-
lega, og góða íslendings. Svo
gengum við út á tún og sáum
Sörladys hests Skúla fógeta,
sem Grímur Thomsen kveður
um hið fræga kvæði sitt “Skúla
skeið’’. Vitrir menn staðhæfa
þó, að Sörli geti ei verið þar
jarðaður, en hvað sem því líð-
ur, og hvar sem Sörli “krafsar
hrauna-sallann’’ — þá myndi
hann nú bráðlega finna hina
nýju fjallvegu betri til muna,
>en þeir voru, er hann barg lífi
Skúla. Þá gengum við út fyr-
ir tún, og sáum Amlóða —
einn af þeim þrem steinum,
sem sr. Snorri á að hafa leik-
ið sér að, og reynt með karl-
mennsku gesta sinna. Am-
lóði léttasti steinninn liggur
þar enn, og er götuslóði >um-
hverfis hann, eftir fætur þeirra
manna, sem reynt hafa krafta
sína á honum. Var mér sagt
menn í öllum Borgarfirði sem
borið gætu Amlóða umhverfis
réttina — liún stendur þar
ennþá — og lagt hann upp á
dyrakampinn, samkvæmt fyr-
irmælum Snorra. Fáeinii
menn lyfta honum á kné og
enn nokkrir geta látið renna
vatn undir hann. Þeir, hálf-
sterkur og full-sterkur eru báð-
ir úr sögunni, svo enginn veit
hvað um þá befir orðið.
Hefðum við nokkurstaðar
haft kveldverð þenna langa
ferðadag, hefðum við átt að
gera það hér að Húsafelli. En
eg man nii hneint ekki til að
við gerðum það, og ekki er
þess getið í ferðasögupistlum
mínum. Sýnir það bezt hve
lítið hugur manns snýst um
matinn, þó hann sé nauðsyn
þegar um eitthvað stórt eða
hugðnæmt er að ræða. Það
er langur tími frá kl. 12 til 1
að hallandi liádegi til kl. 2 að
næturlagi eða næsta morgni,
því um það leyti komum við
til Reykjavíkur. En fyrst eg
man ekki þetta atriði skal ekk-
ert um það sagt, skiftir enda
engu. Hinns vil eg þó geta,
áður eg legg upp á Kaldadal,
og kveð með öllu Borgar- og
Mýrarsýslur, að ekki einung-
is þótti mér víða þar, sérlega
fallegt, heldur og virtist mér
að þar mundi víða viel búið,
báru hin nýju reisulegu íbúð-
ir og víða gripahús líka, vott
um velgengni, því í þeim sýsl-
um virtist mér flest nýtísku
hús — þ. e. steinsteypuhús, af
byggðum þeim er eg hafði enn
þá um farið. Frá Húsafelli
blasir við Kalmannstunga. Um
þann bæ heyrði eg oft talað i
æsku, sem sjálfkjörinn gisti-
stað pósti og annara ferða-
manna. Þótti mér því gaman
að horfa yfir þangað, og nú
fannst mér þar geta naumast
felegt verið. Þar er þó enn
gestastöð — sérstaklega allra
þeirra er sjá vilja Surtshellir.
Þangað langaði mig mjög að
koma, en gat ekki. Til þess
var enginn tími nú eða síðar,
og verður það mér æ saknað-
arefni.
Þá leggjum við af stað frá
Húsafelli í síðasta lengsta og
versta áfangann. Nú kom
fram sem oftar heppni okkar
Mörtu í þesu ferðalagi. Hefð-
um við farið með bíl Jóns
Þorsteinssonar frá Hvamms-
tanga, hefðum við komið ofan
í Borgarnes og orðið að fara
þaðan sjóleiðis til Reykjavík-
ur, sömu leið og við fórum áð-
ur, en mist af Kaldadal. Nú
vorum við á leið til hans þ. e.
Kaldadals, skyldum fara yfir
Skúlaskeið og sjá ýmislegt það
á þeirri leið, sem við ella hefð-
um farið á mis við. Undir eins
og komið er út úr Húsafells-
túni, sækir bíllinn á brattann,
og það er bratti — og vega-
leysa — mundu við V.-ísl kalla
það, borið saman við fjallvegi
okkar hér. En hvergi ógn-
aði mér hæðin. Eg hef séð
meiri hæðir hér í fjöllum okkar
Strandabúa dýpri dali og mieiri
gil. En hér eru vegir ein-
breiðir og ekki auðvelt að sjá
hvað gera mætti ,ef bílar mætt
ust. En umferðin er lítil. Engir
bílar mættu okkur, þó auð-
veldlega gæti slíkt komið fyrir.
Nú eins og oftar dáðist eg að
stillingu bílstjórans. Þeir mega
ekki vera lofthræddir eða
taugaveiklaðir bílstjórarnir, sem
slíkar leiðir fara. Ekkert ógn-
aði mér heldur hristingurinn
og öll héldum við sætum okk-
ar. Upp þessar bröttu hlíðir
þræðir bíllinn í ótal krókum
og má þar víða litlu muna.
Veður var gott, sólskin. með
köflum og bjart yfir öUu. Mörg
urðu þarna giftn og lækir á
leiðinni upp hlíðina, og hrjóst-
ug er hún og ei fögur. Loks
vorum við komin upp á heiðar
eða fjallabrún þessa, og tók
þá við Skúlaskeið. Bílstjór-
inn Pétur Guðmundsson er
skapaður til að flytja forvitið
fierðafólk. Hann þreyttist
aldrei á að segja því um ör-
nefni er á leið okkar voru seint
og snemma. Þegar maður
kemur upp á Kaldadal er mað-
ur umkringdur af háfjöllum
snæfi þöktum meira og minna.
Enda lágu enn skaflar í daln-
um sjálfum, svo að í einum
stað lág skafl yfir veginn og
varð Pétur með bílinn að
sneiða fyrir hann. Þegar við
vorum skamt áletðis kominn á
dalnum, sá eg tvær lanibær.
Ekki sá eg stingandi strá þar
neinstaðar. En eitthvað hafa
þær fundið, sem tældi þær upp
þangað, enda voru þær ekki
á rás, og ekki stóðu þær held-
ur aðgerðalausar. Nöfnin á
fjallahring þeim er umkringja
þenna fáránlega stað hafði eg
skrifað á laust blað sem eg
finn nú ekki, en alt er landið
eyðilagt og umhverfið ægilegt.
Ekki kæri eg mig um að vera
þar ein a(S vetrarlagi og ekki
einusinni “í ærlegum stormi’’,
eins og H. H. óskaði einu
sinni að yrði þar, er hann reið
þá leið. En einmitt þetta
kvæði hans hafði vakið hjá
mér löngun eftir þessari leið.
Þegar við vorum komin þarna
upp á Kaldadal var degi tekið
að halla, og er við komum suð-
ur yfir var farið að skyggja. Ein
att skreið bíllinn áfram með
sömu ferð eða því sem næst,
eftir hraunsléttum utan í mal-
arhryggjum, eftir þurrum leir-
dældum milli hóla og hryggja,
og loks komum við niður á
Þingvöll. Var þá komið fram
yfir miðnætti og enn þá löng
leið til Reykjavíkur — frá 40
til 50 mílur að sögn. En nú
fór eg að kannast við mig, því
á Þingvelli hafði eg nýlega
verið 5 daga, þ. e. meðan á
hátíðinni stóð, og þó nokkuð
lengur. Eg bjóst við að nú
væri þessi söguríki staður mann
laus orðinn. En því fór fjarri.
Þgr voru ennþá nokkur tjöld og
þó nokkuð af fólki, og alt var
það enn á fótum. Ekki var
enn þá dagsett á íslandi, en
lítil birta stóð af þeirri dags-
rönd sem enn var á lofti, og
nóttin köld. Frá Þingvöllum
fórum við austurleiðina og nið-
ur eftir Mosfellssveitinni, hefði
mér þótt vænt um það að degi
til. En nú naut útsýnis ekki
fyr en komið var ofan í neðri
og vestari hluta hennar, og þó
ekki vel. Þá var samt tekið að
birta, og meira >en hálf bjart.
er við komum að Undralandi,
rétt fyrir innan bæinn þ. e.
Reykjavík, kl. 2 e. m. n. þar
og þá lauk þessari för okkar
KOSTAR SVOLÍTIÐ MEIRA EN ÓUPP-
SETT TE — EN ER ÞESS VIRÐI — ÞVÍ
ÞAÐ ER KRAFTMEIRA OG KEIMBETRA.
Blue Ribbon Limited
WINNIPEG :: :: CANADA
Mörtu minnar eftir réttar tvær
vikur, og að ýmsu leiti hinni
skemtilegustu ferð, sem eg hefi
farið á æfinni allri, og mér
óglyemanleg.
Frh.
EINKENNILEGT
NÁTTÚRUFYRIRBRIGÐI
Sunnanvindurinn ber hundruð
þúsunda suðlægra fiðrilda
norður til íslands.
Firðrildi þau, er sagt var frá
hér í blaðinu í gær, eru þistil-
fiðrildi (Vanessa cardui*. Þau
eru gul-, ljós- og mó-flekkótt
og um 61 cm. vængjabrodd-
anna á milli. Þau eru ákaflega
vel fleyg og flakka oft í stór-
hópum frá heimkynnum sínum,
sem er Suður-Evrópa, langt
norður í lönd, og þegar þau
svo fá sunnanátt geta þau bor-
ist alla leið til íslands. Þau
hafa borist hingað nokkrum
sinnum áður, og telur dr.
Bjarni Sæmundsson líklegt, að
hin svonefnda sóttarfluga, sem
getið er um í annálum, að
stundum hafi sézt hér mikil
mergð a,f, hafi vierið þistil-
fiðrildi. En menn álitu þá
alla náttúruviðburði boða sótt
eða óáran, og af því stafar
nafnið sóttarfluga.
í gær var hringt til blaðsins
og sagt frá því, að eitt af fiðr-
ildum þessum væri í Alþingis-
hússgarðinum. Síðar fréttist
að þau hefðu sézt í Hafnar-
firði, í Flatey, og vestur á
Barðaströnd, en í garði einum
rétt háj Skólavörðustíg sáust
ekki fæn-i en 10 af þeim. Það
þarf því ekki að efa, að bor-
ist hafa hundruð þúsunda norð-
ur yfir höf af fiðrildum þessum
með undanfarinhi sunnanátt.
Væri gaman að fá fréttir úr
sem flestum áttum hvar þau
hafa sézt og hvenær. —Alþbl.
Athugasemdir þýðanda eru
oft hið skemtilegasta við skáld-
sögurnar. í einni þýddri enskri
sögu stendur: Greifynjan and-
varpaði og mælti: “Ó, eg vildi
að eg væri komin þúsund míl-
ur undir jörðina!’’
Og neðanmáls:
— Höfundurinn á eflaust við
enskar mílur!
SPARIÐ
sem svarar
*30—
á rafstóarkaupum
með því að kaupa rafstó með-
an á útsölutímanum stendur,
sparið þér $18.00 til $20.00 á
vírlagningu, og þess utan fáið
þér Slave Falls Souvenir gjafa-
I bérf fyrir $10.00 virði af raf-
| afli.
ÞETTA GERIK TIL SAMANS,
| ER ÞJER SPARIÐ, I .M $30.00
| Vér setjum inn hjá yður arfstó
á $10.00 niðurborgun. Afgang-
urinn breiddur með vægum
\ borgunarskilmálum.
SÍMIÐ 848 132
Cftij ofWmnfpeg
Hgdró!lectncS#em,
PBINCESS ST.
A Thorough School!
The “Success’’ is Cánada’s Largest
Private Commercial College, and the
finest and best equipped business train-
ing institution in Western Canada. It
conducts Day. and Evening Classes
throughout the year, employs a large
staff of expert teachers, and provides
sufficient individual instruction to per-
mit every student to progress according
to his capacity for study.
Inj twenty-one years, since the founding of the “Suc-
cess” Business College of Winnpeg in 1909, approxi-
mately 2,500 Icelandic students have enrolled in this
College. The decided preference for “Success’’ train-
ing is significant, because the Icelanders have a keen
sense of educational values, and each year the number
of our Icelandic students show an increase.
Day and Evening Classes
OPEN ALL THE YEAR
The SUCCESS BUSINESS C0LLEGE, Ltd.
PORTAGE AVENUE AT EDMONTON STREET.
PHONE 25 843