Heimskringla - 23.03.1932, Side 1
PertKs
The 4 STAR CLEANERS
Men’s Suits
SuHs $1.00
Hats 50c
PHONE 37 266
PeetJís
The 4 STAR CLRANERS
Ladies’ Dresses
Cloth, Wool <t aa
or Jersey . 9 I »UU
PHONE 37 266
XLVI. ÁRGANGUR.
WINNIPEG MIÐVIKUDAGINN 23. MARZ 1932
NUMER 26
FJÁRHAGSÁÆTLUN
BRACKENSTJÓRNAR.
Hér skal í eins fáum dráttum
og unt er sýna merginn úr
fjárhagsáætlun Manitobafylkis,
sem lpgð var fram í þinginu
s.l. mánudagskvöld.
Öll útgjöld á komandi ári eru
metin $13,692,044, en tekjur
$13,717,658.
Útgjöldin eru $1,013,486 lægri
en s.l. ár. Tekjurnar einnig
$987,842 minni.
En nú býst stjórnin við í lok
yfirstandandi fjárhagsárs, að
hafa um $3,000,000 tekjuhalla.
Til þess að titta í það skarðið á
að nota afganginn af fénu frá
sambandsstjórninni í eignasjóði
fylkisins, en það mátti eina
varasjóðsfé fylkisins kalla.
Er nú erfiðara um lán en
nokkru sinni áður, enda ákveð-
ið að fylkisreksturinn verði
þannig, að hönd selji hendi (on
oash basis).
F'yrir nýjum sköttum er gert
ráð sem hér segir:
Skattur á áfengi, tóbaki,
vindlingum og vindlum, er nem-
ur hálfri miljón dala.
Skattur á vátryggingarfélög-
um hækkaður úr 2 prósent upp
í 3 prósent af öllum tekjum af
vátryggingum.
Skattur á bönkum hækkað-
ur. Sem stendur borga þeir
$2,400 af aðaibankastöðvum
sínum, og $300 niður í $100 af
útbúum. Nú verður skattur á
aðalbönkunum $5,000 og útbú-
unum $500 hverju.
Skattur smærri félaga, sem
ekki greiða corporation skatt,
verður hækkaður úr 2 prósent
af hreinum tekjum, upp í 5 pró-
sent.
Tekjuskattur nær nú til
flestra. Hafi giftur maður í árs-
laun $1500, greiðir hnnn skatt.
Áður voru $3000 tekjur undan-
til þessa unnið Bretakonungi í
þingi. Kunngerði utanríkisráð-
herra Breta, Rt. Hon. J. H
Thomas, brezka þinginu í gær,
að sér hefði borist tilkynning
um þetta frá stjórn de Valera.
Voru fréttir þessar alt annað
en gleðiefni Bretum, því með
þessu virðist ekki mikið skorta
á, að írland hafi sagt upp
stjómmálasambandi við Bret-
land.
Engum getur dulist, að de
Valera hefir stefnt að því, að
gera írland sjálfstætt ríki. Auð-
vitað er eftir að vita hvernig
Norður-frland snýst við þeirri
stefnu hans. En standi ekki á
Bretum að veita sjálfstæðið, er
ekki líklegt að á móti því verði
haft heimafyrir.
De Valera neitar einnig að
greiða Bretum bændalánsskatt-
inn, er nemur 3 miljónum ster-
lingspunda á ári. Stendur þann-
ig á þessum skatti, að Bretar
lánuðu írum fé til eflingar bún-
aði, og áttu bændur að greiða
það aftur, eins og þeir hafa
gert. En írska stjórnin inn-
heimtir skattinn af þeim, og
það er féð, sem de Valera neit-
ar að greiða Bretlandi.
Að öðru leyti hefir de Valera
lýst það áform sitt, að hækka
tolla á vörum frá Bretlandi, og
reyna í þess stað að koma upp
iðnaði heima fyrir. Er því alt
útlit fyrir, að til mikilla tíðinda
sé að draga í írska heima-
stjórnarmálinu gamla.
50 ÁR í WINNIPEG.
Síðastliðin fimtudag voru 50
ár liðin frá því, er B. L. Bald-
winson kom til Winnipeg. Hef-
ir hann átt hér heima síðan.
Mintist hann þessa dags með
nokkrum vinum sínum heima
hjá sér. í almennum málum er
íslendingum kunnugt um störf
þegnar. Ógiftir menn með $750 | hans. Hann var í mörg ár þing-
árstekjum greiða nú skatt. Áð- maður, eigandi og útgefandi
ur voru $1000 tekjur undan-
þegnar. $300 reiknast nú af
fyrir hvert barn. Áður voru það
$500.
Gasoline skattur hækkaður
úr 5c upp 6c.
Minkuð útgjöld eru um hálfa
aðra miljón í stjórnardeildun-
um. í deild opinberra verka eru
útgjöldin lækkuð um $585,000;
í heilbrigðismáladeildinni um
$383,000; í mentamáladeildinni
um $243,500, o. s. frv. Lögreglu
kostnaður sparast fylkinu, svo
að nernur $115,000, með sam-
einingu fylkislögreglunnar og
riddaralögreglu Norðvesturlands
ins. Með öðrum orðum, vinnu-
laun eru lækkuð, vinna mipk-
uð, veiting til skóla, líknar-
stofnana og almennra sjúkra-
liúsa lækkuð.
Af öllu þessu er vinnulauna-
skattur almennings einna al-
varlegastur. Þúsundir manna,
■sem ekki hafa áður greitt tekju-
skatt, verða að greiða hann á
komandi ári. Ógift fólk, er hefir
$15 kaup á viku, greiðir tekju-
skatt. Giftir menn með $29 viku
kaupi greiða einnig skatt. Sést
af þessu hve tekjuskattur þessi
er nærgöngull. Og hið sama má
um skattinn á smærri viðskift-
um segja.
Heimskringlu um skeið og ann-
aðist sjálfur ritstjórnina. Einn-
ig var hann nokkur síðustu ár
starfsæfinnar aðstoðar fylkis-
ritari í Manitoba. Baldvin varð
75 ára 26. október s. 1. haust
(1931).
PERLUR
Fæst af þeirra fegurð ber
að Fjölnis listadómi.
í sögu þeirra ofinn er
æfintýra ljómi.
í björtu letri Ijóðamáls
þó lofsins aldrei nutu.
Við fannahvítann freyjuháls
þær frægð og orðstír hlutu.
En þó ei lengur þrúðgur sær
sé þeirra grið^taður,
litaeind og eðli nær
enginn listamaður.
í djúpum hafs er háðu för
gegn haéttu og mörgum raunum,
þeir þáðu fæstir kostakjör
né konungsríki að launum.
Vér allir höfum ungir lært,
þó oft sé hugur gleyminn,
að sannleiks perluskrautið skærst,
það skín um allan heiminn.
Og hvarvetna má heyra og sjá
í höllum bókmentanna,
að gnægð af perlu-auði á
andi spakra manna.
Er hlynur stendur beina-ber
og björk með frosnar rætur,
þó undra-perlur eiga sér
þau eftir hrímgar nætur.
Oft gægist máni um gluggann inn
frá geimsins draumalöndum,
og skýjafaldihn skreytir sinn
með skygndum perluböndum.
Ef þú í veldi vorsins býrð,
sérð völl og aspir gróa.
í allri sinni drottins dýrð
sást daggarperlur glóa.
En hafi hjartað sárum særst,
og sorgin hugann málar,
þá grátperlurnar glitra skærst
frá grunni hreinnar sálar.
G. Stefánsson.
skattinum, en margir þingnaenn
innan flokkanna eru hopum
mótfallnir, og hefir frumvlarp-
ið verið rætt af hita um tíma í
þinginu. Öll líkindi eru þó tii
að það verði samþykt, þegar til
atkvæðagreiðslu kemur.
‘SKUGGA-SVEINN’
BANDARÍKIN AÐ VERÐA
GJALDÞROTA,
segir leiStogi Demókrata á
þingi.
SJÁLFSTÆÐISMÁL ÍRLANDS
De Valera, sem við stjórnar
taumunum tók nýlega á fr-
landi, er nú búinn að tilkynna
brezku stjóminni, að stjórn sín
hafi numið úr lögum hollustu
eiðinn, sem stjórn írlands hafi málaflokkanna eru með sölu
Henry T. Rainey, frá Illinois,
leiðtogi demókrata í neðri
deild Bandaríkja þingsins, sagði
í ræðu s.l. fimtudag, að Banda-
ríkin væru komin að gjald-
þroti, og að tekjur og útgjöld
landsins yrði að jafna, hvað
sem það kostaði skattgreið-
endur, ef vel ætti að fara.
Ef þetta væri ekki gert, kvað
hann bráðan voða bíða þjóð-
arinnar — voða, sem engan
sinn líka ætti í veraldarsögunni.
Tekjuhalla ársreikninganna
kvað hann einnig meiri en sög-
ur liefðu farið af hjá nokkurri
þjóð áður.
Þessi ræða Rainey var flutt,
er umræðurnar stóðu yfir um
söluskatts frumvarp Hoovers
forseta. í frumvarpi þessu
er gert ráð fyrir að auka tekj-
ur landsins um $1,096,000,000
(rúma biljón) á komandi ári
Og með söluskatti, er neml
$595,000,000, ásamt fasteigna-
skatti, tekjuskatti o. fl., er hug-
mynd stjórnarinnar að draga
saman þessa biljón dala fúlgu.
Leiðtogar tveggja aðal stjóra
Seattle, Wash.
“Skugga-Sveinn’’ (eða öðru
nafni Útilegumennirnir), sjón-
leikur í 5 þáttum eftir Matthí-
as Jochumsson, verður leikinn
í samkomusal íslenzku frjáls-
lyndu kirkjunnar í Seattle, á
horni 77th St. og 25th Ave. N.
W., föstudaginn 1. apríl þ. á.,
og byrjar stundvíslega klukkan
8 síðdegis.
Ennfremur verður leikurinn
sýndur í samkomusal bæjar-
ráðshússins í Blaine, Wash., á
laugardaginn 9. apríl.
Eins og öllum er kunnugt
hefir “Skugga-Sveinn’’ átt
meiri vinsældum að fagna með-
al þjóðar vorrar en nokkurt
annað leikrit, samið á íslenzka
tungu, og liggja til þess mörg
rök.
Þótt leikurinn sé ekki beint
sögulegs eðlis, heldur skáld-
skapur einn, hefir höfundinum
tekist svo snildarlega að fram-
leiða marga mismunandi “cha-
racters’’, er sýna sveitalíf, hugs
unarhátt og önnur einkenni
þjóðarinnar frá þeim tíma, að
ekkert sem gert hefir verið í
þá átt fyr eða síðar hefir betur
náð tilgangi sínum.
Það hefir verið venja með ís-
lendingum í Winnipeg, að sýna
leikinn á 10 ára fresti. Nú eru
liðin yfir 20 ár síðan hann var
leikinn hér á Kyrrahafsströnd-
inni. Munu því íslendingar hér
um slóðir fagna komu Skugga-
Sveins á leiksviðið.
Að þessu sinni hefir sérstak-
lega vel verið valið í hlutverk
in. Má t. d. nefna að höfuð-
persónuna, Skugga-Svein sjálf
an, leikur Gunnar Matthíasson
(sonur skáldsins), og gefur það
eitt út af fyrir sig næga trygg-
ingu fyrir að vel muni fara.
Margir aðrir af leikendunum
hafa listræna hæfileika og eru
vanir leiksviði. Ennfremur hef-
ir verið vandað til allra bún-
inga. Leiktjöld öll hefir málað
Stephen Grandy. Þar má líta
hina fegurstu fjallasýn, sem á
hvergi sin nlíka nema í íslenzkrí
náttúru. Hér má því eiga von
á góðri kvöldskemtun.
Munið dagana: í Seattle 1.
apríl og í Blaine 9. apríl.
FISKIMAÐUR VINNUR MÁL
SITT.
Fyrir skömmu síðan var
dómur kveðinn upp í máli, er
Friðrik Finnsson á Víðir, P.O.,
Man., hóf á hendur fiskifélagi
er hann hafði selt birting, en
ekki fengið andvirðið greitt sér.
Fiskurinn var seldur vetur-
inn 1930—31. Máli'nu lauk þann
ig, að rétturinn dæmdi fiski-
félagið til að borga á fullu
markaðsverði allan þann fisk,
er það hefði veitt móttöku fyrir
þann tíma er innflutningsbann-
ið í Bandaríkjunum var lög-
leitt. Vegna þess að líkt mun
ástatt fyrir mörgum fiskimönn-
um á Winnipegvatni, eins og
Mr. Finnsson, héldum vér að
leim þætti frétt þessi athyglis-
verð. G. S. Thorvaldson lög-
fræðingur sótti málið fyrir hönd
fiskimannsins, en H. V. Hud-
son, K. C., fyrir fiskifélagið.
Mun þetta eina málið er unnist
hefir, er á móti fiskifélögunum
hefir verið sótt, af hálfu fiski-
manna.
foreldrum sem framfærslustyrk
hafa hjá bænum.
♦ * *
Fjórtán miljón bændur í
Rússlandi horfast í augu við
hungur og allsleysi. Er það af-
leiðing af uppskerubresti síð-
astliðið sumar. Segja þeir, er
kornsölu eru kunnugastir, að
Rússland muni ekki hafa neitt
af hveiti til útflutnings á yfir-
standandi uppskeruári.
* * *
Til samveldisfundarins, sem
haldinn verður í Ottawa á kom-
andi sumri, koma þessir fulltrú-
ar frá Bretlandi: Rt. Hon. Stan-
ley Baldwin, stjórnarforseti; Rt.
Hon. N*eville Chmaberlain, fjár-
málaráðherra; Lord Hailsham,
hermálaráðherra; Rt. Hon. J.
H. Thomas, nýlenduráðherra;
Sir Philip Cunliffe-Lister, ný-
lenduritari; Rt. Hon. Walter
Runciman, forseti verzlunar-
ráðsins, og einhverjir úr akur-
yrkjudeild brezku stjórnarinnar.
Má af valinu í nefnd þessa sjá,
að Bretum þykir mikils vert um
mál þau, er fundur þessi hefir
til meðferðar. Ætti Canada
einnig að velja sína beztu menn
í nefndina, af hvaða pólitísku
sauðahúsi sem þeir eru.
• • •
í aukakosningu til sambands-
þingsins, er fram fór í Atha-
basca í gær, er kosningin talin
vís Percy G. Davies, conserva-
tíva, lögfræðingi 29 ára göml-
um. Atkvæði hafa talin verið
í 211 kjördæmum af 219. Hefir
Davies um 300 atkvæði fram
yfir næsta keppinaut sinn, Isaac
S. Doz, liberala. Tveir aðrir
sækja, annar undir merkjum
bænda, en hinn óháður, en út-
séð er um að hvorugur þeirra
nær kosningu.
• • *
Lögregla Manitobafylkis hef-
ir nú verið sameinuð lögreglu
norðvesturlandsins — (Royal
Canadian Mounted Police), og
er því ekki nein fylkislögregla
hér framar til. Sambands-
stjórnin sér með öðrum orðum
um lögreglueftirlitið, og sparar
það fylkinu stórfé. Hið sama
hefir smbandsstjómin nú gert
fyrir öll smærri fylki landsins
eða öll nema Ontario og Que-
bec.
ELIS LEO og HENRY
STONESON.
’’en orðstír
deyr aldrigi
hveim sér góðan getr.’’
í íslendingabók stendur: “Oþr
dóttir Ketils flatnefs, hersis
1 nóræns, bygþi vestr í Breiþafirþi.
Þaþan ero Breiþfirþingar comn-
er’’. Með sama rétti mætti
segja: Vestur á Mýrum bygði
Grímur Kveldúlfsson. Frá lion-
um eru Mýramenn komnir.
Enginn ætli, að eg ætli hér
að fara að rekja ættarsögu Oþr
gða Auðar Ketilsdóttur, né lield-
ur Gríms Kveldúlfssonar, þó að
Elis Leo Stoneson
hvorttveggja væri hugðnæmt
umhugsunarefni, eins og ávalt,
þegar um sérstaka mannkosti
eða afburða þrek er að ræða,
sem miðlað hefir af andlegum
auði sínum og dáðríkri dreng-
lund samtíðarmönnum sínum
og eftirkomendum, eins og þau
tvö, sem hér um ræðir, gerðu.
Og þó að nú séu liðin þúsund ár
síðan þau voru uppi, lifir orðstír
þeirra enn í fersku minni ætt-
þjóðar þeirra, höfðings lundin
og hetjuandinn hefir gengið í
arf, mann fram af manni í ætt-
um þeirra og afkomendum alt
fram á vora daga.
Eitt af því verðmæta í lífinu
FRA ISLANDI
ÝMSAR FRÉTTIR.
Tekjuhalli Bændalánsdeildar
Manitobastjórnarinnar hækkaði
síðasta fjárhagsárið, sem endaði
30. apríl 1931, úr 168,874 upp
í $1,022,204. Orsökin til þess-
arar hækkunar er starfskostn-
aður er nemur $85,197, og $768,
159, er strikað var út af bók
unum sem óinnkallanleg láns-
skuld.
• • •
Fimtán hundruð börn hafa
Skipastóll landsins.
í árslok 1931 voru alls skrá-
sett á landinu 88 gufuskip, 642
mótorskip og 5 seglskip, eða
alls 735 skip, sem voru samtals
rúmlega 39 þúsund smálestir
(brúttó).
* • •
Gjaldþrot 1931.
Samkvæmt innköllun í Lög-
birtingablaðinu urðu 36 gjald-
þrot árið 1931, og er það miklu
hærri tala en áður. Gjaldþrotin
skiftust þannig: 1 Reykjavík
12, aðrir kaupstaðir 14, verzlun
arstaðir 7 og sveitir 3. Meiri-
hluti þeirra er gjaldþrota urðu,
störfuðu að verzlun og útgerð.
— Meðal þeirra voru 3 hlutafé-
lög og eitt samlagsfélag. Auk
þess var Síldareinkasala íslands
tekin til skiftameðferðar í des-
ember s. 1. ár.
• • •
Faraldur í fuglum
Það er engu líkara en að
banvæn pest sé í álftum í vet-
ur. Auk merktu álftarinnar, er
fanst í Höfnum, hafa fundist
þar margar álftir dauðar. Er
sýnilegt að þær hafa sjálfdauð-
ar orðið, og ekki getur það ver-
Henry Stoneson
fæðst í Winnipeg í vetur af ið af hungri.
eru fyrirdæmi atorkusamra,
framsýnna og drenglyndra
manna og kvenna, er veginn
ryðja og sýna þeim sem meiri
máttar eru leiðina til meiri
þroska, göfugri hugsjóna og
fullkomnari drengskapar, svo
þeir megi verða að nýtari og
betri mönnum. En af slíkum
fyrirdæmum er saga okkar ís-
endinga rík, og er það ekki hið
minsta verðmæti hins þjóðern
islega arfs. Það er því ávalt
gleðiefni, þegar maður sér slík
ættareinkenni að verki í lífi og
starfi íslendinga, og eg er viss
um að það mundi líka gleðja,
ekki aðeins ættmóður Breiðfirð
inga og ættföður Mýramanna,
heldur og ættfeður og ættmæð-
ur hinnar íslenzku þjóðar, ef
Frh. á 2. bls.
/