Heimskringla - 11.05.1932, Side 7
WINNIPEG 11. MAÍ 1932.
HEIMSKR.nv ua
7. SfÐA
BRAUTRYÐJENDUR.
Frh. frá 3. bifl.
semdum náttúrunnar. Lét
liann sér ekkert það óviðkom-
andi, er horfði til framfara og
nytsemdar þjóðinni.
Skylt er og að minna á
Magnús Stephensen. Var hann
!bæði framgjarn og stórhuga.
Hann varð aðalforkólfur og
brautryðjandi fræðslustefnurin-
ar hér á landi. Þá voru engir
alþýðuskólar komnir á fót, og
engin blöð eða tímarit gefin út,
er alþýðumenn gætu fræðst af.
Alþýða manna var því mjög
lítilsigld og fákunnandi. Úr
þessu vildi Magnús bæta og
gerðist athafnamikill um bóka-
útgáfu á íslandi í því skyni
að glæða nýjan smekk og nyt-
saman fróðleik með þjóðinni
og koma löndum sínum í kynni
við erlenda siðmenningu. Hélt
Magnús fræðslustarfi sínu á-
fram til æfiloka og horfði lítt
í kostnað þann og erfiði, er af
l>vi leiddi fyrir hann sjálfan, en
hlaut mikið af óþökk í stað-
inn. Hefir hann hlotið þann
dóm sögunnar, að hafa verið
einn hinn vitrasti höfðingi og
mesti skörungur þessa lands um
sína daga, þó að ýmislegt mætti
finna honum til foráttu eins og
flestum öðrum, því enginn er
algjör.
Um það leyti er Magnús
Stephensen hætti starfsemi
sinni, tók Baldvin Einarsson
að gefa út “Ármann á Alþingi’’,
og tók það tímarit við af
“Klausturpóstinum’’ og öðrum
Titum Magnúsar og hélt að
mörgu leyti fram sömu fræðslu
stefnunni, þó að í öðru sniði
væri. Baldvin var bráðgáfað-
or maður og hafði eldlegan á-
huga fyrir málefnum þjóðar-
innar. Hann var og bráðdugleg-
or til starfa, sem sést á því að
hann ritaði að mestu einn tíma-
rit sitt jafnframt því að stunda
háskólanám sitt af hinu mesta
kappi. Hann lagði hina mestu
áherzlu á uppeldi þjóðarinnar
með nytsamri fræðslu og örf-
andi eftirdæmi og vildi innræta
mönnum þann hugsunarhátt,
«r horfði til sannra þjóðþrifa.
En hans naut styttra við en
skyldi, því hann varð mjög
skammlífur.
Enginn íslendingur fyrr á
tímum hefir þó verið annar
eins brautryðjandi í bókstafleg-
um skilningi og Bjarni Thor-
arensen, Hann lét ryðja ísl.
ferðamönnum braut yfir kalda-
dal og kostaði til þess fé úr
eigin vasa. Hann gekkst og
fyrir víðtækari vegaruðningi
um landið. Ekki hafa þó þess-
ar framkvæmdir, þó nytsamar
væru, gert Bjarna frægan. Nafn
hans verður uppi, meðan íslenzk
tunga er töluð, af því að hann
var höfuðskáld ís?endinga á
sinni tíð, og þó einkum fyrir
það, að hann hóf nýja skáld-
skaparstefnu hér á landi í Ijóð-
um sínum, hina svonefndu
“rómantísku’’ stefnu. Hann er
tilfinninganæmari og hugsjóna
ríkari en skáldin á undan hon-
um. Hann gerðist því braut-
ryðjandi í skáldskaparlegu tilliti.
Hann ruddi ekki aðeins braut
yfir Kaldadal þann, er liggur
milli Oks og Geitlandsjökuls;
hann ruddi og braut yfir Kalda-
dal mannlífsins með kvæðum
sínum. Hann var heitur og
fölskvalaus ættjarðarvinur.
Þá eru hinir nafntoguðu
Fjölnismenn: Tómas Sæmunds-
son, Jónas Hallgrímsson, Kon-
ráð Gíslason og Brynjólfur
Pétursson. Tómas er þar frem
stur í framfaraákafa. Að af-
loknu prófi tók hann sér ferð
á hendur suður um lönd, til að
kynna sér menningu og háttu
annarra þjóða; voru slíkar lang-
ferðir fátíðar í þá daga. Á
þessu ferðalagi var ísland jafn-
an efst í huga hans. Hann
vildi beina erlendum menning-
arstraumum inn í íslenzkt þjóð-
líf, ekki til að gera það ó-
íslenzkulegra, heldur til að
vekja landa sína af svefni og
hrista úr þeim deyfðina og doð-
ann og hvessa skilning þeirra
og framfaralöngun. Þegar hann
kom aftur úr suðurförinni, var
hann með hugann fullan af
heitri þrá eftir að vinna föður-
landinu gagn með því að færá
því eitthvað af því fagra og
góða, er hann hafði séð. Þá
var það, að þeir félagar stofn-
uðu tímaritið “Fjölni”. Með
því riti hefst nýtt tímabil í sögu
íslenzkra bókmenta og í menn-
ingarsögu þjóðarinnar. Tómas
var með sínum brennandi á-
huga lífið og sálin í Fjölnis-
félaginu; hann vildi “brjóta
skarð í stíflurnar og veita frarn
lífsstraumi þjóðarinnar”, eins
og hann sjálfur kemst að orði.
Hann ritaði áhrifamiklar hug-
vekjur um hag landsins 1 öllum
greinum og eggjaði landa sítia
lögeggjan að hefjast handa og
hrista af sér slenið. Páll Mel-
steð, sem þekkti Tómas vel,
kallaði hann “ólman mann”.
Honum mun hafa fundist hann
þurfa að flýta sér að lifa og
starfa landi og lýð til gagns,
enda dó hann ungur.
Vinur síra Tómasar og sam-
ferðamaður, náttúrufræðingur-
inn og ‘nistaskáldið góða’’,
“hann sem kveða kunni kvæð-
in’ Ijúfu, þýðu”, Jónas Hall-
grímsson, orti sín fögru ljóð,
sem enn í dag og á ókomnum
tímum munun vekja unað og
gleði í hverju óspilltu hjarta.
Hann og Konráð Gíslason, hinn
frægi málvísindamaður, unnu
að því í sameiningu að hreinsa
og fegra tungu þjóðarinnar,
svo að hún birtist í fegurri og
tignarlegri búningi en nokkru
sinni fyr. Hefir starf þeirra á
þessu sviði haft ómetanlega
þýðingu fyrir íslenzkt þjóðerni.
Um séra Tómas látinn kvað
Jónas:
Lengi mun hans lifa rödd,
hrein og djörf um hæðir, lautir,
húsin öll og viðar brautir,
þá ísafold er illa stödd.
Um Jónas kvað Grímur
Thomsen:
Náttúrunnar numdir. mál,
numdir tungur fjalla,
svo að gaztu stein og stál
í stúðla látið falla.
Um Konráð kvað sama skáld:
Öllu því, sem íslands byggðir
eiga að fornu og nýju gott,
unni hann, feðra táp og tryggð-
ir
Taldi hann vorar beztu dyggðir,
en út af dæju ólánsvott.
Og enn kvað Grímur um
Brynjólf Pétursson:
Hverja réð hann rún, sem vildi,
en reikning hjartað aldrei skildi.
Brynjólfur var hjartahreinn
gáfumaður.
Skal þá að lokum minnt á
þann manninn, sem nefndur
hefir verið með réttu “óska-
barn íslands ,sómi þess, sverð
og skjöldur”’. Það er Jón
Sigurðsson forseti. Hann varði
æfidegi sínum til þess verks,
sem bezt er og fegurst, en það
er að leysa þjóð sína úr læð-
ingi, höggva af henni hvern
hlekkinn af öðrum og ávinna
henni frelsi. í verslunarmálinu
hóf hann baráttuna, þar sem
Skúli Magnússon hafði orðiö
að hætta við hálfunninn sigur
og þó ekki það, og fékk því
loks framgengt eftir harða
sókn, að verzlunin á íslandi
var gefin frjáls að fullu og öllu
árið 1854. Hefir þetta fram-
faraspor orðið landi og lýð eitt
hið blessunarríkasta.
Þá var hitt ekki síður mikils
virði, að árangurinn af striti
haris í þarfr þjóðarnnar var
stjórnarskráin 1874, siem að
vísu enganveginn fullnægði
kröfum íslendinga, en veitti
þeim þó góða fótfestu, sem
I
Prentun-
The Viking Press, Limited, gerir prentun smáa og stóra, fyr-
ir mjög sanngjamt verð. Ábyrgjumst að verkið sé smekklega
og fljótt og vel af hendi leyst. Látið oss prenta bréfhausa
yðar og umslög, og hvað annað sem þér þurfið að láta prenta.
Bækur og stærri verk gerð eftir sérstökum samingi.
THE VIKING PRESS LTD
853 SARGENT Ave., WINNIPEG
L
^ 5ími Sö-537 ^ ^
endaði með fullveldi tslands
árið 1918.
Jón Sigurðsson var frá því
harin komst á manndómsaldur
og til æfiloka höfðingi og leið-
togi íslendinga í öllum greinum.
Framúrskarandi kjarkur og
staðfesta var það, sem ein-
kenndi hann mest, enda hafði
hann sett í innsigli sitt orðin:
aldrei að víkja (frá réttu máli).
Jón Sigurðssno ruddi þjóð-
inni braut til frelsis og hvers-
konar framfara og varðaði veg-
inn fyrir áfæddar kynslóðir.
Þó hann sé hofinn af sjónar-
sviðinu fyrir fullum 50 árum,
er hann enn í dag og mun
lengi verða leiðtogi íslendinga
í menningarbaráttu þeirra.
Allir þeir íslendingar, er hér
hafa verið nefndir, og vitan-
lega ýmsir fleiri hafa á einn eða
annan hátt vakað yfir málefn-
um þjóðarinnar, eins og móðir
yfir sjúku barni. Þeir eru sáð-
mennirnir, sem gengið hafa út
og sáð góðu sæði í akur þjóð-
lífsins. Þeir eru vormenn ts-
Iands. Við njótum uppskerunn
ar, þar sem þeir sáðu. Skylda
okkar er, að minnast þeirra
ætíð með þakklæti og lotn-
ingarfullum huga. En það er
ekki nóg. Sú skylda hvílir
einnig á okkur að taka okkur
þá til fyrirmyndar og reyna að
líkjast þeim í daglegu lífi okk-
ar og störfum. Brautryðjend-
ur, í sama skilningi og þeir
voru, geta að vísu ekki allir
orðið. En ef hver og einn reyn-
ir að feta að einhverju leyti í
fótspor þeirra eftir þeim mætti
sem honum er gefinn, þá full-
nægjum við þessari skyldu. Ef
við getum ekki orðið braut-
ryðjendur, þá reynum að vera
góðir liðsmenn. Þess væntir
tsland bæði af mér og þér.
—Dagur.
PÁLSPISTLAR
Hinir síðarí.
Mínir elskanlegir!
Síðan eg fluttist til Ameríku,
hinnar nyrðri, og meðal ann-
ars lærði hérlent kák hefi eg
orðið margs þess var er varpað
hefir nýju ljósi á ýmsar dæmi-
sögur Meistarans góða, er eg
með veikum burðum var að
leitast við að túlka yður, í Litlu
Asíu, endur fyrir löngu.
Margar og skrautlegar kirkj-
ur, með krossum og turnum,
gefur að líta víðsvegar um
þetta mikla gosen-land, sem
þegnunum hefir verið kent að
nefna “Land Guðanna’’. Ein
þeirra rís áreiðanlega hærra
í loft upp en tuminn Babel, sem
þér heyrðuð mig svo iðulega
minnast á, og allar kenna þær
sig á einhvern hátt við hinn
sama Krist, er vér í öndverðu
lútum og þjónuðum. En alt
svo dýrlegar sem kirkjur þessar
viTðast vera, eru þó ýmsar
hallir hér enn veglegri og
stærri og þar sýnist ganga mik-
ið á, bæði daga og nætur. Ferð-
in á öllu er yfirgengileg og há-
vaðinn ærandi. Það er engu
líkara en allir væru altaf að
flýja einhvern ófögnuð og hefðu
engan frið í sálum sínum. Enn
fremur ráfar óumræðilegur
fjöldi fólks um götur allar og
ber alt yfirbragð þess glöggan
vott einhverrar óþrieyju og von-
leysis.
Ólíkt því, sem áður var, eru
nú margir orðnir skriftlærðir
og fregnir um afrek og ástand
lýða, letruð og skjalfest, ganga
manna á meðal dag frá degi,
svo enginn virðist þurfa að
sitja í myrkri og óvissu um
það, sem að er hafst. Sumt
af því, er eg hafði orðið þannig
var, er mér hin mesta ráðgáta,
og vil eg nú, mínir elskanlegir,
skýr^, fyrir yður atburð einn,
er bendir all-sterklega á eðh
og einkenni hinnar nýju menn-
ingar, svo þér megið vera við
öllu búnir ef þér skylduð reika
út á vettvang eins og eg:—
Maður nokkur, sem ekki
neytti brauðs síns í sveita síns
andlitis, og hafði því auðnast
N afi ns pj iöl Id [ |
G. S. THORVALDSON
B.A., L.L.B.
Lögfræðtngur
702 Confederation Life Bklg.
Talsími 24 587
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd UldK
Skrifstofusíml: 23674
Stund&r sérstaklega lungnasjúk-
dóma.
Er atJ finna á skrifstofu kl 10—12
f. h. og 2—6 e. h.
Heimili: 46 Alloway Ave.
Talnfml: 33158
DR A. BLONDAL
602 Medical Arts Bldg.
Talslmt: 22 296
Stundar sérstaklega kvensjúkdðma
og barnasjúkdóma. — Afl hltta:
kl. 10—12 « h. 0g 3—6 e h.
Helmlll: 806 Vlctor St. Slml 28 130
Dr. J. Stefansson
21« HBDICAL AHTS BLDtí.
Hornl Kennedy og Graham
Stundar elngnngo angna- eyrna -
nef- og kverka-ajðkddma
Er a8 hltta ffá kl. 11—12 f. h.
og kl. 3—6 e. h
Talalmt: 21H34
Hetmtlt: 638 McMtllan Ave 42691
W. J. LINDAL, K.C.
BJÖRN STEFÁNSSON
ISLENZKIR UJOFRÆÐINOAB
á. oðru gólfi
325 Main Street
Xals. 24 963
Hafa einnig skrifstofur að
Lnudar og Gimii og eru þar
að hitta, fyrsta miðvikudag i
hverjum mánuði.
Telephone: 21613
J. Christopherson.
Islemkur Lögfrœðingur
845 SOMERSET BLK.
Winnipeg, :: Manitoba.
DR. L. A. SIGURDSON
21.6-220 Medical Arts Bidg.
Phone 21 834 Office timar 2-4
Heimiii: 104 Home St.
Phone 72 409
Dr. A. B. INGIMUNDSON
Tannlæknir
602 MEDICAL ARTS BLDG.
Sími: 28 840 Heimilis: 46 054
að safna all-mörgum talentum,
hafði afráðið að kaupa bifvagu
einn mikinn, konu sinni og börn
um til augnagamans og upp-
lyftingar. En svo stóð á, að
flestir samsveitungar þeirra
voru í anda og sannleika þrælar
námufélags e|ns, ei* héraðið
átti, 'eins og það var stórt til
að vera, og höfðu því oftast
lítið til munns og klæða; þvi
þar sem svo til hagar er sveiti
manna ódýr en lífsnauðsynjar
allar með hæsta verði. Enn-
fremur höfðu þrælarnir fram-
leitt svo mikil kol að eigendurn-
ir höfðu ákvarðað langvarandi
uppihald í hagsmuna skynt
Máttu því þrælamir og f jölskyld
ur þeirra hafast við á eintómri
trúarvon og allsleysi.
Þetta alt saman vissu hjón-
in með talentumar, því þau
höfðu framfleytt sér og auðgast
á kaupsýslu við þetta fólk og
veru nú orðin kjörum þess
kunnug. Og þótt þau elskuðu
sjálf sig og sín börn meira en
náungan og niðja hans má
segja þeim til verðugs hróss,
að eftir nokkra umhugsun og
sjálfsaga kom þeim saman um
að neita sér um bifvagninn
fyrirhugaða og láta talenturnar
fyrir brauðmjöl handa bömum
þrælanna. Pöntuðu þau því
stórt vagnhlass af hveitimjöli,
og létu það boð út ganga, að
hver fjölskyldufaðir, sem til
staðar kæmi á vissum degi,
fengi mjölskamt fyrir fólk sitt
ókeypis.
En þá kom fyrir nokkuð það,
sem vér, austurlandamenn,
höfðum ekki fyrirséð. Strax
og mjölvagninn kom á stöðina,
gekk stór og tiginn hundraðs-
höfðingi einn þar að með stórt
og skrautlegt skjal í hendi, tók
mjölið lögtaki og stefndi gjaf-
aranum fyrir lög og dóm. Á-
kæran var glæpsamleg hjálp-
semi; og megið þér, mínir elsk-
uðu, vita að við það brá mér
mjög í brún.
Sú hlið réttvísinnar, sem liér
kom fram var sú hverfa mann-
félagsmálanna, sem eg hafði
ekki áður hugsað, og for-
vitni ,eigi síður en undrun,
ögraði mér til að fylgja málinu
til úrslita. Það stóð ekki á
löngu. Konu kaupmannsins, ól-
gandi af hrygð og bræði, fór
Frh. á 8 bl».
A. S. BARDAL
selur llkklstur og annast um útfar-
lr. Allur útbúnabur sá beztl
Ennfremur selur bann allskonar
minntsvarba og legstelna.
843 SHERBROOKE ST.
Phone: Mð «OT WINNIPBG
HEALTH RESTORED
Lækningar án lyfja
DR. 8. G. SIMPSON, N.D., D.O., D.O.
Chronic Diseases
Phone: 87 208
Suite 642-44 Somerset Blk.
WINNIPEG —MAN.
MARGARET DALMAN
TE4CHKH OF PIANO
894 BANNING ST.
PHONE: 26 420
Dr. A. V. Johnson
Tslenzkur Tannlæknir.
212 Curry Bldg., Winnipeg
Gegnt pósthúsinu.
Síml: 23 742 Heimills: 33 328
Jacob F. Bjarnason
—TRANSFER—
Banage nnd Fnrnttnre VoTtif
762 VICTOR ST.
8IMI 24.500
Annast ailskonar flutnlnga fnun
og aftur um bæinn.
J. T. THORSON, K. C.
tsienr.kur lögfrieblngur
Skrltstofa: 411 PARIS BLDG.
Símt: 24 471
DR. K. J. AUSTMANN
Wynyard —:— Sask.
Talsfml: 2S 889
DR. J. G. SNIDAL
TANNLÆKNIR
614 Somer»ct Block
Porfasfc Avennc WIBÍNIPBQ
BRYNJ THORLAKSSON
Söngstjóri
Stillir Pianos og Orgel
Simi 38 345. 594 Alverstone St.