Heimskringla - 20.09.1933, Síða 4

Heimskringla - 20.09.1933, Síða 4
4. SlÐA. HEIMSKRINCLA WINNIPEG, 20. SEPT. 1933 Ijemtskrmgla (StofnuS 18Í6) Kemur út á hverjum miðvikudegi. Eigendur: THE VIKING PRESS LTD. 853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg Talsími: 86 537 VerS blaðsins er $3.00 árgangurinn borgist fyrlríram. Allar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD. RáOsmaöur TH. PETURSSON 853 Sargent Ave., Winnipeg Manager THE VIKING PRESS LTD. 853 Sargent Ave., Winnipeg Ritstjóri STEPAN EINARSSON Vtanáskrift til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA 853 Sargent Ave., Winnipeg. “Heimskringla” is published by and printed by The Viking Press Ltd. 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. Telephone: 86 537 WINNIPEG, 20. SEPT. 1933 JAPAN LEGCUR SPILIN Á BORÐIÐ Afar mikla eftirte.kt hefir ræða sú vak- ið, er Sadao Araki, fjármálaráðgjafi Jap- ana, hélt nýlega um stríðsmálin eystra. Hefir Japönum að jafnaði um óspektirn- ar verið kent að minsta kosti af vestlægu þjóðunum en með ofur kurteisum orðum bendir fjármálaráðgjafinn á, að saga þeirra mála beri annað með sér, og að hana sé komin tími til að kynna sér. “Vér hörmum það ekki,’ segir hermála- ráðgjafinn, “þó hátt sé haft um það, að vér séum ofstopamenn og að oss sé um það að kenna hvernig komið er í Kína, ef það gæti aðeins orðið til þess, að vekja þá athygli að þau mál yrðu skoðuð niður í kjölin. Það eitt getur orðið til þess að leiða sannleikann í ljós. Miskskilningur vestlægra þjóða á stríðsmálunum í Norður Kína og Mansjúríu, er af því sprottinn, að þær hafa ekki haft fyrir því að kynna sér sögu þeirra. Og hvernig hljóðar þá sú saga? Her- málaráðgjafanum segist svo frá, að um miðja síðustu öld hafi japanska þjóðin verið dregin af ástæðum sem henni hafi verið óviðráðanlegar inn í alþjóða-póli- tíkina af hinum miklu vestlægu þjóðum. En Japan vænti þar þrátt fyrir það sam- vinnu nokkurrar. Um hana hefir þó aldrei neina verið að ræða. Stóru þjóð- irnar vestra réðu öllu einar á alheims- samkundunum. Oss varð þetta dýrt keyptur félagsskapur, en samt sem áður góður skóli fyrir framtíðina. Stríðið mikla skellur á. Við tókum þátt í því, með samvinnu þjóðum vorum. En hvernig fór við lok þess? Á fundinum sem friðarskilmálarnir voru gerðir, neit- uðu Evrópu þjóðimar og Bandaríkin að riðurkenna oss vegna þess að við værum af öðrum og lægri kynstofni en þær sjálfar . Af þeim ástæðutn voru engar réttmætar kröfur vorar heyrðar. Engin þjóðanna í hópi þeirra er sigruðu í því stríði, komu með eins skarðan hlut frá 'borði og vér. Árið 1894 kom upp innbyrðis stríð milli Japana og Kínverja og af ástæðum sem vesturlanda þjóðirnar skifti ekkert. End- aði það með ósigri fyrir Kínverja. Frið- arskilmálar vorir voru vægir. Við feng- um Liastung-skagann. En tveim árum síðar, árið 1896 koma þrjár stórþjóðir Ev- rópu, Rússland, Þýzkaland og Frakkland og heimta að við látum feng vom af hendi. Hverjum? Kína? Ónei. Rússland krafðist hans. Og að öðmm þrem árum liðnum, var það orðið að samningi milli allra þessa þjóða og Kína, að Rússland legði jámbraut um Mansjúríu og mynd- uðu á laun samband við Kínverja gegn oss. Þýzkaland tók Tsing-Tau, Bretland Wei-Hai-Wei, Frakkland Kwang-Chow- Wan, án þess mikið bæri á, en sem í raun og veru var viðskifta-girðing milli Kína og Japans. Og meðan þessu öllu fer fram, eru samningar gerðir af öllum þessum þjóðum við Japan, er lúta að því, að litið verði eftir hag þess, sem Kína. Japan rauf þennan samning aldrei. í marz árið 1920 fara Rússar til Nicola- jevsk, borgar við Amúr-ána í austur Sí- beríu, og drepa um 600 Japana, er þar áttu heima, þar á meðal konur og böm. Og 24. marz 1927, ráðast kínverskir kom- múnistar á Japana í Nanking, að undir- róðri Rússa, sem bolsévíka kenningu sína voru þá búnir að útbreiða í Kína, og drepa niður japanskt fólk umvörpum. Urðu aðrir útlendingar að yísu einnig fyirr því, vegna þess að þarna var um kommúnista uppreist að ræða, en áformið upphaflega, var að æsa Kínverja gegn Japönum. Það var það sem ávalt vakti fyirr Rússum þó engin þjóð yrði undan- tekin eftir að kommúnista stjórn var komin að í Rússlandi. Hvað gera svo samvinnu þjóðir vorar í þessu? Rétta þær hlut vorn? Frómt frá sagt hlýddu þeir ekki á umkvartanir vorar. Viðnám það sem vér höfum verið að veita upp- reistarmönnum í Mansjúríu og í Norður- Kína síðan 1931, er af því sprottið, að vestlægu þjóðirnar hafa með afskiftum sínum af Kína, æst Kínverja svo upp, að þeir eru nú ekkert orðnir annað en upp- reistarlýður, sem þeir sjálfir ráða ekki við. Af friðarstarfinu sem þær kváðust ávalt vera að framkvæma þar, hefir kviknað sá ófriðar eldur, er sundrað hefir Kínverjum sjálfum, og sem ekki verður slöktur nema með ærnu hervaldi og löng- um tíma. Japanskir menn eru í miljóna tali í Kína. Og eignir Japana þar og viðskifti eru svo mikil, engin þjóð láti afskiftalaust, hvernig um það færi. Eftir að hafa í al- þjóðafélaginu reynt að gera vestlægu þjóð unum þessa afstöðu vora skiljanlega og það hefir reynst ókleift, er ekki um annað fyrir oss að gera, en duga eða drepast. Og Japan er nú ráðið í því hvað það gerir. Það er búið að fá nóg af sam- vinnu-loforðum vestlægu þjóðanna. í skólamálum og innflutningsmálum brutu Bandaríkin samninga sína við oss 1924 fyrirvaralaust. Bretar gerðu það sama, með utanríkissamningum sínum við Bandaríkin 1922. Án þess að nokkru sinni sé á það minst opinberlega, hafa vestlægu þjóðirnar þannig brotið hvern samninginn við oss af öðrum. Þannig hljóðar þá aðdragandinn að við- burðunum, sem hafa verið að gerast í Mansjúríu og Norður-Kína síðan 1931, eftir því sem einum æðsta valdsmanni Japana farast orð. Sadao Araki er hátt settur karl. Hann er valdameiri en for- sætisráðherrann .Hermálaráðgjafi í Japan er skipaður af keisaranum, og er næst- um honum að völdum. KÚBA Er sagan að endurtaka sig á Kúba, upp- eristarsagan frá árinu 1906? Svo mikill er nú pólitízki gauragangurinn þar, að full ástæða er til að spyrja þessa. Hver stjórnin af annari er frá völdum rekin og er ósýnt enn hvern enda það hefir. Kúba er lýðríki. Það hefir sinn eigin forseta, þing í tveim deildum og sjálfs- forræði í öllum málum. Lýðveldið var þar reist árið 1902. Höfðu Bandaríkin stjórnað þar um þrjú ár, því þeim var falin umsjá eyjarinnar, er hún braust undan Spáni rétt fyrir síðustu aldamót og studdu Bandaríkin eyjaskeggja að málum, því þeim var engin eftirsjá í því, að vald Evrópu rénaði í nágranna löndum sínum. Spansk-Ameríska stríðið braust út af óeirðum á Kúba eða þá er bandaríska herskipinu “Maine”, var sökt á höfninni í Havana og Bandaríkin kröfðust að spánskur her hefði sig í burt úr eyjunni. Þegar Kúba tók við sjálfsforráðum, var til vara gert ráð fyrir því í stjórnarskrám beggja ríkjanna, Kúba og Bandaríkjanna, að ef sjálfstjórninni hankaðist á, skyldu Bandaríkin taka við stjórn á Kúba. Og þess þurfti ekki lengi að bíða, að það kæmi fram, því árið 1906 logaði alt í upp- reist á Kúba og Bandaríkin urðu að koma til sögunnar. Var stjónrin í þeirra hönd- um um þriggja ára skeið, eða til ársins 1909, að lýðveldið var endurreist. Hefir alt gengið þolanlega síðan á Kúba þar til nú. En ákvæðið um að Bandaríkin taki við stjóm ef illa fer, er enn í stjórn- arskrá ríkjanna. Eru þau ákvæði nefnd Platt-lögin — kend við bandaríska sena- torinn Platt — og er þess hér getið af því að á þessi Platt-lög er nú oft minst í sambandi við fréttir frá Kúba. Árið 1924 varð Machado y Morales for- seti á Kúba. Var stjóm hans í fyrstu góð og í framkvæmd kom hann möygu, er dregið hafði verið úr hömlu. Má þar til nefna þjóðveginn um endilanga eyj- una og stjórnarsetrið í Havana, sem er hið prýðilegasta. Hann upprætti og fjármálabmðl, er talsvert bar orðið á hjá undanfarandi stjórnum. En eftir því sem Machado styrktist í valdasessinum, fór hann að verða ráðrík- ari og ófyrirleitnari. Þegar hann hafði orðið meiri hluta í efri málstofunni, dreif hann í gegn á þingi breytingu á stjóm- arskránni, er í því var fólgin, að forseta kjörtímabilið var lengt úr fjórum árum í sex. Og endurkjósa mátti ekki forseta, nema við næstu kosningar, er fóru fram árið eftir að þessi lög voru samþykt, eða árið 1928. Var hann þá sjálfur endur- kosinn, og nær því forsetatímabil hans fram að 20 .maí 1935. Þegar hann hafði komið þessu til leið- ar, stjómaði hann sem alræðismaður (dictator). Stjórnar saga hans síðustu fjögur árin, er saga óbilgimi og harð- stjórnar. Hann kom öllu sínu fram með aðstoð leynilögreglunnar. Þingið hefir mist alt vald, og blöðin þora ekki að láta á sér bæra. Morð hafa verið framin í hundraða tali — eða þúsunda — eftir því er andstæðingar Machado segja. Háskólanum í Havana var lokað í júlí 1931, að skipun Machado. Var ástæðan fyrir því sú, að nemendur létu sig stjóm- málin skifta. Hefir skólanum verið lokað síðan. Miðskólum hefir einnig ver- ið lokað. Þrír helztu leiðtogar andstæð- ingaflokka stjórnarinnar, svo sem fyr- verandi forseti Menocal, Hendietta, leið- togi Union-Nationalista og Miguel Mari- ano, fyrrum borgarstjóri í Havana, höfðu allir flúið til Bandaríkjanna af ótta við Machado-stjómina. Þegar svona hafði gengið um hríð, risu menn upp á móti Machado, og voru margir af hans eigin flokksmönnum í hópi þeirra. Varð hann þá að hafa skjótt við og forða sér í flugvél til Bandaríkj- anna. Cepedes, sá er við völdum tók af Mach- ado, gat ekki haldið þeim, þó hann þætti líklegur til þess í fyrstu. Og síðan hafa einir tveir eða þrír færst það verk í fang. En enginn þeirra hefir reynst hæfur til að koma á friðl. Sá er síðast liðna viku fór með völdin, heitir san Martin. Gerir hann sér vonir um að geta orðið við óskum byltinga- manna. Aðrir sjá litlar líkur til þess, að verkamenn sætti sig við hann en þeir eru mennimir, sem virðast ætla að sjá um, að á Kúba verði ekki endurreist gamalt stjórnskipulag. Byltingin er verkamanna- bylting örðin, hvað sem hún kann að hafa verið í upphafi. Bandaríkjaþegnar á Kúba em orðnir smeikir um sig. 1 byrjun þessarar viku var oft sinnis hrópað: “Niður með Sum- mer Wells!” En hann er sendiherra Bandaríkjanna á Kúba. “Niður með bandaríska utan-ríkismálastefnu,’ hefir einnig sungið við. Á þetta lízt banda- rískum mönnum ekki, sem búsettir eru á Kúba. j' Maqiiádo er sem stendur í Montreal í Canadaj. Hefir hann veríð kallaður heim til Kúba til þlss að hreinsa sig af kær- um um fjárbruðl og ýms illræðisverk sem á hann eru borinn. Kveðst hann skuli heim fara og verja mál sitt, þegar byltingunni linni. Viðskifti Kúba við Bandaríkin hafa ver- ið geisimikil um mörg ár. Ef til vill þykir byltingamönnum áhrif Bandaríkjanna orðin. fullmikil á því sviði. Og þá verð- ur andúð þeirra gegn þeim einnig skilin. Á Kúba eru íbúar hátt á þriðja miljón. Eru sextíu af hundraði spánskir eða portúgalskr að ætt, en hinir eru svert- ingjar. Þegar Kolumbus kom til Kúba 1492, var eyjan bygð mönnum af Indíána kyni. Unnu þeir friði og voru trúaðir. Þegar Spánverjar komu þangað mörgum öldum síðar, hneftu þeir eyjaskeggja í þrældóm og smá dóu þeir út vegna þess hve að þeim var þrengt . 1 staðinn fyrir þá fluttu spánverjar svarta þræla þang- að til að gera vinnu hinna innfæddu fyr- ir sig. Saga eyjarinnar á sinn svívirðing- ar kapítula eigi síður en mannkynssagan annar staðar. Kúba liggur vel við verzlun milli Norður og Suður-Ameríku. Hún má heita áning- arstaður þeirra viðskifta. Sykur og tóbak eru helzta framleiðsla á eyjunni. Með lágverðinu á sykur hefir mjög dofnað yfir atvinnulífinu síðustu árin . Meðalhiti á Kúba er sagður 70 gráður. Á vetrum stirðnar sjaldan á polli. SVAR SEM EKKI VAR MISSKILIÐ Hugh Johnson heitir sá, er framkvæmd- ir hinna nýju lagq. um styttan vinnutíma og hækkandi vinnulaun í iðnaðarstofnun- um Bandaríkjanna hefir með höndum. Er og sagt, að hann hafi uppkastið gert að þeim lögum. Eitt sinn er hann var á fundi að skýra frá fyrir-ætlunum stjórn- arinnar, var hann að því spurður hvað stjórnin gerði, ef neitað yrði að skrifa undir þessi lög. Sagði Johnson þá sögu þessa: * “Bóndi nokkur var að plægja akur. Plóginn drógu uxi og asni. í miðju verki dettur þrái í uxann og hann hreyfist ekki úr sporum. Tekur bóndi aktýin af hon- um og teymir hann inn í fjós, en dregur sjglfur plóginn með asnanum til kvölds. Um kvöldið lætur hann asnann inn í fjós. Spyr þá uxinn hvort bóndi hefði nokkuð sagt um sig. “Nei,” svarar asn- inn, “ekki eitt einasta orð. Hann kvaðst aðeins þurfa að sjá slátrarann á morgun.” Fleiri skýringar er sagt að Johnson hafi ekki þurft að gefa um þetta atriði laganna. “Því stuttorðari sem bænin er, því betri er hún,” sagði Marteinn Lúter forðum . ^DODD’S ? ÍKIDNEY k PILLS * HITT OG ÞETTA Góðtemplarareglan lögð í rústir í Þýzkalandi. Nýlega hafa Nazistarnir sett framkvæmdaráð stórstúkunnar þýzku af og sett Nazista í stað- inn. Hefir reglan verið neydd til að segja sig úr hástúkunni og að slíta allri samvinnu við er- lenda starfsbræður. * * * Leynilögreglumenn vaka yfir barnabörnum Roosevelts. Fyrir nokkru varð uppvíst að bófar í Ameríku ætluðu sér að nema tvö bamaböm Roosevelts brott og heimta lausnargjald fyri þau — síðan þetta komst upp, hafa leynilögreglumenn vakað yfir börnunum nótt og dag. * * * Ramon Novarro, hinn frægi ameríski filmleik- ari, hefir undanfarið dvalið í London og leikið þar í Paladi- um- leikhúsinu. Novarro hefir hina mestu kvenhylli eins og sjá má af því, að svo þétt hafa leiksviðsdyrnar verið umsetnar af kvenfólki, að stofna hefir orðið varalögreglu til þess að halda uppi friði og reglu, og eitt kvöldið voru þær svo þaul- sætnar að varalögreglan fékk þeim ekki þokað . Datt þá ráð- slyngum starfsmanni leikhúss- ins í hug að sprauta á þær vatni úr brunaslöngum leiks- hússins . Fengu þær þá nóg og flýðu. * * * ítalska stjórnin hefir fallist á fimm ára áætl- un um jarðfræðilegar athugan- ir með það fyrir augum, að leita að olfu í jörð víðs vegar um ítalíu. Rannsóknirnar hófust 1. júlí, og er ákveðið að verja til þeirra 90 miljónum líra. Stofn- unin Azienda Generale Italiana Petroli, sem komst á fót fyrir þremur árum og þegar hefir látið framkvæma ýmsar athug- ánir í þesum efnum, á að hafa yfirumsjón með framkvæmdum fimm ára áætlunarinnar. Rann- sóknirnar hófust í Paduan-daln- um (Valle Padana) við Adria- haf. Fjöldi verðfræðinga og annara sérfræðinga eiga að hafa eftirlit með borunum og öðrum störfum í sambandi við þessi áform. Marconi er einn þeirra manna, sem hefir yfirum- sjón með framkvæmdum. Til- raunir og olíuleit hefir þegar leitt í ljós, að olía finst í jörð í ítalíu nothæf fyrir vörubifreiða- hreyfla. — Beri athuganir þær, sem fram eiga að fara, tilætlað- an árangur, mun það hafa feikna þýðingu fyrir ítali, eins og sjá má af því, að 1930— 1931 fluttu ítalir inn olíu fyrir 73,342,00 líra og benzín fyrír 297,772,00 líra, en 1931—1932 61,519,000 líra fyrir olíu og 3,449,298,000 líra fyrir benzín. Áætlunin var gerð til þess, ef unt væri, að koma því til leiðar, að draga mætti að miklum mun úr þessum innflutningum. * * * Hollenskt félag áformar að gera tilraun tíl þess að ná á flot brezka flagg- skipinu “La Lutine”, sem fórst í stormi í Norðursjónum í okt. mánuði 1799. Af áhöfninni komst einn maður lífs af. Skip- ið hafði meðferðis 1,200,000 stpd. í gulli til banka í Ham- borg. Frakkar, Bretar og Þjóð- verjar hafa gert tilraunir til þess að ná þessu gulli, sem liggur í skipsflakinu á hafsbotni undan eyjunni Ter Schelling, en þær báru ekki tilætlaðan árangur. á2§7 1 fullan aldarfjórðung hafa Dodd’* nýrna pillur verið hin viðurkenndo meöul við bakverk, gigt og blöðro sjúkdómum, og hinum mörgu kvilla, er stafa frá veikluðum nýrum. — Þær eru til sölu í öllum lyfjabúð- um á 50c askjan eða 6 öskjur fyrií $2.50. Panta má þær beint frá Dodds Medicine Company, Ltd.. Tor- onto, Ont., og senda andvirðið þang- að. Flughafnir í Bandaríkjunum eru nú 2136 talsins, en voru 2037 í byrjun júlímánaðar í fyrra. Alls eru 631 fugstöð í landinu, sem eru lýstar upp að næturlagi. Flestar flughafnir eru í Califomia, eða 214. * * * Mest þurkví í heimi verður tekin til notk- unar 26. þ. m. Þurkví þessi er talin eitthvert hið mesta fyrir- tæki verklegrar tegúndar sem framkvæmt hefir verið í heim- inum. Byrjað var á verkinu fyr- ir hálfu þriðja ári af Southem Railway félaginú. Kostnaður var upphaflega ráðgerður sem svar- ar til átta milj. dollara og átti að nota þurkvína aðallega firrir Cunardskipið mikla, 70,000 smál. að stærð, sem hætt var við smíði á. Er enn til um- ræðu milli Cunardfélagsins og í brezku stjórnarinnar hveraig auðið mætti verða að halda á- ! fram smíði skipsins, en The Southern Railway hélt áfram að láta vinna að þurkvíinni. Þ-urkv- in er 1200 fet á lengd og 135 fet á breidd þar sem hún opnast. Áföst við þurkvína er 7000 feta löng hafskipabryggja og þar geta sjö stærstu farþegaskipin, sem rBetar eiga, legið í einu. Þar eru og átta farþegaskálar og vöruskemmur. * * * I smábæ einum í Júgoslavíu voru tveir ræningjar teknir af lífi nýlega. , Stundirnar fyrir aftökuna not- uðu þeir á mjög einkennilegan ! hátt, Annar þeirra las upp fyrir viðstöddum blaðamönnum hetju jljóð, er hann hafði ort um nótt- iina, en hihn hafði fengið drag- ! gargan að Iáni og lék á það alla nóttina og lagði það fyrst frá sér, er snörunni var brugðið um háls honum. * * * FRA fSLANDI Norræna félagið gekst í vor fyrir ódýrum ferð- um skólafólks til Noregs. Kost- aði þríggja vikna ferð til Nor- egs 140 krónur, þar innifalið | ferðín til og frá Noregi og ferða Iag víðsvegar um Noreg. Fór eínn hópur með Lyru 6. júlf undir forustu þriggja kennara. Voru það þau Sigríður Magnús- dóttir, Þórunn og Arngrímur Kristjánsson. Alls vor-u ungl- Ingarnir 25, bæði "piltar og stúlkur úr ýmsum skólum hér í bænum. Eru þau nýkom- in úr ferðalaginu og láta þau híð bezta af ferðinni. Fóru þau fyrst til Bergen og dvöldu þau þar fjóra daga og skoðuðu þar bæinn og umhverfi hans. Síð- an fóru þau með Bergensbraut- inni til Oslo, dvöldu þar 3 daga, þaðan var farið til Niðáróss og síðan til baka til Bergen yfir Voss og Stalheim. Þeim var alls staðar prýðisvel tekið, veizlur haldnar fyrir þau og þeim sýnt alt hið markverðasta, sem á leið þeirra var. í ráði er að félagið gnngist fyrir fleiri slíkum ferðalögum skólafólks. LESIÐ, KAUPIÐ OG BORGID HEIMSKRINGLU i

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.