Heimskringla - 07.03.1934, Page 2
2. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 7. MARZ 1934.
FÓTATAK MANNA
Nokkur orð um
Halldór Kiljan Laxness
Eftir Benjamín Kristjánsson
Þú ert asni, í svo andríkum
skáldskap, að honum yrði tekið
með þökkum af þeim, s>em hafa
eyru til að heyra, en að hinum
á hann að kunna að draga dár
á þann hátt að það gæti orðið
------ þeim til skemtunar, frekar en
Það er í fljótu bragði dálítið gagnslausrar skapraunar, eins
örðugt að skera úr því þegar og gerði sá ágæti æfintýrasmið-
maður les bækur Halldórs Kilj- ur Jónatan Swift.
an Laxness, hvort þær muni | En ekkert af þes&u gerir Hall-
heldur vera skrifaðar af djúpri dór. Hann sest bara niður, að
ískaldri fyrirlitning á fyrirbrigð- öllum ásjáandi, brýnir öxi sína
inu: homo sapiens, eða af djúpri °S keynr hana síðan beint í
og næstum örvæntingarfullri höfuð lesandans. Mikið þarf
samúð með þjáningu lífsins og slíkur maður að hafa til brunns
öllum hinum ótal mörgú mann- að bera til þess að honum verði
anna meinum. fyrirgefið!
Á hið fyrra virðist benda tals- Ekki verður því neitað að
verður sérþótti í framsetning- þetta umsvifalausa hispursleysi
unni, eilíf dómgirni og prédik- ritháttarins hefir sína höfuð-
anir út af heimsku náungans. kosti. Það ætti ekki að verða
Sumt af því, sem Halldór skrif- misskilið hvað höfundinum býr
aði í fyrri tíð nálgaðist mjög f brjósti. Hann ætti ekki að
mont og hégómaskap. Tilfinn- verða sakaður um óhreinskilni.
ingin, sem maður hafði af því, Og síðan hann losnaði úr á-
að lesa sumar ritsmíðar hans, lögum kaþólskunnar, er það
eða það, sem teljast átti til bersýnilegt, að hann hefir af
skáldskapar, var eitthvað á þá stríðsþrunginni sannleiksást,
leið, að þetta væri unglingur, reynt að slíta af sér allar blekk-
ingar, reynt að troða sér með
valdi inn að kjarna raunveru-
leikans, haft ástríðurí'ki til-
bneiging til þess að rífa göt á
öll þök, eins og mig minnir að
hann komist. sjálfur að orði um
einhvern spámann nútímans.
En þessi hungraða ástríða
vitsmunanna, langsoltin úr trú-
arvímu og seiðgaldri kaþólsk-
unnar, rekur sig auðvitað alls
staðar, eins og gerist og geng-
ur á sínar takmarkanir, og þar
sem höfundurinn er í aðra
röndina dálítill ofstækismaður,
og enn þá eimir það eftir af
káþólskunni í honum að hann
þykist fullkomalega vita alt, þá
hættir honum við að steypast
annað hvort kollhnýs inn í önn-
ur trúarbrögð, eins og til dæmis
kommúnisma, eða drekka sig
blindfullan af vantrúarinnar
“cynisisma” og setja upp spek-
ingssvip eins og prédikarinn
Salomon, og segja jafnvel við
sjálfan alheiminn, þegar hann
þrýtur sjálfan að skilja: Þú ert
asni! Alt er hégómi — aumasti
hégómi!
Þessa tilfinningu fær maður
af sumum hinúm síðari bókum
Laxness.
Sögurnar af Sölku Völku eru
skrifaðar af heljarmælsku. —
Myndimar, sem dregnar eru upp
af sárustu nekt lífsins, munað-
arleysi þess, fátækt og hörm-
úngum, eru margar hverjar
ruddalegar, hrikalegar og nærri
ógeðslegar, en þær verða fyrir
það átakanlegar og ógleyman-
legar.
En þegar einhver höfundur
gerir sér far um að núa slíkum
hlutum inn í huga lesandans, þá
sem þjáðist af þeirri tegund af
sálsýki, sem nefnist stórgikks-
æði. Grundvallarhugsunin í
sálarlífinu væri eittlivað á þessa
leið:
Eg veit alt, en þið eruð asnar.
Eins og gefur að skilja þykir
skikkanlegu fólki slíkur rithöf-
undur ókurteis og hann er það.
— Svona lagaða hluti er sjálf-
sagt að segja með miklu meiri
lipurð, en Halldóri er stundum
lagin. Hæverskan kostar enga
peninga, segir eitthvert mál-
tæki.og hún vinnur oft miklu
betur til siðfágunar, en frunta-
leg bersögli. Meira að segja
ætti jafnpennaslyngúm manni
og Laxness, að vera það í ló-fa
lagið, að setja fram þessa ó-
kurteislegu hugsun spámann-
anna gagnvart sínum náunga:
verður honum alt af fyrst á að
spyrja: Til hvers er verið að
þessu? — Gerir höfundurinn sér
krók út að sorphaugunum af
þeirri einu svínsnáttúrú, að
hann hefir ánægju af að róta í
þeim, eða vakir hér á bak
við einhver markviss tilgangur?
Er höfundurinn svo mikið skáld,
að hann með skáldskap sínum á
pappírnum vilji einnig yrkja upp
lífið sjálft til meiri göfgi og
fegurðar — og er þá verk hans
þannig úr garði gert, að það sé
líklegt til þess? Á svarinu við
þes?ari spurningu veltur það,
hvort eitthvað skáld*er skóbót-
ar virði eða ekki.
Óneitanlega fær maður iðu-
lega það bragð á tunguna af
því að lesa H. K. L., að mann-
lííið sé raunar einn allsherjar
sóðalegur sorphaugur bófa og
illræðismanna, þar sem naum-
ast þekkist ærleg taug og þar
sem fagrar hugsjónir séu ann-
að hvort svik og blekkingar eða
heimspeki eymdarinnar. Þ’etta
byggist á því að mannlífið er
eins og maðkarnir á mykju-
skánihni, að eins fyrirbrlgði
tryltra og heimskulegra nátt-
úruafla, sem auðvitað er slegið
föstu að skorti alt vit og til-
gang. — I innganginum að;
Þú vínviður hreini, hljómar
strax frumtónninn að þessari
heimspeki hégómans í samtali
langferðamannanna á strand-
bátnum:
Þegar maður siglir í kaldsælu
skammdegismyrkri með fram
þessum ströndum, þá finst
manni, að ekkert í heiminum
geti verið öllu ómerkilegra og
'þýðingarlausara, en svona lítið
þorp undir svona háum fjöllum.
Hvernig skyldu menn lifa á
svona stað? Og hvernig skyldu
menn deyja? — Hvað skyldu
1 menn segja hverir við aðra,
j þegar þeir vakna á morgnana?
Hvernig skyldu menn líta hverir
á aðra á sunnudögum? Og hvað
| skyldi prestinum finnast, þegar
hann stígúr í stólinn á jólunum
eða páskunum? Skyldi hann
ekki sjá hvað þetta er alt saman
þýðingarlaust?------ Já, hvers-
konar gleði og hverskonar sorg-
ir skyldu eiginlega þrífast í
kringum þessar daufu olíutýr-
ur? Það hlýtur oft að kóma
fyrir á slíkum stöðum, að menn
sjái speglast hver í annars aug-
um, sannfæringuna um fánýti
þess að vera til. — Því hver
maöur hlýtur að viðu'rkenna,
að það er öldungis þýðingar-
j laust að lifa í slíkum stað”.
í þessum dúr er öll bókin
j skrifuð, og heldur höfundurinn
áfram að lýsa fólkinu þarna
i eins og skynlausum skepnum
og lífinu í heild sinni, sem er
svo vita þýöingarlaust. Og í I
augum höfundarins er baráttan I
og baslið svo yfirgengilegt og
vesaldómurinn andlegur og lík-
amlegur svo mikill að það er
eins og menn lifi aðeins til að
þjást þarna um nokkur áir,
þangað til menn drukkna í flæð-
armálinu, sumir óviljandi en
aðrir viljandi, sumir á brúð-
kaupsdaginn sinn, en sumir
aðra daga, eins og höf. kemst
að orði.
Jafnvel framar en Vefarinn
mikli stendur bók þessi að orð-
snild, en hún er með sömu ein-
kennum að því leyti, að það er
eins og frá henni andi djúpri
fyrirlitningu á mönnum, lifn-
aðarháttum þeirra, hugsunum
þeirra og tilfinningum, eðli
þeirra og örlögum.
Maður fær þá tilfinning, að
hér sé höfundur, sem skortir
samúð með persónunum, sem
hann er að lýsa. Og ef sam-
úðin er til, þá takist honúm a.
m. k. vel að dylja hana. Én ef
hann gerir sér far um að dylja
hana, þá sé það gert af oflát-
ungshætti, sem góður rithöf-
undur á ekki að láta sér sæma.
Þegar Halldór gengur rakleitt
úr sinni kaþólsku kirkju yfir í
hóp spottaranna, til að hrakyrða
með bofrginmannlegu yfirlæti
það, sem mörgum er enn þá
heilagast, nefnir trúarbrögðin
kjaftaþvaður og dýrlingana,
hverra bein hann kysti fyrir
skömmu síðan með brennandi
fjálgleik, hyski, ásamt Maríu
mey og guði almáttugum, þá
er slíkur hávaði aúðvitað aug-
lýsing á feginleik manns yfir
því að vera laus úr þeirri skó-
kreppu vitsmunanna, sem ka-
þólskan hefir verið honum. En
það er hóflaus og ósmekkleg
auglýsing, af því að maður trúir
ekki á slíkar öfgar, sem snúast
eins og vindrella með sama há-
vaðanum úr hverri áttinni sem
blæs. Maöur sem þannig tekur
að formæla sínum guðum með
herfilegu orðabragði, hann er
jafnmikill afglapi í sinni blindu
vantrú, eins og sinni -blindú trú.
En þrátt fyrir hið drembna og
stundum ruddalega yfirbragð á
ritsmíðum H. K. Laxness, þá er
þó jafnframt erfitt að verjast
1 þeirri hugsun, að bak við hrika-
MAGIC
MINNA EN 1 <f VIRÐI í þrefalda köku!
Það er alt sem það kostar, ef Magic Baking
Powder er notaður. Og gæðin breytast
aldrei—því það er hreint og því áreiðanlegt.
Engin furða þó helztu matreiðslu sérfræð-
ingar Canada segi, að það borgi sig ekki
að nota lyftiduft, sem er vafasamt að gæð-
um. Bakið með Magic og verið vissir.
BOINN ‘‘LAUS VIÐ ÁL.ON.” Þessi setning á hverri^f
TIL 1 könnu er yður trygging fyrir því að Magic
CANADA er laus við álún og ÖU önnur skaðleg efni.
FIMTÁNDA ÁRSÞING
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGSINS
Fimtánda ársþing Þjóðræknisfélags Is-
lendinga í Vesturheimi var sett af for-
seta þess Jóni J. Bíldfell, þriðjudaginn
20. febr. 1934 í samkomuhúsi íslenzkra
Goodtemplara í Winnipeg, kl. 10.15 f. h.
Forseti hóf þingið með því að lesa þing-
boð. Bað hann þá þinggesti að syngja
sálminn nr. 638 (Faðir andanna). Lýsti
þá forseti hið sextánda þing Þjóðraeknis-
félagsins sett og flutti skýrslu sina sem
hér fylgir:
X
Háttvirtu þingmenn!
Mér datt síst í hug, fyrir ári síðan er
við skildum, og yður hefir víst ekki kom-
ið það heldur í hug, að eg mundi í byrjun
þessa þings, verða kvaddur til að á-
varpa yður frá forseta sæti Þjóðræknis-
félagsins. En viðburðir ársins Iiðna, hafa
enn einu sinni mint mig og yður á,
hversu að alt er fallvalt í þessum heimi,
einnig lif mannanna og hversu skammt
það er ,sem við mennirnir sjáum fram á
veginn.
Maðurinn sem þið kusuð fyrir íorseta
á síðasta þingi, og sem starfaði að þjóð-
ræknis- og mennnigarmálum á meðal
Vestur-lsl. með eldlegum áhuga, innan
Þjóðræknisfélagsins og utan í mörg ár,
séra Jónas A. Sigurðsson dó í maí mán-
uði s. 1. eins og þið öll munuð minnast
og með fráfalli hans er ekki aðeins harm-
ur kveðin að þessu félagi og skarð fyrir
skyldi í Þjóðræknisfélaginu sjálfu, heldur
og lka í hópi Vestur-Islendinga, þar sem
hann skipaði fremstu röð fyrir atgerfis
sakir. Með því sem að framan er sagt,
er áStæðan gefin fyrir því, að eg ávarpa
yður i dag frá þessum stað. Eftir fráfall
séra Jónasar, fór framkvæmdarnefnd
Þjóðræknisfélagsins þess á leit við mig,
að eg tæki aftur sæti í framkvæmdar-
nefndinni og það gerði eg, og var svo
af henni falið að gegna foreta störfum í
félaginu það sem eftir var ársins. Um
það er svo ekki að fjölyrða. Eg vil að-
eins þakka meðnefndarmönnum mínum
fyrir velvild þá og tiltrú, er þeir með
þessu vali sýndu mér, og viðurkenna það
sem þeir vita og þið öll eigið að vita, að
eg hefi verið slakur starfsmaður, og
mest af því verkí sem mér bar að gera,
hefir lent á herðum samnefndarmanna
minna.
Eg benti á erfitt árferði, ilt útlit með
afkomu manna yfirleitt í þingbyrjun í
fyrra. Við það er litlu að bæta nú,
nema þvi, að við erum komin lengra á-
leiðis, og að breyting verður að verða á
þvi ásigkomulagi. Enn er ekki hægt að
segja annað en að sömu erfiðleikamir,
séu fyrir höndum — sama vinnuleysið og
viðskiftadeyfðin, sami kviðinn fyrir kom-
andi tíð og sama baráttan fyrir brauði
dagslegs lífs hjá einstaklingum og þjóð-
félögum. Þó er eitt atriði í sambandi
við þessa óáran, ófögnuð eða hvað svo
sem þið viljið kalla það, sem eg vi
benda á og bið yður- að hugfesta
athuga og það er, hversu ljótt að lífið er
að verða alt í kringum okkur. Ekk
svo að skilja, að ,það sé svo sem spá-
nýtt. Heldur hitt að kringumstæðurnar
—kreppan hefir fært það svo nærri
rnanni, eða mann nærri því, að það
ómögulegt að komast hjá, að tala um
það, hugsa um það, hræðast það. Við
heyrum þjóðirnar tala um frið og vitum
að stjómir þeirra vígbúast hver i kapp
við aðra og i skotfæra verðsmiðjunum í
þessum löndum er unnið nótt og dag
Trúnaðarmenn þjóðanna misbjóða stöð-
um sínum á allan mögulegan hátt. Fjár-
málastofnanirnar draga undir sig flest
verðmætt í landinu og flækja alþýðuna í
neti sínu unz hún fær hvorki hrært hönd
né fót og þannig er myndin sem þrýst
er að augum manns, á öllum sviðum lífs-
ins er maður kemur persónulega i ná-
vist við ástandið í heiminum eins og það
í raun og sannleika er i dag. En til
hvers er eg að rekja þessa rauna sögu?
Eg geri það til þess, að vekja athygli
yðar á andrúms loftinu, sem umkringir
menn, hversu óholt það er, og hversu
það er langt í burtu frá drengskapar
lífsskoðun forfeðranna og hversu gagn-
stætt það er öllu eðlisupplagi hvers ó-
spilts afkomenda þeirra.
Dauðsföll félaga á árinu
Auk séra Jónasar Sigurðssonar, sem
áður er getið hafa þessir félagar látist
á árinu:
Þorbjörn skáld Bjamarson (Þorskabítur)
í Pembina, N. D., Heiðursfélagi.
Gísli V. Leifur, Pambina, N. D.
Björn B. Olson, Gimli, Man.
Jón Sigurðsson, Lundar, Man.
Sigurður J. Vidal, Hnausa, Man.
Kristján B. Snæfeld, Hnausa, Man.
Sigurgeir Pétursson, Ashem, Man.
Philipía Magnússon, Gimli, Man.
T. O. Sigurðsson, Brown, P.O., Man.
Dr. G. J. Gíslason, Grand Forks, N. D.
Gunnar Lindal, Mozart, Sask.
Friðgeir Sigurðsson, Riverton, Man.
Ef til viU eru einhverjir fleiri af félags-
mönnum, eða konum, sem látist hafa á
árinu, sem eg man ekki eftir, þeim, ef
nokkrir eru og hinum öllum sem taldir
em minnumst við með trega í huga út af
því að verða að skilja, en þakklæti fyrir
samfylgdína, samvinnuna og samhygðina,
og vottum öllum aðstandendum þeirra
hluttekningu okkar og samhrygð og með
þeim geymum við minninguna um þessa
atorku miklu og drenglynduðu braut-
ryðjendur sem dauðinn hefir hertekið frá
oss á árinu.
Starfsmál félagsins:
Þjóðræknisfélags nefndin hefir haldið
ellefu fundi á árinu og haft eftirfylgjandi
mál til meðferðar:
Tímaritið
Það hefir nefndin gefið út í sama formi
og áður og að sömu stærð og í fyrra.
Auglýsinga söfnun i ár eins og i fyrra
hefir hr. Á. P. Jóhannsson haft á hendi
og með sínum alkunna dugnaði skákað
harðærinu og deyfcjjnni og sýnt að þrátt
fyrir kreppuna, má einbeittur vilji og
atorkusamt harðfengi sín mikils.
Islenzku kensla:
Breyting gerði Þjóðræknisnefndin á
Islenzku kenslu í vetur. I stað umferðar
kennara og umferðakenslu, eins og að
undanförnu hefir átt sér stað, tók nefnd-
in upp islenkzukenslu á laugardögum að
eins. Húsnæði fékk nefndin á Jóns
Bjarnasonar skóla. kennariír hafa verið
og eru séra Rúnólfur Marteinsson, Jó-
hann G. Jóhannsson, Salome Halldórsson,
Vilborg Eyjólfsson, Vala Jónasson, Ingi-
björg Bjarnason; alt æfðir og lærðir
kennarar sem vinna þetta mikla en þarfa
verk endurgjalds laust. Ennfremur hafa
bæði islenzku vikublöðin stutt þessa
kenslu með dáð og dug. öllum þessum
kennurum og aðstandendum blaðanna
þökkum vér af heilum huga fyrir þeirra
óeigingjarna starf og drengilegu viðleitni.
Aðsókn að skólanum hefir verið af-
bragðs góð. Alt upp í 160 börn og ungl-
I ingar á dag sem sýnir hvað góður vilji
og samvinna geta áorkað.
Rithöf iindas jóður:
Það mál er i höndum milliþinganefndmr
sem að sjálfsögðu gerir grein gerða sinna
hér á þinginu.
Leifsminnisvarðinn:
Því máli hefir miðað lítið áfram á
árinu. Forgöngumenn þess málefnis eru
eins vongóðir um farsæl endalok þess
máls og þeir nokkru sinni hafa verið og
vinna ósleitilega að framgangi þess.
Tónlistafélag Jóns Lelfs:
Um það félag, eða réttara sagt þátt-
töku Þjóðræknisfélagsins í því, er ekkert
nýtt að segja ,annað en, að út hafa verið
gefin tónlistaverk Jóns á árinu og eru
þau geymd hjá féhirði félagsins eða
skjalaverði.
Ctvarpsmállð:
Stjórnamefndin hefir íhugað það mál
all-rækilega á árinu, því henni dylst ekki
að beint útvarpssamband við Island er
þýðingar mikið atriði, í sambandi við
þjóðræknis viðhald og þjóðræknis starf-
semi Vestur-Islendinga, en það er ekki
en víst hvort nokkur tök verða á því eða
ekki. Eins og yður er kunnugt, þá hefir
landsstjómin tekið útvarpsmálið I sinar
hendur og ræður því; er nefnd sem
stjómin hefir sett til að annast það mál
hverju útvarpað er; netnd sú vinnur, að
nokkru leyti í sambandi við National
Broadcasting félagið í New York, sem er
aðal félagið, er samband hefir við út-
varpsfélög i Evrópu og samningur þarf
þvi að nást við bæði þau félög og tel
eg það líklegt að með lægnu fylgi þá
náist það. Nefndin hefir fengið W. W.
Kennedy þingmann í Suður-mið-Winnipeg
til að ljá þessu máli eindregið fylgi sitt,
við stjórnina og útvarps nefndina.
Iþróttamál:
Eins og yður er kunnugt þá hefir sam-
bandsfélag vort ‘‘Fálkarnir’’ haldið upp
"Hockey”-leikjum og líkamsæfingum á
árinu og sýnt óþrjótandi elju og áhuga
fyrir þeim málum. I líkamsæfingum
hafa 65 stúlkur tekið þátt, og 40 dreng-
ir og gefst fólki kostur á, áður en þess'
þingi lýkur að sjá ávextina af þessu
starfi. Kennari stúlknanna er og hefir
verið Gordon Ackland. Vann hann í 3 ár
kauplaust, en þyggur nú dálitla þóknun.
Karl Kirstjánsson er kennari drengjanna.
Auk leikfimis kenslunnar sem Fálk-
amir sjá um, hafa menn úr þeirra flokki
tekið mikinn þátt i Hockey-leikji
bæjarins og fylkisins. En enn sem kom-
ið er, ekki vakið á sér almenna eftir-
tekt, fyrir listfengi í þeirri grein, sem
þeir þó þurfa að gera og eiga eftir að
gera. I vetur sækir fram flokkur, sem
kallar síg Víkingarnir í þeirri deild
Hockey leika Manitoba, sem nefnir sig
Senior B deild. Hafa þeir verið harð
snúnir og staðið sig hið bezta enda
þurfa þeir þess ef Víkingsnafninu á
ekki að verða misboðið.
Um bikar Þjóðræknisfélagsins var
kept hér í Winnipeg í fyrra vetur og
unnu Fálkamir sigur í þeirri samkepni.
Eg vil votta þessu athafnamikla félagi
embættismönnnm þess, kennurum 'og
nemendum þökk Þjóðræknisfélagsins, fyr-
ir lifandi áhuga og lofsamlega staðfestu
og áhuga.
Endurskoðun grundvallarlaga:
Það mál er í höndum nefndar úr fram-
kvæmdamefndinni sem að sjálfsögðu ger-
ir skilagerin á þingin.
Otbreiðslumál:
Kringumstæður hafa hamlað fram-
kvæmdamefndinni frá að sinna útbreið-
slu málinu eins mikið og þurft hefði á
árinu, en þó heimsóttu nefndarmenn
nokkrar bygðir á árinu í þeim erindum
með nokkmm árangri.
Dr. Rögnv. Pétursson og Ami Eggerts-
son fóm til Vatnabygða og Ami Eggerts-
son Páll S. Pálsson og Jónas Thordar-
son til Selkirk.
Gripasaf nsmálið:
Mál þetta er hið mesta þarfa mál, því
oss er öllum ljóst, að fjöldi verðmætra
muna og bóka fluttust vestur um haf
með hinúm eldri Islendingum og r
hætta á, við fráfall þeirra ,að þessir
munir gleymist, týnist, eða eyðileggis'
Það er því brýn nauðsyn á að vernda
þá. Þjóðræknisfélagsnefndin liefir at-
hugað þetta mál all rækilega og hefir
farið fram á við umboðsmenn menningar
safnsins í Winnipeg að það veiti slíkum
munum móttöku til varðveizlu í þ
safni og hafa þeir orðlð við þeim til-
mælum. Vér viljum því minna alla landa
vora á, sem kynnu að hafa slíka muni í
vörslum eínum, að halda þeim til haga
og láta annað hvort Þjóðræknisfélags-
nefndina vita um þá, eða senda þá beint
til minningar safnsins hér í Winnipeg.
Sextíu ára afmæli Þjóðræknis-*
starfsins í Ameríku.
Það mál er stórmerkilegt mál — einn
þátturinn úr sögu Islendinga í Ameriku
og ekki sá minsti. I fyrra þegar séra
N. S. Thorláksson minti á það, voru
víst allir samhuga með að minnast bæri
þess kafla úr sögu vorri á sem áhrifa-
mestan hátt sem unt væri. Nefndin hefir
þvi fengið Dr. Rögnv. Pétursson til að
flytja erindi um málið á þessu þingi og
efast eg ekki um að hann leggi til, eða
þá þingið að eins mikil áhersla og unt
er verði lögð á að útbreiða þá minningu
sem viðast og sem best að föng eru á
meðal Islendinga.
Fjármál:
Við erum stödd í harðæri, peninga
kreppu og verzlunar og viðskiftadeyfð.
En samt höfum við þá fregn að flytja, að
fjárreiða Þjóðræknisfélagsins er í betra
standi en hún var, árið sem leið. Sjóðir
allir hafa vaxið á árinu eins og féhirðir
mun skýra yður frá og eiga fjárreiðu
mennirnir þakkir skilið fyrir þá frammi-
stöðu.
Eg mætti geta þess að Selskinnu sjóð-
urinn að upphæð $132.06, hefir verið
afhentur réttum hlutaðeigendum á Is-
landi á árinu.
Kom þá tillaga frá Dr. Rögnv. Péturs-
syni studd af Arna Eggertssyni að forseti
skipi þrjá menn í kjörbréfanefnd. Sam-
þykt.
Forseti útnefndi þá:
Asm. P. Jóhannsson,
Þórð Bjarnason og
Jón Jóhannsson
Dr. Rögnv. Pétursson gerði tillögu,
studda af B. E. Johnson að forseti
skipi þrjá menn i Dagskrárnefnd. Sam-
þykt.
Nefndi forseti þá:
Dr. Rögnv. Pétursson
Próf. Richard Beck og
Pál Guðmundsson
Framh.