Heimskringla - 24.04.1935, Page 2
2. SÍÐA.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 24. APRÍL, 1935
FRÁ ÍSLANDI
eftir Vísi
Úr Höfnum
30. marz
Á fimtudaginn vildi það slys
til í Höfnum, að maður féll af
flutningabifreið, sem var á ferð,
og lærbrotnaði, með þeim
hætti, að annað afturhjól bif-
reiðarinnar fór yfir hann. Var
hann samdægurs fluttur í
sjúkrabifreið í Landsspítalann
í Reykjavík.
Maðurinn heitir Olaf Eitter-
svold og er Norðmaður, sem
hefir verið við sjóróðra í Höfn-
um í vetur.
Róið var alment í Höfnum á
fimtudag og miðvikudag, en afli
var fremur tregur, einkum á
fimtudaginn. í gær var þar
stórviðri af landsuðri.
* * *
Úr Vatnsleysustrandarhreppi
30. marz
Það sem af er vertíð, hefir
sjaldan verið hægt að fara á
sjó, sökum þess, hve veðrátta
hefir verið stirð, og lítið aflast,
þegar gefið hefir. Vélbáturinn
“Huginn”, sem gerður er ú't í
vogum, er búinn að afla um
230 skippund.
Fjórtán opnir vélbátar verða
gerðir út úr Vatnsleysustrand-
arhreppi á þessari vertíð, á
netaveiðar. Flestir eru þegar
byrjaðir, og hafa þeir, sem lagt
hafa í Garðsjóinn, aflað vel; sá
hæsti um 2000 þorska, en lítill
fiskur er kominn á grunnmið.
* * *
Sjónleikar
Hellulandi 1. apríl
Sýslufundur Skagfirðinga
hefir staðið yfir á Sauðárkróki
síðast liðna viku, og er honum
ekki lokið enn. Samhliða fund-
inum hefir farið fram sýning
tveggja sjónleika. Er annar
þeirra “Syndir annara”. Aðal-
hlutverkin léku Eyþór Stefáns-
son, sem Þorgeir ritstjóri, frú
Jóhanna Blöndal sem frú Guð-
rún, og Guðmundur Björnsson
frá Veðramóti, sem Grímur
yfirdómslögmaður. Þótti sjón-
leikurinn takast ágætlega, og
einkanlega þótti frú Jóhanna
Blöndal leysa hlutverk sitt vel
af hendi.
Hinn sjónleikurinn var “Piltur
og Stúlka”. Leiktjöld hefir mál-
að Kristján Hansen, vegaverk-
stjóri, og annaðist hann leik-
stjórn og sá um útbúnað allan,
og þótti útbúnaðar allur mjög
góður, og leikurinn skemtilegur.
Sjónleikimir voru sýndir sjö
sinnum, og var aðsókn góð.
Fleiri skemtanir hafa verið
haldnar í sambandi við sýslu-
fundinn, erindi flutt og mál-
fundir haldnir. Skagfield söng
á laugardagskveldið, og sam-
koma var haldin til ágóða fyrir
minnismerki Ma'tthíasar Joch-
umssonar. Erindi um skáldrit
hans flutti Gísli Magnússon í
Eyhildarkoti, en séra Helgi
Konráðsson og Sigurður Sig-
urðsson sýslumaður lásu jafn-
framt upp mörg kvæði hang. •
* * *
Fáheyrt tiltæk'í. — Reynt að
vekja man upp frá dauðum
1. apríl
Útvarpinu hefir í dag borist
svohljóðandi skýrsla frá frétta-
ritara sínum í Vestmanna-
eyjum:
Föstudaginn 23. f. m. tilkynti
frú Anna Gunnlaugsson, ekkja
Halldórs heitins Gunnlaugsson-
ar læknis, lögreglunni í Vest-
mannaeyjum, að þess hefði orð-
ið vart, að grafið hefði verið í
leiði manns hennar þar í kirkju-
garðinum .nóttina áður, eða fyr
um morguninn. Kom í Ijós, við
athugun lögreglunnar, að grafið
hafði verið niður á steinsteypu-
lag, sem er í gröfinni, yfir kist-
unni.
Rannsókn var þegar hafin í
málinu, og var samdægurs ung-
ur maður, að nafni Árni Byron
Sigurðsson, Hvítingavegi 12 þar
í bænum, tekinn fastur, grun-
aður um að hafa framið verkn-
að þenna. Hann kveðst hafa
ætlað sér að grafa niður að
kistu þeirri, >er Halldór sálugi
Gunnlaugsson var jarðaður. í,
og vekja Halldór Gunnl. til lífs,
en hann kveðst hafa komist á
þá skoðun, að slíkt væri unt,
m. a. með því að hlýða á pré-
dikanir á samkomu Hvíta-
sunnusafnaðarins.
Jón Hallvarðsson, fulltrúi
bæjarfógetans í Vestmannaeyj-
um, kom með Áma til Reykja-
víkur síðastliðið laugardags-
kvöld, og hefir honum verið
komið fyrir á Kleppi til athug-
unar á andlegu heilbrigði hans.
* * *
Frá SeySisfSrði
30. marz
Snjór er hér orðinn mikill.
Aflalaust er nú hér á Seyðis-
firði.
* * *
Frá NorSfirði
Norðfirði 1. apríl
í gær var á Norðfirði stofnuð
kvennadeild í Slysvamafélagi
Íslands.
Á Norðfirði og í nágrenni er
nú mikill snjór, og allar skepn-
ur á gjöf.
Nokkrir bátar frá Norðfirði
hafa róið ,en veitt fremur lítið.
Sjö bátar þaðan eru komnir til
Homafjarðar og Djúpavogs, til
vertíðar þar.
* * *
Úr Höfnum
24. marz
Samkvæmt heimild fréttarit-
ara útvarpsins á Höfnum ganga
þaðan á þessari vertíð 14 opnir
vélbátar og einn lítill þilfarsbát-
ur. Ógæftir og fiskileysi var
framan af vertíð, en síðastliðna.
10 daga hefir verið róið stöðugt
og aflast dável fyrstu dagana,
en minna og misjafnt síðustu
daga. Fiskur hefir nú verið
stærri og feitari en mörg und-
anfarin ár.
* * *
Ný hitaveita
Sauðárkróki 23. marz
Lokið er við hitavietu frá
lauginni á Reykjum í sam-
komuhús ungmennafélagg Lýt-
ingsstaðahrepps. Pétur Sig-
hvats á Sauðárkróki gerði verk-
ið.
Nýlega hafa verið tekin upp
jarðepli úr garði þar. Voru þau
aðeins að byrja að spíra. Mold
var þur, og jörð alauð og þíð.
* * *
Nýr vélbátur
Norðfirði 24. marz
í gærdag hljóp af stokkum
hér á Norðfirði nýr velbátur,
Auðbjörg, eign Jakobs Jónsson-
ar á Strönd. Báturinn er 15
'tonn að stærð, smíðaður úr eik,
mjög vandaður að smíði og öll-
um frágangi, og þykir í engu
standa að baki erlendum bátum
er hér þekkjast. — Yfirsmiður
var Sigurður Þorleifsson.
* * *
Tvær ær ganga úti á
T ungnamanna-afrétti
29 marz
Þorsteinn Sigurðsson, bóndi
á Vatnsleysu í Biskupstungum
skrifar útvarpinu 29. þ. m. —
Á síðastliðnu hausti fundust á
Tungnamannaafrétti tvær ær
er gengið höfðu af slíðastliðinn
vetur í svonefndum Fróðárdal,
en hann liggur suðaustan undir
Langjökli en í norðaustur frá
Hvítárnesi. Ærnar fundust í
fyrstu leltum, en voru svo
styggar og viltar að þær náðust
ekki fyr en í þriðju leit, eftir
mjög miklar eltingar. Báðar
ærnar virðast hafa verið ágæt-
lega undangengnar, höfðu t. d.
engu týnt af ull, en báðar voru
lamblausar siem vænta mátti,
Önnur ærin var tveggja vetra
en hin þriggja.
Jarðbætur voru með meira
móti í Biskupstungum árið sem
leið eða 13,237 dagsverk og er
h*s
HERMIT
PORT and SHERRY
Vín af “Veizlu-kosta” gæðum,
á lágverði til hversdags nota!
Nægilega gott til beztu “veizluhalda”,
HERMIT PORT og HERMIT SHERRY er
samtímis á svo lágu verði að gera það
kleyft að nota það við hversdags máltíða-
höld fjölskyldunnar .... þetta eru vörur frá
stærstu vínökrunum í Canada og eru VARIN
MEÐ HREINU DRUGU BRENNIVÍNI tii
þess að vernda þeirra eðlilegu yfirburði að
efni og gæðum .... Öllum falla Hermit
Vínin, og daglega fjölgar því fólki sem
nýtur þeirra, er áður vissu ekki um að það
gæti staðið sig við að neyta þeirra!
26 oz. FLASKA ... $ .60
KASSI MEÐ 6 FLÖSKUM 3.00
'Srigit
’ L I M I T I
J ’ L I M I T E D
CANADA'S Largest Winery
ESTABLISHED 1874
NIAGARA FALLS ONTARIO
Sextánda Ársþing
Þjóðræknisfélagsins
FUNDARGERNINGtrR
Framh.
trtgáfumál
Nefndarálit í útgáfumálinu—
Nefndin leggur til:
1. Að útgáfu Tímarits Þjóðræknis-
lagsins verði haldið áfram eins og að
undanfömu, og felur stjómarnefndinni að
sjá um útgáfuna.
2. Nefndin telur að með útgáfu
barnablaðsins “Baldursbrá” sé þýðingar-
mikið spor stigið til viðhalds íslenzks
þjóðernis hér í Vesturheimi, og mælir
með, að stjórnamefndinni sé falið að
halda áfram útgáfu þess.
3. Þingið tjáir þeim, sem starfað hafa
að útgáfu þessara rita þakklæti fyrir vel
unnið starf.
Winnipeg 27. febr., 1935.
Guðm. Ámason Ami Eggertsson
B. Theo. Sigurðsson
Var álitið lesið af séra Guðm. Ámasyni
og samþykt óbreytt.
öll nefndarálit sem vora reiðubúin
vora nú afgreidd og sagði forseti að ef •
einhverjir hefðu mál að flytja, væri nú
tækifæri.
Nikulás Ottenson afhenti þá bókasafni
félagsins bókagjöf. Einnig séra Guðm.
Ámason fyrir hönd Jóns Kristjánssonar
að Lundar. Voru báðar þessar gjafir
þakkaðar af þinginu.
Þá gat forseti þess að mætur gestur
væri staddur á þingi og bað hann Guð-
mund dómara Grímson að segja nokkur
orð til þingsins. Lét dómarinn ánægju
sína í ljósi að hafa getað komið á þingið
og heilsað upp á gamla kunningja. Var
nokkur tími eftir enn og bauð forseti þá
fleiram að taka til máls. Virtust þá
margir hafa ræður á reiðum höndum og
tóku til máls Dr. Ófeigur Ófeigsson,
Richard Beck, séra Jakob Jónsson, Á. P.
Jóhannsson og J. J. Bildfell. Voru þetta
alt snjallar og örfandi ræður og fjölluðu
um þjóðemis- og samvinnumál. Er hér
var komið gerði Á. P. Jóhannsson til-
lögu og séra Guðm. Ámason studdi, að
fundi sé frestað til kl. 10 að morgni. —
Samþykt.
A miðvikudagskvöldið 27. febrúar var
hið árlega Islendingamót deildarinnar
Frón haldið í Goodtemplarahúsinu. Var
alveg húsfyllir og fór samkoman hið
bezta fram.
Á skemtiskrá var:
1. Ávarp forseta—S. Thorkelsson
2. Píanó Sóló—R. H. Ragnar
3. Hreyfimyndir úr Islandsför Ama
Helgasonar, skýrðar af Dr. Rögnv.
Péturssyni.
4. Kvæði—Dr. Richard Beck
5. Ræða—K. Valdimar Bjömson
6. Einsöngur—Ungfrú Lóa Davidson
7. Gamankvæði—Lúðvík Kristjánsson
8. Islandslag samið af Jóni Friðfinns-
syni og spilað af strengjaflokk
Pálma Pálmasonar.
9. Veitingar
10. Dans til kl. 2. f. h.
Má óhætt fullyrða að allir hafi skemt
sér hið bezta og á Frón þakklæti skilið
að vanda svo vel til þessarar samkomu á
ári hverju.
Forseti setti fund að nýju kl. 10.30 á
fimtudagsmorgun. Var siðasta fimdar-
gerð lesin og samþykt.
Winnipeg 27. febrúar 1935.
Til Rithöfunda-sjóðs-ráðs-stjómar-
nefndar islenzka Þjóðræknisfélagsins
í Winnipeg
Kæru herrar:
Þar eð þjóðræknisfélagið hefir til
stofnaðan rithöfundasjóð, til styrktar
viðhalds útgáfu söfnunar ritverka þeirra,
sem rita á íslenzku máli hér vestra, því
leyfi eg mér að fara þess á leit við nefnt
félag, að það láti prenta til útgáfu, eitt
handrit af mínum verkum, sem svarar
$75 kostnaði. Enn fremur að það taki
að sér, með mér, útsölu á útgáfunni, og
fái þannig að fullu endurborgun alla á
útgáfunni.
Vinsamlegast,
S. Vilhjálmsson
Þingmálanefnd
Nefndin leggur til að þingið tjái skáld-
inu Kristjáni N. Júlíus þakkir fyrir þann
skerf sem hann hefir lagt til vestur-ís-
lenzkra bókmenta og sendi honum heilla-
óskir á 75 ára afmæli hans, sem haldið
verður um 6. apríl næstkomandi. Ritara
sé falið að senda hlutaðeiganda þessar
afmæliskveðjur.
Nefndin leggur til ,að þingið sam-
þykki heillaóskir til Andrésar J. Skagfeld
á Oak Ponit, og feli ritara að senda hon-
um þær á 80 ára afmæli hans, 28. marz
næstkomandi.
Viðvíkjandi beiðni Sig Vilhj. vill nefnd-
in fyrst og fremst benda á, að rithöf-
undasjóður er ekki stofnaður til þess að
kosta útgáfu nokkurra rita eða bóka,
hversu verðmæt sem þau kunna að vera.
Þess vegna getur ekki komið til mála
að þinglð verði við þessum tilmælum.
Samkvæmt tilmælum sem fram hafi
komið, um það að skrá sú af enskum
ritum um íslenzk efni, sem próf. Richard
Beck hefir samið fyrir félagið verði birt
innan skamms, svo að hún komi að not-
um þeim, er vilja afla sér bóka eftir
henni, leggur nefndin til að væntanlegri .
stjómamefnd sé falið málið til fyrir-
greiðslu.
Álit um ný mál. Kom álitið í fjóram
tillögum. Var hver tillaga tekin út af
fyrir sig. 1 sambandi við fyrstu tillög-
una mæltist séra Guðm. Áranson, sem
las álitið, til þess að sem flestir færu
sem kringumstæður hefðu.
S. Vilhjálmsson lagði til og Ami Eg-
gertson studdi, að fyrsta tillaga nefndar-
innar sé viðtekin. Samþykt.
önnur tillaga: Árni Eggertson lagði til
og Loftur Matthews studdi, að önnur til-
laga sé viðtekin. Samþykt.
Þriðja tillaga: Guðmann Levy lagði til
og Rósmundur Ámason studdi, að þriðja
tillaga sé viðtekin . Samþykt.
Fjórða tillaga: Séra Jakob Jónsson
lagði til og Árni Eggertson studdi að
fjóða tillaga sé viðtekin. Samþykt.
Tók þá Sveinn Thorvaldson til máls
samkvæmt beiðni forseta. Lýsti hann
ánægju þeirra hjóna að vera á þingi.
Þakkaði hann fyrir þá velvild, sem hefir
komið frá Þjóðræknisfélaginu i sambandi
við þann heiður, sem hann var sæmdu’
af konungi. Lét hann í ljós þá von að
allir Islendingar sameinuðust um starf
Þjóðræknisfélagsins. Bað forseti þá G.
S. Thorvaldson lögmann félagsins, að
mæla nokkur orð. Lýsti hann einnig á-
nægju sinni yfir að vera staddur á þingi.
Þá bað forseti Dr. Sig. Júl. Jóhannes-
son að taka til máls. Dr. Sigurður hvatti
Islendinga til samvinnu og sagði að Is-
lendingar hér ættu að hafa eina kirkju,
eitt blað, og eitt sameiginlegt samkomu-
hús og ætti það að vera Góðtemplara-
húsið. Þar ætti að vera bókasafn, lestr-
arsalur, veitingarsalur og samkomusalur.
Ættu allir Islendingar, hvaðan sem kæmu
að geta mæst þar og ættu Góðtemplarar
að gefa húsið, ef kæmi til slíkrar sam-
eiginlegrar starfsemi. öll klofning tvístr-
aði starfsemi félagsins og þvl fyr sem
Vestur-lslendingar færa að starfa að
þessum sameiningarmálum því fyr myndi
áhrif þeirra í gegnum Þjóðræknisfélagið
geta notið sín og belssast og orðið að
verulegum notum fyrir þjóðarbrotið hér
vestra.
Var nú komið að hádegi og gerði J. K.
Jónasson tillögu og Richard Beck studdi,
að fundi sé frestað til kl. 2 e. h. Sam-
þykt.
Forseti setti fund aftur kl. 2 e. h. Var
síðasta fundargerð lesin og samþykt. —
Lýsti forseti þá yfir að samkvæmt lögum
félagsins færa nú embættismannakosn-
ingar fram. Þar sem útnefningamefnd
var kosin í byrjun þings, bað forseti for-
mann nefndarinnar, Á. P. Jóhannsson, að
leggja fram tillögur nefndarinnar.
Voru þessir kosnir í nefndina:
Forseti: J. J .Bíldfell
Vara-forseti: Dr. Richard Beck
Skrifari: Bergthor Emil Johnson
Vara-skrifari: Sr. B. Theodore Sigurdson
Gjaldkeri: Ami Eggertson
Fjármálaritari: Guðmann Levy
Vara-gjaldkeri: Walter Jóhannsson
Vara-fjármálaritari: Dr. Ágúst Blondal
Skjalavörður: S. W. Melsted.
Endurskoðendur voru kosnir: Grettir
Jóhannsson til 2 ára og Steindór Jakobs-
son til eins árs.
1 milliþinganefnd í íþróttamál voru
kosnir Dr. August Blöndal og Thorsteinn
Thorsteinsson .
I Rithöfundastjóðsnefnd til að starfa á
árinu vora kosnir: séra Guðm. Ámason,
séra B. Theodore Sigurðsson, J. K. Jón-
asson, Sveinn Thorvaldson og Ami Egg-
ertson.
Þ. K. Kristjánsson lagði til og Rós-
mundur Ámason studdi, að þessi nefnd
megi bæta við sig, ef henni svo sýnist.
Samþykt.
Ámi Eggertson lagði til og K. Valdi-
mar Björnson studdi, að fráfarandi
nefndarmönnum, Á. P. Jóhannssyni og P.
S. Pálssyni sé þakkað starfið á árinu
Samþykt.
Sextíu ára afmæli íslenzkra bygða
Nefndin, sem sett var til að íhuga
þetta mál, leyfir sér að leggja fyrir þing-
ið eftirfarandi ályktun:
Þar sem á komandi sumri er 60 ára af-
mæli íslenzks landnáms í Manitoba-fylki
og Minnesotaríki, leggur nefndin til, að
væntanlegri stjómamefnd félagsins sé
falið að eiga samvinnu um það við Is-
lendingadagsnenfdir hvarvetna, að Is-
lendadags hátíðahöld á komandi sumri
séu sérstaklega helguð minningu þessa
atburðar á virðulegan og viðeigandi hátt.
Rögnv. Pétursson Richard Beck
K. Valdimar Bjömson Th. Thorfinnson
B. E. Johnson
Var nefndarálitið lesið af Dr. Richard
Beck. Tillögu gerði Thorsteinn Gíslason
studda af Þórði K. Kristjánsson að álit-
ið sé viðtekið eins og 1 -sið. Samþykt.
Þingmálanefnd lagði þá fram álit um
tvö ný mál. Fyrra málið fjallaði um 100
ára minningu séra Matthíasar Jochums-
sonar, sem er á komandi hausti. Er
mælst til að Þjóðræknisfélagið íhugi
möguleika á að minnast þessa atburðar
með að láta þýða úrvalsljóð hans á ensku
eða á einhvem viðunanlegan hátt, að
taka þátt í þessum atburði.
Hitt málið er, að Þjóðræknisfélagið
taki á einhvem hátt þátttöku í minnis-
varðamáli skáldsins St. G. Stephanssonar.
Þar sem hér er um umfangsmikil og
vandasöm mál að ræða, telur nefndin, að
þeim sé bezt borgið með því, að þirr
feli þau stjómarnefndinni til athugunar.
Þingmálanefndin
Var nefndarálitið lesið af séra Guðm.
Amasyni og skýrt nokkuð frekar.
S. Vilhjálmsson lagði til og Th. Gísla-
son studdi, að álitið sé viðtekið eins og
lesið.
Berytingartillögu gerði Ari Magnússon
og A. Olson studdi, að 5 manna nefnd sé
kosin að athuga þessi mál í samráði við
stjórnarnefndina. Var breytingartillagan
feld. Var þá aðaltillagan borin upp og
samþykt.
Sagði forseti þá að öllum málum væri
nú lokið nema þeim, er færu fram við
þingslit í kvöld. Kvaðst nú vilja gefa
tækifæri, ef einhver hefði mál að flytja.
Andrés Skagfeld tók fyrstur til máls
og mintist á þá nauðsyn að leggja á-
herzlu á íslenzku kenslu meðal unglinga.
Kvaðst hann hafa stuðlað að því á Oak
Point, að íslenzku kensla hefði verið
höfð þar í vetur, og væri árangurinn
góður. Hvatti hann Þjóðræknisfélagið að
senda góða menn út um bygðir til að
brýna þetta fyrir eldra fólkinu.
Þá tók A. P. Jóhannsson til máls, I
sambandi við auglýsendur I Tímaritinu.
óskaði hann eftir að fólk léti félög og
einstaklinga, er'auglýstu í Tímaritinu, að
öllu jöfnu, ganga fyrir viðskifum sínum.
Dr. Richard Beck gerði tillögu og S.
Benediktsson studdi, að þingheimur votti
Á. P. Jóhannssyni þakklæti fyrir dugnað
sinn við söfnun auglýsinga í Tímaritið,
með því að rísa úr sætum. Var það gert
með lófaklappi.
Vék þá J. J .Bíldfell úr forsetasæti, til
að minnast á mál. Var það hin vænt-
anlega koma Eingað söngkonunnar Rósu
Hermannsson. Skýrði hann frá dugnaði
hennar og hæfileikum. Sveinn Thorvald-
son tók í sama streng og sagði að Rósa
Hermannsson ætti allan þann sóma skil-
ið, fyrir sönghæfileika sína sem við Is-
lendingar gætum sýnt henni.
Var orðið nokkuð áliðið er hér var
komið, og gerði Richard Beck tillögu og
séra Jakob Jónsson studdi, að fundi sé
frestað til kl. 8 að kveldi. Var sú tillaga
samþykt.
Klukkan 8 að kveldi hófst samkoma
með fjölbreyttri skemtiskrá. Var alveg
húsfyllir, svo hvergi var autt sæti, og ber
það Ijósan vott um hvað samkomur á
þingum Þjóðræknisfélagsins eru orðnar
vinsælar. Vár skemtiskráin sem fylgir:
1. Karlakór Xslendinga í Winnipeg
2. Erindi um Davíð Stefánsson frá
Fagraskógi—Dr. Richard Beck
3. Gamankvæði—Lúðvík Kristjánsson
4. Karlakórinn
5. Kviðlingar eftir K. N. Júlíus—Dr.
Rögnv. Pétursson
6. Piano Solo—Ragnar H. Ragnar
7. Ræða—K. Valdimar Bjömson
8. Kvæði—Þórður K. Kristjánsson
9. Frumsamin saga—séra Jakob Jónsson
Eftir að skemtiskrá var lokið var byrj-
að á þingstörfum. Bað forseti skrifara
að bera fram tillögu fyrir hönd stjómar-
nefndar. Var hún þess efnis aðl heiðurs-
félagar á árinu væra gerðir þeir: Friðrik
Sveinsson málari í Winnipeg; Próf. Wat-
son Kirkconnell í Winnipeg; Dr. Henry
Goddard Leech, ritstjóri í New York;
séra C. V. Pilcher í Toronto og Próf. F.
S. Cawley í Cambridge, Mass.
Mintist skrifari á starf Friðriks Sveins-
sonar í þjóðræknismálum og að hefja
hróður Islendinga meðal hérlendra manna.
Var þetta í fyrsta sinn er hérlendir menn
voru gerðir heiðursfélagar, og átti þaff
vel við á 60 ára bygðar landnáms afmæli
Islendinga hér vestra. Hefðu menn þess-
ir lagt sérstaka rækt við íslenzkt þjóð-
erni og þjóðræknismál á bókmentasviði,
og ættu þeir slíka viðurkenningu sem
þessa skilið. Ámi Eggertson studdi til-
löguna um að gera Friðrik Sveinsson að
heiðursfélaga. Dr. Richard Beck studdi
tillöguna um hina fjóra og skýrði um leið
frá starfi þeirra í sambandi við íslenzk-
ar bókmentir. Var nefndartillagan sam-
þykt með því að þingheimur reis úr sæt-
um.
Þakkaði þá forseti þinggestum kom-
una og sagði þessu sextánda ársþingi
Þjóðræknisfélags Islendinga í Vestur-
heimi slitið. Frh.