Heimskringla - 24.04.1935, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 24. APRÍL, 1935
HEIMSKRINGLA
3. SIÐA.
Dýrt frímerki
Sú fregn kemur frá New
það hæsta dagsverkatala í Ár-
nessýslu það ár. Af þessu eru
7880 dagsverk túnrækt, 3350
dagsverk þurheyshlöður og
1114 dagsverk steyptar safn-
þrær. — Túnin eru nú óðum að
stækka, en þó leggja bændur
meiri áherslu á það nú í seinni
tíð að slétta gömlu túnin. All-
margar sláttuvélar verða keypt-
ar í sveitina í vor.
Útvarpstæki hafa nú 80 af
hundrað búendum í sveitinni.
* * *
Minrting Jóns Þorláksson
Siglufirði 29. marz
Verzlunum var lokað hér á
Siglufirði í gær og fánar í hálfri
stöng vegna jarðarfarar Jóns
Þorlákssonar borgarstjóra í
Reykjavík.
* * *
Úr verstöðvunum austan fjalls
25. marz
í verstöðvunum austan fjalls
hafa gæftir verið mjög stirðar
það sem af er vertíð, en þá
sjaldan að hefir gefið, hefir afli
verið góður, og einstaka róðrar
ágætir. Hæstur afli á bát í róðri
var hjá bátnum Hólmsteini á
Stokkseyri í fyrradag, 2000
fiskar.
Úr Þorlákshöfn ganga nú í
vetur 4 trillubátar, og hafa þeir
fiskað frá 6 til 8 hundruð á
skip í róðri, þá sjaldan að gefið
hefir.
Frá Eyrarbakka ganga í vet-
ur 2 trillubátar og einn 12
tonna bátur, en auk þess er
einn bátur þaðan gerður út úr
Sandgerði í vetur.
Frá Stokkseyri ganga 7 mót-
orbátar, 11 til 17 tonna, og ein
trilla. Byrjað var fyrst að róa
þar og hefir oftar verið róið það
an. Tveir bátar þaðan, Há-
steinn og Hersteinn, eru gerðir
út úr Sandgerði í vetur, og hef-
ir þeim gengið ágætlega það
sem af er. Aflann selja þeir
Haraldi Böðvarssyni, óverkað-
an á bryggju.
Gæftaleysi
Siglufirði 25. marz
Hér á Siglufirði hefir verið
gæftalaust undanfama daga og
aflatregt síðast þegar gaf á
sjó. Mikil snjókoma hefir ver-
ið hér undanfarna daga og hríð
í dag. Ríkisverksmiðjan veitir
lítilsháttar atvinnu en annars
er hér atvinnulaust.
KVÆÐI
Ort á 75 ára afmæli K. N.
KÁINN
Hátíðlega hugur minn
Hneigja vill þér Káinn.
Ýmsir meta orðstír þinn
Ei þótt sértu dáinn.
Spámannsefnin, oftast flæmd
Út að “Berusandi,”
Trauðla hreppa seim og sæmd
Sjálf í eigin landi.
Eftir lögum aldarsiðs
Eins þótt mættir flýja,
Þú hefir útfrægt, einn þíns líðs,
Eyjafjörð hinn nýja.
Engan skugga á þig bar
—Ef menn löstum gleyma—
Nema þann, sem núið var
Á nef þér—þarna heima.
Aurum þótt þú hafir hér
Heldur fáum safnað,
Veröld ekkert á hjá þér,
Alt er löngu jafnað.
Ætti hver, sem úttekt galt
Af að takast hraður,
Þú hefir lifað alt, alt, alt,
Alt of lengi, maður.
Samt þótt árin ögri þér,
Altaf nálgist saxið,
Hygginn maður hermdi mér
Þú hafir yngst og vaxið.
Bannið líka loksins ent
Leysir fót og trúna.
Tungan stirð á tú per cent.
Talar liðugt núna.
Sama kýmnin kom í ljós
Kvað sem manninn hýsir,
Klaustur eða kúafjós
Kontór eða “freezir”.
Sá, sem yzt og innra sér
Ávalt nokkuð gaman,
Heims af fleti hafinn er,
Hlær að öllu saman.
Jafnframt því, sm arnfleyg önd
Einatt kvikan gleður,
Þín er síðsta hjálpar hönd
Hins, er lífið kveður.
Ást og virðing áttu því
Allra beggja megin.
Bragadísin blíð á ný
Bíður þín—með sveiginn.
Einhvern vegin á eg grun:
Af er skáldin stinga,
Tóra lengst í minni nun
Mark Twain íslendinga.
P. B.
TIL K. N. JÚLÍUS
á afmælisdag hans 7. apr. 1935
Sá er feðra siður forn,
Sem við nú uppfyllum,
Er við kvæða konung vom
Káinn fyrsta hyllum.
Það er ætíð erfitt mér
Orðum rétt að stilla,
Nú er kvæðakonung vér
Komum til að hylla.
Káinn fyrsta kjósum vér
Konung skemtibraga.
Úr þvl sæti ei hann fer
íslenzkunnar daga.
Biðjum við þér Braga og Þór
Brautargengi veita;
Þín ei lengi þeim í kór,
Þarf hún Freyja leita.
Meðan ei er Mörlandans
Móðurtunga dáinn
Stíga munu stöðugt dans,
Stökur þínar Káinn.
Öll unz streymd er út í dá
Óðs sídreymda þráin
Öllum geymdur oss ert hjá
Engum gleymdur Káinn.
Vort um Frón og Vesturheim
Vel þig hylla tungur;
Þú ert orðinn yfir tveim
Álfum stólkonungur.
Meðan Káins orð við auð
Andans klyngir slynga
Er hagmælskan ekki dauð
Okkar Norðlendinga.
Hefir Óðar arfleifð hremmt,
Æ að spaugi gáinn;
Öllum skemti en engann
skemmt.
Altaf glaði Káinn.
Miðlað snauðum mund ótrauð
Málmi rauðum hefir.
Listrænt brauð frá andans auð,
Öllum bauð, og gefur.
Þjóðin færir þér í dag,
Þökk, með fullar hendur;
En þér raular rímnalag,
Reykja og Víkur Gvendur.
Góði fyrirgefðu mér
Gasprið út í bláinn.
Allra heilla óska eg þér
Einkavinur Káinn.
G. J. Davíðson
“KÁINN”
(75 ára)
Bygðaskáld! Því bygða-líf
blasir við hjá Káinn.
Löngum öllu lífi hlíf,
lifandi—og dáinn!
Töfrar óðs í tilþrifum,
tön frá öxi og plógi,
svipbrigðum frá Sandhæðum,
“sáningu” og skógi.
Frumbýlingur, harpa hans
helguð landnámsmönnum,
birtir anda einyrkjans
óðarmætti sönnum.
Listin þjóðarlífi glædd,
lífi í hverri bögu,
yfirburðum öllum gædd
íslendingasögu.
Annara var óðarstarf
erfi og brúðkaupskvæði,
þektu eigi þjóðararf
þeir—né lífsins gæði.
Káins sí-ungt kæti-þel
kvæða vaxtar sjóðu.
Æðri tök þau virða vel
verður oss að góðu.
Lífsins skáld! því lífsins trú
ljós er þinna ferða.
Landar engir yngri’ en þú
eldri fáir verða.
Óðarbros og óðartár
íslendingar muna,
þaklta liðin lífsins ár,
ljúfa samveruna.
O. T. Johnson
HEILLAÓSKASKEYTI
send “Káinn” á 75 ára
afmæli hans
“Helgi magri” er stoltur af
sveitunga sínum, afmælisbarn-
inu og biður alla hollvætti ása-
trúarinnar og dýrðlinga kristn-
innar að leggja saman og
vernda hann þessa heims og
annars.
Hjartans þakklæti vill undir-
ritaður votta afmælisbarninu
fyrir margar gleðistundir og
nautn af ljóðlist hans.
Lengi lifi Dakota skáldið.
FriSrik Sveinsson
—Winnipeg, 7. apr. 1935
Við komum að heilsa upp á
Káinn
Og kyrja með íslenzkum brag
Þau sigurljóð sætust er kunn-
um
Við sjötíu og fimm ára lag.
B. E. J.
Heillaóskir og hjartans þakk-
læti fyrir allar þær gleðistundir,
sem íslengindar hafa notið af
áhrifum ljóða þinna.
“Einir”, Minneota
K. N. Julius,
Mountain, N. Dak.
Dear Mr. Julius: ,
Please accept our heartiest
congratulations on this your
75th birthday, and may we
have the pleasure of having you
with us for many more years.
Respectfully yours,
Bjornson Sigfusson Post.
No. 227.
American Legion, Mountain
N. Dak.
V. G. Guðmundson
Post Adjutant.
Kveðjuorð til K. N. Júlíus
6. apríl 1935
Islenzki karlaklúbburinn í
Glenboro, Manitoba, sendir þér
hérmeð hugheilar hamingjuósk-
ir á 75 ára afmælisdegi þínum.
Þú ert mesta kýmni- og gleði-
skáld Vestur-íslendinga og hef-
ir sungið fyrir þá því sem
næst alla tíð þeirra hér í landi,
og tónar þínir hafa verið sem
svanasöngur á heiði í eyrum
þjóðbræðra þinna hér. Karla-
klúbburinn í Glenboro tekur því
undir með öllum tslendingum
fjær og nær á þessum heiðurs-
degi þínum og þakkar þér fyrir
sönginn og ljóðin, og óskar þér
gleði og farsældar um ófarin
æfiár.
Með virðingu og þakklæti,
íslenzki karlaklúbburinn
í Glenboro
G. J. Oleson, skrifari
K. N. Julíus,
% Rev. H. Sigmar,
Mountain, N. Dak.
íslendingar í Chlcago senda
beztu lukkuóskir, lengi lifi og
yrki Káinn. Þökk fyrir alt gam-
alt og gott.
Vísiir lcelandic Assn. of Chicago
J. R. Björnson, forseti
HITT OG ÞETTA
Minsta ríkið
Minsta ríkið í heimi er hvorki
Andorra né San Marino, heldur
heitir það Goust. Það er í Pyr-
enafjöllum, 1000 metra yfir
sjávarflöt. Það er aðeins 800
dagsláttur að stærð, og íbúar
eru 150 og er það iein f jölskylda.
Sjálfstæði þessa ríkis var við-
urkent bæði af Spánverjum og
Frökkum með friðarsamning-
unum í Vestfalen árið 1648.
í þessu ríki eru engir flokka-
drættir óg það á hvorki þing né
skráð lög. Landinu stjórnar
sérstakt stjórnarráð ' og eru í
því vitrustu' og reyndustu
mennirnir og ákvarðánir þessa
ráðs eru lög fyrir alla íbúana.
Og þama ríkir friður og sam-
heldni, sem gæti verið öðrum
þjóðum til fyrirmyndar.
York að frímerkjakaupmaður
Gordon Harmer sé farinn til
Englands í þeim erindagerðum
að reyna að selja eitt frímerki.
Frímerki þetta er hið eina
eintak, sem til er í heiminum
af 1 cent frímerkjum þeim, sem
gefin voru út í British Guinea,
árið 1856. Eigandi þess er
amerísk kona, og erfði hún það
eftir mann sinn, alkunnan frí-
merkjasafnara, Arthur Hind að
nafni. Hann keypti það í París
1922 fyrir 158.000 kr., en nú er
það talið 250,000 kr. virði.
Lesb.
NEGLECT
to observe Traffic Laws
Causes Accidents
Your attention is drawn to the following
taken from the Highway Traíhc Act and
your observance of these will improve the
safety of the Highways:
Adequate brakes.
Non-glare headlights—Rays not more
than 42 inches above road.
Motor vehicles occupying over 80 inches
of width of highway must have
two clearance lights indicating such
width.
Speed in cities, towns and villages not
to exceed 30 miíes per hour, and for
trucks the speed shall not exceed
25 miles per hour.
In any prosecution the onus of proof is
. upon the accused driver or owner.
Pull over to right on meeting traffic.
Do not pass on steep up-grades, railway
crossings or road intersections.
Towing of persons on bicycles, tobog-
gans, hand sleighs, skis or roller
skates is forbidden.
Criminal negligence and incompetence
may result in loss of driver’s license.
And the Unwritten Law
Practice “Courtesy,” “Care” and “Co-
operation” and Make Highways Safe.
Issued by the Manitoba Government
to secure the co-operation of Gitizens
in preventing Highway Accidents.
Hon. W. R. CLUBB,
Minister of Public Works and
Department of Labour.
Cul this out for future reference
NOTIÐ
TVÖFALT
sjálfvirkt bókarhefti
Hið tvöfalda sjálfvirka
bókarhefti í þægilegri
vasa útgáfu varðveitir
blöðin óskemd.
INNKOLLUNARMENN HEIMSKRINGLU
I CANADA:
Árnes..................................F. Finnbogason
Amaranth............................J. B. Halldórsson
Antler....................................Magnús Tait
Árborg......*.........................G. O. Einarsson
Baldur............................... Sigtr. Sigvaldason
Beckville.............................Björn Þórðarson
Belmont...................................G. J. Oleson
Bredenbury.............................H. O. Loptsson
Brown.............................Thorst. J. Gíslason
Calgary...............................Grímur S. Grímsson
Churchbridge...................................Magnús Hinriksson
Cypress River............................Páli Anderson
Dafoe................................. S. S. Anderson
Blfros.............................J. H. Goodmundsson
Eriksdale................................ólafur Hallsson
Foam Lake..................................John Janusson
Gimli................................... K. Kjernested
Geysir..............................................Tím. Böðvarsson
Glenboro.................................G. J. Oleson
Hayland.................................Sig. B. Helgason
Hecla...............................Jóhann K. Johnson
Hnausa...................................Gestur S. Vídal
Hove..............................................Andrés Skagfeld
Húsavík............................................John Kernested
Innisfail..........................Hannes J. Húnfjörð
Kandahar..................................S. S. Anderson
Keewatin..........................................Sigm. Björnsson
Kristnes...................................Rósm. Ámason
Lanputh...................................b. Eyjólfsson
Leslie............................................Th. Guðmundsson
Lundar.............................................Sig. Jónsson
Markerville...........................Hannes J. Húnfjörð
Mozart.................................. Jens Elíasson
Oak Point................................Andrés Skagfeld
Oakview.......................................Sigurður Sigfússon
Otto..............................................Björn Hördal
Piney.....................................S. S. Anderson
Poplar Park........................... Sig. Sigurðsson
Red Deer..............................Hannes J. Húnfjörð
Reykjavík..........................................Ámi Pálsson
Riverton.............................Bjöm Hjörleifsson
Selkirk...............................G. M. Jóhansson
Steep Rock.......................................Fred Snædal
Stony Hill........................................Björn Hördal
Swan River..............................Halldór Egilsson
Tantallon...............................Guðm. Ólafsson
Thornhill............................Thorst. J. Gíslason
Víðir...................................Aug. Einarsson
Vancouver...................................Mrs. Anna Harvey
Winnipegosis.....................................
Winnipeg Beach....................................John Kernested
' Wynyard...............................S. S. Anderson
f BANDARÍKJUNUM:
Akra..................................Jón K. Einarsson
Bantry.................................E. J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash.....................John W. Johnson
Blaine, Wash..................Séra Halldór E. Johnson
Cavalier..............................Jón K. Einarsson
Chicago: Geo. F. Long, 2428 Hamlin Ave., Logan Square Sta.
Edinburg................;..................Jacob Hall
Garðar.................................S. M. Breiðfjörð
Grafton..............................Mrs. E. Eastman
Hallson...............................Jón K. Einarsson
Hensel.................................J. K. Einarsson
Ivanhoe.............................Miss C. V. Dalmann
Los Angeles, CaHf....Thorg. Ásmundsson, 3314 Sierra St.
Milton..................................F. G. Vatnsdal
Minneota............................Miss C. V. Dalmann
Mountain.............................Th. Thorfinnsson
National City, Calif.....John S. Laxdal, 736 E 24th St.
Point Roberts.........................Ingvar Goodman
Seattle, Wash.........J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W.
Svold.................................Jón K. Einarssos
Upham...................................E. J. Ilreiðfjörö
The Viking Press, Limited
Winnipeg Manitoba