Heimskringla - 13.05.1936, Page 5
WINNIPEfG, 13. MAl, 1936
HEIMSKRINGLA
6. SlÐA
—30 ára gamalt, og eign hrepps
ins.
Kensluáhöld skólans voru vá-
trygð að mestu, en bækur og
áhöld skólastjóra var óvátrygt.
Próf voru haldin í dag út af
brunanum.—Mbl.
* * *
Rússneskt flöskuskeyti norðan
úr fshafi fundið á Ströndum
Á Ströndum, sunnan Stein-
grímsfjarðar, fanst í febrúar-
mánuði flöskuskeyti frá rúss-
nesku rannsóknaskipi norður í
íshafi.
Það var 24. febrúar að Hall-
dór Jónsson á Broddadalsá var
á gangi niður við sjó og fann
þar rekið tréhylki eða dufl all-
mikið. Innan í því var annað
tréhiylki mjótt og um 10 þuml-
unga á lengd og þar innan í
glerpípa, lokuð í báða enda.
Innan í henni var þunt póstkort
og prentað á bakhlið þess á
rússnesku, ensku og sænsku:
—• Dufli þessu hefir verið
fleygt í sjó til þess að rannsaka
hreyfingar hafíssins. Sá, sem
duflið finnur er beðinn að láta
bréfspjald þetta þegar í póst
(ófrímerkt) og skrifa á það
nafn finnanda, staðinn þar sem
það fanst og hvenær það fanst.
Skeytið var dagsett 16. júií
1934 og hefir því verið rúma
19 mánuði á leiðinni. Það hefir,
eftir beiðni, verið útfylt og sent
íshafs rannsóknadeildinni rúss-
nesku í Leningrad.—Mibl.
* ¥ *
Konunglega leikhúsið vildi
ekki Reumertshjónin
Khöfn, 13. apríl
Öll Kaupmannahafnarblöðin
flytja í dag langar greinar í til-
efni af því, að ráðningu þeirra
Önnu Borg og Poul Reumerts
'til Konunglega leikhússins hefir
verið frestað um óákveðinn
tíma.
Politiken, t. d. flytur ritstjórn-
argrein um málið, og ræðst með
mikilli hörku á stjóm leikhúss-
ins, sem blaðið sakar um skort
á listrænum skilningi, og góð-
um vilja.
Berlingske Tidende skýrir frá
þvf, að blaðinu hafi borist fjöldi
mótmæla frá almenningi í Höfn,
og talar um málið á þá leið, að
hér sé um hrekkjabrögð að
ræða af hálfu leikhússins.
Þau hjónin Anna og Poul
Reumert hafa tjáð blöðunum
það, að þau hafi ekki sóst eftir
að verða ráðin við leikhúsið, en
hinsvegar hafi þau fengið mála-
leitanir um það frá stjóm leik-
hússins, og segir Reumert að
sér komi því alt þetta mál und-
arlega fyrir sjónir.—Mbl.
¥ ¥ *
Frú Sigríður Jónsdóttir
prófasts Sveinssonar á Akra-
nesi, ekkja Konráðs heitins
Konráðssonar læknis, sem látin
er fyrir nokkrum árum, andað-
ist í Landspítalanum aðfara-
nótt 9. apríl.—Vísir 11. apríl.
KRAFTAVERKAPRESTURINN
BAZIL JELLICOE
Það var kaldan rigningardag
í janúarmánuði fyrir nokkrum
árum, að íbúarnir í Somers
Town, teinu’- illræmdasta fá-
tækrahverfi Lundúna, urðu var-
ir við einkennilegan atburð. Eft-
ir Sidney Street, versta stræt-
inu, kom flokkur manna í há-
tíðlegri skrúðgöngu. í farar-
Ibroddi var prestur í fullum
kennimannaskrúða, með kross
í hendi. Næstur honum gekk
verkamaður með nokkur dyna-
mithylki og kveikiþráð í hönd-
'unum. Svo komu nokkrir verka-
menn með ýmiskonar verkfæri.
Fyrir utan versta húshjallinn
í götunni staðnæmdist hópur-
inn, prestur tók sálmabók upp
úr vasa sínum, en bæjarstjórn-
arfulltrúi tók dynamit-hylki og
setti það í holu í veggnum —
og svo var kveikt í því. Spreng-
ingin varð ekki mikil, en hún
braut þó niður framhlið húss-
ins. Og rétt á eftir réðust
verkamenn upp á þak og fóru
að rífa í óða önn.
Prestur söng sálm. Gatan
hafði fylst af forvitnu fólki og
það tók undir sönginn. En
upp yfir brakið og brestina í
húsinu og söng fólksins, skar
rödd prestsins:
I will not cease from mental
fight
nor shall my sword sleep in
my hand
till we have built Jerusalem
in England’s green and pleasant
land.
Þessi prestur gat gert krafta-
verk. Á rústum þeirra grenja
sem þama voru, rís nú hvert
stórhýsið eftir annað, þar sem
íbúarnir geta lifað við sæmileg
kjör. Það er prestsins verk.
Hann hét Bazil Jellicoe og var
frændi yfirflotaforingjans. Tutt-
ugu og þriggja ára iað aldri
fór hann einn síns liðs sem
boðberi nýs tíma til Som-
ers Town. Það eru nú tíu ár
síðan. Engin getur gert sér í
hugarlund hvernig þá var um-
horfs í þessum borgarhluta,
ekki einu sinni þeir, sem komið
hafa til London ;og séð
strætin umhverfis Commercial
Road. Oft voru 10—12 manna
fjölskyldur í einu herbergi. —
Fletin náðu yfir þrjá fjórðu
hluta af gólfinu, en fjórði hlut-
inn var alt í senn, eldhús, búr,
kolageymsla, þvottahús, mat-
stofa, og þurkhús. í herbergj-
unum á neðstu hæð var sjaldn-
ast sæmilegt gólf. Fjalimar
voru fúnar og gisnar, og yfir
þær voru breiddar pokadruslur,
sem voru aðeins til óþrifnaðar
og veittu enga vörn gegn rott-
unum. Til allrar hamingju ef
svo mætti segja, var venjulega
einhver fullorðinn lasinn og fór
ekki að heiman, svo að hann
gat varnað því að rotturnar æti
tær og fingur af ungbörnunum.
í ýmsum hverfum Lundúna
hafa rottur á seinustu árum
lagst á börn, og árið 1933 þorðu
mæðurnar í einu hverfi East
End alls ekki að skilja börn sín
eftir heima vegna rottanna. Og
var svo alt morandi í veggjalús
og öðrum óþrifum.
Jellicoe var af góðu fólki
kominn og honum iblöskraði þá
er hann komst í kynni við á-
standið í skuggahverfunum. —
En hann lét sér ekki nægja ið
biðjast fyrir í einrúmi og biðja
þess að úr þessu rættist. Hann
öyrjaði að starfa.
Einhvern veginn tókst hon-
um að safna fé til þess að láta
gera við allra verstu vistarver-
urnar. Veggfóðrið var rifið úr
þeim, gólfin rifin upp og svo var
svælt. ‘‘En þegar eg kom þang-
að hálfum mánuði seinna
sagði Jelilcoe, “varð mér það á
að skella hurð á eftir mér og
hrundu veggjalýs þá yfir mig
sem steypiregn”.
Fyrsta endurbótatilraun hans
mishepnaðist því algerlega.. Og
þá sannfærðist hann um það, að
ekki væri um annað að gera en
rífa skuggahverfin niður og
byggja upp að nýju.
Hann ákvað að byggja upp
Somers Town. En það átti ekki
að vera gert í gustukaskyni. —
Hann hafði séð nóg af góð
gerðastarfsemi í Englandi, og
vissi að þó hún yrði máske ekki
til að spilla þeim, sem hennar
urðu aðnjótandi, þá gerði hún
þá kærulausa. Hann var því
ekki að hugsa um að reisa ódýr
hús. Þau áttu að vera eftir
kröfum nútímans, heilsusamleg
og svo að þau borguðu sig. —
Fólkið átti að fá góðar íbúðir
fyrir lága leigu, og þeir, sem
lögðu fram fé til bygginganna,
áttu að fá vexti af því.
Hugmyndin var í sjálfu sér
ágæt, það viðurkendu menn.
En fjársöfnunin gekk treglega
fyrsta kastið. Menn vildu ekki
kaupa hlutabréf í þessu fyrir-
tæki. Það var ekki fyr en
Jellicoe hafði fengið þá Cecil
lávarð og skáldið John Gals-
worthy í lið við sig, að pen-
ingar fóru að streyma að hon-
um. Og fyrir níu árum hafði
hlutafélagið “St. Pancra House
Improvement Society” efni á
því að kaupa sjötíu húsa-
skrokka í Somers Town.
Þessi hús höfðu verið óbyggi-
leg um þriggja kynslóða aldur,
en eigendumir höfðu eigi að
síður leigt þau með öllu Sbm
fylgdi — rottum og veggjalús.
Árið 1928 lagði Jellicoe Iflota-
foringi hornsteininn að fyrsta
nýtísku húsinu, sem þar var
bygt. Árið eftir gerðist prins-
inn af Wales (hinn núverandi
konungur) hluthafi |í félaginu
og síðan hefir tekist að um-
skapa stóran hluta af Somers
Town. Hlutafélagið er nú rúm-
lega 7 miljónir króna og frá
upphafi hafa verið greidd 3% í
arð af hlutafé, og 2\% vextir af
lánsfé.
Sagan af umbótum Jellicoes
er ekki nema hálfsögð, sé ekki
minst á annað en það, að hann
reif .niður og ibygði upp aftur.
Hann sá, að fólkið þurfti meira
en sæmilega bústaði. Kynslóð-
um saman hafði það úrkynjast
og siðspilst. Þegar hann kom
fyrst til Somers Town var það
ihverfi illræmt um alt England
sem aðsetur þjófa og illmenna,
morðingja og brennuvarga. Og
lögreglumenn þorðu aldrei að
vera þar á ferli nema þeir væri
f jórir saman, að iminsta kosti.
Hér dugðu því ekki betri
húsakynni eingöngu. Hér varð
einnig að siða; fólkið iog ala
upp ungu kynslóðina, svo að
hún yrði menn með mönnum.
Og þar vann Jellicoe þre'kvirki.
Þegar hann keypti eitthvert
skuggahverfi, þá leysti hann í-
búana um leið úr margskonar
ánauð. Settar reglur eiga að
gilda, en engar frelsishömlur,
var orðtæki hans. í nýju hús-
unum hans voru engar lífsregl-
ur málaðar eða h'mdax á veggi.
Þeir, sem þar áttu heima áttu
að vera frjálsir og íinna til
þess að þeir ætt|i þar heimili.
Bezta ráðið er að vekja hjá
þeim ábriygðartilfinningu, sagði
Jellicoe. Þeir verða svo líka
að finna það, að húseigandinn
er vinur þeirra, en ekki aðeins
innheimtumaður.
Margt af því, sem. Jellicoe
gerði, vakti gremju og jafnvel
hneyksli. Það var nú t. d.
þetta, þegar hann stofnaði
knæpu þarna, og gerðist þar
sjálfur lafgreiðslumaður.
Hann var svo skynsamur að
hann vissi að það var þýðing-
arlaust að ætla sér að gera
skuggahverfisbúana alt í einu
að bindindismönnum. Hann
vissi ósköp vel að knæpumar
voru aðal skemtistaðir þeirra,
og að hvorki líkama þeirra né
sál mundi vera það hentugt að
þeir hættu alt í einu að drekka.
Ýms blöð voru mjög hneyksluð
á þessu og töluðu um “bjór-
knæpu prestinn”. En hann
lét það ekkert á sig fá. “Þetta
er áreiðanlega sú langbezta
hugmynd sem eg hefi komið í
framkvæmd”, sagði hann. Og
svo fékk hann höfuð ensku
kirkjunnar, erki biskupinn af
Westminster, til þess að koma í
knæpuna til sín og leggja bless-
un kirkjunnar yfir hana. Þá
gekk nú alveg fram af sumum.
En Jellicoe varð alt umtal til
góðs. “Eftir því sem ofsóknirn-
ar eru ákafari, eftir því koll-
sigla þær sig fyr”, sagði hann.
Hlutafélagið, sem á /húsin,
hefir aldrei farið í manngreinar
álit um það hverjum það á að
leigja.
“Hlutverk mitt er að útvega
öllu þessu fólki sæmilega bú-
staði, en ekki hitt að dæma
réttláta og rangláta”, sagði
hann við einn, sem vildi velja
úr.
“En því getið þér þó ekki
neitað, að hér eru bæði sauðir
og hafrar,” sagði hinn.
“Herra minn”, sagði Jellicoe.
“Það getur verið að þér verðið
opinber ákærandi á efsta degi,
en eg leyfi yður ekki að koma
þannig fram hér”. Hann gat
orðið byrstur eins og flotafor-
inginn frændi hans.
Jafnharðan og húsin voru til-
búin voru íbúarnir úr grenjun-
um látnir flytjast þangað. En
þeir fengu ekki að fara inn fyr
en þeir höfðu verið ibaðaðir
rækilega, fengið ný föt og öll
húsgögn þeirra svæld og sótt-
hreinsuð, svo að engin óþrif
bærist inn í nýju húsin.
Svo reyndi Jellicoe eftir mætti
að gera ánægða og nytsama
borgara úr mannsoranum,
sem þarna hafði verið áður. En
hann forðaðist að ganga of langt
Því að hann vissi að “seint er
að kenna gömlum hundi að
sitja”. Þeim |mun meira kapp
lagði hann á gott uppeldi barn-
anna. Foreldrarnir,. sem alið
höfðu allan sinn aldur í Somers
Town voru gegnsýrðir af þeim
íbrag, sem iþar ihafði Verið,
og þess vegna varð að fá böm-
unum annað fóstur. Bygging-
arfélagið hefir því látið gera
barnagarða fyrir þau minstu, en
teikni og málningaskóla fyrir
böm á aldrinúm 6—11 ára. ■—
Þetta er ekki gert til þess að
gera úr þeim listmálara, held-
ur til þess að vekja tilfinningu
þeirra fyrir list, litskrúði og
formfegurð, og þá fyrst og
fremst til þess að varna þeim
þess að lenda í solli skugga-
hverfanna. Og nú er verið að
koma upp atvinnuskóla fyrir
unglinga og þá, sem atvinnu-
lausir eru. iSmám saman á að
bæta fleiri skólum við, og þegar
börnin eru orðin svo stór, að
þau ihafa ekki gaman að barna-
bókum lengur, þá á að stofna
þarna stórt bókasafn fyrir alla
í hverfinu.
Á þessu má sjá, að mikið er
gert fyrir Ibörnin og fyrir það
er svo komið, að þau eru farin
að hafa bætandi áhrif á foreldra
sína.
Jellicoe andaðist í haust sem
leið. En starf hans heldur á-
fram. — Byggingafélagið, sem
hann stofnaði, iblómgast vel og
færir út kvíarnar. Það er orðið
frægt víðar en í Englandi. í
öðrum enskum borgum er nú
verið að fara að dæmi þess.
—Lesb. Mbl.
Toppurinn hvass og brattar
brúnir
Brjóstin mynda hamra-stall.
‘Eilífur’ þar aleinn stendur
‘Austur-fjalla’l) vemdar-dís
Horfir á ‘Jörund’2), hann er
sunnar,
Hátt úr bruna-söndum rís.
Báðir hafa, bylting alda
Boðið fang, og hopað ei.
Staðist frumhlaup elds og ása.
Austansandbyl, norðan þey.
¥ ¥ ¥
Nú skal halda norður lengra
Norður á ‘Grjótháls’ auðnar-
göng
Bráðum sjáum bjarta elfi
Brjótast fram um gljúfra-þröng,
Þar, sem hátt af hamrastalli
Hendist niður ‘Dettifoss’
Brýst þar um og báðu megin
Björgum réttir úðakoss.
Fylgjum eftir farveg djúpum
Fram um urðar-holtin breið.
Höldum ofan ‘Hólma-tungu’’
“Hafra-feH’ oss vísar leið.
Síðar opnast ‘Svínadalur’
Sauðarland þar aldrei dvín
Og á háa ‘Hljóðakletta”
Hátt úr austri sólin skín.
Komum svo, á ‘Byrgisbrúnir’3*
Blasir við oss dýrðleg sýn.
Klettastalla hálfur hringur,
Mót hafinu breiðir undur sín.
Skógur grænn, en örskamt utar
‘Eyjan’ steypt í þríhyrning
Brúnaþungar bergsins sillur
Birtast sýnum alt um kring.
* ¥ ¥
Hvar, sem förum foldu yfir
Fegri aldrei lítum sýn
1) Mývatnsöræfi.
2) Fjall.
3* ‘‘Ásbyrgi.
HÆTTIÐ
AÐ
ÞRÆLA
Því »ð vera svo gamaldags
þegar um vorhreinsun er að
ræða?
I sannleika borgar sig ekki að
reyna að hreinsa fín forhengi
og dúka heima hjá sér—þegar
fá má hjá Quinton hjálp sér-
fræðinga og umfram alt
S A N I T O N E
sem ummyndar alla dúka og
færir þá tíl upprunlegrar feg-
urðar.
Sendið strax:
Stofutjöld
Teppi
Gluggablæjur
Gólfdúka
Símið 4-2-3-6-1
Heldur en Mývatns margvíslegu
Mýndbreyting, er sólin skín.
Einstök fjöll á hrjóstur-heiðum.
’Hljóða-kletta’ og ‘Dettifoss’.
Fegurð allskyns-yndislega
‘Ásbyrgi’ þá sýnir oss.
Halldór Stefánsson
Um daginn var flugvél send
frá Boden í Norður-Svíþjóð til
Manstrask eftir konu í bams-
nauð.
Flugvélin var nýfarin af stað
með konuna er barnið fæddist
uppi í hálofti. Það var stúlka
— fyrsti Svíi sem fæðst hefir í
loftfari.
FRÁ “MÝVATNI”
“ÁSBYRGIS”
TIL
Fæddur er eg, sem fjöllin bláu
Fagran mynda verndarhring
Um klettaborg og bruna-þústir
Birkistofna kjarr og lyng.
Mývatns blái bjarti flötur
Blikandi í sólar-glóð
Vefur sig um ey og andnes;
Eins og gyðja morgun-rjóð.
Hugurinn við það ávalt unir
Upp að rifja fyrir sér
Brunahraunsins breytileika;
Bratta hóla, djúpan hver.
Lyngi vaxnar lautir kringum
Liggja kletta-girðingar;
Studdar föstum stuðlabjörgum
Stofnum birki, hér og þar.
Út um nes og inn um vogá
Ýmsa dranga líta má.
Hamra-stalla hellis-boga
Hringmyndaða Víðir flá —
Hólamergð og djúpar dældir,
Dala-hvilftir, hæðaskörð.
Tjarnafjöld og holta-hrjóstur,
Heitar laugar, melgrasnbörð.
Eldborgir í qtal myndum
Út og suður, langan veg
Blasa við á björtum degi
Og bröttu fjöllin tignarleg.
Niðurföll með brotnum börmum
Brunakamba, dularþing
Skessu-katla—skvompur ljótar
Skiftast á, við urðar-bing.
¥ ¥ »
Komirðu’ út að Eilífs-vötnum
Einhvern fagran sólskinsdag;
Þar, sem fyr stóð ‘Hlíðarhagi’*
‘Hágángna’§ við brunalag.
1 norðri stendur útvís á&inn
Axlasígið keilu-fjall.
GLEÐI
Nafn á fjallgarði.
Eyðibýli.
Fleira en eitt nafnfrægt skáld hefir látið þá
hugsun í Ijósi að, “sameiginleg gleði sé tvöfölduð
gleði”, og oss er spurn hvort vér auglýsum
sjálfsálit vort með því lað líta svo á, sem öll við-
skifti, niður í það smæsta, er gerast millum vor
hér hjá Eaton og viðskiftavina vorra er dreifðir
eru út um hinar breiðu sléttur, sé gl&ði er skifta
megi vor á milli.
Á vora síðu finnum vér til ákveðinnar gleði, yfir
því að gera vort hlutverk vel, þannig að útvega
sem bezta vöru á hinu bezta verðmati fyrir yður
—v&ra á verði með vörugæðin með sífeldri
grenslan og efnisrannsóknum og jafnvel með
brotalausri bökkun og hraðri útsendingu. Og
vér hugsum með ánægju til gleði tilfinningarinn-
ar sem rís þegar böggullinn kemur frá Eaton—
hinnar hlýju eftirvæntingu þegar vörurnar eru
teknar úr umbúðunum. Þó metum vér enn
meira hina varanlegu gleði vissu yðar um það
að vörur vorar reynist ávalt eins og vér höfum
lýst þeim í Eaton’s Vöruskránni.
Og svo að auk—&f oss hefir hepnast að ná
verzlunarhlut sem þér eruð sólgnir í að eignast,
ef til vill hinumegin af hnettinum, og koma
honum skilvíslega í yðar hendur, felst þá ekki,
einhversstaðar í öllu þessu gleði sem vér getum
deilt á m&ðal vor?
■'T.EATON Cí-.
W1NNIPCQ CANADA
EATON S
i