Alþýðublaðið - 12.05.1960, Síða 11
Að leika eins og Lawton XVII.
Leikur bakvarðanna
LEIKUR góðs bakvarðar og
gildi hans fyrir lið sitt er
slunginn mörgum þáttum.
Kemur þar til greina m. a. ör-
yggi í staðsetningum og send-
ingum — þá, hvernig hann
,.hreinsar frá“ þegar hart er
ag honum sótt og loks, síðast
en ekki sízt, samvinna hans
við markvörðinn, framverð-
ina og miðframvörðinn.
Eins og knattspyrnan er nú
leikin, er það mikið atriði að
bakvörðurinn valdi útherja
andstæðinganna, og helzt ef
þess er kostur, „taki hann úr
umferð“. Því takist að þrengja
svo að kosti útherjans, að
wwwwwwwwwwwww
Kastar
Svn
90 m.?
SÆNSKI spjótkastarinn
Knut Fredriksson, sem
oftast er kallaður Favör-
Fredrik, a. m. k. af Svíum,
hefur æft vel í vetur.. —
Þjálfarinn Gustaf Laurell
er mjög bjartsýnn um ár-
angu hans í sumar og seg-
ir, að Favör geti kastað
spjótinu 90 m.!
tMMWmWttWMMMMMUMM
hann neyðist til að halda sig
sem mest út við hliðarlínu
sína, er hættan af honum
hverfandi fyrir vörnina. En
fái útherjinn hins vegar tæki-
færi til að nálgast markið snið
hallt, þ. e. skáskera sig að því
inná völlinn, er hætta á ferð-
um, og er þá allt undir vi'ð-
bragðsflýti og staðsetningu
varnarinnar í heild komið
hvort vel tekst til að bægja
hættunni frá eða illa fer.
Sé fast kreppt að bakverð-
inum á hann ekki að skoða
hug sinn lengi um að senda
markverði knöttinn eða
spyrna honum útaf. En útaf-
spyrnu, einkum þó þá, sem
gefur mótherjanum horn-
spyrnu, þ. e. spyrna út fyrir
endamötk, skal hann ekki
gera nema í hinni ýtrustu
neyð, þ. e. þegar mark verður
ekki umflúið með öðrum
hætti, að dómi hans. í 9 af
hverjum 10 tilfellum á það
að vera mögulegt fyrir snjall-
an bakvörð að senda knöttinn
til útvarðar síns — eða það
sem enn betra er, til útherja
síns.
Fyrir hvern leik ættir þú
að ræða skipulagið við út-
vörð þinn. Segðu honum að
vera alltaf viðbúinn að taka
á móti sendingu frá þér,
hvort heldur er með spýrnu
eða skalla, svo hann sé ætíð
reiðubúinn til að framlengja
slíka sendingu, sem gæti orð
ið upphaf að góðri sókn.
Reyndu að koma í veg fyr-
ir að fram hjá þér verði kom-
izt -— þó að þú hafir verið
settur úr jafnvægi og erfitt
sé um vik, þar sem þér undir
slíkum krinkumstæðum, nýt-
ist aðeins annar fóturinn. En
í slíka aðstöðu komast bak-
verðir gjarnan í leik. Gerðu
þér grein fyrir orsökum þessa,
og reyndu svo á grundvelli
þeirra athugana, að koma í
veg fyrir að unnt sé að setja
þig úr jafnvægi.
Þó ég hér gerist talsmaður
þess, að bakvörðurinn eigi að
valda útherja andstæðing-
anna, á ég ekki við það, að
hann haldi sig þétt við hann
allan leikinn, víki ekki frá
honum. Heldur það að bak-
vörðurinn eigi að staðsetja
sig þannig, með tilliti til út-
herjans, að hann geti alltaf í
tíma valdað hann svo, að
möguleikar hans séu meiri en
útherjans til að ná knettinum.
Vertu fljótur að staðsetja
þig og gættu þess að vera allt-
af á hreyfingu, svo að þú sért
ætíð öruggur um að geta náð
til knattarins, þegar hann er
sendur til „þíns útherja . ..“,
þ. e. þess útherja mótstöðu-
mannanna, sem þú átt að
gæta.
Við innvarp frá mótherja
áttu að staðsetja þig að baki
útherjans, sem þú valdir, en
gættu þess að verða aldrei
fyrir framan hann. Þá verður
knettinum varpað yfir þig.
Ef lið þitt á innvarpið
skaltu ekki skipta þér af út-
herjanum -— láttu honum eft-
ir að gera sér grein fyrir að-
stöðunni — og oftast muntu
þá vera óvaldaður sjálfur og
þannig hafa góða aðstöðu til
að veita knettinum viðtöku
og nýta tækifærið sem bezt,
liði þínu í hag.
Vertu ekki hræddur við að
fara alla ieið yfir miðlínuna,
ef þú ert öruggur um að mæta
knettinum þar. 'Vertu heldur
ekki hræddur við að senda
knöttinn með langsendingu
inn á miðbik vallarins, ef þar
er opið svæði — sé miðherji
þinn sprettharður getur slík
langsending auðveldlega ork-
að því, að vörn mótherjanna
opnist og að mark verði skor-
að.
Staðsetningarleikni, hæfi-
leiki til að taka á móti knett-
inum og samleikur við félag-
ana í vörninni, er það sem
sker úr um, hvort unnt sé að
tala um „fyrsta flokks bak-
vörð“.
ungmennasamband
Skagafjarðar átti 50 ára
afmæli í síð:asta mánuði
og hélt upp á það með
hófi 7. maí sl. Við það
tækifæri sæmdi forseti
ÍSÍ, Benedikt G. Wáge,
formann UMSS, Guðjón
Ingimundarson, þjónustu-
merki ÍSÍ. Myndin er tek-
in við það tækifæri. Guð-
jón hefur verið formaður
UMSS í 16 ár. Ljósm. Stef
/jbróttamenn undir smásjá:
örgvin Hólm ÍR
Á MEISTRARMOTI
íslands í frjálsum íþrótt-
um 1954 keppti algjör ný-
liði í spjótkasti. Nýliiðij
þessi, Björgvin Hólm, —
vakti strax athygli. Hann
kastaði spjótinu 53,02 m.
í þessari fyirstu keppni
sinni, sem þótti mjög gott
og athyglisverður árang-
ur. í ógildu kasti náði
hann meiia að segja 54.70
metra.
Björgvin Hólm er fædd-
ur í Reykjavík 19. nóvem-
'ber 1934, sonur hjónanna
Sigurlaugar og Friðbjarn-
ar Hólm. Hann hefur haft
mikinn áhuga á íþróttum.
Sú grein, sem Björgvin
lagði mesta stund á í upp-
hafi var spjótkast, — en
fljótt kom í ljós, að-Jiann
var fjölhæfur mjög, gat
bæði kastað, hlaupið og
stokkið með góðum ár-
angri. Það var þó ekki
fyrr en 1956, sem hann
keppti fyrst í fjölþrautum
og náði þá strax ágætum
árangri, sem sífellt hefur
batnað síðan. Hann hlaut
2621 stig í fimmtarþraut
og 5380 stig í tugþraut í
fyrstu tilraun.
A þessu Olympíuári, er
Björgvin sennilega ein af
okkar stærstu vonum, því
að hann hefur nú þegar
náð frábærum árangri, þó
að keppnistímabilið sé
varla byrjað. Hann vant-
aði t. d. aðeins 4 stig á Is-
landsmet sitt í fimmtar-
þraut á innanfélagsmóti í
vikunni og það afrek er
96 stigurn lakara en Norð-
urlandametið. Margir bú-
azt við því, að Björgvin
bæti íslandsmet Arnar
Clausen í tugþraut á þessu
sumri og hljóti meira ea
7000 stig.
Bezti árangur Björgvins
í einstökum greinum:
100 m.: 11,1 sek.
200 m.: 23,0 sek.
400tm.: 51,7 sek.
1500 m.: 4:30,6 mín.
110 m. gr.: 14,9 sek.
400 m. gr.: 55,4 sek.
Kúluvarp: 14,01 m.
Kringlukast 45,60 m.
Spjótkast: 58,75 m.
Langstökk: 6,97 m.
Hástökk: 1,75 m.
Þrístökk: 14,18 m.
Stangarstökk; 3,52 m.
Fimmtarþraut: 3206 st.
Tugþraut: 6456 stig.
Akranes-Rvík í kvöld
án B. Pedersen.
í KVÖLD kl. 8,30 hefst bæj>
arkeppni í knattspyrnu milli
Akraness og Reykjavíkur á
Melavellinum. Keppni þessi
hefur ávallt þótt mikill íþrótta-
viðburður og þó að lið Akra-
ness vanti margar af sínum
stjörnum, sem áður léku með
liðinu, er ekki að efa að leikur-
inn verður skemmtilegur. —
Áður en aðalleikurinn hefst
fer fram leikur í 4. flokki.
illllflIlllllllllllllllllMilllllllllliliilliliiiliiiiiiiiiiiiniiiiir
Á INNANFÉLAGSMÓTI Ár-
manns í gær sigraði Friðrik
Guðmundsson *í sleggjukasti,
7,65 m, Þárður B. Sig. 47,27 m
og Birgir Guðj. 43,03. Friðrik
sigraði einnig í kringlukasti.
/jbróttafréitir
í STUfTU MÁLI
ENSKA I. deildarliðið As-
ton Villa er nú statt í Svíþjóð
og mun Ieika þar nokkra leiki.
PORTÚGAL sigraði Júgó-
slava í Lissabon með 2:1 í 1:0).
— Eintracht sigraði Glasgcw
Rangers í undanúrslitum Ev-
rópukeppninnar með 6:3. Leik
urinn fór fram í Glasgow. I
úrslitum verða því eintracht
og Real Madiid.
Alþýðublaðið -— 12. maí l960 H