Heimskringla - 01.06.1938, Page 4
4. SÍÐA
HEIMSKRINCLA
WINNIPEG, 1. JúNf 1938
íTtctmskriniik f
(StofnuO 1SS8J
Ktmur út á hverjum miBvikuiegt.
Eigendur:
THE VIKING PRESS LTD.
(53 og (55 Sargent Avenue, Winnipeg
Talsimis SS 537
VerS blaðslns er $3.00 6.rgangurinn borgist g
ryrirfram. Allar borganir sendlst:
THE VIKINO PRESS LTD.
011 yiSskifta bréí blaðinu aðlútandl sendlst: =
K-nager THE VIKING PRESS LTD.
(53 Sargent Ave., Winnipeg
Ritstjóri STEFÁN EINARSSON
Vtanáskri/t til ritstjórans: g
EDITOR HEIMSKRINGLA
SS3 Sargent Ave., Winnipeg
-------------------------------------- |
“Heimskrlngla” ls published
and printed by
THE VlKItiG PRESS LTD.
«53.555 Sargent Avenue, Winnipeg Man.
Telephone: 86 537
WINNIPEG, 1. JÚNÍ 1938
RÆÐA
flutt í Sambandskirkjunni sunnudaginn
29. maí af Guðrúnu H. Finnsdóttur
Inngangsorðin eru tekin úr öðru bréfi
Páls postula til Korintumanna 17. og 18 v.
Drottinn er andi, en þar, sem andi drottins
er, þar er frelsi. En allir vér, sem með
óhjúpuðum andlitum skoðum í skuggsjá
dýrð drottins, ummyndumst til hinnar
sömu myndar.
Hér talar skáldið og hugsjónamaðurinn,
skáldið og skapmaðurinn, er stórhuga
dreymir framtíðardrauma um að leysa
mannkynið úr andlegum fjötrum. Hann
dreymir sama drauminn og alla þá hefir
dreymt, sem frá örófi alda hafa hugsað,
þráð frelsi og þroska mannanna. Það er
stór og fögur hugsjón að mannkynið verði
andlega frjálst, horfi með óhjúpuðum aug-
um og sjái og skilji dýrð drottins um-
hverfis sig.
Ef til vill hefir löngun mannanna aldrei
verið sterkari og ákveðnari að láta andann
vaxa og horfa frjálsum óhræddum augum
fram á veginn, heldur en núna á þessari
yfirstandandi öld, þessari vargöld og vígöld,
vélaöld og skröltöld, raföld og gasolíuöld.
Á þeirri öld sem mannkynið hefir lent í
þeim voðalegustu svaðilförum er sagan
hefir skráð, stríði, svartadauða, hungri og
neyð, kúgun og ofbeldi. f gömlum menn-
ingarlöndum þar sem andlegt frelsi, listir
og vísindi hafa þróast um langt skeið,
situr nú hnefarétturinn með stálslegna
hnúana að völdum. Atvinnuleysi og skort-
ur, þar, sem þó er gnægð auðs, og óunnin
verk hrópa til fólksins um framkvæmdir.
Svo mikil ringulreið hefir komist á stjórn-
arfar og siðmenningu heimsins á síðast
liðnum áratugum, að margir efast um, að
nokkurntíma aftur komist verulegt skipu-
lag á mannfélagsheildina. En aðrir sem
hugsa lengra, horfa hærra, ganga ekki
eftir andlegu flatlendi, treysta mannsand-
anum til að halda kyndlinum á lofti og lýsa
veginn, þar til mennirnir komast aftur út
úr geminga þokunni, myrkrinu og hörm-
ungunum, sem yfir hafa dunið. Þeir sem
hafa þá trú á framtíðinni, eru spámenn
vorra, sem nú lifum. Andi þeirra svíf-
ur yfir djúpinu, yfir djúpum fortíðarinnar
og yfir ómæld höf framtíðarinnar. Og
þeir vita að öllu er óhætt. Þeir vita að
mannsandinn muni nú bjargast af, eins og
svo oft áður, þegar að hefir þrengt. Hvort
sem litið er aftur í óljósa fornöld, eða til
samtíðarfólksins, eru mannlegar kendir
þær sömu, hugsjónir, tilfinningar og þrár.
Sólarljóð forn Egypta eru þrungin fegurð
og lotningu, á borð við vor fornu sólar-
ljóð, og hið undrafagra kvæði Jónasar
Hallgrímssonar “Sólseturljóð”. Hinn frjálsi
andi skáldanna lítur dýrðina með óhjúp-
uðum augum. Það eru engin bönd á anda
Jónasar eða hula fyrir sálarsjón hans þeg-
ar hann kveður til sólarinnar:
“Vonin vorblíða, j vonin ylfrjófa
drjúpi, sem dögg, j af dýrðarhönd þinni,
döpur manna hjörtu j í dimmu sofandi
veki, sem vallblómin j vekur þú að morgni.
Mynd guðs hins máttka! | mjúkir draumar
glaðlega vakna | við geisla þína
eins og náttöldur j norðan strauma
bláljósar blika, | birtu þína við.”
Með andagift, lotning og fegurð, lýsa
fornskáldin frá ýmsum þjóðum trúar-
bragðahöfundum sínum, guðshugmyndum
og hugsjónum. Það sama gera skáld
vor enn í dag. f byrjun þessarar aldar
kveðqr snildarskáldið Einar Benidiktsson
hvert kvæðið eftir annað, sem gerir þeim
skiljanlegt, er lesa þau, að — orðið er guð.
í “Deginum mikla” dregur Einar guðs-
hugmynd sína með voldugum dráttum.:
“Hjartað er algeimsins sólna sól
þar segullinn kviknar í frumeldsins smiðju.
Hans þanki er elding, en þruma hans orð.
Alt þiggur svip og afl við hans borð.
Stormanna spor eru stilt í hans óði;
stjamanna hvel eru korn í hans blóði.
Hans bros eru geislar, og blessuð hver
storð,
Sem blikar af náð undir ljóssins sjóði.”
Skáldið “horfir inn yfir sólna sveiginn,
hans sjón er eilífðin hádegismegin”. Mað-
urinn er í raun og veru aðeins það, sem
hann hugsar. útlit, framkoma og öll
breytni er mótuð af andlega lífinu, er hver
og einn lifir. Menn velja sér fyrir vini
og samferðafólk þá, sem eru í andlegu
samræmi á einhvern hátt' þá, sem gera
daginn hlýrri og bjartari og vökuna
styttri. Og það eru stundum fleiri en
samtíðarfólkið, sem menn ná sér í, fyrir
andlegan félagsskap. Séra Jón Þorláksson
á Bægisá, ljóðskáld íslendinga um og eftir
aldamótin 1800, er heilsuveill, fátækur
sveitaprestur, sem kvað og orti ljóð, þó
hann ætti stundúm tæplega björg til næsta
máls og sæti í kulda og myrkri, ljóslaus,
bleklaus og pappírslaus, án allra lífsþæg-
inda. En fyrir andlegt samfélag kaus
hann sér Milton, Klopstokk og fl. erlend
stórskáld. Og verk þeirra þýddi hann af
þvílíkri snild að ljóma leggur af.
Sveinbjörn Egilsson rétti höndina suður
í lönd og bauð Homer sæti við skrifborðið
sitt. Sneri ljóðum eftir hið suðræna stór-
skáld á svo forníslenzkt mál að næst geng-
ur Eddu kvæðunum. Grímur Thomsen
situr í stofunni á Bessastöðum í samfé-
lagi með stórlátu fornaldarfólki. Og eng-
ar fjarlægðir voru á milli Davíðs konungs
Hallgríms Péturssonar og Matthíasar Joch-
umssonar. Andans heimur á hvorki ára
né alda bil, og þar er hverjum sem vill
frjálst, að kjósa sér andlega samfylgd. f
þesskonar félagsskap líður tíminn fljótt
og leiðindi og eirðarleysi hverfa. Þeir
sem eru bjartsýnir og trúaðir á mátt and-
ans, halda því fram, að á síðari hluta þess-
arar aldar verði fólkið orðið mjög andlega
sinnað. Meiri kröfur verði gerðar á and-
legum sviðum en nokkru sinni fyr. Trúar-
brögðin fái dýpri, víðari og trúrri merk-
ingu í huga manna. Skólafyrirkomulagi
og mentun verði hagað þannig, að skap-
andi afl hugans verði vakið og hjálpað á-
leiðis. Uppeldi barna, andlegum og líkam-
legum þroska þeirra og heilsufari, verði
stjórnað með skynsemi, þekkingu og vís-
indalegu eftirliti. Alt þetta er þegar byrj-
að. Heilar bókahlöður eru fullar af upp-
eldisfræði, siðfræði og sálfræði, sem sýnir
að fólkinu er það fullkomlega ljóst, að
uppeldi komandi kynslóðar er alvarlegt og
ábyrgðarmikið starf. Það sýnir líka ann-
að. Þrátt fyrir alt' bölið og andstreymið,
eru framtíðarvonirnar og hugsjónirnar um
framför mannkynsins Ijóslifandi.
Og hví skyldu menn ekki vona ög
dreyma um þróun? Hví skyldu menn lifa
í myrkri vonleysis og ótta? Þrátt fyrir
stríðið og allar þær hörmungar, er renna
í kjölfar þess, hafa vísindi, verkfræði og
listir, verið svo stórstíg í þarfir mann-
kynsins, að það er nærri því eins og þessi
andstæðu öfl, þróun og eyðilegging, vitið
og fávizkan, ljósið og myrkrið, hafi verið
í kapphlaupi um að ná yfirráðum í sálum
mannanna. Aldrei hafa hugvit og vísindi
verið jafn víða, og í rauninni alstaðar á
vettvangi til líknar og hjálpar. Aldrei
hafa á jafn stuttum tíma, verið leystir úr
dróma jafn margir alda gamlir draumar
mannanna. Um loft og lög, í jörð og á,
hafa skeð svo margir furðulegir hlutir að
engum nema sérfræðingum er fært að
skilja þá og útskýra.
Hver gat komið inn fyrir dyr í vísinda-
höllinni á Chicago-sýningunni og litast þar
um, nema að beygja höfuð sit í lotningu
fyrir mannlegu viti, þekkingu og áræðni.
Hver getur horft á himignæfandi skýja-
hallir nútímans, bygðar úr stáli og steini í
tárhreinum stuðla stýl nema að spyrja
sjálfan sig: er manninum nokkuð ómögu-
legt?
Ljósgeislana höndla vísindin og láta þá
gera margskonar kraftaverk, efnafræðin
er að verða almúttug, menn sjá gegnum
holt og hæðir. Eyrun eru gerð svo næm
að nú heyra menn gras gróa og hlusta á
hljómkviður frá yrmlingum og pöddum,
er skríða í moldinni undir fótum vorum.
Heimsálfurnar talast við, og tími og rúm
hverfur. Loft og lögur eru lögð undir fót
og í vísindum og verkfræði sýnist nútíma
menningu engar skorður settar. Þegar
því er veitt athygli, hve miklu þeir af-
kasta og framkvæma, sem hafa tamið
heila sinn og hönd, verður manni að hugsa
fram í tímann og sjá í anda hvernig mundi
umhorfs á þessari jörð, ef andi allra yrði
samferða að þroska. Hvílíka sælu veröld
mannkynið ætti þá til íbúðar.
En það er draumurinn sem menn hefir
dreyrat og dreymir enn. Þráin eftir göf-
ugra og æðra lífi, og fullkomnari mann-
félagsskipun hefir fylgt kynslóðunum. Og
alt, sem best er unnið meðal manna, er
gert af löngun til að hlýða því kalli og
hlynna að þeirri hugsjón. — En — mikils
þarf með, nú á þessum dimmu dögum, til
að lýsa upp og hlýja umhverfið, því svo
margir hafa liðið skipbrot vona sinna á
ýmsum sviðum, og standa einmana og
finna frost og storma næða um sálu sína.
Aðrir finna kuldann, er leggur frá úlfúð
manna á milli, tortryggni, öfundsýki og
allskonar misklíð. í allra hjörtum er þó
löngunin eftir samúð, hlýju og vinsamlegu
samfélagi með samferðafólkinu.
Fólk þjáist af allskonar ótta, ótta við
sjálft sig og enn meiri ótta við aðra, ótta
við hraðann og hávaðann í öllu, ótta við
vélarnar, sem hafa þó losað merin undan
miklum þrældómi og eiga eftir að gera
betur, ef menn brestur ekki vit og mannúð
til að nota þær réttilega. •
En almennastur og hættulegastur er þó
óttinn og skelfingin, við allar nýjar stefn-
ur, og andlega leit í áttina til frelsis og
framfara. En ekkert fær samt stöðvað
frelsisþrá og byltingar mannsandans. Þar
er andi drottins í fylgd með mönnunum.
Þar er líf og viðhald þess, sem gerir þá að
hugsandi, skapandi, starfandi og stjórn-
andi- verum á jörðunni.
Það er alls ekki meiningin að menn eigi
að taka öllu sem býðst eins og góðu og
gildu, en það er ekkert að óttast þó fólk
komi fram með nýjar hugmyndir og að-
ferðir, og reyni að sjá hvort þær eru end-
urbót þess, sem áður hefir átt sér stað og
er viðtekið. Ef þær fela í sér verðmæti,
líf og þrótt, halda þær áfram, en að öðrum
kosti falla þær við veginn. — f heimi lista
hefir verið mikil grautargerð. Þar hafa
menn, og ekki sízt unga fólkið, verið að
reyna að sýna hugsanir sínar og láta til sín
heyra. Bókmentir, músik, málverka og
myndagerð, hefir borið annarlegan stíl og
blæ. Mörgum hefir sýnst að hér væri á
ferðinni óskapnaðurinn einn, er særði augu
fegurðarsinna og fyltu eyru þeirra með
úlfaþyt og útburðavæli. En samhliða —
eða jafnvel upp úr þessum háværa hjá-
róma klossa skóla hafa vaxið myndir, er
sýna að listin á ennþá ónumin lönd, músik,
sem kveður við þróttmikinn, lífrænan tón
og bókmentir, sem eru heimssálinni gróði.
Það er ekkert að óttast, jafnvel þó reynt
sé að kveða alt hugsanalíf og skapandi afl
í hel, þó reynt sé að dæma alt, sem er að
reyna að lifa og brjótast áfram í hugum
manna, á sama hátt og Kipling lætur í einu
kvæðinu sínu djöfulinn gera, þegar hann
sezt í dómara sætið til að níða listaverk
mannanna. Kipling er ekki skjálfhentur
þegar hann dregur upp myndina af þessum
dómara, sem situr með spekingssvip, og
jafnar öllu jafnt við jörð, sem fyrir hann
er borið með þessum orðum:
“It is clever — but — is it art?”
Þrátt fyrir öll þau illu öfl, sem því miður
sýnist vera svo örðugt að leggja í læðing,
ei’ andleg heilbrigði manna og trú á lífið
ennþá sú, að þá dreymir um réttlæti og
frelsi, þá dreymir um að geta horft með
óhjúpuðum augum á andleg verðmæti, og
notið snildarinnar þar, sem hana er að
finna, hvort heldur í orði, línum eða litum,
hlustað á hljómkviður meistaranna og
stækkað og auðgað anda sinn með því að
kynnast anda þeirra er ferðast um fjalla-
tindana og sjá inn á fyrirheitna landið —
landið þar sem anda þeirra getur orðið
allar leiðir færar.
Á síðastliðnum 20 árum hefir mannkynið
liðið sorgir, kvalir og allskonar hörmung-
ar, leiðin hefir verið ströng, en á þeirri
ferð hefir margur vitkast og lært að lesa
lífsins bók. Núna í vikunni sem leið var
uppstigningardagurinn. Sagan segir að
síðasta yerkið sem Jesús gerði, hafi
verið að kenna lærisveinunum að lesa ritn-
ingarnar. Að því loknu hvarf hann þeim
í björtu skýi, en þeir stóðu eftir með tóm-
læti og söknuð í huga.
Sú hefir orðið raunin á, að þegar þeir
hverfa sjónum, sem menn hafa dáð og
elskað er minning þeirra vafin björtum
ljóma, er svo veitir ljósi inn í sálir þeirra,
sem bera söknuðinn. Það ljós ljær þeim
styrk, andlegt sjálfstæði og frelsi til að
horfast rólega í augu við lífið,
við hina örstuttu stund, manns-
æfina, sem líkist vængjabliki er
ber snöggvast við sól en er um
leið liðið hjá og horfið í ómælis
geiminn. — Einar Benidiktsson,
hið vitra skáld, segir í fögru
kvæði, er hann yrkir til Huldu
skáldkonu, og sér fram á lista-
braut hennar:
“Svo opnast þín sjón eina sorg-
arnótt
fyrir sól þeirri, er aldrei hverfur
í æginn
og upp frá því þráirðu eilífðar-
daginn
með Edenlífsins síunga þrótt.
Þá snýrðu þér inn — að þeim
æðra heimi;
augu þín skygnast í draumanna
geimi
og alstaðar sérðu að líf er og
ljós—”.
KARLAKÓR ÍSLEND-
INGA í WINNIPEG
Karlakórinn kom saman síð-
astliðið miðvikudagskvöld eftir
aflokið vetrarstarf, til þess að
fagna yfir fengnum sigri og
ræða áhugamál sín á framtíð-
inni. En fyrst eg tek mér penna
í hönd og minnist á kórinn, þá
ætla eg aðeins lauslega að fara
nokkrum orðum um starf kórs-
ins síðast liðið ár af því ekkert
hefir enn verið minst á það opin-
berlega. En eg tel það þess vert
sökum þess að almenningur get-
ur ekki gert sér grein fyrir hví-
líkt feikna starf er í sambandi
við það að æfa og koma saman
kórsöng, svo hann hafi tilætluð
áhrif á sem víðfeðmustum svið-
um.
Starfið eftir veturinn er mikið
og mjög ánægjulegt. Samstarf-
ið milli söngstjóra og söngsveit-
ar ágætt, örfandi til söngs og
sigra eins og sýnt sig hefir eftir
samsöngva kórsins í vor og vet-
ur, því eins og þið vitið hefir
hann fengið einróma lof bæði í
ensku og íslenzku blöðunum frá
penna þess fólks, sem mest og
bezt kann að dæma um söng í
þessari borg.
Á þessum vetri hefir kórinn
haft um sjötíu samæfingar og
sýnist það allvel að verið þar
sem ekki eru meir en eins og
tveir þriðju af starfsárinu liðið
hjá og talsvert af æfingum eftir
enn fyrir söng við ýms tækifæri
í sumar. Þrjá opinbera sam-
söngva hefir kórinn haft nú þeg-
ar og auk þess sungið nokkrum
sinnum við sérstök tækifæri.
En sá sem mest og bezt hefir
starfað að velgengni og sigrum
kórsins er söngstjórinn Ragnar
H. Ragnar. Mörgum öðrum önn-
um hlaðinn, hefir hann af lífi og
sál lagt fram krafta sína, lær-
dóm og list til þess að kenna
mönnum að leggja réttar og
skýrar áherzlur í framburð ís-
lenzkra orða eftir hrynjanda og
efni ljóðsins, og tengja saman
lag og ljóð svo listgildi og túlk-
jun hvorstveggja njóti sín sem
j best og komi sem skýrast í ljós
imeð hrynjanda tungunnar og
hljóðfalli og sveiflum laganna.
En Ragnar finst hann aldrei
i gera of mikið fyrir söngmentina,
hann ann þeirri list og er þar all-
ur. Enda er árangurinn af starfi
hans með söngsveitinni glæsi-
legur. Hann hefir nú haft stjórn
karlakórsins með höndum aðeins
! rúmlega eitt ár. Þrátt fyrir það
hefir kórinn tekið svo geysileg-
| um framförum undir stjórn
I hans að einn af dómbærustu
i mönnum á ljóð og söng af íslend-
ingumh hér í borg, sagði — eftir
að hafa hlustað á söng kórsins
fjórða maí s. 1., “að kórinn hefði
aldrei sungið fyr.” — vitandi
þó að kórnum hefði oft áður tek-
ist vel bæði undir stjóm Björg-
vins Guðmundssonar, Brynjólfs
Þorlákssonar og Paul Bardals.
Ragnar H. Ragnar hefir áunn-
ið sér óskift traust og ástsæld
allra félagsmanna, bæði fyrir
starfs og listahæfileika sína og
prúðmannlega og laðandi fram-
komu. Enda kom það greinilega
í ljós þetta áminsta kvöld því
ræður voru haldnar þrungnar af
lífi, áhuga um framtíðarheill og
velfarnan kórsins og þakklæti
til söngstjórans Ragnar H.
Ragnar og Gunnars Erlendsson-
ar fyrir þeirra mikla og óeigin-
gjarna starf.
Vér höfum stundum orðið þess
vör að það koma fyrir þær
stundir í lífi voru þar sem marg-
ir eru saman komnir og stilla öfl-
um anda síns í einlægni og sann-
leika um eitthvað ákveðið, að
hleðslan verður svo áberandi og
heillandi að áhrifin verða óskýr-
anleg. Það er á þeim stundum,
sem hlýhugur og samstarf
treysta sín bönd.
Og eina slíka stund átti karla-
kórinn 'með söngstjóra sínum
þetta áminsta kvöld.
Davíð Björnsson
FóSTURLAND VORT
Alveg nýskeð eru tvær bækur
komnar út í Bandaríkjunum og
báðar eftirtektarverðar. Önnur
eftir M. E. Tracy ritstjóra mán-
aðarritsins merka Current Hist-
ory og heitir Our Nation — and
Theirs, (Þjóðin okkar og aðrar
þjóðir). Hin, eftir Harold Sin-
clair og nefnist American Years.
(Æfiár Bandarkjanna). í bók
Sinclairs er rakin lífsbarátta
Bandaríkja þjóðarinnar á vissu
tímabili. Vonum hennar lýst og
erfiðleikum. Staðfestu hennar
og hugprýði. Hæfileikum henn-
ar til þess að velja og hafna og
andlegu þreki hennar til þess að
framfylgja því, sem hún áleit
happasælast fyrir sig, ekki að-
eins á því tímabili sem um var
að ræða heldur einkum fyrir
framtíð sína og sinna. Hinn
höfundurinn, Tracy, situr í Hlið-
skjálf og sér um heim allan og
ber saman hugsanir og athafnir
þjóðanna, þó einkum að því er
lýðveldis, og einveldis stefnumar
snertir — ber saman aðstöðu ein-
staklijigsins í löndum þeim er
enn unna, og berjast fyrir lýð-
ræðisstefnunni, og í löndum
sem einræðisstefnan hefir lagt
höft og hömlur á orð og athafn-
ir manna. Hvorug þessara bóka
eru skrifaðar út í bláinn, heldur
auðsjáanlega af knýjandi og lif-
andi meðvitund um það, að bráð-
nauðsyn beri til þess að vekja
fólk til alvarlegrar athugunar á
hugsana straumum þeim sem nú
velta sér yfir líf manna, þurka út
forna farvegi og leggja það sem
menn bygðu áður á, í rústir; án
þess að menn geri sér nokkra
grein fyrir, eða hafi hugmynd
um hvað bygt verði á rústunum,
eða að spretti upp í flögunum.
Þetta ástand er ekki bundið við
nokkurt sérstakt land, eða part
af mannkyninu. Það er heims-
vítt og hótar alstaðar sömu af-
drifum og eyðilegging, ef menn
standa ekkr vakandi á verði. En
yfir hverju eiga menn að vaka?
Menn eiga að vaka yfir sjálfum
sér. Vaka yfir sinni eigin sál.
Vaka yfir þ,ví að láta ekki fljót-
ræði síns eigin huga villa sér
sjónir á ferli þeim sem reynsla
liðinna alda, og fórnfærsla góðra
og föfugra manna hefir sýnt og
sannað, að væri fjöldanum far-
sælastur. Vaka yfir því, að láta
ekki stundarhreyfing, eða jafn-
vel stundarmótköst sveigja sig
af vegi þeim sem líklegastur er
til að fela í skauti sínu farsæl-
asta velferð einstaklinga og
þjóðar. Það sem eg hefi nú sagt
á við mannlífið yfir höfuð. En
það sem eg vildi leggja sérstaka
áherzlu á í þessari grein eru
stjórnmálin. Aldrei { sögu mann-
anna hafa þeir sem með stjóm-
arvöld fara, átt eins erfitt að-
stöðu eins og einmitt nú, og til
þess ber margt. Breytt aðstaða
verklega og viðskiftalega. At-
vinnuleysi sem stafar bæði frá
þeirri aðstöðu og viðskiftalífi.
Skuldaklafar og kröfur sem
stafa sumpart frá gáleysi manna,
en sumpart frá óviðráðanlegiim