Heimskringla - 08.06.1938, Blaðsíða 1
THE PAR-T-DRINK
Good Anytlme
In the 2-GIass Bottle ^ ®
LII. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 8. JÚNf 1938
NÚMER 36.
HELZTU FRÉTTIR
Hryðjuverk í Canton
Síðast liðinn laugardag hófu
Japanir sprengjuárás á borgina
Canton í Suður-Kína. Biðu 2500
manna, kvenna og barna bana
af því. Er það eflaust met á
einum degi í slíkum hryðjuverk-
um. En við það átti ekki að
sitja, heldur var árásin endur-
tekin s. 1. mánudag. Dáið og
meiðst er sagt, að J5á hafi 1500
manns. Tveir spítalar urðu fyr-
ir sprengjunum.
Canton er ein af stærstu borg-
um í Kína; íbúar hennar eru um
900,000. Hún stendur við Perlu-
ána um 80 mílur frá sjó og var,
vegna þess hve vel hún lá við
verzlun, mesta verzlunarborg í
Kína þar til Shanghai óx henni
á síðari árum yfir höfuð. Borgin
er enn í höndum Kínverja. —
Árið 1911, var hún höfuðból
byltingarmanna og er enn mið-
stöð kommúnista. Á Perlu-ánni
er aragrúi skipa og fleka og eiga
þúsundir manna þar heimili. Við
borgina skifta Englendingar
rnikið.
Indland sjálfstætt
innan þriggja ára
f viðtali við fregnrita frá
Bandaríkjunum s. 1. laugardag,
hélt Mahatma Gandhi því sleitu-
laust fram, að Indland yrði ínn-
an þriggja ára algerlega sjálf-
stætt land. Ástæðan sem hann
færði fyrir því var sú, að trú-
mála ágreinings Hindúa og Mos-
lema (Múhameðstrúarmanna)
gætti nú miklu minna en nokkru
sinni áður. En hann hefði á-
velt verið það, sem sjálfstæðis-
baráttan strandaði á. Ennfrem-
ur kvað Gandhi, sem á Indlandi
er ávalt kallaður “Frelsari Ind-
lands”, að Bretar væru orðnir
miklu eftirgefanlegri, en þeir
hefðu áður verið. Hefir Gandhi
verið að ferðast um Norðvestur-
héruð Indlands og haldið ræður
um þörfina á að þjóðin samein-
ist. Kvað Breta ekki mundu
hafa leyft það fyrir einu ári. —
Annars virðist Gandhi einnig
hafa breyzt, þar sem boðskapur
hans er nú sameining í stað æs-
inga gegn Moslemum og Bretum.
Ein þjóðin enn segir sig
úr Þj óðabandalaginu
Fyrir skömmu tilkynti Chile-
lýðríkið í SuTður-Ameríku úrsögn
sína úr Þjóðabandalaginu með
tveggja ára fyrirvara.
Ástæðan er sú, að tillögum
þess um endurbætur á Þjóða-
bandalaginu hefir verið hafnað.
Chile hafði fyrir nokkru gefið
í skyn að ef þessu máli yrði illa
tekið, myndi það ekki sjá sér
fært að halda áfram að vera í
félaginu.
Húsabyggingar í Winnipeg
Síðast liðinn mánudag kom
John Queen borgarstjóri austan
frá Ottawa, en erindi hans þang-
að var að vita hve mikið fé Win-
nipegborg gæti fengið að láni til
húsabygginga. — Kingstjórnin
hefir gert ráð fyrir að veita um
30 miljónir dollara til að reisa
ódýr og lítil íveruhús í bæjum
landsins. Alt sem Queen gerði
ráð fyrir að Winnipeg fengi af
Því, er um $600,000 til $700,000.
Hætta á að lána þetta fé er eng-
in, því húsin munu leigjast
skjótt, að minsta kosti í þessum
bæ.
Freud leitar skjólshúss
í Englandi
Síðast liðinn sunnudag kom
Dr. Sigmund Freud til Parísar
frá Vín. Hann er að flytja til
Englands vegna þess að honum
er ekki vært í Vín, fremur en
öðrum Gyðingum. Kona hans
og dóttir voru með honum. Dr.
Freud er 82 ára gamall og er
heimsfrægur fyrir vísindastarf
sitt, sem er sálgrenslan (psycho-
analysis).
Eignir hans og peningar var
af honum tekið í Vín, en vís-
inda-áhöld og handrit fékk hann
að hafa með sér. Hann sá sér
ekki til setu boðið, er blöðin í
í Vín hófu árásir á bækur hans
og starf. f Vín hafði hann átt
heima frá því hann var barn að
aldri.
Til Englands kvaðst Freud
hlakka að koma bg starfa þar og
vera með nemendum sínum.
Viðfangsefni Freuds nú er sál-
grenslan manna þeirra er biblían
fjallar um. Er sagt í því starfi
fólgið, að skýra hálf-ósjálfráð-
ar þrár, ótta o. s. frv., manna,
er þá voru uppi. Kvað Freud nú
hafa á þennan hátt skýrt kafl-
ana um Moses.
Myndar Eden flokk?
Þessa stundina er talsvert um
það skrafað á Englandi, að Eden
muni innan skamms mynda nýj-
an flokk og verða sjálfur leiðtogi
hans. Honum kvað ekki lítast á
það sem er að gerast í utanrík-
ismálunum á Bretlandi. En
verst er honum sagt við, að það
var látið eftir Mussolini, í samn-
ingunum milli ítalíu og Bret-
lands, að hann kallaði ekki herlið
sitt heim frá Spáni. Telur hann
Mussolini verða stjórnanda Spán
ar, að þeim sigri unnum. Og
með því vaki fvrir honum, að1
draga yfirráð Breta úr höndum
þeirra á Miðjarðarhafinu. —
Chamberlain forsætisráðherra
telur hann einnig að hafa brugð-
ist bogalistin í því, að slíta sam-
vinnu Hitlers og Mussohni. —
Samninga við þá menn sé ekki
til neins að gera. Eru margir í
íhaldsflokknum á Englandi sömu
skoðunar og Eden um þetta. Og
út af því sem er að gerast nú í
Evrópu, ekki sízt á Spáni, fjölgar
þeim æ, er stefnu Edens aðhyll-
ast. Það er því margt ólíklegra
en það, að nýr flokkur myndist
undir merkjum Edens á Eng-
landi.
Saskatchewan
kosningarnar
Fylkiskosningarnar í Saskat-
chewan fara fram í dag. Hvernig
þeim lýkur, er þýðingarlaust að
spá nokkru um. Eitt er víst, að
stjórnin telur sig nú ekki eins
örugga og í kosningunum 1934,
er liberalar hlutu 50 þingsæti af
55 alls. Það mesta sem stjórnin
gerir sér nú von um, eru 35
þingsæti. Auðvitað getur svo
farið að þau verði ekki einu sinni
svo mörg.
Dreng rænt í Princeton
í Princeton í Florida var 5 ára
gömlum dreng rænt #úr rúmi
sínu 28. maí. Hann hét James
B. Cash, auðmannssonur. Var
$10,000 lausnarfjár krafist fyrir
hann og það greitt, en drengur-
inn hefir samt ekki komið fram.
Eru foreldrarnir Mr. og Mrs.
James B. Cash nú úrkulavonar
um að einkasonur þeirra sé á lífi.
Ekki treyst
Seytján hundruð Afríkumenn,
innfæddir, sem unnu í námun-
um við Johannesburg í Suður-
Afríku, hófu verkfall nýlega í
mótmælaskyni út iif gegnlýsing-
um.
Námustjómin vildi láta gegn-
lýsa þá á hverju kvöldi, til þess
að vita, hvort þeir hefðu ekki
gleypt demanta yfir daginn.
Bílaverksmiðjum lokað
Bílaverksmiðjum þeirra Fords
Chryslers og General Motors á
að loka á þessu sumri í tvo mán-
uði, að minsta kosti.. Hundruð-
ir þúsunda tapa við það atvinnu.
En eigendur verksmiðjanna
segjast ekki, með þeirri kreppu
sem nú sé, geta haldið viðstöðu-
laust áfram framleiðslu.
Þetta hafði kvisast fyrir
nokkru. En stjórnin í Washing-
ton hélt að það væri aðeins orð-
rómur. En fyrir rúmri viku var
Federal Reserva Board Banda-
ríkjanna tilkynt það á fundi í
Washington.
Það eru ekki aðeins þeir sem
hjá félögunum vinna, sem tjómð
af þessu nær til, heldur fjöldi
annara, er framleiða hráefni til
bílagerðar.
Vandræði og þau meira en lítil
leiða því af þessu. En verk-
smiðjueigendur segjast ekki
geta komið í veg fyrir þetta
nema miklar breytingar verði á
hag landsins til batnaðar.
Hitler heimtar
hollustueið af prestum
Prestum mótmælendakirkj-
unnar í Þýzkalandi hefir verið
tilkynt, að ef þeir ekki sverji
Hitler hollustueið fyrir ákveðinn
tíma, verði þeim vikið úr em-
bætti.
Fyrir tveimur árum fengu
prestar mótmælendakirkj unnar
samskonar skipun, en neituðu
þá að verða við henni, með þeim
rökum, að þeim bæri ekki að
sverja eiða, sem væru stjórn-
málalegs eðlis.
Óttast blóðsúthellingar
í B. C.
Athygli Kings-stjórnarinnar
var s. 1. mánudag dregin að því
á sambandsþinginu, að nema því
að eins að bráðlega yrði betur
fyrir því séð, væri uppþota og ef
til vill blóðsúthellinga að vænta
út af hag atvinnulausra í Van-
couver.
f Vancouver-borg hafa safnast
saman atvinnulausir menn hing-
að og þangað að úr landinu. Fyr-
ir 18 dögum tóku þeir pósthúsið
og listasafnshúsið í sínar hend-
ur og settust þar að.
Fylkisstjórnin í British Col-
umbia hefir beðið sambands-
stjórnina ásjár í því, að flytja
þessa atvinnuleysingja til þeirra
fylkja, sem þeir eru úr. En
mennirnir neituðu er til kom að
fara. Þeir sögðust hafa leitað
aftur og fram um landið atvinnu,
en hana væri hvergi að fá. Þeir
sögðust og hafa fengið nóg af
þeim flækingi og vissu hvað hon-
um væri samfara. Þeir biðja
engrar ásjár annarar en tæki-
færis að vinna fyrir sér.
Atvinnuleysingjarnir hafa
myndað samtök með sér um að
krefjast atvinnu, en meðan hún
er ófáanleg, er mjög óttast að til
örþrifaráða verði gripið og hjá
uppþotum verði ekki stýrt, sem
ómögulegt er að segja hvaða
hörmungar kunni að hljótast af.
Fundur íhaldsflokksins
5. júlí
Fundurinn sem íhaldsflokkur-
inn hefir verið að undirbúa, til
að ráða málum sínum, íhuga
stefnuskrána og að velja sér
foringja í stað Rt. Hon. R. B.
Bennetts, hefst í Ottawa 5. júlí
og stendur yfir í þrjá daga. f
undirbúningsnefndinni eru 39
menn alls, úr öllum fylkjum
landsins. Heldur nefndin fund
í Ottawa n. k. laugardag. Mesta
áhugamálið er val foringjans, en
hver hann verður, er ennþá ekk-
ert hægt um að segja.
Blöð Frakka og ítala
senda hvert öðru tóninn
Milli Frakka og ítala hefir
samkomulagið aldrei verið verra
en nú. Frakkar hafa herinn
stöðugt á landamærum Frakk-
lands og Spánar og senda
spönsku stjóminni eflaust vopn
öðru hvoru, eins og sagt er að
Rússar geri. Daladier forsætis-
ráðherra Frakka fer þar sínu
fram hvað sem Mussolini segir
og hvernig sem Bretum geðjast
að því. Af því hvernig syngur
í blöðum ftala og Frakka, hefði
fyrrum mátt ætla, að lönd þessi
væru að fjúka af stað í stríð.
Uppreisn í liði Francos
Tvo undanfarna daga hafa
fréttir borist frá Frakklandi um
að uppþot eigi sér öðru hvoru
stað í liði Francos á Spáni. Á
Suður-Spáni er sagt að menn í
liði Francos hafi í gær neitað að
hlýða skipunum yfirboðara sinna
í hernum og út af því hafi orðið
uppþot, er 11 mönnum varð að
bana. Hvað hæft er í þessum
fréttum, er ekki gott að segja.
TYRKLAND
í byrjun maímánaðar brugðu
forsætisráðherra Tyrklands,
Celar Bagar og utanríkisrítari
Rustu Arras sér til Aþenu á
Griklandi. Var brátt um för
þessa mikið talað í Evrópu, því
á allra vitund var, að þeir fóru
til að gera samning við gríska
alræðissegginn, og þýzksinnaða,
að því er ætlað var, John Me-
taxas. Það þótti ekkert bera
betur vitni um það, að hugur
Tyrkja væri ennþá hinn sami og
fyr hjá Þjóðverjum og til þess
að vera eins og þeir, ætlaði Kem-
al Ataturk sér að hefja með
þessu landvinningarstefnu aust-
an Miðjarðarhafsins og færa út
ríki sitt.
Byrjunin á þessu var sú, að
Kemal gerði samninga við Irak,
Iran, Afghanistan og Balkan-
ríkin, til þess að hnekkja yfir-
ráðum Breta og Anglo-Iran olíu-
félagsins, sem segja má að í Iran
sé brezka stjórnin. Með tíð og
tíma átti Kemal Ataturk að
hugsa sér að verða einvaldur frá
Balkanskaga og alla leið til Ind-
lands. Að því átti og að miða ^lt
sem Kemal gerði í. þá átt, að
vekja ungtyrkjann til meðvit-
undar um forna frægð þjóðar
sinnar. Þessir samningar lögðu
honum margt upp í hendur til
eflingar. ríkinu, svo sem kol,
chromium, gull, eyr, járn, blý
og olíu. Stjórnspekingar hans
voru grunaðir um að hafa reynt
að fá hinn unga Farouk, kon-
ung Egypta til þess að hefjast
handa um að brjótast undan
yfirráðum Bretans.
En ekkert af þessu hefir enn
komið fram og tilgangur Kemal
Ataturk virðist hafa verið allur
annar með þessum samningum,
en að bindast samtökum við
Þjóðverja. Síðan að Hitler tók
Austurríki virðist Kemal sem
minst skifti vilja við hann eiga
og ekki fá hann nær sér en nú er
orðið. Eitt til merkis um það er
að Bretar náðu í mikil viðskifti
nýlega hjá Tyrkjum, er Þjóð-
verjar höfðu áður notið. Þetta
gerðist á þann hátt, að Bretar
veittu Tyrkjum lán, og fyrir það
kaupa þeir vopn á Englandi.
Það virðist engin af þjóðunum
sem í stríðinu voru 1914 með
Þýzkal., hafa eins dafnað síðan
því lauk og Tyrkir. Og þó mistu
þeir óheyrilega mikið af löndum,
eins og allir samherjar Þjóð-
verja. Arabíu töpuðu þeir allri.
En jafnvel þó að Kemal Pasha
(nú Ataturk), þá byltingasinni,
neitaði að samþykkja Sevres-
samninginn 1920, er var heldur
móðgandi, og kæmist að betri
samningum við sigurvegarana í
Lausanne 1923, þá samt viður-
kendi Kemal yfirráð Breta í Irak
og Palestínu og Frakka í Sýr-
landi. Hann gaf jafnvel upp
allar kröfur til Kyprus og
Egyptalands. En á því landi,
sem Tyrkjum var eftirlátið hefir
Kemal samt sem áður tekist vel
að efla hag sinnar þjóðar. Er
það fyrst og fremst eflaust því
að þakka, að þar voru allir Tyrk-
ir saman komnir. Þeir urðu allir
innan þessa nýja tyrkneska lýð-
ríkis. Og ungtyrkir höfðu sýnt,
að í þeim bjó dáð og dugur. Þeir
gengu ákveðið til verks með
Kemal í að steypa soldáninum
af stóli 1922.
Síðan lýðveldið var stofnað,
hefir Kemal Ataturk verið for-
seti þess og alræðisherra. Hefir
hann gerbreytt þjóðinni og elft
mentun og menningu hennar. —
Hann byrjaði með því, að láta
snúa kóraninum úr arabisku á
tyrknesku. Karlmennirnir lögðu
niður rauðu skotthúfuna og
kvenfólkið andlitsblæjuna. Staf-
rof Evrópumanna var tekið upp,
en hætt við það arabiska. Þjóð-
ernisstefnan varð þarna álíka
mikil og nú í Þýzkalandi. Kemal
varð á undan Hitler að vekja
þá hreyfingu upp og ungtyrkir.
Við alt þetta má segja að risið
hafi upp ný tyrknesk þjóð,
frjálsleg, framsækinn og með
eins góðri alþýðumentun og þar
sem hún er bezt.
Kemal Ataturk gerði samning
við Rússa um eitt skeið, en hon-
um kvað þó ekki vera gefið um
að vera Stalin of nákominn,
fremur en Hitler. En svo kem-
ur þar annað til greina. Rússar
eiga Turkestan, en þar er sagt
að vagga tyrkneska þjóðernis-
ins hafi staðið og Kemal Ata-
turk finst að land það ætti
fremur að heyra Tyrklandi til
en Rússlandi.
Fyrir nokkrum árum sór Kem-
al Ataturk Bretum eilífa trygð
og vinuáttu. Og sú vinátta var
endurtekin, er Hertoginn af
Windsor, er þá var Edward
VIII, heimsótti Trykland 1936.
En svo mikið sem Kemal hefir
samið sig og þjóð sína að háttum
Vestur-Evrópu þjóða, telja þeir
sem hann bezt þekkja, að hann
vilji ekki verða neinni af stór-
þjóðum Evrópu of háður. Hann
vill að þjóð sín læri af þeim og
verði ein af stórþjóðunum, en
um samtök til landvinninga við
nokkra þjóð, kvað hann ekki
kæra sig.
NORSKA KIRKJURÁÐIÐ
vill ekki hafa konur fyrir presta
í sambandi við frumvarp, sem
nýlega var lagt fyrir norska
stórþingið og fjallar um rétt
kvenna til allra embætta, að
prestsembættinu meðtöldu, hef-
ir kirkjuráðið norska samþykt
yfirlýsingu, þar sem það lætur í
ljós undrun sína yfia* því að
þetta mál skuli en vera lagt fyrir
þingið, þvi sama frumvarp var
borið upp 1936.
Telur kirkjuráðið ekki neiAn
efa á því, að mikill meirihluti
safnaðanna sé því mótfallinn, að
konur gegni prestsstörfum, og
væru slík lög því næsta óvinveitt
kirkjunni; auk þess gæti þetta
orðið ágreiningsatriði og vakið
sundrung innan kirkjunnar.
Að síðustu mælir fundurinn
eindregið gegn frumvarpinu og
sendi stórþinginu nefnda yfir-
lýsingu.—Alþbl.
Þjóðabandalagið tekur enga
afstöðu til Abessiníumálsins
Tveir fundir voru haldnir í
Þjóðabandalaginu 12. maí og
rætt um Abessiníumálið á þeim
báðum. Abessiníukeisari var
viðstaddur, en fultti ekki ræðu
sjálfur, heldur var ræða hans
lesin af einum abessinska full-
trúanum.
Halifax lávarður, utanríkis-
málaráðherra Breta, var fyrsti
ræðumaður. Kvaðst hann álíta,
að meðlimum Þjóðbandalagsins
bæri engin skylda til þess, að
synja ítalíu um viðurkenningu
á yfirráðarétti í Abessiníu, þar
til Þjóðabandalagið hefði kom-
ist að einróma niðurstöðu um
málið. Margar stjómir hefðu
látið í ljósi óánægju sína með
það, að yfirráðaréttur ftalíu
hefði verið viðurkendur, vegna
þess að þar með hefði verið brot-
in siðferðileg grundvallarregla.
Halifax sagðist hafa fylstu sam-
úð með þessum hugsunarhætti,
en hann gæti ekki algerlega
fallist á réttmæti hans. Hér
væri um að ræða árekstur milli
tveggja hugsjóna, annarsvegar
væri hugsjón Þjóðabandalagsins,
hinsvegar væri liugsjón friðar-
ins og nú væri það aðeins stjóm-
málalegt vandamál, sem leysa
yrði úr hvort friðnum væri bet-
ur borgið með því að viðurkenna
yfirráðarétt ítala, heldur en með
því að standa óbeygjanlegafastá
grundvelli Þjóðabandalagsins. —
Með þessu kvaðst hann engan
veginn vilja afsaka þær aðferðir
sem ítalía hefði beitt, né heldur
í neinu falla frá grundvallarhug-
sjón Þjóðabandalagsins.
Ræða Haile Selassie
Að þessu loknu var lesin
ræða Haile Selassie og var megin
inntak hennar á þessa leið: —
Hann kvaðst harma það að
standa í mótstöðu við brezku
stjórnina í þessu máli, því að
fyrir henni bæri hann mestu
virðingu og nyti gistivináttu
hennar. Hann kvaðst enfremur
vilja fara þess á leit við brezku
stjórnina, að hún rannsakaði að
nýju þá afgtöðu, sem hún hefði
tekið í þessu máli. Hann komst
að lokum svo að orði: “Eg er
ekki að biðja um neina aðstoð
fyrir Abessiníu, eg er aðeins að
biðja um það, að Ethiopíu megi
verða leyft að verða meðal yðar
sem ríki, er brotin hafa verið
lög á. Yfirráð italíu yfir Abes-
siníu ná aðeins svo langt, sem
byssur hennar draga og eg biðst
rannsóknar Þjóðabandalagsins á
því, hvað hæft er í þeirri full-
yrðingu ítala, að þeir ráði í
laodinu.”
Forseti fundarins kvað upp
þann úrskurð, að engin ályktun
skyldi verða samþykt um yfir-
ráðarétt ftala, heldur skyldi
hverri þjóð lieimilt að taka sína
eigin afstöðu til málsins.
Kári Johnson frá Baldur,
Man., var staddur í bænum s. 1.
föstudag.