Heimskringla - 08.06.1938, Side 5
WINNIPEG, 8. JÚNí 1938
HEIMSKRINGLA
5. SÍÐA
una. Nokkurar krónur úr ríkis-
sjóði Dana eftir dúk og disk,
geta ekki svift oss þessum rétti,
enda munu íslendingar aldrei
gefa upp þennan eða neinn ann-
an rétt, sem þeir eiga til hand-
rita í Árnasafni eða öðrum
dönskum söfnum, og ekki heldur
til forngripa sinna.
Það er ekki í fyrsta skifti, sem
það heyrist, að breytingin á
skipun Árnanefndar hafi átt að
gera safnið, og þar með Kaup-
mannahöfn, að námsmiðstöð ís-
lenzkra fræða, en breytingin var
fólgin í því, að Ámanefnd var
stækkuð og fslendingar skipaðir
í hana. í fyrra barst Ríkisút-
varpinu skeyti um það frá frétta
ritara sínum í Kaupmannhöfn,
að hin nýja Árnanefnd ætlaði
að gera safnið, og þar með Kaup-
mannahöfn, að miðstöð íslenzkra
fræða. Auðvitað dettur engum
fslendingi, sem er með öllum
mjalla, slíkt í hug eða myndi
vilja láta það líðast, enda var því
þá þegar lýst opinberlega yfir í
íslenzkum blöðum af hálfu hinna
íslenzku nefndarmanna, að slíkt
hefði aldrei borið á góma við þá,
og að þeir hefði ekki á slíkt
fallist, og var jafnvel gefið í
skyn, að blaðamaðurinn mundi
ekki fara sem frómlegast með,
en börn og blaðamenn verða oft
höfð til blóra. Nú er þetta náms-
miðstöðvarhjal aftur gosið upp
og í málsmetandi dönsku blaði,
og hefir blaðið þetta eftir einum
hinna dönsku Árnanefdar-
manna, prófessor Erik Arup, en
hann hefir í þessum efnum
sennilega gengið erindi landa
sinna meira en fslendingum er
holt. Það er því engin ástæða
til þess að rengja, að rétt sé frá
sagt í hinu danska blaði. Ef svo
er, er þó auðvitað engin ástæða
til að rengja yfirlýsingu hinna
íslenzku nefndarmanna frá í
fyrra frekar en áður, en hins
vegar er þá ekki annað sýnna,
en að hinir dönsku samnefndar-
menn þeirra hafi farið á bak við
þá um mikilvægasta tilganginn
með breytingunni á Árnanefnd,
og að hér hafi beinlínis verið
reynt að hlunnfara þá, sem þó er
ilt að þurfa að trúa. Þegar ís-
lendingar voru skipaðir í Árna-
nefnd, orkaði það mikils tvímæl-
is, hvort rétt væri að þeir tæki
nokkurn þátt í störfum þeirrar
nefndar, en þá var hallast að þvi
ráði. En eftir að þetta náms-
miðstöðvarmál er nú gosið upp
aftur, þá virðist, hvernig sem
því nú annars er varið, vera
kominn tími til þess, að hinir ís-
lenzku nefndarmenn dragi sig
fullkomlega út úr nefndinni. Þó
að þetta sé til þess ærin orsök,
vegur hitt þó, að því er virðist,
hvað mest, að það sýnist alveg
fráleitt, að íslendingar fari að
taka þátt með Dönum í að
stjórna eigum, sem fslendingar
eiga einir og standa í að heimta
af Döivum, því að þeir gætu hæg-
lega skilið það, eða látist skilja
það, sem viðurkenningu af okk-
ar hálfu um að Árnasafn sé á
sínum stað í Kaupmannahöfn, og
eigi þar að vera.
Hinn rétti staður Árnasafns
er í Reykjavík, og þar á það að
vera ásamt öðru því, er vér eig-
um í garði Dana. Það er krafa
allra íslendinga, eins og þings-
ályktunartillagan, sem nú liggur
fyrir, ber með sér, en það gefur
hina beztu von um góðan árang-
ur af þessari kröfu, að Stauning
forsætisráðherra Dana hefir lýst
því yfir við fréttamenn Útvarps-
ins íslenzka í Kaupmannahöfn,
að hann hafi ávalt verið því
^jög fylgjandi, að skilað væri
aftur úr dönskum söfnum skjöl-
um og gripum, sem að réttu lagi
eiga annarsstaðar heima, og er
þessi skoðun hans rökrétt safna-
mannshugsun. Á málið ætti því
að geta komist góður rökspölur
nú.—Vísir, 2. maí.
Guðbr. Jónsson
Kaupið Heimskringlu
Lesið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
FERÐIR LEIKFLOKKS
SAMBANDSSAFNAÐAR
Fyrir hönd Leikfélags Sam-
bandssafnaðar er ferðaðist með
leikinn “Jósafat” til Langruth,
Mountain, N. D., og Gimli, lang-
ar mig opinberlega að þakka
fyrir þær rausnarlegu viðtökur
og vinsemd er leikflokkurinn
átti að fagna á þessum stöðum.
í Langruth var tilreiddur
“Turkey Dinner” að heimili Mrs.
C. Bjarnason fyrir 20 manns er
tilheyrðu flokknum og svo veit-
ingar eftir leikinn. Þetta var
framreitt af hinu fámenna en
duglega íslenzka kvenfélagi þar.
Á Mountain og grendinni var
leikflokkurinn tvær nætur við
framúrskarandi gestrisni og alúð
bygðarfólks. Hafði flokkurinn
hina mestu skemtun af Dakota
ferðinni og gleymir seint þeirri
rausn og vináttu, sem þar var
að mæta. Á Gimli voru rausnar-
legar veitingar bæði fyrir og
eftir leikinn. Aðsókn á öllum
stöðunum var góð og metur
Leikfélagið mikils þann viður-
kenningarvott á starfi þess. —
Kærar þakkir fyrir öll vináttu-
merkin og hina íslenzku gest-
risni. Bergthor Emil Johnson
Vegur lífsins
DAGBLÖÐUM
ÚTVARPAÐ
Ameríkumenn hafa löngum
haft orð fyrir að láta sér ekki
alt fyrir brjósti brenna. Maður
á altaf von á einhverju athyglis-
verðu og frumlegu frá þeim. —
Nýjasta uppátæki þeirra núna,
í sambandi við útvarp, er að
senda dagblöð á öldum loftsins.
Senditækið er t sjálfu sér af-
ar einfalt. Á sendistöðinni er
prentuðu máli og myndum breytt
í raföldur. Þetta er gert með
örltilli glerkúlu eða “stöfunar-
ljósi”, eins og þeir kalla það,
sem er látið líða yfir prentuðu
síðuna, sem á að útvarpa. “Stöf-
unarljósið” sendir aftur svertu-
magn síðunnar til rafmyndaklef-
ans, sem svo breytir því í raf-
öldur, er senda má út með hin-
um venjulegu senditækjum
stöðvarinnar.
Móttökutækið er á stærð við
meðalstórt útvarpstæki. Það
tekur við þessum raföldum, vís-
ir heyrfist yfir pappír með kola-
efni á bak við og framkallar á
honum þær dökku og ljósu línur,
sem mynda stafi og myndir. —
Þetta er prentun án svertu og án
móts.
Tilraunir með þetta útvarp
hafa verið gerðar í Bandaríkj-
unum nú um nokkurt skeið, og
fyrsta útsending fór fram í nóv-
ember s. 1. haust. Framfarir
hafa orðið miklar síðan, og nú
er undirbúningi undir fjölda-
framleiðslu móttökutækjanna að
verða lokið og fullyrt er að þau
verði brátt fáanleg fyrir aðeins
um 40 dollara (ca. 180 kr.).
Það verður gaman fyrir
Bandaríkjamenn að lifa þegar
þetta er komið í fullan gang.
Þeir stilla útvarpstækið sitt á
ákveðna stöð að kveldi og leggj-
ast svo til svefns. Þegar þeir
svo vakna að morgni, taka þeir
þessi “dagblöð” út úr móttöku-
tækinu sínu og hlaupa yfir frétt
irnar. Þar fá þeir frásagnir um
atburði, sem hafa gerst kvöldið
áður og um nóttina á meðan þeir
sváfu.
Móttökutækin hafa þegar
sjálfvirkan pappírshníf, sem
skera pappírinn niður í ákveðn-
ar blaðsíðustærðir. Með því að
bæta við einfaldri heftivél, getpr
þetta litla móttökutæki skorið
og bundið tímarit og bækur.
Ruth Brindzi skrifar um
þetta í blaðið Nation í New
York og kemst m. a. svo að orði:
“Þessi uppfynding er, fyrir
þjóðfélagið, áreiðanlega einhver
sú þýðingarmesta, sem gerð hef-
ir verið síðan prentlistin var
fundin upp. Innan fárra mán-
aða verða þessar eftirprentunar-
vélar á heimilum um gervöll
Bandaríkin.
Möguleikarnir eru ótakmark-
—N. Dbl.
Já, eg þekki þessar mörgu leiðir.
Þaðan margur geisli skín.
En engin þeirra yngir mig né seiðir.
Engin þeirra er — leiðin mín.
Leiðin mín — hún liggur í gegnum skóga,
lundi og marga dísahöll,
en hún liggur líka yfir snjóa,
liljugrund og smáravöll.
Hún liggur gegnum háa hamrasali,
hraun — og yfir blásinn svörð,
og í gegnum ljúfa, djúpa dali,
með dreymin fljót og ilm úr jörð.
Því þetta var mín gamla syndasaga,
að sál mín þoldi illa bönd, —
að eg er vinur frjálsra ferðalaga
og ferðast einij — um höf og lönd ....
í sál mér logar landnámsmannsins eldur.
Eg lítils ýmsar hættur met, —
í kyrstöðunnar fjötra verð ei feldur
og fjárbraut enga troðið get.
Eg þarfnast rúms. Eg þrengslum fæ ei unað.
Mig þreytir kreddumannsins pex.
Eg veit hið bezta er andann getur grunað
í glöðu frelsi aðeins vex.
Eg þarfnast lofts. Eg elska útilegur, —
óttast hvorki dverg né tröll.
Leiðin mín er lífsins mikli vegur.
Leiðin mín er — jörðin öll.
Grétar FeUs.
yðar, með því að senda þær I
band til Ðavíðs Bjömssonar á
"Heimskringlu”. Verkið vel af
hendi leyst.
* * *
Munið eftir að hin nýútkomna
bók, Myndir II. af listaverkum
Einar Jónssonar frá Galtafelli
fæst nú meðan upplagið hrekk-
ur á skrifstofu “Hkr.” fyrir
$2.65; burðargjald, ef um póst-
sendingu er að ræða, lOc. Þeir
sem eiga eldri bókina er kom út
fyrir 12 árum munu vilja eign-
ast þessa. Eiga þeir þá mynda-
safn af öllum verkum hans.
Stjómamefnd
Þjóðræknisfélagsins
* * *
fslendingadags prógröm
Eftirfylgjandi íslendingadags
prógröm óskast til kaups, fyrir
árin 1890,1891,1892,1893,1895,
1896, 1897, 1898, 1899, 1900,
1901, 1902, 1903, 1904, 1908,
1909, 1912, 1914, 1915, 1923.
Eintökin mega ekki vera rifin
eða mjög óhrein. Sendið þau
ekki en tilkynnið “Hkr.” hvaða
árganga þér hafið, og á hvaða
verði. Verður yður þá svarað
strax um hæl.
Ennfremur er óskað eftir sög-
unni:
Fastus og Ermena, er gefin
var út á Gimli af Gísla M.
Thompson.
Ráðsmaður Hkr.
aðir. Þessi litlu tæki skilu letr-
öðri frásögn jafnóðum og at-
burðirnir ske, jafnóðum og sag-
an gerist.
Engin dagblöð verða fær um
að keppa við þetta. Þessi end-
urprentunaraðferð er fljótari,
þægilegri og ódýrari. Fólkið
þarf aðeins að borga pappírinn
og rafstrauminn og í staðinn fær
það svo meira lesmál en það
kemst yfir að lesa. Dagblað
heimilisins getur orðið eins stórt
og New York Times á sunnudög-
um og tímarit og bækur breið-
ast út í miljónum eintaka.
Það er ekki lengur neinn heila-
spuni að útvarpið geti þannig
séð okkur fyrir dagblöðum. Ef
iú aðeins bætir endurprentunar_
tæki við útvarpstæki þitt, safnar
það fréttum og myndum fyrir
þig og sýnir þér það “svart á
hvítu.”—N. Dbl.
FJÆR OG NÆR
Dr. M. B. Haldórson í Win-
nipeg og Helen dóttir hans, lögðu
af stað í morgun vestur til San
Francisco. Var Dr. Halldórsson
boðinn þangað til að vera á fundi
er bandaríska berklavarnarfélag-
ið (The American Anti-Tubercu-
lar Medical Association) held-
ur þar. — Dr. Halldórson gerði
ráð fyrir að verða að heiman 2
til 4 vikur. Á mánudagskvöldið
buðu þau Mr. og Mrs. J. B.
Skaptason honum heim til sín
þar sem nokkrir kunningjar hans
voru fyrir. — Eftir skemti-
legt kvöld árnuðu þeir honum
farar-heilla og afhentu snotra
tösku. Eru hér nöfn heimsækj-
enda auk J. B. Skaptasons, H. B.
Skaptason, H. Pétursson, Ó.
Pétursson, séra P. M. Pétursson,
dr. R. Pétursson, Jón Ásgeirs-
son, Steind. Jakobsson, S. B.
Stefánsson, Jakob Kristjánsson,
P. S. Pálsson, Magn. Peterson.
* * *
Paul bóndi Johnson frá Bel-
mont, Man., kom til bæjarins s. i.
föstudag r.orðan frá Hnausum,
?n þar var hann við jarðarför
fóstra síns, Baldvins Jónssonai
? Kirkjubæ.
* * *
HILLIN G ALÖND
Fjórtán sögur eftir Guðr. H.
Finnsdóttur er nú nýkomin hing-
að vestur. Bókin er í stóru átta
blaða broti, á þriðja hundrað
blaðsíður, prentuð á góðan þykk-
an pappír. Frumdegin mynd
eftir íslenzkan listamann er á
framhlið kápunnar. Hún er
prentuð í Félagsprentsmiðjunni
í Reykjavík og hin vandaðasta
að öllum frágangi. útsöluna
annast Gísli Johnson, 906 Ban-
ning St., Winnipeg. Ennfrem-
ur tekur Magnús Peterson bók-
sali, 313 Horace St., Norwood,
á móti pöntunum.
Kostar póstfrítt $1.75.
* * *
Nefnd fslendingadagsins fyrir
yfristandandi starfsár er sem
hér segir:
Jón J. Samson, forseti
Séra Philip M. Pétursson, v.-for.
Davíð Björnsson, ritari
Jóh. Sigurðsson, vara-ritari
Jochum Ásgeirsson, gjaldkeri.
Ásb. Eggertsson, vara-gjaldkeri
Th. Thordarson, Gimli, eignav.
Eiríkur A. ísfeld
Erlendur Anderson
Sveinn Pálmason
Guðm. Feldsted, Gimli
Th. S. Thorsteinsson, Selkirk.
* * *
.Séra Egill Fafnis frá Glen-
boro, Man., kom til bæjarins s. I.
fimtudag. Hann kom norðan frá
Árborg; var þar á ungmenna
þingi lúterskra íslendinga.
* * *
Gefin saman í hjónaband af
sóknarpresti á prestheimilinu í
Árborg, Man., þann 31. maí
Halli Gíslason, Árbórg, Man., og
Albertína Helga Sigurðsson,
Geysir, Man.
* * *
Bók sem allir ættu að eiga
er auglýst á öðrum stað í blað-
inu.
Bókin heitir, “The Claimant’s
Fire Insurance Guide” eftir John
A. MacLennan. Hún er um
skaðabótarkröfu til eldsábyrgð-
aréflaga. Fæstir eru heima í
þeim sökum, og eru því árlega
stórir hópar, er verða fyrir
eignatjóni af völdum elds, snuð-
aðir um stórfé, sem þeir eiga fult.
tilkall til, ef þeir kynnu með að
fara. Bókin kostar 75c send með
pósti hvert sem er. Þessu ritr
hefir verið mikið hrósað. Það
er glögt og greinilegt og þó ná-
kvæmt og fylgir fyrirmælum
laganna í öllum greinum. Pant-
anir má senda á skrifstofu
“Heimskringlu.”
Það er álit vort að enginn ætti
að vera án þessa rits, það kostar
lítið en getur verndað menn fyr-
ir ágangi umboðsmanna eldsá-
byrgðarfélaganna sem jafnan
fara eins langt og þeir komast
þegar um skaðabótar mat er að
ræða.
* * *
Bækurnar eru til fróðleiks og
skemtunar. Góðar bækur eru
dýrmæt eign. Látið þær einn-
ig vera til prýðis í bókaskápnum
Þér Mm notið—
TIMBUR
KAUPIÐ AF
THE
Empire Sash & Door
CO., LTD.
BirjUlr: flenrj Ave. Eut
Sími 95 551—95 552
Skrifatofa:
Heary og Argyle
VERÐ - GÆÐI . ANÆGJA
ALÞINGI SLITIÐ
Rvík. 13. Maí
Fundur var settur í Samein-
uðu Alþingi kl. 6 síðd. í gær og
fóru þá fram þinglausnir.
Forseti Sþ., Haraldur Guð-
mundsson gaf yfirlit um störf
þingsins.
Þingið hafði staðið frá 15.
febr. til 12. maí, eða samtals 87
daga. Alls voru haldnir 186
þingfundir, 76 í neðri deild, 79
efri deild og 31 í sameinuðu
þingi.
Alls voru lögð fyrir þingið 103
lagafrumvörp, þar af voru að-
eins 8 stjórnarfrumvörp. 60
lög voru afgreidd frá þinginu;
41 frumvarp dagaði uppi, eitt
var felt og eitt afgreitt með rök-
studdri dagskrá.
— 33 þingsályktunartillögur
voru bornar fram, 4 í neðri deild,
8 í efri deild og 21 í sameinuðu
þingi. 13 þingsályktanir voru
afgreiddar til stjórnarinnar; ein
var feld, 4 vísað til stjórnarinn-
ar og 15 döguðu uppi.
Fjórar fyrirspurnir voru born-
ar fram, en aðeins einni svarað.
Alls fékk þingið 140 mál til
meðferðar.
Er forseti Sþ. hafði gefið yfir-
lit um störf þingsins, mintist
hann á þingstörfin. Hartn kvað
þau mjög hafa mótast af erfið-
leikum tveggja aðal-atvinnuvega
þjóðarinnar. Fjárpestin hefði
herjað landbúnaðinn og nú hefði
þriðja afla-brestsárið bæst við
hjá sjávarútveginum.
Nefndi forseti því næst nokk-
ur mál, sem þingið hefði af-
greitt.
Forseti sagði að lokum, að
dómarnir um þetta þing myndu
verða margir og misjafnir.
Er Haraldur Guðmundsson
hafði lokið máli sínu, reis for-
sætisráðherra úr sæti sínu og
las upp bréf konungs um þing-
slitin. Bað forsætisráðherra því
næst þingmenn að minnast ætt-
jarðarinnar og konungs með því
að rísa úr sætum. Gerðu þing-
mann það, og hrópuðu ferfalt
húrra. Kommúnistar og sósíal-
istar voru þó að streitast við að
sitja.
Var þá lokið störfum þingsins,
sem var hið 53. frá endurreisii
Alþingis, en 1008 ár eru nú liðin
frá því Alþingi var stofnað.
—Mbl.
900 mílur vegar á 5 klst.
Beinum flugsamgöngum var
komið á milli Rómaborgar og
London 15. maí. Verður flog-
ið viðkomulaust milli þessara
borga (900 enskar mílur) á 5
klst.
* * *
Á Vrangö skamt frá Gauta-
borg fanst um daginn stór skjald
baka af vissri tegund, sem er
ekki til nema á suðlægari breidd-
argráðum. Hún var 9. kg. á
þyngd. Leit út fyrir, að hún
hefði um lengri tíma hafst við í
litlum hellisskúta, þar sem hún
hafði komið sér vel fyrir. Er
talið, að skjaldbakan hafi flust
til eyjunnar með skipi, sem far-
ist hafi við eyjuna.
Fyrir hvern meðlim
- fjölskyldunnar er
MODERN
bezt!
MJÓLK RJÓMI SMJÖR
“Þú getur þeytt rjóman okkar en, þú getur
ekki steytt mjólkina okkar!”
SÍMI 201 101
ÞÉR GETIÐ ÁVALT FENGIÐ
PENINGANA TIL BAKA!
Þegar þér geymið peningar yðar á banka, þá eru
þeir tryggir—og þér getið hvenær sem þér óskið
þess, gengið að þeim þar. Opnið sparisjóðs-
reikning hjá næsta útibúi' og leggið reglulega
fyrir peninga.
THE ROYAL B A N K
OF CANADA
Eignir yfir $800,000,000