Heimskringla - 08.06.1938, Síða 8
8. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 8. JÚNí 1938
FJÆR OG NÆR
Sunnudagaskóla skemtiferð
Sambandssafnaðar í Winnipeg
fer fram n. k. sunnudag 12. þ.
m. og taka báðir söfnuðimir þátt
í skemtuninni og verður því ekk-
ert messað þann dag.
Ferðin verður til skemtigarðs
Manhattan Club á Rauðárbakk-
anum fyrir norðan Wpg. Komið
verður saman í Sambandskirkj-
unni kl. 10.20 og farið þaðan í
“Bus” og í bifreiðum. Sunnu-
dagaskólinn útvegar kaffi, te,
lemonade, o. s. f. — en fólk er
beðið að koma með með sér “Bas-
ket Lunch”. Margt verður til
skemtunar, — kapphlaup, stökk,
“novelty races”, reiptog, knatt-
leikir o. s. frv. Allir sem eiga
bíla og pláss hafa í þeim eru góð-
fúslega beðnir að mæta við kirkj-
una og hjálpa með að flytja fólk
eða böm út í skemtigarðinn.
SUMARIÐ ER KOMIÐ!
Allir sem þurfa að bjarga sér
ættu að eiga
REIÐHJÓL
Vér höfum haft sérstakan við-
búnað til að bæta úr þörfum yðar
í þá átt.
•
Ný og brúkuð reiðhjól á öllum
stærðum og prísum.
26 ára reynsla við aðgerðir.
Lítið inn eða skrifið til
SARGENT BICYCLE WORKS
675 Sargent Ave., Winnipeg
S. Matthew, eigandi
Séra Guðm. Árnason messar
n. k. sunnudag (12. júní) I
Reykjavik; í Hayland Hall s.d.
19. júní.
* * *
Messa í Sambandskirkj unni í
Árnesi sunnudaginn 12. júní, kl.
2 e. h. Á eftir messunni verður
sameinaður fundur Sambands-
kvenfélaganna í Nýja íslandi og
Sambandssafnaðanna. — Vafri
mjög æskilegt að sem flestir
hlutaðeigendur gætu mætt.
* * *
Vatnabygðir sd. 12. júní
Kl. 11. f. h. Sunnudagaskóli í
Wynyard.
Kl. 2 e. h. (M.S.T.) Ensk
messa í Leslie. Ferming.
Jakob Jónsson, sóknarprestur
* * *
Fröken Halldóra Bjarnadóttir
kom heim til fslands hinn 1. þ.
m. úr vesturför sinni samkvæmt
símskeyti til Mrs. Finnur John-
son, Winnipeg.
* * *
Ingimundur Ólafsson frá
Reyjavík, Man., var staddur í
bænum s. 1. fimtudag.
* * *
Síðastliðinn sunnudag skírði
séra Philip M. Pétursson son
Ragnars Gíslason og Elmu Árna-
son Gíslason, að heimili þeirra
529 Agnes St. Hann var skírð-
ÞINGBOÐ
Sextánda ársþing hins Sameinaða Kirkjufélags ís-
lendinga í Vesturheimi verður sett í kirkju Sambands-
safnaðar á Lundar, fimtudaginn þann 30. júní 1938,
klukkan sjö eftir hádegi. Þingið stendur fram á mánu-
dagskvöld þann 4. júlí.
Söfnuðir, sem í kirkjufélaginu eru, senda fulltrúa á
þingið, einn fyrir hverja 50 safnaðarfélaga eða brot af
þeirri tölu.
Á þinginu mæta einnig fulltrúar fyrir sunnudaga-
skóla og ungmennafélög.
Ennfremur heldur Samband íslenzkra Kvenfélaga
hins Sameinaða Kirkjufélags ársþing sitt einhvem dag
þingtímans.
Starfsskrá þingsins verður nánar auglýst síðar.
Söfnuðir, sem í félaginu eru, eru vinsamlega beðnir
að senda ársskýrlsur sínar til ritara félagsins, Dr. Sveins
Björnssonar í Árborg, og ársgjöld sín til féhirðis, Mr.
P. S. Pálssonar, 796 Banning St., Winnipeg, að minsta
kosti viku áður en þingið byrjar.
Guðm. Árnason, forseti
Sveinn E. Bjömsson, ritari
Á hvítasunnudag, 5. þ. m.
voru þessi ungmenni fermd af
séra Jakob Jónssyni í ísl. kirkj-
unni í Wynyard:
Sveinn Halldór Octavíus Eggert-
son.
Raymond Erling Jónasson
Franklin Erling Baldvinsson
Walter Baldvin Baldvinsson
William Jónasson
Emily Axdal
ur Ragnar Hjalmar. — Margir ,
.... __Verna Aldis Hallgnmsson
vmir og ættmgjar voru viðstadd- .T . a.___^_____________
ir og var athöfnin hin skemti-
legasta.
Karlakórinn
Meðlimir karlkórsins eru
beðnir að muna eftir söngæfing-
unni miðvikud. þann 15. júní n.
k. Það er mjög áríðandi að
allir mæti stundvíslega því æfð
verða lögin er sungin verða á
samkomunni 20. júní og enn-
fremur lög er sungin verða á fs-
lendingadaginn.
Stjómarnefndin.
CONCERT
Under the Auspices of
JÓN SIGURDSON CHAPTER I.O.D.E.
Federated Church Parlors
WEDNESDAY, JUNE 15 — 8.15 p.m.
•
Program will indude—
1. Flower Pageant — Twenty-six children in colorful
Costume
2. A Two-Act Comedy: “A Musical Baby Show” —
Soloists:
Cora Doig Vera Johannson
Lillian Baldwin Josephine Strain
Helen Lyons Carman Merritt
Wilfred Baldwin
Lilja Sigríður Goodmann.
* • *
DAGSKRÁ
KIRKJUWNGSINS
Lúterska er haldið verður í
ARGYLE-BYGÐ 17—21 JÚNÍ
FÖSTUDAGINN 17. JÚNf:
Kl. 8 e. h. Þingsetningarguðsþjónusta og altaris-
ganga í kirkjunni að Grund. Forseti prédikar.
LAUGARDAGINN 18. JúNf:
Kl. 9—12 f. h. Starfsfundur. Skýrslur embættis-
manna og fastanefnda.
Kl. 2—6 e. h. Starfsfundur.
Kl. 8 e. h. Ungmennamót.
SUNNUDAGINN 19. JÚNÍ:
Kl. 11 f. h. Guðsþjónustur á öllum kirkjum presta-
kallsins. Eftir hádegið mót undir beru lofti.
Kl. 8 e. h. Minningarathöfn í sambandi við fráfall
dr. Björns B. Jónssonar.
MÁNUDAGINN 20. JÚNf:
Kl. 9—12 f. h. Starfsfundur.
Kl. 2—6 e. h. Starfsfundur.
Kl. 8 e. h. Erindi: séra S. O. Thorlaksson um trúboð
á ensku. — Séra R. Marteinsson, íslenzkt erindi
um þriggja alda afmæli Svía og lúterskrar
kirkju í Ameríku.
ÞRIÐJUDAGINN 21. JÚNÍ:
Kl. 9—12 f. h. Starfsfundur. Kosning embættis-
manna og nefnda.
Kl. 2—6 e. h. Starfsfundur.
KI. 8 e. h. Trúmálafundur. Efni: “Sálgæzla”. Máls-
hefjandi séra Sigurður Ólafsson. Þingslit.
Þingið verður haldið í öllum kirkjum bygðarinnar.
Verður auglýst á þinginu hvernig skift verður fundum á
staðina. Minningar athöfnin verður í kirkjunni á Grund.
K. K. ólafsson, forseti
Árborg, 31. maí
Gjafir til Sumarheimilis ísl.
barna að Hnausa, Man.:
Kvenfél. “Berglind”,
Langruth, Man..........$10.00
Mrs. Svafa Egilsson,
Langruth, Man.......... 1.00
Innilegt þakklæti,
Emma von Renesse,
féhirðir
* * *
Friðrik P. Sigurðsson og Mr.
og Mrs. Kristinn A. Kristinsson
frá Geysir, Man., komu til bæj-
arins í gær. Mr. Kristinnsson
er á leiðinni til Rochester með
konu sína til lækninga.
» * *
Halldór Erlendsson bílasali frá
Árborg, Man., var staddur í bæn-
um í gær.
* * *
Margrét Vigfúsdóttir frá
Gimli, Man., var stödd í bænum
s. 1. mánudag.
* * *
Halldór Gíslason frá Leslie,
Sask., var staddur í bænum yfir
helgina. Hann var að fara norð-
ur til Winnipegosis, þar sem
hann mun dvelja í sumar.
• * •
Hljómleikar 17. júní
Nemendur R. H. Ragnars og
Bamasöngflokkur sá er hann
stjórnar heldur hljómleika í
Music and Arts” söngsalnum
föstud. þann 17. júní n. k. Pálmi
Pálmason aðstoðar með fiðluleik.
Aðgöngumiðar eru til sölu hjá
nemendum R. H. Ragnars, með-
limum barnasöngflokksins og
hjá Steind. Jakobssyni, West-
End Food Market.
* * *‘
Þórður Helagson frá Árborg
kom til bæjarins s. 1. mánudag
vestan frá hafi, en þangað fór
hann fyrir nokkru til að sjá sig
um og hafði í huga að setjast að
vestra. í Vancouver kvað hann
atvinnuleysi mikið og hefði það
ágerst síðan flutningar til Jap-
ans mínkuðu vegna hættunnar
af völdum stríðsins. Japanir
sækja eitthvað ennþá af vörum
sjálfir til Canada, en skip þeirra
eiga á hættu að verða sökt af ó-
vinum þeirra, Kínverjum og
Rússum. Mr. Helgason kvaðst
ekki ráðinn í því fyrst um sinn
að flytja vestur.
Pianokensla
R. H. RAGNAR
Kenslustofa:
Ste. 1 Mall Plaza
Phone 38175
Á stjóraarnefndarfundi Hins
Sameinaða Kirkjufélags fslend-
inga í Vesturheimi, sem haldinn
var í Winnipeg í gær voru þessir
utanbæjargestir staddir: Sveinn
Thorvaldson, M.B.E.; og séra
Eyjólfur Melan frá Riverton,
séra Guðmundur Áraason frá
Lundar, frú S. E. Björnsson frá
Árborg; auk þess sem til íhug-
unar var undirbúningur kirkju-
þingsins, var rætt um sumar-
heimilismálið.
* * •
Til bæjarins komu s. 1. föstu-
dag dr. og Mrs. S. E. Bjömsson
frá Árborg, Man., og Guttormur
skáld Guttormsson og frú hans
frá Riverton. Var ferðinni heit-
ið norður til Lundar til að taka
þátt í að skemta á samkomu er
þar var haldin til arðs fyrir sum-
arheimilið á Hnausum það kvöld.
f för með þeim norður slóst
prófessor Watson Kirkconnell, er
þátt tekur þar í að skemta.
* » *
Framkvæmdarnefnd sumar-
heimilisins á Hnausum hefir á-
kveðið að byrja starf sitt í
fyrstu viku júlí. Vill hún því
mælast til þess að umsóknir
verði sendar til Mrs. P. S. Páls-
son, 796 Banning St., Mrs. J.
B. Skaptason, 378 Maryland St.,
eða séra P. M. Pétursson, 640
Agnes St., frú Olavía Melan,
Riverton, Man., fyrir þ. 15. n.
mánaðar.
Fyrir hönd nefndarinnar,
E. J. Melan
Marja Björnsson
* * *
H. B. Skaftason, verzlunar-
maður frá Ashern, Man., var
staddur í bænum s. 1. mánudag.
• • •
Meðlimum Heimilisiðnaðarfé-
lagsins og vinum þeirra er boðið
að heimsækja Jordan’s Limited
(Oriental Rugs), 393 Portage
Ave., á föstudagskvöldið 17.
júní 1938, kl. 8.
Þar verða til sýnis austur-
lenzkar gólfábreiður, fagrar og
fágætar, en sýningunni fylgir
fróðleg og skemtileg skýring á
vefnaði þeirra og hinum sögu-
legu “munstrum” sem öll hafa
sérstaka þýðingu, einnig verður
útskýring á litum, sem líka hafa
sína sérstöku merkingu.
Deildin má þakka Mrs. Hannes
Líndal þetta góða tilboð, og það
er vonandi að sem flestar fé-
lagskonur og vinir færi sér það í
nyt.
* • •
S. 1. laugardag jarðaði séra
Eyjólfur J. Melan J. Clifford
Spring, tveggja mánaða gamalt
barn Mr. og Mrs. Walter Spring.
* * *
W. A. Arason frá Husawick,
Man., leit inn á skrifstofu Hkr.
s. 1. föstudag. Hann var ásamt
einum eða tveimur kunningjum
að fara til fiskiveiða norður í
ósa. Mr. Arason er nú 71 árs og
hefir í 51 ár stundað fiskiveiði á
hverju ári; mun hann því sá ís-
lendingur, er öllum hér hefir
lengur stundað veiðar. Hann
kvað nú þenna túr ekki geta
kallast að fara til fiskjar heldur
bara sér til skemtunar.
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG
ISLENDINGA
Forseti: Rögnv. Pétursson
45 Home St. Winnipeg, Man.
Allir fslendingar í Ameríku
ættu að heyra til
Þjóðræknisfélaginu
Ársgjald (þar með fylgir
Tímarit félagsins ókeypis)
$1.00, sendist fjármálarit-
ara Guðm. Levy, 251 Furby
St., Winnipeg, Man.
f ræðu Guðrúnar H. F. John-
son, sem birt var í síðasta tölu-
blaði er prentvilla; þar stendur:
séra Jón Þorláksson á Bægisá,
ljóðskáld íslendinga um og eftir
aldamótin 1800 — en á að vera:
þjóðskáld íslendinga o. s. frv.
• • »
Messuboð
Sr. Carl J. Olson flytur guðs-
þjónustu í Vatnabygðum n. k.
sunnudag, 12. júní, sem fylgir:
Bertdale, kl. 11 f. h. ífljóti tími)
Westside kl. 2 f. h. (fljóti tími)
Hólar kl. 4 e. h. (seini tími)
Elfros kl. 7.30 e. h. (seini tími)
Messurnar í Bertdale og Elfros
verða á ensku, en hinar á ís-
lenzku.
Allir eru boðnir og velkomnir.
* » »
Messugerð flytur séra Guðm.
P. Johnson sd. 12. júní í G. T.
húsinu við Sargent kl. 3 e. h.
Umræðuefni: “Gamli og nýi
sáttmálinn”. — Allir hjartanlega
velkomnir.
• * *
Séra K. K. ólafsson flytur
guðsþjónustur sem fylgir sd. 12.
júní:
Mary Hill 'kl. 11 f. h.
Lundar kl. 2 e. h.
Á jeftir guðþjón(U(stunni að
Lundar verður safnaðarfundur
til að kjósa erindreka á kirkju-
þing og annars er þörf kann að
vera á.
* » •
fslendingur ferst í bflslysi
Föstudaginn 27. maí fórst í
bílslysi skamt frá bænum Kit-
chener í Ontariofylki, Mr. Walt-
er Gillies, fyrrum húsgagna-
kaupmaður í Winnipeg, 43 ára
að aldri; var hann fæddur í Van-
couver, en fluttist til Winnipeg
1916, og rak hér um nokkurt
skeið húsgagnaverzlun undir
nafninu Gillies Furniture Com-
pany. Árið 1934 fluttist hann
til Kitchener og setti þar á fót
ljósmyndástofu. Mr. Gillies lætur
j eftir sig konu, Violet, fædd Mar-
teinsson, og tvær dætur, June og
Audrey. Einnig lifa hann for-
eldrar hans, þau Mr. og Mrs. E.
G. Gillies í New Westminster,
B. C., og þrjár systur, Mrs. R. L.
Stevenson, Vancouver, Mrs. W.
McGeachy, Winnipeg og Miss
Anna Gillies í Los Angeles, Cal.
Líkið var flutt til Winnipeg og
jarðsett í Elmwood grafreit á
miðvikudaginn var.
* » »
Árslokahátíð Jóns Bjarnason-
ar skóla var haldin í Fyrstu lút.
kirkjunni þ. 27. maí. Um fjöru-
tíu ungmenni útskrifuðust úr
ellefta og tólfta bekk í ár. Séra
Rúnólfur Marteinsson stýrði at-
höfninni en þátt tóku í henni
Hon. Griffiths heilsumálaráðh.
Manitobafylkis er flutti aðal
ræðu kveldsins, ungfrú Dorothy
Pálsson er söng einsöngva og
Lillian Griffiths, nemandi á
skólanum, er spilaði piano-sóló.
Ræður fluttu og David Slater
fyrir hönd ellefta bekkjar og
MESSUR og FUNDIR
I kirkju Sambandssafnaðar
Uessur: '— á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
SafnaOarnefndin: Punölr 1. föstu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Pundlr fyrats
m&nudagskveld i hverjum
mánuSl.
KvenfélagiB: Fundir annan þrlSJu-
dag hvers mánaSar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngæfingar: Islenzki söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskvöldi.
Enski söngflokkurinn &
hverju föstudagskvöldi.
Sunnudagaskólinn: — A hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
ULLAR TEPPI
TIL SÖLU
•
Verður til sýnis 12. júní
911 ASHBURN ST.
Sími 31722
Alice Hardisty fyrir hönd tólfta
bekkjar. ’Bardals bikarinn af-
henti Agnar Magnússon. Á hann
eru skráð á hverju ári nöfn
þeirra er skara fram úr í hverj-
um bekk. Þetta ár voru það í
níunda bekk Jón Adams, tíunda
Robert Macfarlane, ellefta David
Slater og í tólfta Alice Hardisty.
Nemendur skólans undir stjórn
Ragnar H. Ragnar sungu nokkur
lög. Snjólaug Sigurðsson lék á
orgelið. Athöfnin var í heild
sinni hin ánægjulegasta.
• * •
Spuming
Hvað borgar Landsbankinn á
fslandi háar rentur af peningum
sem lagðir eru þar inn? H. J.
SVAR: Vextir á Landsbankan-
um hafa til skamms tíma verið
4%, á sparisjóði, nema um því
styttri tíma sé ekki að ræða, sem
peningarnir eru á bankanum.
Wonderland
THEATRE
Fri. Sat. & Man. June 10, 11, 13
“HAPPY LANDING”
Don AMECHE—Sonja HENIE
“MISSING WITNESS”
Dick Purceli—Jean Dale
“SOS Coastguard”—Chapter 11
(Fri. night and Sat. Mat. only)
Sat. Matlnee—YoYo CONTEST
—Come and Win a Sweater—
Mon.—Country Store Nlght,
20 Prlzea
Tue. Wed. & Thu. June 14,15,16
Live, Love and Learn”
ROBERT MONTGOMERY
ROSALIND RUSSEL
“MADAME X”
Gladys George-Warren Willlam
Paramount News
Thursday—Country Store Nlght
20 Prlzes
» »
ARIÐANDI
« «
Gætið réttinda yðar, með
því að afla yður allra upp-
íýsinga um skaðabætur. —
The Claimant’s Fire Insur-
ance Guide er 123 bls., veit-
ir allar upplýsingar aðlút-
andi vátryggingar kröfum.
Skýr og áreiðanleg. Verð
75c. — Sendið pöntun til
“Hkr.” eða höf.
John A. MacLennan
154 Sherbrook St., Wpeg.
AMAZING VALUE
-Greatest Advertising Offer Ever Made-
A GUARANTEED SCIENTIFIC PUSH-UP
Permanent
WAVE
95
With Shampoo
& Finger Wave
Complete
This Offer Is Made by the Scientific as an Advertislng Special.
Never Before Such Values. Beautlful, Lastlng, Permanent Wavea.
Phone 24 862
SCIENTIFIC BEAUTY CULTURE
612 Power Bldg., Portage Ave. & Vaughan St., Winnipeg
%
Winnipeg’s Largest, Most Reliable, Best Equipped Beauty Salon