Heimskringla - 15.06.1938, Blaðsíða 1
THE PAR-T-DRINK
Good Anytime
In the 2-Glass Bottle ^ ®
SNÚIÐ A MELINU!
Komið loðfatnaði og vetrar-
kápum yðar til geymslu hjá
oss í mel og eldtryggum
skápum
SfMI 37111
AVENUE
DYERS and CLEANERS
LII. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 15. JÚNf 1938
NÚMER 37.
HELZTU FRÉTTIR
EINAR H. KVARAN Liberalar sigra
- RITHÖF. LÁTINN í Saskatchewan
Kínverjar fylgdu þar stefnu
sinni um að skilja Japönum ekki
annað eftir en “sviðna jörð”, og
eyðilögðu eins mikið og þeim
var unt, áður en þeir hurfu það-
an.
(Alþýðublaðið dagsett 21. maí
og sem Hkr. barst í hendur í gær,
flytur fregnina af láti Einars H.
Kvarans. Er fregnin hér endur-
prentuð ásamt ummælum blaðs-
ins er henni fylgdu um hinn
látna.)
Einar H. Kvaran rithöfundur
lézt í morgun (21. maí) að heim-
ili sínu, Sólvallagötu 3, kl. 6.30,
rúmlega 78 ára að aldri. Hann
hafði legið rúmfastur síðan á
páskum.
Einar H. Kvaran er fæddur í
Vallanesi 6. desember 1859. For-
eldrar hans voru séra Hjörleifur
Einarsson og fyrri kona hans
Guðlaug Egilsdóttir bónda Jóns-
sonar frá Gíslastöðum á Völlum.
Einar H. Kvaran ólst upp að
Blöndudalshólum í Húnavatns-
sýslu til 10 ára aldurs. Árið
1870 fékk sr. Hjörleifur faðir
hans Goðdali, og þar var heimili
Einars, þar til hann fór í skóla
1875.
Úr skóla útskrifaðist hann ár-
ið 1881 og sigldi hann um sum-
arið til Kaupmannahafnar og tók
að lesa stjórnfræði. Árið eftir
tók hann heimspekipróf.
Þar komst hann í kynni við
ýmsa landa sína, sem hneigðir
voru til bókmenta, svo sem Gest
Pálsson, Bertel E. Ó. Þorleifsson
og Hannes Hafstein. Allir þessir
félagar hneigðust mjög að kenn-
ingum Brandesar og gáfu þeir út
tímaritið Verðandi, sem kom út
vorið 1882, mest fyrir tilstilfi
Tryggva Gunnarssonar. — En
Verðandi varð skammlíf, og
efndu þeir félagar og fleiri til
útgáfu nýs rits, sem hét Heim-
dallur.
í því blaði átti Einar tvær sög-
ur: Sveinn káti og You are a
humbug, sir.
Á þessum árum kvæntist hann
danskri konu, Maren Mathilde
Petersen, en hún dó 1886. Árið
1887 kvæntist hann aftur Gíslínu
Gísladóttur frá Reykjaholti í
Mosfellssveit.
Sumarið 1885 fór Einar vest-
ur um haf og dvaldi þar næstu
10 ár. Haustið eftir að hann
kom vestur varð hann ritstjóri
Heimskringlu, en Heimskringla
hætti að koma út eftir þrjá mán-
uði. Var þá stofnað blaðið Lög-
berg, og varð Einar fyrsti rit-
stjóri þess.
Eftir að Einar kom að vestan,
fékst hann enn um skeið við
blaðamensku og tók um tíma all-
mikinn þátt í stjórnmáladeilum
þeirra tíma; en allmörg síðustu
árin dvaldi hann hér í Reykjavík
og gaf út tímaritið' Morgunn,
sem hann var ritstjóri að.
Fyrsta saga Einars, “Orgelið”,
kom út í Þjóðólfi 1880, en merki-
legast af æskuverkum hans mun
vera: “Hvorn eiðinn á eg að
rjúfa?” sem prentuð var á Eski-
firði 1880.
Einar H. Kvaran hefir skrifað
skáldsögur, Ijóð, leikrit og smá-
sögur, sem of langt yrði upp að
telja. En merkustu verk hans
munu verða talin Ofurefli, Gull,
Sálin vaknar, Sambýlið og Sög-
ur Ranveigár; en einhver fræg-
&sta smásaga hans er “Vonir”,
sem Georg Brandes skrifaði lof-
samlegan ritdóm um og gerði
höfundinn þektan um öll Norð-
Urlönd.
Með Einari H. Kvaran er hnig-
iun í valinn einhver allra merk-
®fti rithöfundur þjóðarinnar á
síðustu tímum.—Alþbl.
Liberal stjórnin í Saskatchew-
an var endurkosin í fylkiskosn-
ingunum sem fóru fram 8. júní.
Sigur hennar er ekki út af eins
mikill og í kosningunum 1934, er
hún hlaut 50 þingsæti af 55
alls. Nú hefir hún 36 þingsæti,
af 52 alls. En við þessa tölu
hennar geta bæst 2 sæti, sem
ókosið er í. Næstir eru C.C.F.
með 10 þingmenn, þá Social Cre-
dit-sinnar 2, Union Progr^sive 1
og óháður 1.
Tala atkvæða hvers flokks um
sig er ekki til fullnustu kunn.
Frá 300 kjörstöðum með að lík-
indum 15,000 atkvæði, hefir ekki
heyrst þegar þetta er skrifað. —
En eftirfarandi tölur nægja tii
að sýna hlutföll atkvæða hjá
f lokkunum:
Af 412,930 atkvæðum, hlutu
liberalar 186,869; .C.F. 75,000;
Social Credit 63,700; íhaldsmenn
52,361 og þrír eða fjórir smærri
flokkar afganginn. Öll atkvæði
andstæðinga stjórnarinnar verða
því um 226,000 eða um 40 þús-
und atkvæði fleiri en stjómar-
innar. Stjórnin hefir því ekki
helming atkvæða, þó þrjá fjórðu
þingmannasæta hlyti.
Ráðgjafar stjórnarinnar náðu
allir kosningu. Og eiginlega fór
stjómin mikla sigurför í kosn-
ingunum.
Óskapa fjöldi þingmannaefn-
anna tapaði veðfé sínu. Mesta
hrakför hlutu social credit sinn-
ar þar; veðfé sínu töpuðu 17 af
þeim. Koma íhaldsmenn næstir
þeim með 9.
Einn fslendingur, Ásmundur
Loptson, er sótti í Saltcoats, tap-
aði kosningu. í því kjördæmi
var C. C. F. sinni kosinn.
“Burt með erlend skip”
Frá Shanghai í Kína var símað
s. 1. laugardag, að Japanir hefðu
varið erlend skip á Yangtse-ánni
við því, að þeir ætluðu sér að
sækja upp ána alla leið til Han-
kow, stjórnarsetursins í Kína.
Til góðra vara báðu þeir brezk,
bandarísk og frönsk skip, að
hafa sig burtu úr leið þeirra.
Litlu síðar lögðu 40 japönsk
herskip af stað upp eftir ánni.
Voru þá öll útlend skip horfin af
henni milli Wuhu og Kiukiang.
Þau höfðu hlýtt Japönum. Wuhu
er um 326 mílur frá Hankow, en
Kiukiang 120 mílur burtu þaðan.
Fyrir japönsku skipunum sigldi
fánaskip Japana, er Izumo heit-
ir og sem fyrir flotanum sigldi er
árásin var hafin á Shanghai á
s. 1. ári
Chiang Kai-Shek yfjrmaður
Kínverska hersins, kvað hafa
hert á herskyldulögunum. Ná
þau nú jafnt til allra á vissum
aldri hárra og lágra. Er ætlað,
að með því hafi Chiang Kai-Shek
ætlað sér að koma til leiðar, að
jafnt gengi yfir alla, en af því
fór orð, að talsvert af ungum
heldrimanna sonum væru í
Shanghai, hefðu þar viðskifti
með höndum, sem um ekkert
væri að ræða, og skemtu sér á
dönsum um nætur.
Frá fylki einu í suðvestur
hluta Kína, er Szechuan heitir,
kom mikið lið nýlega til Han-
kow; er sagt að það lið hafi verið
úr hópi 100,000 hermanna, er
þaðan sé bráðlega von.
Rigning tafði innrás Japana
um helgina á Ch&ngchow, sem
nú þegar er í rústum, bæði af
sprengingum og svo hinu, að
í Saichuen, í útjaðri borgar-
innar Canton, köstuðu fjögur
japönsk flugskip heilum farmi af
sprengjum á raforkustöð og
vatnsleiðslu miðstöðina. Var
þarna ekkert um vörn. Sáu
Canton-búar þetta og varð ekki
um sel því sprengjum hefir rignt
yfir þá borg í fullar tvær vikur
og þúsundir manna verið drepnir
og særðir.
Eden gagnrýnir
stefnu Chamberlains
í ræðu sem Anthony Eden hélt
í Leamington á Englandi, s. 1.
laugardagskv., gagnrýndi hann
mjög ákveðið stefnu Chamber-
lains í utanríkismálunum. Sagði
hann nú þegar á daginn komið,
að með því að vægja fyrir dik-
tatórunum, hefði þeim vaxið ás-
megin og nú væru þeir komnir í
þann ham, að stríði yrði ekki til
lengdar afstýrt, ef Bretland tæki
ekki fastar í taumana, en það nú
gerði. Aðeins með því að Bret-
land sýndi að það væri ákveðið í
að verja lýðræðið, yrði stríð
umflúið. Chamberlain hefði sagt,
að miðlunarvegur sinn hefði
bjargað heiminum frá stríði;
hið gagnstæða hefði átt sér stað.
Ef Bretland hefði fyrir sex mán-
uðum, tekið upp aðra stefnu en
það nú fylgir væri friðurinn
tryggari nú en hann er.
Sjómenn Breta
heimta hefnd
Um sextíu þúsund sjómenn á
Englandi hafa krafist þess, að
Bretar hefndu árásanna, sem lið
Francos hefir hafið á brezk skip
á Miðjarðarhafinu. Vilja þeir að
Bretar hefji sprengju-árásir á
hafnbæi þá er Franco ræður yfir.
Telja það eina ráðið til að fá
Franco til að láta brezk skip af-
skiftalaus.
Síðan byltingin á Spáni hófst,
hefir lið Francos ráðist á 60
brezk skip með sprengj u-kasti
og drepið um 78 brezka menn.
Og þetta fer sí og æ í vöxt.
Frönsk skip hafa svipaða sögu
að segja. ítalir hafa ráðist á
fjölda skipa þeirra. Er sagt, að
Daladier forsætisráðh. Frakka,
sé ekki sízt þessa vegna frá því
horfinn að gera nokkra samn-
inga við ítali.
Ræðir blaðið Times í Lundún-
um mál þetta all-ítarlega og tel-
ur það svo alvarlegt, að Breta-
stjórn geti ekki lengur horft
hlutlaus á þennan leik.
LISTAMAÐUR STADDUR
Á MOUNTAIN
Mountain, N. D.,
11.júní1938
Ritstj. Hkr.:
Mr. Ed. Thorlakson og frú
hans frá Chicago eru nú sem
stendur í heimsókn á Mountain
hjá bróður Mrs. Thorlakson, V.
G. Guðmundson. Mr. Thorlakson
hefir verið á Northwestern Uni-
versity síðastliðið ár að stúdera
“dramatic art”. Eins og les-
endum íslenzku blaðanna er
kunnugt, hefir Mr. Thorlakson
fengist við leikritasmíð og hlotið
mikið lof fyrir verk sín í þeirri
grein. Nú hefir hann verið að
afla sér meiri fræðslu á því sviði
og einnig í framsögn (imperson-
ation, interpretation and dra-
matic reading) á bæði ljóðum og
óbundnu máli.
Þjóðræknisdeildin “Báran”
hefir verið svo heppin að fá Mr.
Thorlakson til að halda samkomu
undir sinni umsjón í samkomu-
húsinu á Mountain að kveldi
þess 24. júní, þar sem aðal pró-
grammið verður upplestur á
skáldskap í bundnu og óbundnu
máli, þar á meðal kaflar úr hans
eigin leikriti ‘Kiartan of Iceland.’
Fyrsti partur af prógrammi hans
verður “characterizations of
American types”; síðan les hann
kvæði á íslenzku og ensku. Mr.
Thorlakson hefir haldið slíkar
samkomur á nokkrum stöðum í
vor og haft góða aðsókn, þar á
meðal hjá íslenzka félaginu Vísi
í Chicago.
Um næstu mánaðarmót fara
Mr. Thorlakson og frú hans aust-
ur til St. John, New Brunswick,
þar sem þau ætla að kenna við
sumar skólann. Mr. Thorlakson
býst við að halda áfram námi við
Northwestern University í Evan-
ston á komandi hausti.
Allir ungir og gamlir Dakota
íslendingar ættu að koma til að
hlusta á þennan íslenzka lista-
mann á meðan tækifæri býðst.
Við höfum mist Ólaf Eggertson
og Bjarni skopi er farinn frá
okkur, en hér höfum við þriðja
manninn sem getur tekið þeirra
pláss í leiklist.
Vinsamlegast,
Th. Thorfinnson
PRÓF. KIRKCONELL
ÁLUNDAR
Hinn nafnkunni ljóðaþýðari
og tungumálagarpur, prófessor
Watson Kirkconnell heimsótti
Lundar þann 3. þ. m. í för með
honum voru Guttormur skáld
Gutormsson, dr. Sveinn Björns-
son og konur þeirra. Hafði ver-
ið efnt til samkomu á Lundar
' þennan dag til arðs fyrir Sumar-
heimili barna á Hnausum. Sam-
koman var vel sótt, og höfðu
menn hina mestu ánægju af þvi
að hlusta á gestina.
Prófessor Kirkconnell flutti á-
gætt erindi, sem hann nefndi
“Icelandic Contribution to Can-
adian Literature”. Talaði hann
einkum um þann hluta ljóðagerð-
ar vestur-íslenzkra skálda, sem
sprottinn eru pp úr hérlendum
jarðvegi og ekki snertir fsland
eða minningar um það. Las
hann þýðingar af kvæðum eftir
Stephan G. Stephansson, Gutt-
orm Guttormson og Einar Pál
Jónsson, og benti um leið á sér-
kenni þessara skálda, hvers um
sig. Vakti þýðing hans á kvæð-
inu “Sandy Bar” eftir Guttorm
sérstaka eftirtekt allra, er á
hann hlustuðu. Auk þess las
hann langt frumsamið kvæði eft-
ir sjálfan sig. Er það saga í
ljóðum, sem fjallar um efni, sem
tekið er úr lífi Vestur-fslendinga
— yfirsjónir, ástir og baráttu
fyrir lífinu við ís og storma á
Winnipeg-vatni. Hefir próf.
Kirkconnell orkt nokkur slík
kvæði, sem birst hafa í Winni-
peg blaðinu Free Press og ýms-
um tímaritum. Það þarf ekki
að benda á það, hvílíkur afburða-
maður próf. Kirkconnell er sem
ljóðaþýðari; hróður hans hefir
flogið um heim allan að heita
má. Á þessu sumri fer hann
til Ungverjalands og flytur fyr-
irlestra við háskóla þar. Hann
hefir allra mann mest og bezt
vakið eftirtekt enskumælandi
fólks á skáldskap útlendinganna
hér í landi, ekki sízt íslendinga;
og er ærin ástæða til að vera
honum þakklátur fyrir það.
Guttormur Guttormsson las
nokkur kvæði eftir sjálfan sig.
Hvergi nýtur hin oft bitra en þó
Nýstárleg samkoma haldin af
Islendingum á Osborne
Stadium n. k. mánudag
Samkoman sem stjórnarnefnd
sumarheimilis barna á Hnausum
efnir til næstkomandi mánudag
,á Osborne Stadium í Winnipeg,
er hreinasta nýung í skemtana-
lífi íslendinga og verðskuldar að
vera sótt af íslendingum nær og
fjær.
Osborne Stadium er einn feg-
ursti og fullkomnasti íþróttavöll-
ur þessa bæjar. Þar er “Grand
Stand” með sætum fyrir fleiri
þúsund manns og góðu útsýni
frá yfir víðáttumikla eggslétta
hvanngræna grasbala, með lauf-
skúfuðum trjám stungið niður
hér og þar, dans og ræðupalli,
akvegum og gangbrautum. Þar
er svo vel lýst, að á kvöldum er
þar alt uppljómað, sem um há-
bjartan dag væri. f einu orði
sagt: ákjósanlegasti staður að
koma saman á.
Það sem til mestrar nýungar
má ef til vill telja af því sem
þarna verður til skemtana, eru
þjóðdansar, sem sýndir verða af
tíu þjóðflokkum. Keppir hver
þjóðin við aðra í fegurðardansi
og má af því búast við mikilli
skemtun. önnur góð skemtun er
íslenzk glíma, er þarna verður
sýnd. Ennfremur gefst þarna
að líta leikfimi og íþróttir í ótal
myndum. Þá sýna og bogmenn
góðir list sína. Og loks verður
dansað af öllum á grasigróinni
grundinni.
Með þessu öllu saman og ótal
fleiru sem vér nennum ekki að
nefna, syngur svo Karlakór ís-
lendinga í Winnipeg á samkom-
unni, undir stjórn Ragnars H.
Ragnars.
Þessi útiskemtun getur orðið
ágætt íslendinga-mót, ef landar
rækja eins og óskandi er að
sækja samkomuna. Og þegar
þess er gætt ennfremur, að hún
er haldin í þarfir eins bezta mál-
efnisins, sem íslendingar hér
hafa unnið að, ætti það ekki sízt
að veræ löndum vorum hvöt til
að sækja hana.
Já, en hvað kostar nú þetta
alt, munu menn spyrja? Inn-
gangseyrir er 25 cents. Og þar
kemur nú ennfremur nokkuð til
greina. Við innganginn fá menn
miða með einhverri tölu á, sem
ef hepni er með getur meint
nokkuð. Forkunnar fagurt og
dýrt radio (viktökutæki) hefir
verið gefið sem “Door-prize” og
sem dregið verður um. Svari
talan á þínum eða mínum miða
til tölunnar á miðanum sem
dreginn er, hefir betur verið
farið en heima setið. Hver veit
með hverjum lukkan verður
þetta kvöld?
Eitt er víst. Samkoma þessi
er nýstárleg og þeir sem hana
sækja, mun allir sem einn af því
hafa ærna skemtun.
létta fyndni Guttorms sín betur
en í smákvæðum, eins og kvæð-
inú um nautið, sem tryldist, er
það sá æskulýðinn koma út úr
skólanum, sem var eitt af kvæð-
unum, sem hann las. í kvæðum
hans eins og því er sárbeitt á-
deila, sem er sett fram með létt-
leika og lipurð, sem brýtur af
henni sárasta broddinn. Það er
vel farið að Guttormi gefst nú
kostur á að sjá ísland og kynn-
ast mönnum þar. Hann er einn
af þeim, sem hefir orðið að vera
of bundinn við heimaþúfuna, en
sér þó vítt of heima og rýnir
djúpt í hugskot manna.
Frú Marja Björnsson sagði frá
sumarheimilinu og starfi þess.
Henni er það líka kunnast; því
að áhugi hennar fyrir stofnun
þess má heita dæmafár og
starfsþrek hennar í þarfir þeirra
mála, sem hún tekur að sér má
kallast óbilandi. Ræða sú, sem
hún hélt þarna, mun birtast á
öðrum stað í blaðinu, og er því
ekki þörf á að orðlengja um
hana hér. Hún ber með sér,
hversu hjartfólgið þetta mál er
henni. Gott verk skal með góðu
gjaldast; og ekkert er henni kær-
ara en að fólk styðji eftir megni
þetta göfuga fyrirtæki, sem hún
hefir lagt svo mikið í sölurnar
fyrir.
Karlakór Lundar, undir stjórn
Vigfúsar Guttormssonar, skemti
með söng. Er hann eflaust einn
með beztu smábæjar söngflokk-
um; enda er Vigfús ágætur söng-
stjóri og mjög áhugasamur um
þá list. Tvær ungar stúlkur,
Kristín Oddsson og Margrét
Arnfinnsson sungu tvö eða þrjú
lög mjög laglega. Er gleðilegt
að sjá að allmargt ungt fólk
meðal Vestur-íslendinga sem vill
leggja rækt við sönglistina, og
ætti því að koma hvatning frá
þeim eldri og hjálp til þess, eftir
því sem föng eru framast tiL
G. Á.
STÖKUR
Upp við vorsins væra hljóm
vakna blóm á túnum,
fuglar sínum sæta róm
syngja á fjalla brúnum.
Krónu bæra blöðin smá
blikar döggin hreina,
úfin hamast aldan blá
upp við fjöru steina.
Blómin anga, brosir hlíð,
blær um vanga strýkur,
Sólin dranga signir blíð
sær um tanga ríkur.
Magnús I. Þór,
(frá þórólfsstöðum á fsl.)
Til Heimskringlu
Oft þú sýnir andans ment og
yfirburði,
lesendum — í óð og orði —
enginn stendur þér á sporði.
M. I. Þ.
ÍSLANDS-FRÉTTIR
Rafmagnið frá soginu
til Hafnarfjarðar
Á laugardaginn fékk fyrsta
heimilið í Hafnarfirði rafmagn
frá Soginu.
Er nú unnið af kappi að því
að tengja við húsin, en ekki er
hægt að tengja nema nokkur hús
í einu.
Ríkissjóður hefir eins og kunn-
ugt er, lagt leiðslurnar til Vífils-
staða, en Reykjavík hefir kost-
að lagningu línunnar frá Vífils-
stöðum til Hafnarfjarðar. Hafn-
arfjarðarbær kostar hins vegar
allar leiðslur innanbæjar.
Línan suður er byrjun á línu-
lagningu til þorpanna á Suður-
nesjum.—Alþbl. 23. maí.
* * *
Unnið er nú að stækkun út-
varpsstöðvarinnar í Reykjavík
og er búist við að henni verði
lokið í júlí, og að stöðin taki þá
til starfa með margfaldri orku.
—Dagur, 12. maí.