Heimskringla - 15.06.1938, Blaðsíða 6

Heimskringla - 15.06.1938, Blaðsíða 6
6. SÍÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 15. JÚNÍ 1938 í KAUPSTAÐ Eftir Gouverneur Morris I. Dan Silversmith var hagur á silfur og fór með kukl til lækninga. Hann lagði upp í birt- ingu með tveim hestum fyrir léttvagni, smáum og harðgerðum, hafði á höfðinu hatt með lág- um kolli og víðum börðum, dökk gleraugu, í bláum strigabuxum, upplituðum, og skóm heima gerðum, með stóran silfurhnapp, sinn á hverri rist. Um vinstra úlnlið var baugur úr svörtu skinni, vel gerður, með stórum turkis steini," bláum og dröfnóttum. Um hálsinn fimmföld festi af sömu steinum. Flögur af álíka steinum, í laginu eins og mannsiljar, héngu sín í hvoru eyra. Hann kom á höndlunar plássið og batt hrossin við gerðið áður en opnað var og sat hreyfingarlaus á bekk undir búðarvegg þegar Mill Hombres lauk upp. Mill kastaði á hann kveðju sem Dan tók undir. Mill Hombres var spánskur að kyni og geð- menni mikið, og barðið á hans brennvínshatti rétt skygði á brodd hans fjölreynda nefs þegar sól var í hádegisstað. Hann hafði dvalið með Indíánum alla sína æfi, þekti þá að mörgu, grunaði að ýmsu. Honum datt ekki í hug að heilsa Dan með nafni né spyrja um erindið. Mill Hombres (þúsund manns) hafði margt annað og betra að gera eins og nafn hans bendir til. Húsbóndinn — “Mr. A. B. Brown, esquire” kallaði Mill hann, þegar hann var kendur og til í þras — var á ferðalagi til ræðuhalda um vinnubrögð Indíána. Mrs. Mill Hombres var í fjarlægri borg að heimsækja ömmu sína og þrjár telpur Mills, Ramona, Dolores og Patricia höfðu kíghósta; inntöku handa þeim fékk hann hjá Hollending sem boðaði Guðsríki og læknaði veika í þeim sveitum, líka salvi að bera á brjóstin. Vélin sem átti að dæla vatni djúpt úr iðrum jarðar, hafði fengið eitt ólundarkaistið, ssú líka sem átti að skapa orku til að lýsa þegar dimt var. Á vinnukonuna var kominn gáll og elda- buskuna mátti til að hafa góða með lofsorðum og nógum eldivið. Mrs. Mill Hombres og vinnu- konan bjuggu vanalega um, en nú var konan í burtu og vinnukindin fór hjá sér; verkamenn á teinahrygg voru í kosti þar sem hún hafði gengið um beina í matsölubúð í Mexico. Einn þeirra kleip hana í kálfann, í fyrsta sinnið sem hún bar á borð fyrir þá, en hún braut disk á höfði hans, upp frá því fóru þeirra viðskifti hraðvaxandi og nú voru þau farin að tala um að leggja fyrir í því skyni að taka saman. Svo Mill Hombres varð að búa um og gerði það fljótt og vel, örva ástveika vinnukonu með glettum og gamni, selja bifreiðum gas og'olíu, afhenda vörur við búðardiskinn og svara spurn- ingum. Þrír gestir voru í heimahúsinu, pró- fessorar að rannsaka háttu Indíána og gera úr því hátíðlegt, jafnvel heilagt starf. öxull hafði brotnað í vagni þeirra, svo þeir voru miður færir til langferða þangað til sá skaði var bætt- ur, gátu ekki sótt til rústa né sorphauga né gerst boðflennur á dönsum né snuðrað um heimahagi hinna hörundsrauðu. Þeir komu ekki öðru við en að bíða, elta Mill Hombres á röndum og spyrja hann spjörunum úr. “Til að mynda galdrakarlinn þarna,” sagði einn prófessorinn. “Hann er kominn óra- leið til að sækja vatn á tveim kvartilum. Af hverju lætur hann ekki á þau og fer svo heim? Af hverju gerir hann ekki annað en sitja fyrir og glápa? Eg held fram þeirri kenningu að vestrænir kuklarar hafi sama lag og heilagir menn í Austurlöndum, kunni að gera því hann sem í undirvitund felst. Líklegast er það bara kroppur Dans sem hreykir sér þarna í horninu meðan andinn fer um ýmsa heima. Hvað heldur þú, Mill Hombres?” Mill Hombres vissi vel hvar andi Dans var >á stundina: í búðarhyllunum hjá tinbaukum með ávöxtum, tómötum og nautaketi. Dan starfaði með öðrum orðnm að því sem kallað er glugga-kaupskapur og þó hann bæri drjúgan auð á hálsi og í eyrum, á úlnliðum og á öðrum hvorum fingri, þá var meir en líklegt að hann skorti skotsilfur. En Mill leitaði lags og ók seglum eftir vindi. Kuklarar voru fyrir sig. Þeim tókst oft merki- lega vel. Einu sinni meiddi Mill sig í öklanum í viðureign við naut, þá kom kuklari og söng yfir öklanum og þá batnaði. Mill gat ekki um, að hann sjálfur varð svo feginn því, að nokkur skyldi vilja að honum skánaði í öklanum, að hann hrestist allur saman og öklinn líka, gat heldur ekki um, að rétt á eftir versnaði honum í öklanum. Hann fór bil beggja. Honum þótti þrófessorar yfirleitt áþekkir varnarlausum, rúnum kindum sem þyrftu skjól. Af þessu svar- aði hann svo: “Það kann svo að vera. Máske þeir geti setið kyrrir einhverstaðar með einhverjum sálarparti og einhver annar partur skjótist eitthvað ann- að. Eg get varla um það sagt.” Með það skaust hann eitthvað annað þar sem meiri þörf var á þjónustu. Prófessorarnir kinkuðu kolli og töluðu lágt: “Það má reiða sig á að Mill Hombres veit hvað hann fer með. Hann fæddist meðal Indíána og ólst þar upp. Hann hefir lifað þeirra lífi, veitt með þeim, étið hjá þeim---” Þeir stöðvuðu talið, sögðu ekki það sem þeim þótti vera klúrt og gæti misskilist. II. Andi Dans Silversmiths sveimaði milli tveggja tinbauka, í öðrum voru ávextir, tómöt- ur í hinum, djarflega og fjörlega, hvarf aftur í kropp Dans Silversmiths um marglitar sykur- kúlur í glerbrúsa á búðarborðinu og hugsaði svo: “Þeir sem eru of fljótráðir fá aldrei hvað þeir vilja.” Þar næst stóð hann upp og færði sig að glerstokk þar sem silfurgripir voru til sýnis, gerðir forkunnar vel, af Indíánum. “Hann er útfarinn og dverghagur,’’ sagði einn prófessorinn í hálfum hljóðum. “Gaman væri að vita hvernig hann dæmir um þessa sýnisgripi.” í stokknum voru tveir armbaugar, gerðir af Dan sjálfum, settir blágrænum steinum og á þessa gripi horfði hann og leit aldrei af þeim í fulla klukkustund, settist svo sem áður. Von bráðar kom annar og settist hjá honum, sá var líka kuklari, yngri en hinn og ekki eins skraut- ,, lega búinn. Þeir töluðu ekki saman, en ef Mill Hombres hefði verið spurður hvernig stæði á þeirri furðu, þá er til að hann hefði geti uppá, að þeir hefðu ekki neitt til að tala saman um. Mill þaut út að dreypa á langferða bíl. — Skömmu síðar kom ung ferðakona, vissi af að hún var lagleg og hárið litfagurt, og stóð snöggvast við í dyrunum til frekari áhrifa, áður hún gengi í búðina sem var dimm. Áhrifin voru önnur en hún ætlaðist til. Meðan hún stóð þar, datt engum í hug að líta á hennar fríða og sérglaða andlit og þokkalega hár, vegna þess að annað var að sjá. Kuklarinn ungi sagði eitthvað við sinn sessunaut, Dan hnussaði við og svaraði stutt- lega á sömu tungu því sem útlegst: “bjúg- leggjuð.” Kvenmaðurinn gekk í búðina og þá gáðu þeir hennar ekki, hvorki Mill Hombres, prófess- orarnir né hinir. Hún keypti þrjá pela úr ísbúr- inu, sneri burt, náði um eitt augnablik, meðan hún gekk um dyrnar og horfði við sólarbáli auðnarinnar, þeirri athygli sem hún hafði mist, hvarf væntanlega til samferðafólksins í bif- reiðinni og er úr sögunni. En hún minti Dan á aðra sem hann hafði séð á leiðinni um morguninn, sú var líka bleik á hörund, nokkru eldri samt og átti tvö börn fyrir víst. Dan féll hún vel í geð, hún glápti ekki á hann þegar hann ók hjá, og kallaði ekki á krakkana að halda um þá, af gamalli for- feðra hræðslu. Þau stóðu á sandorpnum grjót- hól, sem var rúst af manna bústað, en því um líkar dysjar mátti víða sjá á þeim slóðum. Þær voru allar merktar á uppdráttum fornfræðinga og í þær mundu prófessorar grafa og finna veggrústir og mannabein og krúsir af brendum leir, steinhamra og máske sörvi af skeljum eða grænbláum turkis steinum. Allar lifandi menjar íbúanna voru gersam- lega horfnar fyrir löngu, en sumt af siðum þeirra hélzt enn með núlifandi Indíánum, svo sem að hafa dyr móti austri, og um förutíu fet frá þeim til suðaustur var ösku fleygt og úr- gangi og jafnvel lík jarðsett. Á dysinni stóð konan með börnunum en á brautinni undir haugnum gat að líta fornfáleg- an bíl og lítinn með bögglum í og slitnum tösk- um, hann stóð á þrem útblásnum togleðurs- belgjum en einn var tómur, undan bílnum teygði karlmaður leggina og sneri upp tánum á óburst- uðum skóm. “Meira rusl í þann gamla sorphaug,” hugs- aði Dan á sínu tungumáli, fór sína leið og undr- aðist hvar fornmenn hefðu haft vatnsból, hann vissi fyrir víst að hvergi var vatn innan 14 mílna frá rústinni, nema þá sjaldan rigndi. Við þá vatnsbóla gátu glímdu prófessor- arnir líka. Þar um hugsuðu sömuleiðis Mr. og Mrs. Bigelow, þau leigðu kothúsið og voru frá Boston, komu í búðina öðru hvoru, því þetta var bréfhirðing, að senda bréf eða sækja, lestin kom um hádegið og hægði á sér þegar hún fór hjá. Um vatnsbóla launungina hugsuðu Bige- low hjónin af því prófessoramir glímdu við hana. Fjögra ára vera í Harvard hafði ekki unnið á þeirri miklu mentun sem Sam Bigelow hafði meðferðis þegar hann kom þangað og í þeirri stofnun hafði hann numið og notið mikillar ánægju af a gera gys að prófessorum. Molly Bigelow, af Cabot-ætt, sagði “bot” en ekki “bought”, “cot” en ekki “caught” og var ekki upp yfir það hafin að örva og hvetja sinn egtamann til þessarar íþróttar. Prófessorarnir gerðu bæði að öfunda og dást að þessum ungu hjónum, voru smeykir við þau líka. Einn prófessor gat aldrei vitað hvenær einn Bigelow talaði í alvöru eða gerði sér gaman í laumi. Þetta kom fram þegar Sam Bigelow lýsti kenningunni um vatnsleysu mannkynið. “Er það ekki satt, Professor Brown,” innti hann eitt sinn við kveldborðið, “að cocoanut rottan geti lokið sínu fyrirsetta foreyðingar verki á sex mánuðum, án þess að drekka eða jafnvel skírskota til aqua pura? Nú jæja, get- um við þá ekki hugsað okkur mannkyn sem gat lifað án vatns í langa tíma? Lítum á jurt- irnar. Tökum Succulents (safajurtir) til dæm- is.” “Succulents ?” innti prófessor Torridge, sem var ókunnugur grasafræðum. “Safajurtir,” hélt sá ungi Bigelow áfram, “þær hafa stofna og blöð öðru vísi en aðrar plöntur, þykk og belgjum lík, taka vatnið úr loftinu. Allir stofnarnir vatnsból, blöðin vatns- geymar. Nú höfum við mannskepnuna sem er kend við Heidelberg, aðra kenda við Neander- thaí og enn eina, til að mynda, kenda við Tasmaníu------” Hér þagnaði hann litla stund til að auka orðum sínum áhrif og prófessorarnir, sem höfðu aldrei heyrt Tasmaníu mannsins getið, settu á sig nafnið til að gá að honum í bókum. “Tas- maníu maðurinn,” mælti Prófessor Torridge fyrir munni sér. “Svo er við höfum Tasmaníu manninn,” — sá ungi Bigelow klappaði nú kreftum hnefa á borðið — “hvers vegna ekki New Mexico mann- inn, Útsuðursmanninn, köllum hann hvað sem á dynur Safa-manninn ?” Alt að þessu héldu þeir lærðu menn að Bigelow væri að útlista bærilegt eða ef til vill nýtilegt undirskot fræða. Því ekki mannkyn sem gæti verið vatnslaust æði lengi ? Þá tilgátu mátti sanna eða hrekja með rökum og hver gat vitað nema þau rök kynnu að finnast á þessum slóðum? En þegar Bigelow fór að reifa tilgátu sína, sáu þeir að hann var annaðhvort að leggja alvarlegt mál við hégóma ellegar var tæplega með réttu ráði. “Við höfum bein hans,” sagði Bigelow, “potta, hamra, tengur, skrautgripi, stokka og steina. Ennfremur litlar leifar af vefnaði hans og ilskóm. En hvað um hörund hans og hold? Hafa nokkrar leifar af húð hans eða hemingum fundist? Og ef svo er, er það ekki alt svo skrælnað og skorpnað að öll sönn og augljós safamerki eru horfin? Eg hugsa mér Safa- manninn blending af Homo sapiens þeirrar ald- ar og hjólabelg úr togleðri---” Og nú gerðust prófessorar daprir, þeir skildu að skens var, þrennar varir kipruðust, þetta var úr hófi. “Cactus-maðuriim líktist nafna feínum, hafði þykt skinn og hjarta úr auðnar gulli — úr vatni, svo eg tilgreini nákvæmlega, kveið aðeins einu, eins og Cactus-jurtin, að vera stungin og sviftur vatni. Hann var þess vegna, hlýtur að hafa verið — hryllilega þyrnum þak- inn-----” “Þinn Cactus karl,” mælti prófessor Ben- son þurlega, “virðist hafa haft gerðar í bezta lagi til að lifa á vatnsleysu viðavangi. Hverja grein viltu þá gera fyrir hvarfi hans ?” Prófessor Sparks hnykti á með orðatiltæki úr þyzkri vísinda mállýzku. Bigelow svaraði hátt og snjalt. “Það voru fuglamir. Nú veit eg! Nú sé eg! Fuglarnir voru það!” Mikið gat oltið upp úr piltinum, alt annað en snoturlegt. Samt, þó gat enginn að sér gert að finna til þokka hans. “Þegar Cactus maðurinn stóð upp á sitt bezta, höfðu fuglar stutt nef og fætur við- kvæma. En þeir hugsuðu fyrir sér og áður langt leið gerðu fuglar það bragð sem voru sízt nefstuttir og sízt sárfættir að taka saman við maka sér líka að þessu leyti. Sá góði gamli karl Úrval var að verki. Þeir hæfustu áttu að vera lífseigastir. Þegar stundir liðu þroskaðist fuglakyn með skóleðurs fætur og fetlöng nef. Þeim var fært að hossa sér hvar sem var á Cactus manni, Cactus konu, Cactus krakka, stinga göt á þau og hleypa vatni út, þar til þeim fór sem Niobe, þau þutu hljóðandi um allar jarðir og tárfellandi um hverja holu. Þau þomuðu fljótt og fórust svo.” “Hvað um fuglana?” innti prófessor Ben- son næstum stygglega. “Á mínu ferðalagi um New Mexico, Arizona, Colorado Utah og Coa- chella Valley, hefir mér aldrei tekist að finna neinn fugl líkan þeirri tegund sem þú hefir sagt okkur deili á.” “Fuglamir!” mælti Bigelow í vorkunnar róm. “Ó vesalings fuglamir! Þú skilur það, herra prófessor, að jafnvel á þeirri fornu öld þurfti sterk bein til að þola formikið af gæðum heimsins. Vatn var það sem fuglarnir sóttust eftir. Vatn var það sem þeir fengu. Þeir fengu of mikið af vatni og allir druknuðu.” Eri þeim Dan og Sam féll í rauninni vel saman. Þau fríðu, ungu og farsælu hjón frá Boston áttu í eiriu sammerkt við þennan um- rædda Indíána af Navaho kynkvísl. Þau töluðu aldrei til hans, hann ekki heldur til þeirra. — Þegar lengra leið þá bar við að hvor sýndi öðr- um eina tönn eða tvær, brugðu grön út og upp á við öðru megin, sú glottgretta átti eitthvað skylt við bros. Þau beiddust aldrei að skoða heimkynni Dans, konu hans og börn, né að heyra hann kveða né að sjá til hans renna marglitum sandi um greiparnar og skapa rúnakróka forkunnar fagra og vel gerða, né horfa á meðan hann sló Mexico dal og gerði lítinn silfurspón í einni lotu. Þau höfðu ekki veitt honum nokkum á- gang í einu né neinu né hann þeim. Skemst af að segja, þau voru að því komin að verða vinir og vita vel hvað hinu leið. Bigelow hafði með sér fáséðan grip, stokk með stækkunarglerum, þegar þeim var brugðið upp að augunum og stokknum við birtunni, og hjóli snúið, þá svarfaðist glerjasandur ýmsa vega í fígúrur, sem gerast í rúmmálsfræði. — Honum kom til hugar að Dan mundi hafa gaman af að skoða og meðhöndla það gamla gestagam- an og stofuprýði, og hafði það með sér í búðina. Ekki var svo, að hann lítilsvirti vit Indíánans með því. Einum kandidat með bezta vitnisburði frá Harvard og biskup í Massachusetts var svo skemt af að skoða það fígúruverk, að hann varð tíu mínútum of seinn til guðsþjónustu og altarisgöngu. Öllum mátti verða dátt af því furðuverki, bæði óvita og Einstein. Bigelow ætlaði Dan Silversmith að biðja um að fá að sjá vélina. Mill Hombres sá í hana og sagði: “Nei, nei, ja drengir!” af undrun og ánægju og prófessoramir settu upp svip líkt drengjum sem stelast í kirsuberja tré í fyrsta sinn, samt lét Dan ekki á neinu bera, hvorki forvitni né eftirtekt. Eigi að síður óskaði hann af alhuga að Bigelow liti til hans, sýndi eina hvíta tönn eða tvær og segði: “Viltu líta á?” eða eitthvað því um líkt að hörundsbleikra hætti. f sama máta var Dan Silversmith farinn að óska, að Bigelow léki ofurlítil forvitni á hon- um og hans högum. Það var svo komið að hann langaði til að sýna þeim hjónum hogan sitt eða hýbýli, hve hreint þar var, moldargólfið vel troðið og slétt svo og sedrusviðar lundinn þar sem Mrs. Dan Silversmith kembdi ull og spann, litaði upp úr hryllilegum litum og óf ábreiður til inntekta fyrir heimilið. Honum lék enn- fremur hugur á að sýna þeim krakkana, káta og hraUsta, nærri alt drengir, og allir hver öðrum líkir, og hversu fagurlega hann bjó konu sína, mágkonu og ömmu þeirra eftir þeirri tízku sem gerðist á miðri öldinni sem leið, sömuleiðis smíðatólin — steðjann, átta þuml- unga bút úr brautar teini, hamra, tengur, afl og smiðjubelg. Fá þau til að standa við og horfa á sig taka Mexico silfurdal og gera úr honum snotrustu silfurskeið. Fyrir augunum á Mrs. Bigelow, þeim brúnu, skörpu, gletnis- legu augum skyldi hann lýja dalinn og vinda í fagran grip til menja, í baug um hálsband eða í bréfskera líkan flugfjöður. III. Inn í búðina hópaðist hungur, þorsti, alls- leysi, hræsni og trúarbrögð sem óeinlægnina lagði af. — Beinastór kona, hásmælt o g hrukkótt, fimm börn tötraleg og þó fröm og fruntaleg, og vælandi faðir, sem bar alla hluti við kunni þó engan að gera, — þyrptust að Mill Hombres, tónandi áköll á hinn hæsta, sem ekki mátti algerlega daufheyrast við. “Eg lofa Guð fyrir svolítið af dósamat handa þessum sársvöngu börnum,” hrópaði kon- ar. “Guði sé lof” tónaði maðurinn og vældi “fyrir fimm gallónur af gasi, svo við komumst til Gallup.” “Lofaður veri Guð fyrir efni í nýjan klæðn- að.” “Lof og dýrð sé Drottni fyrir pelaflösku af Soda Pop.” Mill Hombres vissi vel hvernig stóð á þessu fólki. óánægt, uppveðrað af fréttum frá Suður- Californíu, tók það sig upp og flakkið um þvera álfuna til þeirra gullnu stranda og frjósömu dala Mill hugsaði hvort íbúarnir þar væru ekki farn- ir að sjá eftir sínu fyrra skrumi og yfirlæti. Mjög margar þúsundir áþekkar þessum heimtu- freku voru farnar hjá kaupstaðnum í auðn hinnar nýju Mexico, í áttina vestur til hafsins. f síðustu kosningum voru þeir orðnir svo fjöl- mennir að þeir réðu nálega kjöri ríkisstjóra. Bigelow hjónin voru alveg ókunnug svona fólki en voru ekki lengi að átta sig á því og þeirra ferðalagi. Prófessorarnir voru dálítið ruglaðir, það var ekki auðgert að flokka þá heimtufreku og skipa hverjum í sitt hólf. Kukl- arinn ungi skildi ensku mjög -vel, þó jafnvel Mill vissi ekki af því, og hann og Dan hrylti við. Þeim hnykti við dónaskap hinna heimtufreku. En Mill varð að taka á móti og kunni ráð. Tveim brauðum og könnu af bully beef var skelt í glentar greipar konunnar en fata efninu ekki, börnunum gefið alt_það vatn sem þau gátu í sig látið, og einu gallóni helt í gasgeymi á hjólaskrífli mannsins, hann var ekki galtðmur. Ekki þökkuðu þau fydr sig þegar þau fóru, Frh. á 7. bls.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.