Heimskringla - 29.06.1938, Blaðsíða 6
6. SÍÐA
HEIMSKRINCLA
WINNIPEG, 29. JÚNí 1938
“Það er ekki mikið að sjá. Ár og vötn,”
sagði hann.
“Það er rétt,” sagði Philip og reis skyndi-
lega á fætur og tók að ganga fram og aftur
um gólfið. Vötn og fljót. Hundruð af þeim —
þúsund af þeim. Greggy það eru yfir þrjú
þúsund vötn milli okkar og hins mentaða heims
og innan fjörutíu mílna frá þessari járnbraut.
Og níu af hverjum tíu eru full af fiski, svo að
birnirnir á ströndum þeirra lykta af honum.
Hvítfiski og silungi. Á þessu korti eru sýnd
« stöðuvötn sem eru þrisvar sinnum eins stór
að flatarmáli og stórvötnin fimm, en samt
virðast hvorki Canada nú stjórn þess vera þess
vör. Það er nægilegur fiskiforði hér í norðrinu
til að fæða allan heiminn, og þessar vatnsrandir
sem eg hefi teiknað á þetta landabréf meðfram
járnbrautinni, er virði eins margra miljóna
dala. Þetta var tækifærið, sem mér datt í hug
um miðnættið hjá eldinum. Hugsaði eg þá, að
ef eg gæti náð í fáein þessara vatna og fengið
fiskiréttinn í þeim áður en járnbrautin kæmi.”
“Þá yrðir þú miljónamæringur.”
“Ekki eínungis það,” svaraði Philip og
stansaði. “Eg hugsaði ekkert um peningana
fyrst í stað; að minsta kosti voru þeir aðeins
aukaatriði þarna við eldinn. Eg sá hvernig
þetta mikla norðurland ^æti orðið þeim að
fótakefli, sem ná einkun á öllu kjötmeti í suðr-
inu, með því að senda héðan takmarkalaus
feikn af fiski, sem seljast mætti með hagnaði í
mörkuðum New York og Chicago fyrir helming
þess er það kostar nú. Ætlun mín var sú, að
þetta ætti að verða góðgerðafyrirtæki. Eg sá
þarna tækifæri að hefna mín á þeim mönnum,
sem gerðu föður minn félausan og ofsóttu hann
þegar hann var kominn í sjálfhelduna, svo að
hann dó af því. Þeir drápu hann. Þeir ræntu
mig fáum árum síðar. Þeir kendu mér að hata
það sem eg eitt sinn var, lifandi og glöð eining
af lífinu, þar suður frá. Eg hélt héðan að
norðan. Fyrst fór eg*til Ottawa og því næst til
Toronto og Winnipeg. Því næst fór eg til
Brokans, hins gamla félaga föður míns, og
sagði honum frá áætlun minni. Eg hefi sagt
þér af Brokan. Einn hinn kænasti og djúp-
vtirasti viðskiftagarpur vesturlandsins. Það
leið ekki nema ár frá dauða föður míns, þang-
að til hann hafði rétt við og var magnaðri en
nokkru sinni fyr. Borkan fékk tvo aðra, sem
voru eins sterkir og sjálfur hann, og við sóttum
um sérréttindin. Það var hörð barátta frá
öndverðu. Ráðagerð okkar var eigi fyr opinber
gerð, en við fengum magnaða mótspyrnu. Auð-
félög í Canada gengu strax í bandalag og sóttu
um sömu réttindin og við. Brokan gamli vissi
þá á hverju var von. Það var kjöthringurinn
grímuklæddur og í fötum canadiskra fyrir-
tækja. Þeir kölluðu okkur “útlendinga”. —
Ameriska fjárglæframenn, sem væru að ræna
Canadamenn því, sem með réttu heyrði þeim
til. Þeir fengu tvo þriðju blaðanna á móti okk-
ur, en samt—”
Andlit Whittemores sléttist. Hann hló í
kampinn er hann tók pípuna sína og lét í hana.
“Þeir þurftu nú meira til að sigra gamla
manninn. Eg veit ekki með vissu hvernig
Brokan komst að samningunum, en það veit
eg, að þegar við fengum leyfið, voru þrír þing-
menn og eitthvað sex aðrir stjórnmálamenn
heiðursfélagar í fyrirtæki okkar, og það, að
þetta kostaði Brokan hundrað þúsund dali. And-
stæðingar okkar höfðu spilað svo á tilfinningar
þjóðernisins canadiska, að við fengum ekki
nema fylkisleyfi, sem svifta má okkur strax
og stjórninni virðist þörf á að gera það eða á-
stæða til. Eg sá ekkert á móti þessu, því að eg
var viss um, að við gætum rekið þetta fyrirtæki
á svo hreinskilin hátt, að öll þjóðin yrði með
okkur að ári liðnu. Eg lét þessa skoðun í ljósi
með mestu gleði; á síðasta fundi okkar, hinna
sjö, er mættum til að ljúka við alla fyrirætlun
okkar. Brokan og hinir fimm áttu að sjá um
og stjórna málefnunum suðuF frá, en eg átti
að fara norður. Mánuði síðar tók eg til starfa.
Þarna yfirfrá” — hann laut yfir öxl Gregsons
og benti með fingrinum á vissan stað á upp-
drættinum — “setti eg upp aðal stöðina. Henni
•stjórnaði MacDougall, skozkur verkfræðingur.
Innan sex mánaða höfðum við hundrað og
fimtíu manns í vinnu við vatn sem kent er við
blinda Indíánann. Fimtíu ræðarar fluttu að
okkur vistirnar, og annar flokkur bygði stöðvar
á svæði, sem náði yfir meira en hundrað mílur
sem alsett er vötaum. Alt gekk eins og í
sögu, betur en eg hafði búist við. Við Blinda
Indíána vatnið höfðum við skipastöð, þar sem
bátar voru smíðaðir, tvö vörugeymsluhús, ís-
hús, sölubúð og þrjú hundruð manns, og höfð-
um nálega lokið að laga til undir járnbrautar-
spor, sem náði rúmar tíu mílur frá stöð okkar
að hinni fyrirhuguðu járnbraut. Eg gáði ekki
neins annars, en starfsins. Stundum gleymdi
eg næstum Brokan og hinum félögum mínum.
Eg gætti vel að því fé, sem mér var á hendur
falið, og hafði komið öllu þessu í verk fyrir
tæp hundrað þúsund dali. Er sex mánuðir voru
liðnir og eg var rétt að því kominn að leggja af
stað suður, þá brann eitt vörugeymsluhúsið
okkar og fórust þar í eldinum um tíu þúsund
dala virði í vörum. Það var fyrsta ógæfan, sem
henti okkur og ekki smávægileg. Var slys þetta
efst í huga mér og hið fyrsta, sem eg sagði
Brokan frá er við höfðum heilsast.”
Andlit Philips var fölt og hörkulegt þar
sem hann stóð á miðju gólfinu og horfði framan
í Gregson.
“Og hverju heldur þú að hann hafi svarað
mér, Greggy ? Hann horfði á mig stundarkorn
og einkennilegt bros glampaði í augum hans,
og sagði við mig: ‘Láttu ekki slíka smámuni á
þér festast. Maður lifandi! Við höfum nú
þegar grætt eina miljón dollara á þessu smá-
vægilega fiskifyrirtæki þínu!”
Gregson settist upp eins og hann hefði ver-
ið stunginn.
“Heila miljón! Hver skrambinn—”
“Já, heila miljón, Greggy,” sagði Philip í
lágum rómi og með þessu gamla bardaga brosi
sínu. “í sparisjóðsbókinni minni voru hundrað
þúsund dalir. Góðar fréttir, eða hvað?”
Gregson lét vindlinginn detta og greip með
grönnu höndunum um borðröndina. Hann
svaraði ekki, heldur beið eftir þvi, að Philip
héldi áfram með söguna.
III.
Philip gekk í eina mínútu fram og aftur um
gólfið án þess að mæla orð. Þá stansaði hann
og leit á Gregson, sem starði á hann.
“Heila miljón, Greggy,” bætti hann við í
sama lága rómnum. “Hundrað þúsund voru í
reikningnum mínum í Fyrsta Þjóðbankanum!
Á meðan eg var þar norðurfrá í óða önn að
koma fyrirtækjum okkar í rétt horf, svo að
stjórnin og þjóðin gæti séð hvað við ætluðum
að gera og gætum gert. Sigri hrósandi yfir
velgengni okkar, og hvernig við reyndumst þvi
trausti, sem okkur var sýnt, og hugsandi hvern
dag um fyrirætlun mína, að láta þetta mikla og
auðuga norðurland mola einokunarfélögin suð-
urfrá þá störfuðu þeir líka. Á meðan mig
dreymdi um að þessir hlutir yrðu framkvæmd-
ir hafði Brokan og félagar hans stofnað hið
Norðlenzka fiskifélag, löggilt það í New Jersey
ríkinu, og höfðu þegar selt um miljon dala virði
af hlutum! Þetta gekk alt saman enis °£ í
skáldsögu, þegar eg kom til þeirra. Eg a
gefið Brokan heimild til að koma fram tyrir
mína hönd, og nú varð eg þess var, að eg var
vara-forseti í hinu stærsta löghelgaða rænmgja-
félagi hinna síðari ára. Meira fé hafði venð
varið til að auglýsa fyrirtækið, en til að hrmda
því í það horf, að hægt væri að starfrækja það.
Bréf mín að norðan, er lýstu hrifningu minni
fyrir norðrinu og fyrirtækjum okkar þar, höfðu
verið prentuð í hundrað þúsundum eintaka og
þeim dreift út meðal almennings, til þess að
narra hann til að kaupa hlutabréf okkar. i
einu þessara bréfa hafði eg sagt, að ef helming-
ur þeirra vatna, sem eg hafði sett á uppdrættina
væri notuð, og í þeim veitt, mætti fiska í þeim
miljón tonn af fiski á einu ári. Tvö hundruð
þúsund eintaka af þessu bréfi voru send ut. En
Brokan og menn hans höfðu slept þessu úr, ef
fiskað væri í helmingnum af þessum vötnum þá
þyrfti til þess fimtán þúsund járnbrautarvagna
með kælirúmi og fimm miljón dala höfuðstól.
Eg var agndofa yfir því hvað þessi svikavefur
þeirra var stórkostlegur og þegar eg hótaði að
opinbera svikin, hló Brokan bara og sagði, að
þeir hefðu séð við því að það væri ekki hægt. í
öllum auglýsingunum var það skýrt tekið fram
ið leyfi væri veitt af Manitoba-fylkinu, og við
yrðum sviftir því, ef við ekki héldum lögin og
öll fyrirmæli. En einmitt þessi hreinskilni var
besta auglýsingin og náði algerlega tiigangi sín-
iim við almenninginn, sem keypti lága hluti. Þeir
voru snaraðir þúsundum saman. Hluturinn var
tíu dali hver og ekki skattgildur. Einn af hverj-
jm sex höfðu keypt fimm hluti, níutíu og níu af
iverjum hundrað voru eigi yfir tíu hluti. Þetta
/ar djöfullegt. Fólkið, sem eg hafði óskað að
hjálpa með þessu fyrirtæki, hafði verið narrað
;il að borga fyrir e}cki neitt, eina og einn fjórða
ír miljón. Á tæpu ári hafði Brokan og félagar
lans komið á fót fjárglæfrum, sem voru verri
;n nokkurt hlutafélag, því þau gjalda þó dálítinn
íluta af ránsfengnum til baka í ársgjaldinu.
)g eg var ábyrgðarfullur fyrir þessu. Skilurðu
>að, Greggy? Það var eg sem kom þessu af
itað. Það voru lýsingar mínar af norðurland-
nu, sem aðallega höfðu gylt þetta fyrir ?'
nenningnum, svo að hann keypti hlutina. Og
élagið — þjóðafélag helgað af lögum ríkisins
— eg er stofnandi þess og vara forseti!”
Philip lét fallast niður í stólinn. Hann var
akur af svita í andlitinu þótt kalt væri í kof-
inum.
“Og þú hélst áfram ?” sagði Gregson.
“Eg mátti til. Það var hvergi smuga fyrir
mig að smjúga út um. Engin átylla, sem hægt
var fyrir mig að nota gegn Brokan og félögum
hans. Þeir voru sem Bismarks, sex fólaðir
í stjórnkænsku og fjandakrafti. Þeir höfðu
ekki brotið nein lög. Þeir höfðu selt tólf hundr-
uð og fimtíu þúsund dala virði af hlutum og
lagt fram hundrað þúsund dala virði í umbæt-
ur, en Brokan hló bara þegar eg benti á þetta.
‘Hvað þá, Philip. Leyfið okkar er miljón dala
virði!” og það voru engin lög fyrir því að þeir
mættu ekki virða það það, eða meira. Eg gat
ekkert gert nema etit, eg gat sagt af mér, neitað
að taka hluta minn af gróðanum og opinberað
ástæðuna fyrir því að eg færi úr félaginu. —
Þetta ætlaði eg að gera, þegar rólegri yfirvegun
náði yfirhöndinni. Mér skildist einhverntíma
yrði að gera upp reikningana. Þetta félag gat
selt eina og einn fjórða úr miljón dala virði af
hlutabréfum, en það varð að gera upp reikning-
inn. Væri eg út úr spilinu var þetta hægðar-
leikur. Væri eg með — jæja, sjáðu til, Greggy,
það var ennþá tækifæri að láta félagið bera sig
á heiðarlegan hátt, jafnvel þótt það hefði göngu
sína undir hinum svarta fána sjóræningjanna og
svikanna. Brokan og félagar hans voru stein-
hissa á því, að mér skyldi misþóknast þessi að-
ferð. Það var eins og að fleygja þroskuðu og
feitu aldini í eldinn. Brokan lét fyrst undan.
Hann snerist á mína hlið, er við töluðum saman
undir fjögur augu, þá sannfærði eg hanh í
fyrsta sinni um hina dæmafáu möguleika, sem
felagið hefði. Mér til mestu undrunar tók
hann að sýna brennadi áhuga fyrir minni hlið
malsins. Við reiknuðum út hvernig hægt væri
að gjalda hverjum hluthafa fimtíu cent á hverj-
umhlut innan tveggja ára. Þetta fanst mér að
væri að minsta kosti dalitil endurborgun á
þjófnaðinum. Brokan kom þessu í kring á sinn
eigin hátt. Hann mátti greiða atkvæði fyrir
einn forstjórann, sem var í Evrópu og hann
fékk tvo aðra á sitt mál. Afleiðingin af því
varð þessi, að við samþyktum að setja alt féð í
sjóð, sem var nærri sex hundruð þúsund dalir
og afgangur hlutanna, sem ennþá var í mark-
aðnum átti að fara til að framkvæma starfið.
Brokan stakk því næst upp á því, að við keypt-
um út hvern þann, sem óskaði að draga sig í
hlé. Hinir tveir þingmenn og fjármálamaður-
inn frá Toronto, seldu sína hluti strax á fimtíu
dali hver. Með því sem þeir fengu fyrst, fóru
þessir herrar heim til sín með næstum hálfa
miljón. Býsna góður hluti handa þínum ein-
lægum, eða hvað Greggy! Hamingjan góða,
að hugsa sér þvílíkt! Eg lagði af stað til að
berjast fyrir fólkið og þessu ungaði eg út.
Ráni, mútum og svikum-------”
Hann þagnaði og krepti hnefana þangað
til æðarnar tútnuðu út eins og strengir á hand-
arbökunum.
“Og—” sagði Gregson órólegur.
“Og hvað ?”
“Ef þetta væri nú alt og sumt hefði eg
ekki sent eftir þér hingað,” bætti hann við. Eg
hefi þurft langan tíma til að komast að hinum
djöfullega kjarna þessa máls, vegna þess að eg
vildi að þú skildir málið frá upphafi. Eftir að
eg skildi við Brokan kom eg hingað norður
aftur. Eg hafði næga peninga til að gera heið-
arlegt starfsfélag úr þessum félagsskap okkar.
Eg leigði mér tvö hundruð manns í viðbót, og
setti á stofn tuttugu nýjar fiskistöðvar, og
byrjaði að leggja aðra járnbraut að aðalbraut
inni, og á mikli stíflu, er átti að vera í vatninu
við aðalstöðina. Við höfðum þrjátíu hesta, sem
við fengum hingað frá Le Pas og fjörutíu
eru á leiðinni. Það virtist ekki vera nein alvar-
leg hindrun á leið okkar og hafði eg næstum
náð mér aftur, þegar Brokan setti nýja
sprengju undir iljar mér.
Hann hafði skrifað langt bréf næstum því
strax eftir að eg fór, hafði bréf þetta tafist á
ýmsum stöðum á leiðinni. f bréfinu sagði hann
mér að hann hefði komist á snoðir um, að sam-
særi væri hafið til að eyileggja fyrirtæki okkar.
Að voldugir fjandmenn ætluðu að snúast gegn
okkur þar norðurfrá. Eg gat séð að Brokan
var æstur mjög yfir þessu og kannaðist nú við
það, þótt ekki kæmi það oft fyrir, að vera
blektur af mótstöðumönnum sínum og skildi til
hlítar þá hættu, sem tók mig þó nokkurn tíma
að skilja í. Hann sagðist hafa skýlausa sönn-
un fyrir því, að auðmenn nokkrir sem hann
hafði sigrast á einhverntíma ætluðu nú að hefna
sín á okkur þama norðurfrá. Væru nú liðs-
kraftar þeirra á leiðinni norður. Tilgangur
þeirra væri að stjórnin neyddist til að taka af
okkur leyfið. Eins og þú manst var þetta að-
eins fylkisleyfi. Það var í raun og veru gefið
fólkinu hér norðurfrá á vald, hvort við fengjum
að haldast við hér eða ekki. Snerist það gegn
okkur var eigi nema um eitt fyrir fylkisstjórn-
ina að gera.
f fyrstu lá mér þessi frétt Brokans í léttu
rúmi. Eg þekti fólkið hér norðurfrá. Eg vissi
að Indíánar, kynblendingar, Frakkar og hvítir
menn á þessum stöðvum, eru eins óhæfir til að
þiggja mútur og Brokan er að finna til sam-
vizkubits. Mér þótti vænt um þá og treysti
þeim. Eg vissi að þeir áttu drengsskap til að
bera, sem er óþektur þar suður frá, þar sem
kirkjur voru á hverju götuhorni og “guðsorð”
er boðað nótt og dag á strætum úti. Eg fyltist
vandlætingu er eg svaraði bréfi Brokans og and-
mælti þeim staðhæfingum hans, að hálf viltir
menn fengjust til að vinna hverskonar glæpi
fyrir fáeina skildinga og sopa af áfengi. Og
þá----”
Whittemore þurkaði svitann framan úr sér
og drættirnir kring um munninn urðu dýpri.
“Veistu hvað, Greggy? Viku eftir að eg
fékk þetta bréf, voru tvö vörugeymsluhús
brend sömu nóttina á aðal stöðinni okkar. Þau
voru hundrað skref hvort frá öðru. Það er
enginn vafi á því, að í þeim var kveikt af á-
settu ráði.”
Hann þagnaði og Gregson horfði á hann
þegjandi.
“Það var byrjunin — fyrir þremur mánuð-
um síðan. Allan þennan tíma hefir eitthvert
leyndardómsfult vald verið okkur þröndur í
götu við hvert fótmál. Viku eftir að vöru-
húsin brunnu kviknaði í og brunnu skipasmíða-
stöðvar okkar við Gráabjöms fljótið. Kostuðu
þær okkur bæði mikið fé og fyrirhöfn. Litlu
síðar sprakk sprengja ein of fljótt og gerði okk-
ur tíu þúsund dala skaða og tveggja vikna starf
fyrir fimtíu manns. Eg setti á ótal verði, eitt-
hvað fimtíu bestu manna minna, en það virtist
ekki koma að neinu gagni. Síðan hefir veginum
- skolað burtu á þriggja mílna svæði. Feikna
dínamít sprengja var sett í steinstíflu er hélt
stöðuvatni einu í skefjum, stíflan hrundi og
vatnið steyptist ofan af brúninni niður á veginn.
Hverjir svo sem óvinir okkar eru, þá virðast
þeir vita hinar leyndustu ráðagerðir vorar og
ráðast á oss þegar vér erum sem berskjaldað-
astir. Það furðulegasta virðist mér þetta:
Hversu mjög sem eg reyni að leyna skaða okk-
ar, þá hefir sá orðrómur breiðst út yfir mörg
hundrað mílna svæði að norðurlandsfólkið sé í
ófriði við okkur og ætli að hrekja okkur burtu.
Tveir þriðju verkamanna minna trúa þessu.
MacDaugall, verkfræðingurinn minn trúir því.
Meðal verkafólks míns annars vegar og íbúa
þessara svæða hins vegar, hefir upp á síðkastið
dafnað úlfúð og illvilji, sem eykst daglega. Auk-
ist þetta, getur það eigi endað nema á tvennan
hátt, algert tap fyrir okkur og sigur fyrir
andstæðingana, sem ásækja okkur á svona níð-
ingslegan hátt. Sé ekki eitthvað gert til að
stöðva þetta og það innan mánaðar þá verða
vígaferli og blóðsúthellingar um alt þetta svæði.
Ef það sem eg býst við að komi fyrir rætist, þá
verður engin stjórnarjámbraut lögð. Hinar
nýju byggingar hér við Churchill falla í rústir
ónotaðar, auðæfi landsins munu ónotuð og það
sjálft fer aftur á bak um hundrað ár. Skógar-
búarnir munu fyllast þvílíku hatri og tortryggni
að það mun endast meðan minningin um hin
miklu rangindi, sem hér verða framin lifir í
erfðunum frá feðrum til sona. Og þessi rang-
indi, þessi glæpur---”
Philip var orðinn hvítur í framan, kulda-
legur, næstum tryllingslegur á svipinn og mjög
hörkulegur. Hann opnaði samanbrotið bréf.
Það var langt bréf og vélritað og hann rétti
Gregson það.
“Þetta er nú það síðasta,” sagði hann eins
og til skýringar. Það segir þér það, sem eg
hefi ekki sagt þér. Einhvernveginn komst þetta
bréf með mínum bréfum og tók eg ekki eftir
fyr, en eg hafði opnað það í misgripum. Það
er frá ráðstofu andstæðinga okkar til manns
þess, sem starfar fyrir þá hér að samsærinu.”
Hann beið og hélt næstum niðri í sér and-
anum á meðan Gregson laut yfir bréfið. Hann
tók eftir því hvernig fingur Gregson eins og
nístust saman þess lengur, sem hann las. Svo
leit hann upp frá lestrinum.
“Guð minn góður!” hvíslaði hann.
Hinir tveir menn horfðust á í eina mínútu
án þess að mæla orð frá vörum.
IV.
Philip rauf þögnina.
“Nú skilurðu þetta.”
“Þetta er ómögulegt!” hrópaði Gregson.
“Eg trúi þessu ekki. Slíkt gæti hafa komið
fyrir, fyrir þúsund — tvö þúsund árum síðan
— en ekki á vorum dögum. Guð minn góður,
maður minn!” hrópaði hann í ennþá meiri æs-
ingi. Þú ætlar þó aldrei að reyna að telja mér
trú um að þú meinir þetta verði gert?”
“Jú,” svaraði Philip.
“Það er hreint ómögulegt,” hrópaði Greg-
son á ný og böglaði bréfið í hendinni. “Sá
maður er ekki til — slíkt félag er ekki til —
sem mundi hleypa slíku djöfulæði af stokkunum
á þennan hátt!”
Philip brosti hörkulega.
“Bæði maðurinn og félagsskapurinn eru
til,” sagði hann hægt. Greggy, eg hefi þekt
bæði menn og félagsskapi sem hafa fórnað milj-
ónum, sem hafa fórnað öllum heiðri og sann-
leika, sem hafa leitt hungursneyð yfir þúsundir
manna, kvenna og barna, og margt enn verra —
til að ná sigri í stórgróðafyrirtækjum sínum.