Heimskringla - 29.06.1938, Page 7
WINNIPEG, 29. JÚNí 1938
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA
ÍSLANDS-FRÉTTIR
Sig. Skagfield
söngvari hefir haldið tvo opin-
bera hljómleika í Bergen við á-
gæta dóma. Sigurði hefir verið
boðið að halda marga hljómleika
vestan fjalls í Noregi og gengst
ungmennafélegssambandið þar
fyrir hljómleikunum.
—Mbl. 1. júní.
* * *
Ný frímerkja-“b!okk” með
mynd Leifs Eiríkssonar
Á minningardegi Leifs hepna
Eiríkssonar, sem Ban'daríkin
halda hátíðlegan 9. október næst-
komandi, áformar íslenzka póst-
stjórnin að gefa út ný frímerki
með mynd af Leifsstyttunni, er
Bandaríki Norður-Ameríku gáfu
íslandi á Alþingishátíðinni 1930.
Út verða gefin 3 frímerki, 30,
40 og 60 aura. Merkin verða
sennilega á frímerkjablaði, og
gengur ágóði þeirra í Póstbygg-
ingarsjóð.—Mbl. 1. júní.
* * *
Þjófur mjólkar kýr
biskupsins í Landakoti
Brotist var inn í fjós Marteins
biskups í Landakoti í fyrrinótt
og f jórar kýr mjólkaðar svo ekki
var deigur dropi af mjólk í þeim
í gærmorgun. Hafði þjófurinn
stolið 10 lítra mjólkurbrúsa í
fjósinu til að flytja mjólkina I.
Fjósið var lokað með hengilás
og hafði þjófurinn eða þjófarnir
snúið hann í sundur.
—Mbl. 3. júní.
Guðmundur Finnbogason
landsbókavörður hefir fengið
boð frá Norrænafélaginu í
Þýzkalandi til að vera gestur fé-
lagsins á norræna móti þess, sem
haldið verður seint í júní. Flytur
Guðmúndur þar fyrirlestur um
menningarsamband Þjóðverja og
íslendinga að fornu og nýju.
—Vísir 28. maí.
* * *
Blaðadómar um kvennaflokk
“Ármanns” I Oslo
Fimleikamótinu í Oslo lauk á
laugardagskvöld með stórveislu,
sem erlendum þátttakendum var
haldin, og sátu þá veislu fulltrú-
ar frá ríkis- og bæjarstjórn á-
samt fleira stórmenni.
Ummæli allra Osló-blaðanna
um íslenzka flokkinn eru mjög
lofsamleg.
Morgenbladet skrifar undir
fyrirsögninni: “Vinsæll íslenzk-
ur kvenflokkur”.
“Mjög vel hepnuð íslenzk fim-
leikasýning”.
“Sýningin var í mörgu frá-
brugðin því sem kom fram á
fimleikamótinu. Sýningarnar
voru kvenlegar og minti oft á
æfingar Niels Bukh. Það segir
sig sjálft að fagnaðarlæti á-
horfenda voru mikil er flokkur-
inn kvaddi með hinum fallega
íslenzka fána að lokum.”
Dagbladet segir að það hafi
sýnt sig að íslendingar fylgist
vel með tímanum hvað leikfimi
snerti. Hreyfingar stúlknanna
hafi verið fagrar.
Öllum flokknum líður vel og er
INNKOLLUNARMENN HEIMSKRINGLU
I CANADA:
Amaranth..............................J. B. Halldórsson
Antler, Sask.........................K. J. Abrahamson
Árnes................................Sumarliði J. Kárdal
Árborg................................ G. O. Einarsson
Baldur............................................Sigtr. Sigvaldason
Beckville.........................................Björn Þórðarson
Belmont...................................G. J. Oleson
Bredenbury..............................H. O. Loptsson
Brown...............................Thorst. J. Gíslason
Churchbridge..........................H. A. Hinriksson
Cypress River... ........................páll Anderson
Dafoe...................................
Ebor Station, Man.....................K. J. Abrahamson
Elfros..................................
Eriksdale..............................ólafur Hallsson
Foam Lake..............................H. G. Sigurðsson
Gimli.....................................K. Kjernested
Geysir................................Tím. Böðvarsson
Glenboro...................................G. J. Oleson
Hayland.................................Slg. B. Helgason
Hecla..................................Jóhann K. Johnson
Hnausa................................. Gestur S. Vídal
Hove..................................Andrés Skagfeld
Húsavík..................................John Kernested
Innisfail.......................... Ófeigur Sigurðsson
Kandahar................................
Keewatin...............................Sigm. Björnsson
Kristnes..........................................Rósm. Árnason
Langruth..............................................B. Eyjólfsson
Leslie...............................................Th. Guðmundsson
Lundar........................Sig. Jónsson, D. J. Lándai
Markerville..................................... ófeigur Sigurðsson
Mozart..................................
Oak Point........................................Andrés Skagfeld
Oakview.............................
Otto......................................Björn Hördal
Piney....................................S. S. Anderson
Red Deer.........................................Ófeigur Sigurðsson
Reykjavík..................................Árni Pálsson
Riverton..............................Björn Hjörleifsson
Selkirk........................... Magnús Hjörleifsson
Sinclair, Man.......................K. J. Ábrahamson
Steep Rock.................................Fred Snæda)
Stony Hill................................ Björn Hördal
Tantallon.........................................Guðm. Ólafsson
Thornhill............................Thorst. J. Gíslason
Víðir................................... Aug. Einarsson
Vancouver..................Mrs. Anna Harvey
Winnipegosis.......................Finnbogi Hjálmarsson
Winnipeg Beach......................................John Kernested
Wynyard..................................
I BANDARÍKJUNUM:
Akra...................................Jón K. Einarsson
Bantry..................................E. J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash..................Mrs. John W. Johnson
Blaine, Wash...................Séra Halldór E. Johnson
Cavaliér...............................Jón K. Einarsson
Chicago: Geo. F. Long, 2428 Hamlin Ave., Logan Square Sta.
Edinburg....................................Jacob Hall
Garðar..................................S. M. Breiðfjörð
Grafton................................Mrs. E. Eastman
Hallson.............................. Jón K. Einarsson
Hensel..................................J. K. Einarsspn
Ivanhoe............................Miss C. V. Dalmann
Los Angeles, Calif....Thorg. Ásmundsson, 4415 Esmeralda St.
Milton................................. F. G. Vatnsdai
Minneota............................Miss C. V. Dalmann
Mountain..............................Th. Thorfinnsson
National City, Calif......John S. Laxdal, 736 E 24th St.
Point Roberts..........................Ingvar Goodman
Seattle, Wash..........J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W
Svold...................................Jón K, Einarsson
Upham.................................E. J. Rreiðfjörö
Tfee fSklng Piess Lcaiíed
Winnipeg Manitoba
upptekinn í boðum og ferðalög-
um alla vikuna. Þátttakendur
senda allir bestu kveðjur heim.
—Mbl. 1. júní.
* * •
Friðrik ríkisarfi og Ingrid
koma hingað í sumar
Það mun afráðið, að dönsku
krónprinshjónin, Friðrik og Ing-
rid komi hingað í heimsókn í
sumar.
Stjórnarráðinu barst í fyrra-
dag skeyti frá konungsritara,
þar sem spurt var hvort hent-
ugra væri að þau kæmi í lok júlí j
eða um miðjan ágúst. Nú mun
ákveðið að þau leggi af stað frá,
Khöfn. með Dronning Alexand-1
rine 20. júlí.
Hingað koma þau 24. júlí. —
Dvelja þau hér á meðan “Dr. ,
Alexandrine stendur við og fara
heimleiðis með sama skipi 1. ág.
Ekki er kunnugt hvort þau
ætli að fara af skipinu hér í
Rvík., eða fara með því norður. I
Nokkur ár eru síðan Friðrik
ríkiserfingi kom hingað síðast,
Ingrid hefir aldrei hingað komið.
Nokkrum sinnum hefir heyrst |
orðrómur um að þau hjónin ætl-
uðu að koma hingað, en ekki
hefir orðið af því, fyr en nú.
Ingrid er nýlega farin að læra ,
íslenzku. Kennari hennar er
kona dr. Sigfúsar Blöndals bóka-:
varðar.—Mbl. 1. júní
* * *
Prófi í lögfræði
við háskóla íslands, hafa þeir ,
nýlega lokið bræðurnir Jakob og
Jóhann Hafstein frá Húsavík,!
báðir með 1. einkunn. Þá hefir ,
Benedikt Tómasson lokið prófi í j
læknisfræði, með 1. eink. og
Halldór Halldórsson frá fsafirði,
magisterprófi í norrænum fræð-.
um.—ísl. 3. júní.
* * •
Um fsland í erlendum blöðum
í sænska blaðinu Dagens Ny-
heter birtist fyrir skömmu grein
um ísland, þar sem rætt er
nokkuð um aðstöðu* fslands gagn-
vart stórþjóðum álfunnar. Er
sagt, að mörg lönd í Evrópu hafi
vakandi auga með þessu eylandi
vegna hinna auðugu fiskimiða,
og telji sig málefni landsinsí
miklu varða. Eigi England sér-
staklega mikilla hagsmuna að
gæta á íslandi, þar sem Bretar
hafi nú lánað fslendingum um 50
miljónir króna og helztu fiskimið
þeirra séu umhverfis ísland. En
þó sé lega landsins þýðingar-
mest fyrir brezka heimsveldið,
þar sem hún gerir það að verk-
um, að landið geti á styrjaldar-
tímum orðið flugmiðstöð á leið-
inni milli Evrópu og Ameríku
og hin auðugu fiskimið óþrjót-
andi matvælauppspretta. Aðrar
þjóðir hafi líka komið auga á
fsland sem flugflotastöð á ófrið-
arárum, og er í því sambandi
bent á komu ítalskra flugleið-
angursins undir forustu Balbos
um árið. Og einnig hafi Lenin
haft auga fyrir þýðingu landsins
í þessum efnum, samkvæmt rit-
um hans.
Þá segir blaðið, að Þýzkaland
leggi mikla áherzlu á að ná ítök-
um á íslandi, bæði með verzlun-
arsamningum og árlegum heim-
sóknum þýzkra herskipa. Segir
blaðið að lokum, að staða íslands
verði mjög hættuleg og vanda-
söm, ef ófriður brjótist út í
Evrópu.—ísl. 27. maí.
* * *
Sigurður Þórarinsson
hefir nýlega lokið kandidats-
prófi í jarðfræði við háskólann
í Stokkhólmi. Hefir hann í
hyggju að halda áfram vísinda-
ransóknum sínum á Vatnajökli
í sumar.—ísl. 3. júní.
ana og brotnuðu símastaurar og
línur slitnuðu á löngu svæði. —
Mun flóðið hafa náð hámarki
sínu s. 1. laugardagsnótt, en
hefir síðan farið minkandi. —
Eitthvað mun hafa farist af
sauðfé í flóðinu. Flugvélin flaug
yfir jökulinn, meðan flóðið stóð
sem hæst, með þá Pálma Han-
nesson rektor og Steinþór Sig-
urðsson magister. Urðu þeir ekki
varir neinna eldsumbrota.. Jóh.
Áskelsson jarðfr. og Tryggvi
Magnússon gerðq út leiðangur
til að ransaka orsakir flóðsins.
Skeiðará hljóp síðast í marz
1934.—fsl. 3. júní.
* * *
Ný altaristafla
Guðmundur Kristjánsson og
Karl Guðmundsson myndskera-
meistarar hafa undanfarið unnið
að því að skera út altaristöflu,
en Eyjólfur Eyfells hefir málað
hana.
Er taflan gerð eftir altaris-
töflu, sem áður var í Hraungerð-
iskirkju í Flóa, en nú er hér á
Þ jóðmin jasaf ninu.
Taflan er tveir metrar á
breidd og 1,80 m. á hæð. Er hún
úr mahogany, en skápurinn úr
Oregon Pine.
Myndin sýnir Krist á krossin-
um og er langstærsta mynd-
skurðarverk, sem gert hefir ver-
ið hér á landi, og hafa mynd-
skurðarmennirnir verið að verk-
inu í mánuð, enda er verkið
margbrotið og vandasamt.
—Alþbl. 8. júní.
* * *
Húfugerð á fsafirði
Undanfarna 5 mánuði hefir
starfað á fsafirði ný húfugerð.
Húfugerðin Hektor. Húfugerðin
hefir fullkomnar vélar og býr
til húfur eftir nýjustu Lundúna-
tízku og veitir 9 stúlkum atvinnu
við iðnina. — Eigendur eru Sig-
ríður Jónsdóttir og Kristján H.
Jónsson kaupmenn, en forstöðu-
nam iðnina í London í sumar.
| —Alþbl. 8. júní.
—
BRÉF TIL HKR.
Björgvin Guðmundssort
tónskáld var kjörinn heiðurs-
félagi Söngfélagsins “Heklu” 29.
maí s. 1. í viðurkenningarskyni
fyrir sönglistarstörf hans og
tónverk.—fsl. 3. júní.
* * *
Skeiðará hleypur
Mánudaginn 23. maí hljóp
mikill vöxtur í Skeiðará syðra og
ágerðist næstu daga. Bárust
jakar úr jöklinum fram á sand-
Árborg Man.,
26. júní 1938
Kæri ritstj. Hkr.:
Eg sendi þér eftirfarandi
nafnalista þeirra sem nú alveg
nýlega hafa gefið peninga og
muni til sumarheimilis ísl. barna
að Hnausa. Um leið og eg sendi
frá mér þennan nafna lista, sem
að verður sá seinasti þetta fjár-
hagsár, langar mig til að láta í
ljósi innilegt þakklæti til allra!
þeirra sem að hafa fram að
þessu styrkt þetta fyrirtæki. Eg
vil þakka fyrir öll hlýlegu bréf-!
in, sem að hafa fylgt gjöfunum.
Það hefir verið mér stór ánægja
að sjá hversu vel íslendingar
margir i stórri fjarlægð hafa1
unnið saman. Það er trú mín og
von að í þessu máli verði svo góð
samtök, að sumarheimilið haldi
áfram að stækka svo að það
verði hægt að taka á móti sem
flestum börnum sem að þurfa að
fá að njóta sumarblíðunnar í
skógarloftinu við vatnið, og gott
væri að ef seinna meir væri
einnig hægt að taka á móti
þreyttum mæðrum með litlu
börnin sín. Mér finst það eng-
um efa bundið að um leið og
heimilið er kærleiks stofnun, þá
sé það líka þjóðræknislegs eðlis.
Flest litlu börnin frá Winnipeg
geta litla íslenzku talað, sum alls
enga, en með því að börnin kynn-
ast hvert öðru, fá þau vitund
um þjóðerni sitt, og ætti það að
geta hjálpað til að þau tínist
ekki alveg eins fljótt inn í alla
hringiðuna. Standið saman góðu
íslendingar, svo að sumarheim-
ilið geti orðið að sem bestum not-
um og þjóðflokki vorum til sóma.
Emma von Renesse,
féhirðir
Gjafir til Sumarheimilis fsl.
Barna að Hnausa, Man.
Miss Sigurbjörg Stefánsson,
í Gimli, Man..............$10.00
Mr. Daníel Daníelsson,
Hnausa, Man............ 1.00
- NAFNSPJÖLD -
Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldg. Skrlfstofusími: 23 674 Stundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. Er a6 flnni 4 skrlfstofu kl. 10—l f. h. og 2—6 e. h. Helmill: 46 Alloway Ave. Talsími: 33 151 G. S. THORVALDSON B.A.. LL.B. LdofroeOingur 702 Confederation Life Bld* Talsími 97 024
Orrtci Phosi Ri8 Phoni 87 293 73 408 Dr. L. A. Sigurdson 109 UEDIOAL ART8 BUIUDINO Ovttci Houii: 12 - 1 4 F.M. - • P.M. átn it AFPonrrMiiri W. J. LINDAL, K..C. BJÖRN STEFÁNSSON tSLENZKIR LOGFRÆÐINOAR 4 öðru gólfl 325 Main Street Talsimi: 97 621 Hafa einnig skrifstofur «6 Lundar og Gimli og eru þar að hltta. fyrsta miðvlkudaa 1 bverjum mánuði.
Dr. S. J. Johannes um 218 Sherbum 8treel Talslmi 80 877 VtOtalsUmi kl. S—5 e. b M. HJALTASON, M.D. ALMENNAR LÆKNINGAR Sérgrein: Taugaejúkdómar Lœtur úti meðöl i vlðlögum VIBtalstímar kl. 2—4 e h 1—S afl kveldínu 8íml 80 867 666 Vlctor 8t
-r J. J. Swanson & Co. Ltd. RMALTORS Rental. Intvrance and Financtal Agenti Slml: 94 221 aoe PARIS BLDG—WlnnlpeR A. S. BARDAL eeiur likkistur og annast um útfar- lr. Allur útbúnaður s4 bestl. Enníremur selur hann allskooar mlnnlsvarða og legstelna. 843 SHERBROOKE 8T. Phone: S6 607 WINNIPEO
Gunnar Erlendsson Planokennari Kenslustofa: 701 Victor St. Slml 89 535 THL WATCH SHOP Thorlakson Baldwin Diamonds and Wedding Ringa Agents for Bulova Watches Marriag-e Ucenses Issued 699 Sargent Ave.
Jacob F. Bjarnason —TRAN SFER— Bciggaoe and Furniture Moving 591 SHERBURN ST. Phone 35 909 Annast allskonar ílutnlnga fram og aftur um baeinn. MARGARET DALMAN tbacher of piano »54 BANNINO ST Phone: 26 420
Mr. Gísli Sigmundsson, Hnausa, Man 2.00 Mrs. Gísli Benson, Gimli, Man. (áheit) 2.00 Mr. J. P. Vatnsdal, Geysir, Man 2.00 Kvenfél. “Eining” Lundar, Man., arður af samkomu
Rovatzos Floral Shop *06 Notre Dame Ave. Phone 94 954 FTeeh Cut Flowers Dally Plants in Seaaon We specialize in Wedding A Concert Bouquets * Funeral Deslgns Icelandlc spoken
Mr. og Mrs. J. Straum-
fjörð, Lundar, Man..... 5.00
Einnig ullarteppi og 2 kodda.
Mr. S. G. Borgfjörð,
Lundar, Man........’... 1.00
Mrs. J. Thorsteinson, Steep
Rock, Man.........ullar teppi
Mr. S. Guttormsson,
Lundar, Man............ 2.00
Kvenfél. “fsafold”, Víðir....10.00
Ónefnd hjón, vinir stofnun-
arinnar............... 10.00
Mrs. Friðrik Swanson,
Winnipeg, Man.......... 5.00
Miss S. Stefánsson, 2 góð rúm
með mattressum.
Gefið í blómasjóð sumarheim
ilisins $10.00 í minningu_ um
móður þeirra Sigríði Jónsson.
Jón H. Johnson og Stefanía Jóns-
son, Vancouver, B. C.
HEYRT OG SÉÐ
eftir Alþbl.
Guðmundur hét maður,
kendur við Gilsárvelli. Hann var
umrenningur á Austurlandi. —
Þótti hann kyndugur í háttum
sínum.
Eitt sinn var hann gestur á
prestsetri einu fyrir austan og
var leiddur þar til stofu.
Þar hékk mynd af Maríu mey.
Benti prestskonan á Maríumynd-
ina og sagði:
—Þú þekkir þessa, Guðmund-
ur minn?
— Já; það kann að vera, að eg
hafi séð hana einhverntíma á
Seyðisfirði.
• Guðmundur hafði þann sið, að
dvelja lengi á þeim bæjum, sem
honum var sýnt gott atlæti í
mat og drykk.
Eitt sinn hafði hann gerst
þaulsætinn á heimili einu, og var
húsbændum farið að þykja nóg
um.
Einn morguninn gerði hús-
freyja þá athugasemd við hann
um leið og hún færði honum
morgunkaffið, að nú væri gott
ferðaveður í dag.
— Haltu þér saman, svaraði
Guðmundur. — Eg fer ekki fet,
fyr en búið er að sjóða.
»u«
Hjálmar Guðmundsson hét
prestur á Hallormsstað eystra.
Þótti hann harla undarlegur í
háttum og sniðugur í tilsvörum,
og voru margar sögur sagðar af
honum. Ein er þessi:
Eitt sinn bar svo við, að þrjár
vinnukonur hans áttu barn í
sömu vikunni.
Var þá klerkur spurður,
hvernig á því stæði, að svo bág-
borið siðferði gæti þrifist undir
handarjaðri prestsins.
Prestur svaraði:
— Enginn hlutur er eðlilegri.
Vistin er góð, freistingin mikil
og stillingin engin.
Eitt sinn hvarf Hjálmar að
haustlagi úr baðstofu sinni, og
gerðu vinnumenn hans leit að
honum og fundu hann liggjandi
á bakið milli þúfna úti á túni.
Brást hann reiður við þessu
ónæði; kvaðst hann hafa verið
að telja stjörnurnar og hafa átt
aðeins fáar eftir, þegar þeir
komu.