Heimskringla - 30.11.1938, Síða 1
LIII. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 30. NÓV. 1938
NÚMER 9.
íslendingar vestan hafs minnast
fullveldis Islands
Skipbrots-maðurinn
(Með viðurkenningu til Thorv. Péturssonar)
Fyrsta desember verður full-
veldis íslands víða minst vestan
hafs.
f Winnipeg fer fram útvarp
frá CJRC stöðinni kl 10.15 að
morgni. Hefir ekki gefist tæki-
færi að auglýsa þetta sem
skyldi, en þeir sem línur þessar
verða búnir að sjá fyrir þann
tíma, ættu á það að hlusta. Þess-
ari skemtiskrá verður á hljóm-
plötum aftur útvarpað kl. 5.00
að kvöldi; það útvarp hefir áður
verið auglýst. Að nauðsyn rak
til að hafa útvarpið fyrst að
morgni, var ekki vitað um fyr
en of seint var að auglýsa það
með nægum fyrirvara. En auð-
vitað er það sama útvarpið og
kl. 5.00 að kvöldinu.
Þjóðræknisfélag yngri íslend-
inga í Winnipeg, efnir til vold-
ugrar samkomu í Embassy Hall,
er byrjar kl. 6.45 að kvöldi. —
Verða ræðumenn þar Mr. F.
Stevens, Mr. G. S. Thorvaldson
Dr. A. Blöndal, o. fl.
í Chicago verður útvarpað
ræðu og söng í tilefni af full-
veldisdeginum kl. 3.45 e. h. frá
útvarpsstöðvum WCFL; bylgju-
lengd 970. Syngur Guðm. Kristj-
ánsson þar: “Ó guð vors lands”
og próf Sveinbjörn Johnson flyt-
ur ræðu.
í Norður Dakota birtist í öll-
um málsmetandi blöðum fylkis-
ins á fullveldisdaginn ritgerð um
Réttarstöðu íslands, eftir Guð-
mund dómara Grímsson í Rug-
by, N. Dak.
Vestur í Seattle höfum vér
frétt að fullveldisdagsins verði
minst, en á hvern hátt, 'er oss
ekki kunnugt um; verður þar
líklegast um samkomu að ræða,
en ekki útvarp.
í Wynyard var í síðustu Hkr.
auglýst samkoma og verður út-
varpið frá Winnipeg hluti af
skemtiskránni þar.
Vel getur verið að fullveldis-
dagsins verði víðar minst með
samkomum, þó það hafi ekki
verið auglýst í blöðunum eða
þeim hafi fregnir af því borist.
Hefðir þú sjón, þá hér þú mundir sjá
við hlið hans standa engil, — drottni frá.
Á sandinn hljóða starir stjörnu-mergð,
en stunur hafsins leika undir-spil
við hugsun manns, sem himins mænir til
með höggvinn skjöld og brynju—og slitið sverð.
Sem brotið skip, af brim-sjó rekið lífs,
er bárur kaldar hafa leikið við,
hann liggur hér við ömurleika alls,
og ekkert sem að veitir honum grið.
En þá er eins og einhver rödd og mund
hann endur-reisi: “Tak þú sæng og gakk,
þú lifir enn, — þú aðeins féllst í blund —
og ávaxta og margfalda þitt pund”.
* \
Hann stendur upp. Mót austri er ganga hafin
mót austri og sól, — en skip-brots sagan grafin.
Páll S. Pálsson
Skáldið Magnús Markússon áttræður
Ljóðlínur fluttar að kvöldskatti, er samferðamenn héldu
honum til heiðurs, 28. nóvember 1938.
FAGNAÐAR MóT
Mánudagskvöldið þann 28. þ.
m., var skáldinu og íþróttamann-
inum hr. Magnúsi Markússyni
haldið veglegt samsæti í Em-
bassy veitingaskálanum á Por-
tage Ave.
Á annað hundrað manns sóttu
fagnaðarmót þetta, sem var hið
virðulegasta í alla stað. Skemtu
gestirnir sér hið bezta við mat
og drykk, söng, frumort kvæði,
og ræðuhöld.
Að lokinni máltíð stóð dr.
Rögnvaldur Pétursson upp úr
sæti sínu og flutti sköruglega
ræðu fyrir minni heiðursgests-
ins, hvar í hann mintist átthaga
hans og ættar, ásamt æfistarfs.
Þar næst flutti skáldið Þ. Þ.
Þorsteinsson frumort kvæði til
heiðursgestsins.
Dr. Sig. Júl. Jóhannesson
mintist heiðursgestsins sem
skálds og lauk lofsorði á form-
fegurð og braglistar hæfilegleik
hans. Næs^‘ talaði G. E. Eyford
fyrir minni heiðursgestsins, sem
íþróttamanns og mintist hinna
mörgu sigra er hann vann í
kappgöngum og kapphlaupum,
fyr á árum. Því næst las Mr.
G. E. Eyford frumort kvæði,
sem dr. Richard Beck sendi
heiðursgestinum, þar eð hann
gat ekki verið viðstaddur. Þá
flutti Mr. E. P. Johnson heiðurs-
gestinum einkar hlýtt og fjörugt
ávarp.
Milli ræðanna voru sungnir ís-
lenzkir alþýðusöngvar, undir
stjórn Mr. Péturs Magnús. Hin
velþekta söngkona Miss Lóa
Lavidson, söng nokkra ein-
söngva. Á píanóið lék fyrir
söngnum Mr. Gunnar Erlends-
son. Samkomunni stýrði Mr. Jón
J- Samson, og fórst það mynd-
arlega að vanda.
Þegar skemtiskránni var lokið
ávarpaði samkvæmisstjórinn
heiðursgestinn, og færði honum
dálitla peningaupphæð, sem
hann kvað vera hinn áþreifan-
lega vott um virðingu og vinar-
hug gestanna hans>
Að því búnu þakkaði heiðurs-
gesturinn þá velvild og virðing
er sér væri sýnd með þessu
virðulega samsæti.
Var því næst sungið “Ó Guð
vors lands” og “God Save the
King.”
Allir fóru heim glaðir í hug
yfir því, að hafa haft tækifæri
til að sýna þessum aldraða, en
þó andlega unga og fráa vini sín-
um Mr. Magnúsi Markússyni
þakklæti og velvildar vott.
G.
FRÓNSFUNDUR
Ársfundur þjóðræknisdeildar-
innar “Frón” verður haldinn í
efrisal Góðtemplarahússins —
mánud. 5. des. n. k. kl. 8.15 e. h.
Það er mjög áríðandi að allir
félagsmenn sæki þenna fund því
ársskýrslur verða lagðar fyrir
fundinn til athugunar og sam-
þyktar og stjórnarnefnd kosin.
Fundurinn hefst með einsöng
örn Thorsteinssonar. — Aðal
skemtiatriði fundarins verða
skuggamyndir forkunna fagrar
er dr. Lárus Sigurðsson hefir
látið búa til, og verða þær skýrð-
ar af Thorvaldi Péturssyni og
mun mörgum forvitni að sjá
þessar myndir af gamla heima-
landinu. Það er margt sem
bendir í þá átt að samtök okkar
Vestur-fslendinga eigi blómatíð
fyrir höndum. Nú nýverið var
útvarpað yfir þvert og endilangt
Canada íslenzku útvarpi frá
Vancouver og nú á fimtud. út-
varpið til fslands. Þá má og
nefna sigurför Jónasar Jónsson-
ar um bygðir vorar og greinar
Francis Stevens í Free Press og
sönghátíðirnar s. 1. sumar í
Dakota og Nýja-íslandi. Allir
þessir viðburðir hafa haft mikil
áhrif í þá átt að efla og örfa
menningarviðleitni okkar hér í
álfu. “Frón” hefir því ástæðu
til að líta björtum augum á
framtíðina og ef samtök og
dugnað skortir eigi ættu næstu
árin að verða sigursæl.
Nú á þessum vetri verður
“Frón” tuttugu árá og væri því
vel viðeigandi að minnast þess
með aukinni starfsemi og efl-
ingu félagsins. Það er því von-
andi að þenna fund sæki sem
allra flestir og komi viðbúnir að
ræða mál félagsins, hag þess og
framtíð. Munið að sækja fund-
inn.
Stjórnarnefndin
Engin orusta er geigvænlegri
og enginn sigur aðdáunarverðari
heldur en þegar maður berst við
sjálfan sig og sigrar.
Herbert N. Casson
Heill sé þér, Magnús Markússon,
sem mistir aldrei þá dýru von,
að morgundagur sé mætari þeim,
sem maðksmoginn kvaddi þenna heim.—
Við heiðrum þig, vorsól, vörmu geði,
og vígjum þig okkar Sléttu sól,
og ófæddum söngvum og sumargleði,
og sólskini handan við Tindastól.
I
Með miðaldra andlit og unglings svip
frá ætt þinni berðu menja grip:
Þær glöðu vonir og léttu lund,
sem lífinu endast að hinztu stund.
Teinréttur enn og frár á fæti,
fullgildur jafnt í starfi og leik,
áttræður skiparðu æsku sæti
öldunganna í vorri sveit.
Þótt blési á norðan svalt um sund,
og svellbunkar þektu varma grund,
þú aldrei barst hrakviðrin utan á þér,
né aumkvaðir þig við hvern sem er,
en reifur og ljóðglaður röddu hófstu
um roðin sundin og blóma grund,
og inn í þau söngvanna sumarlönd ófstu
það sólskin, er friðar á torreks stund.
Og kvæðin þín lipru með léttan hreim,
er lófsöngur fagnandi stjórnara þeim,
sem trúin gefur að treysta á,
þá taugarnar slitna jörðu frá.—
Og margt var starfið og mikið unnið
og mörg þín verkefni á landnáms öld,
sem átti þá vita, sem bezt hafa brunnið
og bjarmanum kastað á vestur-tjöld.
Þín samferð, er þökkuð, elzt og yngst.—
Þótt ef til vill hafi sporin þyngst,
þá berðu samt enn þá höfuð hátt,
og hælkrók á Elli setur þrátt.—
Við hyllum þig, vorsól, vörmu gerði,
og vígjum þig okkar miklu sól,
og ófæddum söngvum og sumargleði,
og sólskini handan við Tindastól.
Þ. Þ. Þ.
Magnús skáld Markússon áttræður
Þökk fyrir vor og lóukvak í Ijóði, '
léttstíg var'ætíð kvæða þinna dís.
Fegurðarástin brennur þér í blóði,
bragsnildin þín er jafnan áttavís.
■
Þökk fyrir kvæðin kærleikshlý og fögur,
kveðjurnar færðu margar þennan dag.
íslandi varstu ávalt góður mögur,
erfðum þess trúr i lífi og í brag.
Þökk fyrir sól og sumartrúna björtu;
sjónum þú lyftir yfir gröf og hel.
Söngvanna fræ, er sáðir þú í hjörtu
samferðamanna, geyma nafn þitt vel.
Richard Beck
Símskeyti frá forsætisráðherra Islands
Reykjavík, 20. nóv. 1938
Icelandic National League,
45 Home St., Winnipeg
Fjölment samkvæmi að hótel Borg haldið af Fram-
sóknarfélögunum í Reykjavík til þess að fagna heim-
komu Jónasar Jónssonar. Sendir fslendingum í Vestur-
heimi hugheilar kveðjur, þakkar þeim fyrir hið mikla
starf sem þeir hafa unnið fyrir fsland og óskar að ferð
Jónasar Jónssonar vestur um haf megi verða upphaf enn
nánara samstarfs og samhygðar íslendinganna beggja
megin hafsins.
F. h. samkvæmisnefndar,
Hermann Jónasson, forsætisráðherra
JóN BLÖNDAL DÁINN
í morgun um kl. 3 lézt að
heimili sínu í Wpg. Jón Ágústs-
son Blöndal, maður" um hálf
áttrætt, úr hópi fyrri ára ís-
lenzkra vesturfara og víðkunnur
á meðal Vestur-fslendinga. —
Hann skilur eftir sig konu, Jón-
ínu og tvö börn, Theodore og
Láru. Jarðarförin fer fram frá
Fyrstu lútersku kirkju n. k.
föstudag kl. 2 e. h. Jón var
mikils metinn maður, hafði ýms
vandasöm störf hér með hönd-
um, þar á meðal um langt skeið
umsjónarstarf í pósthúsi Man.
þinghússins. Ráðsmaður Lögb.
í rúm 10 ár. Gefst hér ekki
tími að skrifa um æfistarf hans,
en væntanlega verður það gert
síðar.
Ú RSLIT
bæjarstjórnar kosninganna
í Winnipeg
Queen endurkosinn
í bæjarstjórnarkosningunum í
Winnipeg sem fóru fram s. 1.
föstudag, var fyrverandi borg-
arstjóri, John Queen, endurkos-
inn. Verður hann því borgar-
stjóri tvö næstu ár 1939 og 1940.
Um borgarstjórastöðuna sóttu
þrír; fór atkvæðagreiðslan sem
hér segir:
Fyrsta talning
John Queen ..>....29,406atkv.
T. Sweatman ......20,235atkv.
E. D. Honeyman —.11,484 atkv.
önnur talning
Nú var atkvæðum Honey-
mans skift milli hinna tveggja
umsækjendanna. Hlaut Queen
2,157 atkvæði af þeim, en Sweat-
man 8,073. Af atkvæðum Hon-
eymans voru 1,254 aðeins merkt
einni tölu og komu því ekki til
skifta. Alls hafði þá Queen
31.563 atkvæði, en Sweatman
28,308.
Til að ná kosningu þurfti
30.563 atkv.
Mr. Queen hefir áður verið
þrjú ár borgarstjóri.
Bæjarráðsmenn
í bæjarráðið náðu kosningu
í Suður-Winnipeg:
Ald. R. A. Sara
Ald. Harry C. Morrison
Hugh MacKenzie
Enginn þessara nýkosnu, er
úr verkamannaflokki. Hinir
þrír fulltrúarnir úr þessari kjör-
deild, sem ekki sóttu (C. E.
Simonite, Mrs. McWilliams og F.
G. Thompson) eru það heldur
ekki.
í mið-Winnipeg voru þessir
kosnir:
Ald. Garnet Coulter
Ald. James Simpkin
Ald. C. Rhodes Smith
Einn þessara nýkosnu, Mr.
Simpkin, heyrir til verkmanna-
flokkinum. Af þeim fulltrúum
þessarar deildar, sem fyrir voru,
eru tveir verkamannasinnar, T.
Flye (óháður) og M. W. Stobart.
Hinn þriðji, Paul Bardal, er sem
kunnugt er liberal. f bæjarráð-
inu eru því 3 úr verkamanna-
flokki í þessari kjördeild, og 3
úr öðrum flokkum.
í Norður-Winnipeg hlutu þess-
ir kosningu:
Ald M. J. Forkin
Ald. M. A. Gray
Ald. Dan McLean
Fjórði maðurinn 1 þessari
deild sem kosinn var til eins árs
í stað D. M. Elchesen, var An-
drew Bilecki.
Af þessum eru 2, hinn fyrst
og síðast taldi, kommúnistar.
Gray tilheyrir verkamannaflokk-
inum. ‘ McLean er utanflokka.
Þeir sem fyrir voru í þessari
kjördeild í bæjarráðinu, eru J.
Penner, kommúnisti og J. Blum-
berg, verkaflokkssinni.
Bæjarráðið árið 1939 er því
skipað 3 kommúnistum, 5 úr ó-
háða verkamannaflokkinum (þar
með talinn T. Flye) og 10 úr
öðrum flokkum. Að öðru leyti
en því að kommúnistar hafa nú
bætt einum við, er styrkleiki
flokkanna hinn sami og áður.
Verkamannaflokkurinn er enn í
minni hluta.
Victor Anderson, eini landinn
sem í þessum kosningum sótti,
hlaut við fyrstu talningu um
2,800 atkvæði; hann var aðeins
200 atkvæðum fár í að ná í at-
kvæði sín við aðra talningu;
nutu þar aðrir góðs af. Og
sjálfsagt hafa þeir fslendingar
nú góða samvizku, sem ekki
greiddu honum atkvæði sitt, af
að hafa fengið annað þeim þókn-
anlegri í hans stað.
Skólaráð „
f skólaráðið hlutu þessir kosn-
ingu í Suður-Winnipeg:
R. B. Maclnnes, K.C., og J.
W. Hall, báðir nýir fulltrúar.
(Aðrir úr þessari kjördeild í
skólaráðinu, eru W. A. Cuddy,
E. F. Freer, Mrs. R. F. Rorke).
Engin verkamanna-sinni er úr
þessar kjördeild í skólaráðinu.
f Mið-Winnipeg voru kosnir:
H. B. Smith, endurkosinn,
verkaflokkssinni og James
Black, nýr, flokksleysingi. Aðrir
fulltrúar: Mrs. Jessie Maclenn-
an, verkaflokkssinni, Mrs. R. W.
Queen-Hughes, verkafl.sinni,
Adam Beck, flokksleysingi).
í Norður-Winnipeg voru kosn-
ir: W. C. Ross, kommúnisti og
W. Scraba, utanflokks, báðir
endurkosnir. (Aðrir fulltrúar í
þessari kjördeild: A: Bilecki,
kommúnisti, E. McGrath og M.
Averback, báðir verkaflokks-
sinnar). f skólaráðinu er styrk-
leika-hlutfall flokkanna svipað
og í bæjarráðinu.
Um $300,000 veiting til ýmsra
umbóta á skólum og viðgerða,
var feld. Með veitingunni voru
greitt 8,386 atkvæði, en 8,233 á
móti. Þrjá-fimtu atkvæða þurfti
með veitingunni.