Heimskringla - 07.12.1938, Síða 7
WINNIPEG, 7. DES. 1938
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA
VERÐUR LITHAUEN
BÚTAÐ SUNDUR EINS
OG TÉKKó-SLóVAKÍA
Um þessar mundir er mikið
rætt um framtíð ríkjanna í mið-
hluta álfunnar og suðaustur-
hluta álfunnar, vegna hinna stöð-
ugt vaxandi áhrifa Þjóðverja. —
Eitt þessara ríkja, Austurríki,
hefir verið sameinað Þýzkalandi.
Tékkó-Slóvakíu er verið að búta
sundur. Svo horfir sem Tékkar
og Slóvakar, vegna vonbrigð-
anna yfir því, að stuðningur
ríkjanna, sem stóðu að friðar-
samningunum, brást þeim á
stund neyðarinnar, hallist fram-
vegis að Þýzkalandi, og allar
líkur benda til, að nánari sam-
vinna, að minsta kosti á sviði
viðskifta, takist með Þjóðverj-
um og ýmsum fleiri þjóðum álf-
unnar, svo sem Júgóslövum. Búl-
görum og fleiri, en því traustari
sem viðskiftasamvinnan er, því
meiri líkur eru til, að hin póli-
tíska samvinna treystist að
sama skapi. — Um þann flokk
smáríkja, sem kallast Eystra-
saltsríkin, er minna talað sem
stendur, en það er margt sem
bendir til, að ýmislegt í sam-
bandi við þau, fari að koma á
dagskrá aftur. Þessi ríki urðu,
eins og Tékkó-slóvakía, til upp
úr heimsstyrjöldinni. — Eitt
þeirra, Lithauen, hefir orðið að
sætta sig við kúgun af hálfu
voldugs nágranna, Póllands, og
kannske er Lithauen það Eystra-
saltríkjanna, sem næst kemur
mest við sögu af smáríkjum
álfunnar. Er í eftirfarandi grein
vikið að ýmsu varðandi Lit-
hauen og vandamál Litháa og
er stuðst við greinaflokk, sem
birtist í víðlesnu, áreiðanlegu
amerísku blaði, um þessi efni.
Þegar menn ferðast um Lit-
hauen nú á dögum reka menn
fljótt augun í það, að hvar-
vetna hafa risið upp nýjar bygg-
ingar á bújörðunum — ný býli
hafa risið upp um gervalt land-
ið og yfirleitt virðist alt bera
miklu athafnalífi vott.
Landbúnaðarlögin sem sett
voru í þessu litla, unga lýðveldi,
eru farin að bera ávöxt. Með
þeim fengu bændur landsins ný
og betri skilyrði til þess að bæta
hag sinn og þeir hafa vissulega
notað þau, sér og þjóðarheildinni
til hagsbóta.
Lithauen er eitt þeirra ríkja,
þar sem fáir hafa safnað mikl-
um auði, og örbirgðin þekkist
þar ekki, þótt margir sé litlum
efnum búnir. Jafnvel hin minstu
bændabýli í Lithauen virðast
bera því vitni, að einnig þar
komist menn mjög sæmilega af.
f Lithauen tíðkast það hvergi,
eins og í Fríslandi og Saxlandi,
að hlöður og gripahús sé undir
sama þaki. í Lithauen rekur
ferðamaðurinn fljótlega augun í
“að útihús eru mörg — og korn-
skemmurnar stærstar — og
hestar, kýr og svín hafa sínar
sérstöku vistarverur.
INNKÖLLUNARMENN HEIMSKRINGLU
I CANADA:
Amaranth..............................J. B. Halldórsson
Antler, Sask........................-K. J. Abrahamson
Arnes...............................Sumarliði J. Kárdal
Árborg.................................G. 0. Einarsson
Baldur..........................................Sigtr. Sigvaldason
Beckville................................Björn Þórðarson
Belmont....................................G. J. Oleson
Bredenbury..............................H. O. Loptsson
Brown....'..........................Thorst. J. Gíslason
Churchbridge.........................H. A. Hinriksson
Oypress River............................Páll Anderson
Dafoe...................................S. S. Anderson
Ebor Station, Man...................K. J. Abrahamson
Elfros..............................J. H. Goodmundson
Kriksdaie..............................ólafur Hallsson
Fishing Lake, Sask.....................Rósm. Árnason
Foam Lake.............................H. G. Sigurðsson
Gimli.................................................K. Kjernested
Geysir............................................Tím. Böðvarsson
Glenboro.............................. G. J. Oleson
Hayland.............................Sig. B. Helgason
Hecla...............................Jóhann K. Johnson
Hnausa...................................Gestur S. Vídai
Húsavík...................................John Kernested
Innisfail......................................Ófeigur Sigurðsson
Kandahar........................................S. S. Anderson
Keewatin.................................Sigm. Björnsson
Langruth..............................................B. Eyjólfsson
Leslie...............................Th. Guðmundsson
Lundar..................k.....Sig. Jónsson, D. J. Líndal
Markerville........................ Ófeigur Sigurðsson
Mozart....................................S. S. Anderson
Oak Point......................... Mrs. L. S. Taylor
Oakview................................... S. Sigfússon
Otto............................................Björn Hördal
Plney.............................................S. S. Anderson
Red Deer.......................................ófeigur Sigurðsson
Reykjavík..........................................Árni Pálsson
Riverton.............................Björn Hjörleifsson
Selkirk........................ Magnús Hjörleifsson
Sinclair, Man......................K. J. Abrahamson
Steep Rock.......................................Fred Snædal
Stony Hill.......................................Björn Hördal
Tantallon.............................. Guðm. Ólafsson
Thornhill..........................Thorst. J. Gíslason
Víðir..............................................Aug. Einarsson
VRncouver..............................Mrs. Anna Harvey
Winnipegosis....................................Finnbogi Hjálmarsson
" fnnipeg Beach........................ John Kernestecf
Wynyard...................................S. S. Anderson
( BANDARÍKJUNUM:
Akra..................................Jón K. Einarsson
Bantry.................................E. J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash..................Mrs. John W. Johnson
Blaine, Wash...................Séra Halldór E. Johnson
t’avalier.............................Jón K. Einarsson
Crystal..............................LTh. Thorfinnsson
Edinburg..............................Th. Thorfinnsson
Garðar................................Th. Thorfinnsson
Urafton.......................................Mrs. E. Eastman
Hallson...............................Jón K. Einarsson
Hensel.................................J. K. Einarsson
Ivanhoe............................Miss C. V. Dalmann
Los Angeles, Calif....Thorg. Ásmundsson, 4415 Esmeralda St.
Milton.....................................S. Goodman
Minneota...........................Miss C. V. Dalmann
Mountain...........................................Th. Thorfinnsson
National City, Callf.....John S. Laxdal, 736 E 24th St.
Point Roberts..........................Ingvar Goodman
Seattle, Wash.........J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W.
Svold.................................Jón K. Einarsson
Upham...................................E. J. BreiöfjörO
The Viking Press Limited
Winnipeg; Manitoba
Flest hús eru bygð af timbri
og ríkið selur bændum og land-
nemum byggingarefni fyrir
sanngjarnt verð. Hagstæð lán
eru veitt til efniskaupa, því að
þau eru til langs tíma og af-
borganir litlar. Bændur eru
hvattir til þess að nota óeldfimt
byggingarefni í þök og því sjást
hvarvetna á hinum nýju húsum
skífuþök og járnvarin þök.
Það vekur sérstaka athygli
ferðalangsins í þeim héruðum,
þar sem nýtt land hefir verið
tekið til ræktunar, að megin á-
hersla er lögð á það af land-
nemunum, að koma sér upp
sæmilegum húsum fyrir gripi og
uppskeru fyrstu árin. Land-
nemar sætta sig við að búa í
bráðabirgðaskýlum meðan þeir
eru að koma upp útihúsum, en
þar sem landnám var hafið fyrir
2—3 árum eru komin upp snot-
ur og skrautleg íveruhús.
Mesta vandamál bónda í Lit-
hauen er að fá gott verð fyrir
afurðir sínar, en verðlagið fer
eftir skilyrðum heimsmarkaðs-
ins frekar en eftirspurninni
heima fyrir. Yfirleitt má segja,
að bændastéttin geri minni kröf-
ur til þæginda en alment tíðkast
í vesturhluta álfunnar. Og bænd-
ur í Lithauen verða flestir að
standa straum af nokkurum
skuldum í bönkum, en skuldir
þeirra eru yfirleitt minni en í
öðrum landbúnaðarríkjum álf-
unnar. En skuldabyrðin er
þeim erfið vegna þess, að til
skulda var stofnað þegar verð-
lag á landbúnarafurðum var
hærra en nú. Ríkið hefir reynt
að koma bændum til hjálpar í
þessum efnum, og lög hafa verið
sett til þess að ákveða launakjör
þeirra sem vinna hjá bændum,
en vinnufólki eru greidd laun að
nokkuru leyti í reiðu fé og að
nokkuru með landbúnaðarafurð-
um.
Bændur í Lithauen ræktuðu
til skamms tíma aðallega korn,
hafra, bygg, rúg og hveiti, kart-
öflur, ertur o. s. frv., en á síðari
árum hefir verið meiri stund
lögð á griparækt og mjólkur-
framleiðslu. Ríkið hefir komið
upp tilrauna- og fyrirmyndarbú-
um, og þaðan fá bændur úrvals-
gripi. Bændum er þar leiðbeint
um fóðrun og alla meðferð gripa
og afurða, til þess að þeir geti
fengið sem bezt verð fyrir kjöt
sitt og mjólkurafurðir. Sérstök
áhersla er lögð á að veita smá-
bændum og landnemum alla að-
stoð í té í þessum efnum og nú
er svo komið, að þeir eiga flestir
góða gripi og hafa mikinn áhuga
fyrir að eiga sem bezta gripi og
að vanda framleiðsluna sem
mest. Landbúnaðarráðuneytið
hefir stofnað eftirlitsstöðvar,
þar sem sérfræðingar átarfa og
ferðast um meðal bænda, leið-
beina þeim, og hafa eftirlit með
höndum hjá öllum bændum sem
stunda svínarækt og útfultning
á fleski fyrir augum. Á þessum
eftirlitsstöðvum eru gerðar fóð-
| urtilraunir, og þangað flytja
'bændur framleiðslu sína til skoð-
unar og flutnings. Ríkiseftirlit
er með öllum flesk-útflutningi,
framleiðslu mjólkurafurða og
útflutningi þeirra. Er því að-
eins flutt út fyrsta flokks vara
og útflutningur af fleski og
smjöri eykst með ári hverju..
Landbúnaðarráðuneytið hefir
með ýmsum ráðstöfunum komið
fram menningarlegum umbót-
um til hagsbóta fyrir bænda-
stéttina í Lithauen. Þannig hafa
verið stofnaðír bændaskólar og
til kveldnámskeiða fyrir bændur
og bændaefni og sveitakonur og
stúlkur. Þá hefir ráðuneytið
haft forgöngu í því, að ungir
bændur stofnuðu með sér félög,
það gefur út blöð og búnaðarrit
og styður ýmiskonar nýjar til-
raunir á sviði landbúnaðar. Æðri
búnaðarleg fræðsla fer fram í
búnaðarháskólanum 1 Dotnava,
en þar eru 45 kennarar, og er
stofnun þessi að öllu leyti rekin
af ríkinu. Búnaðarháskólinn
hefir aðsetur á stórri bújörð og
er það vitanlega eitt af mestu
fyrimyndarbúum ríkisins. Þar
fá nemendurnir einnig tækifæri
til þess að stunda verklegt nám
og fylgjast með ýmiskonar bú-
vísindalegum rannsóknum.
Miklar breytingar hafa orðið
í þessum efnum frá því er var
fyrir heimsstyrjöldina, því að \>£
miðaði ekki áfram á þessu sviði
frekar en öðrum, því að Rússar
létu sig litlu skifta velferð fylk-
isins. Rússneska stjórnin lagði
aðaláherslu á að finna markaði
f y r i r landbúnaðarafurðir
Ukraine og Síberíu, og sá fyrir
svo ódýrum flutningi á korni
þaðan, að korn frá Ukraine fékst
með lægra verði í Memel og Riga
en frá Lithauen, rétt hjá.
Landið var að mestu leyti í
eigu manna, sem lítið skiftu sér
af því og bjuggu ekki í fylkinu.
Eftir uppreistina 1861 var mik-
ið land í Lithauen tekið eignar-
námi og fengið Rússum í hend-
ur, en eftir byltinguna 1905 varð
sú breyting á, að talsvert mörg-
um litháiskum bændum var gef-
inn kostur á að eignast land til
ræktunar, og tókst þeim að
koma sér sæmilega áfram, með
aðstoð banka og samvinnufélaga,
sem um þessar mundir fóru að
koma til sögunnar. En yfirleitt
voru framfarirnar litlar meðan
Rússar réðu þar ríkjum. Og
meðan heimsstyrjöldin stóð yfir
var enn ver ástatt, því að þýzki
herinn, sem þar var, hirti fram-
leiðslu bændanna, og var land-
búnáður í Lithauen í rústum, er
styrjöldinni lauk. En þegar
sjálfstæðið var fengið tóku
bændur í Lithauen til óspiltra
málanna og hafa unnið að við-
reisnarstörfunum af svo miklum
áhuga og kappi, að fá dæmi eru
til, með ágætum árangri, enda
studdir vel af hinu opinbera
svo sem að framan getur.
Land var tekið eignarnámi af
þeim, sem ekki áttu heima í
landinu og fengið bændum í
hendur, og hermenn, sem barist
höfðu fyrir sjálfstæði landsins,
fengu land til ræktunar endur-
gjaldslaust, en þeir, sem keyptu
land af stjórninni, greiða fyrir
það í 36 ár. Erfingjar þeirra,
sem Rússar höfðu svift eignar
rétti á jörðum sínum 1861,
fengu þær aftur.
Ríkið hefir og tekið í sína um-
sjá alla skóga landsins og nauð-
synlegt land undir tilraunastöðv-
ar og fyrirmyndarbú, sjúkrahús,
elliheimili, barnahæli og skóla.
Yfirleitt verður eigi annað
sagt en að Lithaum hafi vegnað
vel síðan er þeir fengu ' sjálf-
stæði sitt og alt er þar í fram-
för. Og þeir, eins og hinar smá-
þjóðirnar við Eystrasalt, sem
fengu sjálfstæði sitt upp úr
heimsstyrjpldinni, hafa leitað
samvinnu við skandinavisku
þjóðirnar, einkanlega Svía og
Finna.
En fá þessar smáþjóðir hinna
nýju ríkja við Eystrasalt að
vera í friði, og vinna að sinni
eigin farsæld og mennigu fram-
vegis, eins og þessi tiltölulega
fáu ár, sem liðin eru frá því þau
fengu sjálfstæði sitt. *Margir
| óttast, að það sé aðeins tíma-
spursmál, hvenær stórþjóðirnar
gleypi þær, Rússar, Þjóðverjar
eða Pólverjar( sem eru stórþjóð
í samanburði við Lithaua, Eist-
lendinga og Lettlendinga).
Litháar og Pólverjar hafa
lengi deilt um Vilna og veldur
deilan því, að fullur fjandskap-
ur er undir niðri milli Pólverja
og Litháa, þótt hinir síðar-
nefndu hafi í öllum deilum sín-
um við Pólverja orðið að láta í
minni pokann. Litháar höfðu
til skamms tíma engan stjórn-
málafulltrúa í Póllandi og hót-
uðu Pólverjar að beita vopna-
valdi, ef Litháar tæki ekki upp
stjórnmálalega og viðskiftalega
samvinnu. — Deilan um Vilna
milli Litháa og Pólverja er göm-
ul. Hefir borgin alla tíð komið
mjög við sögu. Litháar áttu
Vilnahérað forðum, en Svíar her-
tóku borgina á 18. öld og síðar
- NAFNSPJÖLD -
■
Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldg. Skrlfstofusiml: 23 674 Stundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. Er að flnnl 6 skrifstofu kl. 10—12 f. h. o« 2—6 e. h. Heimlli: 46 AUoway Are. Talsimi: 33 lSt G. S. THORVALDSON B.A., LL.B. LögfrœOingur 702 Confederatlon Life Bldg. Talsiml »7 024
OfTIC* Phom* Ru. Phom* 87 293 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 100 MKDICAL ART8 BUIUDINQ Omc* Hours : 13 - 1 4 r.u. - 6 r.u. iKD BT APPOINTlárNT W. J. LINDAL, K.C. BJÖRN STEFÁNSSON ISLENZKIR LÖOFRÆÐINQAM 4 öðru gólfl 325 Main Street Talsimi: 97 621 Hafa etnnlg skrifstofur aB Lundar og Gimll og eru þar að hltta. fyrsta miovlkudag i hverjum mánuði
Dr. S. J. Johannes.ion 272 Home St. Talaiml 30 877 Vlðtalstlml kl. S—5 e. h. M. HJALTASON, M.D. ALMSNNAR LÆKNINOAK Sirgrein: Taugasjúkd&mar Leetur úti meðöl * vlðlögum VlBtalstimar kl. 2—4 • k. 7—» að kveldlnu Simi 80 867 866 Vlctor St.
J. J. Swanson & Co. Ltd. RSALTORS Rental. Inturance and Finaneial Agenti Slml: »4 221 600 PARIS BLDQ,—Wlnnlpeg A. S. BARDAL •elur likklstur og annaot um útfar- ir. Allur útbúnaður sá beetl. Ennfremur selur hann mlnnisvarða og legstelna. 843 8HERBROOKE 8T. Phone: 86 607 WINNIPBO
1 Gunnar Erlendsson Planokennari Kenslustofa, 796 Banning St. Sími 89 407 THL WATCH SHOP Thorlakson Baldwin Diamonds and Wedding Rings Agents for Bulova Watches Marriage Licenses Issued 699 Sargent Ave.
Jacob F. Bjamason —TRANSFEIU- Baggoge and Furniture líoving 591 SHERBURN ST. Phone 35 909 Annast allskonar flutnlnga fram og aftur um bœinn. Rovatzos Floral Shop *06 Notre Dame Ave. Phone 94 954 Freah Cut Flowers Dally Plants in Season We specialize in Wedding & Concert Bouquets & Funeral Designs Icelandlc spoken
Rússar. Fengu Rússar borgina eftir skiftingu Póllands 1795.— 1831 og 1863 var borgin mið- stöð byltingarmanna, sem reyndu að hrinda af sér ánauð- aroki Rússa árangurslaust. Eftir heimsstyrjöldina gerðu Litháar kröfu til Vilnu, en Pólverjar komu með hermenn og tóku borgina. Tilraunir Þjóðabapda- lagsins til að miðla málum báru ekki árangur. Vilna er mikil miðstöð korn- verzlunar. íbúatalan er um 200,- 000. — Þjóðhetja Pólverja, Josef Pilsudski, er fæddur í Vilna.—Vísir. MARGARET DALMAN TEACHER OF PIANO 854 BANNINO ST Phone: 26 420
DR. A. V. JOHNSON DENTIST 506 Somerset Bldg. Office 88124 Res. 36 883
SKODA-VERKSMIÐJURNAR
Framh. frá 3. bls.
smiðjurnar létu líka Hitler hafa
stórar fjárupphæðir áður en
hann var ríkisleiðtogi. Sá sem
var milliliðurinn í þeim við-
skiftum, var fjárbrallsmaðurinn
ÍAlfred Löwenstein, sem árið
1928 stökk eða féll úr flugvér
yfir Ermarsundi. Hitler og
Göring hljóta að brosa nú, er
^þeir hugsa til þessa skammsýna
1 manns, sem af ótta við kommún-
ista, gaf þeim margar verðmæt-
ar gjafir til þess að vopnasmiðj-
urnar í Mið-Evrópu gætu verið
|öruggar. En ólíklegt er að nú-
| verandi eigendum Skoda-verk-
'smiðjana finnist nú mikil á-
stæða til að brosa. Það er ekki
'líklegt, að þeir hafi orðið neitt
jupp með sér af því, þegar Her-
mann Göring lýsti yfir því, að
hergagnaverksmiðjur þeirra
væru þýingarmeiri fyrir “þriðja
ríkið’’ en Súdetahéruðin. Þeir
vita sjálfsagt með vissu, að for-
ingjar þýzkra þjóðernissinna
ætla sér að steypa félagi þeirra
saman við hinn risavaxna stál-
og námuhring, sem kallaður er
“Hermann Göring Werke”, og
nú lykur um allar verksmiðjur
Fritz Thyssen, keppinauts
Krupps, og sem eftir töku Aust-
urríkis var sameinað hinu stór-
auðuga Alpa-Mortan-félagi.
— (Lausl. þýtt úr Nation, N. Y.)
ATH.— Herngagnaframleiðsla
Skoda-verksmiðjanna hefir ver-
ið flutt frá Pilsen, sem er í Sú-
detahéruðunum, fyrir nokkru
síðan, og verður því áfram inn-
an landamæra Tékkó-slóvakíu.
En vegna þess, hvað Tékkó-sló-
vakía verður fjárhagslega og
viðskiftalega háð Þýzkalandi.
munu Þjóðverjar auðveldlega
geta haft ráð verksmiðjanna í
hendi sér. Aðeins tvær vopna-
verksmiðjur í heiminum hafa
meiri framleiðslu en Skoda-verk-
smiðjurnar, Krupp í Þýzkalandi
og Schneider í Frakklandi.
—Tíminn.
Rómaborg var ekki bygð á
einum degi — heldur þremur. —
Þessi Rómaborg er í Ameríku.
Járnbrautarfélag eitt þurfti að
byggja íbúðir fyrir 1000 verka-
menn og á þremur dögum var
reistur heill bær, sem kallaður
var Rómaborg.