Heimskringla - 05.04.1939, Page 5
WINNIPEG, 5. APRÍL 1939
HEIMSKRINGLA
5. SÍÐA
sjálfsögðu er fjöður í hatt þeirra
Hitlers og Mussolini en vonbrigði
fyrir Roosevelt í hinni göfugu
viðleitni hans til verndar lýð-
ræðisins og andlegum óðulum
vorum og frelsi.
4. Frumvarpið vekur
óeining í Canada
Af því þetta erindi er orðið
of langt ætla eg ekki að ræða
þessa hlið málsins í þetta sinn.
En ótal rök og sannanir er hægt
að bera fram til að sýna að ef
frumvarpið er borið fram á
þessu þingi mun það vekja
mikla sundrung 1 Canada. Það
verður að tilfinninga máli, skap-
ar sár sem ef til vill aldrei gróa.
W. J. Líndal
Winnipeg, 28. marz 1939.
Síðan ofanrituð grein var
skrifuð hefir þetta málefni verið
rætt á þinginu í Ottawa. Eftir-
fylgjandi kaflar úr ræðum Mr.
King, Mr. Lapointe og Dr. Man-
ion lýsa afstöðu Canada:
Mr. King: — “Sú staðhæfing,
að þegar Bretland er í stríði þá
só og Canada 1 stríði, er á þeim
raunveruleik bygð sem verður að
kannast við.
“Það hefir verið farið fram á
að sambandsþingið ætti að lýsa
yfir hlutleysi Canada — þangað
til þingið ákvæði að fara í stríð.
“Að mínu áliti er ekki æski-
legt og engin þörf að ákveða slík
lög.
“Bæði er það að skoðanir
manna yrðu skiftar um það hvort
eitt þingið, útaf fyrir sig, gæti
löglega gert það, og svo yrði það
til þess að skapa heift og ofsa
og ágreining um alt land, en sem
mundi vera huggun og hjálp fyr-
ir óvini Bretlands.
Mr. Lapointe: — “Sú skoðun-
in yfirgnæfir hina að Canada er
í stríði þegar Bretland er í stríði
og er sú skoðun bygð á því að
konungssambandinu er ekki
hægt að skifta í hluti.
“Það er einkennilegt að þeir
sem eru með hlutleysinu eru
mest móti herbúnaði. Hlutleysi
útheimtir að hafa kraft til að
verja sig og Canada þyrfti meiri
varnar krafta ef hún væri hlut-
laus en eins og nú er.
“Canada þingið er ekki enn
fullvalda. Það verður að leita til
Brezka þingsins til þess að áfría
málum til leyndarráðsins
Brezka (Privy Council).
“Þetta tvent verður að afnema
áður en Canada getur verið hlut-
laust og sjálfstætt.
“Hlutleysi heimtar að báðum
stríðsþjóðunum sé sýnd hin
sama óhlutdrægni. Það er efa-
mál hvort hægt væri að gera það
til lengdar.”
Dr. Manion: — “Forsætisráð-
herrann, dómsmálaráðherrann
og innanríkisráðherrann viður-
kendu í janúar s. 1. að þegar
Bretland er í stríði þá væri Can-
ada í stríði en Canada þingið á-1
kveður hver og hvers eðlis þátt-
taka Canada verður. Það er
einnig mín skoðun.
Canada getur ekki lýst yfir
hlutleysi sínu í stríði nema með
því að segja sig úr sambandinu.
Við getum ekki verið í ríkis-
sambandinu og út úr því á sama
tíma. Eg held að flestir, sem
íhuga þetta mál í alvöru séu mér
sammála.”
W. J. L.
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU
BORGIÐ HEIMSKRINGLU
“Á ÞVl SKULU ALLIR
ÞEKKJA”
Ræða eftir séra Jakob Jónsson
Af því skulu allir þekkja,
að þér séuð mínir lærisvein-
ar, að þér berið elsku hver til
annars. (Jóh. 13, 35)
Eg býst við, að þér hafið tekið
eftir því, hvernig eitt eða tvö
orð geta stundum hrundið hug-
anum af stað og um leið orðið
til þess að þér fóruð að hugleiða
eitthvað, sem áður var svo
hversdagslegt, að þvi var enginn
gaumur gefinn. Það má líkja
þessu við það, þegar vér erum á
ferð gangandi um vel þektan veg
og í héraði, þar sem alt er oss
svo kunnugt, að oss dettur ekki
framar í hug að gefa landslag-
inu verulegan gaum. Alt í einu
rekum vér fótinn í stein eða rót-
aranga; þetta verður til þess að
vér hrökkvum við, lítum upp og
fyrir auganu verður tré, höll,
lækur eða eitthvað sem vér höf-
um hundrað sinnum séð — en
aldrei horft á, aldrei skoðað eða
virt fyrir oss. Þannig fór einu
sinni fyrir mér, þegar eg var að
lesa grein í íslenzku blaði. Mér
er nú ómögulegt að muna, um
hvað greinin var eða eftir hvem
bún var. En eg rakst þar á
orðatiltækið “nemendur kirkj-
unnar”. Mér fanst fyrst eitt-
hvað undarlegt við þetta: nem-
endur kirkjunnar. Það er venju-
legra að heyra talað um safnað-
arfólk, safnaðarmeðlimi, sóknar-
menn, kirkjufólk, kirkjuvini og
jafnvel kirkjugesti, eftir því, frá
'hvaða sjónarmiði talað var, eða í
hvaða sambandi. Orðið nem-
endur var þarna, eins og dá-
lítill skrítinn steinn, sem maður
rekur fótinn í. En þegar eg leit
upp, lentu mínar innri sjónir á
bletti, sem vakti athygli mína,
og um leið varð eg undrandi yfir
því, að eg skyldi ekki hafa oft
tekið eftir þessu áður og hugsað
um það. Nemandi er einmitt
það orðið, sem í nútíma íslenzku
er notað um lærisveina. Eldra
orðið er að vísu til, en það heyr-
ist afar sjaldan, nema í biblíu-
málinu. Og mér flaug í hug, að
ef ekki vær til nein eldri þýðing
á biblíunni og vér ættum að
'þýða hana á íslenzku í fyrsta
sinn, mundum vér sennilega
þýða gríska orðið “diskipulos”
með orðinu “nemandi”. Þá
mundi t. d. textinn, sem eg legg
út af í dag, hljóða þannig: Af
því skulu allir þekkja, að þér
séuð nemendur mínir, að þér
berið elsku hver til annars.” —
Setningin “farið og gerið allar
þjóðir að lærisveinum,” mundi
verða “farið og gerið allar þjóð-
ir að nemendum”, o. s. frv.
Nú má segja, að það geri
minst til, hvort orðið er notað,
en það er annað, sem vér ósjálf-
Irátt spyrjum að: Hvernig stend-
ur á því að oss kemur nærri því
á óvart að heyra talað um nem-
endur kirkjunnar eða nemend-
ur Krists, og þó var þetta það
heiti, sem hann nefndi sjálfur
þá menn, er honum fylgdu að
staðaldri. Er það ekki í rauu
og veru áf því, að vér höfum
verið búin að gleyma því hvað í
lærisveinsheitinu lá — tengdum
við það annarlegar hugmyndir*?
Kirkjan hefir á öllum öldum
skoðað sig sem samfélag læri-
sveina Krists; þegar tímar liðu
fram, og frumkristnin sjálf var
mönnum úr minni liðin, öðru
NY UPPGÖTVUN
“KLEER-HED” RAF-VAPORIZER
Fyrir CATAKRH
FLU
BRONCHITIS
ASTHMA
HAY FEVER
DEAFNESS
(Caused by Catarrh)
Ný aðferð, lœknar undir eins. Er hægt
að nota heima, á skrifstofum, eða úti
í sveit. Auðvelt að nota, ódýr, alg-er-
lega ábyrgstur, Ahald þetta hefir tek-
ið mörg ár að fullkomna. Er hægt að
nota á nótt sem degi Læknar skjótt.
HEAI) NOISES
SINUS TROUBLE
o. s. frv.
VIÐ BJÓDUM YÖUR AD KOMA
OG REYNA HANN FRITT
Dunlop Prescription Pharmacy
Cor. KENNEDY & GRAHAM
Agentar fyrir nýju
Telex Hearing Aids
eins ný og sjónvarp.
vísi en af bókum varð alt form
kirkjunnar fastara og um leið
myndaði hún sér lög, reglur og
stefnuskrár, sem loks urðu svo
að segja óhagganleg kynslóð
fram af kynslóð. Þá var um
leið lagður fastur mælikvarði á
það, hvenær menn skyldu
teljast lærisveinar og hvenær
ekki. Sú regla komst á, að nýir
meðlimir, sem gengu inn í hið
kirkj ulega samf élag, skyldu
læra sérstaka fræði, áður en þeir
yrðu staðfestir meðlimir þess. —
Slíkt var vitaskuld ekki nema
eðilegt, frá því sjónarmiði séð,
að menn yrðu að hafa einhverja
ákveðna þékkingu á Kristi til að
bera, áður en menn gengu inn
í kirkju hans. En slíkt varð
ekki nóg. Á miðöldunum náði
þessi undirstöðuþekking til fleiri
atvika en æfiatriða og kenning-
aratriða Krists sjálfs. Eins og
gefur að skilja eiga allar kyn-
slóðir sér einhverja hugmynd
um heiminn, hvernig hann sé
bygður upp, raðað niður og
stjórnað. Vísindalegar rann-
sóknir yoru þá ekki til en það var
tvent, sem menn fóru eftir, ann-
ars vegar biblían öll sem heild,
og hins vegar rit gríska heim-
spekingsins Aristotelesar. Menn
gengu út frá þessum ritum sem
ábyggilegum í alla staði. Þeir,
sem vildu vita, hvernig heimur-
inn væri gerður, smíðuðu sér þá
ekki stjörnukíkja eða smásjár,
þeir grófu ekki í jörð eftir forn-
rústum eða horfðu í gegnum lif-
andi líkama með Röntgen-geisl-
um. En þeir grófu djúpt eftir
hugmyndum biblíunnar um jörð-
ina og himininn og grand-skoð-
uðu hugmyndir gríska heim-
spekingsins um manninn. Á-
rangurinn af þessu öllu saman
varð stórkostleg og mikilfengleg
bygging — heimsskoðun ifiiðald-
anna. Þessari heimsskoðun þárf
ekki að lýsa. Þér þekkið hana
að meira eða minna leyti. Og
það er heldur ekki ætlun mín að
ræða það í dag, hvort jörðin sé
flöt og himinninn hvolfþak,
hvort vatn sé undir jörðinni, hve
himnarnir séu margir, hvar hel-
víti sé, hvernig eigi að orða
heimspekilega sambandið milli
föður, sonar og heilags anda,
hvernig andinn taki sér bústað
í holdinu, hvernig Kristur hafi
gerst holdi klædd vera, hvernig
maðurinn var skapaður, hve
marga daga guð var að skapa
heiminn o. s. frv. — Eg tek
þetta aðeins sem dæmi. í öllu
því, sem eg nefndi felast atriði,
sem altaf hljóta að koma til
greina, þegar um það er að ræða
að mynda sér heimsskoðun. Og
þau eru öll hvert öðru þýðingar-
meiri frá því sjónarmiði séð —
sem tilraunir hinna eldri kyn-
slóða til þess að gera sér grein
fyrir útliti og eðli heimsins. —
Þetta eru sömu vandamálin og
þau, sem vér erum að reyna að
leysa með hjálp svo ótalmargra
tækja og verkfæra, sem þessir
forfeður vorir höfðu ekki hug-
mynd um. Eg sagði áðan, að
kristin kirkja hefði gert ráð
fyrir, að meðlimir sínir hefðu
veitt viðtöku vissri og ákveðinni
fræðslu, og í þeirri fræðslu hefði
verið innifalið meira en aðeins líf
og kenning Jesú sjálfs. Það var
sjálft hið mikla kerfi heims-
myndarinnar. Kristsfræðin varð
aðeins einn liður í heimsfræðum
þeirra tíma.
En var nokkuð óviðkunnanlegt
eða óeðlilegt við þetta? spyrjum
yér nú.
Nei, síður en svo.
Þetta var tilraun til að gera
börnum og fullorðnum einhverja
hugmynd um heiminn, eins og
þegar vér erum að senda ungl-
ingana 1 skóla til að fræða þá
um tilorðning sólkerfanna, um
jörðina, manninn, sálarlífið,
framþróunina, líkamsvefina. —
Alt slíkt var gott og blessað. En
það var annað sem kirkjan gerði
skakt í. Hún gerði játningu á
þessari heimsskoðun að skilyrði
fyrir því að vera sannur meðlim-
ur kirkjunnar. Hún sagði: Á
því skulu allir þekkja, að þér
séuð mínir lærisveinar, að þér
vitið og samþykkið öll þessi
fræði. Meðlimur kirkjunnar
var m. ö. o. ekki lengur nem-
andi. — Hann átti að vera full-
numa, meira að segja svo full-
numa, að hann gæti ekkert lært
í þessum efnum af öðrum trúar-
brögðum eða af síðari tíma
mönnum. Af þessu leiddi, að
þegar kristnin var boðuð í öðr-
um löndum þá þurftu þær þjóðir,
sem við henni tóku, að breyta
alveg um sína heimskoðun. Fjöl-
margar þeirra áttu merkilegár
sköpunarsögur, en um leið og
|þær tóku við Kristni, urðu þær
að fleygja þeim, og taka við
sköpunarsögu gamla testament-
isins. — Fornmenn á fslandi
trúðu því, að regnboginn væri
brú milli himins og jarðar. Um
leið og þeir tóku trú á Krist,
urðu þeir að álíta regnbogann
tákn frá guði, til staðfestu því,
að hann ætlaði ekki að eyða jörð-
inni í annað sinn með vatns-
flóði. Indíánar trúðu á andann
mikla, sem sveimar yfir slétt-
unum. Um leið og þeir með-
tóku Krist, þurftu þeir um leið
að meðtaka óskiljanlegar skýr-
ingar grískra eða alexandríska
presta á eiginleikum og eðli
guðs. — Og þó útlistaði Kristur
aldrei sköpunarsöguna, eða regn-
bogann, og lýsingar hans á guði
voru sagðar með dæmisögum,
sem engan heimspeking eða
guðfræðing þurfti til að skilja.
Þegar kristin “trú” breiddist
út um heiminn, kom kirkjan því
yfirleitt alstaðar til leiðar, að
i heimsmynd manna breyttist. En
víðsvegar um heim fer ennþá
fram önnur barátta. Það er
'stríðið milli hinnar gömlu heim-
skoðunar og annarar, sem er að
mótast fyrir áhrif nýrri vísinda.
I Enginn vafi er á þvi, að hin
gamla lífsskoðun miðaldanna, sú
; sem einu sinni var samferða
; kenningu Krists, er farin sína
leið, og nú spyrja margir: Fer
þá ekki kristindómurinn um
leið ? Er þá ekki kirkjan orðin að
engu, þetta samfélag lærisveina
Krists ?
Þeir menn eru t. d. til, sen
halda, að ef mannkynið sé a<
líkamanum eitthvað í frændsem
| við apana, sé allur kristindómui
úr sögunni. Og ef menn aðhyll
ist aðrar skoðanir á samband
holds og anda, holdtekju Krists
upprisunni og heimsendi, en þæi
sem tilheyrðu hinni form
heimsmynd, geti menn ekk
gerst lærisveinar Krists. Ef sv>
er, þá er kristindómurinn áreið
! anlega úr sögunni. Ef einkenn
! kristins manns á að vera það, a<
hann aðhyllist fullkomna og ó
umbreytanlega heimsmynd, —
sé fullnuma en ekki nemandi, þ:
verði það sennilega fáir á meða
|vor, sem talist geta kristnir.
|
En sem betur fer, er þess
hugsunarháttur rangur. Li
! Jesú sjálfs, eins og því er lýst
guðspjöllunum, mælir á móti þvi
jÞar sjáum vér Jesú veita við
Áöku fólki eins og rómverskun
hundraðshöfðingja, kanverskr
j konu, samverskri konu og í annai
jskifti samverskum karlmanni, oj
svo ótal mörgum af sínu eigii
þjóðerni. En hann gerði ekk
neina rekistefnu út af skoðunun
þessa fólks á þeim efnum, sen
eg drap á áðan. Hann rædd
ekki við það um hvernig heimur
inn væri bygður upp eða hverni;
himnaríki væri innréttað, heldu
um persónulega afstöðu guðs
barnsins við föður sinn. Hii
eigirilega guðfræði í prédikui
Jesú er svo lítil, er þar eiginleg:
ekki um neina guðfræði að ræða
Megin hugmyndirnar eru faðern
guðs, bróðerni mannanna og <:
dauðleikinn. Hann heimtar ekk
að fylgjendur sínir hafi fastmót
aðar skoðanir á heimi og himni
hann tekur við þeim sem nem
endum, sem stöðugt skuli hald
áfram að læra. Af þessu leiðii
að hinir sönnu fylgjendur Jes
geta verið menn, sem aðhyllast
hinar ólíkustu skoðanir á heims-
myndinni. Jesús er fyrst og
fremst til þess kominn að skapa
nýtt andlegt viðhorf við lífinu
sjálfu — glæða trú og kærleika
gagnvart guði og öðrum mönn-
um — leiða mannkynið til
bræðralags, sem ristir dýpra en
nokkur guðfræði óg nokkur
heimsskoðun. Hann segir því
ekki að lærisveinar sínir skuli
þekkjast á vissum fræðikerfum,
heldur á hinni guðrænu tilfinn-
ingu mannshjartans, elskunni.
“Á því skulu allir þekkja að þér
séuð mínir nemendur, að þér ber-
ið elsku hver til annars? Ef til
jvill er kristinni kirkju að verða
Iþetta ljósara nú en nokkru sinni
fyr, síðan á dögum Jesú sjálfs.
Nú er talað um mann, eins og
Mahatma Ghandi sem nemenda
Jesú Krists, þó að hann sé
Hindúi í trúarbragðalegu tilliti.
Og er það ekki furðulegt, að
ýmsir göfugustu trúboðar, sem
nú eru uppi, skoða heimsmynd-
ina s^m aukaatriði, en líf Krists
sem aðalatriði. Stanley Jones
starfar meðal æðri stétta Ind-
lands, Albert Schweizer meðal
blökkumanna í Afríku. Báðir
virða heimsskoðanir þeirra þjóða
sem þeir eru hjá, og báðir reyna
að gegnsýra þjóðlífið hver í
sínu landi af anda Krists og á-
hrifum, þannig að líf mannanna
mótist af trú á lífið og ást á því,
sem lifir. Innan hinnar kristnu
kirkju í Evrópu og Ameríku verð
ur hinnar sömu viðleitni vart. —
Hin guðfræðilegu hugsanakerfi,
er tengd voru heimsmyndinni
gömlu, er lögð til hliðar fyrir
vandamálinu mikla að sameina
menn í anda Krists til tilbeiðslu
við guð föður og til þjónustu
hver við annan.
Enn eitt dæmi þess, hvernig
kristnir hugsjónamenn eru farn-
ir að miða kristið nafn meira við
kristilegt hugarfar heldur en við
töku fræðikerfa, barst mér að
eyrum í útvarpinu í fyrra vor.
Ritari Y. M. C. A. í Kína var að
segja frá hinum kristna þjóð-
höfðingja Chiang-Kai-Shek. —
Hann sagði, að Chiang-Kai-Shek
hefði verið spurður hvort honum
þætti ekki eins mikið koma til
hinna kínversku fornrita og
biblíunnar. Jú, svaraði Chiang-
Kai-Shek. Og eg segi það af því
að eg hefi lesið fornritin ræki-
lega. En eg hefi líka lagt stund
á biblíuna, og hún segir frá lífi
og kenningu Krists, en það er
hann, sem með áhrifum sínum
og anda umskapar hjarta manns-
ins, til kærleika og hreinleika.
Heimurinn er fullur af eldi
ófriðar og haturs. Þá og þegar
getur skollið á önnur heims-
styrjöld. Aldrei hefir reynt
annað eins á kirkjuna eins og nú
— ekki til að elta ólar við trú-
fræðileg viðfangsefni heldur í
því að styrkja bræðralag mann-
anna. Ef vér, nemendur kirkj-
unnar skiljum hlutverk vort
rétt, ríður meira á voru starfi en
nokkru öðru, ekki sízt þegar út-
litið er eins og það er nú: Það
er að safna mönnum af öllum
þjóðum, öllum kirkjudeildum og
Þér sem noti?5—
TIMBUR
KAUPIÐ AF
THE
Empire Sash & Door
CO., LTD.
Birgðlr: Henry Ave. Eait
Sími 95 551—95 552
Skrtfstofa:
Henry og Argyle
VERÐ - GÆÐI - ÁNÆGJA
öllum trúarbrögðum til fylgis við
hina einföldu stefnuskrá Jesú.
Að það starf þurfum vér að
hefja heima — á því að efla
kristilegan kærleika og bróður-
hug í vorri eigin bygð. En
kristilegur kærleikur er sá kær-
leikur, sem Krísti er líkur, ekki
góðlátlegt meinleysi, heldur vís-
vitandi starf o^ athöfn. “Á því
skulu allir þekkja, að þér séuð
mínir nemendur, að þér berið
elsku hver til annars.”
Enginn lofsöngur — engar
pálmagreinar — engin blómstráð
braut — engin hósanna hróp eru
einkenni á þér sem nemenda
Krists, heldur kærleikurinn einn.
Amen.
“YOUNG ICELANDER’S
NEWS”
Dance
The dance at the Marlborough
Hotel, Márch 31, 1939, was a
representative gathering of the
Icelandic Community and their
friends. A very enjoyable even-
ing was the result.
The Executive and Social
Committee wish to thank the
patrons for their support and
Dunlop’s Prescription Pharmacy
for decorations donated.
Kid’s Party
A Kid’s party will be held at
the Jón Bjarnason Academy, on
Friday April 14, 1939 at 8.30
p.m.
A very interesting program
has been arranged, and we urge
all Icelanders and their friends
to attend.
Get your kiddy costume ready
—you will not be admitted un-
less dressed in a juvenile fash-
ion.
Everybody Welcome!
The next general meeting of
the Young Icelanders ,will be
held at the home of Olga Ben-
son, 2295 Portage Ave., April
16, 1939, at 8.30 p.m. Those
going to the meeting, meet at
the J. B. Academy at 8.15. Would
members and prospective mem-
bers bring their cars to assist in
transportation ?
The guest speaker of the even-
ing will be Mr. Terry Arnason.
Heimskringlu hafa verið send
nokkur eintök af f jórða bindi rit-
gerða-safns Jónasar Jónssonar
alþingismanns og beðin að selja
þau. Verð bókarinnar er $1.15.
Hér er um aðeins fá eintök að
ræða. Þeir sem eignast vildu
bókina, ættu því að kaupa hana
sem fyrst.
Verið Velkomin
A Laugardags spilakvöldin
í Sambandskirkjusalnum
Næsta spilaskemtunin verður laugardagskvöldið 8.
apríl. Byrjar á slaginu kl. 8!
Takið eftir: Spilaðar verða 20 hendur.
Verðlaun veitt á hverju kvöldi fyrir hæztu vinninga.
Að Bridge-spilinu loknu, verða frambornar kaffi-
veitingar. Þar á eftir fara fram ýmiskonar skemtanir.
Munið eftir hvað vel þér hafið skemt yður undan-
farna vetur á þessum spilakvöldum.
Undir umsjón Ungmennafélags Sambandssafnaðar
yfir apríl-mánuð.
The Saturday Night Club