Heimskringla - 26.06.1940, Page 1
The Modem Hoiiseulfe Knows
Quallty That Is Why She Selects
“CANADA
BREAD”
“The Quality Goes in
Before the Name Goes On”
Weddlng Cakes Made to Order
PHONE 39 017
LIV. ÁRGANGUR
ALWAT8 ASK FOR—
“Butter-Nut
Bread”
The Finest Loai in Canada
Rich as Butter—Sweet aa a Nut
Made only by
CANADA BREAD OO. LTD.
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 26. JÚNí 1940
NÚMER 39.
Friðarskilmálar Hitlers
Fjárhagsáætlun sambandsstjórnarinnar
Það var nú nokkuð, sem flest-
ir munu hafa búist við, að frið-
arskilmálar Hitlers yrðu harðir.
Á hinu áttu menn tæplega von,
að hann gripi tækifærið um leið
og hann birti skilmálana að
svala hefnigirni sinni, og bæði
storka og lítilsvirða hina undir-
okuðu þjóð eins og raun varð á
Það var í skógum Compiegne-
héraðsins s. I. föstudag, sem
skilmálarnir voru birtir Frökk-
um. Þangað kom Hitler með
föruneyti sínu. Voru á meðal
þess Göring, Wilhelm Keitel
yfirherforingi, Raeder flotafor-
ingi, Rudolf Hess, hægri hönd
Hitlers og Ribbentrop utanríkis-
málaráðherra.
Fundinn áttu fulltrúar Frakka
Þjóðverja með sér í vagni, en
það var sami vagninn og Foch
var í, er hann gerði samninginn
um vopnahléð við Þjóðverja
1918. Hafði Hitler vitað, að
Frakkar geymdu hann; lét hann
ná í hann og flytja á sama stað-
inn og 1918. Nú sat hann í sæti
Foch. Þegar allir voru í vagn-
inn komnir, las Keitel hershöfð-
ingi upp friðarskilmála Þjóð-
verja, þá er Hitler og Mussolini
höfðu samið. Efni samninganna
var þó bannað að birta, en síðan
hefir frézt, að Þýzkalandi sé á-
skilið Frakkland með húð og
hári í þeim, nýlendur þess, loft-
og sjóflota. Þjóðverjar kref jast
meira en helming landsins til að-
seturs sjálfum sér og her sínum
og er það alt Norður- og Vestur-
Frakkland. Þá heimtar Musso-
lini stórt horn af Suðaustur-
Frakklandi, milli Sviss og Mið-
jarðarhafsins. Hvernig nýlend-
unum og sjólflotanum verður
skift upp, hefir ekki frézt enn.
Þegar Frökkum hafði nú verið
tilkynt þetta, las Keitel áfram,
að Frakkar yrðu að muna það,
að þeir hefðu troðið Þjóðverja
undir fótum sér á þessum stað
1918, lítilsvirt þá og svikið öll
loforð um heiðarlegan frið. Her
Þjóðverja hefði aldrei gefist
UPP, en herforingjarnir og þýzka
stjórnin hefðu tekið orð þeirra
trúanleg. Síðan hefðu þeir og
Bretar gengið á Þýzku þjóðinni.
Hretar og Frakkar hefðu sagt
þeim stríð á hendur á s. 1. hausti.
En það stríð væri nú komið svo,
að Þýzkaland réði friðarskilmál-
Unum.
Eftir þessa ofanígjöf, fóru
Erakkar út í tjald sitt og til-
kyntu Petain-stjórninni friðar-
kostina. Var þarna skrifað und-
ir friðarsamninginn, en stjórnin
átti að hafna skilmálunum eða
&anga að þeim. Um breytingar
Var engar að ræða.
Síðast liðið mánudagskvöld
^réttist svo, að Frakka-stjórn
hafi að skilmálum Þjóðverja
^engið. Við ítali var og sérstak-
ur friðarsamningur gerður í
&óm. Hvað Mussolini áskildi
®ér, getur auðvitað ekki um.
Um storkunaryrði Þjóðverja
er skrifuð grein í blaðið Winni-
Peg Free Press og bent á með
eigin orðum Þjóðverja (stjónar-
®keytum) að her þeirra hafi
^erið að þrotum kominn með
ellu 1918 er hann gafst upp.
^elur blaðið því enga ástæðu til
að bregða sambandsþjóðunum
^^18 um nein svik. Kallar Free
^ress það sögufölsun og vana-
^egar nazi-lygar, að halda öðru
eius fram.
Það var lengi útlit fyrir, að
s.ióher Frakka mundi ganga
^etlandi á hönd og nýlendur
Erakka mundu halda stríðinu
étram, þó Frakkland sjálft sé
tapað. Það virðist og af orðum
Mr. Churchill að dæma, sem lof-
orð eða samningur hafi verið um
það milli Petain-stjórnarinnar
og Bretastjórnar, að sjóflotinn
og nýlendurnar yrðu Þjóðverjum
aldrei í hendur fengnar, heldur
Bretum til þess að halda stríð-
inu áfram. En svo kemur sú
frétt í gær, að Petain hafi skrif-
að undir, að afhenda Hitler flot-
ann, en með loforði (!) frá Hitl-
er um, að hann skyldi ekki not-
aður á móti Bretum nema til
þess að hreinsa sjóinn af
sprengjum Breta.
f gær fóru blöð á Bretlandi
hörðum orðum um þessa fram-
komu Petain-stjórnarinnar; —
telja þau hana fullkomin svik
við Breta.
En svo er málinu um frakk-
neska flotann ekki enn lokið.
Það er alveg óvíst, að þeir sem
honum stjórna, fallist á gerðir
Petain-st jórnarinnar.
Þess er og getið í fréttum frá
Evrópu, að Charles de Gaulle,
hershöfðingi og þrír eða fjór-
ir fyrverandi forsætisráðherrar
Frakklands, séu í Englandi og
beiti ósvikið ábrifum sínum í þá
átt, að hvetja nýlendurnar og
sjó- og loftherinn, að halda
stríðinu áfram með Bretum.
Þó vopnahlés-samningar séu
því undirskrifaðir af stjórn
Frakka, er ekkert að vita hvern-
ig með framkvæmdir þar geng-
ur.
FREGNSAFN
Jarlinn af Athlone, sem við
landstjórastöðu Canada tók, að
Tweedsmuir lávarði látnum,
kom til Halifax s. 1. miðvikudag.
Hann hélt viðstöðulaust til Ot-
tawa og tók þar embættiseið
sinn daginn eftir. Alice prinr
sessa, kona hans, er með honum.
Landstjórinn er 66 ára; hann er
bróðir Maríu drotningar, móður
George VI. Bretakonungs.
* * *
Þjóðverjar gerðu fyrstu stór-
flugárásina á England s. 1. mið-
vikudag. Sprengjuskip þeirra
voru um 100, enda dreifð um alla
austurströndina sunnan frá
Kent og norður til Yorkshire.
13 manns beið bana á Englandi
en 14 meiddust. Af flugskipum
Þjóðverjar voru 7 skotin niður
og nokkur löskuð.
* * *
Nóttina fyrir 19. júní, var
tveggja til þriggja gráða frost
á nokkrum stöðum í Manitoba;
í Brandon var t. d. 30 stig á
Fahr. eða 2 gr. frost. f Winni-
peg voru 34 stig, aðeins 2 gráð-
ur ofar frostmarki.
* * *
Mackenzie King, forsætisráð-
íerra, skýrði frá því á sam-
oandsþinginu s. 1. miðvikudag,
að Canada hefði lofað stjórn
Breta, að taka við nokkrum út-
lendum föngum af þeim og þýzk-
um stríðsföngum. Skýrði for-
sætisráðherra frá, að brezka
stjórnin áliti fangana betur
komna hér en á Englandi, vegna
þess, að þar gæti stafað meiri
hætta af þeim, en hér, ekki sízt
ef fallhlífaher kæmist til lands-
ins.
* * *
Á fylkisþinginu í Quebec, var
borin upp tillaga s. 1. miðviku-
dag um að hafna herskyldu-lög-
um sambandsstjórnarinnar, en
aðhyllast mildari og frjálsari að-
ferð til aðstoðar í stríðinu. Til-
lagan var feld með 56 atkvæðum
gegn 12. Tala þingmanna er 86
í Quebec.
í Uruguay-lýðveldinu í Suður-
Ameríku, var nýlega uppgötvað,
að nazistar eru þar ekki aðgerð-
arlausir. Þeir hafa ekki ein-
ungis félög sín á meðal og póli-
tískan flokk, heldur einnig her-
lið til átaka, þegar tækifærið
býðst. Sendiherrastofan er við
þetta landráðabrugg riðin. Uru-
guay er haldið fram, að hafi átt
að verða miðstöð þýzku átak-
anna í Suður-Ameríku, þó í
Brazilíu og Argentínu sé einnig
nokkuð hafst að.
* * *
Frakkneskur hershöfðingi fer
þessum orðum um flugher Can-
ada:
“í einni flugdeildinni voru
eingöngu Canadamenn. Það sem
eg sá til þeirra var eftirtekta-
vert. Þeir koma og fara sem
fellibylur. í einum fellibylnum
skutu þeir niður 101 þýzk flug-
skip, en mistu ekki sjálfir nema
16. Þeir eru nú komnir til Eng-
lands aftur. En eg minnist
þeirra, sem hinna frægustu flug-
manna sem eg hefi kynst.”
* * *
Svo margir þegnar Canada
kváðu hafa boðið sambands-
stjórninni fé að láni án vaxta,
að stjórnin er að gefa út verð-
bréf af þessu tæi. Þau eru til 5
ára eða 1. júlí 1945. En að vísu
má fá þau leyst út hvenær sem
er, að sex mánuðum liðnum, ef
þörfin krefur. Lánið verður um
$10,000,000, sem stjómin gerir
ráð fyrir að taka með þessum
hætti.
* * *
Canadiskt línuskip, “Niagara”
sigldi á sprengjudufl og sökk 20
mílur norður af Nýja Sjálandi
s. 1. viku (18. júní). Skipshöfn-
in er var 203 menn og 140 far-
þegar bjargaðist. Stærð skips-
ins var 13,415 smálestir. Það
var á leið frá Auckland til Van-
couver.
Jón Pálmason frá Keewatin,
Ont., sem verið hefir til lækn-
inga á General Hospital í 6 vik-
ur, hélt heim til sín s. I. mánu-
dag. Hann er hress eftir von-
um.
* * *
Jón H. Norman frá Hensel,
N. D., lagði af stað s. 1. laug-
ardag heim til sín. Hann kom
norður snemma í vikunni að sjá
kunningja sína. Hann kvað út-
lit með uppskeru syðra dágott
sem stæði.
íslendingnum, Jósep B.
Skaptasyni, sem um 19 ár hefir
verið aðal umsjónarmaður fiski-
mála Manitoba-fylkis, var veitt
lausn frá því starfi í síðast lið-
inni viku fyrir aldurs sakir.
Alls hefir Mr. Skaptason verið
í stjórnarþjónustu síðan 2. jan.
1901. f fyrstu eða fram að
1915, vann hann á ýmsum skrif-
stofum. Þá innritaðist hann í
herinn og hafði umsjón með
greiðslu vinnulauna hermanna
(army paymaster) í 108 her-
deildinni.
Að fjórum árum liðnum eða
1919, kom hann heim úr stríðinu
frá Evrópu. Hafði hann þá hlot-
ið kapteins titil. í apríl 1921
hlaut hann aðal-umsjónarstarf
fiskimála í Manitoba. Var hon-
um veitt sú staða af sambands-
stjórninni, er þá hafði eftirlit
þeirra mála með höndum. Þegar
Manitoba-fylki tók þau mál í
sínar hendur 1930, var ekki um
annað að tala en að Mr. Skapta-
SIGTRYGGUR F.
ÓLAFSSON
Hann andaðist hinn 20. þ, m.
að 550 Banning Street hér í
borginni, þar sem hann átti
heima síðustu mánuði æfinnar
og var til moldar borinn á mánu-
daginn í þessari viku, 24. júní,
frá Fyrstu lútersku kirkju í
Winnipeg, sem hann hafði til-
heyrt í meir en hálfa öld. Hann
var á fjórða árinu yfir áttrætt
og heilsan var biluð síðustu ár-
in og það svo að stundum tók
hann út miklar þrautir. En á
milli virtist honum líða vel og
var glaður og reifur og það varð
ekki annað séð, en að alt til hins
síðasta ætti hann mikið eftir af
þreki sínu og hreysti, sem hann
hafði hlotið í vöggugjöf í óvana_
lega ríkum mæli.
Ekki kann eg að rekja ætt
Sigtryggs, en eg veit að hann
var Þingeyingur og uppalinn að
Mikluleyti í Húsavík. Munu
foreldrar hans hafa búið þar við
heldur lítil efni, en ekki kom það
fram á sonum þierra, því þeir
voru sterkir og hraustir menn
og vinnuvíkingar með afbrigð-
um. Fór Sigtryggur mjög ung-
ur að stunda sjóróðra og varð
formaður á fiskibát meðan hann
var enn á unglingsaldri. Fanst
mér að honum væri Ijúfast að
tala um þann hluta æfi sinnar er
hann stundaði sjóróðra frá Húsa
vík. En þegar hann var kominn
undir þrítugt flutti hann til Can-
ada og settist að í Winnipeg og
var hér næstum altaf síðan og
má segja að hér hafi hann aðal-
lega unnið sitt langa og þarfa
æfistarf. Sjálfsagt hefir hann
fyrstu árin unnið hvaða vinnu
sem hann gat fengið, en það leið
ekki á mjög löngu þangað til
hann byrjaði á sjálfstæðri at-
vinnu í félagi við bróður sinn
O. V. ólafsson. Fengu þeir
sér hesta og vagna og sleða og
seldu eldivið og fluttu hvað sem
var fyrir fólk um borgina. —
Stunduðu þeir þessa atvinnu um
langt skeið með miklum dugnaði
og reglusemi og voru í öllu eins
áreiðanlegir eins og allra bezt
gat verið. Það mátti ávalt reiða
sig á þá bræður og unnu þeir
sér því traust manna og höfðu
ávalt mikið að gera og komu
miklu í verk, því dugnaður
þeirra og vinnuþrek var með af-
brigðum. Það mun hafa verið
son hefði umsjón þess starfs eft-
ir sem áður. Hann naut svo
mikillar vináttu og traust allra,
bæði fiskimanna og stjórnarinn-
ar sem hann starfaði fyrir, að
ekki var álitið völ á nokkrum
manni betri til starfsins.
Mr. Skaptason kom barn að
aldri frá íslandi. Hann var
fæddur að Hnausum í Húna-
vatnssýslu 1873. Foreldrar hans
voru Björn héraðslæknir Skapta-
son, og Ma'rgrét Stefánsdóttir.
Hefir Mr. Skaptason notið mik-
illar vináttu og virðingar ís-
lendinga hér. í félagsmálum
þeirra hefir hann leyst af hendi
ómælt starf og kona hans, ekki
sízt í málum Sambandssafnaðar-
ins í Winnipeg. Þau hafa þar
verið frömuðir, eins og reyndar
í hverju öðru, sem þessi myndar-
hjón hafa sér fyrir hendur tekið.
Af samverkamönnum hans á
stjórnarskrifstofunni var hann
kvaddur með hlýju og vinagjöf
s. 1. laugardag.
Reikningur yfir áætlaðar tekj-
ur og útgjöld sambandsstjórnar-
innar á komandi fjárhagsári
(31. maí 1940 til 31. maí 1941)
var lesinn upp í Ottawa-þinginu
s. 1. mánudag af Col. Ralston,
fjármálaráðherra. Hann sinnir
enn fjármálunum, þó hann sé
skipaður- hermálaráðherra í stað
Norman Rogers, er dó fyrir
skömmu.
Reikningurinn byrjar með því
að sýna tekjuhalla á árinu, sem
lauk 31. marz 1940, er nam
$118,000,000.
Á þessu nýbyrjaða ári (frá
31. marz 1940), er gert ráð fyr-
ir meiri útgjöldum, en nokkru
sinni áður hefir heyrst, eða
nokkurn hefir dreymt um í Can-
ada Þessi útgjöld nema $1,148,-
000,000.
Vanaleg árs-útgjöld síðari
árin hafa verið milli 400 til 500
miljónir dala. Útgjöld þessa árs
eru því helmingi meiri en nokkru
sinni áður.
Tekjurnar eru metnar $760,-
000,000. Verður því tekjuhall-
inn á árinu $550,000,000 til
$600,000,000.
Mestu tekjur Canada-stjórnar
voru á síðast liðnu ári og námu
$562,000,000. Það segir sgi því
sjálft, að skatta þarf að auka
um 200 miljón dali til þess að
ná 760 miljón dala áætluðu tekj-
unum.
Hverskonar skattar eru það,
sem stjórnin hugsar sér að auka
þannig tekjur sínar með? Þeir
eru margskonar.
Til dæmis er 10% söluskattur
lagður á hvern bíl, um leið og
seldur er, kosti bíllinn upp að
$700, en á bíla sem yfir $1200
kosta og þar yfir verður skatt-
urinn 80% hæst.
Næst má nefna National De-
fence skatt (herskatt) á vinnu-
árið 1907 að þeir bræður hættu
þessum atvinnurekstri og fór
Sigtryggur þá vestur á Kyrra-
hafsströnd. En hann var þar
ekki lengi, aðeins rúmt ár, en
kom þá aftur til Winnipeg og
tók aftur til sinna fyrri iðju,
eldiviðarsölunnar, og stundaði'
hana með sama dugnaði og
reglusemi eins og áður, þangað
til hann var komin á áttræðis
aldur og heilsan tekin mikið að
bila. Hætti hann þá öllum at-
vinnurekstri, enda var hann þá
löngu kominn í góð efni og hafði
meir en nóg fyrir sig að leggja.
Kona Sigtryggs, frú Jóhanna
ólafsson, lifir mann sinn og er
nú orðin háöldruð kona. Ágæt-
is kona sem með prýði hefir
staðið við hlið síns góða manns
í hálfan sjötta tug ára, eða þar
um bil, og veitt heimili sínu á-
gæta forstöðu. Börn eignuðust
þau hjón ekki, en tveim ungum
börnum gengu þau í foreldra
stað og fórst það prýðilega. Er
annað þeirra hinn góðkunni
merkismaður, S. O. Bjerring,
hér í borg. Hitt fósturbarnið
er Mrs. H. Herget í Portage la
Prairie, Man., mikil myndar
kona.
Með Sigtrygg F. Ólafsson er
til grafar genginn merkur og
mjög virðingarverður Vestur-
fslendingur. Hann var þrek-
mikill dugnaðarmaður og iðju-
maður með afbrgiðum og svo
ráðvandur og áreiðanlegur að
ekki varð betur ákosið. óhætt
mun að segja, að hann skildi
þannig við samferðafólkið, að
hann átti hlýhug og virðingu
launum, er nemur 2% á vinnu-
launum einhleyps manns, ef yfir
$600 fara á ári og 3% ef yfir
$1200 fara. Á giftum er þessi
skattur 2%, ef vinnulaun fara
yfir $1200 á ári. Fyrir hvert
barn má draga frá $8 á ári.
Skilur maður ekkert í hvernig
að slíkri niðurstöðu er komist,
að ekki sé dýrara að fæða barn
í heilt ár en það.
Þá er tekjuskattur á einstakl-
ingum mjög mikið hækkaður og
þeim mun meira sem tekjurnar
eru hærri.
Á “tires” og “tubes” á bílum,
er skattur hækkaður upp í 5c á
pundinu.
Á phonographs, myndavélar,
radios og radio tubes, er nýr
10% skattur lagður.
Hækkaður skattur úr 2c í 5c
á sígarettupappír (hverju
hundraði).
Á öllum vörum fluttum inn í
landið (t. d. frá Bandaríkjun-
um), er 10% tollur.
Skattur á tóbaki hækkaður úr
25c í 35c á hverju pundi.
Skattur á sígarettum hækk-
aður úr $5 í $6 á 1000.
Hér er því um stóra fjárhæð
í nýjum og auknum sköttum að
ræða.
Skuld Canada (net) var 31.
marz 1940 $3,270,980,000.
Eftir skýrslu þeirri að dæma,
sem konunglega nefndin, sem
vann að því að reikna út fjár-
hagsástæður landsins (og fylkj-
anna), voru allar tekjur lands-
manna $3,800,000,000 á árinu
1939. Gerir Mr. Ralston ráð
fyrir að þessar tekjur hækki í
$4,500,000,000 á árinu 1940—
1941.
Ekki þarf þess að geta, að
þessi hækkun útgjalda stjórnar-
innar stafar af stríðinu. Um
nauðsyn hennair mun þjóðin því
ekki deila.
allra sem kyntust honum nokkuð
verulega. Það eru góð æfilok
eftir langa og starfsama æfi.
F. J.
FJÆR OG NÆR
Sigurður Sigurðsson bóndi frá
Gimli, kom til bæjarins s.'' 1.
fimtudag. Hann er á leið vest-
ur til Vaneo'uver að heimsækja
son sinn Jón og dóttur Þor-
björgu (Mrs. A. C. Orr), er þar
búa. Jón fór vestur fyrir tveim
árum og hefir unnið þar við
húsasmíði stöðugt og farnast
vel. Hann hefir unnið hjá Mr.
Orr, er þar hefir húasbygging-
ar með höndum. Mr. Sigurðsson
lagði af stað vestur daginn eftir
og bjóst við að verða mánaðar-
tíma burtu.
* * *
Næsti fundur Jóns Sigurðs-
sonar félagsins verður haldinn 3.
júlí í húsi Ásm. P. Jóhannsson-
ar, 910 Palmerston Ave. Mörg
áríðandi mál liggja fyrir. Fé-
lagið er mjög þakklátt þeim er
styrkt hafa það í Bowlingbroke
Bombers starfi þess og vill
minna á það, að tillögum verður
veitt móttaka fram á þriðjudag
í næstu viku. Félagið finnur sér
skylt að þakka góða þátttöku í
starfi þess og æskir að sjá
nokkra nýja meðlimi á næsta
fundi.
* * *
Mrs. J. Friðfinnsson, ekkja
Jóns heitins Friðfinnssonar tón-
skálds, liggur á Grace-sjúkra-
húsinu í Winnipeg í innvortis
(nýrna) sjúkdómi.
Jósep B. Skaptasyni veitt
lausn frá embætti