Heimskringla - 26.06.1940, Blaðsíða 7
WINNIPEG, 26. JÚNÍ 1940
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA
ASÍA BRÝNIR KUTANN
Frh. frá 3. bls.
um er frá Asíu kominn. Stalin-
stjórnin er ekkert annað en aust-
urlensk harðstjórn út í æsar.
A
Fyrstu einkenni þessa er vald-
ið, þetta ótakmarkaða vald, sem
engin takmörk þekkir og engum
stendur reikningsskap. Hug-
myndin um lýðræði, frelsi ein-
staklingsins, um jöfnuð og sann-
girni í meðferð opinberra mála
er ekki til í huga Asíumannsins.
Og er hægt að hugsa sér hrein-
ræktaðri harðstjórn en þá, sem
er í Rús'slandi nú? Miljónir af
bændafólki hafa orðið að svelta
heilu hungri og hundruð þús-
unda hafa beinlínis soltið í hel
af því einu, að þeir gátu ekki eða
vildu ekki sætta sig við ákveðið
stjórnmálakerfi og aðferðir þess
við búskapinn. Ráðherra á það
á hættu að vera fangelsaður í
dag og tekinn af lífi á morgun
án þess svo mikið sem að koma
fyrir rétt. Og alkunnur vís-
indamaður fær alt í einu boð um
það, að hann eigi að vinna þræla-
vinnu einhversstaðar norður við
Dumbshaf.
Asía er voðaleg eftir okkar
hugmyndum og lítilsvirðir
mannslífið. Það er kristindóm-
urinn, sem hefir fóstrað hug-
myndina um einstaklingsgildið,
og húmanisminn gefið henni
byr undir vængi. Asía skiftir
sér ekki af einstaklingslífinu.
Viðkoman er svo mikil, að hún
fyllir upp í öll skörð. Hungurs-
neyðir, jarðskjálftar, flóð og
pestir murka þau ósköp af fólk-
inu, að það munar svo sem engu
þó að dálítill hópur fari af
mannavöldum og að opinberri
ráðstöfun.
Eitt af því, sem sýnir fyrir-
litningu Sovéts fyrir einstakl-
ingsfrelsinu er sá stjórnarvani,
að rífa heila flokka manna upp
úr átthögum sínum og flytja þá
til fjarlægra og ólíkra staða.
Þýzkir menn, sem höfðu tekið
sér bólfestu við Volga, voru
teknir upp og færðir í námuhér-
uðin í Karagand. Koreubúar,
sem þóttu eitthvað erfiðir, voru
umsvifalaust teknir og fluttir í
þúsundum lengst inn í land. —
Sægur manna hefir verið fluttur
frá Turkestan og settir við skóg-
arhögg í Norður-Síberíu. Finnar
voru fluttir frá landamærum
Finnlands og eitthvað lengst inn
í Rússland, þar sem engin hætta
var að sjálfstæðisþrá þeirra. Það
var ekki furða, þó að finska
menn langaði ekki nú til :þess að
falla í hendur þessum harðstjór-
um.
Þessar herleiðingar heilla
flokka eru nákvæmlega ein-
kenni Asíuþjóða. Og nú er sagt
að Rússar séu byrjaðir sama
leikinn í þeim héruðum Póllands,
sem féllu í þeirra hlut.
Stjórnarathafnir harðstjóra
Austurlanda fara fram í leyni
og án þess að nokkrar skýrslur
séu gefnar. Allir sem til þekkja
segja að þetta komi alveg heim
við aðferðir Sovéts, að svo miklu
leyti, sem það er mögulegt nú á
dögum. Þar gerist fjöldamargt,
sem engar skýrslur koma um,
og ef embættismanni verður á
að segja frá einhverju, sem ekki
var óskað að færi út, má mikið
vera ef hann hverfur ekki mjög
snögglega. Krókaleiðar dipló-
matanna á Vesturlöndum þykja
stundum nokkuð flóknar. En
öllum, sem til þekkja, kemur
saman um, að þar sé ekkert, sem
kemst í hálfkvisti við króka og
INNKÖLLUNARMENN HEIMSKRINGLU
í CANADA:
Amaranth............
Antler, Sask.......
Ames...............
Árborg.............
Baldur.............
Beckville..........
Belmont............
Bredenbury.........
Brown..............
Churchbridge.......
Cypress River.......
Dafoe..............
Ebor Station, Man...
Elfros.............
Eriksdale..........
Fishing Lake, Sask.
Foam Lake..........
Gimli..............
Geysir.............
Glenboro............
Hayland............
Hecla..............
Hnausa.............
Húsavík............
Innisfail..........
Kandahar...........
Keewatin...........
Langruth...........
Leslie.............
Lundar.............
Markerville........
Mozart.............
Oak Point._________
Otto...............
Piney..............
Red Deer...........
Reykjavík...........
Riverton...........
Selkirk, Man.......
Sinclair, Man......
Steep Rock.........
Stony Hill.........
Tantallon..........
Thornhill..........
Víðir..............
Vancouver..........
Winnipegosis.......
Winnipeg Beach.....
Wjmyard............
.................J. B. Halldórsson
...............JC. J. Abrahamson
...............Sumarliði J. Kárdal
.................G'. O. Einarsson
................Sigtr. Sigvaldason
.................Björn Þórðarson
....................G. J. Oleson
..................H. O. Loptsson
..............Thorst. J. Gíslason
----------------H. A. Hinriksson
...................Páll Anderson
...................S. S. Anderson
................K. J. Abrahamson
...............J. H. Goodmundson
..................ólafur Hallsson
..................Rósm. Árnason
..................H. G. Sigurðsson
....................K. Kjernested
.................Tím. Böðvarsson
.....................G. J. Oleson
...........-....Síg. B. Helgason
..............Jóhann K. Johnson
..................Gestur S. Vídal
..................John Kernested
...............Ófeigur Sigurðsson
................ S. S. Anderson
.................Sigm. Björnsson
....................B. Eyjólfsson
................Th. Guðmundsson
........Sig. Jónsson, D. J. Lfndal
.............. Ófeigur Sigurðsson
..................S. S. Anderson
.................Mrs. L. S. Taylor
.....................Björn Hördal
...................S. S. Anderson
..............ófeigur Sigurðsson
......................Ámi Pálsson
................Björa Hjörleifsson
...Mrs. David Johnson, 216 Queen St.
...............K. J. Abrahamson
.....................Fred Snædal
.....................Björn Hördal
..................Guðm. ólafseon
...............Thorst. J. Gísla8on
..................Aug. Einarsson
...............Mrs. Anna Harvey
............Finnbogi Hjálmarsson
..................John Kernested
..................S. S. Anderson
í BANDARÍKJUNUM:
Bantry................
Bellingham, Wash......
Blaine, Wash..........
Cavalier and Walsh Co.
Grafton...............
Ivanhoe...............
Los Angeles, Calif....
Milton................
Minneota..............
Mountain..............
National City, Calif..
Point Roberts.........
Seattle, Wash.........
Upham.
.................E. J. Breiðfjörð
...........Mrs. John W. Johnson
.........Séra Halldór E. Johnson
.................Th. Thorfinnsson
................Mrs. E. Eastman
......!......Mis^ C. V. Dalmann
_____________________S. Goodman
..............MIss C. V. Dalmann
................Th. Thorfinnsson
...John S. Laxdal, 736 E 24th St.
.................Ingvar Goodman
,J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W.
..................E. J. Breiðfjörð
The Viking Press Ltd.
Winnipeg, Manitoba
klæki austurlenksra yfirvalda. j
Þetta sézt t. d. skýrt á því, að
stríð þykir sjálfsagt að hefja án
þess að lýsa því yfir o. s. frv.
▲
Flest af því, sem Asía hefir
afrekað, verður að meta eftir
stærð en ekki gæðum. Og það
eru afrek fjöldans frekar en ein-
staklingsins, sem þar eru metin.
Þetta á alveg við um Rússland
nú. Sæg af mönnum hefir t. d.
verið kent að lesa. En einstakl-
ingnum er á hinn bóginn meinað
að hugsa. Þar eru flæmismiklir
sameignarbúgarðar, unnir með
öllum tegundum véla. En bú-
skaparlagið og verkhygnin og
árangurinn er þannig, að hverj-
um meðal kotbónda myndi
blöskra. Og þá eru það iðjuver-
in miklu, sem reist hafa verið
með aðstoð þýzkra og amerískra
verkfræðinga. Af þeim er ó-
skaplega gumað. En þegar út-
lendingarnir, sem stjórnuðu
þeim í fyrstu, voru farnir, tók
vörugæðum þegar í stað að
hraka. Það er háttur Asíu-
manna að reka alt áfram með
valdi. Og með valdi má búa til
“mikið”, en aldrei “gott”.
Tamerlan, mongólahöfðinginn
ægilegi, sem reisti pýramída úr
afhöggnum mannshöfðum til
þess að votta sigra sína, náði í
þjónustu sína kunnáttumönnum
frá Vesturlöndum. Og með því
að reka áfram bæði þá og svo
mannfjöldann, sem þeir létu
vinna, kom hann upp nálega ó-
trúlegum stórvirkjum. En ef
eitthvert óhapp varð eða mis-
tök, þá var æfinlega slátrað heil-
um hóp af mönnum, sem var
kent um það.
Er ekki þetta keimlíkt Stalin
og Rússlandi hans? Æfinlega
er hægt að finna einhverja, sem
öllum sökum og mistökum
stjórnarfarsins er klínt á, og þá
er ekki að sökum að spyrja.
í rauninni er þetta helsta af-
leiðingin, s'em orðið hefir af
rússnesku byltingunni, að Asíu-
áhrifin náðu aftur fullum tök-
um. Þetta er sannleikur, þrátt
fyrir allar orkustöðvar, raf-
magnsveitur, stálsmiðjur, áveit-
ur og myllur — sem flestu hefir
verið komið upp meira og minna
með beinu þrælahaldi að forn-
aldarsið. Þetta er ekki í fyrsta
skifti sem duglegir og harðvít-
ugir þjóðhöfðingjar í Asíu hafa
komið upp ótrúlega stórum
mannvirkjum með því að þrælka
allan lýðinn.
f hugsun og lífsskoðun opnaði
byltingin allar gáttir fyrir Asíu,
en Evrópa varð að hypja sig á
dyr. Sumir hugga sig með því
að segja:
“Verra var það á keisaratím-
unum”.
Það var sjálfsagt ekki gott þá.
En því má þó aldrei gleyma, að
á keisaratímunum var til al-
menningsálit, sem fékk að koma
í ljós og segja sitt orð um það
sem gerðist — en þetta er nú
alls ekki til. Á keisaratímunum
var sægur af mönnum, sem voru
mentaðir í skólum Evrópu og jframt, að málefnið — bolsévism-
Iifðu yfirleitt í því andrúmslofti, | inn — getur ekki fengið nokk-
umhverfi öllu. Stalin var ná-
lega sá eini af frömuðum bylt-
ingarinnar, sem var engum
böndum tengdur við Evrópu.
Hann hefir tvisvar aðeins komið
vestur fyrir Rússland, snöggar
ferðir, og hann kann ekkert Ev-
rópumál — nema rússnesku.
Stalin lætur lítið uppi um
skoðanir sínar. En það vita
menn þó, að hann hatar alt, sem
sérstaklega einkennir Evrópu-
manninn, frelsislöngun einstakl-
ingsins, skoðanafrelsi, umburð-
arlyndi við annara skoðanir. Það
er engin tilviljun, að hann hefir
rutt úr vegi þeim foringjum
kommúnista, sem sótt höfðu
eitthvað vestur á bóginn og
höfðu dvalið í Lundúnum, París
eða Berlín.
A
Asíueinkennin leyna sér ekki.
Má nefna dæmi þess.
Þegar Lenin dó, sátu sjö menn
í • nokkurskonar miðstjórn
Kommúnistaflokksins — Trot-
sky, Stalin, Zinovief, Kamenev,
Rykov, Bukharin og Tomsky.
Allir þessir menn höfðu frá
mörgu misjöfnu að segja frá
baráttuárunum gegn keisara-
stjórninni og í borgarastyrjöld-
unum. Maður, sem hugsaði að
Evrópusið, jafnvel þótt hann
væri harðstjóri, myndi í lengstu
lög hafa þyrmt lífi þessara fornu
samherja, sem allir voru nokkuð
við aldur, jafnvel þó að þeir
hefðu orðið uppvísir að einhverj-
um brögðum. En Stalin hætti
ekki fyr en þeir voru allir dauð-
ir, ef hann á annáð borð náði til
þeirra.
Árið 1933 voru þrettán menn í
æðstu stjórn hersins, og þá sendi
Stalin þeim heillaóskaskeyti. En
'hvernig er nú komið fyrir þess-
um mönnum ? Einn, er enn á
lífi. Tveir voru svo hepnir að
deyja náttúrulegum dauða. Einn
framdi sjálfsmorð. Þrír hurfu.
Og sjö hafa verið skotnir. Þessi
“hreingerning” hefir verið svo
duglega framkvæmd, að rauði
herinn hefir ekki borið sitt barr
síðan. Herfræðingar, sem rann-
sakað hafa Finnlandsstyrjöld-
ina, segja, að langt megi leita til
þess að finna herferð, sem lakar
hafi tekist, bæði um ráð og
framkvæmd, heldur en hún var
af hendi rauða hersins gegn jafn
fámennum hóp eins og þeim,
sem Finnar höfðu.
Og þá sver hún sig sæmilega í
ættina aðferð Stalins, þegar
hann lætur taka af lífi hvern
hópinn eftir annan af þeim
mönnum, sem hann þurfti að
losna við, og gefur þeim að sök
vináttu við nasista — samtímis
því, sem hann er að semja við
nasista um bandalag?
Stefna Stalins hefir verið sú
um langt skeið, að koma af stað
ófriði milli lýðræðisríkja Vestur-
Evrópu og einræðisríkjanna, þar
sem hann gæti sjálfur setið hjá
og spunnið silkið. Það getur vel
verið, að hann hafi þá fyrst og
fremst í huga voldugra Rúss-
land. En hann veit það jafn-
- NAFNSPJÖLD - |
1 U—1 ——■——.—
Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldg. Skrifstofusiral: 23 674 Stundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. Er að íinni A skrlfatofu kl. 10—12 f. h. og 2—6 e. h. Helmlll: 46 Alloway Are. Talsimi: 33 líi Thorvaldson & Eggertson Lögfræfling-ar 300 Nanton Bldg. Talsimi 97 024
Orncs Phoks Rn. Phohi 87 298 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 109 MEDICAL ARTS BUTLDINO Omoi Houms: 13 - 1 4 F.K. - 6 P.K. *HD BT APPOOfTKEln M. HJALTASON, M.D. ALMtNNAR LÆKNINOAR Sérgrein: Taugasjúkdómar Lœtur úti meðöl I viðlögum ViBtalstimar ki. 2—4 «. j,. 7—8 að kveldlnu Siml 80 867 666 Vietor Bt.
Dr. S. J. Johannesion 80« BROADWAT TaJnínii 30 877 VlOtalstimi kl. 3—0 e. h. A. S. BARDAL selur likklstur og annaat um útfar- ir. Allur útbúnaður s& bestl. Enníremur selur hann aiuwmfH' minnlsvarða og legsteina. 843 8HERBROOKB 8T. Phona: SS 607 WINNIPSO
J. J. Swanson & Co. Ltd. BKALTORS Rental. Inturance and Financíal AgenU Sími: 26 821 308 AVENUE BLDG.—Winnipeg Rovatzos Floral Shop ®0fl Notre Dame Ave. Phone 94 (N Freah Cut Flowers Daiiy Pl&nts in Season We specialize in Weddlng ák Concert Bouquets Sc Funeral Designs Icelandlc spoken
H. BJARNASON —TRANSFER— Baggage and Furniturs Moving 591 SHERBURN ST. Phone 35 909 Annaet allskonar flutninga fram og aftur um bœinn. MARGARET DALMAN TMACHER OF PIANO SS4 BANNINO ST. Phone: 26 420
DR A. V. JOHNSON dentistt 506 Somerset Bldg. Office 88 124 Res. 27 702 410 Medical Arts Bldg. Dr. K. J. AUSTMANN Stundar eingöngu Augna, eyma, nefs og kverka sjúkdóma 10 til 12 f.h.—3 til 5 e.h. Skrifstofusími 80 887 Heimasími 48 551
sem að vestan kom, enda kom
það í ljós í þátttöku Rússlands í
bókmentum og yfirleitt andlegu
lífi Evrópu á 19. öldinni. — En
ungir kommúnistar nútímans
gera ekki annað en skyrpa á alla
þessa menningu.
Byltingin velti ekki kúguninni
af stóli og ekki harðstjóranum.
Þetta er enn í dag engu minna.
Nei, það sem byltingin gerði, var
að sópa burt þeirri Evrópumenn-
ingu, sem var til hjá efri stétt-
unum. Rússland hefir horfið að
nýju til Asííufeðranna. Þess
vegna er þetta undarlega and-
rúmsloft í Kreml í dag, sem Ev-
rópuþjóðum stendur stuggur af,
eitthvað leynilega andstyggi-
legt, eitthvert pukur. Það er
ekki Asía Konfúsíusar og Jesú
Krists, sem hér birtist, heldur
Asía Tamerlans og Djengis
Khans.
Það á ekki illa við, að harð-
stjórinn í þessu nýja Asíuríki
skuli vera hreinræktaður Asíu-
urn betri jarðveg til þess að
dafna í, en þjóðir, lamaðar og
komnar að niðurlotum af skorti
og þreytu eftir margra ára
styrjöld upp á líf og dauða.
Fyrst greip hann Spánarstyrj-
öldina tveim höndum, og bjóst
við að hún mundi leiða til fjand-
skapar milli stórveldanna. Þegar
það brást vaknaði vonin aftur út
af innlimun Austurríkis, og síð-
an út af Tékkóslóvakíumálun
um. Kommúnistar fullyrtu og
héldu víst sjálfir, að Rússland
þráði að berjast við nasismann
fyrir frelsi smáþjóðanna, en
engin hreyfing sást. Hermála-
ráðherrann, Vorosilov, var meira
að segja meðan á þessu stóð
austur í Asíu að “ganga frá”
Blucher, eina reynda foringjan-
um, sem eftir var. Og samn-
ingaumleitanirnar, sem þá voru
hafnar við enska og franska for
ingja, sýna best, hvernig starfað
er þar eystra, því að samtímis
var Stalin að semja við Þjóð-
búi að ætt, hugsunarhætti og verja.
En tækifærið kom. Það kom
þegar Bretar ábyrgðust landa-
mæri Rúmeníu og Póllands 1939,
og ætluðu með því að stöðva
framhás Þjóðverja. Nú var
Stalin ánægður. Vesturveldin
voru skuldbundin að verja lönd-
in, sem voru milli Þýzkalands og
Rússlands, svo að nú var engin
lætta. Eftir þetta var engin
von að samningar tækjust milli
Rússa og Breta. En samt hélt
Stalin þeim áfram og lét mjög
íklega, því að með þeim herti
íann á Þjóðverjum að gera góð
ooð. Og svo þegar deilan um
Danzig hófst í ágúst 1939 var
alt tilbúið. Stalin gerði samning
við Þjóðverja, og Þjóðverjar
tóku Danzig. Ófriðurinn, sem
Stalin þurfti að fá, 'hófst.
▲
Asía er komin af stað og
þrammar þungum skrefum vest-
ur á bóginn. Evrópa liggur í
styrjöld upp á líf og dauða. Það
er sama ástandið eins og það,
sem greiddi götu Serkja og Mon-
góla og Tyrkja. Rússland er
Jíomið vestur að Eystrasalti, og
hefir brotið víggirðingar Finna.
Það er tilbúið að halda lengra í
þá sömu átt. Svo lítur Stalin
næst í suðvestur. Rússland hef-
ir altaf litið hýru auga til Kon-
stantinópel, en vesturveldin hafa
hindrað það. Og þá er leiðin í
suðaustur líka til. Rússar geta
búið um sig eins og þeir
THL WATCH SHOP
Thorlakson Baldwin
Diamonds and Wedding
Rings
Agents for Bulova Watches
Marriage Licenses Issued
699 Sargent Ave.
nu
vilja í Turkestan og Englending-
ar vita vel, hve erfitt er að halda
þeim burt frá áhrifum á Ind-
landi. Loks er það svo Austur-
Asía og erfðafjandinn þar, Jap-
anar. Þar vill Stalin fá vopna-
hlé í bráð, meðan svo mörg og
mikil tækifæri bjóðast í Evrópu.
Hann getur því vel hafið samn-
inga við Japani samtímis því að
hann lætur Kínverja fá flugvél-
ar og önnur hergögn til þess að
þeir geti látið Japani fá þar nóg
verkefni. Einhvemtíma seinna
má svo snúa sér að því að skifta
Kínaveldi. En mestu vonir Stal-
ins eru þó í sjálfu Þýzkalandi.
Hann hefir ekki gleymt ástand-
inu þar eftir síðustu styrjöld, og
hann veit hver hætta vofir jafn-
an yfir eftir styrjaldir. Hver
veit nema svo verði að Þýzka-
landi þrengt, að það beinlínis
slái sér saman við nágrannann
mikla í austri. Rússnesk stærð
og auðlindir og þýzk tækni og
herkænska gætu myndað saman
það veldi, sem erfitt yrði að
standa á móti, hvort heldur væri
í vestri eða austri.
Stalin hugsar sennilega ekki á
neinar herferðir að sið Napól-
eons. Hann er þolinmóður eins
og rándýrið. Hann veit að rúss-
neski herinn dugar ekki móti
stórveldisher. Og hafi hann
haldið annað, þá hefir Finnlands-
styrjöldin kent honum, að það
þýðir ekki að ætla rauða hernum
nein stór verkefni. Þess vegna
teflir Stalin frekar en að berj-
ast. Hver veit nema þessi styrj-
öld, sem hann hefir nú átt sinn
þátt í að koma af stað, skilji svo
við Evrópu, að þar verði ekki við
neitt verulegt stórveldi að etja
á eftir.
Það er ægilegt útsýni, sem
þessi voðalega styrjöld breiðir
út fyrir sjónum vorum. Evrópu-
þjóðunum blæðir út og Asía bíð-
ur eftir tækifærinu.
Hingað til hefir altaf eitthvað
bjargað Evrópu, og vonandi
verður það svo enn, þótt illa
horfi nú um hríð.
(Lausl. þýtt og talsvert stytt)
—Lesb. Mbl.