Heimskringla - 26.06.1940, Qupperneq 5
WINNIPEG, 26. JÚNí 1940
HEIMSKRINGLA
6. SíÐA
BJÖRN Á REYÐARFELLI
Eftir Jón Magnússon
II.
Eg hefi valið úr bókinni
nokkrar ljóðlínur hér og þar, til
þess að sýna hvemig höfundur-
inn hefir farið nieð efnið og
hversu hagorður og hugsjóna-
ríkur hann er. f byrjun sögunn-
ar er óbeinlínis borin saman æfi
sýslumannssonarins sem alt líf-
ið brosti við, og æfi stúlkunnar,
sem ekkert hafði þekt nema
þrældóm og allsleysi. Skáldið
lætur hann horfa í huganum á
ókomna tíma og segir:
“Hann lifði margan dýrðardag
í dýrðarljóma þeim,
er Kaupmannahafnar kandidat
hann kæmi aftur heim.”
En um hana segir skáldið til
samanburðar:
“Hún ólst við hrakning upp á
sveit
við eftirtalinn sult.
Um föðurinn var líkum leitt,
það læddist hljótt og dult.
En móður, sem var mædd og
þreytt,
hún misti frá sér ung,
og gangan um hinn grýtta stig
var grátnu barni þung.”
Skáldið segir ekki: “Eftirtal-
inn mat”, heldúr “eftirtalinn
sult”. Það er snildarlega að
orði komist og segir heila sögu.
Þá ferst höfundinum vel að
lýsa kjaftæðinu og söguburðin-
um þegar það kvisast að sýslu-
mannssonurinn sé í ástum við
vinnukonuna:
“En orðrómur sem ormamergð
um alla króka smaug;
með silkibrosi sögð til hálfs
hver saga um bæinn flaug.”
Þegar þeir feðgar hafa leitt
hesta sína saman, segir sýslu-
maðurinn:
“Sú drós, sem með þér dregst á
laun,
í dag skal rekin brott.”
Orðið “drós” er hér einkar
heppilega valið, það var viðhaft
um kvenfólk þegar lýsa átti sem
mestri fyrirlitningu.
Vel er sagt frá því þegar
Bjöm svarar föður sínum og
yfirgefur heimili sitt:
“Þá sló í borðið Björn og kvað:
‘Með brúði mína eg fer.
Þú rænt mig getur arfi og auð,
en aldrei sjálfum mér.
Eg veg þann ekki valið get
að verða ríkur þræll;
eg kýs að lifa í fátækt frjáls,
minn faðir: Vertu sæll.”
Um Hörð föðurbróður Björns
segir skáldið:
“Stórbokkinn átti þar andstæð-
ing vísan,
en umkomuleysinginn hlífi-
skjöld.”
Og lífsskoðunum sínum er
Hörður látinn lýsa með þessum
orðum:
“Vegurinn margur um veröld
liggur,
við veljum þar sjálfir, frændi
minn’
og þetta:
“En standirðu heill um hugsjón
þína,
þér hamingjan altaf verður trú.”
Um ferð þeirra hjóna upp í
heiðarbýlið, komuna þangað og
tilfinningar sínar þegar þangað
var komið, er Björn látinn segja
þetta:
“Með kvígildi af ám og klárana
tvo,
sem klyfjaðir voru af dóti,
við gengum þögul fet fyrir fet
með fjallinu upp á móti,
i
og kýrin okkar var klaufasár
að klöngrast á eggjagrjóti.
En konan mín blessuð kveikti eld
í köldum og föllnum hlóðum
á moldarbálknin hún breiddi
sæng
við bjarmann af kveldsins glóð-
um:
Tvær lifandi verur hlið við hlið
í hreysi dauðans við stóðum.
Þá er vel frá því skýrt hver
munur var á hugarástandi
Björns og konunnar hans þegar
þau lögðust til hvíldar fyrsta
kveldið á Reyðarfelli. Hún hafði
aldrei átt úr háum söðli að detta;
alt hennar liðna líf hafði verið
i eymd og basl; henni brá ekki við
það þótt hún ætti að horfast í
augu við komandi örðugleika.
En hann hlaut að finna til um-
skiftanna; að hafa hrapað eins
og björt og dýrkuð stjarna af
háum himni virðinga og alls-
nægta niður í dimt djúp erfið-
leika og fyrirlitningar.
Um konuna er Björn látinn
segja þetta:
“Frá starfinu örugg, frjáls og
fríð,
hún flaug inn í draumaálfur.”
En um sjálfan sig segir hann:
“En þung var mér vakan þessa
nótt,
eg þekti mig ekki sjálfur.
Eg gekk eins og barn með brotið
skap
í bardagann veill og hálfur.
Mér andspænis raðaðist norn við
nom
með nístandi flærðarglotti;
þeim ískruðu hlátrar ofan í
kverk
sem ólgaði suða í potti;
þá dró eg í hnefann mitt ítrasta
afl
og endurgalt smánina spotti.”
Hann vakir alla nóttina; hann
kemur ekki dúr á auga, ýmist
liggur við að hann láti hugfall-
ast eða hann kreppir hnefana,
bítur á jaxlinn og bölvar í hljóði.
Einu sinni segir hann þegar
erfiðleikarnir ætla að yfirbuga
hann:
“En maður, sem ekkert á
og ekkert til verka kann;
hver þekkir í víðri veröld
jafn vitlausan mann?”
0g svo horfir hann út í myrkur
örvæntingar og ómöguleika og
segir:
“í veggjunum morrar moldin
hljóð
og myrkrið er svart eins og
storkið blóð.”
En hann safnar kröftum og seg-
ir öllum óvættum stríð á hendur
á þessa leið:
“Kolsvarti, skríðandi helvítis
her,
hrökkva skaltu frá fótum mér!”
Og bergmálið gall
um gljúfur og fjall:
“Kolsvarti, skríðandi helvítis
her,
hrökkva skaltu frá fótum mér!”
Um atorku Björns við bað-
stofu bygginguna kemst skáldið
að orði sem hér fylgir:
“í urðum fjallsins grjótið upp
hann gróf,
við gríðarbjörg hann kunni sér
ei hóf,
og niður brekkur, yfir ís og snjó
hann alla vega bylti þeim og dró.
Hann valdi kletta úti um alla
haga
og átti við þá glímur heila daga.
Á kirkjustaðnum gamalt guðs-
hús var,
sem guði enga vegsemd lengur
bar,
því þar var komið annað ungt og
nýtt,
með æðra skraut og nýrri fegurð
prýtt.
Ef einhver rífa fúaflakið vildi,
hann fyrir verk sitt brakið hafa
skyldi.
í verkið Björn einn góumorgun
gekk
og geysimikinn við að launum
fékk;
Á sumum flakti fúamálið laust,
en furðanlega mörg var spýtan
traust,
og næsta skorpan. áður freri félli
var flutningurinn heima að
Reyðarfelli.”
Þegar Hörður heimsækir þau
hjón að Reyðarfelli í fyrsta
skifti er því lýsa hversu vel hafi
verið tekið á móti honum. í
þeirri frásögn eru þessar vísur:
“Ei var húsfrú iðjulaus:
upp um strompinn reykur gaus,
hljóð í pönnu og kaffikvörn:
“Komdu í húsið!” mælti Björn.
“Kirkjan gamla er komin hér”
kvað þá Björn og hreykti sér:
“Síðan í vetur sóknin stóð,
sagaði viðinn, feldi, hlóð.
Reiknaði stærðir allar út,
auga hafði á hverjum bút;
allan fúa úr eg skar,
eftir kosta timbrið var.”
Rjómakaffi, kökufans
kom á dúklagt borð til hans.
Kotungsbragð hér engu á
eða fátækt var að sjá.
í skírnarveizlu Leifs urðu
menn hreifir af víni og fluttu
ræður. Hér eru nokkur orð úr
ræðu séra. Gunnars, og stutt lýs-
ing á hionum:
“Séra Gunnar fremstur allra er,
með orðin prúð og lærðra manna
snið;
um bæinn skjótt hans augna-
elding fer,
svo yrðir hann á Björn—og
klökknar við:
“Mér heilög eru húsakynni þín,
því hér er blessuð gamla kirkjan
mín.
Af starfi yðar gæfa landsins
grær,
eitt gull í lífsins sjóð er yðar
bær.
Vér vitum nú að yðar breiða bak
er bjarg, sem skýlir vorum fé-
lagshring.”
Þeir gömlu bændur glottu þá um
tönn:
“Já, góð er ræðan—ef hún væri
sönn.”
Ræða prestsins veitti Birni
anda.gift og hann hélt langa
ræðu um auðlegð landsins og
framtíð þjóðarinnar. Meðal
annars sagði hann þetta:
“Af dýrum málmum eru fjöllin
full,
hér fólgið er í hverri þúfu gull,
og hér er guð svo örlátur að auð
að engan þyrfti að skorta ljós
né brauð.
Hann heitir Leifur, litli snáðinn
minn,
sem landið helgar eftir föður
sinn;
hann reisir hér sitt bjarta Vín-
lands veldi,
í vorsins hvítu sól og morgun-
eldi.
Hér skal hann vinna landi sínu
og lýð
og ljósið bera fyrir nýrri tíð.”
Jólakvöld heitir einn kaflinn
í bókinni, er þar yndislega lýst
jólagleði saklausra barna á fá-
tæku heimili. Þar eru þessar
vísur:
“Eins og ljómalogn á hafi
liggur mjöll í heiðaveldi,
tunglið eins og sól á sumri
sveipar jökla hvítum eldi.
Fólkið verður .alt að æsku
augnablik á jólakveldi.
Kvöldið leið sem ljúfur draumur,
ljómaði sérhver hlutur inni;
eins og þúsund ljósum lýsti
lampinn gamli að þessu sinni,
og í kringum kertin litlu
kranz af stjörnuljósum brynni.
Engin börn í öllum heimi
undu betur sínum kjörum.”
Framh.
EINAR GUÐMUNDSSON
MARTIN
frá Garði í Breiðuvík.
“Og góðvinum, meðan þeim end-
ast ár,
Þín ástúð mun firnast eigi,
En fremst þínum kæru er sorgin
sár
Og saknaðar bitur tregi;
Hve þung eru sporin þeim í dag,
Á þínum síðasta vegi.
Svo farðu nú vel—og foldar-
skaut
Þig faðmi með vori þýðu,
Þar leggur minning sitt laufa-
skraut
Hjá liljunum sorgarblíðu;
Þér helg veitist ró, en huggun
þeim,
Sem hrifinn þú varst frá síðu.”
(Stgr. Thorst.)
Einar Guðmundsson Martin,
bóndi að Litla-Garði í Breiðuvík,
við Hnausa, Man., andaðist að
heimili sínu þann 10. júní eftir
sj úkdómsstríð er varað hafði um
6 mánaðar bil. Foreldrar hans
voru Guðmundur Marteinsson
landnámsmaður að Garði í
Breiðuvík og Kristín Gunnlaugs-
dóttir, kona hans.
Sex alsystkini eru á lífi:
Helga, kona Bjarna bónda Mar-
teinsson að Hofi í Breiðuvík,
Marteinn, kv. Kristbjörgu Jó-
hannesdóttir að Baldur, Man.;
Gunnlaugur, bóndi í Breiðuvík,
kvæntur Sigríði Kristjónsdóttir
Finnssonar; Antoníus, bóndi í
Árnes-bygð, kv^æntur Friðrikku
Sigurðardóttir Sigurbj örnssonar
frá Árnesi; Sigrún, kona 0. G.
Oddleifsson, Árborg, Man.;
Kristborg, Mrs. McGiIvry, Minn-
eapolis, Minn. Hálfbræður Ein-
ars, samfeðra eru Jón Edwin,
búsettur í Langruth, kvænt-
ur Láru Fjeldsted og Helgi Dan-
íel, í St. James, Man., kvæntur
Bertha Brandsson. Einar var
fæddur 16. jan. 1880, og ólst upp
hjá foreldrum sínum. Árið 1908
kvæntist hann Sigrúnu Baild-
vinsdóttir frá Kirkjubæ í Breiðu-
vík, börn þeirra eru:
Guðmundur, giftur Clöru Hel-
ena Hokanson frá Howardville.
Hin börnin, Baldvin, Magnús,
Arnfríður, Vilborg og Franklyn,
eru öll heima hjá móður sinni.
Eru öll systkinin vel gefin list-
ræn og mannvænleg. Hinn látni
var atorkumaður og átti jafnan
í önnum við framfærslu stórrar
fjölskyldu og margmenns heim-
ilis. Var hann að upplagi til
listhneigður, söngelskur og lék
margt í höndum. Hann var fjör
og gleðimaður og átti marga
vini. Ágæta samfylgd átti hann
í þróttmikilli og velgefinni
konu, er studdi hann og stóð
með honum styrk og örugg í
starfi lífs og stríði þess. Sam-
eiginlega áttu þau mikla sigur-
vinninga, og nutu ágíætrar sam-
vinnu barna sinna, er þau kom-
ust á legg, dvelja þau öll heima,
utan elzti sonurinn, sem á er
minst. Heimili þeirra hjóna
stendur við þjóðbraut, og átti
maxgur leið þangað og nutu
góðs af hlýhuga þeirra og gest-
risnu, er jafnan stóð öllum til
boða er að garði koma. útförin
var fjölmenn og fór fram frá
heimilinu þann 12. júní, á björt-
um vordegi, og gróanda að verki
úti í náttúrunni — og í hjörtum
ástvina og kunningja látins sam-
ferðamanns, því minning og
þökk hallast hvert að öðru í
syrgjandi hjarta. Sóknarprest-
ur jarðsöng.
Sigurður ólafsson
Guðsþjónusta í Langruth sd.
30. júní kl. 11.
Guðsþjónusta og sunnudaga-
skóli í Konkordía kirkju 7. júlí
S. S. C.
VOR AÐ VINAMINNI
Tileinkað Jóni S. Árnasyni og
Guðbjörgu konu hans, með
hamingjuóskum til fjöl-
skyldunnar á fertug-
asta giftingarafmæli
þeirra hjóna.
I.
Vorljóð kvaka hverri grein,
Kvæði vaka yfir
Hugartaki, hver og ein
Hljómþýð staka lifir.
II.
Ein er sú af öðru ber
Alin listamuna:
Nægir að eg nefni hér
“Neista-ferskeytluna”.
Gróðurvilja veita dug
Vökvuð geislasporin:
Stefnubylta haga, hug
Hlýindin á vorin.
Þó við hljótum þennan kost
Þá er margt til baga!
Sumarhretin, hagl og frost
Heimskunn bygða saga.
Auðnubúin aðal kost
Ykkur vel hinn besta:
Vinahug, sem hagl og frost
Hvergi mun á festa.
III.
Eins og vorið vonum ann,
Veit eg hitt mun gilda:
Sumarhögum hlýrri eg fann
Haustið veðurmilda.
Þegar haustar hlýfir mjöll
Haga, þýðir kalinn.
Þessum stökum er mín öll
ósk og vinsemd falinn.
J. J. N.
—15—6—40.
BIRGIR HALLDÓRSSON
Syngur í Wynyard
Það mun áreiðanlega þykja
tíðindum sæta að Birgir Hall-
dórsson ætlar að syngja á sam-
komu þeirri, er Samband Kven-
félaganna heldur í Wynyard í
sambandi við kirkjuþingið laug-
ardaginn 29. júní næstkomandi.
— Birgir er sonur Mrs. Ingi-
bjargar Líndal, er eitt sinn átti
heima í Wynyard. Fluttu þau
fyrir þrem árum til Saskatoon,
og þar stundar Birgir nám við
verzlunarskóla og söngnám að
auki. Kennari hans nú er fræg-
ur söngvari, sem átti heima í
Tékkóslóvakíu en flutti þaðan
hingað til Canada, þegar Þjóð-
verjar tóku land hans. — Birg-
ir söng í vor í útvarp í Saska-
toon og þótti mikið til hans
koma. Síðan hefir hann oft
sungið á samkomum við góðan
orðstír. Allir, sem til þekkja,
gera sér góðar vonir um, að
þarna sé að koma fram á sjón-
arsviðið efni í nýjan íslenzkan
söngsnilling, ef áframhaldið
verður líkt því, sem af er náms-
ferlinum. Telja má líklegt, að
Wynyard-búar láti ekkert aftra
sér frá því að hlýða á söng Birg-
is í þetta sinn. Við hljóðfærið
verður annar ungur námsmaður
frá Wynyard, Herbert Johnson,
sem í vor lauk efnafræðinámi
við háskólann í Saskatoon með
ágætum vitnisburði. — Herbert
hefir áhuga fyrir sönglist og
góða hæfileika. í sumarleyfum
sínum hefir hann tekið þátt í
söngstarfsemi í Wynyard, verið
í söngflokk kirkjunnar og um
skeði organisti, í fjarveru aðal-
organistans.
Eg tel kvenfólkið, sem stend-
ur að þessari samkomu, heppið,
að hafa fengið þessa tvo ungu
og efnilegu menn til að vera á
skemtiskránni.
Jakob Jónsson
Á Principal Sparling skólanum
hér í Winnipeg, fengu tveir ís-
lenzkir stúdentar, þau Bobby
Goodman og Constance Jóhann-
esson heiðursviðurkenning fyrir
framúrskarandi námshæfileika
og íþrótta iðkan.
* * *
Séra K. K. ólafsson flytur ís-
lenzka guðsþjónustu í Vancou-
ver, B. C. sunnudaginn 7. júlí,
kl. 2 e. h. Eins og áður verður
guðsþjónustan í dönsku kirkj-
unni á Burns St. og nítjándu
götu. Tækifæri verður til alt-
arisgöngu. Allir hlutaðeigend-
ur, er þetta lesa, eru beðnir að
útbreiða messuboðin.
EATON'S
Hér er tveggja
hnefafylli og mikill
sparnaður fyrir
þig í báðum
EATON’S miðsumar verðlisti—
80 blaðsíður—fullar af spam-
aði—af alskonar vörum fyrir pig
og fjölskylduna í fatnaði; fyrir
heimilið; fyrir landbúnaðinn.—
Sérstaklega lágt verð — alt
þetta getur verið þitt ef þú
notar tækifærið nógu fljótt! Ef
þú hefir ekki fengið þennan
verðlista, skrifaðu nú um hæl
til Winnipeg og verður þér þá
sendur einn.
*T. EATON C?,m
WINNIPEG CANADA
BORGIÐ HEIMSKRINGLU—
því gleymd er goldin skuld
Það er aldrei of seint til að
opna sparisjóð í banka
Ef þér hafið ekki nú þegar byrjað á að leggja í
sparisjóð, þá gerið það nú—og bætið svo stöðugt
við. Peningar yðar eru öruggir og þér getið
dregið þá út, er yður þóknast.
THE ROYAL BANK
OF CANADA
Eignir yfir $950,000,000
I
i