Heimskringla - 16.10.1940, Blaðsíða 8
8. SIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 16. OKT. 1940
FJÆR OG NÆR
Heimskringla hefir náms-
skeið (scholarship) til sölu á
beztu verzlunarskólum þessa
fylkis. — Það er hverjum sem
nám hugsar sér að stunda á
þessu hausti eða vetri hagur að
sjá oss því viðvíkjandi.
* * *
MESSUR f ÍSLENZKU
SAMBANDSKIRKJUNUM
Messur í Wihnipeg
1 Sambandskirkjunni í Win-
nipeg tekur prestur safnaðar-
ins sem umræðuefni við morg-
unguðsþjónustuna n. k. sunnu-
dag, “A Joyful Noise to God”,
og við kvöldguðsþjónustuna,
“Órökstuddar staðhæfingar”.
Fjölmennið!
Sunnudaginn, 27, þ. m. verða
ræðumenn við guðsþjónusturn-
ar í Sambandskirkjunni í Win-
nipeg, skáldkonan Mrs. Laura
Goodman Salverson við morg-
un messuna, og við kvöldguðs-
þjónustuna, Mr. Walter J. Lín-
dal. Þessar guðsþjónustur
verða nánar auglýstar síðar.
* * *
Séra ^Guðmundur Árnason
messar næstkomandi sunnu-
dag, þann 20. október í Hay-
land Hall kl. 2 e. h.
* * *
Séra Albert Kristjánsson
messar n. k. sunnudag (20. okt)
í Leslie kl. 11 f. h. og að Hólar
kl. 1 e. h. (Central Standard
tími), en í Wynyard kl. 7 e. h.
(Mountain Standard tími).
* * *
Frá Piney eru staddir í bæn-
um í dag: Mr. og Mrs. S. S.
Anderson, Mrs. Veiga Lawson
og Mr. Skafti Eyford.
* * *
Mœtur gestur
Til þessa bæjar kemur for-
seti Aðal Kvenfélags Únitara
og annara Frjálstrúar kvenna
(General Alliance of Unitarian
and Other Liberal Christian
Women), Mrs. Russell P. Wise,
föstudaginn 25. þ. m. Á móti
henni taka kvenfélag Sam-
bandssafnaðarins og kvenfélag
Únitarasafnaðarins hér í bæ,
auk forseta og stjórnarnefndar
hins Sameinaða félags ís-
lenzkra frjálstrúar kvenna. —
Mrs. Wise verður hér stödd tvo
daga, og situr fundi kvenfélag-
anna og ræðir með þeim á-
hugamál þeirra, auk þess að
sitja veizlu sem verður haldin í
heiðursskyni við hana, undir
umsjón kvenfélaganna. Laug-
ardagskvöldið 26. þ. m. fer hún
héðan aftur áleiðis til Edmon-
ton, Vancouver og vesturströnd
Bandaríkjanna þar sem hún
heimsækir önnur frjálstrúar
kvenfélög til að kynna sér þau
og aðal áhugamál þeirra. Kven-
félögin hér eru nú að undirbúa
viðtökurnar, sem eiga að vera
hinar veglegustu, þar sem svo
mætan gest er um að ræða.
Sambandskvenfélagið efnir
til spilakvölds í samkomusal
Sambandskirkju laugardaginn
26. okt. Bridge verður spilað.
Góðar veitingar og skemtun.
Ágóðinn af samkomunni geng-
ur til Navy League.
* * *
Þórður Þórðarson kaupm. frá
Gimli, var staddur á þakkar-
gerðarsamkomu í Sambands-
kirkjunni s. 1. mánudag. Sagði
hann þær fréttir norðan af
Winnipegvatni, að sprenging
hefði orðið í báti er íslendíng-
ar áttu og meiddust tveir land-
ar af því. Slys þetta vildi til
norður við Litlu Georges s. 1.
fimtudag, en meiðslum af
bruna urðu þeir fyrir Thor-
steinn Sigmundsson frá Hnaus-
um og Kári Thorsteinsson. —
Þriðja manninn á bátnum ólaf
Johnson, sakaði ekki.
Ennfremur sagði Mr. Þórð-
arson að mikið hefði brunnið
s. 1. sunnudag af húsum hjá
Narfason’s bræðrum, er stórbú
hafa örskamt frá Gimli-bæ. —
Brann fjós og hlaða og ein 5
eða 6 önnur hús, mjólkurhús,
hænsnahús o. s. frv. íveru-
húsið sakaði ekki. Af heyi
brann mikið. Skaðinn metinn
um $5,000. Eitthvað var vá-
trygt, en ekki nærri alt.
* * *
Laugardaginn 5. október
voru þau Skapti Reykdal frá
Winnipeg og Nikolena Johnson
frá Langruth, gefin saman í
hjónaband af séra Rúnólfi Mar-
teinssyni. Giftingin fór fram
að 558 Sherburn St., heimili
Mr. og Mrs. Paul Reykdal, for-
eldra brúðgumans. Stór hópur
vandamanna og annara vina
brúðhjónanna var þar við-
staddur. Miss Margrét Olson
lék á piano giftingarlag. Mr.
Stefán Johnson, bróðir brúðar-
innar, leiddi systir sína til
brúðgumans. Mr. Jósep Skapta-
son var veizlustjóri og mælti
fyrir minni brúðarinnar, en
Freeman Skaptason fyrir
minni brúðgumans. Stuttar
ræður fluttu einnig faðir brúð-
gumans, presturinn og brúð-
guminn. Samsætið var að öllu
leyti hið ánægjulegasta. Heim-
ili ungu hjónanna verður fyrst
um sinn að Amaranth, Man.
Um endurkosning til hæsta-
réttar N. Dakota sækir W. L.
Nuessle, dómstjóri. Héraðs-
dómari W. J. Kneeshaw fer lof-
samlegum orðum um þennan
stéttarbróður sinn, réttsýni
hans og sanngirni og fastlyndi,
að sögn Guðmundar dómara
Grímssonar, sem veitir honum
eindreginn stuðning og vill að
hlutaðeigandi íslendingar láti
nefndan dómstjóra Nuessle
njóta atkvæða sinna.
* * *
Mr. Jón Pálmason frá Kee-
watin, Ont., var skorinn upp
við meinsemd í annað sinn,
fyrir rúmum mánuði, og hefir
fengið sæmilegan bata.
TOMBOLA
I SAMKOMUSAL SAMBANDSKIRKJU
I WINNIPEG
undir umsjón Stjórnarnefndar Sambandssafnaðar
Mánudagskvöldið 21. þ.m. kl. 8
Fjöldi góðra drátta — Freistið hamingjunnar
Sækið þessa ágætu Tombólu
Inngangur og einn dráttur 25c
SARGENT TAXI
Light Delivery Service
SIMI S4 655 or S4 551
7241/2 Sargent Ave.
Þakkargerðar s a m k o m a
kvenfélags Sambandssafnaðar
s. 1. mánudag var ágætlega
sótt. Samkomunni stjórnaði
Mrs. J. B. Skaptason, en ræður
fluttu B. E. Johnson safnaðar-
forseti og Dr. M. B. Halldórson.
Miss L. Davidson skemti með
einsöng. Máltíðin, turkey din-
nerinn, var óviðjafnanlegur.
* * *
Mrs. Kristín Stephenson, lézt
að heimili sonar síns, G. K.
Stephensonar, 1061 Dominion
St., Winnipeg, s. 1. mánudags-
morgun. Hún var nærri 82
ára, fædd að Klungurbrekku á
Skógarströnd í Snæfellsnes-
sýslu. Maður hennar, Vigfús
Stephenson lézt 1937. Börn
þeirra voru G. L. Stephenson,
G. K. Stephenson og Mrs. Jón-
ína Hodgins, öll í þessum bæ.
Útförin fer fram frá útfarar-
stofu A. S. Bardal kl. 2 e. h. í
dag (miðvikudag); séra R.
Marteinsson jarðsyngur.
* * *
Marino Hannesson lögfræð-
ingur er fluttur alfarinn vestur
til Victoríu-eyjar. Hann lagði
af stað vestur s. 1. fimtudag.
Áður en hann fór var honum
haldið kveðjusamsæti hér af
vinum hans, þökkuð viðkynn-
ing og starf og óskað heilla í
framtíð.
J. H. Johnson kaupmaður frá
Thicket Portage, Man., sem
nokkra daga hefir verið í bæn-
um leggur af stað á morgun
heim til sín.
* * *
____________________________ Thor Goodman, 23 ára mað-
............ ur, til heimilis í Selkirk, fórst
Föstudaginn 11. okt. voru í bílslysi norður af Selkirk í
þau Einar Skúlmundur Thor- gær. Bíllinn sem stjórnað var
steinsson frá Leslie, Sask., og af öðrum, valt um og Goodman
Aurora Beatrice Thorláksson skaddaðist á höfðinu og dó af
frá Winnipeg gefin saman í því. Hann lifa móðir hans,
hjónaband að heimili séra Mrs. W. M. Goodman og fjórir
Valdimars Eylands, 776 Victor bræður: John, Sigurður, Law-
St., af séra Rúnólfi Marteins- rence og Kjartan og ein systir
syni í fjarveru soknarprests- Laufey Goodman.
ins. Heimili þeirra verður að * * *
Leslie. j Heimilisiðnaðarfélagið held-
* * * ur næsta fund miðvikudags-
Föstudaginn 4. okt. voru þau kvöldið 16. okt. að heimili Mrs.
„ 0. , T Finnur Johnson, Ste. 14 Thelmo
Oscar Sigurdson og Laura _ .
Reykdal, bæði frá Lundar,
Man., gefin saman í hjónaband
af séra Rúnólfi Marteinssyni, j
að 493 Lipton St. Heimili
þeirra verður að Lundar.
* * *
Þökk
Með hrærðu hjarta langar
Mansions, Burnell St. Byrjar
kl. 8 e. h.
TIL ATHUGUNAR
Eg fékk nýlega bréf frá
manni heima á íslandi, sem
biður mig að koma sér í bréfa-
skifti við einhvern landa hér í
mig til að þakka fyrir þá vel-1 Canada, sem hafi áhuga og
vild og rausn, er fólk við Otto,! þekkingu á skógarrækt. Eg
P. O. og Lundar sýndi mér síð- þekki þennan mann ekkert, en
astliðinn mánuð, er það af-
henti mér allan arð af kvöld-
skemtun er haldin var í Norð-
urstjörnu skólahúsi. Sérstak-
lega vil eg þakka Mrs. Carlson
er aðallega gekst fyrir þessu,
einnig Mr. Ingimundson kjöt-
eftir bréfi hans að dæma, er
það ungur maður, sem hefir á-
huga fyrir framförum í land-
búnaði. Hann heitir Hjörleifur
Sófóniusson, og á heima á
Þingeyri við Dýrafjörð. Það
sem hann fer fram á er að fá
KING’Sltd
396 PORTAGE AVE.
•
AN IMPRESSIVE
COLLECTION OF
NEW
FURRED-CLOTH
COATS
Styles too numerous to mention.
$25 2950 35 45up
You must see our r r
Large Selection of lUr-V.OðtS
Every Coat Fully Guaranteed
Use Our
Popular
EASY TERMS
Pay Only
10% Down
Kjörinn vara-forseti North
Dakota Fraternal Congress
Samkvæmt frétt í blöðum
frá Norður Dakota var dr.
Richard Beck, prófessor í nor-
rænum fræðum við ríkishá-
skólann þar, kosinn fyrsti vara
forseti North Dakota Fraternal
Congress á ársfundi þess fé-
lagsskapar í Valley City, N.
Dak., 2. október. En hér er um
að ræða sambandsfélag 16
bræðra og lífsábyrgðarfélaga,
sem starfa þar í ríkinu og hafa
þau samtals yfir 50,000 félaga.
Dr. Beck, er þrjú undanfarin
ár hefir átt sæti í framkvæmd-
arnefndinni og verið formaður
fræðslunefndar, sótti ársfund-
inn sem fulltrúi þjóðræknisfé-
lags Norðmanna, Supreme
Lodge of Sons of Norway, en
hann hefir starfað mjög mikið
í Grand Forks deild þess fé-
lagsskapar. Hann var einn af
aðal ræðumönnum á ársfund-
inum og talaði þar um afstöðu
lýðræðissinnaðra manna til
heimsstyrjaldarinnar. Var ítar-
legur útdráttur úr ræðu hans
prentaður í dagblaðinu “Valley
City Times-Record”, en í heild
sinn mun hún birtast á prenti
á næstunni.
* * *
Finnbogi Hjálmarsson frá
Winnipegosis, Man., kom til
bæjarins um miðja s. 1. viku. I
stuttu viðtali gat hann þess,
að hey hefðu orðið lítil í sinni
bygð og gripum yrði beinlínis
þessvegna að fækka í stórum
stíl á þessu hausti.
markaðsmanni og Mr. Olson ájjj- gérfróðra manna hér vestra
bakara á Lundar fyrir rausn- j um þag( hverjar trjátegundir
arleg framlög til veitinganna. j héðan að vestan mundu líkleg-
öllum sem sóttu skemtunina og ar j-jj ag þrífast á íslandi; og
þeim sem lögðu til en ekki ag þ^ menn sér til aðstoðar
gátu komið, þakka eg innilega meg útvegun á fræi héðan. —
fyrir þessa rausnarlegu gjöf í vildi eg því skora á þá sem
peningum, sem kom sér mjög þessa grem ]esa, og sem áhuga
vel í erfiðleikunum. Guð blessi hafa fyrir þessu málefni, að
þessa mörgu og hjartagóðu shrifa þessum manni, og gefa
vmi- ! honum þær upplýsingar sem
Mrs. Helga Benjamínson, þeir geta í þessa átt.
i, Otto, P. O. Hann getur þess að eins vel
* * * i megi skrifa sér á ensku, en
Laugardaginn 12. okt. voru ekki segist hann vera vel fær
þau Yanna Björg Freeman frá , að svara á því máli.
Lundar, Man., og Norman Ed- j Gott væri að sem flestir
ward Goodman frá Winnipeg, j sendu honum línur, sem eitt-
gefin saman í hjónaband af hvað gætu frætt hann í þessa
séra Rúnólfi Marteinssyni, að ' átt,
493 Lipton St., að viðstöddum j
nokkrum hóp vandamanna og
annara vina. Heimili þeirra
verður í Winnipeg.
MESSUR og FUNDIR
l kirkju SambandssafnaOar
Messur: — á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á islenzku.
SafnaSarnefndin: Fundir 1. föstu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundlr fyrata
mánudagskveld 1 hverjum
mánuðl.
KvenfélagiO: Fundlr annan þrlðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldlnu.
Söngæfingar: Islenzki siöng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskvöldi.
Enski söngflokkurinn A
hverju föstudagskvöldi.
Sunnudagaskólinn: — A hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG
ÍSLENDINGA
Forseti: Dr. Richard Beck
University Station,
Grand Forks, North Dakota
Allir íslendingar í Ameríku
ættu að heyra til
Þjóðræknisfélaginu
Ársgjald (þar með fylgir
Tímarit félagsins ókeypis)
$1.00, sendist fjármálarit-
ara Guðm. Levy, 251 Furby
St., Winnipeg, Man.
VIÐ KVIÐSLITI
Til linunar, bóta og styrktar
reynið nýju umbúðirnar, teyju-
lausar. Stál og sprotalausar. —
Skrifið: Smith Manfg. Company,
Dept, 160, Preston, Ont.
Þann 12. þ. m. voru þau
Charles Chapman Inglehart og
Jónína Guðrún Sigríður Sig-
Guðm. Jónsson frá Húsey
—Vogar, P. O., Man.,
4. október, 1940.
HITT OG ÞETTA
“Bréf” Stephans G. Stephans-
sonar, fyrsta og annað bindi, eru
til sölu á sama verði og áður,
$1.75 hvert bindi, hjá Magnúsi
Petersyni bóksala í Norwood og
Mrs. Hólmfríði Pétursson að 45
Home St., Winnipeg. Upplagið
er lítið, svo þeir sem hugsuðu
sér að eignast bréfin, og þau
ætti hver Vestur-íslendingur að
eiga, ættu að snúa sér sem fyrst
að því að ná í þau.
Hún: Þér hljótið að vera al-
veg voðalegur maður, ef það
björnsson gefin saman í hjóna- er s&tt> sem þér sögðuð áðan,
band af séra Carli J. Olson á 1 að Þér hefðuð lifað á trúlofun-
heimili brúðarinnar nálægt um * ^0 ár!
Leslie, Sask. Nánustu skyld- * Hann: ES skrökvaði ekki að
menni og aðrir nágrannar voru yður* ES smíða trúlofunar-
viðstaddir. Eftir atfiöfnina hringa og sel þá þeim, sem eru
voru rausnarlegar veitingar hringa-vitlausir!
frambornar. Brúðurin er dótt-
ir þeirra hjónanna Sigurðar og Viltu skrifa heimastílinn
Rannveigar Sigbjörnsson. Mrs. m*nn> pabbi, því að eg þarf
Sigbjörnsson hefir lengi þekst að hlaupa í apótekið fyrir hana
á meðal Islendinga fyrir frá- mömmu?
bæra ritsnild og mælsku. — i E% rfy°t Það.
Brúðurin hefir kent skóla í j Hn hu mátt ekki hafa eins
nokkur ár og getið sér góðan j margar villur í honum og sein-
orðstír. Heimili brúðhjónanna asH
verður að High Hill, Sask. —
Skrifstofuþjónn: Gæti eg
fengið frí næstu viku, herra
forstjóri?
Forstjórinn: Hvers vegna,
með leyfi að spyrja?
Skrifstofuþjónn: Kærastan
mín ætlar í brúðkaupsferð og
eg vildi gjarnan verða henni
samferða.
* * *
Hún: Gleymdirðu mér nú
ekki þegar þú komst í Reykja-
víkurdýrðina?
Hann: O-jú, fyrir gat það
komið — manni hættir til að
gleyma smámunum, þegar út í
sollinn er komið!
* * *
— Er það satt, að þú, svona
stór strákur, hafir látið stelpu-
greyið hana Bjöggu rogast með
þig á bakinu yfir allar keld-
urnar?
— Já, eg var að vita hvað
hún væri sterk!
* * *
— Við hvað er eiginlega átt,
þegar talað er um einstefnu-
akstur? —
— Ekki annað en það, að þá
þurfa vegfarendur ekki að ótt-
ast dauða sinn nema úr einni
átt samtímis!
* * *
LÖgfræðingurinn: “Já, en
skiljið þér það ekki frú mín
góð, að þér verðið að færa
fram gilda ástæðu fyrir því að
þér ætlið að skilja við mann-
inn yðar.”
“Jú eg hefi það. Eg get
gifst miklu ríkari manni.”
— AUTO KNITTER SALE —
Big money saving values in Hy-
grade reconditioned machines. One
cylinder machines, 60 og 80 needle
without ribber $12.50, $13.75, $15.00.
Two cylinder machines, 60 and 80
needle, with ribber $19.50, $22.50.
Two cyl. machines, 80 and 100 need-
le, with ribber $18.75 and $21.50.
Two cyl. machines 60 and 80 needle,
with ribber, like new, $25.00, $27.50
Two cyl. machines, 60 & 80 needle,
with ribber (Creelman) $22.75. —
Extra parts, larger part sold at half
price. AU machines sold on guar-
antee of money refunded is not sat-
isfactory. Term payments: $5 cash
with order, bal. in instalments $3 to
$4 according to price of machine
with $1.00 carrying charge.
WESTERN SALES SERVICE
290 Graham Ave., Winnipeg, Man.
Kvenfélag Herðubreiðarsafn-
aðar stendur fyrir söngsam-
komu sem verður haldin til
heiðurs eldra fólksins á Lang-
ruth. — Samkoman verður
haldin sunnudaginn 27. okt. í
kirkju Herðubreiðarsafnaðar
og byrjar 2.30 e. h. Al-íslenzkt
prógram og veitingar. Allir
velkomnir.
* * *
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 20. okt., ensk messa
kl. 7 e. h.
S. ólafsson
“Á bökkum Bolafljóts”
Svo nefnist ný skáldsaga, er eg hefi fengið til sölu hér
vestra. Höfundurinn er Guðmundur Daníelsson, sem
margir kannast við af hans fyrri skáldsögum, (Bræð-
urnir í Grashaga, Ilmur daganna og fleira). Þessi
nýja saga er í tveimur bindum, alls 434 bls. Góður
pappír, skýrt prent. Verð í léreftsbandi, bæði bindin
$3.50.
MAGNUS PETERSON
NORWOOD. MAN.