Alþýðublaðið - 17.05.1960, Blaðsíða 3
Sendu Sverri
konungi fé
ALÞYÐUBLAÐIÐ hefur frétt
aS nýverið hafi nokkrum skáld-
um borizt rithöfund'alaun frá
danska útvarpinu. Fé þetta kom
að sjálfsögðu í gegnum Lánds-
bankann, en skrifstofa Rithöf-
undasambandsins sá um að
koma fénu til réttra aðila, höf-
undanna sjálfra eða erfingja
þeirra. Meðal höfunda var
Sverrir konungur, og vafðist
eðlilega fyrir mönnum að koma
aurum hans til skila.
Mikil
obsókn
SALA aðgöngumiða að
listahátíð Þjóðleikhúss-
ins hófst í gær, Var mikil
ös eins og meðfylgjandi
mynd sýnir og greinilegt
þegar á þessum fyrsta
söludegi, að fólk kann vel
að meta það sem Þjóðleik
húsið hefur upp á að bjóða
í tilefni 10 ára afmælisins,
Aðsókn í gær var mest að
Rigoletto og Seldu brúð-
inni. — Ljósm.: Oddur Ó1
afsson.
mmhmmmmmmmhhummm
2,5%
ÚTBÝTT var á. alþingi í gær
frumvarpi til laga um breyting
á lögum nr. 4, 20. febrúar 1960,
um efnahagsmlál. Ólafur Thors
forsætisráðherra fylgdi frum-
víarpinu úr hlaði með nokkrum
orðum .
1. gr.: í stað 5% í 1. mgr. 8.
gr. laganna komi 2V2%.
2. gr.: Lög þessi öðlast þegar
gildi'.
Athugasemd vði Iagafrum-
varpið: Eins og kunnugt er, er
útflutningsskatturinn lagður á
til þes sað greiða hluta af skuld-
'bindingum útflutningssjóðs frá
fyrri árum.
I sambandi við samninga um
fi'skverð á milli fiskkaupenda og
fskseljenda hefur sú ósk komið
fram af þeirra hálfu, að útflutn-
ingsskatturinn verði lækkaður
úr 5% í 2,5'%, en verði í þess
■stað að sama skapi' lengur í
gildi. Ríkisstjórnin telur rétt að
verða við þessari ósk, og grei'ða
þannig fyrir því, að samningar
um fiskverð taki'st
í KVÖLD mun Engel Lund
syngja í Austurbæjarbíói. Söng
skemmtunin 'hefst kl. 7 e. h. —
Engel Lund mun syngja þjóð-
lög frá ýmsum löndum, einkum
þó frá íslandi. Undi'rleikari er
dr. Ferdinand Rauter. Lund er
hér á vegum Tónlistarfélagsins
og Almenna bókafélagsins.
Fá opinberir sfarfs-
menn verkfallsrétt
SIGURÐUR Ingimundarson,
formaður Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja, skýrði frá
því við umræður á alþingi í
gær, að s. 1. haust hafi þáver-
andi f jármálaráðherra, Guð-
mundur I. Guðmundsson, skip-
að nefnd til þess að endurskoða
núgildandi löggjöf um starfs-
kjör opinberra starfsmanna,
með það fyrir augum að þeim
yrði veittur samningsréttur
um kjör sín. Er sú nefnd starf-
andi og tvcir nefndarmenn af
fimm skipaðir samkvæmt til-
nefningu B.S.R.B.
Til umræðu var frumvarp
Eðvarðs Sigurðssonar o. fl. um
afnám laga nr. 33 3. nóv. 1915,
um verkfall opinberra starfs-
manna. Fylgdi Eðvarð frum-
varpinu úr hlaði, en auk þeirra
Sigurðar tóku til máls Jón
Pálmason og Einar Olgeirsson.
Sigurður Ingimundarson
kvað það hafa verið krafa þinga
B.S.R.B. um mörg undanfarin
ár, að þeir fengju samningsrétt
um kjör sín til jafns við aðrar
stéttir, enda væri staðreynd að
þeir hefðu mjög goldið gamall-
ar og úreltrar löggjafar um það
efni. Hefðu stjórnir Bandalags-
ins reynt að fá fram breytingar
á þessu í samræmi við sam-
þykktir þinga sinna, en ekki
orðið ágengt fyrr en með fyrr-
nefndri nefndarskipan s. 1.
haust.
En málið er ekki eins einfalt
og ætla mætti eftir því frum-
varpi, sem hér hefur verið lagt
fram, sagði Sigurður. Það er að
vísu nauðsynlegt að fella úr
gildi lögin frá 1915 um berort
bann við verkfalli opinberra
starfsmanna, en það er ekki
nóg. Ýmis önnur löggjöf varð-
andi opinbera starfsmenn er
gegnsýrð af þeirri staðreynd,
að opinberir starfsmenn hafa
ekki haft verkfallsrétt.
Ræðumaður benti á, að opin-
berir starfsmenn væru t. d.
bundnir af launalögum og a.m.
k myndi sérhver ríkisstjórn
telja sig bundna af launalögun-
um meðan þau eru ekki felld
úr gildi og því ekki getað sam-
ið við starfsmennina. Að vísu
gætu verkfallsréttur og launa-
lög farið saman og þannig er
það framkvæmt í nokkrum
löndum, að þingin staðfesta
samningana, sem gerðir eru.
Skýrðí Sigurður frá því, að
nefndin, sem starfaði í þessu
máli, væri að kynna sér lög-
gjöf þeirra þjóða, sem viður-
kent hafa verkfallsrétt opin-
berra starfsmanna.
Sigurður Ingimundarson
nefndi fleiri atriði máli sínu til
stuðnings, en sagði síðan að
lokum: Ég tel því, að það sé rétt
lætismál, að opinberir starfs-
menn fái samningsrétt til jafns
við aðrar stéttir og legg til, að
frumvarp þetta verði samþykkt
en lýsi því jafnframt yfir að ég
tel nauðsynlegt að samræma
aðra löggjöf þeim breyttu að-
stæðum, svo að opinberir
starfsmenn fái notið þess rétt-
ar, sem til er ætlazt. Samþykkt
þessa frumvarps myndi hins
vegar vera leiðbeining fyrir
hina stjórnskipuðu nefnd um
vilja háttvirts alþingis og bæri
nefndinni þá í framhaldi af
því, að undirbúa samræmda lög
gjöf, er snerti önnur mál opin-
berra starfsmanna.
Stal frá
sofandi
stúlkum
AÐFARANÓTT mánudags
var brotizt inn um glugga í
kjallara Kleppsspítalans. Lædd
ist þjófurinn þar um ganga og
<að lokum inn í herbergi hjá 2
starfsstúlkum,
Stúlkurnar voru báðar sof'-
andi í herberginu og sýndi þjóf
urinn þá bíræfni, að læðast um
í herberginu og leita að pen-
ingum.
Hann hafði á forott með sér
veski stúlknanna. í þeim voru
um 500 krónur í peningum og
svipuð upphæð í sparimerkjum.
Stúlkurnar urðu ekki' varar
við neitt.
Einnig átti' Jónas Hallgríms-
1 peninga í þessari sendingu,
og er það vonum seinna, að hon-
um skuli berast fé fyrir skáld-
skap sinn.
Meðal annarra höfunda á þess
um grei'ðslulista danska ríkis-
útvarpsins, sem allt bendir til
að saminn hafi verið af mikilli
samvi'zkusemi, voru þeir Davíð
Stefánsson frá Fagraskógi og
Steingrímur Thorsteinsson.
Allar þessar greiðslur eru
skýranlegar, nema peningarn-
ir til Sverri konungs. Rithöf-
undasambandið hefur komið
sér upp skrifstofu og fengið sér
lögfræðing til að annast mál
sambandsins, en hér dugðu eng
in vísindi til. Á íslandi' fyrir-
fannst enginn maður til að taka
við peningum Sverri konungs.
'Það fangaráð var því teki'ð að
endursenda danska útvarpinu
þetta konungsfé.
Alþýðúblaðið kemur með
þessa skýringu: Peningarnir
áttu að sendast á nafn Gríms
Thomsens fyrir kvæðið Sverrir
konungur.
BRAGI Kristjánsson skrif-
stofustjóri hjá Innflutnings-
skrifstofunni, hefur verið skip-
aður forstöðumaður símrekstr-
ardeildar landssímans frá 1.
júní n. k. Jón Kárason síma-
fulltrúi hefur verið skipaður
aðalbókari landssímans frá 1.
júní n. k.
MWMMMMMHMIMHHMUH)
Kallaður
til Parísar
ALÞÝÐUBLAÐIÐ frétti í
gær, að Alexanderov, rúss
neski sendiherrann hér,
hafi verið kallaður til
Parísar í tilefni af stór-
veldafundinum og dvelur
hann nú ytra.
WWWMWMWWMMMMIMMM
Manni hent úr bii?
Framhald af 1. síðu.
ur ómjúklega og drógu hann.
Við þetta snaraðist áhorf-
andinn út og voru þeir þá að
koma með manninn að bíln-
um. Héldu þeir enn um herð-
ar hans og drógu hann eftir
götunni. Áhorfandi spurði þá
hvort ekki ætti að hringja í
lögreglu og sjúkrabíl. Þeir
dröslarar þverneituðu því.
Spurði þá áhorfandi hvort
ekki hafi verið ekið á þenn-
an mann. Þeir dröslarar þver-
neita því, en segja til skýr-
ingar, að honum hafi verið
hent út úr bíl. Áhorfandi spyr
þá hvernig eigi að skilja þetta,
og hvort maðurinn sé meðvit-
undarlaus. Þá segja dröslar-
ar, að þetta sé allt í lagi. Á-
horfandi þrjózkast við og seg-
ir að þetta sé alls ekki í lagi,
og að þeir skuli bíða, því hann
ætli að ná í lögregluna. Þá
segja dröslarar honum að láta
ekki svona, þetta sé einkamál
og honum komi þetta ekki við.
Þeir höfðu nú hnoðað mann
inum inn í bílinn og skildu
leiðir með áhorfanda og þeim
með manninn, þar sem bíln-
um var ekið brott.
Áhorfandinn tjáði blaðinu
í gær, að hann hefði strax eft-
ir að hann kom inn til sín,
hringt í lögregluna og látið
liana vita, og gefið héhni upp
númerið á bílnum, sem var
Ö-208.
Alþýðublaðið spurðist fyr-
ir um þetta mál, bæði hjá
rannsóknarlögreglunni og
götulögreglunni, en ekkert
var að finna bókað um það.
Alþýðublaðið veit ekki hve
þarna er unt alvarlegan at-
burð að ræða. Og það leggur
til að bílstjórinn á fyrrgreind-
um bíl segi því hvernig í þessu
liggur.
Alþýðublaðið 17. maí 1960 3