Heimskringla - 18.04.1945, Blaðsíða 8
8. SlÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 18. APRÍL 1945
FJÆR OG NÆR
MESSUR í ÍSLENZKU
SAMBANDSKIRKJUNUM
Messur í Winnipeg
Messur í Sambandskirkjunni
fara fram með sama móti og
vanalega, á ensku kl. 11 f. h. og á
islenzku kl. 7 e. h. — Sunnu-
dagaskólinn kemur saman kl.
12.30 á hiverjum sunnudegi. —
Sækið messur Sambandssafnað-
ar og sendið börn ykkar á sunnu-
dagaskólann.
★ * ★
Islendingakvöld '
verður haldið í Fyrstu Unitara
kirkjunni í Vancouver, B. C.,
1550 West lOth Ave., föstudags-
kvöldið 27. apríl kl. 8 ie. h. Mr.
Magnús Eliason flytur erindi um
“Icelandic Culture and Icelandic
Music.” Allir Islendingar í Van-
couver eru góðfúslega beðnir að
minnast þessa kvölds og sækja
skemtunina með vinum sínum.
★ * *
Mrs. Thorbjörg Pétursson,
kona J. K. Pétursson, að 126
Sherbrook St., Winnipeg, lézt s.
1. mánudag, að heimili sínu. Hún
verður jörðuð frá Sambands-
kirkjunni n. k. föstudag, kl. 2
e. h.
Hin látna var fædd 1873 í Jór-
vík, þar sem foreldrar hennar
bjuggu áður en þau fluttu að
Höskuldsstöðum, en með manni
sínum flutti hún til þessa lands
1903; þau bjuggu í Wynyard-
bygðinni þar til 1936, að þau
fluttu til Winnipeg.
Hina látnu lifa eiginmaðurinn
og sex börn, fjórir syniir: Jörgen,
Hoseas, Ragnar og Björn, og
tvær dætur: Guðbjörg (M5rs. Pet-
erson í Boston) og Petra (Mrs.
Smith í Boston). Hinnar látnu
verður minst síðar.
Captain
Peter Freuchen
Danish Explorer, Author and
Adventurer will speak at tho
ORPHEUM THEATRE
April 26, at 8.15
SUBJECT:
UNDERGROUND
ADVENTURE.
Auspices: The Viking Club
Tickets on Sale $1.00—75 cents
and 50 cents — Hudson’s Bay
Co.—Information Desk.
•MimiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiuiHMiiiiiiiuiimiiiiiiiniimiiiiiiiuHiiiiiiiiig
s = = I E ROSE THEATRE i i
Sargent at Arlington □
| Apr. 19-20-21—Thur. Fri. Sat. E
= Marjorie Reynolds c
E Dennis O’Keefe =
= 1 "UP IN MABEL'S ROOM" i
Pat O’Brien—Carole Landis □
”THE SECRET COMMAND" |
Apr. 23-24-25—Mon. Tue. Wed. g
Don Ameche—Dana Andrews =
E "WING AND A PRAYER" =
E ADDED
"ONCE UPON A TIME"
* >iiiiiiimi[3iiiiiimiiiC]iiiiiiiiiiiic]iniiimiiiniitiiiiiiiiiDiiiiiiumic«9i
Frá Campbell River, B. C.,
hefir Heimskringlu borist frétt
um að druknað hafi 16. marz, við
Seymor Narrows, B. C., Vil-
hjálmur Stefán Einarsson. Hann
lifa kona hans, Elin og ein dótt-
ir, móðir, sex systur og sex bræð-
ur. Hinn látni var frá Giml'
ættaður og lifa þar mörg skyld-
menni hans.
★ ★ ★
Úr blaði frá San Francisco, er
Heimskringlu send eftirfarandi
frétt:
Snorri Kristjánsson lézt 22.
marz. Hann var 82 ára. Kona
hans, Mrs. Elín Kristjánsson og
7 synir lifa hann: Neil Christian-
son og Stanley Christianson í
National City, Jack Christianson
í San Francisco, Corp. Siggi
Christianson í herþjónustu, Wil-
fred Christianson í San Diego,
Oliver Christianson í Hertog, Lt.
Walter Ohristianson í herþjón-
ustu. Jarðarförin fór fram frá
Dawson Funeral Home, 26.
marz. Líkið var brent.
Fregn þessi barst Heimskr.
um leið og blaðið er fullbúið til
prentunar. En vonandi verður
þessa látna merka • og góða
manns getið frekar síðar.
fr 4r te
Heimskringla hefir verið beð-
in að vekja athygli á komu Kap-
teins Peter Freuchen til Winni-
peg næstkomandi fimtudag.
Mr. Freuchen hefir verið á fyr-
irlestraferðum um Bandaríkin
síðan um jól, og hvar sem hann
hiefir komið fram, hefir verið
húsfyllir að hlýða á hann.
Mr. Garson forsætisráðherra
gerir ræðumanninn kunnan, Mr.
Coulter borgarstjóri, þakkar
honum komuna fyrir hönd bæj-
arbúa, á samkomu sem Mr.
Mr. Freuchen heldur fyrirlestur
á, í Orpheum Theatre, fimtudag-
inn 26. apríl kl. 8.15 að kvöldi.
Carl Simonson, forseti Viking
Club (norræna félagsins) stýrir
samkomunni.
WE ARE NOW GETTING DELIVERIES
FROM OUR FACTORY, OF
SPRING and SUMMER
NETS and TWINE
★
We also have on hand for immediate delivery:
BAKED VARNISHED FLOATS
5-oz. SPLIT LEADS
DRUM-VAR FLOAT VARNISH
RUBBER CLOTHING
★
DRUMMONDVILLE
C0TT0N COMPANY LIMITED
55 ARTHUR ST. WINNIPEG, MAN.
SUMARMALASAMKOMA
verður haldin í Sambandskirkju undir umsjón
Kvenfélagsins fimtudaginn 19. apríl kl. 8.15 e.h.
SKEMTISKRÁ:
O, Canada
1. Ávarp _____________Séra Philip M. Pétursson
2. Violin solo---------------- Allan Beck
3. Duet . Mrs. Th. Thorvaldson og Mr. R. Whillan
4. Ræða____________________Hannes Péturson
5. Solo-------------^__ Mrs. Alma Gíslason
6. Úpplestur ... ________ Ragnar Stefánsson
7. Söngflokkur kirkjunnar
undir stjórn Gunnars Erlendssonar
God Save The King
Kaffiveitingar Inngangur 25ó
Inngangsmiðar, sem eru $1.00
75^ og 50^ fást í 518 Mclntyre
Block, hjá Huhson’s Bay Infor-
mation Desk) og hjá niefndar-
mönnum Viking Club.
★ ★ ★
S. Sigmundson, fyrrum starfs-
maður Winnipeg Electric-félags-
ins og nú yfir nokkur stríðsárin
eftirlitsmaður umferða fyrir
sambandsstjórnina, hefir nú tek-
ið stöðu hjá B. C. Electric Rail
way Company, sem aðstoðar
ráðsmaður félagsins. Verður
starf hans í því fólgið að sjá
komið í framkvæmd áætlun raf-
félagsins í Vancouver urh endur-
bætur og fullkomnun kerfis síns,
er varið verður til 14 miljón
dölum.
★ ★ ★
Sigurlaug Ravatn, kona Ein
ars Ravatn lögregluþjóns í Win
nipeg, lézt á Almenna sjúkrahús-
inu í Winnipeg, 20. marz s. 1. —
Foreldrar hennar voru þau
Trausti Friðriksson frá Höfða-
hverfi í Þingeyjarsýslu og kona
hans Ása Ásgrímsdóttir frá
Ólafsfirði í Eyjafjarðarsýslu. —
Komu þau hjón viestur um haf
árið 1922, og settust að í Baldur,
Man., og hafa dvalið þar síðan. Á
íslandi áttu þau síðast heima á
Sauðárkróki, og var Sigurlaug
fædd á Framnesi í Skagafirði,
21. okt. 1909.
Einar Ravatn, maður Sigur-
laugar er Norðmaður; eignuðust
þau eina dóttur barna.
Sigurlaug heitin va prýðilega
vel gefin kona, og hvers manns
hugljúfi. Er foreldirum hennar
og öðrum ættingjum sár harmur
kveðinn við burtför hennar. Hún
var jarðsungin af séra Valdimar
J. Eylands frá útfararstofu Bar-
dals, fimtudaginn 22. marz að
viðstöddum miklum fjölda fólks.
★ ★ ★
Esju fundur verður haldinn
að heimili Mr. og Mrs. Gunn-
laugur Holm, Víðir, Man., sunnu-
daginn 22. apríl n. k. kl. 2 e. h.
Fjölmennið!
★ ★ ★
Til fiskimanna
Takið eftir auglýsingu hér í
blaðinu frá Drummondville Cot-
ton Company. Þeir eru nú sem
óðast að taka á móti frá verk-
smiðjum sínum, öllum þeim
hlutum siem til fiskiveiða heyra
og nauðsynlegir eru í hönd far-
andi vor og sumar vertíðum.
★ ★ ★
Boðsbréf
Það er hér með öllum boðið
að koma og sjá hreyfimyndir,
sem verða sýndar á mánudagskv.
þ. 23. þ. m. undir umsjón Good
Templara stúknanna, “Heklu”
og “Skuld” og þjóðræknisdeild-
arinnair “Frón” í G. T. Hall.
Myndirnar sýna þátttöku Can-
ada drengjanna í stríðinu á ýms-
um stöðum.
Inngangur ókeypis.
Fyrir hönd nefndarinnar,
A. S. Bardal
G. Levy
★ ★ ★
Messur í Nýja íslandi
22. apríl — Hanusa, messa kl.
2 e. h. Árborg, ensk messa kl.
8 e. h.
29. apríl — Víðir, messa kl. 2
e. h. B. A. Bjarnason
Þakklæti
Hugurinn reikar hér og þar
er maður lítur yfir og hugsar um
liðin tíma. Margs er að minn-
ast og margt er að þakka.
Og þegar eg hugsa til Sam-
bands-kvenfélags konanna hér
á Gimli og margra annara góð-
vina, þá hefi eg ekki orð til að
túlka mínar hugsanir eins og eg
gjarnan vildi, sem vott um þakk-
læti fyrir heimsóknir, blómagjaf-
ir og peningagjafir. Eg bið guð
að launa einum og sérhverjum
sem hefir glatt mig, með því að
opna sitt kærleiksríka hjarta
með nærveru sinni og gjöfum.
Eg vil nota þetta tækifæri fyr-
ir hönd barnanna minna og
tengdadóttir að þakka ykkur fyr-
ir þeirra hönd. Guð blessi ykkur
öll og gefi ykkur gott og gæfu-
iríkt sumar.
Með kærri vinsemd,
Jónína Thordarson
—Gimli, Man., í apríl 1945.
★ ★ *
Matreiðslubók
Kvenfélags Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg. Pantanir
sendist til Mrs. E. W. Perry, 723
Warsaw Ave.; Mrs. E. S. Feld-
sted, 525 Dominion St. Verð
$1.00. Burðargjald 5^.
★ ★ ★
Heimskringla er til sölu hjá
hr. bóksala Árna Bjarnarsyni,
Akureyri, Island.
★ ★ ★
Hús til sölu á Gimli
ásamt tveimur lóðum ef óskað
er. Upplýsingar veitir:
Árni Jónsson,
Gimli, Man.
★ » ★
Framvegis verður Heims-
kringla fáanleg í lausasölu, hjá
hr. bóksala Lárus Blöndal, Skóla
vörðustíg 2, Reykjavík, Island.
★ ★ ★
Nómsskeið til sölu
við fullkomnustu verzlunar-
skóla í Winnipeg. Upplýsingar
gefur:
The Viking Press Ltd.
853 Sargent Ave.. Winnipeg
★ ★ ★
Heimskringla á íslandi
Herra Björn Guðmundsson,
Reynimel 52, Reykjavík, hefir
aðalumboð fyrir Heimskringlu á
íslandi. Eru menn beðnir að
komast í samband við hann, við-
víkjandi áskriftar-gjöldum, og
einnig allir þeir sem gerast vilja
kaupendur hennar, hvar sem er
á landinu.
Hr. Guðmundsson er gjaldkeri
hjá Grænmetisverzlun ríkisins
og þessvegna mjög handhægt
fyrir borgarbúa að hitta hann
að máli.
★ ★ ★
Kaupi #
Neðanmálssögur “Heims-
kringlu” og “Lögbergs”. Verða
að vera heilar. Má ekki vanta
titilblaðið.
Björnsson’s Book Store
702 Sargent Ave., Winnipeg
Hórsnyrting — beztu
aðferðir
AMBASSADOR
Beauty Salon
257 KENNEDY ST.
sunnan við Portage
Talsími 92 716
S. H. Johnson, eig.
Látið kassa í
Kæliskápinn
WyMOlA
The SWAN MFG. Co.
Manufacturers of
SWAN WEATHER-STRIP
281 JAMES ST., WINNIPEG
Phone 22 641
Halldór M. Swan, eigandi
Thos. Jackson & Sons
LIMITED
COAL - COKE - BRIQUETTES
STOKER COAL
Phone 37 071 (Priv. Exch.)
370 Colony St. Winnipeg
Central Dairies
Limited
Kaupa mjólk og rjóma
Areiðanleg og fljót skil
Telephone 57 237
121 Salter St. — Winnipeg
Eric A. Isfeld, ráðsmaður
PRINCESS
MESSENGER SERVICE
We move trunks, small suite
furniture and household
articles of all kinds.
58 ALBERT ST. — WINNIPEG
Telephone 25 888
C. A. Johnson, Mgr.
MESSUR og FUNDIR
í kirkju Sambandssafnaðar
Prestur, sr. Philip M. Pétursson
640 Agnes St. Sími 24 163
Messur: á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Safnaðarneíndin: Fundir 1.
föstudag hvers mánaðar.
Hjólpamefndin: Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan
þriðjudag hvers mánaðar,
kl. 8 að kveldinu.
Ungmennafélagið: — Hvert
sunnudagskveld kl. 8.30.
Skátaflokkurinn: Hvert mið-
vikudagskveld kl. 6.30.
Söngœfingar: lslenzki söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskveldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju miðvikudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: Á hverjum
sunnudegi, kl. 12.30 e.h.
► >
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG
ÍSLENDINGA
Forseti: Dr. Richard Beck
University Station,
Grand Forks, North Dakota
Allir íslendingar í Ame-
ríku ættu að heyra til
Þjóðrœknisfélaginu
Ársgjald (þar með fylgir
Tímarit félagsins ókeypis)
$1.00, sendist fjármálarit-
ara Guðmann Levy, 251
Furby St., Winnipeg, Man.
BORGIÐ HEIMSKRINGLU—
því gleymd er goldin skuld
SAVINGS
A%S>CERTIFICATES
M I N N I S T
B-E-T-E-L
í erfðaskrám vðar
ATTENTION FARMERS
Income Tax returns for the year 1944, as required by
the Dominion Government, must be completed and
mailed not later than April 30th, 1945.
The date for making payment under this return has
been extended to August 31, 1945.
A circular listing a series of 22 Quesitons with
Answers dealing with Farmers’ Income Tax Returns has
been prepared and is on file at the local newspaper office,
the Municipal Office, and Bank.
Be sure to read the arlicle on Farmers’ Income Tax
that appears in this issue.
D. L. CAMPBELL,
Minister of Agriculture & Immigration
"TkATS JUST 50 YOÚLL RFMFMBER
T0 BUY 50ME {//&&/&SfWfó"