Heimskringla - 27.02.1946, Blaðsíða 4

Heimskringla - 27.02.1946, Blaðsíða 4
4. SIÐA HEIMSKRINGLA i WINNIPEG, 27. FEBRÚAR 1946 Hcímskrínpk (StofnuB 1SS9) Kemur út á hverjum miðvikudegi. Eigendur: THE VIKING PRESS LTD. 853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg — Talsími 24 185 Verð biaðsins er $3.00 árgangurinn, borgist íyrirfram. Allar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD. öll viðskiftabréf blaðinu aðlútandi sendist: The Viking Press Limited, 853 Sargent Ave., Winnipeg Ritstjóri STEFÁN EINARSSON Utanáskrift til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA, 853 Sargent Ave., Winnipeg Advertising Manager: P. S. PÁLSSON “Heimskringla" is published by and printed by THE VIKING PRESS LIMITED 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. — Telephone 24185 WINNIPEG, 27. FEBRÚAR 1946 Fer vel af stað Þjóðræknisþingið hefir staðið yfir aðeins einn dag er þetta er skrifað og hefir farið vel af stað. Það hefir verið vel sótt og áhugi fyrir málum þess virðist mikill. Eiga langt að komnir gestir mik- inn þátt í því nú sem fyr. Á fundi eftir hádegi á mánudag, flutti hr. Ingólfur læknir Gíslason fulltrúi stjórnar Islands kveðjur að heiman, sem birtar eru á öðrum stað í þessu blaði. Var kveðjunum óaflátanlega fagnað; einnig ræðu læknisins, er hann flutti um leið, er var hin snjallasta. Kona læknisins, Oddný Vigfúsdóttir, er og í förinni. Á eftir kveðjunum flutti læknirinn þá frétt, er snerti ritstjóra íslenzku blaðanna og konsúl vorn mikið, en þægilega þó. Hún var sú, að þeir væru ásamt konum þeirra boðnir í skemtiferð heim til Islands á komandi sumri. Voru hlutaðeigendum afhent bréf frá Þjóðræknisfélagi Islands að þessu lútandi. Þarf ekki frá því að skýra, hvaða hrifning og fögnuð þetta vakti hjá þeim er í 40 ár hefir fjarri Islandi dvalið, (eins og sá er þetta ritar) að eiga þess nú von, að sjá ættjörðina. Þökkuðu hlutaðeigendur lækninum fréttina með nokkrum orðum hver, og alúðar þökkum til Þjóð- ræknisfélagsins á Islandi og stjórnarinnar, er í ráðum er með, í þessu rausnar og góðvildar boði. Annar gestur á þinginu, er Niels G. Johnson, dómsmálaráð- herra í Norður Dakota-ríki, sem tvær ræður flutti hér strax fyrsta daginn, er báðar voru vel rómaðar. Hann kom hingað til að flytja ræðu á samkomu Icelandic Canadian Club, og hélt hana s. 1. mánu- dagskvöld. Var erindið að efni til um þörfina á alheimsstjórn, og hvatti ræðumaður smáþjóðirnar til, að leggja sinn skerf fram til myndunar slíkrar stjórnar. Taldi hann lögbundna alheimsstjórn eins nauðsynlega og hverja landstjóm yfir fylkjum og henni svip- aða. Flutti dómsmálaráðherrann mál sitt hið skörulegasta, var góður rómur að því gerður. Annars var þessi samkoma Icelandic Canadian Club hin myndarlegasta og fjölsótt. Frú H. F. Danielsson hafði fundarstjórn með höndum, hélt góða forsetaræðu og lýsti áhugaefnum þessa yngra félags íslendinga vel. Kom fram í skýrslu hennar til þjóð- ræknisþingsins, að félag þetta hefst meira að, en flestar eða allar aðrar deildir eða sambandsfélög Þjóðræknisfélagsins. Þessar fáorðu fréttir af fyrsta degi þingsins verða að nægja þessa vikuna. Áhugi manna virðist mikill og almennur fyrir starfinu. Og það er fyrir mestu. RÆÐ A Flutt við setningu 27. ársþings Þjóðræknisfélagsins Eftir dr. Richard Beck Háttvirtu gestir og fulltrúar! Heiðraði þingheimur! Vér, sem nú erum uppi, lifum á dögum miklivægra tímamóta í sögu þjóðanna. Árið, sem liðið er síðan vér komum hér saman á seinasta þjóðræknisþing, var bæði hið atburðaríkasta og að sama skapi örlagaríkt fyrir fram- tíð allra þjóða, stórra og smárra, mannkynsins alls. Það var mik- ið fegins og fagnaðarár í þeim skilningi, að þá var bundinn endi á hina geigvænlegu heimsstyrj- öld, sem legið hafði eins og mara á mannkyninu í nálega sex ár. Hinar sameinuðu þjóðir og mál- staður þeirra, frelsis og mann- réttindastefnan, höfðu sigrast á hersveitum harðstjóranna og kúgaranna; oki hemáms og á- nauðar hafði verið létt af fjölda þjóða. Mikill var því fögnuður manna um gjörvallan heiminn yfir styrjaldarlokunum, ekki síst hér í Canada og Bandaríkjunum, er átt höfðu svo mikinn og marg- háttaðan þátt í þeim sigri, sem nú hafði unninn verið. Vér Is- lendingar, sem einstaklingar og þegnar umræddra landa, fögnuð- um þeim úrslitum stríðsins af heitu hjarta og einlæglega þakk- látum huga, því vafalaust hafa stríðsárin, með öllu, sem þeim fylgdi, látið oss skiljast betur en áður sannindin í orðum Steph- áns G. Stephánssonar: Og lífsins kvöð og kjarni er það að líða. og kenna til í stormum sinna tíða. Þessvegna er eigi verið að seil- ast út fyrir svið áhugaefna vorra, þó vikið sé að miklum og örlaga- þungum atburðum nýliðins árs á þessum vettvangi, enda er þegn- skuld vorri við þau lönd, sem vér búum í, og greiðslu hennar á sem drengilegastan og ávaxta- ríkastan hátt, skipað öndvegi í stefnuskrá félags vors. Vil eg því í félagsins nafni láta í ljósi samfögnuð vorn með öll- um þeím félagssystkinum vor- um, sem heimt hafa heila heim af vígvöllunum sína nánustu, en votta hinum, sem eiga á bak að sjá ástvinum sínum af völd- um styrjaldarinnar, djúpa og innilega samhygð vora. 1 auð- mjúkri þökk minnumst vér sér- staklega þeirra allra úr hópi fé- lagsfólks vors, sem færðu fórn- ina mestu, lögðu lífið í sölurnar, málstað þjóða vorra og samherja þeirra til sigurs. Hrópandi rödd þeirra hljómar sem brennandi eggjan til þjóða og einstaklinga um að leysa hin mörgu vandamál viðreisnarinn- ar eftir styrjöldina með þeim hætti, að friðurinn verði sem bezt trygður. Hið mikla hlut- verk framundan er að vinna frið- inn, en það verður því aðeins gert, að almenningsálitið víðsveg ar um lönd hallist sem eindregn- ast og ótrauðlegast á þá sveif. Hver og einn, hvar sem hann er í sveit settur, getur lagt sinn skerf til þeirrar sigurvinningar friðar- ins með jákvæðri og ákveðinni afstöðu sinni til þeirra mála. — Hversu kröpp, sem kjör vor kunna annars að vera, getum vér öll kosið oss það hlutskifti, “að unna því göfuga og stóra.” Vikið var að því, sem aldrei verður of oft sagt né heldur of kröftuglega, að þegnskuldinni við kjörlönd vor, vöggustöð barna vorra, löndin, sem vinna vor er vígð, eins og skáldið -sagði fagurlega, þeirri skuld, er skipað í æðsta sessinn í stefnuskrá Þjóðræknisfélagsins. Hitt er eigi minna ■ grundvallaratriði, að stofendur félagsins og þeir hin- ir mörgu, sem fylgt hafa þeim í spor og gera en, telja varðveizlu tungu vorrar og annara menn- ingarverðmæta, með öðrum orð- um, heilbrigða þjóðernisvitund og þjóðarmetnað, nauðsynlegar undirstöður þess, að vér verðum “sem beztir borgarar í hérlendu þjóðlífi”. En því aðeins blessast sú þjóðernis- og þjóðræktar-við- leitni vor til langframa, að sam- bandið við þjóðstofn vorn haldi áfram að vera sem traustast og fjö^þætrtast, samúðin og sam- vinnan milli Islendinga beggja megin hafsins sem djúpstæðust og öflugust, enda er sú hlið máls- ins og hefir verið meginatriði í allri starfsemi félagsins. Umhugsunin um ættlandið, móður og minningaland vor allra, sem þar erum borin og átt- um þar vor þroskaár, verður því ofarlega í hugum vorum, er vér komum saman á hin árlegu þjóð- ræknisþing vor. Svo fer oss einn- ig að þessu sinni, enda gerðust margir þeir atburðir á hinu ný- liðna ári, sem draga hugann þangað. Það var söguríkt og örlagaríkt ár fyrir Island eigi síður en önn- ur lönd heimsins. Fögnuðurinn yfir styrj aldarlokunum og sigri sameinuðu þjóðanna var þar í landi mikill og einlægur, eigi síður en annarstaðar, og af góð- um og gildum ástæðum, því að íslenzka þjóðin hafði á vígvelli hafsins fært miklar fórnir, sér í lagi þegar tekið er til greina hve fámenn hún er, og átt sinn þátt i sigurvinningu hins góða málstað- ar. Á þetta lagði forseti íslands, herra Sveinn Björnsson, rétti- lega áherzlu í hinni athyglis- verðu ræðu sinni við hina sögu- legu athöfn 1. ágúst síðastliðinn, er hann var settur inn í embætti sem fyrsti þjóðkjörni forseti Is- lands. Islenzka þjóðin hélt að sjálf- sögðu hátíðlegt á síðastliðnu sumri fyrsta afmæli hins endur- reista lýðveldis síns víðsvegar um landið, og var þess atburðar einnig minst með hátíðahöldum á ýmsum stöðum hérna megin hafsins. Dró það afmæli að nýju athygli vora að merkilegri sögu ættþjóðar vorrar, sigursælli sjálfstæðisbaráttu hennar, og þeim dýrmætu menningarverð- mætum, sem vér höfum þaðan að erfðum hlotið, og búa yfir því frjómagni til dáða og þeim and- lega þroskamætti, er oss ber að notfæra oss sem bezt og varð- veita sem allra lengst. Annar atburður hins liðna árs getur eigi síður verið oss til á- minningar um auðlegð og lífs- gildi hinnar íslenzku menning- ar-arfleifðar vorrar, en það var aldar-ártíð Jónasar Hallgríms- sonar, sem minst var fagurlega og virðulega á Islandi og einnig í ræðum og ljóðum hér vestan hafs. Jónas Hallgrímsson var hvorttveggja í senn mesti ljóð- snillingur hinnar íslenzku þjóð- ar og einn af allra áhrifamestu vökumönnum og menningar- frömuðum hennar. Hann kendi þjóðinni að meta margbreytta og sérstæða fegurð lands síns, hreinasði og fegraði tungu henn- ar, og glæddi henni í brjósti trú á sjálfa sig, framtíð sína og hlut- verk. Hann var, eins og alkunn- ! ugt er, einn þeirra eldheitu hug- sjóna- og framsóknarmanna, er stofnuðu tímaritið Fjölni og bera jsíðan í sögu þjóðarinnar heiðurs- nafnið “Fjölnismenn”. Voru þar að verki vakandi og langsýnir þjóðræknis- og þjóðræktarmenn, sem enn geta verið oss öllum, j sem þeim málum unna og vilja vinna, hin fegursta fyrirmynd. Þeir skildu það flestum betur, hversu djúpt sálarlegar rætur ^ manna liggja í mold ættlands' þeirra og menningarlegum jarð- vegi þess, og þeim var það jafn ljóst, hve einstæð um margt og : lærdómsrík saga hinnar íslenzku j þjóðar er, sé hún rétt lesin og skilin. En það eru einnig aðeins djúp- skyggnir og langsýnir menn af vorum eigin stofni, sem séð hafa og skilið varanlegt gildi vorrar 1 sögulegu og menningarlegu arf- ^ leifðar. Altaf öðruhvoru sjáum j vér merkileg dæmi þess, hversu j miklar mætur gáfaðir og lærðir ^ útlendingar fá á Islandi, íslenzk-1 ri tungu og bókmenntum; er það eitt sér óræk sönnun þess, hvern fjársjóð vér eigum þar sem þær eru, og ætti fyrirmynd þeirra er- lendu ágætismanna, sem hér er um að ræða, að vera oss hin sterkasta áminning um lífrænt gildi þeirrar arfleifðar vorrar og lögeggjan til dáða varðandi viðhald hennar og ávöxtun. Varð mér þetta á ný ríkt í huga er eg fyrir nokkrum dögum síðan var að endurlesa í ritsafni dr. Sigurðar Nordals, Áföngum, hina prýðilegu minningargrein hans um André Courmont, hinn skarpgáfaða frakkneska málfræð ing, er tók slíku ástfóstri við ís- land, að það varð, að dómi greinarhöfundar, “annað föður- land,ástríða hans, örlög hans”. Eigi var minni ást hans á íslenzk- ri tungu, en hana kallar hann “yndislegasta garðinn”, sem hann hafi fundið, enda geymir hún minjar skarpskygni hans og skilnings á henni, því að honum hugkvæmdist fyrst að nota orð- ið “litróf” fyrir útlenda orðið “spectrum”. I grein sinni um þennan mikilhæfa ásthuga ís- lands, tungu vorrar og bók- mennta, farast dr. Nordal þannig orð, og mættu þau verða oss nokkurt umhugsunarefni og sjálfsprófunar: “íslendingum hættir við að líta smátt á sjálfa sig. Jafnvel versti þjóðarrembingurinn er ekki annað en grímubúin van- trú á þjóðina. Heilbrigð sjálfs- virðing kann sér betra hóf, skyn- samlegt sjálfsálit telur fram það, sem þjóðin á , en ekki það, sem hún átti að eiga, eða gæti átt. Vér vitum hvorki nógu ljóst, hvað vér eigum frá fornu og nýgu fari né hvers virði það er í hlutfalli við auðlegð annara þjóða. Þess vegna erum vér of fljótir að elta skugga erlendra hugsana, siða og menningar, — grípa þar í tómt, um leið og vér glöprum úr hendinni eigu sjálfra vor.” Nú er því eigi að leyna, að þau orð hafa oftar en eirlu sinni ver- ið látin falla við mig, að vér þjóð- ræknismenn og konur lítum of ! mikið um öxl í félagsstarfi voru. j Eitt er víst, að vér fáum eigi, svo f farsællega gefist, lifað í fortíð • inni, né heldur til lengdar lifað eingöngu á afrekum þeirra, sem á undan oss gengu og ruddu brautina, á hvaða sviði sem er. Eigi að síður er hitt jafnsatt, sem Davíð Stefánsson frá Fagra- skógi segir í þessum ljóðlínum: Minning þeirra, er afrek unnu, yljar þeim, sem verkin skilja. En því aðeins erum vér verð- ugir arfþegar slíkra manna og kvenna, að vér höldum hátt á lofti merki þeirra hugsjóna, sem þeir helguðu starf sitt og berum það fram til nýrra og stærri sigra; getum, með öðrum orðum sagt, að því er snertir þjóðræknisstarfsemi vora, þau menningarverðmæti, sem vér höfum að erfðum fengið, lífrænt afl í samtíðinni, orkulind nýrra dáða, minnug eftirfarandi orða Einars Benediktssonar: Vér eigum sjálfir á eftir að dæmast, af oss skulu forfeður heiðrast og sæmast, — sem studdu á lífsins leið vorn fót, sem ljóðin við vöggurnar sungu. Það fagra, sem var, skal ei lastað og lýtt, en leypt upp í framför, hafið og prýtt. Að fortíð skal hyggja, ef frum- ^ left skal byggja, án fræðslu þess liðna sést ei hvað er nýtt. Þá ætla eg, að viturlega sé að verki verið í félagsmálum vor- um, ef þeim leiðarmerkjum er fylgt í starfinu; aldrei misst sjón- ar á sígildum menningarverð- mætum vorum frá liðinni tíð og fyrirdæmi þeirra, sem brautina ruddu, né heldur þeim kröfum, sem samtíðin gerir til vor, og skyldum vorum við framtíðina, afkomendur vora. Á liðnu starfsári höfum vér, sem að undanförnu, átt á bak að sjá mörgum ágætum félagssyst- kinum, sem stutt höfðu drengi- lega starfsemi vora og sýnt með því í verki ræktarsemi sína við arfinn íslenzka. í þeim hópi voru þau hjónin Jóhann Magnús Bjarnason, sagnaskáldið vinsæla og heiðursfélagi vor, og Guðrún kona hans. Er það alkunnugt. hve djúpstæð var ást Jóhanns Magnúsar á íslandi, tiginni tungu vorri og menningararfin- um íslenzka í heild sinni, og hvern hlýhug hann bar til félags vors; hann lagði einnig ólítinn skerf til timarits þess með sögum sínum og ritgerðum. Auk þeirra hjóna, hafa þessir félagsmenn og konur látist á ár- inu, eftir því, sem fjármálarit- ari, Guðmann Levy, tjáir mér: Mrs. Oddfríður Johnson, Winni- peg; Magnús Peterson bóksali, Norwood, Man.; Sigurður Sig- urðsson, Vancouver, B. C.; Jón J. Húnfjörð, Brown, Man.; Mrs. Svafa Líndal, Winnipeg, Man., Mrs. Guðrún Sölvason, Winni- peg; fræðimaðurinn Magnús Sig- urðsson frá Storð, Gimli, Man.; Mrs. Katrín Eglisson, Wynyard, Sask.; Mrs. Guðrún E. Björns- son, Wynyard, Sask.; Björn M. Paulson, lögfræðingur, Árborg, Man.; Mrs. Guðrún Jóhannsson, Winnipeg, og Mrs. Þóra Gísla- son, Reykjavík, Man. Minnumst vér þeirra allra með söknuði og einlægu þakklæti fyr- ir samstarfið, og vottum ætt- mennum þeirra og vinum heil- huga samúð vora. Sýnum svo minningu þessara föllnu sam- herja vorra tilhlýðilega virðingu með því að rísa á fætur. Stjórnarnefndin hefir á árinu leitast við að leysa sem trúlegast og heppilegast af hendi þau mál, sem síðasta þjóðræknisþing fól henni til athugunar og fram- kvæmda, samhliða öðrum mál- um, sem henni hafa borist til meðferðar. Útbreiðslumál I þeim málum má fyrst geta þess, að forseti hefir af hálfu stjórnarnefndar staðið í bréfa- sambandi við próf. Tryggva J. Oleson, sem nú er kennari í sagn- fræði við fylkisháskólann í Bri - tish Columbia, viðvíkjandi stofn- un þjóðræknisdeildar í Vancouv- er. Bréf frá honum rétt nýkomið flytur þá góðu frétt, að íslenzku félögin “Isafold” og “Ingólfur” þar í borg hafi sameinast og sam- þykt að gerast sambandsdeild í Þjóðræknisfélaginu. Er oss þetta að vonum mikið ánægjuefni og bjóðum hina nýju deild hjartan- lega velkomna í félagið. Jafn- framt því, sem vér óskum henni langra og blessunarríkra starfs- daga, vil eg í félagsins nafni þakka próf. Oleson ötula for- göngu í þessu máli og öllum þeim vinum félags vors og styrktar- mönnum, sem studdu hann að starfi, en meðal þeirra var fyrv. forseti félags vors og umboðs- maður þess á vesturströndinni, séra Albert E. Kristjánsson. Nefnist hið nýja félag “Ströndin” og er stjórnarnefnd þess skipuð eftirfarandi mönn- um: Forseti, próf. Tryggvi J. Oleson; vara-forseti, óðinn Thor- steinsson Thornton; skrifari, Stefán Kristjánsson; vara-skrif- ari, Einar Haralds; féhirðir, Ósk- ar Hávarðarson (Howardson); vara-féhirðir, Sam Samson, og skjalavörður, Stefán Árnason. Undirbúningi að deildarstofn- un að Lundar var einnig haldið áfram, og vann ritari, séra Hall- dór E. Johnson, sérstaklega að því,- með aðstoð ýmsra annara góðra manna norður þar. Hafði útbreiðsluferð þangað með deild- arstofnun í huga verið ákveðin síðastliðið haust, og kom forseti norður til Winnipeg sérstaklega til þess að taka þátt í þeirri ferð, ásamt með skjalaverði, Ólafi Pétursson ,og Bergþór Emil Johnson, fyrv. ritara félagsins, er góðfúslega höfðu lánað bíl til ferðarinnar og lofast til að taka þátt í henni; einnig var í ráði, að vara-forseti, séra Waldimar J. Eylands, yrði með í förinni. —- Vegna rigninga og ófærra vega, varð þó að hverfa frá þeirri ferð að því sinni. Voru það oss öll- um, sem þar áttum hlut að máli, mikil vonbrigði, að þannig skyldi fara. Bíður það hlutverk því næstu stjórnarnefndar að byggja á þeim grundvelli, sem þegar hefir lagður verið að deildar- stofnun á Lundar, og er eg ekki í neinum vafa um, að það geti tekist, því að margt er ágætra Is- lendinga á þeim slóðum, sem bera í brjósti ræktarhug til ætt- lands sfns og eru menningar- erfðir vorar hugstæðar. En í þjóðræknisstarfsemi vorri sannast eftirminnilega hið forn- kveðna, að það er hvorki minni vandi né ómikilvægara að gæta fengins fjár en afla þess. Því er það grundvallaratriði í útbreið- slustarfinu að halda sem nán- ustu og fjölþættustu sambandi við hinar eldri deildir félagsins, jafnhliða stofnun nýrra deilda. Að viðhaldi þess sambands hefir einnig verið unnið með ýmsum hætti á árinu af hálfu stjórnar- nefndarinnar. Vara-forseti heimsótti deild- ina í Árborg og flutti erindi á Laugardagsskóla s a m k o m u hennar. Hann hefir einnig flutt kveðjur félagsins við ýms tæki- færi, svo sem á Islendingadegin- um að Gimli. Ritari heimsótti deildarfólk í Saskatchewan, er hann dvaldi á þeim slóðum um tíma í haust. Geta má þess í því sambandi, að fjármálaritari ei' forseti deildarinnar “Frón”, og vara-fjármálaritari, séra Egill H Fáfnis, var forseti deildarinnar 1 Argyle þangað til hann flutti úr b’ygðinni síðastliðið haust. Forseti hefir á árinu heimsótt deildarfólk í Mikley og Norður- Dakota og flutt erindi á sam- komum í þeim bygðalögum! einnig flutti hann ræður á ÍS' lendingadegi sambandsdeildar- innat “Vísir” í Chigcaga, og ;1 opinberri samkomu deildarinn' ar “Frón”, er síðar mun getið: ennfremur á 70 ára afmælishátíð íslenzku byggðanna í Minnesota ' og á árssamkomu Islending3' félagsins í Fargo, og flutti 'sjálfsöfðu á báðum þeim stöðum kveðjur frá félaginu; það hefir hann einnig gert víðar á sarn' j komum, meðal annars á 60 ára j minningarhátíð Hins evang- lúterska kirkjufélags, er haU111 i var í Winnipeg. Auk þess send’ hann mörgum íslendingadögu11' ! um, sér í lagi þeim, er deildir I félagsins stóðu að, og öðruJ11 samkomum íslenzkum, bréflegaf j kveðjur félagsins. Forseti heflf einnig haldið áfram landky0*1 ingarstarfi sínu í þágu íslan J og íslendinga með ræðum 0 J erindum á ensku máli um ^ lenzk efni, og með greinum ritdómum um sömu efni í aI^, rískum og canadiskum tima um. Meðal annars hefir haa nýlokið við yfirlit yfir íslenZ ^ bókmenntir að fornu og

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.