Heimskringla - 05.06.1946, Blaðsíða 2

Heimskringla - 05.06.1946, Blaðsíða 2
2. SlÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 5. JÚNI 1946 ALDARFJÓRÐUNGS- STARF Árna G. Eylands í þjónustu verklegra búnaðarframf ara í dag fyrir 25 árum síðan kom Árni G. Eylands hingað til lands, til þess að starfa í þjónustu Bún- aðarfélags íslands. Þá var Sig- urður Sigurðsson búnaðarmála- stjóri að undirbúa búsáhalda- sýninguna í Reykjavík. Þá var von á fyrsta þúfnabananum hingað til lands. Ámi hafði verið í Noregi í átta ár. Hann hafði verið þar í skól- um og kyntst búnaðarhætti þjóð- arinnar, verið við bústjóm o. fl. störf. Hann sigldi til Noregs haustið 1913, þá nýútskrifaður frá Hólaskóla. Síðustu árin sem Ámi dvaldi í Noregi voru fengar þangað fyrstu dráttarvélarnar. Var efnt til námskeið um meðf^rð þeirra, og fór Árni þangað. Næstu 6 ár var Árni verk- færaráðunautur Búnaðarfélags íslands, en hafði öðmm þræði rekstur þúfnabananna á hendi. Eftirspurn fór mjög vaxandi eftir ýmsum landbúnaðarverk- færum. Hafði Búnaðarfélag Is- lands þá á hendi útvegun verk- færa fyrir ýmsa bændur. En þau viðskipti urðu félaginu brátt um megn. Þá varð að ráði, að S. í. S. efndi til verkfæraverslunar, og tók Ámi að sér forstöðu þessar- ar viðskiptadeildar samhliða stöðu sinni við Búnaðarfélag ís- lands og í samráði við félags- stjórnina. Hann hafði forstöðu þessara viðskipta á hendi til árs- loka 1945. Hefir hann því að miklu leyti verið leiðandi ís- lenzkra bænda á sviði verkfæra- kaupa þau ár, sem tæknin hefir breytt aðstöðu bænda við rækt- un og heyvinnu. Þegar Ámi hóf starf sitt hér, voru 200 sláttuvélar á landinu og fáeinar rakstrarvéjar. Hann sá um útvegun á 3500 sláttuvél- um, 2230 rkastrarvélum, 237 snúnings og múga-vélum, 1206 plógum og 2100 herfum. Drátt- Árni G. Eylands arvélar voru orðnar 350 en á 7. hundrað í pöntun um síðustu áramót, svo nokkur atriði séu talin. Þegar áburðarsala ríkisins var stofnuð 1929, tók Árni við forstöðu hennar. Lét hann ein- skis ófreistað til þess að leið- beina bændum með notkun til- búinna áburðarefna, skrifaði mikið um þau mál, gaf út leið- beiningarit og vann ræktun landsins mikið gagn á þann hátt Grænmetisverzlunina tók hann.að sér, er hún var stofnuð 1936. Og í verkfæranefnd hefir hann verið frá byrjun til síðustu áramóta. Haft á hendi umsjón með skurðgröfum þeim, er ríkið hefir starfrækt við framræslu ræktarlanda, en þær voru 10 s. 1. ár og 13 í pöntun. Val þessara stórvirku véla og rekstur, notk- un beltivéla, með jarðýtum við nýræktarstörf, og heimilisdrátt- arvéla við heyskap og önnur störf, er nýjasti áfanginn sem Árni hefir markað í jarðræktar- málunum. Á 2. þús. tonn af sáðvörum hefir farið til jarðræktar bænda gegnum hendur Áma, þar af grasfræ í um 15,000 hektara af nýrækt. Þessi 25 ár, sem Árni G. Ey- lands hefir starfað að ræktunar- málum, við verkfæra- og áburð- arverzlun og við leiðbeininga - starfsemi fyrir íslenzka bændur, hefir hann áunnið sér mikið traust og hylli bænda yfirleitt. Áhrifa hans hefir gætt mjög í landbúnaðarmálum, bæði vegna ráðlegginga hans til einstakra manna, með fyrirlestrum og blaðagreinum. Ritstjóri Freys hefir hann verið í mörg ár og rækt það starf, sem öll önnur í þágu bænda, með óþreytandi á- huga. Um síðustu áramót hvarf hann frá verkfæraverzluninni, hafði áður verið ýtt úr áburðarverzl- uninni sem kunnugt er, til tjóns fyrir íslenzka bændastétt. Nú starfar hann sem fulltrúi í land- búnaðarráðuneytinu, og er furða, eins og núverandi landbúnaðar- ráðherra sagði nýlega í ræðu, að engir fyrirrennarar hans skuli hafa tekið búfræðing til starfs í ráðuneytinu. Árni G. Eylands er ósérplæg- inn áhugamaður, sem á unga aldri hét því, að verða íslenzkri bændastétt að liði. Fjölhæfar gáfur hans og alhliða þekking á búnaðarmálum hefir ekki aðeins gert honum það mögulegt heldur ðuðvelt að styðja mjög að verk- legri framþróun í sveitum lands- ins. Árni hefir, sem margir aðrir stórbrotnir áhugamenn, ekki íar- ið varhluta af óvild nokkurra sér ómerkilegri manna. En fullyrða má, að íslenzk bændastétt yfir- leitt, sé honum þakklát fyrir störf hans, og óski þess af heilum hug, að bændur megi sem lengst njóta þekkingar hans og leið- beininga. Árni Eylands er kvæntur norskri konu Margit (fædd Foss- tveit), hefir hún einnig dvalið hér í 25 ár. V. St. —Mbl. 8. maí. VEIZLUSIÐIR OG HVERSDAGSSTÖRF Frásagnir þær, sem hér fara á eftir, eru teknar úr bók Finns Jónssonar á Kjörseyri, “Þjóð- hættir og æfisögur frá 19. öld”, sem út kom um áramótin síðustu á forlagi Pálma H. Jónssonar á Akureyri. Rit Finns, sem höf. nefndi sjálfur “Minnisblöð”, skiftist í þrjá meginhluta: sagna- þætti, þjóðháttalýsingar og þjóð- sögur. Er þar um auðugan garð að gresja og merkan fróðleik að finna. — Frásagnirnar, sem hér fara á eftir, eru úr þeim hluta bókarinnar, þar sem lýst er aag- legu lífi á Suðurlandi um og eftir miðja 19. öld. Veizlur í mínu ungdæmi kynntist eg ekki öðrum veizlum en brúð- kaupsveizlum og erfidrykkjum. Eg var í fjölmörgum þeirra, því að foreldrum mínum, og móður minni eftir að faðir minn lézt, var boðið í flest samkvæmi í nágrenninu, og okkur systkin- unum ásamt þeim. Flest eða öll hjón héldu veizlur, þegar þau giftu sig, þótt efnalítil væru. Það var hér um bil óþekkt að kaupa leyfisbréf. Veizlur voru einnig haldnar við jarðarfarir, þótt fá- tækir áttu hlut að máli. Hjón voru ætíð gefin saman í kirkju þeirri, er þau áttu sókn að. Þegar boðsfólk var komið á kirkjustaðinn var því vanalega veitt kaffi með brauði, tvíbök- um, pönnukökum, vöflum og lummum og svo vín, brennivín handa karlmönnum, en kirsu- berjavín eða messuvín handa kvenfólki. (Kirsuberjavínið var vanalega kallað kirsuberja- brennivín). Þegar búið var að skauta brúðinni, sem stundum gekk seint, því að gömlu faldam- ir voru viðamiklir, og þurfti að festa þá vel, hófst brúðargang- urinn. Þá var prestur kominn skrýddur fyrir altarið. Brúðar- ganginum var hagað þannig að fyrst leiddu tvær helztu konur sveitarinnar brúðina á milli sín, en ógiftar stúlkur leiddust þrjár og þrjár á undan út að kirkju- dyrum og skipuðu sér báðum megin við þær meðan brúðhjón- in voru leidd í kirkju til sæta sinna fyrir framan gráturnar. Tveir helztu boðsgestir meðal karlmanna leiddu brúðgunánn á eftir brúðarskaranum, en fólk er gekk þar á eftir, bæði karlar og konur, gekk reglulítið. Þar á eftir gekk söngflokkurinn. Þeg- ar brúðargangurinn fór af stað frá bæjardyrum til kirkju, hóf söngflokkurinn sönginn, og með- hjalparinn hringdi þar til fólk- ið var komið í kirkjuna. Vana- lega var sungið við brúðargang- inn versið nr. 307 í aldamóta- sálmabókinni “Fyrstu brúður til fyrsta manns”. Þá var vana- lega á undan hjónavígslu sung- inn sálmurinn nr. 309 í sömu bók “Heimili vort og húsin með”. Úr kirkju var brúðargang- urinn með þeirri breytingu, að brúðhjónin leiddust á undan út hinu fólkinu.Þegar komið var úr kirkju bjó fólk sig at stað þangað, sem veizlan átti að vera. Þegar boðsfólk var komið á veizlustaðinn var það oft eitt fyrsta verk frammistöðumanns- ins að safna söðuláklæðum allra boðskvenna og þilja með þeim innan veizlusalinn, sem aft var skemma, þar sem ekki var stofa til. Og jafnvel þótt stofur væru á bæjum, voru þær sjaldan svo rúmgóðar, að þær rúmuðu alla boðsgesti. Vanalega vdr búið að setja borð og setubekki, þegar fólkið kom á veizlustaðinn. Þá var borinn matur á dúkað borð og gestir leiddir til sætis, og var það sannarlega vanda- samt verk fyrir frammistöðu- menn, því að sett var eftir mann- virðingum, og munu ekki allir ætíð hafa verið ánægðir með sæti sitt, þótt aldrei yrði eg var við opinberan ágreining út af því. Venjulega var þríréttað. Byrjað var að syngja borðsalm- inn “Faðir á himnahæð” við dyr veizluskálans, þegar búið var að bera fyrsta réttinn á borð. Var hann ýmist vínsúpa, hrís- grjónavellingur eða vanaleg kjötsúpa, eftir því hvað veizlur voru fínar. Að enduðum borð- sálmi mælti frammistöðumaður hátt og skýrt: “Heiðarleg brúð- hjón segja alla gesti velkomna og biðja alla neyta þess, sem fram er reitt og biðja alla að færa á betri veg, þótt eitthvað kunni áfátt að verða”. Þegar allir voru hættir við fyrsta réttinn, var bor ið af borði og færður inn annar réttur, sem var stórsteik eða kalt hangikjöt og stundum hvorttveg^ja með tilheyrandi brauði, viðmeti og fleira, að ó- gleymdu víni fyrir karla og kon- ur. Þriðji réttur voru pönnu- kökur, vöflur og lummur, og voru vanalega hvorki bornir lausir diskar né hnífapör með þeim rétti. Svo. var kaffi borið annað hvort áður en upp var staðið eða síðar, og það held eg hafi oftar verið, en man það óglöggt. Áður en staðið var upp frá borðum, var síðan borðsálm- urinn sunginn “Guð vor faðir vér þökkum þér”, og var söng- urinn vanalega fjörugri við síð- ari borðsálminn, því að þá voru menn búnir að fá sér hressingu. Að enduðum síðari borðsálmi mælti frammistöðumaður: Heið- arleg brúðhjón þakka öllum hingað komnum og biðja alla að fyrirgefa það, sem áfátt hefir kunnað að vera og óska öllum heiðarlegum borðgestum góðrar heimferðar”. Sami formáli var hafður í erfidrykkjum, nema í staðinn fyrir brúðhjón kom þá “ekkja”, “ekkill” “hlutaðeig- endur” eða annað, sem við átti í hvert sinn. Stundarkorni eftir að staðið var upp frá borðum var farið að hita vatn í púns. 1 það var haft púnsextrakt eða romm og sykur. Það var blandað í stóra leirskál eða könnu, var púnsið síðan aus- ið í glös og bolla, ef glös voru of fá, með súpuskeið eða öðru, sem fyrir hendi var. Þá var ætíð far- University Scholarships For Manitoba War Veterans and Their Sons and Daughters The six licensed Manitoba Brewers and all the licensed Hotelkeepers in the Province have again given $15,000.00 to the University of Manitoba to provide scholarships for Manitoba War Veterans not otherwise adequately provided for and for the sons and daughters of Manitoba War Veterans. $7,500.00 is to be used in the academic year 1946-47 to provide 15 entrance scholarships of the value of $150.00 each for students resident in Greater Winnipeg and 15 entrance scholarships of the value of $350.00 each for students resident elsewhere in the Province. The remain- ing $7,500.00 is to be used for the purpose of continuing winners of such scholarships for a second year. The scholarships may be tenable for two years in the University of Manitoba, or in any of its affiliated Colleges, in Arts, Science, Law, Medicine, Engineering, Architec- ture, Agriculture, Home Economics, Commerce, Phar- macy or other courses approved by the Board of Selection. To be eligible, a student must have a clear Grade XI or Grade XII standnig obtained as a result of Department- al examinations, but any student wht) is writing Grade XI examinations may apply. The Board of Selection has power to divert such portion of the funds as is deemed advisable for the com- pletion of a course at the University already commenced by a student who meets the War Service and other re- quirements. Application forms may be obtained from any high school princfpal, the Department of Education or the Registrar of the University of Manitoba. Applications must be sent to the Registrar of the University before August lst, 1946. BOARD OF SELECTION The Hon. Mr. Justice A. K. Dysart, M.A., L.L.D., Chancellor of the University of Manitoba. The Hon. John Dryden, Minister of Education. H. P. Armes, Esq., B.Sc., Ph.D., Dean of the University of Manitoba. C. Rhodes Smith, Esq., K.C., M.L.A., President Manitoba Command of the Canadian Legion Canon R. J. Pierce, Warden of St. John’s College. C. A. Tanner, Esq. Managing Director of Manitoba Hotel Association. Arthur Sullivan, Esq., K.C., representing the Manitoba Brewers. Frank G. Mathers, Secretary THE UNIVERSITY OF MANITOBA Melrose Cofbee 1 ljósum loftheldum pökkum, Silex eða malað eins og við á. H. L. MacKinnon Co.. Lto., Winnipeg eykur hið bragðljúfa, ferska og ilmandi Melrose kaffi á fullkomnun ánægjunnar. — Látið Melrose kaffi vera YÐAR kaffi. Við Máltíðir ið að syngja. 1 Þann tíma þekkti almenningur ekki dans og undi vel við sönginn. Hver söng með sínu nefi, og enginn gat sagt, að hann kynni söng fremur öðrum. Þá var oft sunginn tvísöngur, og var hann skemmtilegur, þegar söngmenn voru góðir. Margir karlmenn urðu góðglaðir, en aldrei kom fyrir handalögmál eða ryskingar í þeim samkvæm- um, sem eg var í, og voru þau þó mörg. Yfirleitt man eg ekki eft- ir öðru en allt færi siðsamlega fram, þótt um fjölmennar veizl- ur væri að ræða, og sumir yrðu kenndir. Nú á tímum sakna eg sérstaklega tvísöngsins, en því miður lærði eg hann ekki. Aftur var Ingvar bróðir minn góður tvísöngsmaður, þótt ekki hefði hann sterka eða mikla rödd. Mig rekur minni til einnar veizlu, sem margir söngmenn voru í. Var hún haldin í Kolla- bæ í Fljótshlíð, þegar þau gift- ust Eggert sýslumaður Briem og Ingibjörg Eiríksdóttir, sýslu- manns Sverrissonar. Þar voru samankomnir beztu söngmenn í Rangárvallasýslu, þar á meðal Skúli læknir Thorarensen, sem talirin var í þá daga beztur söng- maður á Suðurlandi. Annars man eg þetta óglöggt, því að eg var bam að aldri. Eg minnist betur veizlu í Norðurkoti í Grímsnesi, þar sem mikið var sungið og vel. Þar voru þeir Þórður kammerráð Guðmunds- son sýslumaður Árnesniga og séra Þórður Árnason í Klaustur- hólum, er báðir voru annálaðir söngmenn. Þá giftust Einar Ingimundarson bóndi í Norður- koti' og Guðný Stefánsdóttir prests í Felli. Einar þótti virð- ingargjarn og sögðu menn, að hann hefði beðið kammerráðið að vera franamistöðumann í brúðkaupi sínu og frúna að vera búrkonu. Hvað sem satt var í þessu, fóru þau kammerráðs- hjónin með þessi störf í veizl- unni, enda var hún fínni en al- ment gerðist. Allmikinn undirbúning eða umstang þurfti að hafa fyrir veizlunum. Það þurfti að fara á þá bæi, þar sem helzt var til borðbúnaður og reiða það í skrín- um og koffortum á veizlustað- inn. Síðan þurfti að skila því að lokinni veizlu, og komu þá stund- um fyrir vanhöld og ruglingur, einkum ef alt var ekki vel merkt frá hverjum bæ. Hér hefur eingöngu verið tal- að um brúðkaupsveizlur, en þótt þær væru venjulega fjörugri en erfidrykkjur,þá fór allt fram með líkum hætti á veizlustaðn- um. Frammistöðumaður hafði sama formála með breyt- ingu þeirri, er fyrr getur. Á kirkjustaðnum og við húskveðju var lík tilhögun og enn á sér stað við greftranir í sveitum, en ým- islegt einfaldara eftir þeirrar tíðar móð, svo sem að líkkistur voru reiddar þverbak á traust- um hestum til kirkjustaðarins. Stöku sinnum var reitt á kviktrj- ám. Kerrur voru þá óþekktar. Líkmenn voru oftast 6, þegar fullorðnir voru greftraðir, og heyrði eg talað um, að líkmanns- kaup væri spesía til hvers (4 kr.) er fátæklingar áttu hlut að máli. Eg heyrði talað um allmiklar skírnar- og afmælisveizlur, en aldrei var eg í þeim fjölmenn- um. Það voru aðeins stöku heldri menn, sem héldu þær. FATASÖFNUN UM ALT CANADA Þau Evrópu-börn er lifðu af þær hörmungar er innrás í lönd þeirra höfðu í för með sér, og þá svívirðilegu meðferð er þau urðu að líða meðan óvinirnir sátu að völdum, eru nú klædd druslum einum. Þessir píslarvottar hinna stríðsbitnu landa eru í stökustu neyð af fataleysi. Til að hjálpa eitthvað þess- um vesalingum er neyðarkall sent inn á hvert canadiskt heim- ili og hver fjölskylda beðin að rannsáka hvern krók og kima, alt frá hanabjálka og niður í kjallara og alt sem er þar á milli, fataskrínur, koffort, klæðaskápa o. s. frv., og gefa öll þau föt er mögulegt er án að vera til “National Clothing Collection”. Viðtökustaðir í hverju bygðarlagi verða auglýstir bráðlega.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.