Heimskringla - 31.07.1946, Síða 9
31. júlí 1946
Kveðja til vinanna vestur á strönd
Flutt í samsæti 6. júní 1946.
Við komum til að kynnast hafsins strönd
og koma út á sjóinn undur breiða,
er sundurskilur heimsins lýði og lönd,
en lýði alla til sín vill þó seiða.
Á kynnisferð við kusum hér að sjá,
þau kraftaverk, sem vit og auðlegð fremur.
Já, satt er það, að mi'kið furðast má
sá maður, sem úr fámenninu kemur.
Og fá að líta fjöllin himin há,
er hæstu tinda þekur vetrarmjöllin.
Það er svo afar dýrðleg sjón að sjá
þá sólin hellir geislum yfir fjöllin.
Við komum, sáum, sumarskartið hér
í sínum fagra yndislega blóma.
Og fagra borg, sem frægan orðstír ber,
sem fólksins mergð vill heimsækja og róma.
Og umfram alt hér vildum vini sjá
sem voru okkar grannar árum síðan.
Það okkur gladdi að geta fundið þá
við góða heilsu og álla beztu líðan.
Og ferðin hefir fögnuð okkur veitt
því fólkið okkur gladdi á allar lundir.
Við munum það og þakka viljum heitt,
uns þrýtur líf og sól er gengin undir.
\
Að lokum ávalt kemur kveðjustund,
þá kæra vini hljótum við að skilja.
Ó, þá er gott að vera glöð í lund
og góða vinsemd fyrir augum dylja.
Við geymum allt, og minnumst síðar meir
á margt er vinir sögðu á gleðistundum.
Svo hjartakærir eru allir þeir,
sem okkur hafa mætt á vinafundum.
Nú hjartans þakkir viljum votta þeim,
sem vegi okkar greiddu á allar lundir.
ELIZABETH DROTNING BRETAVELDIS
Fædd 4. ágúst 1900 •
Til þeirra stöðugt berist blessun heim
og bjartar verði allar lífsins stundir.
Um það er ekki auðvelt hér að spá
hvort aftur munum sjást í þessum heimi.
Við biðjum þess og treystum örugg á,
að alheims Drottinn faðmi ykkur og geymi.
V. J. Guttormsson
BRÉF TIL HKR.
New York, 23. júlí ’46
Aðeins fáeinar línur til að láta
Heimskringlu vita hvar við er-
um.
Við komum til New York s. 1.
miðvikudag, eins og áætlað var.
Höfðum þá verið 2 daga og 3
nætur á ferðalaginu. Þegar við
komum hingað, fréttum við að
einhver töf væri enn á því, að
lagt yrði af stað heim. Stendur
þannig á, að skipið sem flugfé-
lagið “Loftleiðir” heima á ís-
landi er að kaupa, á að verða sem
bezt útbúið, áður en það kemur
heim. T. d. er verið að fá áhöld
til þess að höggva ís af vængjum
skipsins og ýmislegt þessháttar.
Loftleiðir vilja það sem allra
fullkomnast, þegar það kemur í
þeirra hendur. Það er ekki um
neina töf að ræða af stjórnar-
skoðun á flugfarinu, eins og í
Lögbergi segir og líklegast Hkr.
einnig. En hana hefi eg ekki séð,
þegar þetta er skrifað. Grettir
konsúll Jóhannsson var hissa á
að sjá það haft eftir sér. Loft-
leiðir vilja flugfarið sem allra
bezt úr garði gert áður en það
kemur heim, sem er góð kaup-
menska og ekkert annað. Sumt
af því sem flugfarið þurfti með
til flugs í norðrinu, varð að fá
heiman frá Keflavík á Islandi;
var hér hvergi fáanlegt. En í lag
er búist við að alt verði komið í
lok þessa mánaðar; kanske fyr.
Ferðin frá Winnipeg hingað
gekk ágætlega. C. P. R. lét fara
eins vel um okkur og unt var.
Við vorum á öðrum degi komnir
til Ottawa. En þar var aðeins
staðið við í 15 mínútur. Varð eg
fyrir vonbrigðum þar og sá ekki
einu sinni merkilegustu staðina
tilsýndar, að ekki sé talað um að
maður kæmist þangað. Járn-
brautastöðvarnar þar eru niður
í kvos, og þaðan sézt ekkert af
borginni. Við sáum ekki einu
sinni friðarturninn mikla, sem
Bruce Hutchison segir, að sé í-
mynd eða tákn canadiskrar þjóð-
ar. Það er sagt stundum, að
steinar tali. En hvort þessi
“múmía” gerir það, erum við
ekkert fróðari um. 1 Montreal
var lengur staðið við og þessa
stærstu borg Canada, er gaman
að sjá; einkum þótti okkur fag-
urt að líta til hæðanna, sem eru
utarlega í borginni en samt hluti
af henni. Annars var dvölin
þarna of stutt til að geta skoðað
borgina nokkuð að ráði.
Á járnbrautarstöðinni í New
York, voru Grettir konsúll Jó-
hannsson, kona hans, Ólafur
Björnsson, sonur Sveins Björns-
sonar forseta Islands, og Franz
Anderson til að taka á móti okk-
ur og vísa til bústaðanna, sem
þeir höfðu útvegað okkur. Var
okkur þarna mikill greiði ger,
því hér er ílt að fá skjól yfir sig
þó mörg og stór séu gistihúsin.
Dvöldum við öll sem í för-
inni voru (en það voru Einar P.
Jónsson og kona hans, sá er þess-
ar línur ritar og kona hans og
Hjálmar Gíslason), á gistihúsi
því er Collingwood heitir fyrstu
tvo dagana, en síðar fluttum við,
kona mín og eg, til Franz Ander-
sens; Mrs. Andersen er systir
konu minnar og annarstaðar var
ekki að tala um að vera en þar.
Höfum við verið sem heima hjá
okkur síðan. Hjálmar fékk og
íbúð hjá íslenzkri fjölskyldu. En
þeir sem á hótelum gista, verða
sí og æ, eða á hverjum fimm dög-
Framh. á 13. bls.
•MiiiiiiiiniiuiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiipiiiiiiiiiiiiEiiiiiiiiiiiiiniiMiMiimniiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiniiiiMiiiiiiuiiiiiiil
HUIIIIMIMMOIIIIIIIIIIinilllllllllllUIIIIIIIIIII...
5 i
g
|
í þessum þremur orðum felst flest það sem vér
keppum að öðlast alla vora æfi á þessari jörð—
þessi þrjú orð eru undirstöðu atriði menningar,
sjálfstæðis og frelsis.
I ‘ ... I
Nú á þessum tímum er mikið talað og skrifað nm
öruggleika—og er það sannarlega mikils virði til
vor—en f jölskyldu og heimilis öryggið er þó undir-
staða allra þeirra hluta, og það eina, sem getur
gefið örygginu varanlegt gildi. Oss er innanhand-
ar að ná því takmarki með því að kaupa skynsam-
lega lífstryggingu. Lífstrygging hefir tvennan
tilgang—öryggi fjölskyldunnar, ef óhöpp bera aft
hendi, og farborða yður sjálfum til handa, þegar
árin færast yfir.
Talið við Great-West Life umboðsmann viðvíkj-
andi yðar sérstöku þörfum. Viðtal er á engan hátt
skuldbindandi.
= •- V
=
1 THE I
GREAT-WEST LIFE
ASSURANCE COMPANY
..................
Summer Classes
Our Summer air-cooled and air-conditionedí
classrooms make it pleasant for study.
Classes will continue throughout
the S ummer wi th out any
interruption,
FALL TERM
OPENS
MONDAY, AUGUST 26th
If you prefer to enroll either before or after this date,
however, you may do so. Our classes will be conducted
throughout the summer without any interruption.
mAKE VOUR RESERVATION Í10W
For our Fall Term we have already received many
advance registrations from near and far-distant points in
Western Canada. To reserve your desk, write us, call at
our office, or telephone. Ask for a copy of our illustrated
Prospectus, with which we will mail you a registration form.
TELEPHONE 96 434
Cf CfJ . /r/J // C&/.
■ 7 (wm/ loomme/aal Joolime
The Air-Conditioned College of Higher Standards
Portage Ave. at Edmonton St
WINNIPEG
TELEPHONE 96 434