Heimskringla - 19.03.1947, Qupperneq 1
We recommend tor
your approval our
" BUTTER-NUT
LOAF"
CANADA BREAD CO. LTD.
Wínnipeg Phone 37 144
_______Frank Hannibal, Mgr.
LXI. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN. 19. MARZ 1947
NÚMER 25.
FRÉTTAYFIRLIT OG UMSAGNIR
Flugslys á Islandi
1 skeyti fná Reykjavík til
blaðsins Winnipeg Free Press s.
1. laugardag, getur þess að fjórir
menn hafi farist í flugslysi við
norðvesturströnd íslands. Átta
voru alis í förinni. Flugfarið var
íslenzkt. Segir ekki nánar frá
fréttinni í skeytinu.
Skáldalaun
Enn á ný hefur Alþing Islands
heiðrað Þorstein Þ. Þorsteins-
son, 22. Corinne Apts, með
rausnarlegum skáldiStyrk, sem
alls nemur yfir þúsund doilara.
Sendinguna fekk Þorsteinn í
ábyrgðarflugbréfi 18. þ.m. frá
Lárusi Fjéldsted hæstaréttarlög-
manni.
Skeyti
Eftirfarandi skeyti hefir bor-
ist Heimskringlu frá Gretti Jó-
hannssyni og Árna Helgasyni er
þeir voru staddir á Gander-Ælug-
vellinum í Nýfundnalandi, en nú
eru komnir heim:
Með flugskipinu “Reykjavík”,
á fyrstu áætlunarferð til fslands,
eru Gen. Harold G. Harris, fram-
kvæmdaStjóri American Over-
seas Airlines, Hugh S. Cum-
mings, fulltrúi utanríkisráðu-
fteytis Bandaríkjanna og frú,
Thor Thors sendiherra fslands
og frú Ágústa Thors, aðalræðis-
maður Helgi Briem, Grettir Jó-
hannlsson og Árni Helgason ræð-
ismenn, Gunnar Paulsson, um-
boðsmaður; erindrekar frá póst-
mála- og flugmiálastjórn Banda-
ríkjanna. Fjöldi blaðamanna. —
Aðrir fslendingar: Magnús Joöh-
umsson, George Östlund. Sam-
tals 30.
Fjórir farþegar. Áður farið af
stað miðdagsverður á flug-
vellinum í Washington og hótið-
teg athöfn, stjórnað af Gen.
Karris. Thor Thors og Cum-
mings héldu ræður og frú Ágúst.a
skiírði flugvélina.
Fánaskipið “Reykjavík” kom
til Gander kl. 10.30 eftir rúmra
firnrn tíma flug frá New York.
Búumst við að lenda í Keflavík
kl. 9.30 í fyrramálið (19. marz).
G. L. Jóihannsson - Á. Helgason
Hinir rauðu ráða
Maður heitir J. A. (Pat) Sulli-
van. Hann hefir tilheyrt kom-
hiúnista flokki Canada og verið
formaður sjómannasamtaka, er
úanadian Seaman’s Union heitir.
Síðast liðinn föstudag sagði hann
skilið við kommúnista flokkinn
°g stöðu sína hjó sjómanna sam-
tókunum.
Á mánudaginn í þessari viku
sagði hann einnig lausri stöðu
sinni sem fjármálaritari Trades
and Latoor Congress í Canada.
Astæðuna fyrir þessu öllu
Sagði hann þá, að kommúnistar
réðu mestu orðið innan sjó-
^hannafélagsins, er hann veitti
f°rstöðu. Hann sagði þá og gera
það í mörgum öðrum slíkum fé-
iögum um alt land; það næði
Jafnvel til manna í stjórnarþjón-
Ustu.
Suillivan nefndi fjölda nafna,
er hann sagði við bommúnista
starfsemi sem þessa riðna.
Verkamanna foringi þelslsi
Sagðist gera þetta heyrinkunnugt
til verndar sjálfum sér.”
‘‘Ef eg segði stöðunni lausri,”
Sagði Sullivan, “án þess að skýra
íra þessu, teldi eg mig alls ekk!
öruggan”.
Til að lýsa starfsemi þessari
nánara, byrjaði hann á lögreglu-
þjóna-verkfaLlinu í Montreal
fyrir nokkrum árum, sem hefði
verið styrkt fjármunalega af
kommúnistum.
Taldi hann svo upp fjölda
dæma af hvernig sjómanna-sam-
tökin hefðu algerlega lent í
höndum kommúnista. — Nýir
menn gengu í félagið og voru
strax settir í ábyrgðanstöður.
Einu sinni sem oftar var Sulli-
van gerður kunnur manni, sem
ekki gekk undir réttu nafni, en
þótti afburða-skipuleggjari í fé-
laginu. Slíðar komst hann að því
að maðurinn var Fred Rose, sem
kosinn var á sambandsþing með
aðstoð sjómannalfélagsins og ann-
ara kommúnista, en sem nú situr
í fangelsi fyrir landráðabrugg
sitt.
Sjómannasamtökin sem Sulli-
van (hann er íri) stofnaði 1935,
væru fyrir áhrif kommúnista
komin svo langt frá tilgangi siín-
um, að hann sem borgari Can-
ada, gæti ekki starfað lengur við
þau.
1 kosningum sem nú fara fram
í kjördæmi Fred Rose, sagði
hann sjómannafélagið og bom-
múnista gera alt sem þeim væri
unt, að fá kommúnista kosinn.
Churchill boðið til Winnipeg
Félag borgar- og sveitarstjóra
í Canada, heldur tíunda ársbing
sitt á Winnipeg, frá 8.—11. júlí á
komandi sumri. Hefir Cöulter
borgarstjóri í Winnipeg skýrt
svo frá, að WinLston Churahill,
forsætisráðherra Englands á
stníðisárunum, hafi verið boðið
að heimsœkja þingið og halda
þar ræðu. Er búist við fjölda
borgarstjóra frá Bandarlíikjunum
og jafnvel frá Míexikó, sem gesta
þingsins.
Löggjafarþing Bandaríkj-
anna kappræðir beiðni
Trumans forseta
Ræða forsetans, er hann hélt
nýlega, og vakið hefir hina
mestu eftirtekt víðsvegar um
heim, hefir verið tekin fyrir til
ítarlegrar meðferðar í þinginu,
en aðalefni þeirrar ræðu, var
beiðni um fult vald til þess að
leggja fram amerlíska peninga,
og menn til styrktar Grikkjum,
en í augum ýmsra til að berjast
á móti útbreiðslu kommúniisma1
ií Evrópu. í
Þössi tillaga forsetans, þótt
hún nái ef til vill ekki fram að
ganga í þinginu, virðist hafa
vakið feikna athygli, og berg-
mála í nálega hverri einustu'
stórborg heimsins. Er tæplega;
auðvelt að hugsa sér að löggjaf-
arþing Bandaríkjanna geti felt
slíka tillögu, slíkar aðgerðir
myndu án alls efa fyrirgera öllu
hinu mikla áliti, tiltrú og virð-
ingu, sem alheimurinn ber svo
ótvírætt til Bandaríkj anna, og
kollvarpa hinni 9Íðustu von um
lýðræði í öðrum löndum, sem
berjast á móti kommúnisma.
Augljós kvíði virðist ríkja
meðal löggjafanna, að stríð við
Sovét-sambandið gæti orðið
hinn ehdanlegi árangur.
Truman forseti var fullviss-
aður um sterkt fylgi Republik-
ana, eigi síður en fylgi Demó-
krata, svo sem Sen. Arthur Van-
denberg, (Rep. Mich.) forseta ut-
anríkja-málanefndar þingsins.
En búast má við hinni hörð-
ustu mótstöðu mikilla orustu-
garpa beggja flokkanna, sem eru
ákveðnir í því, að vama því af
öllum mætti, að Bandaríkin
dragist inn í Evrópu-dfeilurnar.
Ungverjaland og sá hluti
Koreu, sem herliðsseta á sér stað
hafa enn sem komið er komið til
grfeina í umræðunum, þar sem
forsetinn niefndi þessi ríki með-
al þeirra, er styrkja bæri til full-
komins frelsis.
Forgöngumenn allmargra am-
eifekra stjórnardeiida, hafa nú
þegar hafist banda að veita þess-
um ríkjum lið í örðugleikum
þeirra og öngþveiti, er stafað
i hafa minsta kosti að nokkru leyti
; af því, að Sovét-Rússland hefir
iþrengt kosti þeirra; má og þar
i til telja Grikkland og Tyrkland.
| Sú hjálp sem Bandaríkin hafa
veitt útlendum ríkjum síðan
stríðinu lauk mælir með því, að
•álheims áforma-stefna sú, sem
skýrð var í ræðu Trumans for-
seta og beint til þingsins, myndi
síðar einnig geta náð til Kína og
Italíu.
Söluverð á útfluttu
hveiti hækkar
Sökum verðihækkunar i
Bandaríkjunum, og sívaxandi
þarfa og eftirspurnar eftir hveiti
í öðrum löndum, var verð þess
nýlega hækkað, þess, er með ó-
hinidruðum útflutningi er selt til
annara landa en Breta-veldis.
Hveitinefndin í Canada ákvað
að hækka Canadiskt hveiti ný-
lega um 9 cent mælirinn, og
hefir hveiti nú náð söluverðshá-
marki, eða aldrei verið jafn
hátt og nú,% síðan nefndin var
mynduð.
Hækkunin nemur nú því, að
á Northern hveiti er hún 20 oent,
slíðan í byrjun þessa mánaðar.
Numir 1. Durham hveiti er sagt _ .
* i ii s Alan Ernbury, fulltrui heun-
að bosti $3.10 'til allra annara
landa en brezku samveldisland-
anna.
Er þetta hæsta söluverð í Can-
ada, að heita má, í allri hveiti
viðskifta-sögunni. 3. maí, 1917,
náði söluverð hveitis hámarki
hér, og var það þá $3.05.
'Verð á rúgi í Winnipeg, hefir
einnig hækkað, svo að búist er
við að í maí verði það $3.43 —
nýtt hámarks-verð á rúgi.
Lýðræðis-hugsjónir
Alt hefir gengið stórslysalítið
enn, á utanríkjamála ráðherra-
stefnunni í Moskva.
Allmargir fundir hafa verið
haldnir, en úr fáum, eða engum
vandamálum auðvitað greitt til
fullnustu ennþá.
Marsihall ríkisritari, sagði ráð-
stefnunni rétt fyrir síðustu helgi,
og var alls ómyrkur í máli, að
Bandaríkin litu svo á, að ekkert
mannifólag fylgdi lýðræðis-hug-
sjónum, ef eigi væri leyft að
menn berðust fyrir rétti með-
bræðra sinna, og væru ekki
frjálsir að láta óhindrað í ljósi
trú sína og sboðanir af ótta fyrir
því, að yfirvöldin létu gnípa þá,
og einangra frá heimili sínu og
fjöidskyldu.
Ræðu þessa hélt Mr. Marshall
viðvíkjandi hinni miklu þörf á
því að skapa lýðræðis-anda í
Þýzkalandi, en sboðanir þær er
hann hélt fram, bentu algerlega
í sömu átt og yfirlýsingar, og á-
kveðin stefna í ræðu Trumans
forseta gerði viðvíkjandi einræðfi
á Grikklandi; tók raeða Marsh-
alls það fram að nákvæmlega hin
sama stefna ríkti í Bandaríkjun-
um um aðra hluta heimsins.'
Mr. Marshall sagði fulltrúa-
ráðstefnunni: (1) að 80 af 117
hemaðar-framleiðslu stöðvum á
ameríska hersetu-isvæðinu á
Þýzkalandi, væru með öllu lagð-
ar niður.
(2) Að Bandaríkin hefðu nú í
haldi aðeins 15.103 herfanga, að
mestu leyti á ítaliu, ogl5.873
væri verið að leysa úr haldi á her
setusvæði Þýzkalands. V. M.
Mölotov lýsti því yfir, að lótið
yrði uppi bráðlega, hversu marg-
ir herfangar væru enn í haldi á
rússneska hersetusvæðinu.
Bráðlega er búist við að tekið
verði til umræðu á ráðstefnunni
hin flóknu vandamál um fjölda
fólks, 9em orðið hefir landflótta,
og hVergi á heima, og viðreisn
landamæramála Þýzkalands.
tJtlitið er einnig skuggalegt
viðvíkjandi hinum hættulegu
sundrúngarmálum í Kína.
Áreiðanlegar fregnir segja, að
Kínverjar muni ekki líklegir
til að koma sér saman um að
taka neinn þátt í ráðstefnunni.
Molotov kvaðst ekki fyllilega
fallaist á greinagerð Marshalls
fyrir lýðræðisstefnunni, en
kvaðst koma að því greinilegar
f nálægri framtíð.
Þakklætisvottur Grikkja
1 Aþenu var búðum lokað í
2. klukkutíma Síðastliðinn föstu-
dag; var það einn hluti hátíða-
halds í þakklæti'gskyni við
Bandaríkin fyrir tillögu Tru-
mans forseta til styrktar Grikk-
landi, og sömuleiðis Tyrklandi.
Blómsveigur var lagður á fót-
stall minnisvarðans við Olymp-
us-musterið, en hann er reistur
til minningar um ameríska her-
rnenn, er féllu í bardaga fyrir
frelsi Grikklands, fyrir 126 ár-
um síðan.
Ákærur
komins herþjónustulýðs, bar
það harðlega fram nýlega í
Saskatchewan fylkisþinginu, að
bommúnistar væri innan C.C.F.
flokksins þar í fylki.
Þegar T. C. Douglas, forsætis-
ráðherra beiddi hann að tilnefna
þá rnenn, neitaði hann að gera
það. G. N. Danielson, (Lib. Arm
River) kvað Dr. Laidler, er talaði
síðast liðið sumar á almennu
þingi C.C.F. í Regina, bommún-
ista frá New York, en hann er
forseti iðnaðarfélags-samtaba,
bygðu á lýðræðislegum grund-
velli, sem Mr. Embury nefndi
þó kommúnista-flokk í Banda-
ríkjunum.
Ennfremur kvað Mr. Ernbury
Eleanor Roosevelt vera varafor-
seta þessa félagsskapar.
Skoðanir Chiangs
Nanking — Generalissimo
Ohiang Kai-Shek, sagði Kuom-
intangflokks fulltrúa-ráðinu síð-
astliðinn laugardag, að kín-
verska stjórnin væri ákveðin í
því, að bæla niður til fulls, hern-
aðar uppreisn bommúnista.
Máli sínu til styrktar, lýsti
hann yfir ákveðinni stefnu sinni
að fullgera hina nýju stjórnar-
skrá, og með því væru hin 20
ára gömlu stjórnaryfirráð eins
flokks í Kuomintang á enda.
Ný samtök
Píus páfi XII., hefir tilkynt
myndun nýrrar félagsheildar, er
nefnist “Provita Matar Ecclesia”
Á að safna saman ýmsum verald-
legum stafnunum, er eigi voru
áður háðar stjórn og yfirráðum
kaþósku kirkjunnar. I félags-
myndun þessari verða leikmenn,
er vinna heit, svipuð þeim, er
gert er í öðrum trúarreglu-stofn-
unum, en þó gildir það ekki alla
æfi. Verða meðlimir þessa fé-
lags leikmenn eftir 9em áður, en
helga líf sitt postullegu trúar- og
siðaíbótar-starf i.
Lofsamleg ummæli
Winston Churchill sagði,
skömmu eftir að Truman foraeti
hélt ræðu sína síðastliðna viku,
að ef B^ndaríkin hefðu tekið
samskonar stefnu fyrir síðaista
stríð, þá myndi það hafa komið
í veg fyrir allar þær hörmungar.
Churchill mintist fyrst þess boð-
skapar Trumans til þingsins til
þeSs að veita Grikklandi og
Tyrklandi lið, til þess að koma í
veg fyrir hin víðtæku og hrað-
vaxandi áhrif kommúnista.
Ræðu sína hélt Churchill fyr-
ir íhalds flokknum.
Hann kvað enga uppástungu,
er bomið hefði fram upp á síð-
kastið, liklegri til þess að auka
tækifæri til að boma á friði,
sátt og eindraegni í heiminum.
Ef að sllík tillaga hefði komið
fram 1914, hefði verið auðveld-
ara að vemda friðinn, og við
lifðum þá í alls-ólíkum, og betri
heirni, en við gerum nú. Kvað
hann stefnu Bretlands hina sömu
og Bandaríkjanna, þá, að halda
uppi vináttu-tengslum við Rúss-
land, vináttu-tengslum, er staf-
uðu af þrótti og styrk, en ekki af
uppgjöf eða vanmætti.
14 manns farast í
flóðum á Bretlandi
Svo má Segja, að ein plágan
sæki aðra heim, hvað Bretland
snertir.
Tæplega hefir í mannaminn-
um ríkt annað eins harðrétti og
hörmungar af völdum náttúru-
aflanna, eins og veðrátta sú, og
afleiðingar hennar, er dunið
hafa ýfir Bretlandseyj ar á þess-
um vetri. Nú síðast í byrjun
þessarar viku, gerði ofviður svo
mikið með regni, að veðurhrað-
inn er talinn 100 mlílur á kl-
stund. 14 manns létu lífað, sem
vitað er, undir byggingum, er
hrundu í rústir, eins og á tímum
hernaðar-sprengju-ógnanna.
Sjö bátar sukku á ýmsum
stöðum með ströndum fram. Svo
var flóðið mikið í kringum hinn
fræga Eton-skóla, að 1,100 nem-
endur v,arð að senda heim. Margt
fólk meiddist alvarlega í ofviðri
þessu, auk þess sem fórst.
Tala sauðfjár sem fórst, er
talin nema 1,000,000 auk gripa,
er farist hafa í stórum stíl. Talið
er, að þetta sé algerlega hinn
verSti vetur er komið hefir yfir
England á 66 árum.
Kvikfjárskaðinn einn er met-
inn £15,000,000 — $60,000,000.
Mótmæli
Erindi, Sem Martin Niemoell-
er, prestur, hinn mikli þýzki
ræðuskörungur, hélt nýlega í
Toronto, var vegið, og létt fund-
ið af Rabbi Abraham L. Zein-
berg í messugerð, er hann hafði
í Holy Blossom Temple hér fyrir
skömmu. Séra Niemoeller hafði
haldið því fram að mikill sálar-
styrkur, og göfugar lyndisein-
kunnir hefðu komið fram hjá
þýzku þjóðinni, eftir að hún
beið ósigur.
Þfetta kvað Raibbi Zeinberg,
algerlfega rangt. Kvað hann sér
þykja mikið fyrir að geta ekki
verið Mr. Niemoeller sammála.
Sagði hann, að núverandi
tímar krefðust heilbrigðs og
styrks hugsandgangs, þar sem
tilfinningaríki kæmist tæplega
að; kvað hann gleymsku- og fyr-
irgefningar-stefnuna ekki mjög
MERKISEONA LÁTIN
Hinn 10. febrúar í ár lést að
heimili sínu í Watlington, Oxford
í Englandi, Dame Jessie Kin-
mount, kona Sir William A.
Craigie, hins ágæta Islandsvinar,
sem löngu er víðkunnur orðinn
fyrir margþætt starf sitt í þágu
norrænna fræða, og þá sérstak-
lega varðandi íslenzkar bók-
mentir.
Verða þeim, er þetta ritar, nú
í huga ljúfar minningar um góð
kynni við þau hjón, Sir William
°g hans, í ferðinni til íslands
Alþingishátíðarsumarið 1930, og
þá eigi síður ógleymanleg stund
á heimili þeirra í Ghicago, þar
sem eg kynntist af eigin reynd
annálaðri gestrisni þeirra.
Lady Craigie, er var gem
maður hennar fædd í Dundee á
Skotlandi, giftist honum í júní
1897, eða fyrir nálega 50 árum
síðan. Var hún gáfukona mikil
og rithöfundur og manni sínum
frábærlega samhent í hinum
mikilvægu og víðfeðmu ritstörf-
um og kennslustarfi hans. Hún
var og mikill íslandsvinur sem
hann og kom tvisvar til Islands
með honum, fyrsta sinni sumar-
ið 1910, og öðru sinni Alþingis-
háfíðaraumarið sem fyrr getur.
Hún var vel að sér í dönsku og
samdi ásamt manni sínum
danska kenslubók (Easy Read-
ings in Danish, 1923), en áður
höfðu þau sameiginlega snúið á
enska tungu ævintýrum Ander-
sens (Fairy Tales and Other
Stories by H. C. Andersen,1914).
Lady Craigie var atkvæða-
mikil merkiskona, sem verður
minnisstæð öllum þeim, er
kynntust henni. Er henni vel
lýst og rétt í þessum orðum
Snæbjarnar bóksala Jónssonar í
grein hans um mann hennar (W.
A. Craigie, Eimreiðin, 1927):
‘Hún er hin mesta ágætiskona í
alla staði, fríð sýnum og tiguleg
í framgöngu, vinföst og veglynd,
skörungur mikill og einörð.”
Þannig kom hún mér og fyrir
sjónir, og slík er sú mynd, er eg
geymi í þakklátum huga af
þeirri höfðingskonu.
Veit eg einnig, að þeir verða
margir íslendingarnir í landi
hér, sem taka undir með mér, er
eg með þessum minningarorð-
um, þó fátækleg séu, votta hin-
um aldurhnigna og virðulega Is-
Iand9vini, Sir William A.
Craigie, inniléga hluttekningu í
þeim mikla harmi, sem honum
hefir nú kveðinn verið.
VII eg svo gera að mínum
orðum þessar ljóðlínur Snæ-
bjamar Jónssonar úr minning-
arkrvæði hans um Lady Craigie
(Tíminn, 15. febr. 1947):
“Hrein sem lands míns heiðis-
bjarmi
helzt þín minning, göfga sprund,,
Ricliard Beck
aðgengilega í hugum heimilis-
lauss flóttafólks, er eigi væri
sýnd nærri því eins mikil ná-
kvæmni og hugsunarsemi, og
nazi-föngum væri sýnd í Can-
ada.
Meistarastykkið
hans Hitlers
Jafnvel þó milljónir eintáka
af bók Adolf Hitlers, “Mein
Kamph” væru prentuð á Þýzka-
landi, hefir þings-ibókasafn
Bandaríkjanna átt örðugt með
að fá 150 eintök á öllum arner-
ísku hersetusvæðunum.
Er þetta haft eftir John
Rhind, er vinnur við herstjóm-
ar-mentadeiidina í Berlin.