Heimskringla - 08.10.1947, Side 2

Heimskringla - 08.10.1947, Side 2
HEIMSKRINGLA WINNIFEG, 8. OKT. 1947 2. SÍÐA FRÉTTIR FRÁ ISLANDI Barrskógar til gagnviðar ættu að geta þrifizt hér á landi Það er álit Skógræktarfélags Islands, að innlend reynsla og athuganir skógræktarstjóra á vaxtarskilyrðum skóga í nyrstu skógarhéruðum austan hafs og vestan, sanni að hér geti þrifizt barrskógur til gagnviðar. Gerði aðalfundur skógræktarfélagsins samþykkt á þes9a leið, en hann var haldin í Vaglaskógi dagana 30. — 31. ágúst. Sóttu hann 37 fulltrúar frá 11 héraðsskógrækt- arfélögum. Beindi fundurinn því til þings og stjórnar að hraða sem mest skógrækt ,í landinu, svo að kom- izt geti upp barrskógar, er gefi af sér gagnvið. Vildi fundurinn, að friðaðir verði þeir birkiskóg- ar eða skógleifar, sem enn eru ófriðaðir og hentugir eru til skjóls fyrir barrskóga, svo og að ríkið hafi með höndum tilrauna- starfsemi, fræöflun, sáningu og uppeldi trjánna. Þá vill fund- urinn leggja áherzlu á að koma upp nytja skógum við sem flesta bæi með það fyrir augum, að sem flestar bújarðir geti í fram- tíðinni notið skógarhlunninda. Margar fleiri samþykktir gerði fundurinn um ýms skóg- ræktarmál, og þakkaði meða annars uppeldismálaþinginu á- huga þann, er það sýndi skóg ræktinni. Stjóm félagsins skipuðu þess- ír menn: Valtýr Stefánsson for- maður, Einar E. Sæmundsson skógarvörður, Haukur Jörunds- son kennari, Hermann Jónasson alþingismaður, og H. J. Hólm- járn níkisráðuniautur. Sam kvæmt lögum félagsins áttu tveir stjómarnefndarmenn að ganga úr stjórninni eftir hlut kesti. Komu upp hlutir Hauks Jörundssonar og Hermanns Jón- assonar, er báðir voru endur- kosnir með lóftaki, svo og vara- maður í stjórninni dr. Björn Jóhannesson. —Alþbl. 4. sept. * * * 10 listamenn opna í dag sýn- ingu á 70 höggmyndum og málverkum Danskur arkitekt, Einar Borg, kennari við Akademið í Kaup- mannahöfn, hefur aðstoðað lista- mennina við uppsetningu sýn- ingarinnar. Gefin hefur verið út stór sýn- ingarskrá, 36 síður, og em í henni tvær greinar og myndir eftir alla sýnenduma. Listamennirnir, sem eiga verk á sýningunni, eru þessir: Tove Ólafsson, Sigurjón Ólafsson — Nlína Tryggvadóttir, Snorri Ar- iribjamar, Jóhannes Jóhannes- son, Valtýr Pétursson, Kjartan Guðjónsson, Gunnlaugur Schev- ing, Kristján Davíðsson og Þor- valdur Skúlason. Sumir þessara listamanna hafa aldrei haldið hér sýningu fyrr. —Alþbl. 31. ágúst. * * * Viðtal við Soffíu Guðmunds- dóttur í BBC Á mánudaginn kemur klukk- an 19 — 19.30 verður útvarpað á dönsku frá BBC viðtali við frú Soffíu Guðlaugsdóttur leikkonu. Mun hún ræða í fyrsta lagi um leikhús í London, í öðm lagi um íslenzka leiklist og í þriðja lagi um álit sitt á flutningi íslend- ingasagnanna í brezka útvarpið. Sama dag verður flutt í brezka útvarpið í þriðja sinn leikþáttur úr íslendingasögun- um. —Aiþbl. 5. sept. ★ ★ * Forsetinn tekur sér hvíld frá störfum í vikutíma Forseti Islands, herra Sveinn Björnsson hefur tekið sér hvíld frá störfum í viku tíma til dval- ar á Landakots spítala. —Alþbl. 6. sept. tt • * Dilkakjötið lækkar um kr. 1.50 kg. 1 gær gekk d gildi verð lækk- un á sumarslátraðu dilkakjöti. Samkvæmt ákvörðun fram leiðsluráðs landbúnaðarins — lækkar útsöluverðið úr krónum 16,90 kílóið niður í krónur 15,40 kílóið, eða um kr. 1,50 kg. —Aliþbl. 2. sept. * * * Bandaríkin kaupa 3400 smá- lestir af saltfiski á íslandi Kristján Einarsson, frmvstj. Sölusambands íslenzkra fisk- framleiðanda hefur skýrt Morg- unblaðinu frá því, að samningi sé nú lokið milli S. 1 F. annars- vegar Commodity Credit Corp., Washington, hinsvegar, þar sem þeir kaupa 3400 smálestir af ís- lenzkum saltfiski og fer greiðsla fram í dollurum. greiðslu að ræða, eins og áður segir. Með þessari sölu mun láta nærri að seld hafi verið um 20,000 smálestir af saltfiskfram- leiðslunni, en hún nemur alls um 30,000 smálestum á þessu ári. —Mbl. 1. sept. * * tr Ameríkuríkin telja Grænland til varnarsvæðis síns Á landvamarráðstefnu Ame- ríkuríkjanna, sem lauk í þessari viku, var samþykkt að stækka vamarsvæði Ameríku. Það mun hér eftir ná milli heimskaut- anna eftir vissum langdarbaug- um. M. a. er því ætlað að ná til meginhluta Grænlands og meg- inhluta Suðurskautslandanna. Ráðstefnan, sem kom sér sam- an um sameiginlegar landvarn- ir Ameríkumkjanna, lýsti yfir því, að hún gæti ekki þoiað í- hlutun annarra ríkja á þessu svæði. Þó mun réttur Dana tii Grænlands ekki véfengdur inn- an þessara takmarka. Eins og kunnugt er, hafa und- anfarið staðið yfir samningar milli Dana og Bandaríkjanna um þessi mál, án þess að sam- komulag hafi fengizt, þar sem Danir hafa ekki viljað fallast á amenískar herstöðvar á Græn- landi. Bandarfkin virðast nú hafa fengið öll Amerískuríkin til að styðja þessa kröfu sárna, að Kanada undanskildu, er ekki tók þátt í ráðstefnunni. Virðast horf ur á, að Grænland geti orðið svipað deiluefni milli Dana og Bandarfkjanna og Svaibarði milli Norðmanna og Rússa. Ragnars saga loðbrókar kvikmynduð Danska kvikmyndafélagið — “Dansk Kulturfiim” hefur nú í hyggju að kvikmynda Ragnars sögu loðbrókar; en hún er sem kunnugt er, í hinu íslenzka sagna safni Fornaldarsögum Norðurlanda. Handrit kvik- myndarinnar hafa þeir próf Jo- hannes Bröndsted og dr. phil. P. V. Glob samið. Ekki er þó á- kveðið, hvenær myndatakan hefst, þar sem félagið hefur sem Fyrir rúmri viku kom hingað j stendur ekki nægilegt fé til um- ráða. Ætlunin er, að kvikmynd þessi verði mjög tilkomumikil og skrautleg, enda gerir félagið sér vonir um, að hægt verði að sýna hana um heim. —Alþbl. 31. ágúst H AUST Nú er tíminn til þess að hugsa fyrir vetrarþægindum, við- gerðum á íveruhúsum og öðrum byggingum . . . eldivið . . . skepnufóðri. Einnig er nú tímabært að færa í tal við forstjóra útibús vors, áform yðar og peningalegar þarfir viðvíkjandi ókomna tímanum. Yður mun verða vel tekið. THE ROYAL BANK OF CANADA ER ÖSKUSYÆÐIÐ MISEITRAÐ? til lands Mr. Robert W. Tyson, sem var fulltrúi Bandaríkja- stjórnar í þessum efnum, og samdi hann um kaup þessi fyr- ir þeirra hönd. Afskipun á fiski þessum fer fram í október og nóvember. Verð það, er vér fáum fyrir fiskinn, er mjög hliðstætt því er vér höfum náð annars staðar á sama tíma, en hér er um dollara- ÁREIÐANLEG VINGJARNLEG og ÁBYGGILEG þjónusta til boða hjá öllum vorum sveita kornlyftu umboðsmönnum COUNTER SALESBOOKS ♦ ♦ Kaupmenn og aðrir sem þannig lagaðar bækur nota, geta fengið þær með því að snúa sér til vor. Allur frágangur á þessum bókum er hinn vandað- asti. Spyrjist fyrir um verð, og á sama tíma takið fram tegund og fjölda bókanna sem þér þarfnist. The Viking Press Limited 853 Sargent Ave. Winnpieg, Man. Stöðvast skip Eimskip 1. nóv. Síðastliðinn laugardag sagði Sjómannafélag Reykjavíkur upp samningum við Eimskip fyrir hönd sjómanna og kyndara frá 1. nóvember að telja. Þegar stjórn Eimskips hafði fengið samningsuppsögn þessa, sagði hún upp samningum við stýrimenn, vélstjóra, matsveina og veitingaþjóna frá sama tíma og uppsögn Sjómannafélagsins kvað á um. Samningi við loft- skeytamenn var sagt upp frá 1. febrúar, en samningur við þá leyfði ekki uppsögn fyrr. —Tíminn 3. sept. * + * Forseti skipar embættismenn Forseti íslands skipaði í gær eftirtalda embættismenn: Pétur Benediktsson sendiherra Islands á Italíu, Erik Juuranto aðalræð- ismann Islands i Helsinki, Olaf Lyngbye ræðismann Islands í Aalborg, Pál Ólafsson ræðis- mann íslands í Færeyjum, Valtý H. Valtýsson héraðslækni í Kleppjárnsreykjahéraði, Vem- hard Þorsteinsson kennara við Menntaskólann á Akureyri. —Alþbl. 4. sept. Sigurður S. Anderson, 800 Lipton St., hefir tekið að sér inn- köllun fyrir Hkr. í Winnipeg. Áskrifendur em beðnir að minn- ast þessa og frá þeirra hálfu gera honum starfið sem greiðast. — Símanúmer hans er 28 168. * * * Hið nýja talsíma númer Dr. S. J. Jóhannessonar er 87 493. Þó fram hafi komið, að sauðfé hafi veikst í Næfurholti og bæj- um þar í grend, þá hefur ekki verið talað um að fé á aðalösku- svæðinu hafi orðið illa úti eða veikst. En talsvert af fé hefir verið heima t. d. á Barkiarstöð- um og fleiri bæjum þar í grend og svo alt Eyjafjallafé verið heima, eins og alt fé heima á Fossi, en þar hefir fé að nokkru leiti óskemda eða lítið skemmda jörð. En þegar eg smaiaði nokkr- um kindum þ. 16. júlí á Rauð- nefs stöðum kom í ljós að kindur sem ýmist höfðu verið heima í allt vor og þær er komu snemma vom ljótar ein ær t. d. næri dauð úr hor sem þó var kópalin til 15 maí. Einnig voru þar mjög léleg lömb og vom sum gulgræn upp á miðja leggi og virtist hár- ið ætla að detta af fótunum. Hins vegar þó ekki sjáanleg missmiíði á beinunum. En á Rauðnefsstöð- um var það svo eftir fyrstu gos- hrynuna, að allir grjótveggir og steinar urðu úlf gráir með græn- leitum blæ. Fjarlægir steinar líktust tilsýndar ofurlítið hús- lituðum eða blökkum kindum. Þetta smá veðraðist svo af, varð fyrst flekkótt, en hvarf svo þeg- ar fyrst ringdi, en þó kom í all- ar lægðir límkend skán og váða var líkast því sem skolað hefði verið úr sementsfötu og það mnnið í rákum. Á fætuma á manni kom leiðinlega límkend skán og mjög vont var að þvo sokkana. Vel getur verið, að minna hafi verið af þessu efni í öskunni eftir því sem nær var Heklu. En yfirleitt var það svo, þegar eg sá þessar kindur, að þær kindur sem lengst höfðu verið þarna vom miklu lélegri og sumar ljótar, en þær kindur sem nýlega vom komnar mjög fall- legar og með fellegum lömbum; þó nægur hagi fyrir fátt fé og túnið loðið á blettum þar sem fokið hafði af, en alt upp í 1 met ers dyngjur í öllum lægðum, þar sem spretta var æfinlega best áður. Annars virtust skepnur ekki vilja orðið taka niður í túninu, enda var grasið orðið, 16. júlí, sölnað sem á réttum væri. Nokkuð bar á þessu á útjörðinni líka, en þar er strjáll en sterkur gróður og smágresi og allskonar lauf sem mikið var af áður, sást ekki. Þarna er mikið mislendi og meginhluti landsins þakið ösku- lagi, misþykku og er þarna mikil ófærð fyrir hesta víðast hvar. 11. Eg bendi á þennan mismun á Austur-Landeyjamar, en strax þegar fé var slept í Landeyjun- um kom það í Fljótshlíðarland saman við þeirra fé og er sumt þar enriþá, enda nýgerð girðing i þessu sambandi enn ólokuð, þ.e. engin grind í hliðinu. 111. Eg var einn af þeim fáu sem vildu lóga kindum þegar askan var komin. Óttaðist sumarhagan og svo það að ekki mátti flytja fé milli vissra svæða. Fóður- kostnaður reyndist mikill á þeim kindum sem heima vom og þó nokkur á þeim kindum sem vom annars staðar. Ef menn vildu nú reikna út eða leggja saman fóð- urkostnaðinn og lömbin sem ærnar sumar létu þegar fóður kindunum vegna þess, að sumiri breytingin kom, svo og önnur héldu að óhætt væri að hafa lömib sem farist hafa og kindur þarna talsvert af fé strax og sem kunna að drepast eða verða gróður fór að koma, en það varj aumingjar með öllu verðlausar, misskilriingur, bæði vegna þess j þá gseti svo farið, að hagfræðin hvað gróður var lengi lítill og j 1 þessu sambandi fyki út í veður auk þess sérstök illviðri hvenær j og vind. sem vind hreifði. Má nokkuð; En mannúðin? Er það mann- marka veðurlagið á því að þój úð, að láta nýfædd lömíb kafna ekki væri nema svo sem 6 — 7 í öskúbyngjum eða jafnvel þó vindstig, þá var eins og allar um eldri lömb væri að ræða, fyr- rúður í húsunum væm að mjöi-1 ir harðhnjask eða rekstur á ger- brotna, samtímis af vikurfokinu.; samlega ófæru landi fyrir siíkan 1 öðm lagi bendi eg á þetta j fénað. Eða það, að kindur veslist vegna þess, að það mun nauð- UPP eða falli máske úr hor að synlegt að hafa eftirlit með fé á þessu svæði þegar fram á sum- arið kemur, en þarna em kind- ur frá mér og svo talsvert úr Fljótshlíðinni (eða var um dag- inn) og er það undarlegt, þar sumarlagi? Og söluhorfur á kjöti virðast ekki góðar. Hinar gífurlegu niðurgreiðslur úr rík- issjóði spá engu góðu í þessu efni. Og á síðast liðnu ári urðu bændur að sætta sig við, að tapa sem Fljótshlíðin er sýkt af gama1 nálega 1/6 fjár verðisins ems og veiki, enda fé nú málað á haus eða horn. Þetta gerir ekki til gagnvart mínum kindum, sem eiga fyrir sér að falla bráðlega, en er dálítið lakara gagnvart fé frá Reynifelli og öðrurn bæjum þar efra. Annars eru þessar sauðfjárveikivamir næstum — hlægilegar eins og þeim er hag- að hér um slóðir. Eftir að aikan var komin í Fljótshlíðina máttu engar kindur þaðan koma í það var reiknað í haust og er slíkt í rauninni óþolandi á sama tíma og hækkað er kaup hjá verkafólki. Björn Guðmundsson, frá Rauðnefsstöðum —Mbl. 4. sept. Framvegis verður Heims- kringla fáanleg í lausasölu, hiá hr. bóksala Láms Blöndal. Skóla vörðustíg 2, Reykjavík, Island.

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.