Heimskringla - 08.10.1947, Page 2
HEIMSKRINGLA
WINNIFEG, 8. OKT. 1947
2. SÍÐA
FRÉTTIR FRÁ ISLANDI
Barrskógar til gagnviðar ættu
að geta þrifizt hér á landi
Það er álit Skógræktarfélags
Islands, að innlend reynsla og
athuganir skógræktarstjóra á
vaxtarskilyrðum skóga í nyrstu
skógarhéruðum austan hafs og
vestan, sanni að hér geti þrifizt
barrskógur til gagnviðar. Gerði
aðalfundur skógræktarfélagsins
samþykkt á þes9a leið, en hann
var haldin í Vaglaskógi dagana
30. — 31. ágúst. Sóttu hann 37
fulltrúar frá 11 héraðsskógrækt-
arfélögum.
Beindi fundurinn því til þings
og stjórnar að hraða sem mest
skógrækt ,í landinu, svo að kom-
izt geti upp barrskógar, er gefi
af sér gagnvið. Vildi fundurinn,
að friðaðir verði þeir birkiskóg-
ar eða skógleifar, sem enn eru
ófriðaðir og hentugir eru til
skjóls fyrir barrskóga, svo og að
ríkið hafi með höndum tilrauna-
starfsemi, fræöflun, sáningu og
uppeldi trjánna. Þá vill fund-
urinn leggja áherzlu á að koma
upp nytja skógum við sem flesta
bæi með það fyrir augum, að
sem flestar bújarðir geti í fram-
tíðinni notið skógarhlunninda.
Margar fleiri samþykktir
gerði fundurinn um ýms skóg-
ræktarmál, og þakkaði meða
annars uppeldismálaþinginu á-
huga þann, er það sýndi skóg
ræktinni.
Stjóm félagsins skipuðu þess-
ír menn: Valtýr Stefánsson for-
maður, Einar E. Sæmundsson
skógarvörður, Haukur Jörunds-
son kennari, Hermann Jónasson
alþingismaður, og H. J. Hólm-
járn níkisráðuniautur. Sam
kvæmt lögum félagsins áttu
tveir stjómarnefndarmenn að
ganga úr stjórninni eftir hlut
kesti. Komu upp hlutir Hauks
Jörundssonar og Hermanns Jón-
assonar, er báðir voru endur-
kosnir með lóftaki, svo og vara-
maður í stjórninni dr. Björn
Jóhannesson. —Alþbl. 4. sept.
* * *
10 listamenn opna í dag sýn-
ingu á 70 höggmyndum og
málverkum
Danskur arkitekt, Einar Borg,
kennari við Akademið í Kaup-
mannahöfn, hefur aðstoðað lista-
mennina við uppsetningu sýn-
ingarinnar.
Gefin hefur verið út stór sýn-
ingarskrá, 36 síður, og em í
henni tvær greinar og myndir
eftir alla sýnenduma.
Listamennirnir, sem eiga verk
á sýningunni, eru þessir: Tove
Ólafsson, Sigurjón Ólafsson —
Nlína Tryggvadóttir, Snorri Ar-
iribjamar, Jóhannes Jóhannes-
son, Valtýr Pétursson, Kjartan
Guðjónsson, Gunnlaugur Schev-
ing, Kristján Davíðsson og Þor-
valdur Skúlason.
Sumir þessara listamanna
hafa aldrei haldið hér sýningu
fyrr. —Alþbl. 31. ágúst.
* * *
Viðtal við Soffíu Guðmunds-
dóttur í BBC
Á mánudaginn kemur klukk-
an 19 — 19.30 verður útvarpað
á dönsku frá BBC viðtali við frú
Soffíu Guðlaugsdóttur leikkonu.
Mun hún ræða í fyrsta lagi um
leikhús í London, í öðm lagi um
íslenzka leiklist og í þriðja lagi
um álit sitt á flutningi íslend-
ingasagnanna í brezka útvarpið.
Sama dag verður flutt í
brezka útvarpið í þriðja sinn
leikþáttur úr íslendingasögun-
um. —Aiþbl. 5. sept.
★ ★ *
Forsetinn tekur sér hvíld frá
störfum í vikutíma
Forseti Islands, herra Sveinn
Björnsson hefur tekið sér hvíld
frá störfum í viku tíma til dval-
ar á Landakots spítala.
—Alþbl. 6. sept.
tt • *
Dilkakjötið lækkar
um kr. 1.50 kg.
1 gær gekk d gildi verð lækk-
un á sumarslátraðu dilkakjöti.
Samkvæmt ákvörðun fram
leiðsluráðs landbúnaðarins —
lækkar útsöluverðið úr krónum
16,90 kílóið niður í krónur 15,40
kílóið, eða um kr. 1,50 kg.
—Aliþbl. 2. sept.
* * *
Bandaríkin kaupa 3400 smá-
lestir af saltfiski á íslandi
Kristján Einarsson, frmvstj.
Sölusambands íslenzkra fisk-
framleiðanda hefur skýrt Morg-
unblaðinu frá því, að samningi
sé nú lokið milli S. 1 F. annars-
vegar Commodity Credit Corp.,
Washington, hinsvegar, þar sem
þeir kaupa 3400 smálestir af ís-
lenzkum saltfiski og fer greiðsla
fram í dollurum.
greiðslu að ræða, eins og áður
segir.
Með þessari sölu mun láta
nærri að seld hafi verið um
20,000 smálestir af saltfiskfram-
leiðslunni, en hún nemur alls
um 30,000 smálestum á þessu
ári. —Mbl. 1. sept.
* * tr
Ameríkuríkin telja Grænland
til varnarsvæðis síns
Á landvamarráðstefnu Ame-
ríkuríkjanna, sem lauk í þessari
viku, var samþykkt að stækka
vamarsvæði Ameríku. Það mun
hér eftir ná milli heimskaut-
anna eftir vissum langdarbaug-
um. M. a. er því ætlað að ná til
meginhluta Grænlands og meg-
inhluta Suðurskautslandanna.
Ráðstefnan, sem kom sér sam-
an um sameiginlegar landvarn-
ir Ameríkumkjanna, lýsti yfir
því, að hún gæti ekki þoiað í-
hlutun annarra ríkja á þessu
svæði. Þó mun réttur Dana tii
Grænlands ekki véfengdur inn-
an þessara takmarka.
Eins og kunnugt er, hafa und-
anfarið staðið yfir samningar
milli Dana og Bandaríkjanna
um þessi mál, án þess að sam-
komulag hafi fengizt, þar sem
Danir hafa ekki viljað fallast á
amenískar herstöðvar á Græn-
landi. Bandarfkin virðast nú
hafa fengið öll Amerískuríkin
til að styðja þessa kröfu sárna, að
Kanada undanskildu, er ekki tók
þátt í ráðstefnunni. Virðast horf
ur á, að Grænland geti orðið
svipað deiluefni milli Dana og
Bandarfkjanna og Svaibarði
milli Norðmanna og Rússa.
Ragnars saga loðbrókar
kvikmynduð
Danska kvikmyndafélagið —
“Dansk Kulturfiim” hefur nú í
hyggju að kvikmynda Ragnars
sögu loðbrókar; en hún er sem
kunnugt er, í hinu íslenzka
sagna safni Fornaldarsögum
Norðurlanda. Handrit kvik-
myndarinnar hafa þeir próf Jo-
hannes Bröndsted og dr. phil.
P. V. Glob samið. Ekki er þó á-
kveðið, hvenær myndatakan
hefst, þar sem félagið hefur sem
Fyrir rúmri viku kom hingað j stendur ekki nægilegt fé til um-
ráða. Ætlunin er, að kvikmynd
þessi verði mjög tilkomumikil
og skrautleg, enda gerir félagið
sér vonir um, að hægt verði að
sýna hana um heim.
—Alþbl. 31. ágúst
H AUST
Nú er tíminn til þess að hugsa fyrir vetrarþægindum, við-
gerðum á íveruhúsum og öðrum byggingum . . . eldivið . . .
skepnufóðri. Einnig er nú tímabært að færa í tal við forstjóra
útibús vors, áform yðar og peningalegar þarfir viðvíkjandi
ókomna tímanum. Yður mun verða vel tekið.
THE ROYAL BANK OF CANADA
ER ÖSKUSYÆÐIÐ
MISEITRAÐ?
til lands Mr. Robert W. Tyson,
sem var fulltrúi Bandaríkja-
stjórnar í þessum efnum, og
samdi hann um kaup þessi fyr-
ir þeirra hönd. Afskipun á fiski
þessum fer fram í október og
nóvember.
Verð það, er vér fáum fyrir
fiskinn, er mjög hliðstætt því er
vér höfum náð annars staðar á
sama tíma, en hér er um dollara-
ÁREIÐANLEG
VINGJARNLEG og
ÁBYGGILEG þjónusta
til boða hjá öllum vorum sveita
kornlyftu umboðsmönnum
COUNTER SALESBOOKS
♦
♦
Kaupmenn og aðrir sem
þannig lagaðar bækur
nota, geta fengið þær með
því að snúa sér til vor.
Allur frágangur á þessum
bókum er hinn vandað-
asti. Spyrjist fyrir um
verð, og á sama tíma takið
fram tegund og fjölda
bókanna sem þér þarfnist.
The Viking Press Limited
853 Sargent Ave. Winnpieg, Man.
Stöðvast skip Eimskip 1. nóv.
Síðastliðinn laugardag sagði
Sjómannafélag Reykjavíkur
upp samningum við Eimskip
fyrir hönd sjómanna og kyndara
frá 1. nóvember að telja.
Þegar stjórn Eimskips hafði
fengið samningsuppsögn þessa,
sagði hún upp samningum við
stýrimenn, vélstjóra, matsveina
og veitingaþjóna frá sama tíma
og uppsögn Sjómannafélagsins
kvað á um. Samningi við loft-
skeytamenn var sagt upp frá 1.
febrúar, en samningur við þá
leyfði ekki uppsögn fyrr.
—Tíminn 3. sept.
* + *
Forseti skipar embættismenn
Forseti íslands skipaði í gær
eftirtalda embættismenn: Pétur
Benediktsson sendiherra Islands
á Italíu, Erik Juuranto aðalræð-
ismann Islands i Helsinki, Olaf
Lyngbye ræðismann Islands í
Aalborg, Pál Ólafsson ræðis-
mann íslands í Færeyjum, Valtý
H. Valtýsson héraðslækni í
Kleppjárnsreykjahéraði, Vem-
hard Þorsteinsson kennara við
Menntaskólann á Akureyri.
—Alþbl. 4. sept.
Sigurður S. Anderson, 800
Lipton St., hefir tekið að sér inn-
köllun fyrir Hkr. í Winnipeg.
Áskrifendur em beðnir að minn-
ast þessa og frá þeirra hálfu gera
honum starfið sem greiðast. —
Símanúmer hans er 28 168.
* * *
Hið nýja talsíma númer Dr.
S. J. Jóhannessonar er 87 493.
Þó fram hafi komið, að sauðfé
hafi veikst í Næfurholti og bæj-
um þar í grend, þá hefur ekki
verið talað um að fé á aðalösku-
svæðinu hafi orðið illa úti eða
veikst. En talsvert af fé hefir
verið heima t. d. á Barkiarstöð-
um og fleiri bæjum þar í grend
og svo alt Eyjafjallafé verið
heima, eins og alt fé heima á
Fossi, en þar hefir fé að nokkru
leiti óskemda eða lítið skemmda
jörð. En þegar eg smaiaði nokkr-
um kindum þ. 16. júlí á Rauð-
nefs stöðum kom í ljós að kindur
sem ýmist höfðu verið heima í
allt vor og þær er komu snemma
vom ljótar ein ær t. d. næri
dauð úr hor sem þó var kópalin
til 15 maí. Einnig voru þar mjög
léleg lömb og vom sum gulgræn
upp á miðja leggi og virtist hár-
ið ætla að detta af fótunum. Hins
vegar þó ekki sjáanleg missmiíði
á beinunum. En á Rauðnefsstöð-
um var það svo eftir fyrstu gos-
hrynuna, að allir grjótveggir og
steinar urðu úlf gráir með græn-
leitum blæ. Fjarlægir steinar
líktust tilsýndar ofurlítið hús-
lituðum eða blökkum kindum.
Þetta smá veðraðist svo af, varð
fyrst flekkótt, en hvarf svo þeg-
ar fyrst ringdi, en þó kom í all-
ar lægðir límkend skán og váða
var líkast því sem skolað hefði
verið úr sementsfötu og það
mnnið í rákum. Á fætuma á
manni kom leiðinlega límkend
skán og mjög vont var að þvo
sokkana.
Vel getur verið, að minna hafi
verið af þessu efni í öskunni
eftir því sem nær var Heklu.
En yfirleitt var það svo, þegar
eg sá þessar kindur, að þær
kindur sem lengst höfðu verið
þarna vom miklu lélegri og
sumar ljótar, en þær kindur sem
nýlega vom komnar mjög fall-
legar og með fellegum lömbum;
þó nægur hagi fyrir fátt fé og
túnið loðið á blettum þar sem
fokið hafði af, en alt upp í 1 met
ers dyngjur í öllum lægðum,
þar sem spretta var æfinlega
best áður.
Annars virtust skepnur ekki
vilja orðið taka niður í túninu,
enda var grasið orðið, 16. júlí,
sölnað sem á réttum væri.
Nokkuð bar á þessu á útjörðinni
líka, en þar er strjáll en sterkur
gróður og smágresi og allskonar
lauf sem mikið var af áður, sást
ekki. Þarna er mikið mislendi og
meginhluti landsins þakið ösku-
lagi, misþykku og er þarna
mikil ófærð fyrir hesta víðast
hvar.
11.
Eg bendi á þennan mismun á
Austur-Landeyjamar, en strax
þegar fé var slept í Landeyjun-
um kom það í Fljótshlíðarland
saman við þeirra fé og er sumt
þar enriþá, enda nýgerð girðing
i þessu sambandi enn ólokuð,
þ.e. engin grind í hliðinu.
111.
Eg var einn af þeim fáu sem
vildu lóga kindum þegar askan
var komin. Óttaðist sumarhagan
og svo það að ekki mátti flytja
fé milli vissra svæða. Fóður-
kostnaður reyndist mikill á þeim
kindum sem heima vom og þó
nokkur á þeim kindum sem vom
annars staðar. Ef menn vildu nú
reikna út eða leggja saman fóð-
urkostnaðinn og lömbin sem
ærnar sumar létu þegar fóður
kindunum vegna þess, að sumiri breytingin kom, svo og önnur
héldu að óhætt væri að hafa lömib sem farist hafa og kindur
þarna talsvert af fé strax og sem kunna að drepast eða verða
gróður fór að koma, en það varj aumingjar með öllu verðlausar,
misskilriingur, bæði vegna þess j þá gseti svo farið, að hagfræðin
hvað gróður var lengi lítill og j 1 þessu sambandi fyki út í veður
auk þess sérstök illviðri hvenær j og vind.
sem vind hreifði. Má nokkuð; En mannúðin? Er það mann-
marka veðurlagið á því að þój úð, að láta nýfædd lömíb kafna
ekki væri nema svo sem 6 — 7 í öskúbyngjum eða jafnvel þó
vindstig, þá var eins og allar um eldri lömb væri að ræða, fyr-
rúður í húsunum væm að mjöi-1 ir harðhnjask eða rekstur á ger-
brotna, samtímis af vikurfokinu.; samlega ófæru landi fyrir siíkan
1 öðm lagi bendi eg á þetta j fénað. Eða það, að kindur veslist
vegna þess, að það mun nauð- UPP eða falli máske úr hor að
synlegt að hafa eftirlit með fé á
þessu svæði þegar fram á sum-
arið kemur, en þarna em kind-
ur frá mér og svo talsvert úr
Fljótshlíðinni (eða var um dag-
inn) og er það undarlegt, þar
sumarlagi? Og söluhorfur á
kjöti virðast ekki góðar. Hinar
gífurlegu niðurgreiðslur úr rík-
issjóði spá engu góðu í þessu
efni. Og á síðast liðnu ári urðu
bændur að sætta sig við, að tapa
sem Fljótshlíðin er sýkt af gama1 nálega 1/6 fjár verðisins ems og
veiki, enda fé nú málað á haus
eða horn. Þetta gerir ekki til
gagnvart mínum kindum, sem
eiga fyrir sér að falla bráðlega,
en er dálítið lakara gagnvart fé
frá Reynifelli og öðrurn bæjum
þar efra. Annars eru þessar
sauðfjárveikivamir næstum —
hlægilegar eins og þeim er hag-
að hér um slóðir. Eftir að aikan
var komin í Fljótshlíðina máttu
engar kindur þaðan koma í
það var reiknað í haust og er
slíkt í rauninni óþolandi á sama
tíma og hækkað er kaup hjá
verkafólki.
Björn Guðmundsson,
frá Rauðnefsstöðum
—Mbl. 4. sept.
Framvegis verður Heims-
kringla fáanleg í lausasölu, hiá
hr. bóksala Láms Blöndal. Skóla
vörðustíg 2, Reykjavík, Island.