Heimskringla - 26.11.1947, Qupperneq 1
We recommend foi
your approTcd our
"BUTTER-NUT
LOAF"
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
We recommend for
your approTcd our
//
BUTTER-NUT
LOAF"
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgi.
LXII. ÁRGANGUR
'VTNNTPEG. MIDVTKUDAGINN, 26. NÓV. 1947
NÚMER 9.
FRETTAYFIRLIT OG UMSAGNIR
Jöfnuður verzlunar-
og viðskiftahallans
I ræðu sem Rt. Hon. C. D.
Howe, endurbótaráðherra, hélt
seint í síðastliðinni viku í Ott-
awa sagði hann að ef Canada-
menn gerðu sér það að takmarki
að komast yfir sem mestan forða
amerískra dollara með sem
mestum útflutninjgi á vörum,
þar sem sá gjaldeyrir væri fáan-
legur, þá ætti að vera mögulegt
að rétta hinn mikla viðskifta-
halla innan fárra mánaða. En
slíkt kæmist aðeins í fram-
Thorhallur Arngrimsson
Síðast liðinn laugardag leit
ungur bláeygður, ljóshærður ís-
lendingur inn á skrifstofu Hkr.
Hann hét Thorhallur Arngríms-
son, kom hingað frá Vancouver
og er á leið austur til Toronto
að t'aka við starfi hjá Canadian
Broadcasting Corporation (OBC).
Hann er leikari og upplesari á-
gætur og hefir haft sl'ík störf
með höndum bæði hjá útvarps-
félaginu í Vancouver og ýmsum
leikfélögum.
Hann hefir, þó ungur sé, (hann
er aðeins 19 ára), stjórnað leikj-
um hjá góðum leikfélögum og
leikið hjá þeim undaníarin ár,
svo sem hjá Vancouver Little
Theatre, hjá Frank Lairibert-
Smith og fleiri alkunnum leik-
félögum í Bandaríkjunum og
Canada. Hafa sum félögin sem
hann hefir unnið hjá, gefið hon-
um þann vitnisburð, að vera
einn bezti leikari í Vestur-Oan-
ada.
Vikuna sem hann stóð við í
bænum, fóru stjórnendur Play-
house hér fram á við hann, að
hann tæki sem gestur þeirra þátt
í útvarpsleik. Gefst hér þrisvar
tækifæri að hlusta á hann.
Áður en Thorhallur hóf leik-
störf, hafði hann stundað nám
hjá Music and Drama Institute,
í Vancouver.
Thothallur er fæddur í Regina
25. nóv. 1928; foreldrar hans
eru Margrét og Stefán Arn-
grímsson, fyrrum að Mozart,
Sask., en fluttu fyrir fáum árum
til Vancouver. Eru bæði hjónin
ættuð af Austurlandi, Stefán
sonur Arngríms er bjó á Finn-
staðaseli í Eiðaþinghá áður en
hann flutti vestur 1882, en Mar-
grét dóttir Þorsteins á Brekku í
Hróarstungu. Þorhallur mun
mörgum kunnur, er á útvarp
hlusta undir nafninu Thor Arn-
grim, er hann hefir tekið sér og
hefir oft verið getið við útvarp^
vestan frá Vancouver.
Hann mun hafa dvalið hjá
frænku sinni, Mrs. Thorsteins-
son, 680 Alverstone St., meðan
hann dvaldi hér í bænum; hann
leggur af stað austur n. k. laug-j
ardag.
kvæmd með því móti, að öll
þjóðin kepti sameiginlega að
því takmarki. Mr. Howe lagði
aðallega áherzlu á GeneVa-verzl-
unarsamningana, og hina nýju
bráðabirgða-stefnu stjórnarinn-
ar, að eyða sem minstu af
Bandaríkja-gjaldeyri, stefnu.
sem inniheldur bönn, takmark-
anir og neyzlutolla.
Þessar bráðabirgða-ráðstafan-
ir, kvað hann, myndu rétta verzl
unarhaliann bráðlega. Kvað Mr.
Howe, forseta einnar amerískr-
ar iðnaðar-framleiðslu stofnun-
ar, sem hann þó eigi tilnefndi,
nú þegar hafa gert tilboð, sem
þakksamlegá yrði þegið, og
sparaðist með því hin álitlegasta
upphæð amerískra dollara.
Kvað hann stjórnina vanta sem
flest framboð og tillögur frá
öðrum framleiðendum og iðn-
aðarf yrirtæk j um.
Mr. Howe kvaðst þess fullviss
að samkvæmt stefnuskrá um
lágmarksleigu húsakosts, og
stórkostlegri aukningu og út-
færslu iðnaðar, ætti alt að miða
'í áttina til viðreisnar á verzlun-
ar og viðskiftasviðum þjóðarinn-
ar.
En mikill hluti ónauðsynlegra
skemtana eftirsókn, mættu til að
sitja á hakanum. Almennar
stofnanir, og opinber verk, er
eigi væri brýn þörf fyrir, hvort
sem átt væri við verk og stofn-
anir sambandsstjórnarinnar,
fylkja eða sveita, yrðu einnig
að bíða betri tíma.
Sagði Mr. Howe, að leyfisregl-
ur, er nú væri verið að semja,
og ættu sérstaklega við fram-
leiðslu ýmislegs sérstaks varn-
ings, yrðu eins sanngjarnar og
mögulegt væri, en stuðningur
og samvinna iðnaðarhölda við-
víkjandi reglum þessum væri
nauðsynja mál, sem eigi þyrfti
að taka fram. Hann kvaðst hafa
verið spurður að, hvort þessar
nýju ráðstafanir væru líklegar
til að valda atvinnuleysi. Kvaðst
hann ekki halda að svo yrði, því
ef einlæg og almenn samvinna
ætti sér stað að koma ákvörðun-
um þessum í framkvæmd, þá
ætti ekki mikill ruglingur eða
róttækar breytingar að eiga sér
stað, Ráðherrann mintist á af-
rakstur af námuiðnaði og skóg-
arvinnslu, sem tvær aðal bjarg-
ráðaleiðirnar til þess að afla
amerískra dollara með afurða-
útflutningi til Bandaríkjanna.
Með því að koma gull-fram-
leiðslunni í það horf sem hún
var árið 1941, gæti gull forðinn
orðið aðrar $100,000,000 af
kauphallarmiðli Bandaríkjanna.
Hvað akuryrkju snertir, sagði
Mr. Howe, að Canada hefði
skuldbundið sig til að framleiða
matvæla birgðir handa Bret-
landi, og byrgja það upp um
langt skeið; hefði stjórnin ekki
í hyggju neinar ákvarðanir til
að breyta því á nokkurn hátt.
Tillöeriir Canada
nni Palestínu
Þeir fulltrúar á ráðstefnu,
Sameinuðu þjóðanna í Lake
Success, sem ákveðnastir eru
um skiftingu Palestínu, reyndu
enn síðastl. föstudag að koma
því máli í einhvert það horf, er
aðgengilegt væri fyrir Breta.
Þrátt fyrir galla þá sem
brezka veldið hefir Íýst yfir að
væru á ráðstöfunum Sameinuðu
þjóðanna þessu viðvíkjandi,
hefir L. B. Pearson, fulltrúi
Canada gengist fyrir því, að nýj-
ar tilraunir hafa verið gerðar til
að breyta sérstökum atriðum, er
Bretar hafa haft mest á móti.
Nefndar álit, eða málsóknar-
1 skjal Bretlands, er lagt var fram
fyrir 57 þjóðríkja Palestínumála
| nefndina, og Sir Alexander Cad-
i ogen var framsögumaður að,
hafði inni að halda eftirtalda
liði:
1. Bretland krefst þess að hafa
á hendi óskift yfirráð yfir Pal-
estínu, þangað til hinni löglegu
stjórnartíð þess er lokið, og neit-
ar með öllu að vera í félagi með
þau yfirráð við þá 5 fulltrúa-
nefnd Sameinuðu þjóðanna, er
stungið var upp á.
2. Bretland áskilur sér rétt til
að segja upp yfirráðunum, (her
mandate) hvernær sem er, án
samlþykkis og staðfestingar ör-
yggisráðsins.
3. Bretland fær ekki yfirráð
sín í Palestínu öðrum í hendur,
en fulltrúanefnd( Commission)
Sameinuðu þjóðanna.
Skoðanir Bernard Shaw
Hinn heimsfrægi rithöfundur
George Bernard Shaw, leggur
það til, að úr öngþveitinu í Pal-
estínu verði bezt leyst með því
að láta Gyðinga og Araba berj-
ast um völdin þar.
Shaw játar það að vísu, að
hann hafi aðeins ekið um Pal-
estínu, (einu sinni?) og fengið
sér bað í Galeleu-sjónum, og viti
því ekki mikið meira um Landið
Helga, en hver og einn, sem les
dagblöðin nokkurn veginn reglu
lega. Kvað hann þegar menning-
in næði vissu marki, stæðu er-
lendir valdstjómar andspænis
mannlegri þrá eftir sjálfsfor-
ræði, er verður að lokum svo
sterk, að hún verður að hafa
framgang.
Slík frelsiskrafa veldur borg-
arastyrjöld; það skéði í Banda-
ríkjunum, Rússlandi, Skotlandi
og Irlandi. Það skéði í Balkans-
ríkjunum, og stendur nú yfir á
Indlandi; (í India og Indonesia)
það gjald yrði að greiðast, um
það þýddi ekkert að fást.
Gyðingar og Arabar, með
styrk innlendra valdstjóra, yrðu
að berjast um úrslitin, þangað
til þeir væru orðnir þreyttir á
blóðsúthellingum, og gjald-
þrota.
C.C.L. hvetur til
verðlags-eftirlits
Frá Ottawa — Embættismenn
“Canadian Congress of Labor”,
hvöttu til þess í sérstöku ávarpi
nýlega, að stjómin endurreisi
verðlags-eftirlit, til þess að
draga úr kvíða þeim og óhug,
sem ríkti á mörgum canadiskum
heiimilum. Mintust þessir sömu
leiðtogar C. C. L. á þann ásetn-
ing stjórnarinnar að leggja höml
ur á innflutning, og leggja framt
á að auka útflutning til Banda-
ríkjanna.
Kölluðu þeir þær nýju stefn-
ur fjárhættuspil er væri þó í
mótsögn við sig sjálft.
Kína útundan
Thomas E. Dewey, stjómari
New York fylkisins, hefir ásak-
að Truman forseta um það, að
hafa af hirðuleysi ofurselt Kína
hemámi Kommúrtista. ! árás
sinni á Sovét-Rússland, brá
Dewey Truman forseta um það
glappaskot, að hafa ekki Kín-
verja á þeirri efnisskrá, er hann
lagði fram fyrir hinn sérstaka
fund þingsins. Kvað Dewey
hina brýnustu nauðsyn á að
rétta Kína hjálparhönd hið bráð-
Fulltrúar íslands á þingi Sameinuðu þjóðanna
Myndirnar hér að ofan af fulltrúum Islan ds á þingi Sameinuðu þjóðanna, áttu að fylgja
með ræðum þeirra, er birtar voru í síðasta blaði, en bárust of seint til þess. — Nöfnin eru:
Thor Thors, sendiherra Islands í Washington. Ásgeir Ásgeirsson, fyrv. forsætisráðherra.
Hermann Jónasson, fyrv. forsætisráðherra. Ólafur Thors, fyrv. forsætisráðherra.
asta, þar sem hersveitir komm-
únista fylktu sér að vísu ekki
þar á torgum og gatnamótum,
eins og þeir gerðu á ítalíu og
Frakklandi, en væru samt miklu
lengra komnir í fyrirætlunum
sínum þar en í Evrópu, því svo
mætti segja, að kommúnistar í
K^na hefðu verið lengi, og væru
nú meira en nokkru sinni áður,
í grimmasta stríði við stjórn
Kína, og væri ekkert annað
sýnna nú, en að þeir myndu
vinna algerðan sigur.
Þungavöru-flutningar
Truman' forseti sagði síðast-
liðinn föstudag, að hann gæti
ekki séð neina ástæðu til að
draga neitt úr, eða hefta flutn-
ing þungra véla, og ýmissra ann-
ara tækja, er að vélauppsetn-
ingu lýtur, og sem nú er flutt til
Rússlands frá Bandaríkjunum.
Lét Mr. Truman svo ummælt
á blaðamannaþingi, en þar ræddi
hann um hagsmunalega afkomu
og stjóm heima fyrir, og bjarg-
ráða-fyrirætlanirnar í öðrum
löndum. 1
Samkvæmt verzlunar skýrsl-
um, hefir $113,700,000 virði af
vörum verið flutt til Rússlands,
á 9 fyrstu mánuðum þessa yfir-
standandi árs. 1 þessari upphæð
er innifalið $80,500,000 virði af
þungri vélavöru og verkfærum.
Mr. Truman sagði, að alt það
sem til véla heyrði, væri ætlað
til að endurreisa með rafmagns-
aflstöðvar, er skemst hefðu í
stríðinu, og verkfærin til þess
að auka akuryrkju-framleiðslu.
Öll þessi innkaup í Banda-
ríkjunum, annaðist sérstök rúss-
nesk sendinefnd.
Krefst rannsóknar
Ottawa, — M. J. Coldwell,
leiðtogi C. C. F. flokksins, sagði
síðastliðið föstudagskvöld, að
nákvæm rannsókn þyrfti að fara
fram viðvíkjandi mjög alvara-
legum kærum frá stjórn “Can-
adian Legion” í Nova Scotia,
kærum, er sýndu ljóslega
hversu yfirlýsingar “Liberal”-
flokksins um politíkst frelsi og
lýðræðishollustu, væru aðeins á
yfirborðinu.
Ákærurnar, voru eftir því sem
haft er eftir framkvæmdar stjór-
anum, þær, að ranglæti var beitt
við hermann, (veteran) í Nova
Sco'tia vegna stjórnmálalegs
skoðanamunar, og krefst her-
mannasambandið þess, að fylk-
isstjórnin takist á hendur að
annast um, að hermenn séu látn-
ir sitja fyrir atvinnu, í þeirri
von að útbýtingin yrði réttlát-
ari en hjá samlbandsstjóminni.
Gestrisni Bandarikjamanna
Frá Lake Success, N. Y. ber-
ast þær fregnir, að íbúar þriggja
útborga N. Y., hafi boðið hinum
erlendu fulltrúum Sameinuðu
þjóðanna og öðru starfsfólki
þeirra að eyða jólafríinu á heim-
ilum sínum, og komast að raun
um, hvernig haldið er upp á jól-
in á amerískan hátt. Austur-
ríkismönnum, Frökkum, Rúss-
um og öllu því starfsfólki Sam.,
þjóð., er eigi getur farið heim
til sín er boðið að dvelja um jól-
in hjá fjölskyldum í Bingham-
ton, Endicott og Johnson, N. Y.
Giftingargjöf Gandhis
Mohandas K. Gandhi lét gift-
ingu Elizabeth prinsessu og
Philips prins ti'l sín taka eins og
fleiri. Hinn aldraði leiðtogi og
9álusorgari Hindúanna, sendi
prinsessunni sérstakar blessun-
aróskir, og einnig handofinn
borðdúk.
Dúkurinn, eftir því sem
skeyti frá New Delhi taka fram,
er ofinn úr gami, sem Mr.
Gandhi spann sjálfur!
AFMÆLISK VEÐ J A
að samhliða hinum göfuga og
heilbrigðu lífsskoðunum, sem
ljóð hans hafa að geyma, em þau
óvenjulega áferðarfalleg um
mál og ljóðform. Og það merki-
lega er, að Magnús hefir fram
á þennan dag haldið að fullu
næmu brageyra sínu og smekk-
vísi sinni um orðaval og mjúk-
stíga meðferð yrkisefna , sinna,
með þeim árangri, að eigi sér
ellimörk á kvæðum hans.
Magnús skáld Markússon
vann sér á yngri árum frægðar-
orð fyrir sigurvinningar í kapp-
hlaupum. Hann hefir mnnið
skeið lífsins með hreysti og
hetjuhug; og það, sem enn meira
er um vert, hann hefir háð það
kapphlaup með drengilegum
góðhug til samferðamannanna á
lifsleiðinni, og að vonum vakið
í brjóstum þeirra gagnkvæman
hlýhug í sinn garð. Því verða
þeir margir, sem hugsa hlýtt og
þakklátlega til hans á 89 afmæl-
isdegi hans, og óska þess af heil-
um huga, að þeir fái að hylla
hann níræðan næsta ár.
Heill þér, tryggi og göfug-
lyndi vinur! Verði sem bjartast
um þig á afmælisdaginn, því að
þú ert “vinur vors og blóma”,
unnandi og aðdáandi sólar og
sumars!
Richard Beck
“Elli, þú ert ekki þung
anda guði kæmm:
fögur sál er ávalt ung
undir silfurhærum.”
Þessar fögru og sönnu ljóð-
línur skáldspekingsins Stein-
gríms Thorsteinssonar bverfa
mér í hug, þegar eg minnist þess,
að góðvinur minn Magnús skáld
Markússon verður 89 ára gamall
þ. 27. nóvember. Þær eru svo
framúrskarandi rétt lýsing á
honum. Hann ber í brjósti bjarg
fasta guðstrú, trú á sigurmátt
hins göfuga og góða í nútíð og
framtíð, og sú háleita lífsskoðun
hefur létt honum gönguna á
langri l'ífsleið, sem vitanlega
hefir hvergi nærri altaf verið
rósum stráð, og hefir haldið hon-
um eins ungum í anda og raun
ber vitni.
Djúpstæð líftrú og bjartsýni
Magnúsar svipmerkja einnig
ljóð hans um annað fram; en
hann er og hefir um langt skeið
verið “aldursforseti íslenzkra
ljóðskálda vestan hafs”. Skipar
hann þann sess með sæmd, því
Prófessor Watson Kirkconnell,
er um nokkur ár hefir verið yfir-
kennari í enskri tungu við Mc-
Master háskólann í Hamilton,
hefir tekið við forseta stöðu við
Acadia háskóla. Próf. Kirkcon-
nell var um skeið í Winnipeg
og var prófessor við United Col-
lege. Hann er tungumálagarp-
ur hinn mesti og les mikið á er-
lendum málum og þýðir úr þeim
á enska tungu. Á hann hér í
Winnipeg og vestra miklum vin-
sældum að fagna fyrir kynningu
hans á sögu og starfi erlendra
þjóðflokka. Hann hefir mikið
þýtt og skrifað um íslenzkar
bókmentir og ekki dregið úr
hróðri þeirra. 1 viðurkenningar-
skyni fyrir það, var hann kjörinn
heiðursfélagi Þjóðræknisfélags-
ins fyrir nokkrum árum. Is-
lendingar fagna þessum nýja
heiðri hans sem aðrir, að vera
gerður að háskólaforseta.
iSkrifstofustjórinn: —Heyrið
þér Gunnar, ein af skrifstofu-
stúlkunum hefur kvartað yfir
því, að þér hafið kysst hana.
Skrifstofumaðurinn: — Hver
þeirra var það?