Heimskringla - 03.03.1948, Side 5
WINNIPEG, 3. MARZ 1948
¥
HEIMSKRINGLA
5. SIÐA
því sem starfsfólk út um bygð-
irnar var mjög ákveðið í var að
taka ekki að sér íslenzku kenslu
nema því aðeins að eg væri fús
til þess að útvega leskafla, og
annað til afnotunar við skólana.
Hefi eg því fyrir tilmæli kennar-
anna fjölritað meira en 3000 (ein
tök) leskafla, söngva, vísur og
kvæði fyrir skólana. Einnig eru
notaðar til lesturs lesbækumar
frá íslandi. Eg hefi verið í stöð-
ugu sambandi við starfsfólkið
allt og skrifað á þessu tímabili,
um 150 bréf í sambandi við
starfið.
Eg get ekki nógsamlega þakk-
að hina framúrskarandi alúð og
hjálpfýsi sem starfsfólk deild-
anna hefir auðsýnt mér, að eg nú
ekki minnist á hina frábæru
gestrisni og velvild sem eg hefi
orðið aðnjótandi. Viðkynning
mín og samstarf við allt þetta
ágætisfólk hefir orðið mér per-
sónulega til uppbyggingar og
málefnum Þjóðræknisfé. til efl-
ingar. Og er það einmitt fyrir
þetta dýrmæta samstarf að ofur-
lítið hefir áunnist í menningar-
áttina.
Eg mun halda áfram að heim-
sækja deildimar fram eftir vor-
inu, eftir þv*í sem þörf gerist. Eg
hefi verið beðin að heimsækja
deildimar Vancouver, Selkirk,
og Brown, Manitoba, seinna í
vor.
Vil eg nú skýra í fáum orðum
hvað gert hefir verið fram að
þessum tíma.
Síðan í september s. 1. hefi eg
heimsótt Gimli sex sinnum,
Lundar íþrisvar, Riverton fjór-
um sinnum en Arborg, Víðir,
Glenboro og Baldur einu sinni.
Á öllum þessum stöðum hefi eg
haft fundi með embættismönn-
nm deildanna með deildum í
heild, með ísl. kennurunum, sem
eg hefi svo að segja útvegað alla
því eitt af því sem virtist erfið-
ast, var að fá kennara. Eg hefi
flutt stutt erindi, haft samtals-
fundi, og almennar umræður
um áhugamál félagsins, haft
marga fundi með kennurum og
veitt þeim aðstoð við kensluað-J
ferðir, haft um hönd söngkenslu
og sagt börnunum sögur um Is-1
land. Eg hefi verið viðstödd við
níu kenslutímabil út í byggðun-
1 um; og sótt stöðugt laugardags-!
skólann í Winnipeg. Alls hefi
YOURS
IS
READY!
SEND
TO DAY
ÍQ^O 5EED AND
I 7*10 MIIRQFPY R
NURSERY BOOK
Gott frœ til góðrar uppskeru
Sendið-í dag eftir ókeypis
eintaki af útsæðis og blóma
bók vorri. Stærri en fyr. Þar
er lýsing á fjölda beztu og
nýustu garðávöxtum, blóm-
um, húsblómaútsæði, plönt-
um, runnum, ávöxtum, blóm
laukum o.s.frv. Lesið um
hina fögru, nýju tegund af
stórblóma Gladiolus, “col-
chicine developmént, og hin
nýju Cuthberson Heat and
Drought Resistant Sweet
Peas. Að hugsa snemma fyr-
ir framtíðinni, er garðyrkju
manna gæfa. Skrifið í dag.
(Þeir sem sendu pöntun 1947
fá eintak án eftirkröfu)
lomiiiiiiiiniiHiiniiiinniiiiiMiiiniiiiiiiiiiiV
| INSURANCE AT . . .
REDUCED RATFS
Fire and Automobile |
I STRONG INDEPENDENT I
g 1
COMPANIES
1 I
| McFadyen j
| Company Limited |
| 3G2 Main St. Winnipeg |
Dial 93 444
5 —
§ |
•nmwiiaiMimiiiiiHiiiiiimiioimiiiiirKiiiuiiiiiiiinimjiiiiiiiii
eg haft 20 samtöl, erindi, o. s. fr.
með starfsfólki og unglingum
utan skólanna. Auk þess hefi eg
! heimsótt 80 heimili í Winnipeg
ag út um byggðirnar.
Séra P. M. Pétursson hefir
góðfúslega sýnt íslenzka kvik-
mynd í Riverton og Gimli, og
höfðu bæði börn og fullorðnir
mikla ánægju af þv*í. Starfsfólk
væri mjög þakklátt ef Þjóðrækn-
! isfélagið tækist að útvega fleiri
myndir frá Islandi.
Sem árangur af þessari nýstár-
| legu tilraun félagsins má nú
telja alt að 400 manns, börn,
unglinga og fullorðna, sem táka
| virkan þátt í íslenzkri menning-
arstarfsemi. Fjórir ísl. skólar
eru starfræktir, tveir barna-
7 '
söngflokkar og tvö fræðslufelög
j (study groups). Þess utan hafa
nokkur ungmenni hér (sem ekki
geta sótt skólann), notið tilsagn-
ar í íslenzku í heimahúsum, einu
sinni í viku í vetur. Leskaflar
og annað íslenzkt efni hefir ver-
| ið sent*fjölda af fólki víðsvegar,
! sem ekki hefir tækifæri til þess
að fá tilsögn í íslenzku en fýsir
samt að læra hana.
Kennarar, söngstjórar og með-
spilarar skólanna eru 34 alls og
eru þessir:
Riverton: Mrs. F. V. Bene-
dictson, Mrs. O. Coghill, Miss K.
Skúlason, Miss S. Rrynjólfson,
Miss Elma Johnson, Mrs. Anna
H. Arnason, Lawrence Johnson
og Miss Cuddy. Gimli: Mrs. J.
Tergesen, Mrs. H. G. Sigurdson,
Mrs. I. N. Bjarnason, Mrs. Elin
Einarson, Mrs. Th. Kardal, Mrs.
Helga Jonson og Miss Miller.
Lundar: Mrs. O. Thongilson,
Mrs. L. Sveinson, séra H. E.
Johnson, Mrs. S. Hofteig, Miss
Asta Bjornson, Miss Pauline
Johnson og V. J. Guttormsson.
Winnipeg: Mrs. E. P. Jonsson,
Mrs. I. Ingaldson, Miss S. Eydal,
Miss Brynjólfsson, Mrs. Holm-
fridur Danielson og Miss Cor-
inne Day.
Söngkensluna lí Baldur munu
annast, Ámi Sveinson, Miss
Anna Sveinson og Mrs. Borga
Magnússon; en í Glenboro, séra
Eric H. Sigmar, Mrs. Maria Sig-
mar og G. J. Oleson.
Af bréfaviðsiftum við deild-
ina “Báran”, að Mountain N. D.
er mér kunnugt um að íslenzku
kensla er starfrækt þar með góð-
um árangri, og mun skýrsla
deildarinnar eflaust gera fulla
grein fyrir þeirri starfsemi.
Fræðslufélögin samanstanda
af ungu og miðaldra fólki sem
tilheyrir annari og þriðju kyn-
slóð Vestur Islendinga. Fæst af
því hafði áður gefið sig að ísl.
fræðum, en sýnist nú þegar hafa
mikla ánægju af samfundunum
og þeirri uppbyggingu sem þar
fæst. Eg vil sérstaklega geta um
félagið í Riverton sem telur 18
meðlimi og mætir hálfsmánaðar-
lega. Er starfið var skipulagt
var kjörin leiðsögumaður fyrir
hvem fund. A hverjum fundi er
tekin fyrir kafli úrbókinni “Ice-
land’s Thousand Years”, og eiga
allir meðlimir bókina og kynna
sér efnið fyrirfram. Fundar-
stjóri sér um að útvega íslenzkt
lesmál sem á við verkefni fund-
arins og stýrir einnig umærðum.
Þannig hafa í vetur verið lesnir
kaflar úr íslendingasögunum, úr
Völuspá og Hávamálum.
Þetta er starfsaðferð sem
gjarnan mætti gefa gaum; og
takist að útbreiða hana þá er ís-
lenzkunni hér ekki eins mikil
hætta búin. 1 Winnipeg eru ótelj-
andi fræðslufélög, t. d. meðal
afkomanda Skota, Ira og Eng-
lendinga, sem eru starfrækt til
þess að gefa fólki tækifæri að
koma saman í smá hópum og
kynna sér verk frægustu rithöf-
unda og skálda þjóðarinnar. Það
er því réttmætt að íslendingar
haldi við þess konar fræðslu-
starfsemi sín á milli og gefi sig
að bókmenntum sinnar þjóðar
sem sígildar eru, og dáðar af
menntafrömuðum heimsins. —!
Slík starfsemi er ekki einungis
til uppbyggingar og skemtunar
fyrir þá sem taka þátt í henni,
því allt sem eflir andlegan
þroska einstaklingsins hefir bæt-
andi áhrif á umhverfið i heild,
og þess er ætið þörf og ekki síst
nú á tímum.
Við vonum öll að hin fagra
hugsjón um að stofna kennara-
stól í ísl. fræðum við Man. há-
skólann megi rætast. Samt mun
sú kensla sem þar fer fram ekki
ná til fjöldans. Þjóðræknisfélag-
ið hefir því skilið að til viðhalds
islenzkrar tungu og bókmennta
meðal almennings hér Vestan-
hams þarf annað og meira átak.
Enda hefði það ekki færst í fang
umsvifamikið og kostnaðarsamt
fyrirtæki ef ekki væri álitið að
með Iþví væri stigið mikilvægt
spor í rétta átt.
Góðir og gamlir þjóðræknis-
vinir hafa sagt við mig oftar en
einu sinni í vetur, “Það tekur
kraftaverk að bjarga við okkar
ísl. menningu hér vestra, eins
og nú er komið”. Þetta mun vera
nær sanni. Og á þjóðræknisfé-
lagið þakklæti skilið fyrir að
gera þessa tilraun til þess að
fremja kraftaverk.
Einstaklingsátakið virðist oft
léttvægt, og fæstir okkar erum
færir um $1,000 dollara þjóð-
rækni, enda er ekki hægt
að miða menningarstarf ó-
eigingjama sjálfboðaliða við
dollara. Og gleymum því ekki að
andlegur þroski mannkynsins
(það sem hann er þó á veg kom-
inn) á mikið að þakka fórnfús-
um sjálfboðaliðum sem öld fram
af öld hafa lagt fram krafta sína
góðum málefnum til eflingar.
Ef hægt væri, meðal okkar Vest-
ur íslendinga, að sameina starfs-
krafta allra þeirra einstaklniga
sem hafa trú á gildi íslenzkrar
mermingar viðleitni þá mætti ef
til vill vinna kraftaverk!
Þó starf mitt á þágu menning-
armála Þjóðræknisfélagsins hafi
úthéimt mikið þrek og valdiðj
mér allmikillar áhyggju, þá(
hefir mér samt sem áður verið.
veruleg ánægja að samstarfinu!
við alt það fólk sem ann þessum
málum og óspart leggur fram
krafta sína þeim til eflingar. Því
miður er mér ekki unt að gefa
kost á mér í umiboðsmanns stöð-
una að ári en eg mun styrkja
þetta mikilverða málefni eftir
megni.
r I
Eg óska Þjóðræknisfélaginu
allra heilla með framhald þessa
starfs, og með öll sín störf. Svo
að endingu er mér ljúft að votta
þakklæti mitt öllum þeim sem
af mikilli vinsemd og alúð hafa'
styrkt fyrirtækið.
Hólmfríður Danielson
DÁN ARFREGN
Fimtudaginn 19. febrúar s. 1.,
andaðist að heimili sínu að
Gimli, Man., Mrs. Rósa Nordal.
Hún var fædd 9. nóvember 1866
í Kristnesi, Eyjafirði. Foreldrar
hennar voru David Kristjánsson
og Sigríður Bjarnadóttir. Rósa
lauk námi á kvennaskólanum á
Laugalandi, stundaði barnaken-
slu og sauma, flutti til Canada
1893, giftist Lárusi Nordal 1902.
Þau dvöldu næstu árin í Win-
nipeg og fluttust síðan vestur í
Vatnabygðir í iSaskatchewan, og
bjuggu þar til ársins 1937, er
þau settust að á Gimli og hafa
búið þar síðan.
Þau eignuðust eina dóttur,
Önnu Karólínu og fósturdóttur
Dísu Nordal. Systkini Mrs. Nor-
dals eru þéssi: Bjarni Davíðson,
á heima í Vancouver; Eiríkur
Daváðson, Winnipegosis; Hall-
dóra Davíðson, Wilkie, Sask., og
Júlíus Davíðson, Winnipeg; dá-
in eru þessi systkini: Þórunn og
Jóhannes. Uppeldis bróðir henn-
ar og systkinabarn var K. N.
Júlíus ,skáld.
Mrs. Rósa Nordal var merk
kona, vel gefin, sönghneigð, fé-
lagslynd og vel að sér. Hin síð-
ustu ár æfinnar var hún heilsu-
biluð, en kjarkur hennar, áhugi
og glaðlyndi báru hana yfir örð-
ugleika þeirra þungu ára, og á
hið gestrisna og skemtilega
heimili þeirra Nordals hjónanna
söfnuðust margir vinir. Fjöldi
þeirra fylgdu henni til grafar frá
heimilinu og Sambandskirkjunni
á Gimli. Hún var jörðuð 26.
febrúar af þeim séra E. J. Melan
og séra Skúla Sigurgeirssyni, og
hvílir í Gimli grafreit.
E. J. Melan
“Þessi kona hefur orðið að
þola miklar þjáningar fyrir trú
_' ss
sina.
“Nú, hvernig má það ske?”
“Já, hún trúir þvtí nefnilega
statt og stöðugt, að hún geti
gengið í skóm nr. 39, en þarf, ef
vel á að vera nr. 42.”
* * *
“Hvað mundi konan þín segja
ef þú keyptir nýjan bíl?”
“Gættu að umferðarmerkinu!
Rekstu ekki á vörubílinn! Því
ferðu ekki varlega? Ætlar þú
aldrei að læra á bílinn? Og fleira
slíkt myndi hún segja ef eg
keypti nýjan bíl.”
Hefurðu heyrt um hann Jón
og hann Pál, þegar þeir voru að
meta dánarbúið hans Hjörleifs í
Ási.
Þeir fundu flösku með ein-
hverjum dökkum vökva í. Páll
þreif flöskuna, saup duglega á
henni og sagði:
“Við skrifum eina flösku af
góðu koníaki”.
Þá saup Jón á flöskunni og
sagði: “Nei, þetta er whisky!”
Um þetta voru þeir að þrátta
góða stund, þangað til Páll hélt
flöskunni upp að ljósinu og
sagði: “Vi-vi-við höfum báðir á
röngu að sta-standa. Skri-skrif-
aðu: galtóm flaska!”
HELZTU FRÉTTIR
Lesbækur
Það er kunnara en frá þurfi
að. segja að sá, sem er að læra j
tungumál þarf lesbækur. Nem-
andinn lærir mikið ósjálfrátt af
sambandi efnis og orða í sögunni j
sem hann les. Þjóðræknisfélag-
ið útvegaði lesbækur frá Islandi;!
eru í þeim smásögur og ljóð við
hæfi bama og unglinga. Les-!
bækumar eru þessar: Litla gula ■
hænan 1., Litla gula hænan II. J
Ungi litli I., Ungi litli II., Les-j
bækur. — Pantanir sendist til:
Miss S. Eydal, Columbia Press,
Sargent Ave. og Toronto St.,
Winnipeg.
* # , 1T
Wedding Invitatlons
and announcements
Hjúskapar-boðsbréf
og tilkynningar,
eins vönduð og vel úr garði
gerð eins og nokkurstaðar er
hægt að fá, getur fólk fengið
prentuð hjá Viking Press Ltd.
Það borgar sig að líta þar inn og
sjá hvað er á boðstólum.
Það mæla börn sem vilja
Gen. A. G. L. McNaughton,
fyrrum aðal yfirherforingi, sagði
fyrir stuttu síðan í ræðu, er hann
hélt í Lake Success, N. Y., fyrir
“Institute for Educators” Sam-
einuðu þjóðanna, að það gengi
sjálfsmorði næst, og gæti ekki
talist annað en fyrirlitleg rag-
menska, að hugsa til að leggja
þann félagsskap eða stofnun
niður.
Ummæli yfirherforingjans
voru svar við ýmsum svartsýn-
islegum árásum og aðdróttunum
í garð Sameinuðu þjóðanna.
Kvað hann þessa alheims frið-
arstofnun að vísu ekki hafa náð
að framkvæma alt það, sem ]
heimurinn hefði vonast eftir og
ætlast til að hún gerði, því svo
háar vonir hefðu allir gert sér
um þessa stofnun, þegar henni
fyrst var hrundið af stokkunum
í San Francisco.
Kvað McNaughton þær veil-
ur, er komið hefðu fram hjá
Sameinuðu þjóðunum, ásamt
hrömandi og síversnandi ástandi
í heiminum, eiga, og hljóta að
hvetja þjóðir og einstaklinga til
ennþá kröftugri samtaka að j
byggja upp, og viðhalda þessari
alþjóðastofnun, til þess að hún
yrði enn hæfara og kröftugraj
verkfæri til alheimsfriðar ráð-
stafana. «
Beðið um hernaðar-
fjárstyrk
Frá Washington. — Stjómar-
ráðið lagði fram beiðni fyrir
þingið, (Congress) seint í síðast-
liðinni viku um $275,000,000
Grikklandi til styrktar, og einn-
ig Tyrklandi við hernaðarútbún-1
að í þessum löndum. George C. j
Marshall, ríkisritari, lagði fram
beiðnina í bréfi til forseta þings-
ins, Joseph Martin.
Hi- Gang!
A New Service for You!
Pants, Made-to-Measure
Here’s a service that the younger
crowd has been waiting for. EATON’S
now brings to Students and the Young
College Man a new Made-to-Measure
pant servicé.
Check these features:
★ Made to your own individual
measurements.
★ Made to your own style choice.
★ Made with all the details you
want. These long-wearing
wool weaves:
* Gabardine
* Covert Cloth
* Worsted flannels
* Colorful tweeds
All in the newest shades for Spring and Summer.
Orders completed in 14 days. Pair,
$12.95 to $16.95
—Boys’ Clothing Section, Fifth Floor.
<T. EATON
Kaupendur Heimskrínglu og
Lögbergs á Islandi
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang, kr. 25.00 fyrir hvort blað. Dragið
ekki að greiða blöðin. Það léttir innheimtuna. Æskilegt
að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem eiga ógreidda
eldri árganga, eru vinsamlega beðnir að snúa sér til mín.
BJÖRN GUÐMUNDSSON,
Holtsgata 9, Reykjavík
Utanáskrift mín er:
H. FRIÐLEIFSSON,
1025 E. lOth Ave., Yancouver, B. C.
Nýjar bækur til sölu:
Fyrsta bygging í alheimi.........$2.50
Friðarboginn er fagur............ 2.50
Eilífðarblómin Ást og KærJeiki... 2.00
Sigurður S. Anderson, 800
Lipton St., hefir tekið að sér inn-
köllun fyrir Hkr. í Winnipeg.
Áskrifendur eru beðnir að minn-
ast þessa og frá þeirra hálfu gera
honum starfið sem greiðast. —
Símanúmer hans er 28 168.
VERZLUNARSKOLANÁM
Aldrei hefir verið eins nauðsynlegt og ein-
mitt nú, að hafa verzlunarskóla mentun,
og það fólk sem hennar nýtur hefir venju-
lega forgangsrétt þegar um vel launaðar
stöður er að ræða.
Vér höfum nokkur námsskeið til sölu við
fullkomnustu verzlunarskóla í Winnipeg.
Spyrjist fyrir á skrifstofu vorri þessu
viðvíkjandi, það margborgar sig.
The Viking Press Limited
Banning og Sargent
WINNIPEG :: MANITOBA