Heimskringla - 03.11.1948, Qupperneq 1
Always ask for the
HOME-MADE
“POTATO LOAF”
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeq Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
♦################################4^
Always ask for the—
HOME-MADE
“POTATO LOAF”
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal. Mgr.
LXIII. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 3. NÓV. 1948
NÚMER 5.
Truman endurkosinn og flokkur hans í meiri hluta í báðum deiidum þingsins
HARRY S. TRUMAN
er kosning er talin vís, þó fullnaðar úrslit séu ekki fengin.
FRÉTTAYFIRLIT OG UMSAGNIR
Bæjarstjórnar kosningarnar
Garnet Coulter borgarstjóri í
Winnipeg, var endurkosinn í
kosningunum 27. október, í f jórða
sinni, með 54,448 atkvæðum. Don-
ovan Swailes fylkisþingm. er
sótti á móti honum undir merkj-
um C.C.F., hlaut 27,422 atkvæði.
Bæjarráðsmennirnir allir, sem
endursóttu unnu sigur, nema
einn, Morrison í Suður-Winni-
peg. Sæti hans vann Mulligan,
C.C.F.-sinni og þykir það mikil
frétt. Kjördeild þessi (Ward 1),
hefir mátt heita óvinnanleg öðr-
um, en þeim er borgaraflokkinn
hafa fylt. Útkoman er því sú, að
C.C.F. unnu eitt sæti, er borg-
araflokkurinn tapaði. Það mega
allar breytingarnar heita, sem
við kosningarnar urðu.
Atkvæði greiddu 49.6% eða
tæpur helmingur allra skráðra og
þykir það gott hjá því, sem mörg
undanfarin ár hefir verið.
• ■ En atkvæðagreislan fór í mestu
handaskolum fyrir kjósendum. í
fyrstu kjördeild voru um 1,000
atkvæði ónýt.
Um hlutfalls kosningu var að
ræða, en þær fóru oft svo, að
kjósandi setti tölurnar 1, 2, 3, 4
aftan við eitt og sama nafn. Aðr-
ir skrifuðu nöfn þeirra, er þeir
vildu kjósa, sumir settu krossa
við nöfn bæjarráðsmanna.
Borgarstjóraefnin urðu fyrir
minni búsifjum af þessu vegna
þess, að leyft er að kjósa þá með
X eða tölu.
Einn bæjarráðsmaður náði
kosningu við fyrstu talningu,
Sbarpe í Suður-Winnipeg, en
þrír skólaráðsmenn: Haig, Gar-
rick og Jessiman.
f Mið-Winnipeg (Ward 2),
voru bæjarráðsmennirnir þrír
endurkosnir: Hallonquist, Mc-
Kelvey og Scott.
Bæjar- og skólaráðsmenn
Winnipeg-borgar
Bæjar- og skólaráð Winnipeg-
borgar skipa þessir nú eftir ný-
afstaðnar kosningar; þeir er
kosningu hlutu nú halda embætti
þar til 31. des. 1950.
Ward 1
Ald. C. E. Simonite, C.E.C.
Ald. A. H. Fisher, C.E.C.
Ald. C. E. Graham, C.E.C.
Ald. G. Sharpe, C.E.C.
Ald. J. Gurzon Harvey, C.E.C.
Ald.-elect D. Mulligan C.C.F.
Ward 2
Ald'. V. B. Anderson, C.C.F.
Ald. J. Black, C.E.C.
Ald. J. St. John, C.E.C.
Ald. H. B. Scott, Ind.
Ald. E. Hallonquist, C.E.C.
Ald. H. V. McKelvey, C.C.F.
Ward 3
Ald. J. Blumberg, C.C.F.
Ald. M. J. Forkin, L.P.P.
Ald. J. Stepnuk, Winnipeg Tax-
payers Association
Ald. J. Penner, L.P.P.
Ald. E. Brotman, C.C.F.
Ald. F. L. Chester, C.E.C.
1 SKÓLARÁÐINU
Ward 1
Mrs. D. A. P. McKay, C.E.C.
W. S. McEwan, C.E.C.
S. B. Laing, C.E.C.
Campbell Haig, C.E.C.
G. P. McLeod, C.E.C.
Ward 2
Adam Beck, C.E.C.
Mrs. M. Chunn, L.P.P.
Rev. P. M. Petursson, C.C.F.
A. N. Robertson, C.C.F.
P. C. Jessiman, C.E.C.
Ward 3
A. Zaharychuk, C.E.C.
M. Averbach, C.C.F.
J. Zuken, L.P.P.
D. Orlikow, C.C.F.
Stan Carrick, C.E.C.
Flokkaskiftingin verður í bæj-
arráðinu þannig: Borgaralistinn
hefir 9, C.C.F. 5, Kommar 2, og
Taxpayers Association 1, óháður
1, en í skólaráðniu eru á borgara-
lista 9, C.C.F. 4, komm. 2. •
Sameiginleg vernd á
N orður-Atlanzhaf inu
Þjóðimar sem meðfram Norð-
ur-Atlanzhafinu búa, bæði Ev-
Úrslit Bandaríkjakosninganna eru að svo miklu leyti ljós, þó
talningu atkvæða sé ekki hvarvetna lokið, að Harry S. Trúman
forseti er endurkosin,n og að demokrataflokkurinn verður næst
þegar þing kemur saman í meirihluta bæði í efrimálstofu þingsins
og í fulltrúa deildinni.
Sigur demokrata flokksins er
því mjög ákveðinn í kosningun-
um.
f blöðum þessa bæjar, í morg-
un, er hermt, að Truman hafi
með sér 27 ríki með 279 electoral-
atkvæði en Dewey sé á undan í
17 ríkjum með 214 electoral-at-
kvæði. Þesssar tölur hafa breyst
síðan, en hlutfall ekki, svo jafn-
vel Dewey sjálfur hefir talið Tru-
man sigurinn.
Eins langt og kosningu í efri-
málstofu er komið, hafa demo-
kratar náð tveim þriðju þing-
sæta. Að þeir hafi meirihluta í
efrimálstofunni, er nú þegar full-
yrt.
f neðri-deild þingsins hafa
demokratar 2 á móti hver jum ein-
um úr flokki republika; demó-
kratar hafa nú þegar tekið 37
þingsæti frá republikum.
Um fylkisstjóra er svipað að
segja. E(emokratar eru þar langt
á undan.
Þessi sigur demókrata er mikið
þakkaður hinum frábæra dugn-
aði Trumans. Hann fór á tveim-
ur eða þremur mánuðum um alt
landið og hélt hvorki meira né
minna en 273 ræður.
Öll stórblöð Bandaríkjanna
voru hárviss um kosningu Dew-
eys. -Ennfremur spákerlingin
Gallups. Sú kosninga spákerling
var svo viss um sigur Dewey, að
hún hætti fyrir tveim mánuðum
að spá nokkru; taldi það ónauð-
synlegt.
Republika flokkinum er nú ó-
sigurinn talinn vegna aðgerðar-
leysis bæði Dewey og flokks-
manna hans.
f New York-ríkinu vann Dew-
ey, en á atkvæðum munaði svo
litlu, að hefði Truman fengið
nokkuð af atkvæðum Wallace
þar, þó fá væru, hefði hann þar
einnig unnið.
Bandaríkja þjóðin hefir átt
við það góðæri að búa s. 1. ár und-
ir stjórn demókrata, að í raun
og veru mátti við búast að svona
færi.
Þetta er ekki í eina skiftið, sem
blöð og spár í kosningum hafa
brugðist. Hið þögula atkvæði
gerir oft strik í reikninginn. Það
er það sem virðist hafa gert það
í þessum kosningum syðra.
Andi Roosevelts sveií yfir vötnunum
Um áratugi og aldaraðir, er andinn þinn hið skæra ljós,
sem veitir okkur vit að lifa, og von um nýja lífsins rós.
Og þeim sem strita og yrkja engi, þú ert hið, sanna lífsins hnoss,
þær hugsjónir sem hér-þú kendir, þeir hengt ei geta, neglt á kross.
Við minnumst þín á mörgum stundum, sem manns og vinar,
lifðu heill,
þó horfinn sért, við hugann gleðjum, við hann sem aldrei
reyndist veill.
P. S. Pálsson
rópu-megin og í Ameríku, hafa
bundist samtökum um sameigin-
lega vernd, ef til ófriðar kæmi.
Canada er að sjálfsögðu ein þess-
ara þjóða. Að hjá þessu verður
ekki komist, sýnir hve ófriðlegt
útlitið er í heiminum.
Þjóðirnar sem hér um ræðir,
eru Bandaríkin, Canada, Bret-
land, Holland, Belgía og Frakk-
land, og að því er búist er við
Norðurlöndin og írland.
NorðurAtlanzhafið var einn
ægilegasti stríðsvangurinn í síð-
asta stríði.
Að vera þar við öllu óviðbúinn,
ef til stríðs skyldi koma, hefir
ekki þótt ráðlegt eða óhult.
SILFURBRÚÐKAUP
Mánudagskvöldið var milt og
blítt eins og haustið alt hefir ver-
ið. Loftið var silfurgrátt og
stjörnublikin svo óvanalega fög-
ur. Á góða veðrið úti minti það er
var að gerast inni í neðri sal G.T.
hússins, en þar var verið að minn-
ast 25 ára giftingarafmælis Sum-
arliða Mathews og konu hans,
Guðnýjar. Borð voru reist um
þveran og endilangan salinn, og
stóðu á þeim bollar og diskar;
eitt þeirra, fyrir stafni, var og
skreytt fögrum blómum. Við það
sátu silfurbrúðhjónin, konan
æskurjóð og maður hennar hress
Kommúnistar taka alla Mansjúríu
Örlög Kína óviss
Um síðustu helgi tóku fréttir
að berast af því, að Mukden, aðal
borgin í Mansjúríu, væri um-
kringd af kommúnistum. Þangað
hefðu þeir ekki haldið innreið
sína ennþá, en öll Mansjúría
mætti heita á þeirra valdi. Kom-
múnistar teldu þess líklega ekki
þörf, að heyja þar orustur, úr
því sem komið er.
Ef svo er og komið, sem aðrar
fréttir herma, að þjóðherinn, sem
kínverska stjórnin hafði þarna
til landvarnar, sé að miklu leyti
tapaður, er óþarft fyrir þá, að
eyðlieggja hina miklu iðnaðar
miðstöð héraðs þessa.
Chiang Kai-Shek forseti, sem
um helgina kom til Nanking
norðan úr landi, kvað ástandið
THOMAS E. DEWEY
fylkisstjóri New York-ríkis og forsetaefni republika, er í
morgun taldi Truman vísan sigur.
nyrðra svo alvarlegt, að engu
yrði spáð um örlög Kína innan
þriggja mánaða.
Eitthvað af forustumönnum
kínversku stjórnarinnar í Muk-
den er flúinn. Er haldið að
rauði herinn sé á hælum þeim,
eða hafi snúið sér að borgum
þeim, sem þeir leituðu til, en
komi til Mukden síðar.
Það eru um 400,000 hermenn
sagðir í rauða hernum í Man-
sjúríu. Hervarnarlið kínversku
stjórnarinnar, er um 200,000
menn.
Það er víðar svart í heiminum
en í Berlín. En Kíverjjinn er á
valt Kínverji og ekki víst að öll
kurl séu til skila komin í 20 ára
stríðinu í landi þeirra.
og karlmannlegur og börn þeirra
og tengdafólk, alt hið mynd-
arlegasta.
Við það háborð var og forseti
gildisins, Jóhann Beck forstjóri
og aðal ræðumenn kvöldsi.ns, en
þeir voru séra R. Marteinsson,
séra Valdimar Eylands, Mrs.
Jódís Sigurðson og fleiri. A. S.
Bardal flutti og ræðu.
Ræðurnar voru allar hinar
skemtilegustu á að hlýða og túlk-
uðu ljómandi vel þann hug, er
mannsöfnuðurinn, sem þarna var
báru til silfurbrúðhjónanna. Þau
hafa bæði unnið mikið að ís-
lenzkum félagsmálum, enda
gekkst fólk úr Fyrstu lút. söfn-
uði og G. T. stúlkunnum fyrir
samsætinu. En þar hefir starf j
silfurbrúðhjónanna mest verið.
Með söng og músik var og
skemt mjög vel á milli ræðanna.
Miss Bjarnason með íslenzkum
einsöng og Mr. Beck með fiðlu-
spili. Mrs. Matthíason annaðist
undirspil.
Silfurbrúðhjónin þökkuðu í
lok skemtiskrár vináttu og rausn
sér sýnda.
Þeim voru og afhentar gjafir.
Sumarliði kom ungur til þessa
lands, en mun eyfirskur að ætt.
Kona hans er dóttir Mr. og Mrs.
Jóhannes Johnson á Gimli og
þar fædd.
Börn silfurbrúðhjónanna eru 3
á lífi. Elzt þeirra er Mrs. Grace
Willis í Winnipeg, þá Lilja —
Mrs. Guðmundson; og yngst Al-
bert, heima. Eru börnin hin
myndarlegustu. ,
Eftir rausnarlegar veitingar
var silfurbrúðhjónunum árnað
heilla og fóru menn að því búnu
heim til sín, glaðir i huga af að
hafa getað vottað hinum góðu
silfurbrúðhjónum þakklætti sitt
bæði fyrir störf þeirra félags-
lega og ágætustu kynningu.
GARNETCOULTER
endurkosinn brogarstjóri í Win-
nipeg í fjórða sinni.
‘Þekkirðu Högna?”
‘Já, eg léði honum 200 kall í
gær.
‘Þá hefurðu ekki þekkt Högna’
Petrína Louise Sigurdson
í síðastliðinum júnímánuði
lauk þessi gáfaða og glæsilega
stúlka fullnaðarprófi í hjúkrun-
arfræði með lofsamlegum vitnis-
burði við Wesley Memorial spít-
alann í Chicago, 111.
Móðir þessarar ungu hjúkrun-
arkonu er Mrs. Pálína Sigurd-
son, sem nú er búsett í Winni-
peg, en faðir hennar, Tryggvi O.
Sigurdson, lézt 1933. Þau hjón
bjuggu í íslenzku byggðinni í
grend við Morden, Man.