Heimskringla - 03.11.1948, Page 2
2 SIÐa
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 3. NÓV. 1948
Ræða
Eitir séra H. E. Johnson
Minn irið gef eg yður, ekki
gef eg eins og heimurinn gefur,
því minn frið gef eg yður. Þann-
ig talar Kristur um friðinn við
sína lærisveina.
Hvað átti Kristur við með orð-
unum “minn frið gef eg yður”?
.Mann grunar hér strax að hann
leggi sjálfstæðann og dýpri
skilning í orðið friður, eins og
hans var von og vísa. Þegar við
ræðum um frið er oftast átt við
sáttfúst samlíf manna og þjóða,
með öðrum orðum hinn ytri frið.
Að hann sé nauðsynlegur dettur
víst engum að bera í efa og sízt
nú á þessarri hræðilegu ófriðar
öld. En verður ekki spursmál hér
sem oftast, er athuga skal andleg
verðmæti, er félagsfriðurinn
ekki árangur og afleiðing hins
innra andlega ástands einstakl-
inganna? Vex ekki friðarhug-
sjónin og friðarviðleitnin bein-
línis út úr hinu friðsæla hjarta,
að sínuleyti eins og fegurðar
blómin spretta upp úr hinum vel
ræktaða og góðursæla jarðvegi?
Engin þarf að efa, að Kristur á
hér við hinn innra frið, ~frið
mannsins við sína eigin sam-
vizku, þann frið sem vér óskum
okkar kærustu vinum er vér lát—
um þá von í ljósi að andi þeirra
megi hamingju njóta og frelsi
fagna í friði guðs. Það er að
segja ef sú ósk er framborinn af
einlægni og skilningi. Þetta er
efni og innihald allra trúar-
bragða, að minna á friðinn í guði,
hinn innra frið í sátt við sam-
viskuna. Einhverjum kann nú að
finnast að eg sé að komast undra-
langt frá umræðuefninu — átti
það annars ekki að vera um
heimsfriðinn milli þjóðanna. —
Einhvern kann nú að gruna, að
eg sé að stefna út í óræður trú-
arbragðanna. Svo virðist mér
sem fáir trúi nú á guð í raun og
veru: Nokkrir eru svo hrein-
skilnir, við sjálfa sig og aðra, að
þeir kannast hreint og bert við
trúleysi sitt. Aðrir leitast við að
nota guðsnafnið fyrir hjúp til
GERANIUMS
18 FYRIR 15C
Allir sem blómarækt
láta sig nokkuð snerta
ættu að fá útsæðis-
pakka af Geraniums
hjá oss. Vér höfum úr
feikna birgðum að
velja af öllum litum,
hárauðum, lograuð-
um, dökkrauðum, crimson, maroon,
vermilion, scarlet, saimon, cerise,
orange-red, salmon pink, bright
pink, peach, blush-rose, white
blotched, varigated, margined. Þeer
vaxa auðveldlega og blómgast á 90
dögum frá sáningu. Pakkinn 15c, 2
fyrir 25c, póstgjald borgað. Sáið nú.
SÉRSTAKT TILBOÐ: 1 pakki af ofan-
skráðu útsæði og 5 pakkar af völdu
útsæði fyrir húsblóm, alt ólíkt og
vex auðveldlega inni. Verðgildi $1.25
—öll fyrir 60c póstfrítt.
að hylja hatur sitt og hræsni.
samvizkuleysi sitt og svívirðing-
ar, lýgar sínar og lauslætti. Auð-
vitað á þetta ekki við alla menn,
og langt frá því. En það eru alt
of margir farisear í flestum
kirkjum til þess að menn geti
yfirhöfuð fest örugt traust á
guðstrúna. Hún virðist ekki syna
þá ávexti sem ætlast má til í
framferði mannanna.
Þetta er samt ekki nema önn-
ur hliðin á málinu. Því verður
aldrei með sannindum neitað, að
guðstrúin, einlæg og hrein, hef-
ur breytt mörgum mönnum og
konum. Gefið þeim hugsjónir,
gert þá hreinlífa, gætt þá hug-
rekki, gert þá að hetjum, trúin á
algóðan, almáttugann og alstaðar
nálægan guð. Það hefur breytt
drösulmönnum í dáðríkar hetj-
ur, syndaranum í kristilegan
borgara, hinum hvarflandi stað-
festuleysingja í siðferðislega
fyrirmyndar persónu, sjálfselsku
fullum siðleysingjum í mann-
betrandi einstakling. Alt þetta
hefur guðstraustið gert og móti
því verður alls ekki borið. Guðs-
trúin hefur gefið okkur göfug-
ustu mennina og konurnar,
undir flestum kringumstæðum,
þá sem gáfu heiminum hinar
hæðstu hugsjónir, þá sem vörðu
öllu sínu lífi og allri sinni orku
til að gera þær hugsjónir að
virkum veruleika.
Með guðstrúnni glæðist mörg-
um máttur til þess að verða frið-
flytjendur. Út frá þeim stafa
geislar bróðurástar og friðar um
'heimilissviðin. Þeir gróðursetja
1 hjörtum og huga æskunnar
virðinguna fyrir hinu algóða og
kenna henni, að geislabrot hins
guðlega getur ljómað í veru
mannanna. Sælir þeir einstakl-
ingar er barnæsku sýna alla eru í
návist slíkra. Áhrifin ná enda
miklu lengra. Þau ná út í ná-
grennið, sveitarbragurinn og
bæjarbragurinn fer fyrst og
fremst eftir því hvert nábúalag-
ið á sér færri eða fleiri af slík-
um persónum. Þegar slíkir ein-
staklingar verða í meiri hluta
með hverri þjóð verður auðvelt,
að semja frið í heiminum, þang-
að til mun það reynast ervitt. Er
eg með þessu að segja, að ekki
geti verið góðir menn nema þeir
trúi á guð. Sannleikurinn krefur
mig þess, að eg leiðrétti slíkan
misskilning. f því sem á eftir fer
vil eg aðeins leitast við að sanna
að heilbrigð og skynsamleg guðs-
trú auðveldi mörgum að vinna
sigur yfir hinu lága og ljóta í
sjálfum sér.
Já, en hvað er heilbrigði og
gövgandi guðstrú, verður manni
að spyrja? Er nokkurt vit í því
að trúa á það sem er ósýnilegt og
ósannanlegt. Sýndu mér guð og
þá mun eg trúa á hann, segja
sumir. Einu sinni trúðu menn á
þann guð sem gekk um garðinn,
eða átti að hafa gert það, í kvöld
kulinu. Fyrsta myndin er eg sá af
♦ COUNTER SALESBOOKS
Kaupmenn og aðrir sem
þannig lagaðar bækur
nota, geta fengið þær með
því að snúa sér til vor.
Allur frágangur á þessum
bókum er hinn vandað-
asti. Spyrjist fyrir um
verð, og á sama tíma takið
fram tegund og fjölda
bókanna sem þér þarfnist.
The Viking Press Limited
853 Sargent Ave. Winnpieg, Man.
guði var af gráhærðum, síð-
skeggjuðum en virðulegum öld-
ungi, er sat í hásæti og horfði
eða virtist horfa í hugsunarleysi
út yfir endalausar, sól-giltar
skýjaraðir. Vér búumst alls ekki
við að mæta slíkum guði á morgun
göngu, vér trúum nú ekki framar
á tilvist hans. Er andi vor svo ó-
skáldrænn orðinn að vér verðum
annað hvort að trúa eins og börn
eða frumstæðir blámenn eða
hafna allri trú.
Hvar er guð og hver er hann?
Látum okkur nú reyna að svara
þessum spurningum. Eg get að-
eins gefið ykkur mína hugmynd,
sem er jafnframt hugmynd
margra sæmilega mentaðra nú-
tíma manna. Guð er mátturinn
og fyrirhyggjan í sköpun heims-
ins, sem setur stjörnunum sínar
brautir í alheimsins endalausa
sólna sveimi. Hann er þó einkum
mátfurinn og vizkan, er veldur
og stjórnar framþóun lífsins eins
og vísindin hafa opinberað hana.
Hann er sá er klæðir klöppina
geitskógum og gamburmosa. Upp
úr þessum lággrórði framleitti
hann svo grængresið sem þakti
hina fríðu fold og inn í þessa
flosbreiðu fléttaði hann svo feg-
urð blómanna, sem í sínum dagg-
arskrúða, brosa til okkar með
demants augum á hverjum sól-
ríkum sumarmorgni. Já, og til
tilbreyttingar lætur hann svo
skóganna vaxa þar sem laufblær-
inn hvíslar ástaróði og vaggar
lífinu til endurnærandi svefn-
verðar á kyrlátum kvöldum. —
Hann er skaparinn sem fram-
leiðir stöðugt fegri og fullkomn-
ari lífsmyndir frá einsellunni,
sem berst með hafstraumnum til
fiskanna er fylla hafdjúpin. Svo
þegar þau eru fullsetin lætur
hann suma íbúa djúpsins stíga á
land í líki froska og annarra
frumdýra. Frá lágu þroskast svo
tegundirnar til þess háa þar til
kóróna alls sköpunarverksins,
maðurinn stigur upp úr djúpi
aldanna, og þessarri vitgæddu
veru er áskapað að lifa og breyta
eins og maður og guðsbarn en
ekki sem kvikindi. Hann átti að
græða og fegra sinn gróðurreitt
í sátt og samlyndi, en ekki að
saurga hann með blóði bræðra
sinna. Eins lengi og mennirnir
trúa á guð framfaranna geta
þeir aldrei með öllu örvænt um
framfarir, frið og bræðralag í
framtíðinni. Þetta er minn guð
í náttúrunni, hann er “geislinn í
lífsins æðum öllum,” hann er höf
undur og stjórnari framfaranna
í veldi náttúrunnar. Æðsta og
fullkomnasta guðsþjónustan er
því að starfa að fegurð og full-
komnum lífsins í trúnni á hinn
eilíflega endurskapandi guð. —
Satt að segja finnst mér öll önn-
ur trúarhugsjón vera fánýtur hé-
gómi. En mér finnst það engin
hégómi heldur nauðsyn að festa
trú á það alheimsafl sem öllum
framförum hefur ollað, trúa því
að það muni jafnt um ókomnar
aldir styrkja veikleika vorn í
verkinu. Eg hef fremur litla trú
á því, að okkur takist að yfif-
stiga þá erviðleika, sem standa
í vegi friðarins án þeirrar trúar.
Af öllum trúarjátningum vildi
eg láng helst tileinka mér þessa
“Trúðu á tvent í heimi, tign sem
æðsta ber, guð í alheims geimi og
guð í sjálfum þér”. Ef þú finnur
ekki guð í sjálfum þér er efa-
samt að þú greinir hann annar-
staðar. Hvað ber vott um tilvist
hans í mannsálinni? Frá mínu
sjónarmiði er það fyrst og fremst
sú frumhvöt sem varir í öllum
sálum, blundandi í sumum en
virk í öðrum, að vilja láta eitt-
hvað gott af sér leiða, að lifa til
einhvers gagns, ekki einungis
fyrir sjálfa sig, heldur einnig
aðra, að vilja og vona að heimur-
inn fari batnandi og mennirnir
megi fagna bjartari og betri til-
veru. Úr hópi slíkra vona eg að
þeir komi sem friðinn semja í
framtíðinni.
Þegar eg hugsa mér neista
guðseðlis í eigin veru ber eg
mest virðingu fyrir sjálfum mér.
Þegar eg hugleiði glöp mín og
galla er þetta hið eina sem gerir
mér kleift að halda sjálfsvirð-
ingunni, en sjálfsvirðingin
hvetur mann flestu fremur til að
forðast hið ósæmilega en sækj-
ast eftir því göfuga. Þegar mér
finnst eg starfa í mestu samræmi
við hið guðlega og góða í eigin
vitund, nýt eg fyrst fullnægju
hins innri friðar og þá er löngun
mín ákveðin og einlæg, að allir
menn og allar þjóðir megi í guðs-
friði dvelja um allan aldur. Þegar
mönnum verður eðlilegt að ala
þær óskir í eigin brjósti verður
friður á jörðu, sem á himni. Frá
slíku hjartalagi verður friðar
hugsjóninn að eflast og vaxa.
Hvað er ógnarlegast í öllum
heiminum í dag? Frá mínu sjón-
armiði er það trúinn á ofbeldið
og hnefaréttinn. Sú helveldis
trú verður ekki af velli hrakinn
nema með gagnstæðri trú á guð
og hið góða. Áður slíkt gerist
verður alt friðartal undirstöðu-
laust og í ósamræmi við aldar-
háttinn.
Friðurinn hlýtur að grundvall-
ast á samræminu og þetta sam-
ræmi verður fyrst og fremst að
grundvallast á því samræmi
hjartans er skapar hinn innra
frið. Sá friður fæst bezt þegar
vér hugsum okkur samvizkuna
guðsrödd í eigin brjósti og reyn-
um, þrátt fyrir veikleika vorn, að
haga okkur eftir \dsbendingum
hennar og viðvörunum. Á þessari
sannvitund er guðstraust mitt
og margra annarra, grundvallað.
Þegar eg er í sátt við mína eigin
samvisku finnst mér eg “elska
allan heiminn og engin dauði
vera til”. Þá verðum við friðar-
vinir og frið- flyténdur..
Já, en hvað kemur nú þetta
alheims friðum við? Það kemur
honum við af því friðurinn get-
ur ekki byggst á friðargerðum,
sem skortir einlægni, og ein-
lægnin hlýtur að grundvallast á
því trausti, sem einstaklingurinn
og þjóðirnar bera til sín og ann-
ara. Það er miklu auðveldara fyr-
ir þann sem trúir á guðlegheitin
í sjálfum sér að trúa því að gövgi
og gæði búi líka í öðrum þjóðum
og einstaklingum. Honum verð-
ur því eðlilegra að ætla öðrum
fremur gott en ílt. Hvað stend-
ur nú öllu meira því í vegi að
friður náist? Það í stuttu máli
að fyrir vantraust sitt á sjálfum
sér, verður flestum eðlilegt að
ætla öllum ilt, en engum gott.
Þess vegna standa menn skjálf-
andi á beinunum og búast við á-
rásum frá vondum þjóðum og
vondum mönnum, helzt hvenær
sem er. Þetta gegnsýrir allan
hugsunarháttinn. Menn sjá of-
sjónir og villusjónir. Þeir óttast
ekki einungis þá óvini sem þeir
ekki þekkja og búa handan við
hafið, heldur líka innlenda óvini
sem þeir telja líklegasta til að
svíkja land sitt í trygðum — þá
grunar útlendinga sem með þeim
búa svo kynþátta hatrið magn-
ast. Minsti skoðunarmunur er oft
nægilegur til að gera menn að
æfilöngum fjandmönnum. Æs-
inga og áróðurs menn blása ó-
spart að kolunum og magna hið
helvíska bál haturs og tor
tryggnL Ekkert mál er hægt að
ræða með stillingu og skynsemi,
alt réttlæti gleymist og rökræð-
ur hljóðna í ofsafengnum há-
vaða flokksstækinnar. Er hægt
að grundvalla frið í slíkum
heimi með slíkan hugsunarhátt?
Eg fullyrði að það sé alls ekki
hægt. Það gagnar lítið að telja
sér trú um að vér höfum alltaf
á réttu að standa, en andstæðing-
arnir hafi altaf rangt fyrir sér.
Allir menn sem halda því fram,
að bæta megi úr böli aldarfarsins
með ennþá öðru og stærra stríði,
eru brjálaðir. Hafa veraldar
stríðinn bætt heimin? Hafa þau
leyst úr nokkrum vanda? Hvaða
stríð haíanokkru sinni gert það?
Það lítið sem fram á leið hefur
þokast er fyrir friðsamlegt sam-
starf mannanna í þágu hugsjón-
fORT \\
y&MWt)
tocfatf’s
WGGEST
Coffee
Vatue
Æ A
49
i/ *.
Z***ihe Jní
a*1°urJL
„oeeestoda^
anna fyrir trúna á sigurmátt
guðs og hins góða.
Já, vissulega eru þeir brjálað-
ir, sem byggja von sína á frum-
orku sprengjum og öðrum álíka
vitisvélum. Margir eru nú þeirr-
ar skoðunar að heimurinn sé nú
að verða meira og minna brjál-
aður — að verða — er hann ekki
nú þegar orðin það! Hvað bendir
til að svo kunni að vera? Það er
nú æði margt: —
Tökum til dæmis þá slcrum-
skæling af “music” sem nú argar
í eyrum vorum. Jafnvel alsnaktir
villumenn í Afríku frumskógun-
um myndu fyrirverða fyrir því-
líkt hrafnagarg. Hverjir nema
brjálaðir menn mundu leggja
sig niður við að framleiða slíkt
og hverjum gæti það orðið til
ánægju nema sturluðum lýðum.
Ekki er nútíðar myndlistinn
— sumt af henni — til meiri fyr-
irmyndar. Eitt sinn hékk “im-
pressionista” mynd í listasafni
Chicago-borgar sem mér var sagt
að væri af dansandi fólki. Reynd-
ar sá eg þar nú ekkert annað en
nokkra kálfa bera kvennmanns
leggi og þyrlandi, flaxandi fót,
— átti víst að vera það — en mér
kom það helst fyrir sjónir sem
skyjastrókur og upp úr þessum
óskapnaði skaust eitthvað sem
einna mest líktist álkuhaus í
stækkaðri gerð. Einn gamansam-
ur borgarbúi sagði, að myndin
minti einna helzt á fellibyl í
timburhlaða, en sumir listdóm-
ararnir sögðu þetta snildarverk.
Svipuð verður útkoman einatt
er vér skygnumst um í heimi nú-
tíðar bókmentanna. Vér könn-
umst naumast við þær mannlífs-
myndir er þar eru fyrir okkur
uppdregnar. Margir bókmenta-
lega smekkvísir vinir mínir telja
þetta ekki eðlilegt fólk. Ef til
vill mundu höfundarnir spyrja:
Hvað er eðlilegt? Er ekki arfinn
í sorphaugnum jafn eðlilegur
sem fífillinn út á vellinum? Lát-
ið ykkur ekki dreyma að við sé-
um að draga eðlilegar mannlífs-
myndir í óeðlilegum heimi, ekki
einusinni fólk með heilbrigða
skynsemi í alsturlaðri veröld,
við erum að draga myndina eins
og hún kemur okkur fyrir sjón-
ir af arfanum á mykjuhaugum
mannlífsins. Þetta kann nú að
vera satt, engum getur orðið það
til huggunar.
Hugleiðum nú annað efni sem
ber vott um hræðilegt siðferðis
ástand ef ekki hreint og beint
andlega sturlun. Fimta hvert, og
nokkuð betur, hjónaband endar
nú með upplausn og skilnaði í
Bandaríkjunum. Eg er ekki svo
mjög að hugsa um, í þessu sam-
bandi, tölu hjónaskilnaðanna —
eins Qg orsakir þeirra og afleið-
ingar. Eg veit að hjónaskilnaðir
eru stundum nauðsynlegir og ó-
umflýjanlegir, en hversvegna
ættu þeir að vera í svo mörgum
tilfellum nauðsynlegir og óum-
flýjanlegir? Tæplega getur hinn
innri friður ríkt í þeim hjóna-
böndum og á þeim heimilum,
sem uppleysast þannig. Ber"það
ekki þ. e. s. fjöldi skilnaðanna
hraparlegan vott um siðferðis-
legt óstöðuglyndi og brjálæðis-
kenda girndarþrá.
Bók er nýkomin á prent í
Bandaríkjunum, sem nefnist
“The Kinsley Report”, og er á-
rangur af tuttugu ára rannsókn
höfundarins, sem er nafntogaður
sálfræðingur, á kynferðis venj-
um þjóðarinnar. Eftir þeim rann-
sóknum hefir rúmur helmingur
giftra karla framhjá konum sín-
um (næsta bók fjallar um hátta-
lag hins kynsins). í þessari ótta-
legu bók er ennfremur rætt um
sódomisku og alskyns kvikindis-
hátt, á svo háu stigi að manni
bókstaflega sundlar við lestur-
inn. Manni verður að spryja er
þetta ekki vitlaust fólk sem þann-
ig hagar sér. Er nú furða þótt
taugaveiklun og brjálsemi fljóti
í kjölfar slíkrar ónáttúru og
hvernig getur maður fest trú á
því að svona manneskjur geti
skapað heilbrigt þjóðfélag eða
þeir menn semji alheims frið sem
ekki geta viðhaldið heimilis og
fjölskyldu friðnum heima hjá
sér. Meðan menn draga sínar
helgustu tilfinningar þannig nið-
ur í saursvaðið verður hvorki
innri fríður í sálum manna eða
alheims friður milli þjóðanna.
Friður getur aðeins grundvallast
milli sæmilega siðmentaðra
manna og þjóða: Taka verður
það fram að þó hér sé rætt um
eina þjóð er engin minsta ástæða
til að ætla ástandið hótinu betra
hjá öðrum þjóðum nútímans.
Eg hef nú notað þetta sem hlið-
stæð dæmi en hvergi finst mér
brjálsemi aldarfarsins koma bet-
ur í ljós en í pólitík, einkum al-
jarðar pólitík nútímans — eg
varast orðið stjórnmál, því þarna
er um glöp og glundroða að ræða
en enga stjórn og því síður
stjórnvizku. Er það vit að búa
sig út í stríð sem hér um bil á-
reiðanlega veldur alheims eyði-
leggingu; er það vit að láta skap
sitt fara með sig svo í gönur að
menn verja mestum tíma á
hverju friðarþingi til að hnakk-
rífast og bera hver aðra brígsl-
yrðum; er vit að byggja alla von
sína á frumorkusprengjum, sem
geta lagt heilar borgir í rústir
með öllum þeim listaverkum sem
mannsandinn hefir fegurst skap-
að en fargar jafnframt mörgum
miljónum mannslífa? Ef þetta
er vit hvað er þá vitleysa? Menn
telja sér trú um að tvær stefnur
valdi andstæðum og að þær stefn-
ur séu með öllu ósamrýmanlegar
svo þær hljóti að berjast um al-
heimsvöldin unz ‘yfir lýkur. —
Hverjar eru þessar stefnur og
hversvegna eru þær ósamrýman-
legar? Satt er það að tvær höfuð
þjóðirnar er að deilunni standa
leggía naisjafna áherzlu á tvö
borgaraleg verðmæti. Bandaríkin