Heimskringla - 15.12.1948, Page 1
Always ask íor the
HOME-MADE
“POTATO LOAF”
CANADA BREAD CO. LTD.
Wlnnlpeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgi. <
'############################«####«
Alwcrys ask íor the—
HOME-MADE
“POTATO LOAF”
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144 !
Frank Hannibal, Mgr.'
>############»#####»»##»#»»#######»
LXIII. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 15. DES. 1948
NÚMERll.
annanna
SÉRA PHILIP M. PÉTURSSON
ir sem festust þá inn hjá mönnunum, og
sem þeir fylgdu til að sýna þakklæti sitt,
urðu, (að segja mætti) að nokkurskonar
eðlishvöt, sem menn færast ekki undan,
og sem mennimir mega, í raun og veru,
ekki án vera, til þess að þeir missi ekki úr
lífinu mikið, sem dýrmætt er, og göfg-
andi, frá andlegiMsjónaíhiiði. Og færðust
þessir siðir að lé^uip, inj^ í kristindóminn,
eftir að hann birlisf h§&þinum.
Nú eru 19^Mirin$irar-.©g meira síðan
að sá maður, sem nefnduv ér Kristur,
fæddist, og sem kom, eins/oe sagt hefir
verið, með gleðiboðskap, tíl a%a manna,
og sem var, í fylsta 'skilningi; í sam-
i'æmi við an,da þanm'sém ríkti h^yieim,
er þeiivjreiau upp 4 sígurhátíð síriá um
miðiaa^Fetuv.íÆann kom með boðskáp
kidda í :
un| man:
“Og engill drottins stóð hjá þeim og dýrð
drottins Ijómaði í kringum þá og urðu þeir mjög
hræddir. Og engillinn sagði við þá: “Óttist
ekki, því sjá, eg ilyt yður gleðiboðskap um
mikinn iögnuð, sem verða mun fyrir allan lýð-
inn.....og í sama svipinn var með englinum
fjöldi himneskra hersveita, sem lofuðu guð og
sögðu: “Dýrð sé í upphæðum guði, og á jörðu
friður meðal manna”. (Lúk. 2: 9-14).
Nú eru meira en 19 aldir liðnar síðan
að sá atburður, er með þessari helgisögn
er lýst, átti sér stað, og að fyrstu kristin
jól voru haMin heilög. Og nú á þessari
miðsvetrartíð hugsum vér enn einu sinni
til jólanna og syngjum enn einu sinni hina
gömlu jólasöngva og lesum aftur gömlu
helgisöguna, og lyftum hugum vorum t:
þess sannleika, sem hún bendir oss tij^þorí
að margt í lífinu sýnist, á sama tíma£g||
vera í beinni andstöðu við þann anda, sem
skapaði þessa sögu, og sem vér viður-
kennum sem tákn og anda jólanna.
Þrátt fyrir alt, þrátt fyrir allar mót-
sagnir lífsins og þrátt fyrir ofbeMi og
ófriðaranda sem ríkir enn, þrátt fyrir
þjáningar og erfiðleika miljóna fólks,
höMum vér enn heilög jól, og þessi hátíð
hefir enn hin sömu helgandi áhrif á oss,
' sem hún hefir æfinlega haft.
Á hverju ári, um miðjan vetur, þegar
nóttin er lengst, og vetrarkuMarnir vana-
lega byrjaðir fyrir alvöru, flytur hún,
þessi hátíð, oss mönnunum, sama gleði-
boðskapinn, sem hún hefir altaf flutt, frá
aMa öðli. Og jafnvel þó að andinn, sem
yíkir enn meðal þjóðanna sé eins og myrk-
ur næturinnar eða kuldi vetrarins, þ. e. a.
s. eyðandi og villandi, flytur þessi hátíð
oss samt sama gleðiboðskapinn. Og hið
einkennilega við það er, að það er sá boð-
skapur, sem mennirnir vilja hlusta á, þó
að þeir viti að flestar sögumar í sambandi
við hann séu sprottnar upp úr helgisögn-
um, bæði heiðinna og kristinna manna.
Hið eina í sambandi við alt hátíðahaMið,
og í sögunni gömlu, sem vér höfum nokkra
vissu fyrir, er að Kristur fæddist. En
hvort að nokkuð annað í sambandi við
sögúrnar, sem oss hafa borist, hafi verið
raunverkuleiki, höfum vér enga vissu
fyrir.
En sagan er fögur og hrífandi. Hún
bregður birtu yfir heiminn í skammdeg-
inu og það er í eðli mannanna að vilja
tilbiðja hið bjarta og fagra og göfgandi.
Þeir vilja koma í framkvæmd öllu, sem
andi jólanna táknar, og þess vegna haMa
þeir jólahátíð, og láta í ljósi sína æðstu og
fullkomnustu þrá um bróðurkærleika, urii
frið, og um hið fullkomna mannfélag, þar
sem allir geta búið saman í friði og í sátt.
1 fornri tíð, fögnuðu menn yfir sigri
ljóssins á myrkrinu, og sungu guði ljóss-
ins lof og dýrð, þeir fögnuðu yfir bjartari
dögum og þeirri óræku vissu um að sælir
og frjósamir dagar væru framundan, þó
að kuMi ríkti enn í heiminum. Og siðim-
eðiboðskap til a!
fylsta,'skilnin
a þ
sígurhátíð
ann kom með boðskap
lu sem var villandi^úllum
sálinni, öllu myrkri í hu;
na og meðal þjóðannm fíá
flutti boðskap um kæfíeika, um frið, urri ]
réttvísi, og um trú. Hann kaUaði alla
merin bræðúr, og prédikaði að þeir ættu að\
læra að lifa í friði óg sátt, og ^pðaði þá
guðsríkisöM', sem yrði eðlileg áfleiðing
tilrauna þeirra til að fylgja þekn kenn-
ingum, þeim boðskap sem hann ]p*ti.
cap
hugí
þeirra o:
um bet
.ann bein
iarki en
Hanr
hlim oí
augují
ír höfðu
ry eða
Hann fíreif
veitti þeim fagra
bjartari framtíð.
þeirra að æðra t;
nokkurntíma áðu/ hugsað sm*,-
og skoraði á þá að láta aMrjphúgfa
þó að mótlæti eðá böl skyldÉ^hrða á
þeirra, e^ heþíúr að stejpBjviðstöðulaúst
að hinu asðráfög bet^-|fg fegurra lífi, að
hefja augun tilhú^raKá, óg keppa svo
við að feMna háieiJfstu og beztu
drauma ..unaSHwPeamllðaripaar rætast.
Hvað gat verið eðlilegra en það, að
í fornn
IV sign
eínnig
............ _ __ _______ . __ irti
mönnum þessar æBri og fullkomnari og
ágætari lífsstefnur, sem komu eins og
ljós inn í myrkur þess heims sem þá var,
og þess ástands sem ríkti, sem kom eins
og vermandi ylur úr æðra heimi inn í
kuMa andlegrar ófullkomnunar þessa
heims.
í heiðninni glöddust menn yfir von-
inni um sigur ljóssins. En þeir vissu að
margir kaMir og dimmir dagar væru enn
eftir áður en veturinn væri liðinn, og vor-
ið eða sumarið komið, áður en fullum sigri
yrði nað.
Og eins er í lífi mannanna. Þó að
gleðiboðskapur um mikla og göfuga f ram-
tíðar möguleika hafi verið fluttur mönn-
unum, þá grúfir myrkur enn yfir sálum
þeirra og það hverfur ekki á einni nóttu,
né einu ári né heMur á heillri ÖM, eins og
raun hefir borið vitni þessi nítján hundr-
uð ár, sem liðin eru síðan að hann birtist
heiminum. Alveg eins og kuMar ríkja um
miðjan vetur og stormar geisa, í heimi
náttúrunnar, þá ríkja kuldar, og geisa
stormar manneðlisins, þrátt fyrir hina
miklu von sem oss hefir verið flutt um
framtíðar möguleika mannanna.
Fyrir 19 öMum var heimurinn, yfir
höfuð að tala, á lágu menningarstigi að
mörgu leyti.
Vér höfum færst dálítið nær mark-
inu, sem oss hefir veirð sett, þó að seint
hafi gengið eða þó að oss hafi fundist það
ganga seint. Oft hefir oss fundist að
sporin vera aftur á bak í staðinn fyrir
áfram. En áfram hefir verið miðað samt
og verður stefnt. Vér munum enn haMa
áfram og stefna í fullkomnunar átt, þrátt
fyrir myrkur og kuMa í heiminum, þ.e.a.s.
villimensku og ofbeMi. Og vér munum
smátt og smátt nálgast takmarkið, sem
sett hefir verið. Vér hughreystumst við
’ |_.vissu, að eins og dagar ljóssins koma
lokum, eftir myrkur skammdegisins,
kemur einnig að lokum dagur kær-
leikans og bræðralagsins til að bæta böl
og græða sár heimsins.
Þess vegna, vegna þessarar vonar,
þessarar vissu, höMum vér enn heilög jól,
og erum öll (ásamt öllum hinum kristna
heimi, þrátt fyrir skiftar og mismunandi
skoðanir á mörgu) samtaka í því, að fagna
komu þess boðskapar í heiminn, sem veitti
oss æðri skilning á lífinu og háleitari og
göfugri von um framtíð mannanna.
Þess vegna höMum vér heilög jól á
hverju ári, og gerum tilraun þá, á þeim
eina degi, ef ekki á neinum öðrum degi á
árinu, að lifa í fullu samræmi við það, sem
bezt er og fegurst í hugmyndastefnum
heimsins, og sem birtist í gleðiboðskapn-
um er sagt er, að englahjörðin hafi flutt
heiminum á jólunum fyrir svo mörgum
öMum, þegar sungið var um dýrð guðs og
hans dásemdarverk.
Andi jólanna, sem nú ríkir hjá oss
öllum, biður oss ekki aðeins að fagna, en
einnig að endurskoða það, sem vér höfum
helgað líf vort, og að gagnrýna innri þýð-
ingu þess, sem vér höfum áður dýrkað.
Hann biður oss að varpa frá oss öllu, sem
ófullkomið er, öllum þeim hugsunum og
tilhneigingum, sem geta orðið oss sjálfum
eða öðrum að ógagni eða skaða. Hann
biður oss að helga líf vort hinu æðsta og
fegursta, og að vinna að því af hjarta og
sál að efla það, sem vér erum sannfærð
um að sé í samræmi við vilja guðs, en ekki
gagnstætt honum. «
Ef vér skiljum jólin eða andann, sem
jóla hátíðin táknar á þennan hátt, og ef að
vér eigum þátt í því, að efla og fullkomna
þessa hugmynd, þá munum vér enn einu
sinni geta, heyrt hljóminn af fögrum
englasöng eins og sagt er að hann hafi
heyrst forðum, í kyrð jólanæturinnar, því
þa mun það vera að rætast, sem spáð var
í söngvunum, sem þá voru sungnir, þegar
englarnir lofuðu guð og sögðu:
“Dýrð sé guði í upphæðum,
og á jörðu friður meðal manna”.