Alþýðublaðið - 26.05.1960, Síða 13

Alþýðublaðið - 26.05.1960, Síða 13
Sexfugur SEXTUGUR er á inorgun Þóroddur Hreinsson hús- gagnasmíðameistari í Hafnar firði. Hann er sonur hjónanna Hreins Þorsteinssonar og Þórunnar Sigurðsdóttur, sem lengi bjuggu að Kvíarholti í Holtahreppi. En þar er Þór- oddur í iheiminn borinn hinn 27. maí 1900 og fyllir í dag sex áratugina. Þóroddur fluttist til Hafn- arfjarar tvítugur að aldri og hóf þegar nám í húsgagna- smíði hjá h.f. Dverg og lauk prófi í þeirri iðn 1924. Vann hann mörg ár jöfn- um höndum við húsa- og hús- gagnasmíði allt til ársins 1935. Þá setti hann á fót sitt eigið fyrirtæki — húsgagna- vinnustofu, sem hann rekur enn. Munu húsgögn frá Þór oddi, borð, stólar, bókaskáp- ar, bókahillur og margt og margt fleira, sem . ég kann varla nöfn á, prýða mörg hafnfirsk heimili. Og eitt er sameiginlegt með þeim smíða gripum öllum, að handbragð- ið segir til sín. Þau eru vönd uð eins og höfundur þeirra sjálfur. Ekkert við þau van- gert og alltaf seld á sann- gjörnu verði, því annað væri fjarri hugarfari Þórodds. Eftir að lögin um iðju og iðnað voru sett 1928 fékk Þór oddur Hreinsson meistararétt indi bæði í húsa- og húsgagna smíði.' Hefur hann útstrifað marga nemendur í báðum fyrrnefndum iðngreium. Þoroddur Hreinsson Þóroddur hefur gert fleira en haldið á smíðatólum s,- 1. 40 ár, sem hann hefur dválið í Hafnarfirði. Hann hefur tek ið virkan þátt í allskonar fé- lagsmálum, bæði í samtökum iðnaðarmanna og eins í starf- semi Alþýðuflokksins hér í bæ. Hann var stofnandi að Tré- smíðafélagi Hafnarfjarðar og 11 ár ritari þess samfleytt. Hann var og stofnandi >að Iðn- aðarmannafélaginu í Hafnar firði, verið 13 ár í stjórn þess, ýmist sem varaformaður eða ritari. Þá var hann einn þeirra iðnaðarmanna, sem sátu stofnþing Landsambands iðnaðarmanna og hefur setið flest þing þess. Þá stóð hann Vorleiðangur Ægis hafinn HINN árlegi vorleiðangur „Ægis“ til rannsókna á íslenzka hafssvæðinu hófst í gær — Farð verður fyrst vestur fyrir land og síðan verður kann að svæðið út af Vestur- og Norð urlandj með sérstöku tilliti til síldargangna á svæðinu. Leiðangrinum lýkur á Seyð- Sígarettu- þjófnaöur INNBROT var framið aðfara nótt þriðjudags í Sveinsbúð að Borgargerði 12. Þjófurinn hafði á brott með sér 36 karton af sígarettum, — mestmegnis Camel og Chester- field. Verðmæti þýfisins er rúm- ar 4000 krónur. isfirðí hinn 28. júní, en þá hefst þar sameiginlegur fundur ís- lenzkru, norskra og rússneskra fiskifræðinga. Fundurinn verð- ur nokkrum dögum síðar en undanfarin ár, þar eð norska rannsóknarskipið getur ekki mætt fyrr vegna rannsókna á Færeyja-íslands hryggnum, sem það jafnframt tekur þátt í. Af hálfu Dana mun enginn mæta á þessum fundi, og óvíst hvort færeyskur fiskifræðing- ur, sem stundar rannsóknir við Færeyjar, getur mætt að þessu sinni. Frá Fiskideild taka 5 manns þátt í leiðangrinum: Ingvar Hallgrímsson, fiskifræðingur, sem jafnframt er leiðangurs- stjóri, Jakob Jakobsson, fiski- fræðingur, og þrír aðstoðar- menn frá Fiskideild, Svavar Guðmundsson, Knútur Ólafs- son, og Árni Þormóðsson. Skip- stjóri á Ægi er Jón Jónsson. að stofnun Iðnráðsins í Hafn arfirði 1930 og lengst af ver- ið í framkvæmdastjórn þess, ýmist ritari þess eða formað- ur. 1934 var hann við stofnun Byggingarfélags Alþýðu í Hafnarfirði, kosinn í stjórn þess og sat í stjórninni í mörg ár, en þar lærði sá er þetta ritar að þekkja afmælisbarn- ið. Þar kynntist ég hæfileik- um hans, réttsýni í öllum mál um og fórnfýsi í störfum. Alþýðuflokksins hér í bæ, fyrst í unghreyfingunni og síðar í Alþýðuflokksfélagi Hafnarfjarðar. Setið í stjórn þess um árabil, verið varabæj arfulltrúi flokksins í mörg ár og setið { bygginganefnd lengi. Ég veit ekki hvort bessi frásögn er tæmandi, en hún gefur bó nokkra hugmynd um það traust, sem Þóroddur hefur aflað sér á lífsleiðinni meðal sinna samborgara. Og ég verð nú að segja það, að eftir því er ég þekki Þórodd, þá undrar mig ekki bótt trún aðarstörfin hafi orðið ærið mörg. Þóroddur kvæntist 1930. Friðsemd Guðlaugsdóttur, en hún lést eftir mikla van- heilsu 1958. Þau voru barn- laus. Þóroddur hefur verið starfs maður mikill og ekki gætt þess að misbjóða ekki heilsu sinni, enda varð hann fyrir ári síðar eða svo að taka sér langt frí frá störfum og leita sér hvíldar erlendis. Vildi ég vona þess að bærinn okkar mætti' en um sinn' njóta Framhald á 14. síðu. Ingólfs-Café Gðmkí dansarnir miiiað kvöld klukkan 9. Dansstjóri: Þórir Sigurbjömsson. 12826. bökunar daginn Tóledó Klœðið drenginn eða stúlkuna í sveitina. Höfum ennþá vörur á gamla verðinu. T óledó t Fischersundi 1 — Laugavegi 2 — Langholtsvegi 128 og Laugarásvegi 1 Alþýðublaðið — 26. maí 1960 £3

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.