Heimskringla - 26.09.1951, Page 9

Heimskringla - 26.09.1951, Page 9
65 ára afmælisblað 26. septemker 1951 * FRÉTTAYFIRLIT Kosningar á Bretlandi Clement Attlee, forsætisráð- herra Breta, tilkynti s.l. viku, að kosningar færu fram á Bretlandi 25 október n.k. Verkamannastjórnin var fyrir sex árum kosinn með nærri 200 þingmanna meirihluta. Eftir fjögra ára stjórn hafði fylgi hennar þverrað svo, að við fyrstu kosningar var meirihlutinn ekki orðið nema hálf tylft manna. Og við það hefir setið tvö sáð- ustu árin. Stjórninni hefir sjáanlega leiðst þóf þetta og freistar því kosninga í annað sinn. Auk þessa minnihluta, sem stjórnina hefir við hverja at- kvæðagreislu mint á vafasamt þjóðarfylgi, hefir bæst, að flokk ur hennar hefir klofnað. Var þó við ærið annað að fást eins og sí- felda verðhækkun vöru, eldiviðar skort á komandi vetri og 5,000,- 000 verkamanna heimtandi kaup- hækkun. Aneurin Bevin, einn af sterk- ari mönnum verkamannaflokks- ins ,hefir yfirgefið skipið, vegna Þess, að honum hefir þótt Att- iee aðgerðalítill og hafa mishepn ast að sanna heiminum kosti verkamannastefnunnar. Með honum hafa nokkrir aðrir verkamannaforingjar kvadd stjórnarflokkinn. Menn hafa spurt hvert Bevin fýsti að ná forustu flokksins sjálfan. Að til þess komi í þess- um kosningum er þó ekki búist við. Tapi Attlee, gæti hent sig, að Bevin yrði aðal andstæðingur á þingi. Og síðan stjórnarflokk- urinn. A þingi eru 625 fulltrúar alls. Af þeim eru 313 stjórnarflokks þingmenn, en 279 íhaldsflokks- menn og fylgjendur þeirra. Lib- eralar eru 9, óháðir 1, írskir þjóð- ernissinnar 2, auðsæti 3. Ákveðinn eða viss meirihluti stjórnarinnar, er því ekki nema 6. Foringi íhaldsflokksins, sem er aðal andstæðingur stjórnar- innar, er Winston Churchill. Það er ýmsu spáð um þessar kosningar. Hver sem utkoman verður, virðast erfiðleikar stjórn arinnar miklir og vafamál hvort hún fái yfirstigið þá. tJr bréfi f rá St. Paul _____1 blöðum að heiman, sem eg fékk í flugpósti á laugard. var, segir að Pall ísolfsson færi út með Logarossi, það þýðir, að hann hafi komið til N. York á laugardaginn, 15. september. Sjálfsagt ætti hann að heim- sækja Winnipeg ef hann ætlar sér, eins og sagt er, til Minnesota og Dakota. Hann ætti að spila hjá löndum og öðrum norður frá. Páll er svo ágætur náungi — hermikráka og hrókur alls fagn- aðar, eins og þið vitið. Nú er von á Snorra lækni Hall- grímssyni hingað til Minneapol- is á fimtudaginn í þessari viku, ásamt frú og tveimur börnum — er frú Þura dóttir Finns alþing- ismanns Jónssonar. Þau verða hér þangað til í febrúar, og ætlar Snorri að athuga uppskurði á University of Minnesota spítal- anum, og eitthvað líklega hjá Mayos suður í Rochester. Hann er hér á Rockefeller Foundation styrki, og tekur að sér við heim- komu, í febrúar aftur, prófessors stöðuna í skurðlækningum sem Guðmundur Thoroddsen hefur skipað svo lengi. Við hjónin ætlum vestur að Kyrrahafi snemma í október — á eg að sitja þing— The National Convention of State Treasurers, Auditors and Comptrollers, — í Seattle; verðum við þar heila viku frá 6. til 13. oktober, og í 0G UMSAGNIR heimleiðinni ætlum við að stoppa í San Francisco, Los Angeles og Sált Lake City. Eg er bara spenntur — þar sem eg hef aldrei komist vestur — aldrei lengra vestur en til Huron í Suður Dak- ota eða Baldur 1 Manitoba, til dæmis. Kærar kveðjur til kunningj- anna við Heimskringlu og til hamingju með afmæli blaðsins! . .Valdimar Björnsson BRÉF FRÁ TACOMA Eftirfarandi bréf er að vísu prívat bréf til ritstjóra Hkr., en það minnist á svo margt, sem les- endum Heimskringlu mun þykja skemtilegt að heyra, að eg tek mér það bessaleyfi að birta það. Kæri ritstjóri: Leiðist mér að hafa dregið svo lengi að senda borgun fyrir Heimskringlu, og þakka þér fyr- ir vinsemd þína að halda áfram að senda mér hana. Eg vona það sé rétt að þessir dalir, sem hér eru með, borgi fyrir árin sem eg skulda. Fyrir meir en ári síðan heyrði eg til þín á “Blaine íslendinga- deginum”, og hafði eg skemtun af því. Ætlaði mér að tala við þig, þegar við vorum komin ofan af pallinum, en þá fór alt í tal við hina og þessa gamla vini, og tíminn flaug. Af íslendingum hér í Tacoma er það að segja, að þeim sem eg veit af, líður öllum vel. Þeir eru á víð og dreif, og höfum við ekk- ert sérstakt íslenzkt félagslíf hér, en höfum samt komið ein- staka sinnum saman. Eg hef reynt að safna saman, nöfnum af öllum þeim íslendingum hér í borginni sem eg þekki og aðrir hafa sagt mér frá. Fyrir mörg ár hef eg starfað á Leif Eriksson program Com- mittee, fyrir hönd íslendinga hér, og höfum við ævinlega haft íslenzkar stúlkur klæddar í skautbúninginn, að bera fram íslenzka fánann, á þeim skemt- unum. Nú í 6 ár, 6. okt., hjálpar mér með það, ung kona, nýlega komin frá Winnipeg, Mrs. J. A. Abbott (Helen Stephensen, dótt- ir Mrs. Sigríðar Stephensen, og föður hennar Sigurði sál., sem dó í Winnipeg ekki fyrir löngu). Fyrir mörg ar hafa dætur Mr. og Mrs. Bjarni C. Sagen, Arlene, Shirley og Muriel borið fram fánann, eins vel og Mrs. Sagen sjálf, sem er Jensína Björnsson, systir Oliver Björnsson í Winni- peg. Aðrir fslendingar hér sem hafa starfað á þessu Committee, á liðnum árum, eru Dr. John Árnason Johnson, sál., og kona hans, sem býr hér enn í Tacoma. og Magnús Freeman, og Mrs. Lukka Guðmundsson. Nú í haust byrjar aftur að æfa sig, kvennakór, sem eg kom á Sveinn kaupm. Thorvaldson Riverton, var einn af fremstu styrktarmönnum Hkr., og um mörg ár forseti Viking Press félagsins. iroiiip og porey (við 25 ára áfanga) Philip og Þórey, þið hafið verið íslenzkri menningu auðsæld og hKÓs. Þið hafið borið birtu í kofa, hallir og hreysi: hugsjóna Ijós. Fátækir eiga ei yfir að ráða gulli né gripum, gefa því fátt. Einn er þó allra auður hinn bezti: virðing og vinátta, — á voginni smátt. Vináttu og virðing vil eg að færi ljóð þetta litla, ijósberum tveim. Það eitt nú gef eg góðvinum mínirni, tildurslaust, tállaust, — takið það heim. — P. S. Pálsson stað og hef stjórnað síðustu 8 ár- in, sem kallar sig “The Norman- ettes”. Stúlkur og konur í hon- um eru allar af norskum, sænsk- um, dönskum og íslenzkum ætt- um, og syngja þær á öllum þeim tungumálum, eins vel og á ensku og öðrum. Höfum við Concert á hverju vori og erum boðnar að syngja á mörgum skemtisamkom- um bæði fyrir enska og skandi- nava flokka. Dást allir mest að íslenzku og skandinava söngvun- um okkar. Arlene og Shirley hafa báðar spilað undir fyrir kórinn. Fyrirgefðu íslenzkuna mína, hún er að verða stirð. Eg þakka þér svo aftur fyrir blaðið, og vona að borgunin sé rétt. Með vinsemd, Ninna J. Stevens —606 East 32nd, Tacoma 4, Wash. ÚR ÖLLUM ÁTTUM Á mánudagsnóttina var frost í Manitoba, hið fyrsta á haustinu, 21 stig fyrir ofan. ★ Það getur vel verið að blöðin ljúgi öllum meira, eins og sagt er. En á fundi er fjallaði um þessi mál, sagði J. B. McNair, forsætisráðherra í New Bruns- wick, að eitt af því aðdáunar- verðasta við líf þjóða nú, væri hve fréttir væru vel og rétt sagð- ar í blöðum. Hann vissi bara ekki af neinu, sem aðdáunarlegra væri, en hin samvizkusamlega fréttasmölun blaða. ★ Fréttirnar um heilsu Breta- konungs eru ekki góðar. Um síð- ustu helgi varð að gera lungna- í minningu skáldsins ÞORST. ERLINGSSONAR Sakna eg vinar; sárt er að líða. Lægist hyr ljóða, lífsroði dvín. Ástvinur trega, óðmegir stríða. Fírar Fróns þreyja, unz frelsisbrún skín. Léttfleygur sveifstu, svanurinn ljóða, of ísafoldu of mærðar ból; stæltur í stríði stefndir mót vindi, horfðir til himins, horfðir mót sól. Svift er nú ísland sigurtýs ljóma. Óðmæring fæ eg ei oftar að sjá. En orð hans munu um aldir hljóma og lýsa lýðum lífs brautum á. Frimann B. Anderson Ofanskráð kvæði rákumst vér á í gömlu blaði að heiman, en sem vissulega á heima í Heimskringlu þar sem höfundurinn er stofn- andi hennar. uppskurð á honum. Tókst skurð- urinn vel og segja fréttirnar að konungi líði eftir öllum vonum. En hann er búinn lengi að stríða við sjúkdóm sinn og er óstyrkur. * Mr. St. Laurent, forsætisráð- herra Canada, hefir sent Eliza- beth prinsessu og Philip hertoga skeyti þess efnis, að það geri ekkert til þó þau verði að fresta för sinni vestur um haf, ef veik- indi konungsins komi í bága við ferðina á ákveðnum tíma. ★ Ástralíu-búar eru að ráðgera að takmarka framleiðslu á hveiti, en auka í þess stað ullariðnað sinn. Ástæðan er háverð á ull. Með þessu virðist gengið að því sem vísu, að minni peningavon sé hjá þeim, sem ekki hafa neitt í sig, en hinum, sem ekki hafa neitt á sig. ★ Á afmælisdegi Stalins í desem- ber, verður afhjúpað minnis- merki af honum í Búdapest höf- úðborg Ungverjalands. Verður það 175 metra hátt, að undir- stöðu meðtaldri. Sjálft líkneskið gnæfir efst, 8 metra hátt. Nú er verið að rífa húsin í kring, svo að hægt sé að sjá það langt að frá öllum hlið- um. Gatan sem liggur hjá því, verður breikkuð úr 26 metrum í 60 metra.—Mbl. * Á San Francisco fundinum tal- aði fulltrúi Pólverja í 45 mínútur á móti friðarsamningnum við Japa. Að þeim tíma liðnum var honum sagt, að hann gerði nú svo vel og hætti. Ræðutími hans væri fyrir löngu úti. En hann lét sig ekki samt og varð síðast að leiða hann frá útvarpsáhaldinu. FRÓÐLEIKSMOLAR Hvenær er lengsti dagur ársins? Níutíu og níu af hverjum hundrað, mundu hiklaust svara, að lengsti dagur ársins væri 21. júní. Það lætur nærri, en þó ber út af því. Samkvæmt tímatali voru, er hann annað hvort 21. eða 22. júní. Á hverju ári á undan hlaupári, er lengsti dag- urinn 22. júní, en 21. öll hin árin. Eins er með styzta dag ársins. Hann er ýmist 21. eða 22. desem- ber. Styztu og lengstu dagarnir eru háðir sumar og vetrar sól- stöðum. Eru þær svo nefndar af því, að gert mun hafa verið ráð fyrir að um sólstöðpr stæði sólin kyr. Enska orðið sólstice er kom- ið af latneska orðinu sol (sól) og sistera (að orsaka stöðvun). Árið hefir 365V4 dag og það er þetta brot af degi, sem hlaupárin orsakar og um leið breytinguna á lengstum degi og styztum. Eftir ensku tímatali byrjar sumar á lengsta degi ársins, en vetur á hinum styzta. En vor og haust þar mitt á milli, eða 20. marz og 23. spetember. Að fornu mun sólmánuður, sem einnig hét selmánuður og ennfremur nótt- leysumánuður, hafa byrjað með lengsta degi ársins á íslandi. En sumar hefir aldrei byrjað á þeim degi. Það byrjaði fyr, en al- manaks-sumarið hér eða víðar er- lendis. FRÁ ÍSLANDI Dr. Páli ísólfssyni boðið til Bandaríkja Dr. Páll ísólfsson og kona hans eru nú á förum til Banda- ríkjanna, en þar nunu þau dvelja um þriggja mánaða skeið sem gestir Bandaríkjastjórnar. Þau taka sér far vestur með Lag- arfossi á laugardaginn. í fréttatilkynningu um för þeirra, er blaðinu barst í gær frá Upplýsingastöð sendiráðs Banda ríkjanna, segir að dr. Páll muni á ferð sinni um Bandaríkin halda hljómleika og heimsækja og kynna sér ýmsa helstu hljótn- leikaskóla Bandaríkjanna SV9 sem Harvardháskóla. Þar mun dr. Páll dvelja um hríð sem gest- ur E. Powers Biggs, sem er einn kunnasti orgelleikari Bandaríkj anna. Á ferð sinni munu þau hjónin lengst af dvelja á austur- strönd Bandaríkjanna, en vonast til að geta síðar heimsótt byggð- ir íslendinga í Minnesota og Norður Dakota.—Mbl. 6. sept. » » w Rússneskur síldveiðifloti út af Þorlákshöfn Stór floti rússneskra síldveiði-! skipa, hefir undanfarna dagal haldið sig hér við suðurströnd landsins. í gærdag var þessi floti út af Þorlákshöfn, mjög ná- lægt landi. Sum skipanna voru með báta úti. Meðal þessara skipa eru 2 eða 3 móðurskip, mjög stór. Hin rússnesku skip sáust greinilega úr íslenzkum flugvélum, sem áttu leið milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur í gær. —Mbl. 7. september FRÁ SKÓLADÖGUNUM Eftir J. G. Whittier Við götuhornið, hrört og máð, Hér húsið ennþá stendur. Um fúna veggi viðjan þétt Nú vefur sínar hendur. Við innri stofn er stóll og borð Og stika, fyrrum notuð. Um bylgjað gólf er bekkja röð, Af barna höndum krotuð. Um ganginn djúpar grafir sjást, Er gólf og þröskuld veikja, Þar fætur sigu seinir inn, En svifu hratt til leikja. Það var einn löngu-liðinn dag, Þá léttur upp var skólinn, Að laust um hússins vestur-vegg Sig vetrar-breiddi sólin. Hún snerti hrokkið hár og kinn Á henni, sem með trega Þar hikar meðan börn á braut Sig búa æðislega. Því hnugginn drengur, henni kær, Til hliðar daufur stendur, Með húfu dregna hart að brám, Af hrygð og stolti brendur. Og troðna snjónum til og frá Með tánum hægt hann ýtir, Á meðan svuntuhornið hún, Að hætti, óvart knýtir. Einar Hjörleifsson Kvaran, meðritstjóri fyrstu 14 blaða Hkr Er strauk hún mjúkt um hendi hans, Hann hugarfarið skildi; En röddin brast af sárri sorg, Sem sök hún játa vildi. “Mitt slys að hef jast hærra þér Mig hryggir”, meyjan stynur, “Af því” — frá augum ultu tár — “Eg ann þér, kæri vinur.” Sú minning gleður gráan þul — Ei gleymd unz fellur saxið — Nær hálfa öld þótt hafi grös Á hennar kumli vaxið. f skóla lífsins lærði hann Að lýðir flestir smá hann. Og mistök hans ei hryggjast við, Sem hún, af þvá þeir dá hann. —P. B. FJÖLMENT SILFUR- BRÚÐKAUP í Sambandskirkjunni í Winni- peg kom múgur og margmenni saman í gærkvöldi. Tilefnið var að séra Philip M. Pétursson og kona hans Þórey Pétursson höfðu þá verið gift i 25 ár. Stóð Sambandssöfnuður fyrir samsæt- inu, en því var stjórnað af safn- aðarforseta, K. O. Mackenzie, er ! skýrði með snjöllu ávarpi frá því, er í efni var. Skiftust eftir það á um hríð ræður og söngur. Björg- vin Stefánsson flutti ræðu fyrir minni silfurbrúðurinnar. — Að henni lokinni afhenti ung og falleg stúlka silfurbrúðurinni blóm. Percy Hawkins organleik- ari við ensku messurnar flutti þá ræðu og P. S. Pálsson kvæði á ís- lenzku. Sinn einsönginn hvor, sungu Mrs. Elma Gíslason og Mrs. Davis. Þá hélt Jakob Kristj- ánsson ræðu og afhenti silfur- jrúðhjónunum gjöf — Radio- Phonograph. Að því búnu tóku prestshjónin til máls og þökk- uðu vináttu og virðingu sér sýnda. Að þessu loknu var kaffi borið fram, og hafa að því búnu ef til vill fleiri ræður verið fluttar, en vegna þess, að á þessum sama tíma var verið að ljúka við prent- un afmælisblaðs Heimskringlu, varð sá er þetta ritar þá frá að hverfa. Skemtiskrá og fyrirkomulag á öllu var hið ágætasta. Ræðurnar voru hinar prýðilegustu og áttu hver annari betur við, lýstu hlýju aeirri og velvild, sem til prests- hjónanna er borin. Svöruðu þau og af þeim innileik, er unun var á að hlýða. Þetta er aðeins bráðabirgða frétt af samsætinu. Rúm í blað- inu og tími leyfir ekki að við þetta sé bætt, en hugmyndin er að gera það siðar, ásamt mynd- um, er þá gefst einnig tækifæri til að birta. Til bæjarins kom s.l. föstu- dag Trausti ísfeld frá Selkirk; hann sagði það frétta norðan að, að Roy Stefánsson, útgerðar- og fiskikaupmaður sé að reisa frysti hús í Selkirk, heilmikið fyrir- tæki. Mr. Stefánsson er ungur og athafnamaður og hefir fyrir aldur sinn umfangsmikil störf með höndum. * * * Ókleift reyndist að ná í mynd af Birni J. Walters, er var rit- stjóri nokkra mánuði árið 1898, og Einari Hjörleifsyni í tíma fyrir hópmyndina, er var með- ritstjóri fyrstu 14 blaða Hkr. Heil mynd af honum sem vér náðum í er birt á öðrum stað. Einkennilegar og vel gerðar vísur Sár Harmasár í hjartastað hepnast ei að græða; komi einhver ögn við það altaf fer að blæða. Hallgr. Jónsson kennari

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.