Alþýðublaðið - 10.06.1960, Side 1
ÍÍSÍÍíffi
smmmiíi
llillllpl
Í!;Í;!Íi
41. árg. — Föstudagur 10. júní 1960 — 128. tbl,
OSLO í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Alþbl.
NORÐMENN sigruðu íslend-
inga með yfirburðum í lands-
leiknum, sem fram fór í Ulle-
vaal-Ieikvanginum í kvöld. —
Skoruðu Norðmenn 4 mörk
gegn engu, 2 í hvorurn hálf-
leik.
í stuttu máli sagt, var leikur
inn lélegur. Tækifæri Norð-
manna voru óteljandi, en þau
voru oftast misnotuð. íslenzka
vörnin var sterkari hluti liðs-
ins, en lélegt skipulag á miðju
vallarins, fálmkennt og óör-
uggt í sókn. Bezti leikmaður
íslands var markmaðurinn,
sem bjargaði oft snilldarlega.
Þarnæst vörnin, með Rúnar
Guðmannsson sem aðalmann,
skákuðu þeir sóknarliði Norð-
manna oft á tíðum. íslending-
ár áttu nokkrar góðar sóknar
lotur í fyrri hálfleik, en skot-
in voru lin. í síðari hálflgik
áttu þeir þó hættulegri upp-
hlaup, lá þá nokkrum sinnum
við borð að þeim tækist að
skora, en framherjum tókst
ekki að reka endahnútinn á
sóknaraðgerðirnar. 4:0 eru ekki
ósanngjörn úrslit eftir skot-
tækifærum, en of mikið miðað
við gang leiksins í heild.
Rigning var bæði fyrir og
meðan á leiknum stóð og virt-
ist það há Íslendingunum meira
en Norðmönnunum. — Það
sem íslenzka liðið skorti fyrst
og fremst var samvinna milli
framvarðanna og framherj-
anna. Einnig skorti nógu góða
samvinnu hjá framherjunum.
Framliald á 7. síðu.
AMwmMwmwwwvwmvw
Síga
/ björg
ÞESSI mynd var nýlega
tekin — norður í Grímsey.
Maðurinn, sem heitir ÓIi
Ólason, er ekki í striga-
poka upp á grín, þetta er
sighempa. Hann seig ný-
lega í bjargið fyrir fólk,
sem kom til eyjarinnar í
skemmtiferð. Undanfarið
hafa verið tíðar ferðir
skemmtiferðafólks til
Drangeyjar, og mun vera
ætlunin, að báturinn,
Drangur, fari á hverri
helgi í sumar til eyjarinn-
ar, og hafa margir spurt
um far.
Óli mun einnig hafa í
hyggju að síga fólki til
gamans í sumar, og sonur
hans, Óli Bjarni, sem einn
ig sést á myndinni hygg-
ur gott til að læra listirn-
ar og taka ernhvcrn tíman
við af pabba sínjum.
Hann hefur rajunar dá-
lítil kynni af björgunum.
Hrapaði einu sinni 17 m
og meiddist mikið. —
En nú er hann albata og
hvergi smeikur, — tilbú-
inn að síga svo fljótt sem
hann má . . .
(Ljósm. Stefán Petersen).
i
Fyrirfram-
sala síldar
á þessu ári
SAMKVÆMT fyrir-
framsamningum, er gerð
ir hafa verið um sölu á
saltaðri Norðurlandssíld,
má reikna með sölu á allt
að 224 þús. tunnum á
þessu ári. En á s.l. ári
voru saltaðar .norðan-
Nú t>arf póstsfjórhin
ab taka til máls
MED frétt Alþýðublaðs-
ins í gær hófst nýr frí-
merkjaþáttur — og enn
heldur ófrýnilegur.
Þessi þáttur gefur til-
efni til fjöimargra spurn-
inga, sem póststjórnin
kemst ekki hjá að svara.
ÞAÐ ER TÍMI TIL
KOMINN AÐ HÚN TAKI
TIL MÁLS.
Nokkrir menn voru nafn
greindir í sambandi yið frí
merkjaþátt vetrarins —
frímerkjaþátt hinn fyrri.
Það mál hefur þegar kost-
að suma atvinnumissi —
og getur áður en lýkur
kostað þá æruna.
Nú er nýja frímerkja-
þættinum þannig háttað,
að fyrrgreindir menn geta
naumast hafa komið þar
við sögu.
Almenningur hlýtur því
að spyrja: Hverjir þá?
Og Alþýðublaðið fylgir
þeirri spurningu úr hlaði
með tvíþættri spurningu:
HVAÐ LÍÐUR ENDUR-
SKOÐUN Á FRÍMERKJA
BIRGÐ.UM PÓSTSTJÓRN
ARINNAR?
HVENÆR VERÐUR
SKÝRT OPINBERLEGA
FRÁ ÁRANGRI ÞEIRR-
AR ENDURSKOÐUNAR?
Ráðuneytið fylgist með hneykslinu. - 3. síða
iWWW .WWHWWUtHWWW{iK''vfC^HHUtV.VWWHUWWUWWWWWWHÍ
lands og austan samtals
um 215 þús. tunnur.
Alþýðublaðinu barst í gær eft
irfarandi fréttatilkynning frá
síldarútvegsnefnd:
Gerðir hafa verið fyrirfram-
samningar um sölu á 120 þús.
tunnum af saltaðri síld til Sov-
étríkjanna, þar af er heimilt að
afgreiða frá Norðurlandi allt að
80 þús. tunnur. Er það sama
magn og endanlega var samið
um s. 1- ár.
Undirritaðir hafa verið £amn-
ingar um sölu á íúmlega 85 þús
und tunnum til Svíþjóðar. Er
þetta um 25 þúsund tunnum
meira magn en samið var um
við Svía s. 1. ár.
Finnar munu kaupa svipað
magn og s- 1. ár eða um 51 þús.
tunnur.
Þá hefur tekizt að gera fyrir-
framsamninga við Vestur-Þjóð-
verja um sölu á 5.000 tunnum
af Norðuralndssíld og 2,300 tunn
um af Suðurlandssíld, en þang-
að hefur sáralítið verið selt eft-
ir styrjöldina.
Gert er ráð fyrir að til Dan-
merkur verði seldar um 3.000
tunnur, sem er svipað magn og
s. 1- ár. i
Undanfarið hafa samninga*
umleitanir farið fram við önn-
ur þau lönd, sem <til greina
koma sem kaupendur íslenzkrar
asltsíldar, en óvíst er enmþá um
árangur af þeim tilraunum. i)
Blaðið hefur hlerað —
Að Sjómannadagsráð hafi
hug á, að fá bæjar-
yfirvöldin til að skíra
Kleppsveg upp og
kalla hann VÍN-
LANDSBRAUT, jafn-
framt því sem styttan
af Leifi heppna yrði
flutt að Laugarássbíói,
sem stendur við fyrr-
nefnda götu.