Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 22.12.1900, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 22.12.1900, Blaðsíða 5
XIV. 47.-48. Þjóðviljinn. 189 firði. Báturinn var frá Skerjavík, og drukkn- uðu 3 menn: Jóhann Jónsson frá Strandhöfn, Stefán Björnsson frá Bustarfelli, og Magnús Sœ- bj'örnsson frá Hrafnabjörgum. 17. s. m. fórst og bátur frá Þórarinsstaða- eyrum í Seyðisfirði, og týndust þar 3 menn: Jón Gunnl. Jónsson úr Pljótsdalshéraði, og 2 menn aðrir, Gísli Þóroddsson og Gísli Símonarson að nafni. Gufuskip sokkið. Gufuskipið „Egill“, eitt af Wathne-skipunum, er um mörg ár hefur verið i förum milli Noregs og Austfjarða, sökk ný skeð, á leið niilli Noregs og Bretlands. — Atvikaðist það með þeim hætti, að annað gufu- skip rakst á það, svo að gat kom á skipið, og sökk þegar. Skipshöfninni á „Agli“ var þó bj argað. Útbyrðis. Maður úr Reykjavík, Arni Finns- son að nafni, féll eða steypti sér útbyrðis af gufuskipinu „Hólar“, á leið milli Vestmanna- eyja og Reykjavíkur, aðfaranóttina 2. nóv. síð- astl., og drukknaði. Reglur um úthlutun styrks úr styrktarsjóð- um handa alþýðufólki hefur landshöfðingi geíið út 16. nóv. síðastl., eptir tillögum amtsráða. Styrknum verður i fyrsta skipti úthlutað á árinu 1901, og má eigi vera minni, en 5 kr. til hvers einstaks. Styrkurinn skal veittur „heilsulitlum eða ellihrumum fátæklingum, sem heimili eiga í sveitaríélaginu11, án tillits til framfærslusveitar, sem ekki þiggja sveitarstyrk, og eru, eða hafa verið i vinnuhjúastétt eða lausamennsku. Beiðni um styrk þenna skal send hreppsnefnd eða bæjarstjórn, og skal henni fylgja vottorð einhvers málsmetandi manns um það, að beið- andi fullnægi skilyrðum þeim, sem styrveiting- in er bundin. Styrkurinn veitist fyrir lok októbermánaðar ár hvert, og að eins fyrir eitt ár í senn. Alþingiskosning í Strandasýslu hefur nú landshöfðingi fyrirskipað, að fram skuli fara í næstk. maímánuði. Heppilegra hefði óefað verið, að fresta kosn- ingunni fram undir Jónsmessu ("24. júní), þar sem veðráttan getur auðveldlega hindrað fuud- arsókn í maí í þessu útkjálka héraði. En vera má, að „níhilistunum“, félögum landshöfðingja, komi þessi ráðstöfun hans betur. Hæztaréttardómur í einu Presthólamálanna, barsmíðamálinu, var kveðinn upp 6. nóv., og var sekt síra Halldóyrs Bjarnarsonar ákveðin 100 kr., eða hálfu minni, en í landsyfirrétti, en á hinn bóginn voru ákvæði yfirréttar um skaðabætur (120 kr. til Þórarins á Efri- hólum) og um málskostnaðarútlát látin standa óbreytt. Þetta er þá allur sigurinn, sem unnizt hef- ur við eltingarnar gegn Halldóri prófasti, og gat hann naumast magrari verið! í máli þessu var hæztaréttarmálfærzlumaður Jensen sækjandi, en Hindenburg verjandi, og hélt hann því fram, eins og áður hafði verið bent á hér í blaðinu, að tiltæki prests yrði að skoðast, sem lögmæt neyðarvörn, þar sem Þór- arinn hefði rofið húsfrið hjá klerki, og kallað hann „tugthúslim11, en Jensen hélt því fram, að prestur hefði látið svipuhöggið ríða, áður en Þórarinn hefði við haft þetta orð, og hefur það atriði ef til vill eigi verið svo glögglega upp- lýst í málsprófunum, sem þurft hefði. Isl. sýningardeildin á heimssýningunni í París, sem lautenant Daníel Bruun hefur átt mestan og beztan hlut að, hefur hlotið hœzta verðlaun hjá sýningarnefndinni, og megum vér íslendingar því vera hr. Bruun þakklátir fyrir alla frammistöðu hans í þessu máli. Maður fórst ol'an um ís. 1. nóv. síðastl. vildi það slys til á tjörninni við Hjalteyri í Eyjafirði, að unglingsmaður Jóh. Jón Vilhelm Möller, sonur Ola kaupmanns Möllers á Hjalt- eyri, datt ofan um ís. Heyrðust óp hans, því að hann gat eitthvað haldið sér á floti í vök- inni, og reyndi þá annar maður að fara til bjargar, en datt þá sjálfur ofan um ísinn, og var bjargað með herkjum; en hinn var þá. sokkinn. Nýtt barnaskólakús, 42 álnir á lengd og 14 álnir á breidd, með kjallara 42 X 10 al., hefur verið reist á Akureyri síðastl. sumar, og kvað það vera all-vegleg bygging. — Var hús þetta vígt, og til notkunar tekið, 19. okt. síðastl. Ný braðabirgðalög. — Hvað verður um Kínverjaí 15. ágúst síðastl. hefur konungur vor gefið út bráðabirgðalög, er banna að fiytja vopn og skotföng frá Islandi til Kína! Fýkur nú ekki i flest skjól fyrir vesalings Kínverjunum? Fjárskaðar. Seyðisfjarðarblöðin segja fé hafa fennt á ýmsum bæjum í Fljótsdalshéraði og Fjörðum i aftaka-veðri 9. nóv., og þá dag- ana, en fregnir um það enn óljósar. — Bænd- urnir á Hámundarstöðum í Vopnafirði, er fyrir bæjarbrunanum urðu, voru og svo óheppnir, að missa 50 íjár í ofviðri. 2. nó.v síðastl. missti og bóndi í Selvogi (í Stakkavík) 60 fjár (roskið) í sjóinn, og á bæn- um Gröf í Grímsnesi tórust 40 lömb í ós einum. Rjúpnadráp var óvanalega mikið í Eyja- fjarðar- og Þingeyjar-sýslum framan af vetri, og kvað útflutningurinn frá Akureyri, með síð- ustu skipum, hafa skipt mörgum þúsundum, enda verðið frá 18—25 aur. fyrir stykkið. Bágt á vesalings rjúpan. Aflabrögð. Bæði á Eyjafirði og á Austfjörð- um hafa í nóv. verið all-góð aflabrögð, en sjald- gjöfult þar, sem hér vestra. — Aptur er sagt fremur tregt um síld, bæði á Eyjafirði og á Austfjörðum. — 178 Mer flaug strax í Aug, hvað vera myndi, og rétti hann mer þá erfðaskrána með svo felldum orðum: „Lestu þetta fyrir mig, Fritz! Stafirnir renna sam- an fyrir augum mer, og svo finnst mér jeg líka vera svo skjálfhentur, að jeg get ekki haldið skjaliuu kyrru“. Jeg tók þá við erfðaskránni, 0g fór að lesa. Thöger Hansen sat á rneðan, studdi hönd undir kinn, 0g hlustaði þegjandi á mig. Aptan á erfðaskrána var þetta ritað, með fagurri rithönd: „Hver sem þú ert, er erfðaskrá þessa finnur, þá skaltu fá her fullkomna vitneskju um þá stór-synd, og um þau miklu brotin, sem eg framið hefi. Fulla vitneskju skaltu um það fá, hvers vegna jeg hefi samið og skrásett erfðaskrá þessa, eins og hún er. Það, sem eg hér rita, það er játning mín, gjörð af fúsum og einlæguru vilja, svo að minni síðustu ráð- stöfun verði fullnægt, guði vorum til dýrðar, en sjálfum mér til hugsvölunar og hvíldar. Á yngri árum lögðum við bræðurnir, Hinrik og jeg, báðir hug á unga og friða stúlku, Kristínu Mo- gensen að nafni. Til stúlku þessarar bar eg brennandi ást í hjarta, og get með sanni sagt, að hún er eina manneskjan, sem eg hefi eiskað á allri æfi minni, svo að mark sé að. Hefði eg fengið stúlku þessarar, og við orðið hjón, þá hefði að líkindum mín æfin orðið önnur, og jeg orðið góður og vandaður maður. En þeir, sem sögu ættar minnar þekkja, vita, að Hinrik varð mér hlutskarpari; ungfrú K r i s t i n varð konan hans. 171 hann í tali, og má ske brosað að sumu, sem hann sagði, þótt hugurinn væri aliur hjá Andrési. En það er líka hlálegt, að við ungu stúlkurnar skulum aldrei mega tala dálítið alúðlega og hispurslaust við ungan karlmann, án þess sagt sé, að við séum ást- fangnar, eða gefum undir fótinn. Æ, góði Fritz frændi! Aldrei á æfi minni hefijeg átt eins bágt, eins og núu. „Yertu hughraust stúlka litlau, anzaði eg, „og þá er hjálpin án efa mjög nærriu. „Guð veit, hvaðan hún ætti að komau, sagði Inger í hálfum hljóðum, og skauzt út um dyrnar, því að etaz- ráðið kom þá inn með kognaksflöskuna i því bili. Það leið nú eigi á löngu, áður en við kunningj- arnir vorum komnir í kappræður. Spannst það kapp út af politík, um ýmislegt, sem í blöðunum stóð. Hvað politiskar skoðanir snertir, þá er etazráðið eindreginn hægrimaður, en mér þykir alltaf fjarska gam- an, að malda ögn í móinn, svo að ekki þarf að sökum að spyrja, ef við komumst út í politiskar kappræður. Við ráðum þá hvor á annan, eins og tveir ungir hanar, sem brenna í skinninu af óþreyjunni eptir því, að sjá hvor annars blóð. I þetta skipti gerðist eg nú nokkuð nærgöngull í athugasemdum mínum um einhvern af hans flokksmönn- um, og etazráðið var orðinn svo æstur, að hann taldi mig þess maklegastan, að vera dæmdur frá búslóð og æru. En rétt í þeirri svipan, er hæðst stóð, kom Inger inn, og tjáði föður sínurn, að inaður biði hans frammi, er vildi fá hann til viðtals.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.