Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 23.02.1901, Síða 2
26
Þjóðviljinn.
XV 7.-8.
einn einasti af leiðandi stjórnmálamönn-
um þeirra skuli hafa haft hug og dug
til þess, að segja þjóðinni fullan sann-
leikann i máli þessu. Hann endurtekur
því næst ákærur þær, er hann birti í
brófi sínu til Felix Faure í janúar 1898,
gegn þeim Paty de Clam, Mercier, Billot,
Boisdeffre, Gonse, Pellieux, og meðlimum
hérréttarins, og bendir á, að allt, sem
fram hafi komið í málinu sýni og sanni,
að ákærur sínar hafi verið sannar, og
þó helzt til vægilega að orði kveðið. Að
lokum getur hann þess, að hann hafi
sjálfur gert allt, sem í sinu valdi hafi
staðið, til að leiða sannleikann í ljós, og
hverfi nú aptur til bókfræðisstarfa sinna,
en sé þó enn eigi vonlaus um sigur
sannleikans og róttlætisins að lokum.
Mun Zola, með bréfi þessu, hafa vilj-
að gjöra siðustu tilraunina, til að hindra,
að lögin yrðu samþykkt, en fókk því
þó eigi til leiðar komið, þar sem stjórn-
málamönnum Frakka var það rikast í
huga, að Dreyfus-málið yrði eigi meiri
óróa valdandi, en orðið er.
Samt fékkst sú breyting gjörð á
frumvarpinu, að Dreyfus er eigi sjálfur
úti lokaður frá þvi, að fá mál sitt prófað,
og má vel vera, að nú reynist enn auð-
veldara, en fyr, að fá sannleikann i ljós,
þar sem allir geta vítalaust að lögum
sagt frá glæpum, er þeir, eða aðrir,
kunna að hafa framið i sambandi við mál
hans. —
Mikið kapp leggur ráðaneytið Wal-
deck-Rousseau á það, að draga úr valdi
kaþólsku kirkj>unnar á Frakklandi, og
sérstaklega að sporna við því, að hún
svæli undir sig meiri fasteignir, en orðið
er, og er mælt, að Leo páfi hafi, árið
sem leið, ritað Loubet forseta vingjarn-
legt bróf, minnt hann á, hve páfarnir
hefðu jafnan verið Frökkum haukar í
horni, og beðið hann, að samþykkja ekki
slíkar tiltektir, er heilagri kirkju mættu
að ógagni verða; en Loubet kvað hafa
skotið því máli frá sér til stjórnarfor-
seta síns. — —
Filippseyja-ófriðinn hafaBanda-
menn enn eigi getað sefað, og kom ný
skeð fram tillaga þess efnis í efri mál-
stofu (senati) Bandamanna þingsins, að
stöðva ófriðinn, og heita uppreisnar-
mönnum uppgjöf saka; en sú tillaga
var felld.
---------------
Siæm póstskil.
Herkóngurinn á Hesteyri,
sem póstafgreiðslumaður.
I 3.-4. nr. blaðs þessa var skýrt frá
skilum Hesteyrar-póstafgreiðslumannsins
á uieðmælingabrófi, sem vór í síðastl.
desembermánuði sendum hr. Guðm. bónda
Þursteinssyni á Hesteyri.
I téðu blaði birtist og svar póstaf-
greiðslumannsins, þar sem látið var í
veðri vaka, að enginn hefði spurt eptir
bréfi til Guðmundar, nema hvað sonur
hans hefði spurt búðarmanninn á Hest-
eyri eptir þvi sama kvöldið, sem póstur
kom, og fengið þá það svar, að Guðm.
ætti þar ekkert bróf, með því að búðar-
manninum hafi veríð ókunnugt um á-
byrgðarbréfin(I)
Eu hvað segir nú hr. Guðm. Þor-
steinsson um þetta?
Hann segir svo í bréfi til vor, dags.
12. febr. þ. á.:
„Jeg 8endi samstundis, — er póstur kom
heim til mín —, að vitja bréfsins, og sá mað-
ur fann ekki, nema búðarmanninn. — Svo
sendi jeg aptur, eptir 1—2 kl.tíma, Guðmund
Jón, son minn, og hann spurði Sigurð Pálsson
sjálfan að bréilnu, og hann fékk ekki neinar
frekari npplýsingar. að þar vœri neitt bréf til
mín, svo að jeg var vist afsakaður, að halda
spurnum eptir því þar“*.
Yér sjáum eigi betur, en að málið
taki nú fremur að vandast fyrir hr. póst-
afgreiðslumanninn, þar sem svo er af
brófi hr. Guðrn. Þorsteinssonar að sjá,
sem það bætist nú ofan á annað, að
skýrsla sú, er hann, sem opinber sýslun-
armaður, hefur gefið um málefni þetta,
só ef til vill eigi öllu samkvæmari sann-
leikanum, en herþjónustusögurnar hans
sællar minningar!
En það getur verið áhættu meira í
opinberri stöðu, en við atkvæðasmölun
til alþingiskosninga, að taka of ómjúkt
á sannleikanum, eða svo segist hegning-
arlögunum frá.
Það er því ekki ólíklegt, að gert
verði ögn hreinna fyrir dyrum Hesteyr-
ar-póstafgreiðslunnar i máli þessu, en
enn er orðið.
Dýrt skeinmtiskip. Skipið „Viotoria-Aibert“,
er Victoria Bretadrotting hefur ný skeð látið
smíða sér, og setlað er eingöngu tii skemmti-
ferða, kvað hafa kostað 750 þúsundir sterlings-
punda, eða um Í31/2 milj. krona.
Floshattur, sem Kriiger gamii, 1 jðveldist'or-
seti í Transiaal, hafði einhvern tíma átt, var ný
skeð seldur á uppboði í Lundúnaborg, og sleg-
inn þar hæðstbjóðanda fyrir 450 kr.
Norskur skipstjóri, Saxgaard að nafni, hetur
ný skeð fundið skógi vaxnar og tróvsamar eyjar
í Kyrrahafi, er menn eigi vissu af áður.
Eyjar þessar liggja milli Filippseyja og
Karlseyja, á 2. stígi 4 mínútu norðla-grar
breiddar og á 135. stigi 30. minutu austlægrar
lengdar, og eru nú nefndar Saxgaardseyjar,
eptir nafni ofan nefnds skipstjóra.
Mælt er, að Bandamenn hafi þegar slegið
eign sinni á eyjar þessar.
Hvað Suður-Afriku ófriðurinn kostar. Svo
er talið, að ófriður þessi, sem nú hefur staðið
nær hálft annað ár, kosti Breta 3‘/a milj- króna
á sólarhring hverjum, eða frek 2400 kr. á mín-
útunni.
Fundið fé í jörðu. í Mexico, höfuðborg
Mej'ico-lýðveldisins í Ameríku. var ný skeð
verið að grafa fyrir vatnsrennum. og fundust
þá ýmsir skartgripir úr gulli, er stafa frá tim-
anum áður, en Evrópumenn komu þangað
fyrst.
Við járnbrautarlagningu í Mexico fundust
og ný skeð ýmsar afar-gamlar gull- og dilfur-
myntir, sem taldar eru 50 þús. dollara virði,
og var því fé skipt jafnt á milli finnendanna
og ríkisfjárhirzlunnar.
*) Leturbieytingarnar eru gjörðar af oss.
Ritstj.
Ganiall, flugrikur bankastjóri í New York
heflr ný skoð gefið all-mikið fé, til þess að
koma á stofn híeli handa millíonmæringum
sem sóað hafa eigum sínum, eða misst þær af
óhöppum.
Enskur lávarður, Wemyss að nafni, er rétt
nýlega kvongaður, og var þá fullra 82 ára að
aldri. — Hann var ekkjumaður, og hafði geng-
ið í fyrra hjonabandið fyrir 57 árum, og eru
börn hans, frá því hjónabandi: Elcho lávarður
og trú Hilda Brodrick, kona brezka utanríkis-
ráðherrans, sem nú er.
Þraðarlausu fréttaskejtiu, sem kennd eru
við Marconí, hafa orðið að miklu minna liði í
Suður-Afríku ófriðinum, en við var búizt, enda
þykir nú tuil sannað, að þau berist miklu betur
yfir sjo, en land, með því að jarðvegurinn
gleypir í sig rafmagnsbylgjurnar, einkanlega
sé hann mjög þurr, svo sem tíðast er þar syðra,
nema meðan rigningatíminn stendur yfir.
Sjálfstjórnarmál íra, sem legið hefur í hálf-
gerðu dái um hríð, kemur nú að likindum brátt
aptur á dagskrá, með því að Parnellingar og
and-Pamellingar, sem legið hafa í íildeilum,
hata nú sameinað flokka sína, og ráða yfir 80
atkvæðum á brezka þinginu, og stýrir Redmond
þingmaður þeim flokki.
Eins og stendur, þá er íhaldsflokkurinn
á þingi Breta að vísu svo fjölmennur, að ekki
verður rönd við reist, en breytist flokkaskipun-
in á þingi svo, að írsku atkvæðin geti ráðið úr-
slitum, þá verður sá tiokkurinn, er völdin vili
hafa, að eiga íra sér hiiðholia.
Ilátíðahöld voru víða á Þýzkaiandi 26. okt.
síðastl. í minningu þess, að þá voru iiðin 100
ár írá fæðingu Moltke’s hershöfðingja, sem mest-
an þátt átti í sigurvinningum Prússa á öidinni,
sem ieið.
Sjúkrahús var ný skeð stofnað i bænum
Fuenfkirchen á Ungverjalandi, og höfðu húsgögn
o. fl. verið pantað hjá verziunarféiagi einu þar
í bænum, fyrir 5400 kr. En með því að það
kvisaðist, að munir þessir væru smíðaðir í
Austurríki, en ekki á Ungverjalandi, þá neit-
aði sjúkrahúss-stjórnin, er til kom, að veita
þeim móttoku, og ljúka ungversk blöð ein-
dregnu lofsorði á.
Sýnir þetta, sem fleira, hver rígur er á
rniili Ungverja og Austurríkismanna, og hve
almennt sú skoðun er ríkjandi hjá Ungverjum,
að hlynna fremur að innlendum, en útlendum
iðnaði.
Barnaskólamálið í Aðalvík.
Eins og lesendur „Þjóðviijans“ mun
reka minni til, var barnaskólamálsins í
Aðalvík getið í fréttabréfi béðan í síðastl.
maí, og var þar stuttlega skýrt frá, hvern-
ig því væri komið. En með þvi að mál
þetta er má ske næstum því einstakt í
sinni röð, þá er nauðsyn, að skýra mönn-
um frá, við hve erfiðar ástæður mái þetta
á að stríða, og verður þá að rekja stuttiega
hoiztu atriðin í sögu þess.
Þetta mál er svo fram komið, að
fyrir nálega 20 árum íúndu rnenu hór
nyrðra, hve afar-brýn nauðsyn væri á
því, að hlynnt væri að barnauppfræðsl-
unni. og komst það inál svo langt, fyrir
fortölur ýmsra góðra manna, að til sam-
skota var efnt, er námu fast að 1000 kr.;
en þegar málinu var svo langt komið,
byrjaði það þráttunnar tafl, sem mörgum
góðum fyrirtækjum hefur að fjörlesti orð-
ið, að hver viidi þá hafa skóiann hjá
sér, og var um það þráttað, unz hver