Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 06.03.1901, Blaðsíða 4
36
Þjóðviljixn.
XV 9.-10.
Andrés Féldsted . . . Eink.: . . £ Stig 191
Ingólfur Gislason . . . . . I. 182
Þorbjörn Þórðarson . . . . I. 160
Þeir sigldu svo allir til Kaupmannahafnar með
„Lauru“ í febr., til þess að ganga þar á spít-
ala, sem venja er til.
Seld yerzlunarhús. Kaupmaður J. P. T.
Bryde i Kaupmannahöfn hefur ný skeð keypt
hin svo nefndu Knudtzon’s verzlunar- og vöru-
geymslu-hús i Hafnarfirði, ásamt mikil li lóð, er
þeim fyigir, og var kaupverðið 20 þús. krónur.
Skipstrand. Enskt hotnvörpuveiðagufuskip
strandaði 14. febr. síðastl. fram undan Ragn-
heiðarstaðafjörum í Árnessýslu, lenti þar á
skeri, og brotnaði. — Skipverjar voru alls 11,
og ætluðu að bjarga sér á báti til lands, en
bátnum hvolfdi, og drukknuðu 10, þar á meðal
einn Islendingur; en einum tókst að bjarga sér
á sundi.
Strandbálurinn „Skálholt11 kom til Reykja-
víkur 9. febr., aukaferð, hafði verið sendur með
þær vörur, er „Laura“ gat ekki flutt.
Nýi skipstjórinn á „Skálholt11, sem tekinn
er við í stað hr. Aasberg’s, heitir Gottfredsen.
Við Faxaílúa var í febr. prýðisgóður afli á
opna báta, er til fiskjar gengu af Akranesi, og
sömuleiðis í verstöðunum á Garðskaga, og þar
í grenndinni.
Þilskip lögðu út syðra um miðjan febr., og
er það nokkuru fyr, en venja hefur verið.
Fjölkvœni. Maður einn á Kjalarnesi, sem
lézt vera ekkjumaður, hefur látið sóknarprest
sinn gefa sig i hjónaband; en síðan er orðið
uppvíst, að hann á konu á lífi suður í Grinda-
vík, og hefur því verið hafin gegn honum saka-
málsrannsókn.
---------------
f Jón snikkari Jónsson.
Dáinn á ísaflrði 20. sept. 1900.
Hvellur klukkna hljómur
að hlustum vorum ber.
Skæður skapadómur
skráður rúnum er:
aldrei breytast Urðar ráð,
það, sem bókað eitt sinn er,
út ei verður máð.
Að dimmu dísar ráði
dauðans kalda hönd
sló þig loks að láði,
og lagði hels í bönd.
J?að er oss sorg, og þungbært tjón,
að missa þinni aðstoð af
íturmennið Jbn.
Þín ósk, að allra rómi,
á mannfúndum var
þíns fólags frægð og sómi
í flestum málum þar.
Þú hataðir lýgi og hræsnismál,
en allt, sem gott og gagnlegt var,
gladdi þína sál.
Isafjörður ætti
opt að minnast þess,
hve margra böl þú bættir,
og byggðir hægri sess;
ráðhollur þeim reyndist bezt,
þú hafðir snilld og gáfna gnótt,
að grunda’ og skoða flest.
Þökk fyrir vit og vilja,
og verk á lífsins braut;
þú kenndir þeim að skilja,
er þína tilsögn hlaut,
að sjálfstæði og sannleiksást
voru þau vopn, er varðist með,
þá vina flokkur brást.
Far vel, og lifi lengi
þín lofsæl minning hér.
O, að Frón vort fengi
sem flesta líka þér,
þá mundi blómgast bær og lönd,
þá mundi hækka hagur vor,
og hverfa slculda hönd.
8. Eyjólfsson.
Apturhaldssemi „Þjóðólfs“. — Árás
ó einstaklingsfrelsið! Blaðið „Þjóðólfur",
sem í höndum hr. Hannesar Þorsteins-
sonar er orðið að argasta apturhaldsmál-
gagni, lætur sér nú ekki lynda það fram-
ar, að reyna að spilla fyrir auknu stjórn-
frélsi á landi hér, heldur er nú hlaðsneypa
þessi einnig farin að ráðast á einstaklings-
frelsið, og heimta það takmarkað.
Sem dæmi þessa má, auk annars,
nefna, að 15. febr. síðastl. flytur blaðið
athugasemdalaust, og með sýnilegri vel-
þóknun, tillögu frá einhverjum Árnesingi
— sem virðist vera í vinnuhjúahraki —
þess efnis, að þingið þurfi að reyra fast-
ar vistarbandsfjötrana að almenningi, og
takmarka réttinn til lausamenDsku að
miklum mun.
Engum frjálslyndum manni, er metur
rétt meðbræðra sinna og systra, þótt við
fátækt búi, getur að vísu blandazt hugur
um það, að þegar breytt verður lausa-
50
Sátu þeir þar reykjandi, drekkandi, og spjallandi
saman.
Voru þetta að mestu menn þar úr fjallahéruðunum:
fylgdarmenn, burðarmenn og vagnstjórar.
Bróðir minn sló sér nú í hópinn, og tyllti sér
þar niður.
Græddi hann sér á kjötsúpu leifunum, náði sér í
brauðbita, og drakk sér kollu af landvíni.
Stór Bernhardshundur lagði hausinn á hné bróður
mínuin, og lét við hann mjög vingjarnlega, svo að hann
miðlaði honum með sér af matnum.
í nánd við bróður minn sátu tveir unglegir, dökk-
eygðir ítalir, og gaf hann sig á tal við þá.
ítalir þessir voru frá borginni Florentz, og hétu
Stefano og Battisto.
Aðal-atvinna þeirra var í því fólgin, að selja ýmsa
útskorna steina, smáhluti með tíglasmíði, o. fl., og var
nú ferðinni heitið, yfir Interlaken, til borgarinnar
Gen f.
Kváðust þeir orðnir full saddir af norðrinu að þessu
sinni, og þráðu nú, sem börn, að koinast sem fyrst til
átthaga sinna á hinum blómfögru bökkum Arno-árinn-
ar, og að líta aptur fjöllin sín bláu, og grágrænu olíu-
viðarskógana.
Þegar bróðir minn fór að hátta um kvöldið, þótti
honum þvi vænt um að sjá, að Italir þessir áttu að sofa
þar í sama herberginu.
Þar var og þriðji maðurinn fyrir. Hann var þegar
í fasta svefni, og sneri sér til þils.
Skiptu þeir félagar sér ekkert af honum, en lögð-
ust þegar fyrir, með því að áformað var, að leggja af
59
laken næsta þriðjudag, og verða þaðan samferða til
Kandersteg, og fylgja svo brúðhjónunum í kirkju á
fimmtudaginn.
Bróðir minn keypti því næst nokkra útskorna steina,
óskaði Itölunum góðrar og ábatasamrar verzlunar, og
horfði á eptir þeim, unz þeir hurfu honum sýn.
Hann var nú orðinn einn síns liðs, og gekk svo
með teiknibók sína upp í dalinn, og var þar allan dag-
inn að mála.
Um sólsetur borðaði hann einn kvöldverð í her-
bergi sínu, og þokaði svo stólnum að eldstónni, því að
hann ætlaði sér að lesa ögn.
Það var komin nótt, köld og saggasöm nótt.
Hálf-rakt brennið snarkaði í eldinum, vindurinn
næddi um dalinn, og regnið iamdist öðru hvoru í rúð-
urnar, svo að brakaði í.
Bróðir minn lagði bókina frá sér, ug fór nú að
hugsa um hitt og þetta.
Svona leið nú einn kl.tíminn eptir annan.
Klukkan ellefu heyrði bróðir minn, að veitinga-
húsinu var lokað, og að heimafólkið var að ganga þung-
lamalega um á tréskóm sínum, til að koma sér til kyrrðar.
En bróðir minn átti enn ómögulegt með það, að
taka á sig náðir.
Hann bætti þvi enn brenni á arininn, dró ljósið
hærra upp í lampanum, og fór að ganga um gólf.
Síðan opnaði hann gluggann, lét regnið lemjast
framan í sig, og vindinn næða um hár sér.
Yar hann því orðinn svo gagndropa, er hann lok-
aði aptur glugganum, að hann varð þegar að hafa frakka
og skyrtu skipti.