Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 16.03.1901, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 16.03.1901, Blaðsíða 4
44 Þjóðviljinn. XV 11.*—12. væri, að reyna að ryðja siðmenningunni brautir í Kína, þá vissu þó bæði Japans- menn og Kínverjar, að tiltektir Evrópu- manna þar eystra væru í raun og veru ekkert annað, en verzlunarfyrirtæki, eða tilraun til þess, að neyða Kínverja með vopnurn, til að kaupa þær iðnaðarvörur Evrópumanna, sem þá brysti markað fyr- ir annars staðar. Evrópumenn hefðu þegar lagt fé, er milj. skipti, til ýmsra fyrirtækja í Kína, en þættust eigi hafa haft nóg upp úr því, og væru nú, sem á þönum, pening- anna vegna, og færi því svipað mönnum, er óheppnir væru í spilum, og reyndu að vinna upp tap sitt með því, að leggja tvöfallt undir. En þó að stórveldunum tækist, að neyða Kínverja með vopnum, til að ganga að einhveijum samningum, er þau teldu sér hag að, þá myndi það að eins reyn- ast hagur á pappírnum, því að Kínveij- ar myndu hata Evrópumenn því meir, svo að mjög hætt væri við, að þeir gætu tapað því í dag, sem unnizt hefði i gær. I siðferðislegu tilliti gæfu hvorki Jap- ansmenn né Kínverjar eins eyris virði fyrir hina svo nefndu siðmenningu Ev- rópuþjóðanna, og myndu aldrei aðbyllast hana. Yfir höfuð gerðu Evrópumenn réttast í því, að láta sér nægja, að hafa yfirráð- in yfir Atlantshafinu og Indverska haf- inu, en lofa gula kynþættinum að ráða, að því er til Kyrrahafsins kæmi, enda væri hann og vel fær um, að verja þau yfirráð sín, ef á þyrfti að halda, og myndi færast í ásmegin að því skapi, sem kosti hans væri þröngvað. Ef Evrópumenn reyndu að banha vopna innflutning til Kína, þá mundu Japansmenn selja Kínverjum vopn í hendur, svo að guli kynþátturinn gæti allur sameinazt, til varnar frelsi og sjálf- stæði sínu, ef í hart slægi. --------------- Eptirmæli. f Jón Bjarnason andaðist að Neðri- Hjarðardal (Bakka) í Dýrafirði fimmtu- daginn 21. febr. þ. á. Foreldrar hans voru Bjarni bóndi á ítana í Núpsþorpi, Sigmundssonar smiðs frá Ytrihúsum, Bjarnasonar, — og Guðrún Nielsdóttir; en móðir Guðrúnar var Guðrún Jónsdótt- ir frá Haukadal, Þorvaldssonar í Hauka- dal, Jónssonar, Pálssonar, Ólafssonar prests, skálds á Söndum, (f 1627) Jóns- sonar. Jón var fæddur á Rana 17. febr. 1827, og ólst þar upp hjá foreldrum sín- um; vandist hann allri algengri bænda- vinnu á sjó og landi, og þótti að mörgu bera af jafnöldrum sínum; var hann opt á sumrum á þilskipum, en er hann var 23 ára að aldri, kvæntist hann eptirlif- andi ekkju sinni Helgu Bjarnadóttur frá Felli, Bjarnasonar, alsystur Ólafs skip- stjóra á Ketilseyri. Þau hjón bjuggu fyrst á Læk í Mýrahrepp, og síðan lengi á Ytri-Lambadal, áttu þau saman 14 börn, þar af dóu tvö á unga aldri, og önnur tvö á fullorðinsaldri, en 10 lifðu fóður sinn, 4 synir og 6 dætur: 1. Sveinn, bóndi á Bakka, giptur Ólöfu Sigmundsdóttur frá Alviðru; þau hjón eru bræðrabörn. 2. Guðni, tómthúsmað- ur i Dýrafirði, giptur Kristínu Pálsdótt- ur, frá Stapadal, Snæbjörnssonar. 3. Guðmundur Ólafur, tómthúsmaður á Flateyri, giptur Sigriði, dóttur Sighvats Borgfirðings. 4. Jónas, yngstur allra systkina sinna, búsettui í Gloucester i Bandafylkjunum í Ameríku, giptur ís- lenzkri konu. 6. Björg, gipt Valdimar Þorvarðssyni, bónda i Hnifsdal. 6. Guð- ný, gipt Jónasi Þorvarðssyni, bónda i Hnífsdal. 7. Guðfinna, tvígipt, og ekkja eptir báða menn sína. 8. Guðrún, gipt Auðunni Jónssyni i Lambadal. 9. Dag- björt, gipt Sigurði Ólafssyni á Sæbóli. 10. Guðbjörg, ógipt. Jón var einn hinna beztu verkmanna til allrar vinnu á sjó og landi, og sístarf- andi, smiður góður á tré, og vefari, og mátti svo kalla, að hvert verk léki í höndum hans. Það er viðbrugðið iðni hans og hagvirkni, og til allra síðustu æfistunda vann hann með fullum áhuga, þó heilsan væri þrotin. Hann var sönn heimilisprýði, lundin sífellt létt og glað- vær, viðmótið glaðlátt og góðmannlegt, Og hið háttprúðasta. Hann hafði fagra og mikla söngrödd, og hafði yndi af söng og kveðskap. Hin siðustu 11 æfi- ár sín var hann, ásamt konu sinni, í hús- um Sveins sonar síns, og mátti jafnan telja hann stoð og prýði þess heimilis, og hvervetna var hann virtur og elskað- ur af öllum, sera einhver kynni höfðu af honum. Hann var í full 51 ár i hjóna- bandi, með konu sinni, sem nú saknar nær hálf áttræð síns ástrika og trúfasta förunautar. 62 En hvernig sem þvi var nú varið, þá var bróðir minn mjög utan við sig, og niðurdreginn, og ásetti sér þvi, að vera ekki einni nótt lengur i Lauterbrunnen, en halda þegar af stað til Interlaken. En er hann sat að morgunverði, og var að velta því fyrir sér, hvort hann ætti heldur að fara fótgang- andi, eða leigja sér vagn, heyrði hann, að vagn nam staðar við garðhliðið, og rétt á eptir ruddist ungur mað- ur inn til hans. „Er, sem mér sýnist? Battisto?“ kallaði bróðir minn forviða. „Hvað kemur til, að þú ert kominn hingað aptur? — Og hvar er Stefano?“ „Jeg skildi hann eptir í Interlaken, herra minnu, mælti ítalinn, sýnilega mjög órór, og öðru vísi, en hann átti að sér. „Hvað er þá að?u spurði bróðir minn, sem varla gat dregið andann. „Hann er þó vonandi ekki veikur, eða?......“ • Stefano líður vel, herra minn“, svaraði Battisto. „En ... það er annað ... eitthvað annað ... afer-hræði- Iegt, sem hlýtur að vera orðið að ... Trúið þérásvipi?u „Hvað, Battisto? Á svipi?“ spurði bróðir minn. „Já, guð hjálpi mér, herra minnu, svaraði Battisto ... „En jeg get svarið þess dýran eið, að jeg sá svip- inn hans Kristjáns í nótt ... Klukkuna vantaði þá tutt- ugu mínútur í tólf“. „Tuttugu mínútur í tólf“, tók bróðir minn upp ept- ir honum, sýnilega óttasleginn. „ Já, jeg lá í rúininu mínu, og Stefano svaf í sama herberginu. Mér var í fyrstu vel heitt, og hafði gott og nægi- 71 á blóði mínu! Taktu hana burtu! Hún særði mig þrem sárurn! Hún svæfði mig svefni dauðans! Gerirðu þetta, þá fæ eg frið, frið í moldinni kölduu. Að svo mæltu þótti dátanum stúlkan ýta hálsklútn- um frá hálsi sér, og sá hann þá þrjú djúp og sundur- ginandi sár. „Jeg veit, hver hefur myrt migu, þótti honum hún enn fremur segja, „en jeg þori ekki að segja það, enda játar þorparinn af brot sitt sjálfur, sjái hann blóð mitt. En óspillt er blóð mitt ekki framar, því að hann svívirti það, andstyggðin þessi. Far nú, og gjör, sem eg segi; en minnztu ekki á það við nokkurn mann áður. Það lýsir þegar af degiu. Að svo mæitu hvarf draumsýnin honura. I sömu svipan vaknaði og dátinn, og sá, að farið var þegar að lýga af degi. Hann mundi drauminn glögglega, orði til orðs, reis því þegar úr rekkju, klæddi sig í snatri, og varpaði yfir sig yfirhöfninni. Að því búnu laumaðist hann út úr herberginu, og læddist ofan stigann. Lauk hann þvi næst hljóðlega upp útidyrahurðinni, er út i garðinn vissi, fór þar út, og sá háa, hrörlega múrvegginn, að eins örfá skref burtu. Svo var að sjá, sem múrveggur þessi hefði fyrrum verið utan um þaklaust fjárbyrgi. Dyrnar inn í fjárbyrgi þetta voru harðlæstar, en stígi stóð upp við vegginn. Hann klifraði nú upp eptir stiganum, og leit niður liinu raegin.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.