Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 16.03.1901, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 16.03.1901, Blaðsíða 7
XV. 11.—12. Þjóðviljinn. 47 síðan verið einna mestur fyrir „innan línuna“, jafn vel 3—6 hundruð með bát suma dagana hjá Ögurnesingum og Álptfirðingum, en sjald- gjöfult þvi miður. — í Út-Djúpinu var aptur minna um aflann, en þó einatt dágóð fiskreita, þegar á sjó er farið, um hundrað, og þar yfir. Kútterinn „Ragnar“, eign hr. Árna kaupm. Sveinssonar, er sökk hér „í Sundunum11 aðfara- nóttina 22. f. m., kvað nú vera farinn að liðast sundur, og hafa rekið úr honum bjálkar úr þilfari o. fl. — Það er þvi einmæli, að þó að skipið náist upp, sem mjög er talið tvísýnt, þá verði það aldrei, nema tiL eJdsneytis, úr því sem komið er, og er slíkt ærinn skaði, þar sem um jafn dýrt skip var að ræða. Skipshöfn sú, er ráðin var á „Ragnar“, kvað nú og þegar hafa ráðið sig á annað skip. Tóbaksmennirnir bera sig nú ýmsir all- báglega yfir verðhækkuninni á tóbakinu, og er ekki laust við, að sumir þeirra heyrist raula fyrir munni sér vísuna gömlu: „Nú er ekki í pontu par, prettað hefur hún nasirnar átján pund eg í hana skar, frá India-landi þetta var“. En þvi miður mun litil von á nokkurri lækkun í bráð þar sem hækkunin er hyggð á samnfngi tóbaksgjörðarmannanna í Danmörku Tíl íÍP ÍIÍÍVP — r*P' Dame: som er blevet 111 uC 1/UlC. h0nm>clet for Dövhed og Öre- susen ved hjælp af Dr. Nicholsons kunstige Trommehinder, har skænket hans Institut 20,000 Kr., for at fattige Döve, som ikke kunde kjöbe disse Trommehinder, kunde faa dem uden Betaling. Skriv til: Institut „Longcott“, Gunnersbury, London, W,, England, Nokkrar tunnur af vel saltaðri beitu-síld eru til sölu. — Semja má við Hélga Sigurgeirsson á ísafirði. Crawfords ljúffeng’a BISCUITS (smákökur) tilbúið af CEAWPOED & SONS Edinburgh og London. Einkasali fyrir ísland og Færeyjar F. Hjortli & Kjöbenhavn K. Kresólsápa. Tilbúin eptir forskript frá hinu kgl. dýralækningaráði í Kaupmannahöfn, er nú viðurkennd að vera hið áreiðanleg- asta kláðamaurdrepandi meðal. Fæst í 1 punds pökkum hjá kaupmönnum. Á hverjum pakka er hið innskráða vöru- merki: AKTIESELSKABET J. HAGENS SÆBEEABRIK, Helsinger. Umboðsmenn fyrir Island: F. Hjorth & Co. Kjöhenhavn K. Biðjið um: Sh. andinavislL Sx.portlx.afte Surrogat Kjabonhavn. — F. Hjorth & Co. Hús til sölu. Hús þau, sem mér til heyra, og standa i Traðarlandareign í Hólshreppi, eru til sölu, með góðum borgunarskilmálum. Semja má við rit- stjóra blaðs þessa, er hefnr fulla heimild, til að útkljá kaupin, og gefa út afsals- bréf fyrir mína hönd. ísafirði 11. marz 1901. Sæm. Benediktsson. St. „Harpa“ nr. 59 í Bolungarvík hefur áformað, að halda tombólu í næst- komandi marz- eða apríl-mánuði. Agóðanum á að verja, til að koma upp aptur fundahúsi stúkunnar, sem fauk 6. jan. þ. á. Yér skorum því á alla, menn ogkon- ur, sem vilja styðja bindindismálið, að styrkja þetta fyrirtæki með munum eða innskrift til einhverra kaupmanna á ísafirði. Gjöfunum veitir móttöku einhver af okkur undirrituðum, ásamt Helga verzl- unarmanni Sveinssyni á ísafirði. Bolungarvík 20. febr. 1901. Porgrímur Sveinsson. Arni Oíslason. J'ohannes Jensson. Sturla F. Jbnsson. Pétur Oddsson. Yfirlýsing. Upp frá þessum degi neyti eg engra áfengra drykkja, eða nokkurs tóbaks, nema með læknisráði. Og mun eg álíta það miður vináttumerki við mig, að bjóða mér slíkt, af þeim, sem lesa þetta. Æðey 3. marz 1901. Loptur Gunnarsson. 68 María, veslingurinn, er dáin, og þegar bróðir minn fór einu sinni um í Kandersteg, á leið sinni til Ghemmi, þá skoðaði hann leiðið hennar. Það er í litla kirkjugarðinum þar, undir kirkju- veggnum, hjá leiðinu hans Kristjáns. Blóðöxin. í þorpi einu, all-stóru, hafði herstjómin kraf- izt gistingar um tima handa ungum hermanni, og undir- foringja, og voru þeir þá til veru hjá einna ríkasta slátar- aranum, sem þar átti heima. Einn morguninn sagði þá dátinn undirforingjanum frá því, að hann hefði dreymt all-kynlegan draum þá um nóttina. Að visu mundi dátinn eigi draum þenna sem glögg- ast, en það mundi hann þó, að honum hafði birzt í drauminuin hvitklædd meyja, sem vildi fá hann, til að fylgjast eitthvað með sér, og var, sem stjörnur leiptruðu í kring um höfuð henni. „Var hún lagleg?“ spurði undirforinginn í spaugi. „Hún var fögur, sem engill frá himnum“, svaraði dátinn, „en þó svo fbl í framan, að þar var engan blóð- dropa að sjá. 65 Það var sólskin, og suðrænn hiti. > Gragnsær, sem gler, og blár, sem himininn, lá ís- flöturinn fram undan oss, og sá hér og hvar í langar og ískyggilegar jökulsprungur, er voru all-örðugar og hættu- legar yfirferðar. Það var nú haldið áfram, hægt og gætilega, og menn bundnir svo á vaðinn, að jafht bil var á milli. Voru tveir leiðsögumennirnir á undan, en einn á eptir. Þannig var nú haldið áfram til hægri handar, unz komið var að snarbröttum kletti, sem klifra varð upp, til þess að ná efri jökulbreiðunni. Battisto, og bróðir minn, voru þeirrar skoðunar, að ekki yrði komist upp klettinn, nema annar endi vaðsins væri festur að ofan. Svo var nú og gert, og bróðir minn bjóst nú, til að klifra upp klettinn. En er hann var rétt að byrja, rak Battisto upp lágt óp, svo að bróðir minn nam þá staðar. „Sankti María, herra minn! Lítið þér þangað!“ Bróðir minn leit þá þangað, sem til var vísað, og — eins og guð er í himninum — þá sá hann þar Kristján Baumann, sá hann þar í glaða sólskininu, má ske að eins hundrað fet frá sér! En jafh skjótt er bróðir minn þekkti hann, var hann aptur horfinn honum sýn. Battisto, sem var fölur, sem nár, féll á kné, og bændi sig. Bróður mínum varð heldur ekki um sel, og hall- aðist upp að klettinum.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.